Heimskringla - 06.04.1916, Síða 1

Heimskringla - 06.04.1916, Síða 1
XXX. ÁR. WINNIPÉG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 6. APRIL, 1916. NR. 28. Stríðs =f réttir Þegar Þýzkir gátu ekki brotið garðinn I'-rakka að austan o-g norð- «n við Verdun, fóru þeir að reyna að vestan við Meuse-ána. Eins og áð- ur hefir verið getið, reyndu þeir við Bethincourt og Mort le Homme (Dauðs manns haugq, og höfðu svo sem ekkert upp úr því annað, en að tapa þúsundum manna. Er “Dauðs manns haugur” eitthvað tvær milur vestur af ánni Meuse. Svo fóru þeir að reyna við Malancourt, tveimur mílum vestar, og í skógunum á 2. mílna svæði suðvestur frá Malan- court til Avocourt. Þarna reyndu þeir hinn 29. marz, og voru búnir að gjöra þriggja daga dynjandi skot- hríð á Avocourt áður en þeir runnu á. En áhlaupið fór sem áður. Þeir töpuðu fjölda manna, en urðu frá að hverfa. Frakkar reistu eldhaf (cur- tain of fire) bak við herdeildina, sem áhlaupið gjörði, svo að enginn gæti komið þeim til hjálpar; en með Maxim-byssum og handbyssum sóp- uðu þeir niður fylkingunum, sem komu, og voru þeir fáir, sem uppi stóðu; hinir hrundu allir niður áð- ur en þeir komust að gröfum Frakk- anna. Er sagt, að Þýzkir hafi sent heila “division” eða 20 þúsundir manna til þess að ráðast á 2,000 j yards af skotgröfum Frakka við Avocourt. Tilgangurinn með áhlaupum þess- um var sá, að komast að járnbraut- inni, sem liggur frá Verdun vestur til Parísar. Hún liggur þarna 6 míl- um sunnan við hergarð Þjóðverja; en þær eru örðugar yfirferðar þess- ar 6 mílur, og hafa kostað Þjóðverja margan manninn. — Enn eru Þýzkir að glíina við Verdun. Vér gátum þess, að þeir hefðu sótt Malancourt, 4 mílum vest- an við Meuse-ána, frá þremur hlið- um. Þar börðust Frakkar af fyrir- taks hreysti alla nóttina, og vo.ru þá 20 Þýzkir um hvern Frakka; en undir morguninn, þegar allur bær- inn var írústum/þá var um tvent að gjöra, þcgar Þýzkir voru á þrjár hliðar, að gefast upp eða hörfa und- an. Þeir hörfuðu því úr rústunum og námu staðar í útjaðri bæjarins. Bærinn er smábær og var hann seld- ur Þýzkum fullu verði. Næst reyndu Þýzkir austan við Verdun einu sinni enn, við Vaux, norðaustur af Verdun, eitthvað 5 mílur. Kastalinn er nú eyddur og brotinn; en þar er þorp litið með sama nafni. Þangað beindu Þýzkir einni stórskotahríðinni sinni og heltu yfir Frakka steypiregni af sprengikúlum, nóttina og daginn hinn 30. marz, frá Haudremont og suður til Vaux. Svo komu þeir alt i einu i þé'ttum fylkingum og gjörðu tvö hroða-áhlaup á þorpið litla Vaux. En Frakkar börðu af sér á- hlaupið með öllum þeiin skothylkj- um, smáum og stóruin, sem til voru, og hrundu Þýzkir niður áður en þeir komust að gaddavírsgirðingum Frakka. Svo kom hitt áhlaupið rétt á eftir; þá komust Þýzkir lengra og náðu nokkrum parti af þorpinu Vaux; en Fraikkar héldu helming þorpsins og öllum gröfum utan við það til beggja handa. Skamt þar frá reyndu Þýzkir að raðast á Frakka við Douaumont og spýttu á þá straumum logandi elds. Það var víst heitt nokkuð, en Frakk- ar tóku svo á móti, að hinir urðu frá að hrökkva. Þarna voru flotar flugdreka i lofti og mættu þar hvorir öðrum Frakkar og Þýzkir. Steyptu Frakk- ar 5 þýzkurn flugdrekum niður við Verdun þann dag og hinum 6. vestar miklu, í Campagne. En enginn dreki týndist af Frökkum. — Á ftalíu berjast þeir við Gorit- zia dag og nótt, og stóð einn slagur- inn yfir i 40 klukkutima og veitti ít- ölum heldur betur; en þungt er að hrinda Austurríkismönnum úr skurð utium og af tindunum þar. — Fjórar stöðvar neðansjávar- háta Þjóðverja hafa Bretar fundið á grísku eyjunum nýlega og sýnir það, að Grikkir geta engum verið trúir. 1 Salonichi situr við það sama. Og ekkert varð úr áhlaupi Þjóðverja og Búlgara þar. Þeir höfðu ekki nægi- irgt lið til þess. — Á Rússlandi hafa lítil tiðindi gjörst, nema að Rússar hafa náð hæðum flestum á allri línunni og sitja nú á þurru meðan flóðin eru. Eru engin likindi til að Hindenburg komist þar áfram um langa tíma, og getur hann ekki rótað Rússum nú sem stendur; en þegar jörðin þorn- ar, þá koma þeir. — Kapteinn Hans Tauscher, for- ingi i herflota Þjóðverja og fulltrúi eða erindsreki Krúpp-smiðjanna, hefir nú verið tekinn fastur d New York, fyrir samsæri til að sprengja upp Welland-skurðinn í Canada og gjöra innrás í Canada. Maður nokk- ur, sem kallaði sig Herinann von der Goltz, en heitir Bridgemann Taylor, náðist á Englandi og kom öllu upp. Sex menn aðra átti að taka fasta þessa dagana. Þessi Tauscher er kvæntur hinni frægu söngkonu Jó- hanna Gadski, sem margir hafa heyrt syngja lög á fónógrafa. Spæj- arar höfðu rakið islóðir manna þess- ara með dýnamitið. Tauscher var hjálparmaður von Papens hins þýzka i Washington og keypti fyrrir þá félaga meira en inilíón dollara virði af vopnum, sem átti að nota á inóti Canada. — Það cr eins og þeir séu að nota sér það Þjóðverjarnir, að nú er far- ið að þorna á Frakklandi, til að gjöra áhlaup, þvi þeir geta það ekki annarstaðar fyrir bleytu. Og enn eru þeir að gjöra áhlaup við Verdun; en það fer einlægt á sömu leið. — Frakkar þumbast á móti; lofa þeim að koma í skotfæri og skjóta þá svo niður; þeir hörfa hægt og bítandi undan Frakkar, og lofa Þýzkum að taka eyðilagðar grafir eða horn af þorpum. En þeir stöðva þá, hvenær sem þeim sýnist. — Á Englandi eru Þýzkir einlægt að gjöra Zeppelin árásir og drepa þetta 10—20 og upp i 70 konur og börn og menn. Þeir vinna ekkert við það, en eru að reyna að hræða Breta. Um daginn datt einn Zeppe- lininn niður í Thames-ósa og voru Bretar við og tóku mennina fanga. — En neðansjávarbátar Þjóðverja eru nú að nýju farnir á stað og sökkva nú hvaða skipi sem er og spyrja ekkert um þjóðerni, og vopn- laus eru þau flest. Iiitthvað 96 kaup- skipum og fiskiskipum eru Jieir búnir að sökkva fyrir Norðmönnum og er ekki að furða, þó að Norð- mönnum falli það illa. En bætur verða Þýzkir að borga, þó að síðar verði. Smáskærur í Winnipeg. Á aðalstrætinu og næstu strætum urðu nokkrar skærur á laugardags- kveldið, og þurfti að kalla út her- mennina til að koma á frið og spekt. Allar sögur um þetta eru mjög svo ógreinilegar og ilt að henda reiður á. Jafnvel dagblöðin fara hægt í sak- irnar, því að oft kemur ein sagan á móti annari um sömu viðburðina. Vér vissum ekkert um þetta fyrri en undir kveld á sunnudaginn, og get- um ekki ábyrgst, að það (sé rétt, sem vór förum með. En eftir því, sem vér komumst næst, byrjaði ballið á laugardags kveldið kl. 7.10. Var það ítalskur maður í hermannabúningi, drukk- inn, er stóð í dyrunum á Imperial Ilotel, og var tekinn fastur af ein- um eða tveimur hermönnum, sem settir voru til löggæzlu. En þá kom lögregl'innaður og tók imanninn og fór með hann til að setja hann i fangelsið á Rupert St. Þessi fregn flaug sem eldur í sinu um öll nær- liggjandi stræti. Og undir eins varð uppþot um alt Aðalstræti, og var öllu, sem laust var, hent að lögreglu- mönnunum, alla leið niður að Rup- ert St., þar sem fangelsið (Police Station) er. Þessar fregnir flugu um allan bæj- inn og á örskömmum tima þyrptust þarna á Aðalstrætið þúsundir af fólki, og voru það bæði hormenn og aðrir. Segja sumir, að hermennirnir hafi ekki verið nema þriðjungur af ihópnum. En alt var í bendu. Það var þarna saman kominn “mob” eða samsa'fn karla og kvenna á öllum aldri og af öllum stéttum. Og nú fara að heyrast köllin: “Brjótið upp lög- reglustöðvarnarl” Þau gengu um all- an hópinn, og vissi enginn, hver byrjaði eða hver kallaði. En þúst- urnar færðust nær lögreglustöðvun- um. Alt í einu opnast keyrsluportið á lögreglustöðinni og út koma 75 lög- reglumenn með bareflin í höndum, og láta þau ganga á hópunum, en þeir leggja á flótta. Úr þessu fór nú fyrst gamanið að grána. Lögreglu- mennirnir sneru við og héldu sigri hrósandi heim á stöðvar sínar. En nú voru komnir hálfu flciri i hóp- inn á Rupert St. Nokkrir æðri her- foringjar komu þá og reyndu að hasta á hópana; en þetta var alt sambland af hermönnuin og borgur- um og öllum tcgundum af fólki, en hávaði mikill og heyrðust illa orð þeirra. Var nú farið að kasta öllu, sem handbært var: ísmolum, múr- steinum og hinu og þessu. Þctta igekk i hálfan annan kl.tíma og fengu ýmsir skeinur. Fóru þá lögreglu- mennirnir að búa sig undir annað áhlaupið til að tvistra hópunum, er fyltu bæði Rupert St. og Main St., og voru þar í þeim sjálfsagt 3 þúsund manns. Eögreglumennirnir fylktu sér 20 saman, hver út frá öðrum, og voru 4 raðirnar, liver aftur af annari. Þar var formaður lögrcglunnar Mac- pherson og fulltrúi hans New'ton. — “Bregðið kylfunum!” hrópaði New- ton, og svo: “Áfram, á þá!” Þeir runnu þá á hópana, en þeir flýðu og lögregluliðið á eftir upp Rupert St., út á Main St. og þar bæði suður og norður. Voru þá bareflin notuð, og þegar búið var, lágu liermenn og borgarar hér og hvar um strætin eða voru að standa upp og reyna að haltra burtu. Konur voru þar og, og studdust tvær við telefón-staura og voru allar rifnar og tættar. Svo snöri lögregluliðið aftur til stöðv- anna, og hafði með sér eitthvað af föngum. Þá var kl. 9 um kveldið, þegar áhlaup þetta reið aif. Geta má þess, að cftir á sögðu lög- reglumenn, að þessi drukni ítalski hermaður, sem þeir sáu i dyrunum ká Imþerial Hotel, hefi ekki verið í haldi hermannanna, og hafi þeir því tekið hann. En um það getur nú sem stendur engin vissa fengist, fyrri en seinna; en reglan mun vera sú, að hermennirnir séu undir herlögum og þeirra eigin pólití taki þá fasta. K)l. 9.30 gjörðu lögreglumennirnir þriðju kviðuna, og kl. 10.30 hina fjórðu, og var bún kanske hörðust af þeim öllum; voru þá hóparnir farnir að fækka og ckki orðið eftir nema um þúsund manns. —- Alt til þessa höfðu hermennirnir, eftir frásögnum blaðanna, aldrei komið fram öðruvísi en innan um hina hópana; aldrei fylkt sér til að taka á móti lögreglunni, livað svo sem tilfinningum þeirra leið. En einhvernveginn hefir þessi kviðan verð harðari en hinar fynri, eða þeim hefir verið farið að sárna, sem orðið h-afa fyrir bareflum aftur og aftur. Og nú fréttu lögreglumennirnir, að 500 hermenn hafi safnast saman á horninu á King og James strætum, og væru að fá sér stauta og prik til vopna. Þá taka lögreglumennirnir það ráð, að reyna að ginna hópinn her- manna og borgara, sem með þeim voru, inn milli James og Rupert St. og ætluðu þeir að koma að þeim frá þreim hliðum. Var það þjóðráð, ef við óvinaflokka hefði verið að eiga. En einhvernveginn urðu hermenn- irnir þeirra varir, og sáu fljott gildr- una, sem átti að teyma þá inn í. Þeir voru því kyrrir, kölluðu til hinna og iköstuðu nokkrum sendingum til þeirra. En lögreglumennirnir voru heitir orðnir, og vildu fá enda á þessu. — Þeir tóku því það ráð, að ganga of- an i Aðalstrætið, og var þá fylkinB þeirra svo breið, að hún fylti upp alt strætið. er þeir áttu fáein skref til hermannanna, þá námu þeir stað- ar. Og horfðust þar hvorirtveggja í augu. Eftir nokkra stund hörfuðu lögreglumennirnir undan til James St. Þcir siáu, að fylkingin var þunn, og ef að hermennirnir brytu sér hlið í gegn, mundi illa fara. Enda voru nú hermennirnir loksins farnir að búa sig til áhlaups. En p„ kom kall til þeirra og litu þeir við og sáu blika á riflaraðir við skin strætis- lampanna. Þetta var 100. hersveitin. Hún kom þarna með alvæpni frá hermannabúðunum og nam staðar þarna á orustuvellinum. Rétt á eftir kom 184. hersveitin og nokkuð af liinni 90. og 107. Þessar sveitir (Bat- talions) fylktu svo allar á Main og King strætum. Nú gall herlúðurinn (bugle) við hátt og skært til merkis um að fylkja liðinu. Áður í slagnum höfðu for- ingjarnir verið að kalla til hermann- anna, meðan þeir voru innan um borgarana og urðu með þeim að þola barsmíð af bareflum lögreglumanna. Þeir heyrðu þá ekki köll þeirra, — enda var annað til að dreifa liuga þeirra og þeir höfðu að eins hlegið við. En nú gall henlúðurinn og var sem titringur hljóðsins hrifi þá; og hann gall í annað sinn. Það var bú- ið — hóparnir fóru að tvístrast; her- mennirnir fóru að ganga hver til sveitar sinnar; hermenn þeir, sem fylkt höfðu á strætinu, rufu fylk- inguna og gengu þegjandi til félaga sinna. Nokkrir stóðu eftir, sem væri þeim erfitt að víkja. Þá gengur Col. Glen Campbell fram í miðjan hóp- inn þeirra, sem enn voru hikandi, og segir um leið og hann snöri sér til inanna sinna: “Ef að hér þarf nokkuð að berjast, þá er það mitt að gjöra það”. Siðan kallaði hann: “Gangið í fylking.” (fall in).' Hver cinasti maður gjörði sem hann bauð. —INú var miðnætti komið. En 20 minútum seinna komu I Sírathcona riddararnir, ríðandi með fylktu liði og höfðu sverð brugðin. Tók fylking þeirra þvert yfir stræt- ið. Ilrökk þá fólk alt af strætinu upp á gangstéttirnar. — Uppþotið var búið. Á sunnudagsmorguninn voru allir hermennirnir, sem lögreglan hafði náð kveldinu áður -— eitthvað 40 — seddir í hendur hermannavaldinu, neina 8, og átti hermanmasveit (es- cort) að fara með þá seinna. En skömmu eftir hádegi söfnuð- ust um 25 ungir menn í hermanna- búningi saman á horni einu and- spænis lögrcglustöðvunum, og voru menn þessir frá ýmsum sveitum. Var formaður lögreglunnar spurður, hvað þeir væru að gjöra þarna. “ó, það er bara af forvitni”, sagði hann. En svo sáu foringjar tveir hóp þenna, er þeir gengu um Aðalstræti, og gengu til þeirra, til þess að vita, hvað um væri að vera. Hermennirn- ir sögðu þeim undir eins, að þeir vildu fá þcssa fclaga sína, s\in eftir væru, lausa tir höndum lögreglunn- ar. En Aðalstrætið var fult af her- mönnum, og tiilýii þeir óðara eftir þessum litla hóp, sem þarna var og því, að foringjarnir gengu til þeirra. Varð þar óðara mannssöfnuður og fóru einhverjir að kalla: “Látið þá lausa!” Þá var það, að einhver tók upp steinmola og fleygði ti! liig- > p*)ustöðvanna. En nóg var þar af múrsteinum á auðri lnislóð rétt bjá og flöskur brotnar og heilar, og ís- molar. Efnið var við hendina, og að- ur en nokkurn varði dundi hríðin á lögregliistöðvarnar, og stóðu þá gluggarúður lítið fyrir, því að stein- köstin fóru lengst inn í herbcrgin. Kl. 3 e. m. kom sveit manna vopn- uð og var fyrir henni Capt. Parker. Stefndu þeir beint til lögreglustöðv- anna til að sækja fangana, sem eftir voru. Stöðvaðist þá steinkastið. En brátt byrjaði það aftur, og koin iþá steinn i eina ljóskúluna ofan við innganginn að stöðvunum, og bráð- lega voru hinar þrjár ljóskúlurnar farnar sömu leið, og lirundu gler- brotin yfir hermennina, sem voru að sækja fangana. Hrökk þá stein- moli í einn hermanninn, er molinn kastaðist aftur frá steinvegg stöðv- arinnar. Hann laut niður, greip mol- ann upp, eins og hann ætlaði að kasta honum aftur, en hugsaði sig um og lét hann falla til jarðar; vildi ekki kasta honum á félaga sina. Greip þá einn hermannanna i liópn- um, sem fyrir var, steininn, rétt fyr- ir framan byssustingi hermannanna, og lét hann fara í gegnum glugga einn. Litlu seinna komu þar Col. Gray, Major llarris og Capt. Goddard, og tóku tali foringja lögreglumanna. Vildi Newton lögregluforingi eiga við hermannahóp þann, sem þar var úti og brotið liafði gluggana, og sagði lögreglumenn sina óraga vera. En Major Harris hélt taum manna sinna og vildi kenna lögreglumönn- um um rósturnar kveldið áður. En Newton rann i skap. Sneru þá foringjarnir sér að her- mönnunum og vildu fá þá til að hætta kastinu; en þeir báðu um lausn félaga sinna. Þá segir Col. Gray, að iþeir skuli fá inennina inn- an fárra mínútna, ef að þeir fari nú þegar þaðan og inn á Main St. En þá var hörð hríð á lögreglustöðvarnar, og fóru i henni seinustu gluggarnir. Þá kom lögregluvagninn og tveir lögreglumenn í honum, en Mr. Moore keyrði. Lögreglumennirnir gátu rétt skotist inn, en hurðin var ekki strax opnuð fyrir Moore, og fékk hann töluverða hríð, áður en hann komst inn. Loks voru fangarnir aflientir her- mönnunum, sem komu að sækja þá. Þeir voru 8 fangarnir, og tók sveitin vopnaða við þeim, nema þremur, sem hinn hópurinn náði til sín. Reyndu þeir svo að ná þessum 5, en varðsveitin snöri að þeim köldu stál inu, og hættu þeir við. Heimboð Borgaranefnd 223. herdeildarinnar býður alla Skandinava velkomna á Scott Memorial Hall MIDVIKUDAGINN 5. APRIL, Kl. 8 e. h. til þess að mæta hermönnum 223. herdeildarinnar, og skemta sér þar við söng og hljóðfæraslátt og skemtilegar ræður. Inngangur ókeypis og ókeypis veitingar. GOD SAVE THE KING. Enn þá einu sinni gjöra lögreglu- mennirnir áhlaap. Þegar vopnaða sveitin með fang- ana var komin inn á Aðalstræti opn- uðust dyrnar á lögreglustöðvunum, og hlupu lögreglumennirnir þar út i tveimur röðum með kylfur sínar i höndum. önnur röðin sópaði öllum af stræti þessu inn á Aðalstræti, en hin alla leið niður að á. Voru þá margir illa barðir, bæði borgarar og stöku hermenn. Nokkrum hermönn- um náðu þeir og tóku og hneptu i fangelsi. Safnaðist þá enn á ný allmikill hópur af fólki, og vildi brjótast inn á Rupert St. En þá kom flokkur einn frá 179. herdeildinni, og voru þeir vopnaðir. Þeir tóku sér stöðvar á bak við hóp lögreglumannanna, sem voru fylktir milli þeirra og Að- alstrætis, og því nær hópunum, sem þar voru að safnast. Gekk þá New- ton fram fyrir lögreglumennina og kallaði: “Bregðið kylfum, — hlaup- ið á þá!” — Voru þá að eins fáeinir hermenn, sem tóku á móti, og voru þeir barðir niður. “Telegram” segir þeir hafi barið einn mann fallinn. Vildu þá sumir hermennirnir i 197. hersveitinni, sem vopnaðir voru, stökkva á lögreglumennina og koma félögum sinum til hjálpar, en Capt. Goddard skipaði þeim að vera kyrr- um, og hlýddu þeir. Á meðan á þessu stóð voru nokk- j urir smábardagar á Rupert St. vest- an við Aðalstræti. En einnig meðan á þessu stóð héldu hermannaforingjar og yfir-1 menn lögreglunnar fund með sér, og gjörðist þá með þeim, að lögreglu- j mennirnir skyldu bætta erfiði jiessu,! en hermennirnir taka við, og skyldu 1 halda burtu af orustuvellinum. En | undir eins og þeir voru búnir, sló í dúna logn og var fullkominn friður á kominn. Á mánudaginn var réttur haldinn yfir þeini, sem fangnir voru, og voru ellefu borgarmenn sakaðir um ór.óa á strætum borgarinnar og einn þeirra um, að hafa komið hópunum til að gjöra árás á lögreglustöðvarn- ar.----- — Mörg aukaatriði gjörðust, sem vér ekki höfum getað greint frá, og eru sum styrkjandi málstað her- mannanna. Svo sem það, er ítalski hermaðurinn var fyrst tekinn við dyrnar á Imperial Hotel. Maður nokkur stóð þar í næstu dyrmn, eða svo, og sá hann liggja þar utan við dyrnar, og komu þá hermenn tveir gangandi, tóku sinn í hvorn hand- legg honum og reistu hann upp, og voru komnir af stað með hann. En einhver hafði fónað lögreglunni af hótelinu, og kom lögreglumaður einn i þessum svifum, tók i lierðar manninum, sem hermennirnir leiddu, og sagði honum að korna með sér. Eftir það Kom þar að kyn- blendingur nokkur, og er hann sá lögreglumanninn með hcrmanninn, hrópaði hann heróp (war-whoop) sitt, og þa var skriðan komin á stað, — meira þurfti ekki. Allir, sem á strætinu voru, fóru á stað, livort sem það voru hermenn eða borgar- ar, konur eða karlar. ------Þegar menn vilja nú reyna að líta hlutlaust á þetta, þá sjá menn fyrst, að lögreglan hefir gjört sem henni var áður skipað af yfirstjórn borgarinnar. Nema það sannist, að hermennirnir hafi verið á leiðinni með manninn í varðhald hermann- anna. Hermennirnir vildu taka fé- laga sinn, sem eðlilegt var. En hins vcgar má dást að stillingu liermann- anna framan af. Fjórum sinnum var ráðist á þá með bareflum, og þó að þeim hafi sinnast, sem flestum myndi hafa orðið, þá taka þeir sig ekki saman i hnapp til þess að mæta þessum árásuni, og þegar þeir loks- ins gjöra það, þá kemur I.ieut-Col. Glen Campbell með sveit sína. Þeir eru orðnir reiðir, svo að blóðið sýð- ur í æðum þeirra. En þegar hcrlúð- urinn er blásinn, þá vaknar skyldu- lilfinningin og þeir ganga í sveitir sínar; en hinir, sem enn þá hika við, — þeir láta af reiðinni, þegar I.t.-Col. Glen Gampbell kemur frain drengilega og gegna honum tafar- laust. En svo eru sumir félagar þeirra hneptir inni. En þeir vilja ekki yfir- gefa þá. Væruð þér á vigvöllunum, drengir, í óvinahöndum, hversu munduð þér ekki vikna, ef að þér sæjuð vini yðar koma hlaupandi gegnum reyk og svælu skothylkj- anna til að bjarga yður? Það er hin fegursta tilfinning, sem þarna ríkir í brjóstum þeirra, að bjarga félög- um sínum, hvað sem það kostar. Það er tilfinningin og hugmyndin, sem veldur sigrinum. Ef að þessi tilfinning væri ekki til í brjóstum þeirra, þá mættu þeir eins vel fara úr 'hermannafötunum og labba heini og fara að plægja akrana eða moka fjósin. Og vér verðum að gtvta jiess, að þetta eru mennirnir, sem fara i aðra álfu og leggja í sölurnar líf sitt fyrir okkur, sem heinia siíjum, til þess að vér getum heinia setið við kjötkatl- ana og dúnsængurnar. Leiðinda- inenn ætlum vér alla þá, sem ekki sjá þetta, hvort heldur það eru karl- ar eða konur. En liitt er ætlun vor, að æskileg- ast hefði verið, að loka öllum veit- ingahúsum í borginni og vinsölu- búðum undir eins, og halda vörð um, að enginn dropi yrði framar seldur. -----En svo er sjálft uppþotið. Mörgum hefir þótt það voðalegt, ó- heyrilegt, é>hafandi. En hugsun inargra manna nær ekki út fyrir nef þeirra. Það má ákaflega margt um það segja á fleiri vegu. En lítum nú á: Það eru brotnar rúður i einu húsi; það eru högg tekin og gefin; en eftir þvi, sein blöðin segja, hefir enginn li.fi týnt. Ef að vér berum þetta saman við óspektir kvenna á Englandi, sem verið hafa að berjast fyrir atkvæðisrétti, þá verður þetta lítið hjá suinum slöguin þeirra. — Þetta er nii alt. Og borgin er undir hermannagæzlu og ætti líklega að vera það fyrst um sinn. Það eru all- margir, bæði konur og karlar, sem heldur mundu treysta ungu drengj- unum til að halda friði og spekt en nokkrum öðrum. Bréf til Pte. G. Howard. Private G. Howard, Siglunes P.O., Man., á bréf frá Dom. stjórninni hjá Stefáni Péturssyni, 696 Banning St. !

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.