Heimskringla - 16.07.1914, Blaðsíða 8
BLS. 8
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 16. JÚLÍ, 1914
Þekkir þú á
Piano?
Þú þarft ekki að þekkja á verð-
lag á Píanóum til þess aS sann-
feerast um að verðið er lágt á
hinum mismunandi Píanóum
vorum.
ViSskiftamenn eru aldrei lát-
nir borga okurverS í verzlun
McLean’s. Þessi velþekta verz-
lim er bezt kynt í síSastl. 30 ár
fyrir aS selja á bezta verSi hér í
borginni.
Piano frá
$235 til$1500
J. W. KELLY, J. R. EEDMOND,
W, J. ROó’S: Einka eigendur.
Wínnipeg stærsta hljóðfærabúð
Horn; Portage Ave. Hargrave St
ÚR BÆNUM.
Frá Dakota hefir frézst, að við
útnefningar kosninguna þann 25.
sl. hafi Geo. Peterson náð útnefn-
ingu sem ríkislögmaður fyrir Pem-
bina County á hlið Repúblikana, en
Jónas Hall, sem þingmannsefni á
hlið Demókrata. Hr. Sveinn Thor-
valdsson tapaði útnefningu sem
County féhirðir með 6 atkvæðum.
Hr. Páll S. Pálsson, frá Winnipeg,
fór með fólk sitt vestur til Leslie,
Sask., á mánudaginn. Gjörir hann
ráð fyrir, að tefja þar yfir sumar-
timann hjá tengdafólki sinu.
Hr. Lárus Árnason, frá Lesli, kom
hingað til bæjar fyrir helgina. Alt
fréttalítið þaðan að vestan. Hann
hélt heimleiðis aftur á laugardag-
Hr. Jón Víum, kaupmaður, frá
Foam I.ake, kom til bæjarins á
mánudaginn var. Dvelur hann hér
nokkra daga, aðallega í verzlunar-
erindum. Daufar horfur sagði hann
vestra með uppskeru. Gengið hafa
of miklir þurkar í sumar og öllum
jarðargróða því farið illa að.
Hr. Sveinn Thorvaldsson, þing-
maður fyrir Gimli kjördæmi, og
Dr. Þorbergur Thorvaldsson, komu
norðan frá Árnesi til bæjarins á
mánudaginn.
Hr. Jónas Þorbergsson, frá Baldur
Man., var staddur hér i bænum á
mánudaginn var.
Vorir íslenzku skiftavinir eru beð-
nir aOf taka eftir breytingu á dag-
setningu á Lucille Love. Hugmynd-
in með því er að forðast troðning á
föstudaginn þegar Million Dollar
Mystery er sýnt. Sýningin næsta
mánudag er mjög hrífandi og út-
búnaður til hennar hefur kostað
mikið fé. Það er eitthvað hið besta
sem sést hefur á myndasýningum.
Og þangað ættuð þér að koma með
yðar bestu kunningja, sem heim-
sækja yður. Og komið snemma til
þess að fá góð sæti. Takið eftir
auglýsingunni í þessu biaði.
Hra. Einar Johnson frá Otto, Man.
kom hingað til bæjar á mánudagin.
Engar sérlegar fréttir segir hann að
vestan.
B. LAPIN
HLUSTIÐ KONUR
Nú erum vjer aðselja vorklæðnað
afar ódýrt. Niðwrsett veröá öllu.
Eg sel ykkur í alla staði þann
bezta alklæðnað fáanlegan, fyrir
$35 00 til $37.50
Bezta nýtizku kvenfata stofa
Telephone Garry 1982
392 NOTRE DAME AVENUE
Fimm Prósent
afsláttur
Allar matvörutegundir sem pið
þarfnist þar á meðal ágætis kaffi sem
svo margir pekkja nú, og dáðst að
fyrirM mekk og gæði, fást í matvöru
búð B. Arnasonar; á horni
Victor St. og Sargent Ave.
Svo er aðgæzluvert að Arnason gefur
5% afslitt af doll. fyrir cash verzlun.
Phone Sher. 1120
B. ARNASON
Þessir íslenzkir nemendur Mr. Th.
Johnstons iíólins kennara hafa
tekið próf við Toronto Conservatory
of Music í þriðja árs námsgreinum
f fíólínsspili. Gunnlaugur Oddson,
Selkirk, (lst class honors) Vilhjálm-
ur Einarson, Lögberg, Sask.(honors)
Hra. W. Christjansson frá Saska-
toon, hom hingað til bæjar á mán-
udagin að skoða sýninguna er
stendur nú yfir þessa daga. Vond-
ar horfur segir hann vera með upp-
skeru þar vestra, of miklar þurkar,
og kuldar í vor. Atvinnu deyfð í
Saskatoon.
Á miðvikudagsmorguninn lögðu
af stað héðan úr bænum átta manns
áleiðis til íslands. Meðal þeirra
sem fara alfarin er Miss Jónína
Árnason frá Akureyri. Kom hún
hingað fyrir tæpu ári síðan. Alt
þetta fólk siglir frá Montreal. ósk-
um vér því allra farar heilla.
Hra. Einar Einarsson frá Gimli
hefir dvalið hér í bæ síðan á mánu-
dag. Kom hann til að sjá Iðnaðar
sýninguna hér í bænum.
Success Business
College
Tryggið framtíð yðar með
því að lesa á hinum stærsta
verzlunarskóla Winnipeg-
borgar — “THE SUCCESS
BUSINESS COLLEGE” sem
er á horni Portage Ave. og
Edmonton St. Við höfum
útibú í Regina, Moose Jaw,
Weyburn, Calgary, Leth-
bridge, Wetaskiwin, La-
combe og Vaneouver. ís-
lenzku nemendurnir sem
vér höfum haft á umliðnum
árum hafa verið gáfaðir og
iðjusamir. Þessvegna vilj-
um vér fá fleiri Islendinga.
Skrifið þeirri deild vorri
sem næst yður er og fáið ó-
keypis upplýsingar.
Jón ólafsson frá Geldingarholti,
(áður kennari í Rvík) er vinsamlega
beðinn að senda utanáskrift sína
til Heimskringlu.
Fimtudaginn þann 9. þ. m. fékk
Mrs. Helga Guðmundsson í Gimli,
símskeyti frá dóttur sinni ungfrú
Friðu Kristjánsson, er lagði af stað
norður til Fort Churchhill 9. júnf
síðastl. með gufubátnum “Wolver-
ine”; þeirra erinda að gifta sig. Var
unnusti hennar þar norður frá, í
lögreglu liði norðurhéraðsins, og
heitir hann J. G. Jones. Símskeytið
var dagsett 9. júlí og sent frá Port
Nelson. Var það þess efnis að ferð-
in hefði gengið vel. Mætti Mr. Jones
heitmey sinni í York, smábæ norður
við Nelson fljótið og voru þau gefin
þar saman þann 7. þ.m. óska hin-
ir mörgu vinir og vandamenn ungu
brúðhjónunum heilla.
Áður en Miss Kristjánsson lagði
af stað í þessa ferð var henni haldið
mjög fjölment kveðjusamsæti á
Gimli og árnað allra farar heilla.
Hr. Krístján P. Bjarnason frá
Otto Man. er einn meðal sýningar-
gestanna hér f bænum þessa viku.
Allir Islendingar sem sýninguna
sækja eru mintir á að koma við í
veitingar skála Unitara kyrkjunnar
út í garðinum, og fá sér þar hress-
ingu. Er þar seldur matur og kaffi
og svaladrykkjir. Mega íslendingar
láta landa sína einsvel njóta við-
skiftanna sem einhverja aðra.
Kona ein í Suður-Afríku nýgift
skógverði þar nálægt Delagoa Bay
járnbrautinni skaut 4 Ijón á sama
kveldinu. Hún mætti þeim skamt
frá húsi sínu, en hafði riffilinn með
sér. Þau voru 6 saman ljónin og
án þess að ihissa nokkurt skot, en
skaut hún þau 4 hvort á eftir öðru,
tvö ljónanna lögðu á flótta inn í
skóginn.
Islendingadagurinn
1. ágúst.
Meðan á kosningum stóð hafa
fallið niður fundir í lslendinga-
dags-nefndinni; nefndarmenn ver-
íð önnum kafmr. En haldið verður
nú áfram úr þessu af kappi með
undirbúning fyrir hátíðahaldið. —
Fundur verður í nefndinni síðari
hluta þessarar viku og þá ráðstaf-
að skemtiskránni, samið um ræðu-
menn o. fl. Ut um sveitir eru ýms
íslenzk íþróttafélög að undirbúa
sig af kappi fyrir væntanlega
þátttöku í íþróttum hér, og er bú-
ist við, að með fleira móti sæki ut-
anbæjarmenn hátíðina. — Fréttir
verða fluttar af því, sem fundirnir
ráðgjöra að hafa til skemtana nú
í næstu blöðum, og eins hversu
gengur með allan undirbúning.
SYRPA
3. hefti er komið út og hefir nú verið sent kaupendum og út-
sölumönnum.
INNIHALD:
Guðrún gamla. Smásaga. Eftir......Jóhannes Friðlaugsson
1 Rauðárdalnum. Saga. Eftir.........J. Magnús Bjarnason
Gamlar minningar. Eftir................Jónas J. Húnford
Sorg og ábyrgð. Eftir...................Elbert Hubbard
Orustan við Saratoga. Eftir...........Sir Edward Creasy
Fuglinn í fjörunni. Kvæði.............................
Týnda gullnáman. Saga frá landnámstíð Albertafylkis
Eftir...............................kaft. C. E. Denny
Þorsteinn smiður Þorleifsson..........................
Flöskupökinn. Æfintýri.................................
Býsnin naesta á sjó, II...............................
Úr dularheimi.........................................
Smávegis..............................................
Heftið kostar í lausasölu 30c. Ángangwrinn 4 heítl $1.00
Nýir kamMndur fá 1. árgang fyrfr 50e.
ÓLAFUR S THORGEIRSSON
678 Sherbroeke Street,
WINNIPEG
FYRIRSPURN.
Ekkjan Ragnheiður Magnúsdóttir
í Reykjavík (kona Jóns Kristjáns-
sonar, sem druknaði í ísafjarðar-
djúpi 9. jan. 1913), hefir sent fyrir-
spurn til Hkr. um heimilisfang
bræðranna Tryggva, Sigurðar og
Gests Kristjánssona, mága hennar.
Fóru þeir frá Norður-Þingeyjar-
sýslu árið 1891 með foreldrum sín-
um til Grafton, N. Dak; en eru nú
farnir þaðan. Hver, sem kynni að
vita, hvar þeir eru niðurkomnir, er
vinsamlegast beðinn að tilkynna
Hkr. það, eða senda áritan þeirra
til ekkjunnar Ragnheiðar Magnús-
dóttur í Reykjavík.
SYNINGAR KJÓRKAUP
HJÁ
The Clothes Shop
354 Portage Avenue, horni Carlton
Heil vika með sérstökum prísum á fatnaði
karlmannabúnaði og liöttum.
Notið yður niðursett verðið þenna tíma, eitt liundrað og fimm-
tíu alfatnaðar búningar úr innfuttu worsted og tweeds af
bestu gjörð. Sniðin eftir þér áður en þú ferð
úr búðinni. til $25 fatnaðir fyrir........
$15.00
Stór sala af karlmanna straw boaters liöttum
Vanaverð upp í $3.00 hver nú $1,00
Serstakt verð í hverri deild, skyrtur, nærklæði, sokkar
flóka og strá-hattar og húfur
Wonder land
LUCILLE LOVE
Migvikudag og fimtudag Series 11
MILLION DOLLAR MYSTERY
Föstudag og laugardag series 2
Þú verður komin nógu snemma
alt fram að 10.30 e.m. Opnast kl.
1 e.m.
Mánudaginn 20. júlf
THRU FLAMES TO FORTUNE
eða smáþorpig sokkna, hin ein-
kennilegasta og áhrifamesta saga
sem sýnd hefur verið með mynd-
um.
INNGANGUR lOc.
Þegar þú þarfnast bygginga efni eÖa eldivið
D. D. Wood & Sons.
1 Limited ===
Verzla með Sand, möl, mulin stein, kalk
stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre”
plastur, brendir tígulsteinar, eldaðar
pípur, sand steypu steinar, “Gips” rennu-
stokkar, “Drain tile,” harð og lin kol,
eldivið og fl.
HERBERGI TIL LEIGU
Gott herbergi til leigu með mjög
lágu verði á góðu íslenzku heimili.
Leigjandi snúi sér til
507 SIMCOE STREET
HERBERGI TIL LEIGU á íslenzku
heimili í Suite 1 Wellington
Block, Wellington Ave., yfir sýning-
arvikuna.
DUGNAÐUR OG VANDVIRKNI er
bezta auglýsing til allra. — Allir
óska eftir góðri undirstöðu undir
hús sín og góðri plastringu. Það
fáið þið, ef þið kallið á
Bjarna Sveinsson
929 Sherburne St., eða reynið:
Garry 3923. 4t
HERBERGI TIL LEIGU
að 674
Alverstone
sími Garry 4161.
Street. — Tal-
SKRIFSTOFA:
Cor. ROSS & ARUNGTON ST.
SÖNGSAMKOMA
heldur söngfélag Lundar bygðar
LAUGARDAGINN, 1 ÁGÚST næstk.
Flokkurinn hefur verið um allangan tíma æfður af söng-
stjóra Jóni Friðfinnssyni, tónskáldi frá Winnipeg
þessi lö» verða sunginn á samkomunni:
Ó guð vorslands
Solo—Dalvísur
Jón Sigurðsson
Heim til fjalla
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
Söngflokkurinn
- - Árni Thorsteinsson
Sig. Einarsson
Söngflokkurinn
Kór
Jónas Pálsson
Pocius
Jón Fritjinnsson
Schulz
ísland, ísland ó ættarland
Söngflokkurinn
Eins og sólin hjúpi hulinn
Solo og Kór
Guð hæðst í hæð ...
Söngflokkurinn
Solo—Sólsikríkjan ...
Góða nótt ....
Söngflokkurinn
ELD GAMLA ÍSAFOLD—SÚNGIÐ AF ÖLLUM
Jón Laxdal
Schuster
Samkoman byrjar kiukkan átta.
7L~