Heimskringla - 25.06.1914, Blaðsíða 3
— WINNIPEG, 25. JÚNI, 1914
HEIMSKRINGLA
Bls. S
DOMINION BANK
Uorni Notre Dame og Sherbrooke Str.
Höfuðstóll uppb. $4,700,000.00
Varasjóður - - $5,700,00ú.00
Allar eignir - - $70,000,000.00
Vér óskum eftir viðskiftumverz-
iunar manna og ábyrgumst aí gefa
þeim fullnægju. Sparisjóðsdeild vor
er sú stærsta sem nokkur banki
hefir í borginni.
íbúendur þessa hluta borgariun-
ar óska að skifta við stofnun sem
þeir ^ita að er algerlega trygg.
Nafn vort er fulltrygging óhult-
leika, Byrjið spari innlegg fyrir
sjálfa yður, konu yðar og börn.
C. M. DENISON, RáSsmaíur
Phone (íarry 3 4 5 0
PERFECT
eða
Standard
Reiðhjól
»ru gripir sem allir purfa að fá sér fvri
sutnarið. Því þá meiga menn vera vissi
um að rerða á undan þeim *em eru
öUrum hjólum.
Einnig seljum við hjól sem við höfum
breytt svo á visindalegan hátt að þau
eru eins góð og ný enn, eru þó ódýrari.
Gerum við reiðhjól, bíla, motorhjól og
hitt og þetta.
OESTRAlT ISIOVCLE
WORKS
'506 NOTRE DAME AVENUE
PHONE GARRY 121
S. Matthews, Eigandi
CRESCENT
MJÓLK 0G RJÓMI
er svo gott fyrir börnin, að
mæðurnarfgerðu yel I að nota
meira af þvf.
ENGIN BAKTERIA
USr f mjólkinni eftir að við
höfum sótthreinsað haná.
Þér fáið áreiðanlega hreina
vöru hjá oss.
TALSÍMI MAIN 1400
ÍSLENZKA LYFJABÚÐIN
r Vér leggjum kost, á að hafa
og lata af hendi eftir læknisá-
visan hin bcztu og hreinustu
lyf og lytja efni sem til eru.
Sendið læknisávisan irnar
yðar til egils
E. J. SKJÖLD
Lyfjasérfræðintrs (Prescriptlon Spec-
ialist á horninu á Wellington og Simcoe
«arry 4368-85
o
FURNITURE
on Easy Payments
OVERLAND
MAIN & ALEXANDER
HllllH-bH-H'H-lMI 'H*
» e
i SHERWIN - WILLIAMS ••
P
AINT
fyrir alskonar
húsmálningu.
’* Prýðingar-tfmi nálgast nú. **
• • Dálftið af Sherwin-Williams !!
| * húsmáli getur prýtt húsið yð- • •
ar utan og innan. — Brúkið ! *
ekker annað mál en þetta. — 4*
S.-W. húsmálið málar mest, **
endist lengur, og er áferðar-
fegurra en nokkurt annað hús
mál sem búið er til. — Komið
inn og skoðið litarspjaldið. ■—
I CAMER0N & CARSCADDEN $
QUALITY IIARDWARE
Wynyard, - Sask.
Islenzkar sagnir.
Teigaslættir.
Það tíðkaðist i Hjaltastaðaþing-
há, þegar bændur þurftu að jafna
viðskiftahalla sín á millum, þá sló
sá, sem skuldaði öðrum, í túni
hans, annaðhvort óákveðna spildu
á stærð eða útmældan teig, sem
var þyí sem næst að ummáli einsog
ein ekra í Ameriku. Um teigi er
talað í fornsögum vorum, og Land-
námu er þess getið, að teigur hafi
verið ónuminn milli Þorsteins
torfa, sem nam Jökulsárhlið og bjó
að Fossvelli og Hákonar á Hákon-
arstöðum, sem nam Jökuldal. Þann
teig lögðu þeir til liofs, og heitir
þar siðan Hofsteigur,, prestssetrið
á Jökuldal. Oftast vörðu menn hálf-
um laugardegi, eða seinni hluta
sunnudags til að slá teigina, og þá
var slegið af kappi, og lika veittur
ríflega matur og drykkur af þeim,
sem unnið var fyrir. Mönnum var
lika gætt á vini, ef það var fyrir
hendi.
Ef að heyskapartið var góð,
var heyönnum lokið þegar tuttugu
og tvær vikur voru of sumri. Menn
voru oft að ljúka seinustu heyverk-
um, þegar afréttargöngur byrjuðu.
HAUSTVINNA
Afréttargöngnr og heimavcrk.
Til þess að ná sauðfé af afréttum
voru gjörðar þrjár fjallgöngur. Sú
fyrsta var gjörð mánudaginn i tutt-
ugustu og annari viku sumars. —
Hreppstjóri sendi umburðarbréf,
sem kallaðist “gönguseðill”, um
sveitina; þar í var bændum til-
kynt, hverjir ættu að vera gangna-
foringjar og hvert á afréttir bænd-
ur skyldu senda menn til gangna.
Þessar voru afréttirnar: ósfjall,
Hrafnabjargarfjall, Sandbrekku af-
rétt, Kyrkjutungur og Hraundalur
og Hálsar. Menn lögðu af stað til
gangna árla morguns, vel útbúnir
að skóm, með fjárhunda sina, þvi
það var áríðandi, að hafa góða
hunda i slíkum göngum. Nesti
höfðu menn ekki, þvi heim til
bygða gátu menn komist með féð
að kveldi. Þegar komið var upp á
neðstu afréttarbrún, skifti foringi
mönnum. Hann gekk sjálfur efst-
ur, hélt áleiðis upp til jökla; þurfti
þangað að hraða göngunni sem
mest og a»vo áfram í áttina, sem
göngunni var heitið til. Lökust
þótti þeim, sem neðstur gekk, af-
staða sín í göngunni, einkum ef
það var friskur maður. Hann
þurfti alt af að gæta þess, að vera
aftastuf í göngunni áfram, og
-þannig gekk röðin alt upp til þess,
sem efstur gekk, að eftir þvi sem
maður gekk ofar, þurfti hann að
hraða meir göngunni, svo hann
væri lítið eitt á undan þeim, sem
neðar gekk; þess vegna lá mestur
vandinn á þeim, sem gekk neðst.
Hann þurfti stöðugt að taka á
móti fénu, sem hinir allir, maður
frá manni, sendu ofan á við, og
þurfti hann svo að beina þvi að að-
haldinu, sem var einhver gljúfraá
—- meðfram hverri það var rekið í
áttina til bygða. Nú, ef einhverjum
göngumanni vildi til, að hraða of-
mikið gangi og misti þess vegna
eitthvað af kindum á bak við sig
ofan á við, þá leiddi þar af hlaup
og köll, og sá, sem óliappið vildi til,
mátti búast við ávítum af foringja
fyrir vangá sína.
Sandbrekku-rétt var stærsta og
aðal fjárrétt sveitarinnar. Þangað
var að kveldi fyrsta gangnadags
komið með ógrynni fjár. Út úr stór-
réttinni, sem féð var látið í, voru
smáréttir, sem kallaðar voru dilk-
ar; inn i þær létu menn fé sitt, þeg-
ar verið var að aðskilja. Hver
bóndi dró kindur sínar i einn dilk-
inn út af fyrir sig, og svo tók ann-
ar plássið, þegar einn hafði lokið
drætti. Þegar komið var með féð
heim frá drætti, var það fyrst látið
inn í hús, og fólkið, sem heima
var, kom svo til að skoða kindurn-
ar. Þar næst var féð rekið í haga,
og vildi það þá oft leita til afrétt-
ar, þar sem það gekk um sumarið.
Þvi var smalað saman af og til, þar
til vetur la^ði að. Flestir létu vakta
lömbin heima.
Karlmannaverk heima við á
haustin voru fyrst að gjöra upp að
heyjum; þau voru alveg hulin með
torfi; þó var nautpeningur og hest-
ar lagið í þvi, að grafa sig inn í
þau og gjöra skemdir. Bæði karlar
og konur öfluðu eldiviðar fyrir vet-
urinn. Svo var slátrunartími;
bændur slátruðu sauðkindumm til
vetrarforða. Þeir létu á haustin á
kvöldvökum raka ullina af sauðar-
gærunum. Lika söltuðu þeir og
brytjuðu kjöt sitt í tunnu éða þeir
hengdu sumt upp í cldhús til reyk-
ingar. En konur suðu slátur í feyki-
lega stórum pottum, sem látnir
voru hanga yfir eldhlóðunum, og
létu það síðan ofan í súrmatarílát
sín. Líka gjörðu konur mest að þvi
að bræða mör og gjöra tólg.
Kaupstaðarfcrðir á haustin.
Ein var aðal kaupstaðarferðin á
haustin. Verzlunarvara manna var
tólgur og svo sauðfé á fæti, sem
■ rekið var til kaupstaðar og slátrað
■ þar af bændum sjálfum. Oft tóku
fátækir bændur nærri sér að láta
sauðfé i kaupstað, en máttu til sök-
um skulda. Haustferðir í kaupstað
tóku vanalega lengri tíma en á
sumrum, þegar ös var mikil og
gekk seint að fá afgreiðslu, og
máttu menn stundum mæta vosbúð
og hrakningum í þeim ferðum.
Strax í fyrstu snjóum voru lömb
tekin á gjöf. Það þurfti að kenna
þeim átið, og var það gjört með því,
að láta heytuggu upp í þau, og
reyndust þau fljótnæm að læra átið.
Þegar vetur gekk snemma í garð,
kom fullorðið fé fljótlega á gjöf;
því var gefið tvisvar á dag, og var
hálftunna af heyi ætluð hverjum
tíu kindum. Menn voru misjafnt
lægnir að gefa úr heykumlunum,
svo torfið héldist sem lengst uppi,
og vildi það stundum hrapa inn,
þegar komið var nær vori, og að
því varð síra Sigvalda forðum. —
Sumir báru vatn í fé við þorsta;
en sumir hleyptu því út til að snjóa
sér, og létu það nægja, þegar snjór
var hentugur, og reyndist vel og
hlífði mönnumm við erfiða vinnu,
sem var vatnsburður í fé. Samt
voru það fleiri, sem notuðu vatn-
ið. Ending heyjanna og fjárþrifin
fóru eftir þvi, hvernig fjármenn-
irnir voru. Beitarhús voru nálega á
hverjum bæ í sveitinni, og í vetrar-
skaimndegi, þegar fé náði til jarðar
gegnum snjó, risu beitarhússmalar
upp fyrir dag og seildust upp á
hillu fyrir ofan rúm þeirra og tóku
mat sinn þar, sem hafði verið lát-
inn þar um kveldið um háttatím-
ann. Eftir að þeir höfðu matast,
lögðu þeir af stað til beitarhúss-
ins, létu féð út og ráku í haga, og
stóðu þar hjá því allan daginn;
brugðu sér stundum heim að hús-
unum stundarkorn og til hagans
aftur fljótlega. Ekki voru þeir
komnir heim á kveldin fyrri en
eftir dagsetur.
(Framhald).
ATHUGASEMD
“Ekki sýnist öllum eins”, er fyr-
irsögn fyrir ritgjörð frá B.G.Back-
mann í Lögbergi. Skoðanir hans
þar eru mér alls ekki ógeðfeldar, en
það er eitt atriði þar, sem ég get
ekki stilt mig um að athuga.
Fyrir safnaðarfulltrúa að fara
inn í dánssali eða drykkjukrár til
að reyna að fá þá inn i söfnuð, er
sama og fara að þeim þegar þeir
eru viti sínu fjær, segir Backmann.
— Þvi ekki að fara inn í danssali
eða drykkjustofur eftir meðlim-
um? Inn á þessa staði þurfa þjónar
kyrkjunnar einmitt að fara eftir
meðlimum. Það er ekki einasta
heiðarlegt, heldur er það blátt á-
fram skylda þeirra. “Eg er komm-
inn til að leita týndra sauða af
ísrael”, er sagt að Kristur hafi sagt
— og einnig: “Heilbrigðir þurfa
ekki lækni við, heldur þeir sem
vanheilir eru”. Er kyrkjan ekki
komin til að leita týndra sauða
heimsins? Er ekki kyrkjan nokk-
urs konar héilbrigðisstofnun, þó
lækningin gangi misjafnt? Loftið
Þarf að vera hreint og heilnæmt, ef
sjúklinguéinn á að fá bata. Kyrkjan
má ekki vera nautnastofnun, ekki
heldur meinlætastaður. Þeir geta,
ef til vill, orðið eins góðir og ein-
lægir meðlimir, sem sóttir eru inn
á drykkjukrár og inn í danssali og
þeir, er sóttir eru inn á dagdóma-
palla, og sífelt eru snuðrandi um í
nágrenninu, þó þeir leiki þáttinn
sinn vel og beri hvitan ytri klæðn-
að.— Það er auðvitað, að alvarleg
málefni þarfnast alvöru og ein-
lægni á allar hliðar. Það fást næg-
ar skemtanir utan þeirra.
Ragnh. J. Davidson.
ENSKU STÚLKURNAR
Enn hafa þær hafist handa á ný,
blessaðar stúlkurnar í London. Nú
nýlega settu þær sprengivél í aðra
kyrkju, St. Gcorges kyrkjuna á
Ilannover Square. Umsjónarmaður
kyrkjunnar var búinn að ganga frá
henni og loka henni þenna dag eft-
ir kveldþjónustu. En skömmu síð-
ar, nokkrum mínútum eftir 10,
gekk maður hjá henni og heyrði
sprenging mikla í kyrkjunni, og
fyltist hún óðara af hvítum reyk.—
Ekki eyðilagðist hún, en sæti
skemdust, prédikunarstóllinn mol-
aðist og gluggar brotnuðu, og fleiri
urðu skemdir á henni. 1 kyrkju
þessari fara fram flestar giftingar
auðmanna og barúna, og er hún
vegleg mjög.
Viltar eru þær nú orðnar, bless-
aðar ensku stúlkurnar, og er sem
einlægt harðni fyrir þeim, og ekki
sízt nú, þegar farið er að hóta þvi,
að lofa Lundúna skrílnum að hafa
hendur á þeim og tjarga þær eða
fara með þær nokkurn veginn sem
honum sýnist.
Þann 11. júní komust þær inn í
hina frægu og eldgömlu byggingu,
Westminster Abbey, og var tilgang-
urinn, að gjöra þar þann usla, sem
þær gætu.
Þenna dag og þessa stund stóð
þing sem hæst í þinghússbygging-
liuni rétt hjá, og var innanrikisráð-
herrann, Reginald McKenna, að
flytja ræðu um það, hvað vel stjórn-
Aukalestir Búnaðarnámsskeiðsins.
C. P. R.
Treherne, Föstudaginn, 26. júní, 9 f.h. til 12 á h.
Rathwell, Föstudaginn, 26. júní, 12.30 e.h. til 3 e.h.
St. Claude, Föstudaginn, 26. júní, 3.30 e.h. til 6 e.h.
Carman, Föstudaginn, 26. júní, 7 e.h. til 10 e.h.
Elm Creek, Laugardaginn, 27.júní, fyrir hádegi.
Starbuck, Laugardaginn, 27. júní, eftir hádegi.
Engin fundur aö kveldi.
Whitemouth, Mánudaginn, 29. júní, 9 f.h. til 12 á h.
Beausejour, Mánudaginn, 29. júní, 2 e.h. til 5 e.h.
Birdshill, Mánudaginn, 29. júní, 7 e.h. til 10 e.h.
Poplar Point, Dribjudaginn, 30. júní, 9 f.h. til 12 á h.
McGregor, Driöjudaginn, 30. júní, 2 e.h. til 5 e.h.
Austin, Þriöjudaginn, 30. júní, 7 e.h. til 10 e.h.
Sidney, MiÖvikudaginn, 1. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
Carberry, Miðvikudaginn, 1. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Alexander, MiíSvikudaginn, 1. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Griswold, Fimtudaginn, 2. júli, 9 f.h. til 12 á h.
Oak Lake, Fimtudaginn, 2. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Virden, Fimtudaginn, 2. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Hargrave, Föstudaginn, 3. iúlí, 9 f.h. til 12 á h.
Elkhorn, Föstudaginn, 3. julí, 2 e.h. til 5 e.h.
McAuley, Föstudaginn, 3. júlí, 7 e.h. til 10 e h.
Carnegie, Laugardaginn, 4. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
Harding, Laugardaginn, 4. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Lenore, Laugardaginn, 4. júlí 7 e.h. til 10 e.h.
Arrow River, Mánudaginn, 6. júlí, 9 f.h. til 12 X h.
Hamiota, Mánudaginn, 6. júlí, 2 e.h. til 6 e.h.
Oak River, Mánudaginn, 6. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Minnedosa, ÞritSjudaginn, 7. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
Newdale, ÞritSjudaginn, 7. júlí, 2 e.h. til 5- e.h.
Shoal Lake, DritSjudaginn, 7. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Foxwarren, Miðvikudaginn, 8. júlí, 9 e.h. til 12 á h.
Binscarth, MitSvikudaginn, 8. júlí, 2 e.h. til 12 á h.
Russell, MitSvikudaginn, 8. júlí 7 e.h. til 10 e.h.
Neepawa, Fimtudaginn, 9. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
Arden, Fimtudaginn, 9. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Keyes, Fimtudaginn, 9. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Westbourne, Föstudaginn, 10. júlí, fyrir hádegi.
McDonald, Föstudaginn, 10. júlí, eftir hádegi.
Engin fundur at5 kveldi.
Gimli, Laugardaginn, 11. júlí, fyrir hádegi.
Clandehoye, Laugardaginn, 11. júlí, eftlr hádegi.
Engin fundur atS kveldi.
C. N. R.
Eden, Föstudaginn, 26. júni, 9 f.h. til 12 á h.
Birnie, Föstudaginn, 26. júní, 2 e.h. til 5 e.h.
Kelwood, Föstudaginn, 26. júní, 7 e.h. til 10 e.h.
Erickson, Laugardaginn, 27. júní, 9 f.h. til 12 á h.
Elphinstono, Laugardaginn, 27. júní, 2 e.h. til 5 e.h,
Oakburn, Laugardaginn, 27. júní, 7 e.h. til 10 e.h.
Rossburn, Mánudaginn, 29. júní, 9 f.h. til 12 á h.
Angusville, Mánudaginn, 29. júní, 2 e.h. til 5 e.h.
Shellmouth, Mánudaginn, 29. júní, 7 e.h. til 10 e.h.
Roblin, Í»rit5judaginn, 30. júní, 9 f.h. til 12 á h.
Grandview, I>rit5judaginn, 30. júní, 2 e.h. til 5 e.h.
Gilbert Plains t»rit5judaginn, 30. júní, 7 e.h. til 10 e.h,
Valley River, MitSvikhdaginn, 1. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
Sifton, Mit5vikudaginn, 1. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Ethelbert, MitSvikudaginn, 1. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Bowsman, Fimtudaginn, 2. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
Ivenville, Fimtunaginn, 2. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Benito, Fimtudaginn, 2. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Durban, Föstudaginn, 3. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
Swan River, Föstudaginn, 3. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Minitonas, Föstudaginn, 3. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Dauphin, Laugardaginn, 4. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
St. Rose, Laugardaginn, 4. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Makinak, Laugardaginn, 4. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
McCreary, Mánudaginn, 6. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
Glenella, Mánudaginn, 6. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Plumas, Mánudaginn, 6. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Warren, I»rit5judaginn, 7. júli, 9 f.h. til 12 á h.
Woodlands, í»rit5judaginn, 7. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Lundar, Driðjudaginn, 7. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Moosehorn, Mit5vikudaginn, 8. júlí, 2 e.h. til 5 e.h.
Ashern, MitSvikudaginn, 8. júlí, 7 e.h. til 10 e.h.
Deerfield, Miðvikudaginn, 8. júlí, 9 f.h. til 12 á h.
inni tækist að eiga við stúlkurnar,
eða þessar “viltu konur”, sem hann
kallaði. En er hann var í miðri ræð-
unni, heyrðist dynkur mikill og
fylgdi með hristingur svo harður,
að húsið skalf nokkuð. Urðu menn
þá ókyrrir í sætum og hlupu marg-
ir þiiigmenn út á stræti til þess að
vita, hvað um væri að vera; en hlé
varð á ræðu innanríkisráðherrans.
Þetta var eitthvað um kl. 5. Þær
höfðu komist nokkru áður inn í
kapellu Edwards the Confessors,
sem er einn hluti af Westminster
Abbey. Þar eru konungar Englands
krýndir, og þar er stóll skrautleg-
ur, vandaður og forn, með út-
skurði miklum, sem konungar Eng-
lands hafa setið í mann fram af
mgnni við krýningar-athöfnina.
Rétt hjá stóli þessum höfðu konur
einhverjar laumað sprengivél með
kveikiþræði. Vélin sprakk þegar
kveikiþráðurinn var brunninn upp
ög braut stólinn nokkuð, tók af hon-
um útskurðinn á bakinu og mikið
af bakinu og nokkuð af altarinu.
Þarna safnaðist undir eins múg-
ur og margmenni saman á strætun-
um í kringum Westminster Abbey.
En vélin gjörði minni skaða, en
þær höfðu til ætlað, stiilkurnar. —
óvirðing þótti þetta nokkur við
konungsfólkið; en Englendingar
eru mikið hættir við, að kippa sér
upp við annað eins. Þeir hafa nú
mörg alvarleg mál með höndum.
RÆNINGA BARÚNARNIR A
RÚSSLANDI
Það er oft eitthvað sóðalegt, sem
fréttist frá Rússlandi. Það er sem
menn séu komnir áftur í miðald-
irnar, þegar ekkert dugði nema
hnefarétturinn, og nii sýnist, sem
barónarnir göinlu hafi verið englar
hjá Rússanum eða þessum furstum
í Kákasus fjöllunum, sem loksins
náðust, og eru nú kærðir bæði fyrir
rán og morð.
Þeir höfðu lifað í “vellystingum
pragtuglega”, í solli og glaumi, á
gjöldum þeim, sem þeir höfðu pínt
og skrúfað út úr bændagörmunum.
Ef að bóndi einn greiddi ekki gjald
það, er þeir lögðu á hann, á tiltekn-
um degi, þá tóku furstar þessir
gripi hans og búshluti og jafnvel
börn hans, en skutu hann sjálfan,
ef hann möglaði nokkuð á móti.
Þannig höfðu þessir ræningjar
drepið jrfir tuttugu menn.
En þegar “furstar” þessir voru á
einni ránsferð sinni, þá réðu kós-
akka-verðirnir á þá, gátu laumast
að þeim óvörum, og voru þeir þá
nýbúnir að skjóta 5 bændur, sem
höfðu eitthvað andæft gjörðum
þessara ribbalda.
Það er sagt, að þeir hafi verið 17
barónarnir í þessu bandalagi.
BIFREIÐ Á HVERJU HEIMILI
Dr. Steinmetz frá Schenectady
sagði nýlega, að innan tiu ára
myndi verða meira en milión bif-
reiða í Bandarikjunum, og myndi
hver þeirra kosta minna en 500
dollara. Og kostnaðurinn við að
renna þeim og halda þeim við yrði
ekki yfir 10 dollara á mánuði. Auð-
vitað myndi fjöldi þeirra verða
dýrari, en þetta yrði almenna verð-
ið, og menn myndi nota þær til að
vinna framvegis, en ekki eingöngu
til skemtana.
Til skemtana hafa menn í fram-
tiðinni flugdrekana, vatnadrekana,
snjó- og isdrekana, sem kannske
verða handliægastir af öllu þessu,
því að þeir eru svo ákaflega ein-
faldir. Það er ekki annað en setja
gasolin vél með flugspöðum á sleða
með 3 meiðum, og er stýrt með ein-
um meiðanum. Og þarna geta
menn farið alvcg hættulaust TO—90
milur á klukkutíma á ísunum, hin-
um freðnu stórvötnum, fannbreið-
unum á sléttunum, eða þá á góð-
um brautum á vetrardag.
16. júní—11. júlí
BÚNAÐAR NÁMSKEIÐ
í ýmsum bygðum fylkisins
C.P.R.
AIíTjIR velkomnir.
SÉRSTAKAR LESTIR
C.N.R.
Fyrlrltstrnr ii*n sörstiik c£nl
fyrir unga menn og: konux*.
Rfipenlngar tll sýnis — Naut-
gripir, saut5fé, hestar, o. s. frv.
Illgresis te&undir, gefnar upp-
lýsingar um þær. Leirlíkl af
illgresis fræi í stækkat5ri mynd,
vert5a til sýnis og met5 fyrir-
lestrum, kent at5 þekkja og upp-
rwta illgresi.
Sýnlng fugrla og skorkvikinda
I Manitoba, þýt5ing þeirra fyrir
akuryrkju—ill og gót5.
Húnníjórnarfræbi, fyrlr stfllknr
ok yngrrl konnr—Ræt5ur um mat-
reit5slu, sauma o. s. frv.
Kvikmyndir, til at5 sýna jurta
grróður, blómstrun, slátrun ali-
fugla o. s. frv.
Sýnishorn af úilngning bæjar
og peningshúsa—og sýnt hversu
vernda má hús fyrir eldingum
koma við ræsum, lofthreinsun,
lýsing, lagning steinsteypu gang-
stíga, og brautar hleðslu.
I pplý.siiiK—á þessari lest verð-
ur margt til sýnis af ahöldum frá
Búfræðisskólanum, og er óskað
eftir að menn og konur spyrji
um það sem lýtur að akuryrkju
í Manitoba, og það fýsir að vita.
Búpeningar—Svín og sauðfé af
ýmsu tagi verður flutt með lest-
inni.
Jarðyrkju vélar—í lestnni er
vagn og í honum sýndar vinnu-
vélar, loftþrystingar vatnshylki,
rennu stokkar, gasólin vélar.
ljósa áhöld fyrir búgarðinn og tíl
innanhúss verka sparnaður, svo
sem til að snúa rjómaskilvindum,
strokkum, o. s. frv. með smáum
aflvélum.
Fyrirmynd, hversu má leggja
fit MiU ekra iand f sáðreitL
Skifta súðreiti, húsaskipun, girð-
ingar, o. fl. Sýndar tilraunir með
mismunandi mold frá ýmsum
stöðum í fylkjinu.
Sý ainu alifugla—Slátrun, verk-
un og pökun. Einn vagn í lest-
inni útbúinn með öllum bezta
útbúnaði fyrir fugla rækt, útung-
unar vélum, hreiðrum, fyrir.
myndar hænsa tegundir sýndar.
Sýnd niðursuðu aðferð-—í hús-
stjórnar vagninum. Einnig ýms-
ar vinnusparnaðar véler innan-
húss skreytingar o. s. frv.
Kornyrkju vagninn—þar verð-
ur til sýnis allskonar korn. Rætt
um tilbreytni á sáðverki, illgresi,
o. s. frv.
Komið með illgreai, jurtir og Nkorkvikindi, til þess að fræðast
um hvað það sé.
undir umsjá búfræSisskóla Manitoba og fyrirskipað af
Akuryrkjudeild Manitoba.
EINA ÍSLENZKA HOÐABÚÐIN I WINNIPEG
Kaupa og verzla með húðir, gærur, og allar teguudir af dýraskinnum, mark
aðs gengum. Líka með ull og Seneca Roote, m.fl. Borgar hæðsta verð.
fljót afgreiðsla.
J. Henderson & Co.. .Phone Garry 2590. .236 King St., Winnipeg
Hið sterkasta gjöreyðingar lyf fyrir skordýr.
Bráödrepur öll skorkvikindi svo sem, veggjalýs,
kokkerlak, maur, fló, melflögur, og alskonar smá-
kvikindi. Það eyðileggur eggin og lirfuna, og kemur
þannig í veg fyrir frekari óþægindi.
Búið til af
PARKIN CHEMICAL CO.
400 McDermot Avenue
Phone Garry 4254 WINNIPEG
Selt í öllum betri lyfjabúðum.
Meö f>vl aC biöja æiinlega tim
‘T.L. CIGAR,’’ þé ertu viss aö
fé ógætau vindil.
3
(UNION MADE)
Western Cigar Faotory
Thomas Lee, eigandi Wirmnipeg
Abyrgstað fara vel. Nýtfsku klæðnaðir.
W.H. Graham
Klæðskeri.
Eg sauma klæðnaði fyrir marga liina lielztu Islendinga þessa
borgar. Spyrjið f>á um mig.
Phone Main 3076. 190 James St., Winnipeg.