Heimskringla - 11.06.1914, Blaðsíða 8

Heimskringla - 11.06.1914, Blaðsíða 8
Bls. 8 HEIMSKRINGLA WINNIPEG, II. JÚNI 1914 Þekkir þú á Piano? Þú þarft ekki aS þekkja á verS- lag á Píanóum til þess aS sann- faerast um aS verSiS er lágt á hinum mismunandi Píanóum vorum. B. LAPIN HLUSTIÐ KONUR j Nú erum vjer aðselja vorklæðnað afar ódýrt. NiCursett verðá öllu. I Eg sel ykkur í alla staði þann | bezta alklæðnaö fáanlegan, fyrir $35 00 til $37.50 Bezta nýtizku kvenfata stofa ViSskiftamenn eru aldrei lát- : nir borga okurverS í verzlun McLean’s. Þessi velþekta verz- lun er bezt kynt í síSastl. 30 ár fyrir aS selja á bezta verSi hér í borginni. Piano frá ; $235 til $1500 J. W. KELLY, J. R. EEDMOND, W, J. ROSS: Einka eigendur. Wínnipeg stærsta hljóðfserabúð Horn; Portage Ave. Hargrave St ÚR BÆNUM. VESTTJRFARAR. Dann 4. b. m. komu um 40 vestur- farar frá íslandi hingað til bæjar. Höfðu þeir lagt af stað frá Seyðis- firði þann 20. maí; hafa því verið tsepa 15 daga á leiðinni. En það er með fljótari ferðum, sem farið hefir verið síðan vesturferðir byrj- uðu. Flest af fólki þessu kom af Austurlandi, og áttum vér tal við tvo af þeim, er hingað komu inn á skrifstofuna: Einar Sigurðsson, gagnfræðing, . frá Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá í Suður-Múla- sýslu, og Halldór Þorkelsson bónda frá Klúku í sömu sveit. Með Hall- dóri kom kona hans, tengdasystir og tvö börn. Frá Englandi fór hóp- urinn með Allan línu skipinu Grampian, og lenti í Quebec 1. júní. 1 hópnum voru þessir, auk þeirra áðurnefndu: - Gunnar Gunnarsson úr Fá- skrúðsfirði, með konu og 5 börn. Sigurveig Árnadóttir frá Finns- stöðum, með 3 dætur sínar. Haildór Þorláksson og heitmey hans, Gróa Sigurðardóttir, frá Dvergasteini. Eiríkur Þorsteinsson, frá Glen- boro, Man., með föður sinn og stjúpu og 3 hálfsystkini sín. Aðalsteinn Jóhannsson og Rósa Magnúsdóttir, bæði frá Seyðisfirði. Ingibjörg Árnadóttir, Gunnar Rikarðsson og Ágúst Guðmunds- son, frá Reykjavfk. Júlíana Goodman, með dóttur sína, báðar úr Húnavatnssýslu. Guðbjörg og Hólmfríður Gunn- arsdætur, úr Húnavatnssýslu. Aðalgeir Guðvarðarson og Har- aldur Guðmundsson, úr Ólafsfirði í Eyjafirði. Jón Jónsso'n, frá Sauðárkrók. Brynjólfur Magnússon sýslu- manns á ísafirði. Frekar sögðu þeir að veðrátta hefði verið köld, er þeir fóru, en yf- irleitt liði fólki sæmilega upp um sveitir. Stefán Björnsson, fyrverandi rit- stjóri Lögbergs, kona hans og börn þeirra, lögðu af stað til Islands héðan úr bæ þann 28. maí, og fóru um borð í skipið Corsican í Que- bec þann 30. s.m,—- óskum vér þeim allra fararheilla og vellíðunar heima á fósturjörðinni. Hr. Sæmundur J. Borgfjörð kom til bæjarins á fimtudaginn var vestan frá Vancouver. Hann fór Þangað vestur í iiaust sem leið til sonar síns Þorsteins S. Borgfjörðs. Sagði hann alt tíðindalítið að vestan, nema hvað góð hefði verið veðráttan síðastliðinn vetur. ís- lendingum þar í bænum sagði hann að liði yfirleitt vel. Hann tafði hér að eins daginn um kyrt, og fór svo norður að Gimli. Gjörði hann ráð fyrir, að verða þar neðra um tfma. Á öðrum stað hér í blaðinu birt- um vér bréf frá Hannesi Péturssyni, er hann skrifaði oss frá Quebec sunnudaginn næstan eftir að stór- slysið varð á “Empress of Ireland”. Lýsir það betur en nokkuð, sem vér höfum séð, þeim sorgaratburði. Héldum vér, að Iesendur Hkr. vildu gjarnan fá glöggvar fréttir af þeim atburði frá sjónarvotti,— þeim einu Islendingum, er á skipinu voru. Er það með góðfúsu leyfi höfundarins, að bréfið er birt. Telephone Garry 1982 392 NOTRE DAME AVENUE Fimm Prósent afsláttur Allar matvörutegundir sem þið parfnist þar á meðal ágætiskaffi sem svo margir pekkja nú, og dáðst að fyrir 31 mekk og gaeði fást í matvöru búð B. Arnasonar, á horni Victor St. og Sargent Ave. Svo er aðgæzluvert Arnason gefur 5% afslátt af doll. fyrir cash verzlun. Phone Sher. 1120 B. ARNASON Oss hefir láðst að geta þess í síð- asta blaði, að Mrs. Rannveig Blön- dal, 806 Yictor St., flutti úr bænum fyrir sumarið nú fyrir 2 vikum síð- an, vestur til Lundar, Man. óskar j hún eftir, að öll bréf sín og póstur sé sendur þangað vestur, en ekki hingað til bæjar yfir sumarið. Dr. Ágúst Blöndal hefir fært sig nú yfir sumarmánuðina vestur að LundaF Man. Er hann einn vorra yngri íslenzku lækna, er getið hafa sér góðan orðstír. Er þeim, sem læknishjálpar þurfa að leita þar vestra, óhætt að vitja hans, því hann er alt í senn: glöggur læknir og góður og samvizkusamur dreng- ur. Hr. Einar Johnson, frá Otto.Man., kom hingað til bæjar í vikunni sem leið. Var hann í kaupstaðar- útréttingum. Hann hélt heimleiðis á föstudaginn. Hr. Sigurður Sigurðsson frá Cal- gary, Alberta, er heim fór til íslands í fyrra sumar, kom hingað til bæj- ar á föstudaginn var. Mestan tíma hélt hann til í Stykkishólmi fyrir vestan. Lét hann mjög vel af ver- unni heima og ferðinni hingað: tafði dag í Montreal. Áleiðis hélt hann í vikulokin. Sunnudaginn 31. maí komu 24 íslenzkir vesturfarar hingað til bæjar. Ekki höfum vér haft tal af neinum þeirra. Yoru þeir flestir af Suðurlandi. Á Hvítasunnudag, hinn 31. maí, fermdi síra Bjarni Thórarinsson þessi ungmenni á Wild Oak: Meyjar: 1. Jónína Sigurrós Böðvarsdóttir Johnson. 2. Guðrún Viktoría Jónsdóttir Thórdarson. Piltar: 1. Gunnlaugur Þórhallason Good- mann. 2. Guðmundur Ingimundsson ól- afsson. 3. Björn ívarsson Björnsson. 4. Guðjón Jónsson Thórdarson. 5. Tómás Edward Bjarnason Tóm- ásson. 6. Helgi Albert Bjarnson Tómás- son. Börnunum er öllum raðað eftir hlutkesti Hinn 2. júní gaf síra Bjarni Thór- arinsson í hjónaband: Jón Á. Hann esson, frá ísafold P.O., og ugfrú Helgu Erlendsdóttur Erlendsson, frá Wild Oak P.O. Mr. Landern Preece, 876 Winni- peg Ave., verkstjóri fyrir bæinn, fór héðan 4. þ. m. til London á Eng- landi. Hann hefir verið 37 ár í þessu landi, þar af 35 ár í Winni- peg. Hann á íslenzka konu, Jakob- ínu Stefánsdóttur. Er mörgum Is- lendingum að góðu kunnur. Systir hans, Mrs. Carrie, frá Seattle.Wa.sh., fór með honum. Þau eru að finna háaldraða móður sína á Englandi og systkini. Mr. Preece býst við að verða um 3 mánuði í ferð þessari. íslenzkir vinir hans óska honum happasællar ferðar og góðrar heim- komu. — Hkr. beðin að geta þessa. Hra. Sigurður Skarðdal frá Bald- ur, Man. var hér á ferð á þriðju- daginn var. Sagði hann góða líðan manna þar vestra. Þingboð. Samkvæmt tillögu og samþykt er gjörö var á hinu sjöunda þingi hins Únítariska Kyrkjufélags Vestur-íslendinga er haldið var í Winnipeg, Manitoba, dagana 18—20 Apríl, 1913, veröur hiö næsta þing félagsins haldið aö Lundar, Manitoba, og kemur saman Föstudaginn, þann 19 Júní, 1914 Þetta kunngjörist hérmeö öllum hlutaö- eigandi söfnuöum og meölimum félagsins. Samkvæmt grundvallar-lögum kyrkju- félagsins kjósa söfnuðir einn erindsreka á þing fyrir hverja 15 atkvæöisbæra meölimi eöa brot úr 15, alt upp aö 75 meðlimum, en einn fyrir hverja 25 meölimi (eða brot úr 25) fram yfir 75. Þó skal enginn söfnuður hafa færri en þrjá erindsreka á þingi. Þingbók og fyrirlestrar er fluttir vérða á þinginu, veröur síöar auglýst. Dagsett, Winnipeg 12 Maí, 1914 GUÐM. ÁRNASON S. B. BRYNJÓLFSSON Skrifari Forseti Páll Jónsson frá Kjarna í Geysir- bygð kom hingað til bæjar á mnáu- daginn var til að leita sér lækn- inga. Var mein í tungunni, er hann lét skera burt. Hann var orðinn svo frískur á laugardaginn, að hann hélt heimleiðis; ætlar að tefja í of- aneftir leiðinni hjá dóttur sinni í Selkirk. Þorgrímur, sonur hans, kom með honum og tafði hér vik- una, unz faðir hans fór heim. Frá Oak Point var símað á mánu- daginn var, að þá um nóttina hafi bóndinn Bergur Sigurðsson orðið bráðkvaddur Engar nánari fréttir liafa borist um dauðsfallið. Hjálmar Laxdal, er átt hefir heima að Mountain, N. Dak., and- aðist fyrra þriðjudag (2. júní). — Hann var maður á miðjum aldri, og hafði búið þar syðra í eitthvað 11—’2 ár. Með byrjun þesa mánaðar fékk Mountain járnbrautarfélagið í N. Dakota (North Dakota Railway) nýja gufuvél fyrir brautina. Er hún talin góð, og mikið aflmeiri en sú litla, er þeir höfðu áður notað. Er vonandi, að lestagangur á braut- inni geti haldist við, því bæði eru það mikil þægindi fyrir íslenzku bygðina, og svo eiga of margir ís- lendingar hluti í brautinni til þess að þeir megi við því, að brautin verði tekin af eða eyðileggist. Ungmennafélag únítara heldur afmælissamkomu á fimtudagskveld- ið kemur (11. júní). Nefndin, sem fyrir skemtununum stendur, biður alla meðlimi félagsins að sækja samkomuna. Sömuleiðis er öllum meðlimum Únítara safnaðarins vin- samlega boðið að koma, og einnig sunnudagaskóla börnum safnaðar- ins og foreldrum þeirra, sem ekki tilheyra söfnuðinum Næsta sunnudagskveld verður uinræðuefni í Únítara kyrkjunni: “Takið á yður mitt ok.”—Allir vel- komnir. Kvenfélag Skjaldborgar safnaðar heldur BAZAAR í Skjaldborg á Burnell stræti á föstudag og laug- ardag í þessari viku bæði eftir há- degi og eins að kveldinu. Margs- konar nytsamir hlutir verða þar til sölu, að ógleymdu nógu af kaffi og ísrjóma. Musik bæði kvcldin. — Vonandi, að margir hagnýti sér þetta tækifæri. Laugardaginn fyrir hvítasunnu voru þau .Jónas Brynjólfsson og Karitas Jóhannesson, bæði frá Winnipegosis, gefin saman í lijóna- band af síra Rúnólfi Marteinssyni, að 493 Lipton St. Hra. Þorleifur Jackson frá Selkirk, kom hingað til bæjar á þriðju- daginn til þess að vera viðstadöur jarðarför Dr. Jóns Bjarnarsonar. Var hann honum kunnugur frá íornri tfð, og virti hann ávalt og var hans trúr fylgismaður í öllum kyrkjulegum efnum. Mrs. Búason, biður að láta þess getið að Barnastúkan hefir ákveðið að hafa “Pienic” suður .til River Park á laugardaginn kemur þann 13 þ.m. Svo er ákveðið að börnin safnist öll saman heima hjá Mrs. Búason, kl. fyrir 1. e.h., og verður svo lialdið af stað þaðan suður. Foreldrum barnanna er boðið að fylgjast með og fylla hópinn. Hra. Jóhann K. Johnson og Jo- hannes Halldórsson, báðir frá Hekla P.O. Man. komu hingað til bæjar á þriðjudagskveldið var. Þeir sögðu allt gott að frétta að norðan. Þau Jón G. Snædal, tannlæknir hér í bænum og ungfrú Anna S. Hannesson, voru gefin saman í hjónaband, miðvikudags morgun- inn, þann 10. þ.m. að heimili Marino lögmanns Hannessonar bróðir, brúðarinnar. Hjónavíxluna fram- kvæmdi séra Friðrik Hallgrímsson frá Baldur. Aðeins nákomnustu ættingjar brúðhjónanna voru við- staddir. Heimskringla óskar brúð- hjónunum allra framtíðar heilla. Wonderland' skiftir sýningum daglega, þannig að það hefir al- mennar sýningar þriðjudaga og föstudaga. Leikflokka sýningar 'miðvikudaga og fimtudaga. Mánu- daga og laugardaga “Keystone” myndir. Nýjar myndir í næstu viku með- al þeirra Million dollara leyndar- dómur o. fl. Vestan frá Kyrrahafsströnd komu þau hjónin Guðmundur Christie og kona hans, er vestur fóru síðastliðið haust. Dvöldu þau í San Francisco í vetur. Mikla verzlunardeyfð og alment atvinnuleysi sagði Mr. Christie að þar væri vestra. San Francisco borg hefir aldrei náð sér síðan jarðskjálftarnir eyðilögðu hana um árið. Að vísu hefir borgin verið reist upp úr rústum, hálfu reisulegri en áðurv en fólk ekki tekið sér þar jafnmargt bólfestu og áður var. Bygt hefir verið mikið þar aí stórhýsum en þau standa flest hálf- tóm. Bæjar búar hafa og gjört sér miklar vonir um framtíð borgar- innar eftir að skipaskurðurinn í gegnum Panama eyðið yrði full- gjörður, og byggt svo hvert húsið eftir annað í þeifri von að þá flytti fólk í bæjinn og allt seldist. En sú von hefir ekki ræzt. Þau hjón gjöra helzt ráð fyrir að fara norður að Gimli og dvelja þar eitthvað frani eftir sumrinu. Þessir eru embættismenn G. T. j stúkunnar Heklu: Æ.T.—Skúli Bergmann. V.T.—Þóra Olson. G.U.T.—Guðrún Búason. Rit.—J. Kristjánsson. j F.R.—E. Erlendsson. Gk.—Jóh. Vigfússon. Drótts—Emma Benson. Kap,—Gróa Magnússon. V.—Páll Guðmundsson. Ú.V.—Aðalbjörn Jónasson. A.R.—Þorst. Guðmundsson. A.D.—F. Christie. Meðlimatala stúkunnar er 387. Þegar þú þarfnast bygginga efni eða eldivið D. D. Wood & Sons. " Limited Verzla meö Sand, möl, mulin stein, kalk stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre” plastur, brendir tígulsteinar, eldaöar pípur, sand steypu steinar, “Gips” rennu- stokkar, “Drain tile,” harö og lin kol, eldiviö og fl. SKRIFSTOFA: Cor. ROSS & ARLINGTON ST. --------------------------------------------*% NÚ ER TÆ KIFÆR ............................. í 30 daga aö kaupa ódýr Harness, (single eöa double), afsláttur $5. til $10. á hverju pari. Team Harness, fullgjör 2ja þuml. vagnólar, tvöfaldar, $22.50. Ágæt harness, \/2 þuml. vagnólar þrefaldar, meö hringjum og keöjum á endum, þuml. aktaumar, Longstr kraga, meö öUu saman $32. 50. Uxa harness meö keöjum og múlum, ný teg- und, kragarnir lokast aö ofan og neöan, má brúka þau á smáa og stóra uxa,$i2. meö sterk- um leöur vagnólum $18.00. Þetta verö er kaupendum sérlega í hag. S. Thompson, west Seikirk Manitoba Ci ^ I' •• 1 ' otora Jarnvorubuom 1 Winnipeg. Allar mögulegar járnvörur. Búöin okkar er ný og öll okkar á- höld fullkomin; þiö getiö því veriö viss um, aö til okkar er gott aö koma. Afgreiösla fljót og góö. Komiö og skiftiö aiö okkur. Builders Harðvöru Finishing Harðvöru Mál Olía Construction Harðvöru Smíðatól og Handyðnar Verkfœrum Varnish Prufuherbegin okkar eru best útbúin allra prufuherbergja í bæn- um. Þaö er því auövelt fyrir ykknr aö velja úr. flikenhead Clark Hardware Co.Ltd. Wholesale and Retail Hardware Merchants B0YD BUILDING cr„dEetr.0a«0n PH0NES MAIN 7150-1 Hr. Jón Abrahamsson hér í bæn- um hefir verið fluttur inn á al- menna spítalann. Er hann talinn mjög veikur. Var hann skorinn upp í síðastliðinni viku, en lítið bata- merki ennþá. BRJEF Á HEIMSKRINGLTJ :— Miss María Ólafsson. Sig. Hlíðdal (2 bréf). H. S. Helgason. A. B. Sigurðsson. Islandsbréf — Mr. Kristján G. Snæbjörnsson. Mrs. ó. T. Anderson. Mrs. Stefanía Sigmundsdóttir. Mr. Böðvar Johnson. Benedikt Hjálmsson. Guðm. Christie. Sveinn Tómásson (Selkirk). G. Z. Halldórsson. ENGAR KOSNINGAR A ENG- LANDI í ÁR. Lloyd George fullyrðir, að engar kosningar verði á Englandi í ár. En hann segir, að unnið verði að lagafrumvarpi til þess, að endur- bæta þingið og gjöra efri málstof- una svo úr garði, að þjóðinni standi ekki voði af henni framar. ÞEIR VILJA NÁ í PRINSINN. Sagt er frá Englandi, að kven- frelsiskonurnar þar, sem í styrjöld- inni miklu eiga nú sí og æ, vilji fyrir livern mun ná lialdi á unga prinsinum, konungssyninum, — ná honum til að fela hann og kúga svo konung til þess, að gefa þeim fullan atkvæðisrétt. En þetta hefir kvisast, og er nú konungssonur rækilega passaður dag og nótt, svo að ekki verði hægt að stela hon- um. KORNVÖXTUR í SASKATCHE- WAN FYLKINU. Regina, 2. júnl: Þaðan fréttist, að þurkar hafi verið heldur miklir næstliðna viku. Vindar nokkrir og hiti 85—80 stig í skugganum. Samt líta akrar fremur vel út; hveiti þetta 6 þumlungar á hæð og jafn- vaxið. En á ökrum, sem voru hvíld- ir (summer fallowed), er það þó mikið betra. Hafrar og bygg þetta frá tveimur til þremur þumlungum á hæð, og lítur vel út. Flax að koma upp. 90 próscnt af höfrum og 75 prósent af byggi er nú búið að sá. Verður hætt að sá 10. júní.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.