Heimskringla - 10.09.1914, Síða 1
í
Giftingaleyfisbréf seld
Vel gjörbur letur gröftur.
Th. Johnson
Watchmaker,Jeweler&Optícían +
Allar vit5geröir fljótt og vel af hendi Í
leystar. +
248 Maín Street f
?hone Maln ««()« WINNIPEG, MAN. +
Fáit5 upplýsingar um
DUNVEGAN
PEACE RIVER HÉRAÐIÐ OG
framtítSar höfutiból hérat5slns
HALLDORSON REALTY CO.
710 McINTYRE BLOCK
Phone Main 2844 WINNIPEG, CANT.
XXVIII. AR.
..—.......
Norðurálfu Stríðið.
1. september. —
Frétt frá Ostend í Belgíu segir að
»llu brezku fólki 9é skipað burtu
frá Brussels. Er svl skipan gjörð af
jÞjóðverjum er ráða borginni og
hafa skipað þar borgarstjóra. Hafa
margir málsmetandi Englendingar
mótmælt þessum skipunum og flú-
5ð á náðir Bandaríkja sendiherrans.
En Þjóðvcrjar sitja-við sinn keip og
segjast svifta alla frelsi er ekki verði
farnir innan 24 kl. tíma. Telja þeir
nú Belgíu þýzkt hérað og hafa hver-
vetna skipað borgarstjóra og hér-
aðsdómara þar sem þeir hafa farið.
Halda þeir nú öllu landinu nema
nokkurri sneið að norðan út frá
Antverp.
Vestur við Valencienies, Eralck-
lands megin er aðal her Breta, en
■orður af þeim og sunnan við þá,
austur, er sambands her Erakka og
Belga. Varð þar afar grimm orr-
U8tu á þriðjudaginn. Hörðust var
sóknin á Breta milli Mons í Belgíu
•g suður til Maubeuge á Erakk-
landi. Voru þar aðal fylkingarnar
brezku fyrir. Börðust þjóðverjar
einsog óðir menn því nú er þeim
allur hugur á að komast sem fyrst
inn fyrir fyrstu varnarvirkin og sem
fyrst inn á Erakkland þar að norð-
an, en innri hervörðurinn er út frá
Reims norður fyrir St. Quentin og
suður til Chalons. Vonast þeir
til, að þegar fremri vörðurinn er
fallinn vinnist þeim að brjóta svo
skörð í innri varðfylkingar að þeir
fái komist leiðar sfnar til Parísar.
En þangað er förinni heitið, því
þar á að þjappa að Frökkum.
Örustan hófst með kúlnahríð frá
mtórskota liðinu en yfii#- orustiu
vellinum flögruðu flugdrekarnir
þýzku og gáfu altaf bendingu
hvernig miða skyldi fallbyssunum.
Varð því mannfall inikið á hlið
Breta. Bardaginn stóð til kvelds
en lauk svo að hvorug hliðin gat
talið sér sigurinn. Þó urðu Bretar
að láta lítillega undan halda. Ekki
vita menn hvað margir féllu af
hvorumtveggu en mannfall var ó-
gurlegt.
Nokkru sunnar, norðan við Mez-
ieres börðust aftur Bandamenn af
mikilli hreysti og veitti Frökkum
heldur betur. Hefir orusta staðið
þar í marga daga en meginherinn
setið kyrr á sömu stöðvum. Er
Bandamönnum mest um hugað að
halda þjóðverjum þar sem lengst
ky rrum, að ekki veitist þeim greið ]
leið lengra inn á Frakkland til þess |
að eyða þar landi og byggð. En j
geti þeir tafið fyrir þeim nógu lengi i
▼onast þeir til að Rússar verði i
komnir nógu nálægt Berlfn til þess
að hinum þyki sýnna að hverfa i
austur aftur.
Að austan sækja Rússar altaf
þéttan á. Stcfnir meginherinn f;
fjórum stöðum inn á þjóðverja, en I
orustu völlurinn þar nær alla leið j
frá Eystrasalti að norðan og suður
til Bukovína. Að byrja að norðan
er fyrsti staðurinn inn á Austur
Prússland. Hafa þjóðverjar varið
hann sízt, því sú leiðin er lengst til
Berlín Hafa Rússar líka vaðið þar
yfir viðstöðulítið og tekið margar
norður borgirnar. En þótt þessi
norður her eigi langa leið fyrir
höndum er talið óvfst nema hann
verði engu seinni en hinir að kom-
ast leiðar sinnar. Annar staðurinn
er frá Warsaw á Póllandi inn á
prússneska héraðið Posen, en það
er beinust leið til Berlínar frá Rúss-
landi. En margar eru þar torfær-
urnar á þessari leið sem liggur yfir
flóa og forræði og skóga. En sagt
er að Rússar séu nú komnir yfir
verstu ófærurnar. En þangað sem
Rússar eru nú komnir inn á mitt
Posen, hafa þeir bókstaflega orðið
að höggva sér braut gegnum þýzku
herfylkingatnar. En þótt þeim
þoki smátt hvern daginn þokar
þeim samt, þvf lítið hugsa þeir um
þótt þeir láta nokkuð af mðnnum,
nóg er eftir samt. En nú ætla þeir
að bíða þar sem þeir eru þangað
til þeir hafa komið þriðju deild her-
sins lengra suður, en hún fer af
Suður Póllandi suður á Austurríki.
En Ungverski og Austurfski herinn
á því svæði er sagður undir stjórn
Vilhjálms og lét hann, þá þcgar
sækja á Rússa svo þeir skyldu
hægja ferðina. Hefir þar verið bar-
ist af mestri grimd og manntjón
orðið mest. Unnu Þjóðverjar all-
mikinn slgur í síðustu viku við
Krasník en aftur biðu þeir ósigur
við Lublin og létu þar marga menn.
Báðar hliðar keppa mest um yfir
ráðin á þessari leið, því takist þjóð-
verjum að verja inngöngu Rússa
þarna hafa þeir klofið allan Rússa
lier og einangrað austur deildirnar
svo þær meiga ekki koma vestur
deilunum til hjálpar, en það eru
þær sem Þjóðverjar eiga mest í
höggi við og þurfa að verja sig fyrir
livað mest. Takist þessari þriðju
deild að halda sambandi óslitnu
við vestur dcildirnar í Posen og
Austur Prússlandi getur hún altaf
sent þeim lið af Suður^Rússlandi er
annars yrði hvergi komið við ef
leiðinni yrði lokað.
Ejórða aðal fylking Rússa er enn
austar og sækir inn á Galizíu og
inn til borgarinnar Lemberg, höfuð-
stað landsins. Hefir hún mátt
betur frá því fyrsta enda sækir hún
yfir það land þar sem slavneskar
þjóðir búa. Ýmsar stórar orustur
hafa verið háðar á þessari leið en
Rússar ávalt mátt betur.
Seint á þriðjudaginn kom sú frétt
til sendiherra þjóðverja í Washing-
ton að þýzki herinn í Austur Prúss-
landi hafi unnið stórkostlegan sig-
ur í orustu við norðustu fylkingu
Rússa og tekið af þeim 70,000 manns
til fanga. En hvað mikið má bygg-
ja á þeirri frétt er með öllu óvfst.
ósennilega hafa svo margir verið
teknir, en trúlegast að þjóðverjar
hafi mátt betur.
3. september. —•
Fréttir frá Pétursborg segja að á
miðvikudaginn hafi austasti her
Rússa tekið höfuðborgina Lemberg
í Galicíu. Hefir orustan nú staðið
þar í sjö daga með miklu mannfalli
en altaf hefir hallast á Austurríkis-
menn. Urðu þeir að iokum' að
hrökkva undan og skilja eftir á
orustuvellinum öll sín stríðsáhöld,
svo sem fallbyssur, vopnaforða,
skotfæri, matreiðslu áhöld og tjöld.
Tóku Rússar þar 150 fallbyssur auk
annara skotfæra. Eftir að flótti
var brostin í lið Austurríkismanna
veittu Rússar þeim eftirför og feltu
enn fjölda af liðinu. Með sigri þess-
um er talið að austasta deildin af
Rússa her hafi þegar náð fyrirætlan
sinni að fella öll sterkustu vígi
Austurrfkismanna að austan og
norðan. Opnar það Rússum veg
svo þeir geta nú sent tálmanalaust
lið að sunnan og austan úr ríkinu,
til liðs við mið hersveitirnar, sem
nú hvíjir allt á í viðskiftunum við
Þjóðverja. Hepnist þeim að kom-
ast áfram líður ekki á löngu þang-1
að til Berlín er komin í umsátur.
Borgin Lemberg er önnur sú
stærsta í Austurríki og telur um
200,000 íbúa. Um hana hefir mörg
orustan verið háð og alls hefir hún
lent í nfu umsátrum frá því 1261.
1704 tók Carl tólfti hana er hann
átti í ófriðnum við Pólverja, en 1772
lenti hún í hlut Austurríkis er Pól-
landi var fyrst skift upp. Hún var
fyrst byggð árið 1259 af Rússnesk-
um aðalsmanni er Daniel hét.
Nefndi hann hana eftir syni sínum
er Leo hét, Leopolis. 1261 tóku Tar-
tarar bæinn og lögðu í ösku. Var
hún endurreist 1270. Á dögum Cas-
imirs mikla var hún víggirt og þjóð-
verjum leyft að taka sér þar ból-
festu. Fluttu þeir þangað í svo
stórum hópum að í rúm 200 ár
mátti borgin heita alþýzk. Eftir
að Tyrkir tóku Miklagarð varð hún
ein mesta verzlunarborg í Austur
Evrópu. En svo fór vegur hennar
að minka eftir að kom fram á 17.
öld. Lenti hún þá í hendur Tyrkja
um hríð.
Háskóli var snemma settur á fót í
Lemberg og náði hann allmikilli
frægð um.eitt skeið. En Austurríki
sóttist ekki mjög eftir að halda við
lærdómi í skattlöndum sínum svo
að í lok 18. aldar mátti heita svo
að hann væri mest nafnið tómt. En
á síðari tíð hefir hann aftur náð
sínum fyrri blóma. Borgin geymir
mjög frægt bókasafn og eru sögurit-
in sérstaklega merkileg. Skýra þau
frá flestu er snertir feril liinna Slav-
nesku þjóða. Einig eru þar margar
frægar kyrkjur og klaustur. Borg-
in tekur yfir rúmar 15 fermflur og
telur fjölda marga skemtigarða.
Frakkastjórn hefir tilkynt að hún
færi stjórnarsetrið frá París til Bor-
deaux, nú um tfma. Fari svo, sem
með öllu er ekki talið ósennilegt,
að Þjóðverjar komist til Parísar, er
búist við að umsáturinn geti orðið
nokkuð langur. Borgin er vel víg-
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 10. SEPT. 1914.
f*
Mr* A B Olion
f»n U
Nr. 50
girt. En 'ekki, þykir gjörlegt að
eiga það á hættu að^tjórn landsins
geti orðið króuð þarinni um lengri
tíma.
Einnig hafa eigendur Frakklands
banka ákveðið að færa bankann
til Bordeaux, er það með stjórnar
samþykt og var gefin út skipan
þess efnis á miðvikudaginn.
Yfir París flögra nú í hópatali ná-
hrafnarnir þýzku flugskipin og
senda sprengikúlum niður yfir
borgina. Hefir athæfi þessu verið
mótmælt af ]>eim þjóðum sem sitja
hjá, en að engu komið. Parísarbú-
ar hafa nú safnað saman flugvélum
sínum og er tilgangurinn að reyna
að lialda vörð utan borgar gegn ó-
fögnuði þessum. Segja hermenn að
vel megi skjóta niður flugdreka
þessa, en það verði ekki gjört innan
borgarinnar nema stórskemdir
hljótist af.
Serbar vinna frægan sigur við
Jedar. Stjórn Serbíu hefir tilkynt
að Serba her hafi unnið stóran sig-
ur yfir Austurríkismönnum við
Jedar. Orustan stóð þar um mán-
aða mótin. Austurrikis herinn var
200,000 að tölu en Serbar höfðu tæp-
lega helming liðs. Viðskiftum lauk
þó svo að Austurríkis her flýði og
skildi eftir 10,000 fallna og 2,000
særða á orustu vellinum. Her-
fang tóku Serbar mikið, þar á meðal
60 fallbyssur, mikið af skotfærum,
viðu í 600 metra langa brú og heila
vagnlest af vistum. Hélt Austur-
íski herinn til Santzek. Er nú
sennilegt að fremur fari að verða
vörn en sókn af hendi Francis Jos-
ephs úr þessu, þar sem Rússar sitja
nú í Galizíu og vestur her hans
flúinn, en Serbar að austan og bún-
ir að reka austur herinn inn á
Pólland.
Italir hafa nú loks ráðið það af
að sitja ekki lengur hjá. Hafa þeir
nú kallað her sinn saman og ákveð-
ið að veita Frökkum lið. Leggja
þeir nú leiðir. norður móti sínum
forna fjanda Austurriki. Hafa
Frakkar tekið allann her af landa-
mærum Italfu og bætist þeim mikiðo
lið við það.
Þá eru Tyrkjir að skríða saman
aftur. Er altalað að þeir veiti þjóð-
verjum lið, enda eru allir yfirher-
foringjar þeirra þýzkir. Hafa þjóð-
verjar heitið þeim góðu með að
vinna aftur eitthvað af héröðum
þeim sem þeir mistu í Balkan ó-
friðnum. En að líkindum verður
þetta endalok Tyrkja í Evrópu og
er það sízt að syrgja, því hund tyrk-
inn hefði fyrir löngu átt að vera
þaðan útrekinn. En bitbein verð-
ur Mikligarður milli stórþjóðanna
(Framhald á 5... siðu)
Stríðs fréttir héðan.
Sambandsstjórnin hefir samþykt
að veita $20 mánaðarlega öllum
þeim fjölskyldum hér í landi er
mist hafa fyrirvinnu sína í stríðið.
Strax og hermenn verða sendir af
stað verða nöfn aðstandenda þeirra
tekin og sett á skrá er send verður
til Ottawa. Er þá konum allra
þeirra er f herinn hafa farið send
tilkynning um það að framvegis
verði þeim greitt úr ríkissjóði $20 á
mánuði þangað til menn þeirra
komi heim aftur. Eru peningar
þessir auk þess kaups sem hermönn
um cr borgað, og kemur því ekkert
við. En þeir geta ráðstafað að láta
það ganga til skyldmennanna líka I
á meðan þeir eru í herþjónustinni J
ef þeim svo sýnist.
Hon. T. W. Crothers, verkmála- j
ráðgjafi í Ottawa, spáir því að af- j
leiðingarnar fyrir Canada af þessu j
stríði verði þær að verzlun og ið-
naður aukist og margfaldist nú á
mjög stuttum tíma. Peningar
koma miklir inn í landið í haust
fyrir jarðarafurðir er fluttar verða
út. En vegna þess að vinnudeyfð
var fyrir í landinu þegar stríðið
byrjaði, má gjöra ráð fyrir fjár-
þrengslum manna á meðal þenna
vetur. En undir það eru nú bæjir
og sveitir að búa sig sem bezt þeir
geta. En eftir að veturinn sleppir
ætti atvinna að lifna og strax og
fram á kemur næsta sumar góð æri
að verða til borga og sveita. Þetta
segist hann byggja á athugunum
sem hann hafi gjöra látið viðvíkj-
andi tilvonandi verzlun landsins.
Evrópu markaðurinn lokast aldrei
fyrir verzlunar viðskiftum héðan,
t.n aftur getur Norðurálfan lítið
sem ekkert sent hingað vestur. Snýr
það viðskiftunum þannig við að
meira verður selt en keypt og held-
ur þannig penlngunum með því
móti lieiraa f landinu.
Sendið nöfnin.
Hér meS biSur Heimskringla aÖstandendur allra þeirra
Vestur-Islendinga, sem gefiS hafa sig fram til herþjónustu
til varnar brezka alríkinu í núverandi stríði, að senda nöfn
hermannanna á skrifstofu þessa blaðs sem allra fyrst.
ÞaS er algjörlega nauðsynlegt, að Heimskringla hafi
þessar upplýsingar, bæði til þess, að vitanlegt geti orSiS,
hvern þátt þjóSflokkur vor tekur í landvörn ríkisins, og eins
fyrir eftirtímann, aS hægt sé á skömmum tíma aS fá vit-
neskju um þá, ef þörf krefur. Þess vegna þarf Heimskring-
la aS hafa skrá yfir full nöfn allra íslenzkra hermanna, ásamt
heimili þeirra, og í hvaSa “Company” og herdeild þeir
þjóna.
Alt þetta biSjum vér aSstandendurna aS senda blaSinu
svo fljótt sem unt er.
Manltoba fylkið hefir boðið að
gefa Bretum 50,000 poka af hveiti-
mjöli. Hefir boði því verið tekið
með þökkum fef stjórninni í Lund-
únum. Eru ]>á, að þessu meðtöldu
komnar allmiklar matargjafir héð-
an til Englands; frá Sambandinu
1,000,000 pokar af mjöli og 700,000
busiiel af höfrum, frá New Bruns-
vviek rnesta bysn af kartöflum og
svo þetta nú frá Manitoba, auk
þess sem einstakir auðmenn hafa
gefið
Sir Rodmond P- Roblin hefir
kvatt til auka þings hér í fylkinu
er komi saman næstkomandi þriðj-
udag þann 15. þ.m. Aðal málið
sem fyrir liggur er að athuga með
hvaða hætti helzt verði ráðið fram
úr fjárþröng þeirri sem nú er
manna á meðal og af stríðinu staf-
ar. Helzt er sagt að lagafrestun
verði samþykt á öllum fasteigna-
skuldum. Er það gjört til þess að
ekki verði hægt að taka lögtaki hjá
mönnum fasteignir þeirra, þó þeir
ekki geti staðið skil á aíborgunum
á ]>eim, meðan peni'igaeklan er
sem mest.
Frá
Viihjálmi Stefánssyni.
Fréttir hafa nýlega borist af leið-
angri þeirra félaga norður um ís-
ana, norður og austur af Alaska, á
þessu vori. Eru fréttaskeytin dag-
sett 13. ágúst og send frá Nome til
Seattle í Bandaríkjunum. Sá, sem
skeytin sendir, er Bruce McConnell,
skrifari Vilhjálms. Um það leyti er
Vilhjálmur staddur við þriðja mann
einhversstaðar norður á isum, og
hefir þá ekki til hans spurst í
nokkrar vikur; en ekki er að heyra,
að hann sé hræddur um, að hann
sé í nauðum staddur, því vistir nóg-
ar hafði hann með sér, og einnig
skotfæri nóg.
Þann 22. marz lagði Vilhjálmur
af stað norður frá Martin Point, Al-
aski.7 við sjöuuda mann. Fóru þeir
á fjórum sleðum og höfðu með sér
25 hunda alls. Til fylgdar voru af
þessum hóp fjórir; höfðu þeir tvo
sleðana og 13 hunda. Ætluðu þeir
að fylgja þeim tíu dagleiðir áleiðis
og snúa þar aftur. Fylgdarmennirn-
ir voru Norðmenn tveir, Ole Ander-
sen og Fritz Johansen náttúrufræð-
ingur, Capt. Bernhard og George
H. Wilkins, myndatökumaður land-
könnunarflokksins. Fluttu þeir með
sér miklur vistir og mat handa hund
unum. Eftir tiu daga áttu þeir að
skilja eftir vistirnar, er ætlað var,
að gæti enst hinum í 60 daga, en
taka með sér aðeins það, sem þeir
þyrftu til lands. Ætlaði Vilhjálmur
þá að halda áfram norður, i landa-
leit, og þeir tveir, sem eftir voru
með honum, er voru þeir Storker
Storkerson og Arnaut Castel.
Bruce McConnell, veðurfræðingur
og skrifari Vilhjálms, kom til Mar-
tin Point rétt eftir að þeir félagar
voru farnir með bréf frá Barrow-
tanga. Hvildi hann sig í þrjá tíma
og hélt svo af stað á eftir þeim.
Náði liann þeim næsta dag og fylgd-
ist svo með þeim. Þann 23. marz
vildi kapt. Bernard það slys til, að
hann féll fram af hárri jakabrún og
hjó sig þvert yfir ennið. Eigi féll
hann í ómegin, en ekki þótti gjörlegt
að láta hann halda áfram ferðinni;
var hann þvi fluttur til baka til
Martin Point og fór McConnell með
honum. Var skurðurinn saumaður
saman og kapteinninn orðinn ról-
fær eftir þrjá daga.
Var þá J. R. Crawford læknir
sendur i hans stað.
Þann 25. marz komu þeir félagar
að opnu hafi. Hafði isinn opnað
sig þar og sáu þeir ekki yfir vökina.
Skutu þeir þar nokkra seli, Vil-
hjálmur og McConnell. Eftir tveggja
daga dvöl þar afréð Vilhjálmur að
senda til lands aftur það af flutn-
ingi, er hann áleit sig ekki þurfa,
og tvo seli til vistar þeim, sem sátu
í vetrarbúðum á Martin Point. Wil-
kins og Castel voru sendir með þetta
' og fóru þeir með sex hunda og einn
! sleðann. Komust þeir á land, en um
daginn gekk upp suðvestan storm-
ur; sleit þá ísinn, sem þeir félagar
voru á, frá landi, svo þeir, sem send-
ir voru, komust ekki til baka aftur.
Voru þeir þá eftir sex saman á ísn-
um með þrjá sleða. Rak nú isinn,
sem þeir voru á, um 30 mílur út og
um 40 mílur til austurs, frá því sem
þeir voru. Héldu þeir ferðiun áfram
til 16. apríl. Afréð Vilhjálmur þá,
vegna þess hve ilt var sleðafærið,
að senda fylgdarmenn til baka. ótt-
aðist hann líka, að þá gæti brostið
vistir, ef þeir væru allir saman. —
Héldu þeir svo áfram ferðinni norð-
ur, Vilhjálmur, Andersen og Stork-
ersen, og höfðu einn góðan sleða,
sex hunda, tvær byssur og nóg af
skotfærum. Gjörði Vilhjálmur ráð
fyrir, að halda þannig áfram í 15
daga, en snúa þá aftur, sökum þess
að þá væri orðið svo áliðið. “óhjá-
kvæmilegar tafir gjörðu það að verk-
um, að ekki var farið fyr af stað,
þvi vér hefðum átt að leggja upp
ekki seinna en i febrúar”, segir Mc-
Connell.
Fylgdarmennirnir snéru til baka,
Crawford, Johansen og McConnell,
og komust heilu og höldnu til lands
17. april. Á leiðinni varð fyrir þeim
íssprunga svo breið, að þeir sáu
ekki yfir, en komust þó fram hjá
henni að lokum. Þrír ísbirnir urðu
á vegi þeirra, en gjörðu þeim engan
skaða.
Vilhjálmur tók byssurnar með
sér, vegna þess hann gjörði ráð fyr-
ir, að eins líklega yrði hann að snúa
yfir til Bankseyjar og láta þar fyrir-
berast, unz skip yrði sent þeim til
bjargar, og lifa þar á veiðum. Sið-
an hefir ekkert um hann spurst.
Lane kapteinn á skipinu fsbjörn-
inn sigldi suður og vestur um Banks
eyju, um hálfa milu frá ströndinni,
með uppdregnum flöggum, og
skygndist eftir mönnum á landi eða
vitum; en varð einskis var. Lét hann
halda uppi blástri á meðan, en það
kom til hins sama.
Ottie kapteinn á skipinu Belvidere
hefir verið þar á hvalaveiðum i
grend við eyna, en ekki séð til
neinna mannaferða á landi.
Vilhjálmur hafði þó gjört ráð fyr-
ir, að brenna vitum fram með eynni
strax og hann kæmi í land. Með sér
hafði hann afarsterkan sjónauka,
svo að vel gat hann séð til skipa-
ferða i 15 mílna fjarska. Fylgdar-
menn skyldust við hann rétt við
ytri brún meginlands grynning-
anna á 70.20 stigi norðurbreiddar,
en 140.30 vesturlengdar. Mældi Jo-
hansen þar dýpi hvað eftir annað,
og var það frá 35 upp i 108 faðma.
Þann 11. ágúst lagði Wilkins af
stað frá Herschel eyju til Banks
eyjar, með skipið Mary Sachs, er
tilheyrir þeim félögum. En Dr. And-
erson og menn hans sigldu þann 17.
ágúst frá Herschel eyju með skipið
Pólstjarnan til Coronation flóa. —
Sagt er, að verið hafi opinn sjór í
kringum Banks eyju og Baille eyju
siðan í apríl. «
Að líkindum hefir Vilhjálmur
þvi ekki komist til lands. En þeir
félagar hafa nógan vistaforða til árs
þó eitthvað komi fyrir hundana, svo
þeir ekki geti notað þá til flutninga.
Eru þeir því ekki taldir i neinni
hættu staddir.
önnur frétt hefir komið frá Dr.
Rudolph Anderson, dagsett 16. maí
við Escape Reef við Mackenzie
fliótið, en meðtekin 31. ágúst i Atha-
basca, Alberta. Segir hann alt hafa
gengið vel. Vilhjálmur er fram á
isnum og talinn i engri hættu. Segir
Anderson að hann hafi með sér húð-
keipa og árar og oliuföt og nægar
vistir. Þeir, sem á landi eru, stunda
afc kappi ýms vísindaleg störf. Ship-
maa, O’Neil og Cox eru við mæling-
ar við Mackenzie fljótsmynnið, og
hafa þeir nú lokið mælingu frá Al-
aska landamærum þangað. Fritz Jo-
hansen liffræðingur er að rannsaka
sjóinn þar umhverfis og strauma is-
hafsins; en Dr. Jennis mannfræð-
ingu býr meðal Eskimóa og athugar
menningu þeirra og siði. Gjörir
hann ráð fyrir, að eiga vetursetu i
Eskimóa þorpinu á Barter eyju. Er
það elzta Eskimóa þorpið þar norð-
ur frá. Allir eru þeir félagar við
góða heilsu og gjöra sér miklar von-
ir um góðan árangur af starfi sínu
á næstkomandi ári.
T
í
•f
Þjóðræknis Fundur.
HérmeS boSum vér undiritaSir almennan fund í Good
Templars Hall á
Fimtudagskveldið, 10 þ.m.
í þessari viku, kl. 8. til þess þar aS ræSa og ákveSa um þaS
hvern þátt oss Islendingum sem svariS höfum hinu Brezka
veldi hollustu eiS, beri aS taka í vörn og vernd lands og
ríkis í tilefni af stríSi því sem hiS Brezka veldi ásamt öSrum
stórþjóSum NorSurálfunnar á nú í viS tvær herskáustu og
öflugustu þjóSir Evrópu.
Til umræSu á þessum fundi verSur myndun íslenzkrar
herdeildar í sjálfboSaliSi borgarinnar, og hafa nær 20 Is-
lendingar þegar tjáS sig fúsa aS ganga í þá deild.
Einnig verSur rætt um þátt-töku þá sem oss beri aS
taka í sjúkra og þjóSræknis sjóSa myndun þeirri sem nú hef-
ir hafin veriS um land alt, í tilefni af stríSinu. Vér óskum aS
allir þeir sem unna sóma landa vorra hér og velferS brezka
veldisins vildu sækja fund þennan, og aS þeir ungir Islend-
ingar sem ganga vilja í sjálfboSaliSiS verSi þá viS því búnir
aS gefa sig fram á fundinum.
Winnipeg, 5ta september, 1914
B. L. Baldwinson.
Skúli Hansson.
Thos. H. Johnson.
H. M. Hannesson.
John Julius.
H. S. Bardal.
Dr. B. J. Brandson.
Dr. ó. Björnson.
Rev. B. B. Johnson.
J. B. Skaptason.
W. Johnson.
S. Johnson.
Freeman Westman.
Fred. Westman.
Árni Anderson.
John J. Vopni.
Árni Eggertsson.
Hannes Hannesson.
Ó. S. Thorgeirsson.
W. Byron.
Frank Thorsteinson.
Magnús Paulson.
Chr. ólafsson.
Johu Einarsson.
St. B. D. Stephanson.
-f-M-f-M-f ♦ ♦ ♦ f ♦ ♦ ♦♦♦♦♦♦>♦ ♦ ,-f-fMM MM ♦♦♦♦♦
MMHMMHHMMM