Heimskringla - 24.09.1914, Page 8

Heimskringla - 24.09.1914, Page 8
BLS. S HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 24. SEPT. 1914. Or Bænum -----------------------♦ Mr. og Mrs. Kristinn Stefánsson komu hingað til bæjar norðan frá Gimli á laugardaginn var. Töfðu þau hér fram yfir helgi og fara norður aftur á mánudaginn. Ungmennafélag Únítara heldur fund á fimtudagskvldið kemur, eins og venja er til. Alli meðlimir eru hér með mintir á að sækja fundinn. Hr. B. B. Olson var hér á ferð um miðja siðastliðna viku. Hr. A. B. Olson kom hingað tíl bæjar á fimtudaginn var. Næsta sunnudagskveid verður umræðuefni i únitarakyrkjunni: Trúarofsi í sambandi víð óhoilbrigt sálarlíf. Allir velkomnir. Hr. Sveinn Thorvaldsson, frá Ice- landic River, hefir verið hér i bæ siðastliðna viku, meðan á þiuginu stóð. Hélt hann heimleiðis á laugar- daginn. Nýkomin ísafold segir að trúlof- uð séu i Reykjavík ungfrú Guðrún Aðalstein og Garl Finsen verzlunar- maður. Ungfrú Aðalstein dvaldi hér i bæ siðastliðinn vetur; kom hing- að vestur með móður sinni og stjúp- föður, Mr. og Mrs. Fr. Swanson, síð- astliðið sumar. Hr. Stephen Thorson, bæjarstjóri á Gimli kom hingað til bæjar um helg- ina. Hann hélt heimleiðis aftur á mánudaginn. Frá Hove Man. komu hingað til bæjar á mánudaginn var hra. Páll Pálsson og hra Skúli Skúlason. Létu þeir vel aí líðan manna þar ytra. Priðjudagirm 22. þ.m. gaf séra Guðm. Árnason saman í hjónaband í Únitarakyrkjunni þau Þorstein Kristin Oliver og Guttormínu Krist- lnu Stevens. Heimili brúðhjónanna verður framvegis Yerona Block, Suite 2. Prá Islandi komu á mánudags- kvetldið var Mr. og Mrs. Aðalsteinn Kristjánsson héðan úr borg. Fóru þau með skipinu “Hermod”, er landstjórnin hefir tekið í leigu frá Noregi, til vöruflutninga meðan á Norðurálfu strfðinu stendur. Var farið beina leið frá Reykjavík vest- ur og komið fyrst við í Nýfundna- landi. Gekk ferðin mæta vel. Nokkrir kunningjar og vinir úr ungmenna félagi Únitara héldu heimför að nýgiftu hjónunum Mr. og Mrs. Lúðvik Eiriksson hér í bænum á laugardagskveldið var, og íærði þeim vandað eikar borð að gjöf. Foru þvínæst fram veitingar og allskonar skemtanir og var sam- komu ekki slitið fyrr en eftir mið- nætti. Þeir sem hafa lofað að styrkja Tombólu St. Heklu með gjöfum er ekki hafa enn komist til nefndarinn- ar gjöri svo vel að koma þeim í Goodtemplara húsið frá kl. 12 tií 2 í dag, (fimtudag). Tombólan byrjar kl. 7 í kvöld. Danzinn verður til miðnættis. Allir velkomnir. Mrs. Hóinafríður Gíslason frá Ger- ald, Sask. kom hingað til bæjar að vestan í byrjun vikunnar. Gjörir hún ráð fyrir að fara snögga ferð suður til Pembina seinni hluta vik- unnar eða áður en hún heldur heim aftur. Þreskingu var lokið vestra áður en hún fór, en uppskera frem- ur rýr, frá 12 til 15 bushel af hveiti af ekrunni. Ábreiðuna sem dregið var um á samkomunni í Únitara kyrkjunni á fimtudagskveldið var hrepti Mrs. Lee kona gistihúss eiganda St. Reg- Is Hotel. Mrs. Lee er íslenzk kona ættuð úr N.-íslandi, en tengdasyst- ir Eggerts ritstj. Jóhannssonar og Magnúsar Bjarnasonar skálds í Van- couver. Ábreiðan var lista saumur mesti og ekki talin of metin á hundra dali. Fimm Prósent afsiáttur Allar aiatvöruteguadir sem pið t'arfniat þar á rneðal ágætis kaffi sem S'omargir pekkja ná, og dáðst að f'rir'” mekk og gæði fást í matvöru l'úð B. Araasanar, á borni Victor St. og Sargent Ave. Svo er aðgæzluvert að Arnaaon gefur 5í afslátt nf doll. fyrir oash verzlun. Phone Sher. 1120 B. ARNASON Hr. Þorsteinn Björnsson, cand. theol., var á ferð hér í bænum fyrri hluta vikunnar. Ungfrú Alpha Ólafsson, dóttir Gísla heitins kaupmanns ólafssonar og Elínar konu hans, fór héðan suð- ur til Minneapolis á miðvikudaginn var, þann 16. þ. m. Fer hún þaðan til Red Wing, þar sem hún hygst að stunda nám i vetur við Red Wing Ladies’ College. Hr. Jónas Dalmann frá Gimli var hér á ferð á fimtudaginn var. Ekki segir hann að allir séu fluttir af sumarbústöðum sínum þar neðra, nokkrir eftir i bænum sjálfum og allmargir á Lóni. Gæftir hafa verið vondar til fiskjar, hvassviðri á hverjum degi. Hr. Björn Hjörleifsson, frá fslend- ingafljóti, kom hingað til bæjar á fimtudaginn var með elzta son sinn til lækninga. Líðan manna þar neðra sagði Björn all-góða. Er nú járn- brautin komin alla leið norður og verið að leggja brúna yfir Fljótið. Eftir þetta ætti ekki að líða á löngu þangað til lestir fara að ganga þang- að norður. SKEMTISAMKOMA 1 ÚNITARA- KYRKJUNNI, 17. SEPT. Eg hafði dregist á það um dag- inn, að senda Heimskringlu nokkr- ar línur um skemtisamkomu þá hina miklu, er únítarar höfðu á sam- komustað sínum, að kveldi hins 17. þ. m. Það er ekki ætlan min, að lýsa nákvæmlega hverju einasta atriði, er á efnisskránni stóð, — Það myndi verða alt of langt mál. Heldur vil eg aðeins minnast stuttlega á helztu atriðin. Samkoman var í heild sinni mik- ið góð; svo sem að visu vænta mátti, er um jafnmikla og ágæta krafta var að ræða. Þeir Br. Þorláks- son og Steingr. Hall léku saman tvö lög á orgel-harmonium og piano, — Aufenthalt eftir Schubert og Arie eftir J. Haydn. Samspil þetta var mjög smekklegt og kvað hafa verið nýlunda fyrir áheyrendurna, því slíkt kvað vera litt iðkað hér. Einnig lék hr. Theodór Árnason eitt lag á fiðlu með pianó og harm- onium undirspili og fór hann vel með. Theodór nær hreinum og blæ- fallegum tón úr fiðlu sinni Einsöng hafði Sigurður Helgason; söng hann tvö lög, var annað þeirra eftir norska sönglagahöfundinn Halfdan Kierulf, “Hjarta mitt og harpa”. Miss Sigríður Frederickson lék tvö lög á pianó og leysti það vel af hendi, sem vænta mátti. Síðara lag- ið, Idilio eftir Lack, lék hún ljóm- andi vel. Það er altaf sál i hennar spili. Þá söng hr. H. Thórólfsson; fyrst tvö lög: “Hin dimma, grimma hamra höll" og “úr þeli þráð að spinna”. Söng hans þarf ekki að lýsa. Það er altaf hressandi, að heyra hann syngja. Röddin er styrk og frjáls- mannleg. Hann var kailaður fram aftur og söng þá “Nótt” eftir Árna Thorsteinsson, og söng hann það lag bezt, að því er mér fanst. Söngflokkur Únitara söng fjögur smálög. Mr. John Tait fór með grínstykki og hlaut fyrir all-mikið lófaklapp. Þá lék Br. Þorláksson tvö lög á harmonium af mikilli smekkvísi. Og grunar mig, að sumir hafi verið á samkomunni, er fengið hafa gleggri hugmynd um, hvað fram- leiða má fagra músik á það hljóð- færi, en áður höfðu þeir, og er þá vel. Ræður héldu kennivöld Únítara, þeir Rögnv. Pétursson og Guðm. Árnason. Ýmislegt fleira var þar til fagn- aðar„ sem eg hirði eigi að telja. Áheyrendurnir virtust ánægðir með samkomuna. — -Þá var drukkið kaffi, og svo fóru allir heim. Einar P. Jónsson. KENNARA VANTAR fyrir sex mánuði við Pine Valley skóla No. 1168. Kensla byrjar 1. ok. og varir til des. lok 1914, byrjar svo aftur 1. febrúar og varir til 30. apríl 1915. Umsæðjendur þurfa að hafa 3rd Class Professional Certificate. Tilboð sem tilgreini mentastig og æfingu ásamt kaupi sem óskað er eftir sendist til undirritaðs fyrir 27. september, 1914. B. STEPHANSON, Sec.-Treas. Pincy, Man. 3-29-p KLUKKU-VIÐGERÐ, lóðun, skerp- ing á sögum og bitjárni fæst með sanngjörnu verði hér. G. S. Guðmundsson, 1-29-n Framnes, Man. Kona sem hefir öll skilirði scm góð bústýra óskar eftir slíkri stöðu í borginni ef kostur er. Komið eftir klukkan 7 að kveldi til 569 Sargent Avenue. 2-29-n Gott og billegt hús til lelgu á 620 Maryiand St. rekari upplýsing- ar gefur B. M. Long, 620 Alverstone Street. 52u.p- Einstök Kaup fyrir Kvennfólk------------- Nú erum vér að selja kven- klæðnað afar ódýrt,—niður- sett verð á öllu. Vér búum nú til Ladies’ Suits fyrir frá $18.00 og upp. Kven- manns haust yfirhafnir frá $13.50 og upp. Komið og skoðið nýtísku kvenbún- inga vora. B. LAPIN Phone Garry 1982 392 Notre Dame Avenue Otsæði fyrir bændur í Vesturlandi. Sambandsstjórnin tilkynti þann 16. þ. m„ að hún ætlaði með næst- komandi vori að veita bændum í Vesturlandinu, er orðið hafa fyrir algjörðum uppskerubresti í haust, 1,000,000 bushel af hveiti til útsæðis. Hafði akuryrkjumála ráðgjafinn og ýmsir málsmetandi menn að vestan fund með sér í síðastliðinni viku um á hvaða hátt sambandið gæti lið- sint þeim sveitum i Vesturlandinu, er orðið hefðu fyrir mestum skaða. Var þetta afráðið, fyrir það fyrsta, og þá frekari hjálp síðar, ef á þyrfti að halda. Norðurálfu stríðið. (Pramhald) ---»---- leikum hið versta og er líkt við það, er þeir brendu borgina Louvaine er verið hefir höfuðból lista og vís- inda á Niðurlöndum síðan á sex- tándu öld. Enn halda Þjóðverjar af kappi áfram með liðsafnað að Brussels, og er búist við nú þegar minst varir að þeir ætli sér að gjöra áhlaup á borgina og er þá búist við að þeir brenni hana til kaldra kola. Hafa þeir ekki sýnt Belgum annað en grimd og ofriki frá því fyrsta. Stór- skota liði halda þeir umhverfis Ter- monde og skjóta nú miskunarlaust niður hlífðar múra. Ætla þeir sér að brjóta kastalana þar svo undir þeim skuli Belgiski herinn ekki skýla sér er verið hefir af og til að gjöra þeim aðsóknir út frá Antverp. Austurríkis herinn flýr nú hið óðasta undan Serbum. Biðu þei- algjöran ósigur í orustu er háð vav hjá Kroupani smá bæ 10 mílur frá landamærum Bozníu. Um 250,000 manns höfðu Austurríkismenn en Serbar tæpan helmings liðs. Þykir framganga Austurríkismanna alló- fræg orðin. Frá herbúðunum hér í Canada í Valcartier í Que. hefir fréttst að allir hermennirnir verði sendir til Englands eins /ljótt og hægt verði að koma því við úr þessu. Eru þeir 31,200 talsins. Af þeirri tölu verða 22,500 sendir beina leið til Frakk- lands, en 8,700 til Englands, er biða þar til vara, unz þeirra þarf með. — Með þeim verða sendar 300 mask- ínu-byssur og 150 fallbyssuvagnar. Er það hvorttveggja keypt og gefið af auðfélögum hér heima. Þá hafa Frakkar i Quebec fylkinu hafist samtaka með að stofna 5,000 manna herflokk franskan, er send- ur verður til liðs við Frakka strax og stofnuninni er lokið. íslendingar í Canada hernum. " # Sextán voru þeir taldir, er síð- asta blað vort kom út, en nöfn þriggja íslendinga, er farnir eru, hafa oss bætzt síðan. Mennirnir eru: 17. Sigurður K. A. Goodman; fór frá Winnipeg 24. ágúst sl. með 100 Genadier herdeildinni. Sig- urður er fæddur á Suðurlandi og er rúmt tvítugur; sonur Hreins bónda Hreinssonar Good man við Piney, Man. 18. Richard Smith, fór frá Winni- peg 24. ágúst með 106 herdeild- inni héðan. “Dick” er fæddur hér í bæ, hérlendur í föðurætt, en móðir hans er íslenzk, dóttir Guðmundar heitins Skúlasonar, en systir Barða lögmanns Skúla- sonar í Portland, Oregon; ætt- uð úr Skagafirði. 19. Sigursteinn Hólm Sigvaldason Sigurðssonar; fór með 90. her- deildinni héðan 24. ágúst. Sig- ursteinn er Þingeyingur að ætt, sonur Sigvalda smiðs Sigurðs- sonar hér í bæ. Fæddur er hann 29. febr. 1896 að Gimli í Nýja lslandi. FUNDARBOÐ Nefndarfundur á heimili mínu 727 Sherbrooke St. fimtudagskveldlð í þessari viku kl. 8 til að gjöra ráð- stafanir um stofnun sjálfþoða iiðs- flokks og sjóðmyndun í sambandi við Evrópu stríðið. Allir nefndar- menn sem auglýstir voru í síðasta blaði, 15 að tölu, gjöri sro vel að vera viðstaddir. 22. sept., 1924. B. L. Baidwioion Eimskipafélagið. Vestur ísl. nefndin hefir borist skeyti frá stjórn Eimskipafélagsins dagsett 29. ágúst s.l. Er þar meðal annars komist svo að orði: “Eftir því sem um var taiað milii stjórnar Eimskipafélagsins og full- trúa yðar Vestur íslendinga átti önnur afborgun af hlutafé því sem safnast hefir til félagsins meðal Vestur íslendinga að greiðast fyrir þann 1. júlí, þ.á.” “Þar sem nú eru liðnir nær tveir mánuðir fram yfir og greiðsla þessi ekki enn komin, leyfum vér oss virðingarfylst að mælast til þess að þessi önnur greiðsla verði send oss hið fyrsta.” “Oss er það mikið áhugamál að fá greiðslurnar reglulega með því að vér höfum gjört ráð fyrir reglu- legum greiðslum í áætlunum vorum um útgjöld félagsins til skipasmiða o. fl.” Skeyti þetta er undirritað af for- manni og ritara Eimskipafélags Is- lands og sýnir það sem Vestur ísl. nefndin hefði fegin ekki viljað þurfa að auglýsa að innheimta hlutafjárins hér vestra hefir gengið miklu lakar en æskilegt hefði verið og átt hefði að vera. Þeir eru nokkrir sem ennþá ekki hafa greitt fyrstu afborgun af hluta fé sínu, og nokkru fleiri þó þeir sem ekki hafa ennþá greitt aðra afborg- un af hlutafé þeirra. Vestur ísl. nefndin hefir því á fundi dagsett 21. þ.m. falið mér að minna hlut- hafana á ástandið eins og það er, og að mælast aivarlega til þess að allir þeir sem ennþá skulda á fyrstu og aðra afborgun hluta sinna í félag- inu viidu nú bregða skjótt við og hafa útvegi til þess að greiða þess- ar afborganir að fullu til féhirðis vors hér hið alira bráðasta, svo að sending áfailinna skulda ekki þurfi að dragast fram yfir 10. okt. n.k. Sending annarar afborgunar sem átt hefði að gjörast 1. júlí síðastl. varð þá að dragast vegna þess hve iítið hafði innheimst fram að þeim tíma, og síðan hefir lítið innborg- ast. Vér vitum að stjórninni á íslandi er þetta bagalegt þar sem hún í samningum um smíði skipanna hef- ir bygt á þeirri tiltrú til vor að vér mundum standa í skilum. Eg verð því hérmeð að biðja alla Vestur-lsl. hluthafa að gjöra sitt ítrasta til þess að það fé alt sem þeir skulda á keypta hluti sína í Eimskipa fél- agi íslands, borgist til féhirðis vors hér svo fljótt sem hægt er. Eg skal taka fram að með sam- hljóða atkvæðum beggja þingdeilda fslands hefir verið samþykt að 2 Vestur ísiendingar kjörnir af hlut- höfum hér skuli eiga sæti í stjórn félagsins og fara með öll Vestur ísl. atkvæði á aðal fundum félagsins. Það er vonað að þessi ráðstöfun verði mörgum Vestur ísl. sem enn- þá hafa ekki keypt hluti í félaginu hvatning til þess að gjöra það nú, og með því að enn þurfa að seljast hér vestra um 25 þúsund króna virði af hlutum, þá biður Vestur- íslenzka nefndin landa vora hér í álfu að liafa nú samtök til þess að kaupa þetta hlutamagn sem allra fyrst. Nefndinni er það áhugamál að vér hér vestra leggjum í hlutafé Eimskipafélagsins þær 200 þúsund krónur sem um var beðið, þegar í byrjun. Péhirðir nefndarinnar er sem áður Th. E. Thorsteinsson, Manager Royal Crown Bank, Win- nipeg. B. L. BALDWINSON, ritari SKEMTISAMKOMA undir umsjón sunnudagaskóla kennara Tjaldbúðarkyrkju, verður haldin briðjudaginn 29. þ. m. í Tjaldbúðinni. Byrjar kl. 8. PRÓGRAMME 1-—Piano Duette, Misses Hannesson og Sigurðsson 2. Vocal Soio, Miss Margret Anderson 3—Ræða, Séra Pr. J. Bergmann. 4. —Quartette, Messrs Stefánsson, Pálmason, Björnson og Stefáns- son. 5. —Upplestur, Miss Guðbjörg Sig- urðsson. 6. —Vocal Solo, Mr. Björn Metusalem- son. 7. —Óákveðið. 8—Vocal Duett, Misses Anderson og Vigfússon. 9. —Vocal Solo, Pray for Us, Piccolo- mini, Mrs. P. S. Dalman. 10. —Upplestur, Mrs. G. Paulson 11. —Vocal Solo, Mr. Jónas Stefáns- son. 12. —Söngur, nokkrar stúlkur. AÐGANGUR Kc. Ræða Sveins Thorvaldssonar. Sveinn Thorvaldsson, þingmaður Gimli kjördæmis, flutti sína fyrstu ræðu á þingi á miðvikudaginn var. Var hann kjörinn til að styðja til- lögu um, að leggja hásætisræðuna til umræðu fyrir þingið; en Mew- hirter, þingmaður Elmwood kjör- dæmis, til að bera fram þá tillögu. Fórust Sveini orð á þessa leið: “Herra forseti: — Um leið og eg stend upp til að styðja tillögu hins háttvirta þing- manns Elmwood kjördæmis, er ekki nauðsynlegt, að eg fari að flytja langa ræðu. Eg þakka fyrir þá sæmd, sem mér er veitt, að skipa mig til þessa verks, að styðja til- lögu um það, sem nefnt er ávarp til fglkisstjórans út af boðskap hans til þingsins, og eg veit, að samþjóð- arfólk mitt finnur til þeirrar sæmd- ar líka, sem þvi er veitt með því að velja mann úr þeirra þjóðflokki til þess að leysa þessa skyldu af hendi, einsog ástatt er nú. Eg hefi þann heiður, að vera annar fulltrúi á þingi þeirrar þjóðar, er telur marga ibúa í þessu fylki, nefnilega íslend- inga. Hefir þjóð sú jafnan verið talsmaður frelsis og mannréttinda, enda vorum vér oss þess meðvit- andi, er vér fluttum burt frá voru ástkæra ættarlandi, að vér vorum að flytja til lands, sem er undir brezku flaggi, þar sem brezk lög eru eru í gildi og þar sem allir menn njóta þess frelsis, sem fremst verð- ur kosið. Og ísiendingar, sem hingað hafa flutt, hafa heldur ekki orðið fyrir vonbrigðum í þessu efni, og í stað- inn reynst iðjusamir og þjóðhollir borgarar og ástundunarsamir nem- endur á stjórnarskipun og stjórn- málum þessa lands. Mentunar skil- yrði landsins hafa þeir hagnýtt sér í fylsta mælir, og það er vort metn- aðarefni og trú, að börn vor geti orðið vel að sér um þjóðmálastofn- anir þessa iands og alrikisins brezka. Vér viljum að þau læri að meta það, að þau búa í þessu landi, sem hefir fullkomnari ríkisstofnan- ir til að bera en nokkurt annað land í heimi. Vér viljum að þau öðlist þekkingu á þvi, að hér hafa þau frelsi í fyllri mæli, en þau geta öðlast i nokkru öðru landi í veröld- inni. Með öðrum orðum: vér vilj- um, að þau læri að meta að fullu þau gæði, sem þegnréttindin, sem þau nú hafa öðlast í þessu landi, veita þeim. öllum er það Ijóst, er fylgst hafa með því, sem er að gjörast, að stjórn heimalandsins var mjög mik- ið á móti því, að fara í stríð. Og erum vér stoltir af, að geta sagt það með sanni, að Stór-Bretaland er ekki eitt af þeim ríkjum, er sækist eftir að segja öðrum löndum stríð á hendur. Það hefir enga löngun til þess, að draga undir sig ríki frá öðrum þjóðum, eða með röngu móti að ná undir sig verzlun ann- ara landa. Stjórn Breta reyndi með öllu móti að koma í veg fyrir stríð- ið. Að Bretland á nú i ófriði, er ekki þess skuld. Það er vegna ófrið- arstefnunnar, sem aðrar þjóðir hafa alið gegn því, að svo er komið, og mikillæti keisarans þýzka, er gjöra vildi þjóð sína mesta ailra þjóða i heiminum. Það er líka þess vegna, sem vér erum stoltir af Stór-Breta- landi; en þó einkum vegna hins, að með því að taka þátt í stríðinu, sýndi það, að það var ákveðið með því, að samningar væru haldnir við smærri þjóðir og að alþjóða sættir væru ekki rofnar. Ánægjuefni hiýtur það að vera fyrir Bretland, að allar nýlendur þess fylgja þvi einhuga í þcssari stefnu, sem það hefir tekið, og að vita, þess utan, að stór meirihluti allra ríkja í heiminum er á sama máli og það, og þau lönd, sem því fylgja. — 1 her þeim, sem héðan fer frá Canada, eru menn af öllum þjóðflokkunum, sem hér eiga heima, og oss er það öllum eigi lítið metn- aðarmál, að mega trúa því að þeir gjöri skyldu sína, þegar á hólminn er komið og berjist með hreysti og hugprýði. Verður stríðið til þess, að knýta enn betur saman alt Breta- veldið, þótt það komi til að kosta ærið fé og ótal mannslíf. Þótt eg tilheyri íslenzkri þjóð, þá eru þó menn af ýmsum þjóð- flokkum i hinu víðlenda kjördæmi mínu, — landnemar, sem eru að gjöra sitt bezta til þess að rækta landið. All-margir þeirra eru frá frá þeim löndum, sem nú eiga i ó- friðnum: frá Þýzkalandi, Austur- ríki og Rússlandi; en samt sem áð- ur er eg reiðubúinn að segja það, að fólk þetta, á sama hátt og mín eigin þjóð, kann að meta þau hlunn- indi, sem brezkur þegnréttur veitir því, og er hollusta þess gagnvart rikinu og þjóðfánanum sönn og svikalaus. Nokkrir meðal þess hafa þegar boðið sig fram og skrifað sig í herinn, í þeirri von, að þeir verði sendir á vigvöllinn. Að svo miklu leyti, sem þessum hluta landsins við kemur, á eg ekki von á, að hann beri nokjpt ar varanlegar og skaðlegar minjar þessa ófriðar. Land vort er mikið kornyrkju- land, og alt, sem útheimtist til þess að viðhalda veimegun þjóðarinnar, er að jörðin sé ræktuð. Sem verzl- unarmaður fæ eg ekki séð, að vér þurfum að bera hinn minsta kviða fyrir viðskiftamáiunum, og á eg von á, að innan skamms tíma verði við- skiftin komin í samt lag aftur, bæði hvað snertir ágóða og umsetningu. Það er ekkert það til, sem heft get- ur frainför og velmegun þessa iands, nema fólkið sjálft, hætti það að gegna skyldum sinum við landið. En eg er viss um, að fólkið gjörii; skyldu sína, frá hvaða landi, sem það hefir komið. Eg á einnig von á, að innflutningur vaxi í stað þess að minka. Hér er rúm fyrir marg- falt fleiri en komnir eru. Landi voru er lánuð mikil frjó- semi og loftslag, styrkjandi og heilsusamlegt; því er gefinn friður og fullsæld; stofnanir þess eru, einsog eg hefi tekið fram, eins frjáls- ar og á nokkrum bletti jarðarinnar; þeim, sem hingað koma, bjóðum vér farsæl heimili og þegnréttindi þess mesta veldis,, sem til er í heim- inum. Eg álít því, að afleiðingar hinna ófriðlegu yfirstandandi tima erlendis verði ,til þess að tala þeirra manna fari vaxandi. er hing- að flytja. Að lokum þakka eg á ný þann heiður, sem mér er veittur með þvi að fela mér á hendur að styðja þessa uppástungu, og mig iangar til að lýsa þakklæti mínu líka til þing- mannanna fyrir góðvild þeirra. En það væri óviðeigandi fyrir mig, að ljúka svo máli mínu, að eg ekki einnig léti þá ósk í ljós, að eg voni að ekki líði á löngu þangað til rík- ið fær aftur að njóta friðar, og að afleiðingar þessa yfirstandandi stríðs verði þær, að tryggja heimin- um það eftirleiðis, að menn fái lif- að i friði og sátt um langan aldur. Eg styð þessa uppástungu um, að fylkisstjórinn sé ávarpaður út af boðskap hans til þingsins. YFIRLÝSING Sökum þess að nafn mitt hefir verið dregið inn í deilu þá sem stað- ið hefir í Heimskringlu milli Jónas- ar Pálssonar og Theodors Arnason- ar, vitnað til mín og að mér hreitt ónotum, svo fólk gæti auðveldlega álitið að eg væri að einhverju leyti við deilu þessa riðinn, vil eg láta þess hérmeð getið, að það er með mínu óleyfi gjört að bendla mig á nokkurn hátt við þetta mál, því í þvf á eg engann þátt að einu eða öðru leyti, og vil heldur engann eiga. Winnipeg, 22. Sept.,1914. THORSTEINN JOHNSTON Success Business College Tryggið framtíð yðar með því að lesa á hinum stærsta verzlunarskóla Winnipeg- borgar — “THE SUCCESS BUSINESS COLLEGE” sem er á horni Portage Ave. og Édmonton St. Við höfum útibú í Regina, Moose Jaw, Weyburn, Calgary, Leth- bridge, Wetaskiwin, La- combe og Vancouver. ls- lenzku nemendurnir sem vér höfum haft á umliðnum árum hafa verið gáfaðir og iðjusamir. Þessvegna viij- um vér fá fleiri íslendinga. Skrifið þcirri delld vorrl sem næst yður er og fáið ó- keypis upplýsingar. Columbia Grain Co. Ltd. GRAIN EXCHANGE WINNIPEG TAICIR FFTIR* ^‘ðkaupum hveiti og aðra kornvöru, gefum ® AwlVaL' C«r 111\. hæsta prís og ábyrgjmnst fireiðanleg viðskifti. Skrifaðu eftir upplýsingum.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.