Heimskringla - 16.07.1914, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 16. JÚLÍ, 1914
HEIMSKBINGLA'
BLS. 7
FASTEIGNASALAR
THORSTEINSSON BROS. Byggja hús. Seija lóðir. Ut- vega lán og eldsábyrgðir. Room 815-17 Somerset Block PHONE MAIN 2992
J. J. BILDFELL FASTEIGNASALI. Unlon Bank Sth Floor No. »ío Belnr hús og 166ir, og annaB Jiar að Ifit- andi. Utvegar peningalén o. fl. Phone Main 2685
S. A. SIGURDSON & CO. Húsum skift fyrir lönd og löud fyrir hús. Lén og eldsábyrgö. Room : 208 Carleton Bldg Slmi Main 4463
PAUL BJERNASON FASTEIONASALI SELUR ELDS-LÍFS-OG SLYSA- ABYRGÐIR OG ÚTVEGAR PENINGALÁN WYNYARD, - SASK.
Skrifstofu simi M. 3364 Heimilis sími G. 6094 PENINGALÁN Fljót afgreiðsla. H. J. EGGERTSON 204 McINTYRE BLOCK, Wlnnlpeg ? Man.
J. J. Swanson H. G. Hinrikson J. J. SWANSON & CO. Fasteignasalar og peninga miðlar SUITE 1, ALBERTA BLOCK Portage & Garry Talsími M.2597 Winnipeg, Man.
J. S. SVEINSSON & CO. Selja lótiir í bæjum vesturlandsins og skifta fyrir bújar'Sir og Winnipeg lóbir. Phone Maln 2844 710 McINTYRE BLOCK, WIJÍNIPEG
LÖGFRÆÐINGAR
Graham, Hannesson & McTavish LÖGFRÆÐINGAR 907-908 CONFEDERATION LIFE BLDG. WINNIPEG. Phone Maln 3142
GARLAND & ANDERSON Arni Anderson E. P Garland LÖ6FEÆÐINGAB 801 Electric Railway Chambers. PHONE MAIN 1561
JOSEPH T. THORSON ISLENZKUR LÖGFRÆÐINGUR Aritun: McFADDEN & THORSON T06 McArthur Building, Winnipeg. Phone Main 2671
r H. J. Palmason Chartered Aceountant 807 - 809 S0MERSET BLDG. Phone Main 2736 *
LÆKNAR DR. G. J.GÍSLASON Physiclan and Snrgeon 18 South 3rd Str., Orand Forks, N.Dak Athygli veitt AUONA, EYRNA og KVERKA SJÚKDÓMUM. A- SAMT INNVORTIS SJÚKDÓM- UM og UPPSKURÐI. —
DR. R. L. HURST meölimur konunglega skurölæknaréösins, útskrifaöur af konunglega læknaskólannm 1 LondoD. SérfrreöÍDgur 1 brjóst og tauga- veiklun og kvensjúkdómum. Skrifstofa 305 Kennedy BuildÍDg, Portage Ave. 1 gagnv- Eatons) Talsimi Main 814. Til viötals frá 10-12, 3.-5, 7-9.
GISTIHÚS
MARKET HOTEL
146 Princess St.
6 móti marka&ouni
P. O’CONNELL, elgandl. WINNIPEQ
Beztu vloföng viodlar og aöhlyDDÍDg
góö. IslenzkDr veitÍDgamaöur N.
HalldórssoD, lei&beÍDÍr lsleDdÍDgum.
WOODBINE HOTEL
4(W MAIN ST.
StwistB Billiard Hall 1 Norðvestnrlandinn
Tln Pool-bor6,—Alskonar vlnog vindlar
Glsting og f»01: $1.00 á dag og þar yflr
JLennon & Hebb,
Eigendnr.
HITT OG ÞETTA
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
81S Slierliraoke Strcet
Phone Oarry 2152
Moler Hárskuríar skólinn
Nemendum borgað trott kaup meðan
þeir eru að læra. Vér kennum rakara
iðn á fáum vikum Atvinna útveruð
að loknum lærdómi, með $15 til 5*5
kaupi á viku. Komið og fáið ókeypis
skóla skýrzlu. Skólinn er á horni
King St. og Pacifis Avenue
MOLER BARBER COLLEGE
WELLINGTON BARBER SHOP
nndir nýrri stjórn
HársknrBur 25c, Alt verk vandaö. Viö-
skifta IslendÍDga óskaö.
ROY PEAL, Eigandi
691 Wellington Ave.
V
Lærðu að Dansa
biá beztu Dans kennuruia Winnipeg bæiar
Prof. og Mrs. E. A. Wirth, á
COLISEUM
Fullkomið kenslu tímabil fyrir U 50
Byrjar klukkan 8.15 á hverju kvöldi.
I
A
FORT ROUGE THEATRE
L
Pembina og Cokydon.
Ágætt Hreyfimyndahús
Beztu myndir sýndar þar.
J. Jónasson, Eigandi J
Kvöld og dagskðll
Manitoba School of Telegraphy
530 MAIN STREET, WINNIPEG
Mcljean Dlock
I. lNGALDSOJi, Bigandl
KomiS c»n skriflfi efilr npplf»lngum
HERBERGI
Björt, rúmgóð, p»gileg fást altaf með
þvi að koma til vor
City Rooming & Rental Bureau
Office open 9 a.m. to 9 p m.
Phono M. 5670 3! 8 Mclntyre Blk
ST. REGIS HOTEL
Smith Street (n&lægt Portage)
EuropeAD Plan. Business manna máltlöir
Ír6 kl. 12 til 2, 50c. Tea Conrse Table De
Hote dinner $1.00, r*eö vfni $1.25. Vér höf-
um einnig borösal þar sem hver einstaklin-
gur ber 6 sitt eigiö borö.
McCARREY & LEE
Phone M, 5664 i
Adams Bros.
Plumhing, Gas & Steam Fitting
Viðgerðun sérstakur
gaumur gefin.
588 SHERBR00KE STREET
cor. Sargent
HITT OG ÞETTA
Vér höfum fullar birgölr hreinustu lyfja
og meöala, KomiÖ meö lyfseöla yöar hing-
aö vér gerum meönlin nákvæmlega eftir
ávlsan læknisÍDS. Vér sÍDnnm utansveita
pönDDum og seljnm giftingaleyfi,
C0LCLEUGH & C0.
Notre Dame Ave, & Sherbrooke 5t,
Phone Garry 2690—2691.
GÍSLI GOODMAN
TINSMIÐUR.
VEBESTŒÐI;
Cor. Toronto & Notre Dame.
Phone . . Helmllls
Qarry 2988 * * Garry 899
SHAW’S
Stærsta og elzta brúkaðra
fatasölubúðin f Vestur Canada.
479 Notre Dame Avenue
RELIANCE CLEANING AND
PRESSING C0.
508 Notre ]>ame Avenue
Vér hrcinsum og pressum klæönaö fyrir
50 cent
EinkunnarorÖ ; TreystiÖ oss
KlæÖDaöir sóttir.heim og skilaö aftmr
Offlce Phooe 3138
I. INGALDSON
193 Mighton Avenue
Umboðsma'ður
Continental Life InMirnnce
, 417 Mclntyre Ulock
WINNIPEG
St. Paul Second Hand Clothing
Store
Borgar hæsta verö fyrir gömnl föt af ung-
nm og gömlum. sömuleiöis loövöru. Opiö
til kl, lo 6 kvöldin.
H. ZONINFELD
355 Notre Tlame Phone G.'88
Heyrðu landil
l>að borgar sig fyrir þig að láta
HALLDoR METHÚSALEMS
byggja þér hús
i
Phone Sher. 2623
. ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ
um heimilisréttarlönd í Canada
Norðvesturlandinu.
Sérhver manneskja, sem fjðlskyldu
hefir fyrir að sjá, os sérhver karlma'ð-
ur, sem orðin er 18 ára, hefir heimills-
rétt til fjórðungs úr ‘section’ af óteknu
stjórnarlandi 1 Manitobe, Saskatche-
wan og Alberta. Umsækjandinn verð-
ur. .sJálfur að koma á landskrifstofu
Btjórnarinnar eða undirskrifstofu i þvl
héraði. Samkvæmt umboði og með
sérstökum skilyrðum má faðir, móðir,
sonur, dóttir, bróður eða systir um-
sækjandans swkja um landið fyrir
hans hönd á hvaða skrifstofu sem er.
Skyldur.—Sex mánaða ábúð á ári og
ræktun á landinu í þrjú ár. Landnemi
má þó búa á landi innan 9 mílna frá
íeimilisréttarlandinu, og ekki er minna
en 80 ekrur og er eignar og ábúðar-
Jörð hans, eða föður, móður, sonar,
dóttur bróður eða systur hans.
1 vissum héruðum hefur landnemnn,
sem fullnwgt hefir landtöku skildum
sínum, forkaupsrétt (pr.-emption) að
sectionarfjórðungi áföstum við land
sitt. Verð $3.00 ekran. Skyldur:—
Verður nð sitjn 6 mftnuðt nf ftrl II
lanðinu i 3 ár frá því er heimilisréttar-
landið var tekið (að þeim tíma með-
töldum, er til þess þarf að ná eignar-
bréfi á helmilisréttarlandinu), og 50
•krur verður að yrkja aukreitis.
Landtökumaður, sem hefir þegar
notað heimilisrétt sinn og getur eklsi
náð forkaupsrétti (pre-emption) á
landi, getur keypt heimilisréttarland
I sérstökum héruðum. Verð $3.00 ek-
ran. Skyidur—Verðið að sltja 6 mán-
uði á landinu á ári í 3 ár og rækta 50
reisa hús $300.'00 virði.
W. W. CORY,
Deputy Minister of th« Xnterior.
«::« j: :::::::::::::::::: n n :t::
t: HERBERGI TIL LEIGU «
tt tt
tt Stórt og gott uppbúið her- tt
tt bergi til leigu að 630 Sherb. tt
tt Str. Telephonc Garry 270. tt
tt Victor B. Anderson tt
tttttttttttttttttttttttttttttttttt
BRJEF Á HEIMSKRINGLU
Miss R. Davíðsson.
Islandsbréf —
Mrs. Stefanía Sigmundsdóttir.
Mr. Kristján G. Snæbjörnsson.
G. Z. Halldórsson.
Helgi Helgason.
Alex Johnson.
Æíntýri Bandaríkja-
manna í Mexico.
(Framhald)
Ég var þess svo vísari að kunnug-
ir olíumenn töidu að Pamíco nám-
urnar einar væru 2,000,000,000 doll-
ara virði (tvær billíónir) aðrir 500
millíónum meira. Og þetta er að-
eins einn af hinum þremur aðal
stöðum sem olían er fundin á. Hin-
ir staðirnir eru Ebano og Huasteca,
og enn eru tveir aðrir: Chila og
Topila.
Og svo fórum við að taia um
stríðið og hermennina, og ég
kyntist þar major einum, sem var
svo sætróma og blíður sem brúð-
gumi kvöldið áður en hann átti að
giftast. Hann hefði verið á her-
ferðum 1 fjögur ár, fyrst undir
Madero, en nú undir forustu þeirra
Villa og Madero. Tveir bræður
hans höfðu fallið á vígvelli og eigur
hans voru allar eyðilagðar. Sjálfur
var hann nýkominn úr rúminu
eftir skotsár, hefði kúlan farið 1
gegnum hrjóstið, rétt fyrir neðan
hjartað.
Við skjótum þá hermenn vora,
sem ræna sagði hann ofur biíðlega.
Fjóra skutum við hérna í Tampico.
Sannarlega erum við siðaðir menn.
1 Monterey skutum við einn ofursta
og einn kaftein fyrir að ræna. Við
leyfum það ekki. Við erum ekki
viltir menn.”
I>að voru alt lygar um grimdar-
verk uppreistarmanna. I>að voru
alt Huertaliðar, sem unnu þau verk.
Þeir drógu fanga sína til dauða á
ólarreipum. Bundu ólareipinu
um manninn og festu svo hinum
endanum um hnakkhefið og hleypt-
u svo á sprett þangað til að maður-
inn var allur tættur í sundur er
þeir fóru um óslétta kvistótta og
steinótta jörð. En uppreistarmenn-
irnir tóku hina særðu óvini sína og
hjúkruðu þeim á spítölum (þegar
þeir ekki stungu þá eða skutu í
vainum.)
“Zaragoza?” endurtók hann, er ég
mintist á hann, og skein í hvítan
tanngarðinn er varirnar drógust frá
tönnunum. “Hann er í gildruni,
hann getur ekki sloppið undan.”
“En þegar þið náið honum.?”
spurði ég. “Hann er morðingi”
mælti hann, og skildist mér bæði á
röddini og svipnum hvað við hann
myndi gjört.
Morguninn eftir fór ég á hrað-
skreiðum bát upp ána með yfir-
manni eins olíufélagsins og alstaðar
þar sem ekki voru bryggjur til þess
að ferma olíuskipin, og þar sem
bakkarnir voru ekki feikna háir,
þar var iandfð ræktað aila leið ofan
að vatnsborði Voru þar pálmavið-
ir með kókóshnetum, tré með máng-
ós og avocadó. Alt þetta ræktuðu
hreinir Indíánar. Var það bæði að
þakka hinum frjósama jarðvegi og
inndæia loftslagi að taka mátti þar
þrennar uppskerur á ári.
Héldum upp þaðan sem Tamesi
áin rennur í Pamíco og sáum ofan
í tigulsteins þökin á húgörðum og
húsum Ameríkumanna. Sáum við
þá margar Indíánabrúðir, dökkar
á hörund en vel vaxnar vera að
haða sig á grynningunum. En hú-
garðar Ameríkumdnna voru yfir
gefnir. Eigcndurnir voru ekki kom-
rir t'ftur af flóttanum til Amciíku.
Einn búgarðurinn var 1300 ekrur á
stærð og voru þúsund þeirra undir
bananas. Sumir ræktuðu vínber,
oranges osfrv. en allir liöfðu eitt-
hvað af gripum, hestum og múl-
ösnum og nautum. Lifir það alt á
grasinu, því það er grænt allan
árshringinn.
Öllum útlendingum í Mexico kem-
ur saman um það, að Indíánarir
séu undantekningarlaust hinir
vöndúðustu og ærlegustu menn.
I>að er.u kynblendingarnir, sem eru
iýgnir og óheiðarlegir og svikulir.
Og það voru kynblendingarnir,
skrílhóparnir þeirra í Tampico, sem
heimtuðu að allir útlendingar væru
drepnir. Og margir þeirra sem
hrópuðu hæst og liarðast voru
einmitt vinnumenn þeirra, sem þeir
vildu drepa láta, því þá langaði til
að ræna þá og eyðileggja eigur
þeirra. Indíánarnir voru tryggir
og vildu ekki bregðast húsbænd-
um sínum.
(meira næst)
OSLER OG TÆRING.
Þess var nýlega getið að hinn við-
kunni prófessor Osler við Oxford
háskóla á Englandi hefði sagt það
á opinberum fundi að 90 af hverjum
hundrað mönnum hefðu tæringu.
Þetta var rétt hermt en af því málið
er mikilsvarandi og snertir hérum-
bil hvern einasta mann, þá viljum
vér enn hafa upp orð hans.
Fyrst gjörði hann þeim aðvörun
um það að það sem hann ætlaði að
segja mundi koma þeim á óvart og
vera mjög óþægilegt. Síðan sagði
hann:
“Tæringarveikum mönnum má
skifta í þrjá hópa. Allir þeir, sem
hér eru inni með oss verða í fyrsta
hópnum og hefði ég verkfæri til
þes-s að líta inn í hrjósthol og inn-
ýfli á hverjum yðar þá mundi ég að
öllum líkindum hjá 90 af hundraði
hverju einhverstaðar finna blett
sem tæringin hefðist við á. Tær-
ingargerillinn er svo tíður og al-
mennur að það er nærri liver ein-
asti maður sem hefir orðið fyrir
heimsókn hans þegar hann hefir
náð fullorðins aldri.
En hversvegna deyja menn þá
ekki.? Af því, að vér erum hvorki
Guineageltir eða rabítar. Vér höf-
um sóttvörn 1 vorum eigin líkama.
En gerilliun er í oss öllum, og allir
húum við við þann möguleika, að
hrekjast viljandi eða óviljandi úr
þessum hóp og í annanhvorn hinna.
1 öðrum hópnum eru þeir, sem
ekki hafa tæringuna svo mikia eða
ákafa að hún brjótist út, og í þess-
um mönnum má stöðva veikina,
lækna þá svo að þeir nái fullum
kröftum og heilsu og geti starfað
að hvaða vinnu sem er.
En allir þeir, sem eru í þriðja
hópnum eru dæmdir. Sýkin magn-
ast með hverri vikunni, mánuð eftir
mánuð, ár eftir ár, og eftir eitt til
fimm ár eru þeir dauðir.
Þegar að verkamenn hafa sæmi-
leg vinnulaun, verður hús þeirra
heimili þeirra og þegar þjóðin ver
því til fæðu og nauðsynlegs atbún-
aðar, sem hún nú leggur í bjór og
brennivín, þá munu verða milíónir
1 fyrsta hópnum og allir nokkurn
vegin tryggir fyrir sýkinni, þar sem
nú eru aðeins í honum nokkur
hundruð þúsund og langt frá því
að þeir séu tryggir eður óhultir
fyrir henni.
Menn eru nú búnir að elta uppi
óvin þenna og hrekja hann inn í
vígi sitt eður kastala. En þar er
liann varinn af þremur fóstbræðr-
um sínum, en þeir eru fátæktin,
vond húsakynni og drykkjuskapur-
BINDINDISLÖGIN Á ENGLANDI.
Bindindislöggjöfin 1913 á Skot-
landi sem að lögum urðu fyrir nok-
krum vikum eru markverðustu
hindindislög sem hafa viðtekin ver-
ið á Engiandi, sðan hin viðkunnu
vínsölulög komu út 1908. Hin lög-
in voru “barnalöggjöfin” sem tekin
var út úr hinum löguiíum og sam-
þykt af efri og neðri inálstofunni.
Eftir þeim er það móti lögum, að
gcfa eða veita nokkru barni vín, sé*
harnið innan 5 ára gamalt, og ekki
má veita barni innan 14 ára vín í
opinberu húsi við brennivínsgarð-
ana—nema í iokuðu íláti.
En þessi nýja skotska löggjöf
bannar það að opna vínsöluhús fyr
en klukkan 10 að morgni.
Er það til þess að koma 1 veg
fyrir að verkamenn fái sér “dagverð-
ar staup” því að við skipasmfðar og
véla smíðar er það siður verka-
manna að ganga til verks kl. 6 að
morgni, en borða svo morgunmat
milli kl. 9 og liálf tíu, og til kl. 10.
A þeim tíma eru veitingahúsin troð-
full og oft drekka þá verkamenn svo
mikið að þeir geta ekki haldið á-
fram vinnu sinni.
Þetta mundi nú ekki þykja nein
sérleg löggjöf hér í Canada, en liún
hefir ákaflcga mikið að segja þar
sem jafnmikið er drukkið og i
Englandi og Skotlandi. Og fullörð-
ugt hefur verið að koma henni á
því að The National Kingdom Alli-
ance hefur orðið að liefja hverja
haráttuna eftir aðra, yfir alt landið.
síðan vínsölulögin komu út 1908.
Og nú eru 94,000 biemiivlnknæpur
á Englandi og Skotlandi og þær
gcta þeir eigi snert. En þeir eru að
rcyna að ná úr höndum yfirvalda,
réttinum til að veita vínsöluleyfin,
eða þá að minsta kosti að fá ein-
liverja tegund af local option. En
alt til þcssa hefur þeim gengið það
mjög erfitt og sáralítlu hafa þeir
áorkað.
Rétt núna fyrir nokkrum vikum
var í neðri málstofunni felt laga-
frumvarp um að loka vínsöluhús-
um á sunnudögum.
Var þar svo tiltekið að þar sein
vínsala væri utan Lundúnaborgar,
skyidi húsum þeirn lokað á sunnu-
dögum í þrjár stundir frá hádegi
til þess klukkan- 10 að kveldi og
skyldi ein stundin vera frá hádegi
til kl. 3 (ein af þremur)
En í Lundúnaborg skyldi vínsöl-
uhúsum eða knæpum lokað líka 3
stundir frá því kl. 12 á hádegi og til
kl. 11 aö kveldi og skyldi einn
klukkutíminp af þessum þremur
vera einhverntíma milli hádegis og
kl. 3 e.m.
Svona löguðum lögum var ekki
hægt að koma á þarna á Englandi.
Asquith stjórnin sér sér ekki fært
að reyna að koma þeim á, og er sagt
að þeir liafi nú enga löngun til að
stofna sér í þá hættu.
Er sagt að Bretar hafi eytt fyrir
)rennivín og áfenga drykki árið 1913
meira en $25,000,000 fram yfir það
sem þeir eyddu árið 1912, (tuttugu
og fimm millíónir doliara.)
En árið 1913 var brennivínsreikn-
ingur landsins heldur hærri en all-
ar tekjur þess af sköttum og álög-
um. Hafði verið $9.50 fyrir hverja
einustu familíu. Þó hafa bindind-
ishóparnir verið þar starfandi, en
það eina sem þeir hafa áunnið
virðist vera það að mönnum er farið
að þykja smán að því að láta sjá
sig hroðafulla á strætum og mann-
amótum.
ENN UM EMPRESS.
Kapteinninn á Storstad, Ander-
sen varð heldur ófrýnn við, er hann
heyrði úrskurðinn rannsóknar-
nefndarinnar í Empress málinu.
Eins og menn vita kendi rannsókn-
arnefndin í einu hljóði stýrimönn-
unum á Storstad um slysið, en frí-
kendi Empress of Ireland og alla
þá sem á henni voru.
Þegar fréttaritari fór að spyrja
Anderson hvernig honum félli úr-
skurðurinn þá mælt hann: “Eg
hélt ekki að lávarður Mersey mundi
vera annar eins asni,” og var reiður
mjög, “og þú getur sagt það í blaði
þínu, ef þú vilt. Hann kann að
vera lávarður þessl Mersey, en ég get
sagt þér það, að hafi hann nokkurn
tíma haft orð á sér fyrir dómgreind
og þekkingu og ærlegheit, þá á
hann eftir að tapa því öllu í þess-
um málum. Það er álit og sann-
færing mín, að hann hafi verið að
reyna að fella úrskurðinn C. P. R.
félaginu í vil og þú mátt líka fara
með það, hvert sem þú vilt.
“En þú skalt ekki ímynda þér, að
þetta verði látið hér við standa.
Við i Noregi látum okkur vera ant
um, að sjá því til iykta ráðið. Það
verður nóg starf á höndum fyrir
dómstólunum bæði i Canada og á
Englandi. Við hefjum þegar skaða-
bótamál á hendur C.P.R. félaginu,
og svo liefjum við annað mál fyrir
aðmirálaréttinum á Bretlandi, og
þar skal þlæjan verða dregin af öllu
saman. Það verður þar enginn lá-
varður Mersey að renna málunum
C.P.R. félaginu í hag”. Og með
þessum síðustu orðum strikaði hinn
reiði Norðmaður i burtu til að fá
sér morgunbita,
Hins vegar var Beatty, lögmaður
C.P.R. félagsins, ákaflega ánægður.
Sagði hann, að úrskurðurinn væri
mjög sanngjarn, og liélt að fólkið i
Canada mundi verða hrifið af hon-
um og þykja hann réttlætið sjálft.
Hrósaði hann happi yfir því að
C. P. R. félagið skyldi vera fríkent
enda hefði það svo margsinnis átt
það skilið.
En þegar Mersey lávarður heyrði
hvað Andersen hafði sagt og að
hann háfði verið reiður mjög, þá
brosti hann og kvaðst hafa búist
við þessu.
VATN ADREKINN Á WINNIPEG
BEACH
Þeir eru nú farnir að fljúga í
Nýja íslandi. Aldrei fór það svo,
að þeir sæju ekki flugmann þar. Og
vissulega hefir margan manninn
langað til þess oft og tiðum, að hafa
eitthvað til þess að lyfta sér upp úr
fenunum, ófærunum ogg hinum for-
ugu dýkjum.
Nú kom hann á Winnipeg Beach
með svo mörgu öðru góðu, og Dr.
Alkinson fór að fljúga með fiug-
manninum Claire Horton og hjört-
un slógu svo ótt og titt í brjóstum
karla og kvenna, og svo vildi það
til slysið. Þeir voru komnir út yfir
vatnið eitthvað 200 fet og eitthvað
30 fet í loft upp, þegar llorton fann
að eitthvað var í ólagi. Hann snöri
sér við í sætinu og tók aðra hend-
ina af stýrinu. En rétt í þessu
stakk drekinn nefinu niður, rétt
einsog þegar hrútur ætlar að renna
á annan, og stíngur höfðinu niður,
Og drekinn tók skrið mikið og
stefndi beint niður. Þetta sáu hóp-
arnir á landi og allir hlupu til og
ætluðu að hjáipa, því menn bjugg-
ust við, að þarna myndu brotnir
viðir og vélar, rifnir dúkar, slitin
stög og brotin bein inanna. Ea
vatnadrekinn fór niður og sat
þarna á vatninu, eins og andarungi,
sem í fyrsta sinni kemur út á poll-
inn, hálf-klaufalegur og veit ekki,
hvað hann á að gjöra. Og bátarnir
ýttu óðara frá landi til að bjarga og
svo voru þeir teknir af drekanum
báðir, flugmaðurinn Horton ó-
meiddur en Dr. Atkinson dálítið
rispaður á handlegg.
Vonandi, að oftar verði flogið i
Nýja lslandi og dálít-i<5 Jiærra frá
vatni.
KJÖT HÆKKAR í VERÐI
1 Ottawa cr húist við að kjötið
liækki í verði svo að það verði enn
þá hærra en það var síðastliðið
haust, og frá Chicago berast sömu
tíðindi. Er það talið óliugsandi
annað en að kjötþurð verði meiri
yfir alt landið en nokkru sinni áður
Gripirnir séu ekki til. En menn
vilja hafa þá til að éta þá, og svo
verða þeir þá að borga hvaða verð
sem á kjötið er sett.