Heimskringla - 09.07.1914, Page 8
BLS. 10
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 2. JÚLÍ 1914.
Þekkir þú á
Piano?
Þú þarft ekki að þekkja á verð-
lag á Píanóum til þess að sann-
færast um að verðið er lágt á
hinum mismunandi Píanóum
vorum.
Viðskiftamenn eru aldrei lát-
nir borga okurverð í verzlun
McLean’s. Þessi velþekta verz-
lun er bezt kynt í síðastl. 30 ár
fyrir að selja á bezta verði hér í
borginni.
Piano frá
$235 til $1500
J. W. KELLY, J. R. EEDMOND,
W, J. ROÓS: Einka eigendur.
Wínnipeg stærsta hljóðfærabúð
Horn; Portage Ave. Hargrave St.
Jósep Chamberlain
dáinn.
Einhver mesti stjórnmálaskörungur
Englendinga á öldinni sem
leið.
Jósep Chamberlain var fæddur 8.
júlí 1836. Var faðir hans embættis-
íaus maður, en starfsmaður mikill.
ólst hann upp hjá föður sinum,
sem var únitari, og það var Cham-
berlain sonur hans líka. Gekk Jó-
sep á skóla og háskóla í London,
en að prófum afloknum, gekk hann
í verzlunarfélag með frænda sínum
í Birmingham, og stýrði því svo
'vel, að þeir urðu báðir auðugir
menn. *
1 38 ár sat hann á þingi Breta
fyrir Birmingham, og varð þar
brátt ljóst, hver maður í honum
bjó. Það var einkum tvent, er hann
var orðlagður fyrir. Annað er end-
urbót á tollögum Breta, en hitt er
stefna sú, sem menn hafa nefnt
Imperialism, eða að gjöra England
með nýlendunum að stærsta og
merkasta veldi heimsins, og í
þeirri stefnu fólst aftur eðlilega sú,
að auka og efla nýlendurnar sem
mest. Hinn mesti styrktarmaður
hans í þeim efnum var skorungur-
inn enski Cecil Rhodes, sem flest-
um löndum er kunnur.
Chamberlain var atkvæðamaður
hinn mesti, skörungur og stjórn-
málamaður. 1 ráðaneytinu var
hvað eftir annað. Á þinginu kom
hann oft fram, og var þá svo heitt
þar stundum, að lá við handalög-
máli.
Seinustu árin var hann lasburða,
hafði fengið slag og var máttlaus
öðru megin. Þrigiftur var hann. —
Kona hans og sonur, Aústin Cham-
berlain, stunduðu hann með ástúð
mikilli. Hann dó 3. júli og var nær
áttræður. Fékk bann hægt og rólegt
andlát. Austin, sonur hans, er tal-
inn mikilmenni, þó að ekki hafi
hann náð föður sínum.
Ávarp til kjósenda í
Mið-Winnipeg.
Á fjölmennum fundi styrktar-
manna stjórnarinnar hlaut ég út-
nefningu þeirra fyrir Mið-Winnipeg
Og er eg tek við þessu ábyrgðarfulla
starfi, þá finn eg að það er skylda
min, einsog þáð er skylda allra á-
reiðanlegra og vahdaðra borgara í
Manitoba, — og þó sérstaklega á
þessum tímum —, að veita ötult og
óslitið fylgi hinni núverandi stjórn,
— stjórn þeirri, sem hefir stýrt
málum sínum með jafn mikilli
dómgreind og snild, að á hverju
ári hefir hún haft stóran afgang til
þess að byggja stórkostlegar bygg-
ingnr fyrir fylkið, og sýnir hann
það, jarðyrkju-háskólinn, sem er
einhver mesta og fegursta bygging
sinnar tegundar í víðri veröld; _
nð fylgja stjórn þeirri, sem með
lög inum um opinber velferðarmál
liefir leyst ráðgátuna, hvernig ráða
megi við hin stóru auðfélög, sem
flytja menn og vörur, lýsa heimili
manna og því um líkt, og hefir séð
öllum málum alþýðu borgið í við-
skiftum við félög þessi
Lánstraust Manitoba stjórnar á
per.ingamörkuðum heimsins er í
bezta lagi, — jafngott lánstrausti
sambandsríkisins sjálfs. Þetta hefir
ekki ætið verið svo og vér megum
þakka núverandi stjórn fyrir þetta
lofsverða álit. Stjórnin hefir og
ha.t mörg og mjög mikilsvarðandi j
B. LAPIN
HLUSTIÐ KONUR
| Nú erum vjer aöselja vorklæönað
afar ódýrt. NiC.msett veröá öllu.
Eg sel ykkur í alla staöi þann
j bezta alklæönaö fáanlegan, fyrir
$35.00 til $37.50
Bezta nýtizku kvenfata stofa
Telephone Garry 1982
392 NOTRE DAME AVENUE
Fimm Prósent
afsláttur
AUar matvörutegUDdir sem þið
þarfnist þar á meðal ágætis kaffi sem
svo margir þekkja nú, og dáðst að
fyrir” mekk og gæði. fást í matvöru
búð B. Arnasonar, á homi
Victor St. og Sargent Ave.
Svo er aðgæzluvert að Arnason gefur
5% afslátt af doll. fyrir cash verzlun.
Phone Sher. 1120
B. ARNASON
störf fyrir hendi, sem sum eru í
byrjun nú. — Það er vanalega óvit-
urlegt talið, að “skifta” um hesta i
miðjum strengnum, og eg treysti því
að dómgreind fylkisbúa, sem vana-
lega er svo góð og skýr, sjái, hvað
áríðandi það er, að standa með
stjórninni á kosningadaginn og
halda vð stjórn málanna mönnum
þeim, sem reyndir eru að góðu.
Mið-Winnipeg er eitthvert hið
stærsta pólitiska kjördæmi í Can-
ada. Og fyllilega viðurkenni eg hina
miklu ábyrgð, sem þér leggið mér
á herðar, sem fulltrúa yðar, og því
skal eg lofa, að, verði eg kosinn, þá
skal eg fylgja fram málum yðar
heiðarlega, sanngjarnlega og ótta-
laust.
Eg hefi hvorki tíma né tækifæri,
að sjá kjósendurna persónulega, og
þó að mig langaði til þess, þá get eg
ekki persónulega talað um málin
við yður. En eg skal mikils meta
traust yðar til min, ef þér kynnuð
að vilja styrkja mig með atkvæðum
og áhrifum yðar.
Yðar einlægur,
ALFRED J. ANDREWS
Kringlur.
Lesið stefnuskrá Liberala. Það
sannfærir yður bezt um, að ekki er
enn kominn tími til að skifta um.
* * *
Ekki hafa Liberalar neitt út á
fjármálastefnu Roblins að setja. —
Sbr. stefnuskrá þeirra.
*
Ekki hafa Liberalar neitt út á
talsímakerfið að setja. Sbr. stefnu-
skrána.
* * *
Ekki finna þeir neitt að stofnun
búfræðisskólans, eða búnaðarnáms-
skeiðunum, sem stjórnin hefir kom-
ið á fót.
* * *
Ekki finna þeir neitt að skipun
umsjónarmanns velferðarmála al-
mennings (Utilities Commissioner)
* * *
Ekki finna þeir að stækkun fylk-
isins.
* * *
Ekki finna þeir að styrkveiting-
um til spítala og fátækramála.
* * *
Ekki finna þeir að því, að settir
hafa verið á fót kennaraskólar og
æðri mentastofnanir.
* * *
Ekki finna þeir að skattlögun-
um, sem skylda stórgróðafélög til
þess, að leggja til fé til almennings
þarfa.
* * *
Ekk finna þeir að lagningu Hud-
sons flóa brautarinnar.
* * *
Ekki finna þeir að stofnun þjóð-
markaða.
* * *
Ekki finna þeir að vegabóta-
gjörð stjórnarinnar, — nema í
Gimli kjördæmi — þar þurfti eng-
ar brautir.
* * *
Ekki finna þeir að járnbrautar-
steínu stjórnarinnar—Lesið stefnu-
skrána.
* * *
Að hverju finna þeir þá? Engu
sem gjört hefir verið. Það eina
sem þeir finna að er, að þeir sitja
ekki við vöhlin. Þeir finna að því
að þeir hafa ckki notið þess trausts
að ná kcysningu í 14 ár. Og þeir
finna að'því að hafa orðið að lifa
við launaleysi í öll þessi ár.
TJR BÆNUM.
Hr. S. Thompson frá Selkirk, var
staddur hér í bænum á föstudaginn
var. Eftir því, ein hann sagði, er út-
lit betra þar neðra en hér; vinna
nóg nú um þessar mundir í bænum
og afkoma fólks vel í meðallagi.
Hr. Sveinbjörn Sveinsson, frá
Gimli, var staddur hér um helgina.
Er hann seztur að þar neðra.
Miklir þurkar um þessar mundir
og sterkur hiti á hverjum degi.
Þarfnast jörðin regns, ef ekki á illa
að fara með alla sprettu.
Vér verðum að biðja afsökunar á
því að margar ritgjörðir og grein-
ar verða að bíða vegna rúmleysis.
Stjórnmálagreinarnar hafa orðið
að sitja fyrir. Með næstu blöðum
skal úr öllu þessu bætt.
Á föstudaginn komu 24 íslend-
ingar að heiman hingað til bæjar.
Flestir af Vesturlandi.
Munið eftir að setja krossinn ykkar
aftan við nafn S.Thorvaidssonar
kosningardaginn 10. júlí
Dugnaður með dýrum sanni
djarft einkennir Thorvalds nið.
Þessum fríða fræjðar manni
fijlgja allir skulum við.
Fögur Ijómar frægð um halinn
Flestir rúma það sem ber.
Þjóðarsómi Sveinn er talinn. ,
Sönnum blóma vafinn er.
Lánið þýða, lukkan fríða
leikur tíðast álmagrér
Ili/lli lýða hefir víða
hann, sem prýði mesta ber.
Einn kjósandi í
Gimli kjördæmi.
Hvernig merkja á at-
kvæðaseðla hér í
bænum.
Hér í bæ, einsog alkunnugt er,
samkvæmt kjördæma niðurjöfnun-
inni nýju, verða kosnir tveir þing-
menn fyrir hvert kjördæmi. Að
minsta kosti sækja fjórir í hverju
kjördæmi, — tveir frá hvorum
flokki Conservatíve og Liberal. Má
vera, að fleiri verði í vali.
Nú hefir margur þá skoðun, að
greiða megi atkvæði með einhverj-
um tveimur þeirra, sem sækja, eins-
og þegar verið er að kjósa bæjar-
ráðsmenn á haustin, að kjósa má
fjóra úr hópi þeirra, sem sækja,
hvað margir sem eru.
Þessu er ekki svo varið, og það
skulu Islendingar athuga vandlega,
svo ekki ónýtist kjörseðill þeirra.
Hugmyndin, sem felst í erinds-
reka-tölu héðan úr bæ, er sú, að
hvert kjördæmi er í virkilegleika
tvö kjördæmi. Það er að segja:
Sætin eru tvö og aðgreinanleg. Þess
vegna má ekki greiða atkvæði með
þeim tveimur, sem sækja um sama
sætið, heldur verður að greiða at-
kvæði með þeim tvéimur, er sækja
sinn um hvort sæti.
Á kjörseðlinum verða sætin flokk-
uð niður sem A og B; um sætið
A sækja tveir, sinn frá hvorum
flokki, og um sætið B sækja einnig
tveir, sinn frá hvorum flokki. Hver
kjósandi getur því að eins gefið
öðrum sækjanda fyrir A-sætið at-
kvæði sitt og sömuleiðis öðrum
.sækjanda fyrir B-sætið. En ekki má
gefa báðum sækjendum fyrir A-
sætið atkvæðið, eða báðum fyrir B-
sætið, þó með því séu kosnir tveir
menn. Þá er atkvæðið ónýtt. Þá
væri kjósandi að greiða atkvæði
með og móti sjálfum sér, þar sem
hann kysi tvo andstæðinga, er báð-
ir sækja um það sama, en að eins er
hægt að veita einum.
Þetta er ofur einfalt mál, en af
því að þessi aðferð hefir ekki tíðk-
ast áður, álitum vér réttara að
benda á það, svo enginn ruglingur
geti átt sér stað, þegar til kosning-
anna kemur.
Það eina, sem íslendingar þurfa
að gæta að, er það, að greiða at-
kvæði með þingmanni A og þing-
manni B. Þá kemur atkvæði þeirra
að notum.
Kjörseðlar verða að likindum
tveir. Á öðrum kjörseðlinum eru
nöfn þeirra, sem sækja um A-sætið,
— á hinum þeirra, sem sækja um
B-sætið. Merkir kjósandi að eins við
eitt nafn á hverjum seðli.
Til frekari skýringar setjum vér
hér lagagreinar tvær • áhrærandi
kosningar hér í bænum:
“Frá hverri kjördeild — Suður-
AVinnipeg, Mið-Winnipeg og Norð-
ur-Winnipeg — skulu skipuð tvö
sæti á löggjafarþinginu og skulu
þau nefnast A og B sæti, og skal
hver þessi kjördeild eiga tvo full-
trúa á löggjáfarþinginu, er kosnir
séu fyrir hvort þessara sæta.
“Sérstakur kjörseðill gildir fyrir
hvora deild kjördæmisins (A og B)
og skal kjörseðillinn merktur með
tölu, eða öðru merki, er sýni deild-
arskiftinguna.
“Hver kjósandi hefir rétt til að
greiða atkvæði fyrir að eins einn
umsækjanda i hvorri deild kjör-
dæmisins, og á heimtingu á, að fá
eins marga kjörséðla eins og deild-
irnar eru margar”.
ÉG GEF ÞÉR ALT
(Þýtt).
Þér helga’ eg alt, sem eg get veitt,
þótt ærið fátt það sé.
Ein gígja—og hjarta að eins eitt
er alt mitt gjafafé.
Já gigja, er syngur sætum róm
og sálu vængi ljær —
og hjarta þrungið unaðsóm,
sem enginn strengur nær.
Sameiginlegir þingmál-
afundir í Gimli kjörd.
Fundir á eftirgreindum stöðum og tfma verða haldnir í
Gimli kjördæmi til þess að skýra fyrir kjósendum stefnu og
skoðanir stjórnmála flokkanna í fylkismálum. Á fundum
bessuin mæta bæði Islenzku þingmanna efnin, hr. Sveinn
Ihorvaldson og hr. Einar S. Jonsson. Yar það að samningum
gjört milli þeirra til þess að spara fólki ómök og tíma.
Kreuzberg skóla, laugardag 27. júní kl. 10 f.h.
Melev skóla, mánudag, 29. júní, kl. 10 f.h.
Árborg skóla, þriðjudag, 30. júnf, kl. 2 e.h.
Framnes Hall, miðvikudag, 1. júlí, kl. 2 e.h.
Víðir skóla, fimtudag, 2. júlí, kl. 2 e.h.
Húsavíkur skóla, föstudag, 3. júlí, kl. 3 e.h.
Gimli, föstudag 3. júlí, kl. 8 e.h.
Hnausa skóla, laugardag, 4. júlí, kl. 2 e.h.
Arnes skóla, laugardag, 4. júlí, kl. 8 e.li.
Geysir skóla, mánudag, 6. júlí, kl. 10 f.h.
Icelandic River, mánudag, 6. júlí, kl. 8 e.h.
Hekla, miðvikudag, 8. júlí, kl. 4 e.h.
Á fundum þessum mæta ræðumenn frá beggja hálfu, auk
umsækjenda, verða því umræður fjörugar og mál sem fyrir
kjósendum liggja rækilega rædd. öllum er boðið að sækja
fundina og allir eru velkomnir.
S. THORVALDSON
E. S. JONASSON
AÐYORUN
Hérmeð tilkynnist þeim sem það varðar að ég banna alla um-
ferð og allan ágang, á hvern helzt hátt sem er, á land mitt, sem er
partur af Section 23 og Range 4, East, og ef út af er brotið verða
þeir sem það gera að sæta ábyrgð samkvæmt lögum.
Dagsett á Gimli, í Manitoba, 23. Júní, 1914.
GÍSLIJÓNSS0N.
Þótt söng og ást sé kannske
kleyft
lífs kylju að vísa’ á bug,
þau geta á veg þinn geislum
dreift
og gefið þrek og dug.
Ef önn við hjáræmt arg og suð
þinn unaðs- fyllir geim,
lát ástar- knýja gígju guð,
þá glóir sól um heim.
X
Wonderland
Friday
LUCILLE L0VE
Saries 8
Million Dollar Mystery
---------Coming 1
Hver kanna af
ENAMEL
hefur inni að halda
fullnægjandi ágæta vörn
Þegar þú þarfnast bygginga efni eða eldivið
D. D. Wood & Sons.
Limited .... .........
Verzla meB Sand, möl, mulin stein, kalk
stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre”
píastur, brendir tígulsteinar, eldaöar
pípur, sand steypu steinar, “Gips” rennu-
stokkar, “Drain tile,” harö og lin kol,
eldivið og fl.
SKRIFST0FA:
Cor. R0SS & ARLINGTON ST.
HERBERGI TIL LEIGU á íslenzku
heimili í Suite 1 Wellington
Block, Wellington Ave., yfir sýning-
arvikuna.
KOMIÐ OG VERZLIÐ YIÐ OSS
JOHNSONS ELECTRIC COOKO.Ld
Þegar þér komið til þcss að skoða
rafeldarvélina sem þér hafið hugs-
að yður að kaupa, þá lofið okkur
um leið ,að sýna yður þvottavélarn-
ar ódýru og straujárnin sem aldrei
bregðast.
J0HNS0NS ELECTRIC COOKO.Ld
281 Donald Street
Tals. Main 4152
ÞEGAR ÞÉR ÞURFIÐ
Builders Harðvöru Construction Harðvöru
Finishing Harðvöru Smíðatól og Handyðnar
Mál Verkfœrum
Oiía Varnish
WHITE & MANAHAN LTD.
Winnipeg—32 ára—Kenora____
Búðin sem alla gerir ánægða
Karlmanna sterkar “duck” yflrbuxur, parið.Sl.00 tii $1.25
Þykkar “Twill” vinnuekyrtur............$0.90, 1.00 og 1.25
Sérstakt varð á röndóttum, óstífuðum skyrtum, allar stærðir, hver $1.25
Sumar nærskyrtur og buxur, hver................• • -50c
Karlmanna alfatnaður, vel gjörður úr góðu enSlíu Tweed $11, $13, $15
Vinnubuxur; gott efni frá |2 oo fyrir parið ok upp Skoðið okkar sérstöku sokka
25 cent parið, fást einungis hjá Whitc & Manahan Ltd. Karlraanna axlaböad, kragar,
hálsbönd o. s frv , af öllum látura og lapi.
WHITE & MANAHAN, LTD., 500 Main Street
Sýnis herbergi vor eru liin best búin í allri borginni
svo þér eigið sem hægast með að velja.
Aikenhead Clark Hardware Co.Ltd.
Wholesale and Retail Hárdware Merchants
B0YD BUILDING "'^“7 PH0NES MAlN 7150-1