Heimskringla - 25.11.1915, Page 8
BLS 8.
HEIMSKRINGLA.
WINNIPEG, 25. NÓVEMBER 1015.
Friday and Saturday, November 26th, and 27th.
JNO. BARRYMORE in Melodramatic Comedy a Four Act
Famous Players
NO'HCE!
MUNICIPALITY OF COLDWELL
Impounded on Sec. 27-20-5W
on Nov. 16. 1915.
1 Steer, about one year old. Color:
White & black body. black neck &
head, wlhite spot on forehead. And
if not sooner paid will be sold on
l)ec. lfith, 1915, at 2 P.M., at n.y
stable.
HELGI F..ODDSON.
Poundkeeper.
Lundar, Man
Fiskimenn! Takið eftir.
Next Wednesday and Thursday, Dec. 1 and 2
Little Mary Pickford in
“ESMERALDA”
Fréttir úr Bænum.
Miðvikudaginn, 17 þ.m. voru þau
Kristján Backman frá Clarkleigh og
Sigurlfria Johnson frá tsafold gefin
saman í hjónaband af séra Runólfi
Marteinssyni, að 493 Lipton Street.
Hr. Jón B. Johnson, frá Mary Hill,
kom til borgarinnar á þriðjudaginn.
I'yrir rúmurn tveim mánuðum sið-
an varð hann fyrir slysi við jrreski-
vél og handleggsbrotnaði, og kom þá
til borgarinnar til lækninga, eins og
Hkr. gat um áður. Hann er enn ekki
ruerri jafngóður og verður að hafa
handlegginn i fetli um tíma enn;
cn mnbúðirnar tök Dr. Brandson af
handleggnum nú. Jón fór heimleið-
is næsta dag.
Konráð K. .Johnson skrifaði 28.
októbcr frá Belgíu, kvaðst vera ]>ar
með Kolskeggi Thorsteinssyni þriðji
landinn var þar er fann upp verk-
færi til að senda hand-grenades í
grafir óvinanna og ]>ótti svo gott að
hann var tekinn burtu úr gröfunum
að sjá um tilbúning þess. Ekki
getur Konráð um nafn hans. Kon-
ráð segir að þeim líði þar eins vel
og hægt er að hugsa sér. Þeir
skiftast á að vera fimm daga í
gröfunum.
Skemtisamkoma með veitingum,
eru Djáknar Skjaldborgar safnaðar
að undirbúa fyrir 2. des. Verður
þar, eitt meðal annars kappræða á
milli Mr. B. L. Baldwinssonar og Dr.
Sig. Júi. Jóhannesson og margt fleira
til fróðleiks og skemtunar. Ágóð-
inn fer til fátækra. Styðjið til-
raunir þeirra sem eru að vinna
göfugt starf.
Eimtudaginn, 18. þ.m. voru þau
Björn Björnsson og Bertha Olson,
bæði frá Víta, gefin í hjónaband af
séra Runólfi Marteinssyni, að 493
Lipton Street.
Ungmennafélag Únítara lieldur
næsta fund sinn (á fimtudagskveld-
ið kemur þann 25. þ.m.) uppíkyrk-
junni vegna þess að fundarsalur-
inn verður upptekinn það kvöld.
Þetta eru meðlimir beðnir að muna
og eins hitt að fjölmenna á fundinn
“Bræðrakvöld” hjá Stúkunni
Skuld f þessari viku. Allir Good-
templarar velkomnir.
Nú fer að líða að jólunum. Menn
fara að kaupa jólagjafir. Hentug
og kærkomin jólagjöf er “í’erðalýs-
ingar”, ferðasaga um ísland með 16
myndum. Kostar í kápu $1.00, í
bandi $1.50, aðeins fá eintök eftir.
Eæst hjá útgefanda Rögnv. Péturs-
syni, 650 Maryland Street.
I.augardaginn 20. þ.m. voru þau
Kristján Bessason frá Selkirk og
Sezelja Valgerður Guðmundsson frá
Winnipeg gefin saman f hjónaband
á heimili brúðhjónanna í Selkirk
af séra Runólfi Marteinssyni, 493
Lipton Street.
Hinn 31. október voru þau Jó-
hannes og Hallfríður Johnson frá
Víðir gefin saman f hjónaband af
séra Runólfi Marteinssyni að 493
Lipton Street.
Mr. George Peterson lögmaður frá
Oavalier var hér í borginni á þriðju-
daginn. Hann lét ágætiega af öllu
þar syðra, snjór ekki ineiri en hér.
uppskera hafði verið ágæt og lá
því hið bezta á inönnum.
Sigurgeir Thordamon að 1030
Sherburne St., hér í bænum, er ný-
kominn frá Argyle bygð þar sem
liann hcfur dvalið í undanfarandi
3 mánuði hjá dóttirsinni og tengda-
syni, Tryggva Arasyni. Hann læt-
ur vel af lfðan manna þar vestra og
uppskeran í ár hin bezta.
Safnaðarfundur:------Almennur
fundur Únftara safnaðarins verður
haldinn á sunnudagskvöldið kem-
ur þann 28. þ.m. eftir messu í kyrk-
junni. Safnaðar fólk er beðið að
fjölmenna. Ýms áríðandi mál liggja
fyrir fundi.
1 uinboði safnaðarins,
Björn Pétursson, (Forseti)
Stúkan Hekla er að undirbúa
Leik og fleiri skemtanir, sem hún
ætlar að hafa á Mánudagskvöldið,
6. descmber í Goodtemplara húsinu
Nánara auglýst í næsta blaði.
Eins og auglýst var í síðasta blaði
hclt fslenzki Konservatíve Klúbbur-
inn fyrsta fund sinn á vetrinum i
samkomusal Únítara á fimtudags-
kveldið var. F'undurinn var allvel
sóttur og voru menn einhuga í því,
að leggja fram alla sína krafta til
að gjöra vetrarstarfið svo ánægju-
legt og uppbyggilegt, sem kostur
væri á. Nefnd var kosin til að und-
irbúa embætlismanna kosningar
fyrir na'sta funil eins og lög skipa.
Einnig var kosin prógramsnefnd til
að undirbúa skemtanir fyrir þann
fund, og má eiga það víst, að hún
leysir vel af hendi starf sitt. Allir
Konservativar í borginni, hvort sem
}>eir tilheyra klúbbnum eða ekki,
ættu þvi að koma á þenna fund og
sýna með því að þeir meta viðleitni
og fvrirhöfn nefndarinnar. Munið
því allir eftir þvi, að mæta á fundi
íslenzkra Konservatíva fimtudags-
kveldið i þessari viku i samkomu-
sal Úntara. Fundurinn byrjar kl.
8 stundvíslega.
Kftirfarandi prógram fyrir fund-
inn sendi nefndin oss rétt áður en
blaðið fór á pressu; —
1. Solo—Johtt MacLachlan.
2. fílúna—Young fíotch und Mon-
tanababe.
3. Sweedish Glee Club—Söngur.
4 Hnefaleikur (Boxing) — Young
Jefferg and Young Cog.
5. Swcedish Glee Club—Karlakór.
(i. Sóló—John MacLachlan.
Þetta prógram er svo skemtilegt,
að húsfyllir ætti að verða — ekkert
steti autt í salnum.
Nýkominn sunnan úr Dakota er
síra Jakob Kristinnsson, prestur í
Wynyard, og Sigurður bóndi Sig-
urðsson, frá Garðar. Hefir sira Jak-
og verið tvær vikur syðra, á Garðar
og Mountain, og messað þar, og var
gjörður að bezti rómur. Hann er nú
í.f> fara heim til sín í Wynyard. Sig-
urður fer með honum til að sjá
kunningja sina }>ar vestra.
oSKAST EFTIR HJÓNUM til að
stýra búi úti á landi fyrir vetrar-
mánuðina að minsta kosti, vestur
í Argyle. — Upplýsingar fást að
180 Maryland Street.
Ekki er alt sem sýnist.
Ifann fier anðinn út úr steinum,
inn í snauðra kví.
En sjúga frauðinn sér úr beinnm
siiinum bauð við því.
f ram á auðum ekur teinum
inn í dauðra sveit
horuð nuuð með holum beinum,
hungruð brauða í leit.
tíarma fyllir manna meinum,
mörgum leið er dnld;
riftað eiðum er i leynum
eftir að greiðist skuld.
J. G. G.
KENNARA VANTAR
fyrir Arnes-South skólahérað No.
1054. Kenslutími frá 1. janúar til 30.
júní 1916. Kennari tiltaki æfingu
við kcnslu og kaup það, sem óskað
er eftir. Umsækjandi má ekki hafa
lægra mentastig en Third Class Pro-
fessional Teachers Certificate. Til-
boðum verður veitt móttaka af und-
irskrifuðum til 1. desember 1915.
Nes, 2. nóv. 1915.
fsleifur Helgason, Sec’y-Treas.
Nes P.O., Man.
Undirritaður kaupir og selur fisk,
allar tegundir, á “commission”, i
stórsölu (carloads) eða minna. —
Vantar sérstaklega 2 eða 3 “car-
loads” af hvítfiski úr Vesturlandinu,
slægðan eða óslægðan. Þeir, sein
vilja sinna þessu, skrifi eftir frekari
i.pplýsingum til undirritaðs.
FAIRFORD TRADING CO’Y.
pr. Helgi Einarson,
Fairford P.O., Man.
Staddur í Víðiness grafreit.
tíi'i einhver hérna grafi gröf,
sú grgfja fgllist laufum,
og slundum er þeim gefin gjöf
úr Gallans belju klaufnm.
Hvað minnir hér á ástar eið,
þó undi hulinn vaki,
þá hér um nætur leggur leið
með “léltu vængjalaki”.
A. E. tsfeld.
20.-10.-T5.
Sólarlag.
Áriti líða, æskan hverfur fljótt;
ennþá dimtnir, halla tekur dcgi.
Svo loksins kemur duuðans
dimma nótt, ó
og dauðinn okkar blómum þgrmir
eigi.
A. E. fsfeld.
Tryggvi Gunnarsson
áttræður.
Hann varð áttræður 18. okt. og er
hann fádæma hraustur maður á
þeim aldri. Allir kannast við það,
að Tryggvi Gunnarsson skipi hefð-
arsæti meðal okkar þjóðnýtustu
manna, og Reykvíkingar munu ekki
síður kannast við hitt, að engum
borgara sinna eigi þessi bær meira
upp að unna en Tr. Gunnarssyni.
Á áttræðisafmælinu varhonum hald-
ið hér heiðurssamsæti, og sýnir það
meðal annars vinsældir hans, að
ekki komust nær allir að, sem vildu,
vegna rúmleysis í húsinu, og var þó
til samsætisins valinn salurinn í
Iðnaðarmannahúsinu, sem nú mun
vera stærsta húsrúmið, sem hér er
völ á af þvi tagi. Menn komu sainan
kl. 8 um kveldið. Sighv. Bjarnason
bankastjóri bauð menn velkomna.
Fyrir minni heiðunsgestsins talaði
Kn. Zimsen borgarstjóri og mælti á
þessa leið:
“Háttvirta samkomal Leyfið mér
að minnast nokkrum orðum heið-
ursgests vors, Tryggva Gunnarsson-
ar bankastjóra, sem í dag er áttræð-
ur, en þó situr hér ern og kátur hjá
oss, ungur i anda, fjiirugur og fullur
af starfslöngun. Eg nefndi hann
bankastjóra, af því að það var síð-
asta og veglegasta lífsstaða hans, en
það mætti kenna hann við næstum
hverja lifsstöðu eða starf, sem vera
skyldi, því gamli maðurinn hefir
við flest fengist. 80 ár eru langur
tími og fáum mun hlotnast það hlut-
skifti, að mega lifa svo lengi, og
fæstir, sem'þeim aldri ná, eru svo
hamingjusamir að njóta svo góðrar
heilsu sem heiðursgestur vor; en
honum hefir sama sem aldrei orðið
inisdægurt alla þá 29219 daga, sem
liann hefir lifað.
1 barnæsku kembdi hann ull . og
prjónaði sokka, fór snemma að tálga
spitur og bein og fékst síðan við
smíðar og varð góður og hugvits-
samur smiður. Síðan var hann bóndi
og ræktaði jörðina og kom upp fyr-
irtaks bústofni. Mér er sagt, að kýr
lians hafi verið með afbrigðum góð-
ar og reiðhestar hans betri iillum
öðrum hestum. Svo fór hann að fást
við verzlun og kaupskap, og sagan
mun geyma nafn hans, sem for-
manns Gránufélagsins um nærri ald-
arfjórðung. Hann gjörðist uin þetta
skeið útgjörðarmaður og kom mjög
mörgu í framkvæmd, sem hér þekt-
ist ekki áður. Hann mun hafa séð
um byggingu fvrstu brúar yfir stóra
á hér á Jandi og fleiri brýr bygði
hann síðan og tvær þeirra stórar,
yfir Skjálfanadafljót og ölfusá. I
öllu, sem Tryggvi fékst við, kom
fram hagsýni hans og óbilandi
dugnaður.
Þennan fyrri hluta æfi sinnar var
Tryggvi Gunnarsson einhver mesti
atkvæðamaðurinn á Norður- og
Austurlandi, en hvarf svo hingað
til Reykjavíkur til þess að takast á
hendur hið vandasama starf, sem
forstjóri hins unga Landsbanka, og
hefir Reykjavík átt því láni að
fagna, að telja hann meðal borgara
sinna í meira en 20 ár.
Þessi ár hafa verið framþróunar-
og þroskaskeið Reykjavikur og hef-
ir Tryggvi gamli verið hvatamaður
inargra þeirra frainfara, sem hér
hafa orðið. Hin mikla lifsreynsla
lians, óbilandi kjarkur og dugnaður
hefir komið Reykjavikurbæ að ó-
metanlegu gagni. Eg ætla ekki að
segja sögu Reykjavíkur síðustu tvo
áratugi; en þegar hún verður sögð,
mun Tryggvi viða koma við sögu.
Eg vil að eins minna á, hvað hann
hefir gjört fyrir þilskipaútgjörðina,
sem var undinstaða undir vexti og
framþróun Reykjavíkur. Hann kom
á samábyrgð á þilskipum og við-
gjörðarstöð fyrir þau og hann gjörði
þeim mögulegt að fá beitu með því
að koma á fót ishúsi.
Tryggvi hefir látið bæjarmál inik-
ið til sín taka og seta hans í bæjar-
stjórninni hefir ekki verið árangurs-
laus. Ilann var oftast meðal hinna
framsýnu bæjarfulltrúa, og sem for-
maður veganefndar vann hann mik-
ið að því, að bæta götur bæjarins,
og bætti hér götugjörð, enda þótt nú
sé tekin upp ný aðferð; en einnig
henni hefir hann léð fylgi sitt.
Tryggvi Gunnarsson hefir, eins og
allir þeir, sem mikið er í spunnið og
mikið framkvæma, oft orðið fyrir
hörðum árásum og misjöfnum dóm-
um; en hann hefir farið sinu fram,
er hann var sannfærður uin, að mál-
staður hans var réttur, og ekki lát-
ið yfirbugast. Hann hefir aldrei
hlíft sjálfum sér, og ósérplægni hans
er nærri því eins dæmi. — Nd, þeg-
ar hann situr hér áttræður ungling-
ur, þá eruin vér öll sammála um, að
þakka honum fyrir það, er hann gaf
af sjálfum sér þjóðfélagi og bæjar-
félagi voru. Betur að Island ætti
inarga sonu og Reykjavík marga
borgara slíka sem Tryggva Gunnars-
son. — Nú, þegar komið er að æfi-
kveldi hins gamla heiðursmanns, þá
eru allir, þrátt fyrir allar mismun-
andi skoðanir á lands- og bæjarmál-
um, sammála um að skylt sé að
heiðra hann; og ef dýrin hefðu mál
þá mundu þau einnig þakka honum
<dt, er hann hefir fyrir þau gjört.
Eg ætlaði ekki eð verða lang-
orður, en vil snúa orðum mínum til
heiðursgests vors og biðja hann að
taka á inóti heillaóskum vor allra.
Vér óskuin að þau ár, sem þér eigið
eftir að Iifa, megi færa yður gleði
og ánægju, og að þér megið sjá enn
meiri ávöxt af lífsstarfi yðar, en þeg-
ar er orðið.
Tryggvi Gunnarsson lengi lifl”
Tryggvi Gunnarsson þakkaði isam-
sætið og svaraði þvi, sem til hans
var talað, með ræðu fyrir fslandi og
bar saman ástandið nú í atvinnu-
vegum og verzlun við það, sem var
fyrir 65 árum; en yfir það áraskeið
kvað hann minni sitt ná. Bezt var
hann ánægður með framfarir sjáv-
arútvegsins og þá verzlunarinnar,
að undanteknu þvi, að áreiðanleiki
i viðskiftum væri nú minni en áður.
l'ramfarir í landbúnaðinum kvað
hann miklu minni en á hinum svæð-
unuin, og nefndi dæmi um alt þetta.
Sérstaklega mintist hann dýravernd-
unarstarfsemi sinnar og kvað hafa
orðið bót á hugsunarhætti manna i
þessa átt frá ungdæmi sínu. Óskaði
hann svo lslandi góðrar framtíðar
og bað menn hrópa “húrra” fvrir
})VÍ.
Eftir ræðu borgarstjóra var sung-
ið kvæði eftir sira Matth. Jochums-
son, er útbýtt hafði verið prentuðu,
og er þetta þar í:
Velkominn hér á vinafund
ungur með orku ljóns
áttræður kappinn Fróns.
Skál fyrir alt þitt æfistarf,
skál fyrir skömtuð laun,
skál fyrir marga raun.
Öðrum til gagns var alt þitt strit,
læri þar landsins hjú
lifandi og sanna trú.
Staup fyrir ljúfan laukagarð,
blómstranna blíða draum
á bak við þingsins glaum.
Þigg nú í einu allra þökk;
treynist þér timans bið,
taki svo hinir við.
Jón Jakobsson landsbókavörður
las upp kvæði eftir H. S. Blöndal, er
einnig hafði verið útbýtt prentuðu,
og byrjar á þessum erindum:
Að áttatíu ára kveldi
|)ú una inátt við dagsins starf,
l>ví meira verk ei margur seldi
þá móðurfoldu sinni’ í arf.
Margt vanstu landi’ og lýð til bóta,
því löng er saga þín og inerk,
og óspart léztu aðra njóta
þess arðs er báru framkvæmd verk.
Síðan talaði J. Jak. fyrir minni
Reykjavíkur. F'rú Bríet Bjarnhéð-
insdóttir talaði fyrir kvenfólksins
hönd; og Jóh. Eyjólfsson alþm. tal-
aði einnig. Borgarstjóri las upp
fjölda heillaóskaskeyta, sem heið-
ursgestinum höfðu borist, og voru
þau frá öllum hornuin landsins og
%
Jólagjafa pantanir
Stórar og Smáar
ættu að vera
pantaðar
STRAX
Brúkaðu
EATONS
Vöruskrá
Hurfiy Vp
Fyrstu
hafa mestu
pantanir úr að velja
*T. EATON C?,
WINNIPEG
LIMITED
CANADA
einnig frá Færeyjum, Kaupmanna-
höfn og Englandi. Hér er nokkuð af
skeytunum:
“Kaupmannaráð íslands og Kaup-
mannafélag Reykjavíkur senda yður
beztu heillaóskir og óska yður fag-
urs og rólegs æfikvelds eftir mikið
og vel unnið starf”.
“Verkfræðingafélag fslands óskar
a þessum heiðursdegi að mega flytja
yður kveðju sina og þakklæti fyrir
mikið og vel unnið starf og margs
konar verklegar framkvæmdir la , ii
og lýði til gagns. Verði æfikvöUl yð-
ar bjart og unaðsríkt”.
“Þökk skal þér gjalda
þjóðskörungur,
unnið æfistarf.
Heill og heiður
hljótir lengi enn,
sómi lýðs og Iands.
Stúdentafél. i Rvík”.
“Innilegar hamingjuóskir og þakk
ir fyrir unnið starf. Allir Þingeyj-
ii gar munu taka undir þetta með
ni-.kur.—Pétur og Steingrímur Jóns-
synir frá Gautlöndum”.
Frá sira Matthíasi Jochumssyni:
“Fjarri dýrum drengja her
drekk eg vatn úr glasi;
kveðju samt þér isíminn ber
frá séra Matthiasi”.
Ríkharður Jónsson myndhöggvari
kvað i samsætinu þessar visur, ortar
af Guðm. skáldi Guðmundssyni:
“Hestar, geitur, kýr og kindur, kett-
ir hundar,
vininum Tryggva gamla, góða,
góðan dag í Ijóðum bjóða.
Fuglar himins hjartans kveðju hon-
uin senila.
Verji hann öllum sóknum sorgar
sá, er fyrir hrafninn borgar.
Mannvin þann og málleysingja ineg-
invörðinn
blessi guð í góðri elli
og geislum yfir “kallinn” helli!
Allar heillaóskir beztu fslandssona
á þeim sæmdaröldung hrini,
en — enginn dropi’ af brennivini!”
Eftir borðhaldið var dansað og
sungið fram til kl. 3. Þá fylgdu karl-
ar og konur heiðursgestinum heim
að húsdyrum hans og kvöddu hann
þar með söng.
* * *
Kaupmenn Reykjavíkur eru að
láta gjöra brjóstmynd af Tr. G., er
steypa á í eir og reisa á varða ein-
hversstaðar hér í Reykjavík. Rík-
harður Jónsson gjörir myndina. —
Mun hún og varðinn eiga að vera af
likri gjörð og stærð og Matthíasar-
varðinn á Akureyri.
SUCCESS BUSINESS COLLEGE.
WINNIPEG, MANITOBA.
ByrjaSu rétt og byrjatSu nft. L,æri® verzlunarfræði — dýrmætustu
þekkinguna, sem til er í veröldinni. Læri® í SUCCESS, stærsta og
bezta verzlunarskólanum. Sá skóli hefir tiu útibú í tiu borgum Can-
adalands—hefir fleiri nemendur en allir keppinautar hans i Canada
til samans. Vélritnrar fir þclm Mkóla hnfa hæstu verDlann,—Útvegar at-
vinnu — hefir beztu kennara — kennir bókhald, stærðfræöl, ensku,
hraðritun, vélritun, skrift og a® fara me® gasólin og gufuvélar.
Skrifi® eða sendið eftir upplýsingum.
F. G. GARBUTT D. F. FERGUSON.
Presldent Prlnclpal
CANADIAN NORTHERN RAILWAY
DECEMBER EXCURSIONS
1915
/[ANADjAH\ HASTERN canada
J Daily, December 1 to 31
Liberal Stopovers. First Class Tickets.
Choice of Routes. Three Months’ Limit
VERY LOW RETURN FARES TO ATLANTIC PORTS.
in connectión with Steamship Tickets by all lines to
OLD COUNTRY
DAiitY, \o\i:>im:it ir» to dkokmhkk ai. fivk movths' limit
NEW CANADIAN ROUTE
BKTWEEN
WINNIPEG OG T0R0NT0
Standard Electric Lighted Trains All modern Conveiences
Information and tickets from any CANADIAN NORTHERN AGENT
R. CREELMAN.
General Passenger Agent, Winnipeg
PHIXOIPAh CITY TK l\KT OFFICES:
REGINA—Eleventh Avenue, opposite Post Office, Phone 1942
SASKATOON—Cor. 2nd Avenue and 22nd Street, Phone 2453
W. M. Stapleton, District Passenger Agent.
EDMONTON—McLeod Building, opposite Post Office, Phone 1712.
PRINCE ALBERT—Canadian Northern Station.
CALGARY—218 Eighth Avenue West.
WINNIPEG—N. W. Corner Main and Portage. Phone Main 1066.
BRANDON—Station Building, next Prince Edward Hotel.