Heimskringla - 06.04.1916, Page 8
BLS. 8.
II E I M S K H I N G L A
WINNIPEG, 6. APRÍL 1916.
Fréttir úr Bænum.
Mr. Jón SigurSsson, Vidir.'Man.,
oddvitinn i BLfröst sveit, kom til
bæjarin.s á laugardagnn með Jón
Nikulásson, Vidir, sjúkan. Var hann
þegar fluttur á spítalann og skar I)r.
Brandson hann upp við botnlanga-
bólgu. Honum líður eins vel og við
var hægt að búast, og biður hann
þessa getið í blaðinu, ef að kunn-
ingjar sínir kynnu að vilja heim-
sækja sig eða vinir hans lengra að
skri'fa sér. — Mr. Jón Sigurðsson
lætur vel af öllu þar neðra. Snjór
lítill, og heilsa góð.
Mr. Stefán O. Eirik&son, Oak View,
Man., kom nýlega til borgarinnar og
urðum vér fegnir að sjá gamlan vin
vorn, því langt hefir oft milli funda
verið, síðan við báðir fluttum úr
Nýja íslandi. Stefán er ern og hress
og líður hið bezta. Ilefir bú gott og
5 syni uppkomna, alla mannvæn-
lega. Hann var heilsulítill um nokk-
ur ár, en nú sér það ekki á honum.
Hann er til í glens og spaug, sem
ungur væri. Þannig eiga menn að
eldast, — og það geta menn, ef rétt
er að farið.
Sunnudaginn 9. apríl verður
morgunguðsþjóusta i Tjaldbúðar-
kyrkju klukkan hálf-ellefu, og við þá
guðsþjónustu verður 197. herdeild-
in, sem þá heldur Ghurch Parade.
Þau Fr. Thompson og kona hans
að 502 Toronto St., hér í borg,
urðu fyrir þeirri sorg að missa 4.
ára gamlan dreng á sunnudaginn 26.
marz sl., úr skarlatssótt. Hann hét
Pétur Guðjón Hjaltalín. Hann var
mjög efnilegur. Hann var jarðsettur
á mánudaginn þann 27. marz af síra
B. B. Jónssyni, frá ofangreindu
heimili, undir umsjón A. S. Bardals.
Kona eins skólakennara frá Sas-
katchewan var nýlega fyrir rétti
hér í borg kærð um að selja forboð-
in fréttablöð. Hún var laus látin
gegn veði þangað til mál hennar
kæmi fyrir.
FYRIRTAKS KJÖRKAUP
PIANOS,— PLAYERS,— ORGANS
Vit5 höfum mikií5 af hljóðfærum á
höndum sem hafa veritS tekinn í skift-
um eóa sum hafa verit5 leigð út, sum
hafa veriti keypt og at5 nokkru leyti
borgutf og skilað aftur. — Hvert hljót5-
færi er ábyrgst at> vera í bezta lagi.
Hver sem kaupir eitt af þessum hljót5-
færum sparar sér mikla peninga.
$ 45.00—CHICAGO CITV ORGAN, 5
octave cabinet, mjög laglegt
hljót5fri í bezta lagi, $45.
9 50.00—KARN CtRGAN, SIX OCTAVE
Piano case, svart, 21 stops, sel-
st fyrir $50.
$ 70.00— BELL & CO. ORGAN, PIANO
case, walnut, vandatiur frá-
gangur, hérumbil nýtt, met5
spegli at5 ofan. $76.
$120.00—THOMAS & CO., ORGAN,
piano case, ekta mahogany,
meí nýjustu endurbótum alveg
nýtt, einkar gott á $120.
$215.00—DU CHARME PIANO, BURL-
walnut, fullkominn stærð,----
mjög laglegt case; eins gott og
nýtt, kostaCi $500 verbur selt
fyrir $215.
$220.00—HEINTZMAN CO., f GÓÐU
ástandi, vanaverb $500, selst
fyrir $220.
$250.00—NEWCOMBE, — MAHOGANY
case, nýjasta sni?5, kostabi
$450, brúkaS í tæpt ár, til sölu
fyrir $250.
$260.00— KRYDNER CO., í FUMED
oak case, leigt í nokkra mán-
uöi alveg eins gott og nýtt,
vanaverö $350, selst fyrir $260.
$285.00—EVERSON & CO., MAHOGANY
case, útflúrislaust, stórt, hefir
veriö brúkaÖ til sýnis í búð-
inni, vanaverö $425, til sölu
fyrir $285.
$320.00—WILLIAMS NEW SCALE í
Walnut case, borgaö á parti,
brúkaö svo sem eitt ár, í hér-
umbil fyrirtaks ástandi, vana-
verö $450, selst fyrir þaö sem
eftir er aö borga $320.
$464.00—EVERSON & CO., PLAYER
Piano, dökt Mahogany Louis
XV. sniö mjög fallegt, hljóö-
færiö kostaöi $700, þaö hefir
veriö nokkuö borgaö niöur í
því, til sölu fyrir þaö sem
eftir stendur $464.
$500.00—WILLIAMS NEW SCALE, —
Player Piano, fumed Oak, brúk
at5 svo sem tvö ár, seldist fyrir
$820, borgaö á parti, selst fyrir
afganginn $500.
$525.00—WESTER BROS., ELECTRIC
Player, í Mission Oak, búiö til
af nafnfrægu Ameríkonsku
félagi kostaöi $1000 tekiö í
skiftum, til sölu fyrir $525.
Kaupskilmálar sejm eru haganlegri
fyrir kaupanda, fást ef kaupandi æskir
þess. Skrifaðu eöa komdu viö og fáöu
frekari upplýsingar. Enn láttu þaö
ekki bíöa, svo þú hafir tækifæri aö
velja úr.
CROSS, GOULDING & SKINNER
323 Portage Aveoue. Winnlpeg* Mnn.
Getið þess, að þér sáuð þessa aug-
lýsirtgu í Heimskringlu.
Guðni Stefánsson prentari, sein
unnið hefir við Heimskringlu und-
anfarin ár. hefir nú látið af þeim
starfa. Hann fór alfarinn burt úr
borginni með konu sína og son og
sezt að á landi móður sinnar, að
Mar.v HiW, ]>ar sem foreldrar hans
bjuggu lengi, unz faðir hans dó.
Móðir Guðna og 2 börn systur hans
fóru með honum. — Allir samverka-
menn Guðna sjá eftir að missa hann
úr hópnum, og óska honum heilla
í hans nýja venkahring.
Á fimtudagskveldið var, 30. marz,
var síðasti fundur Islenzka Kon-
servatíve Klúbbsins á þessum vetri,
og var vetrar-verðlaununum útbýtt
i fundarlok. Hlutu þau þessir: 1. vl.
Einar Lúðvíksson, 2. vl. Stefán Ey-
mundsson og 3. vl. S. F. ólafsson.
Forseti H. B. Skaptason þakkaði
félagsmönnum góða skemtun og
samvinnu og óskaði að þeir mættu
allir heilir hittast á hausti komandi.
Á sumardaginn fyrsta ætla Úní-
tarar í Winnipeg að halda 21 ára
afmæli Únítarasafnaðarins í Winni-
peg. Verður frekar auglýst siðar.
Nýkomnir til borgarinnar eru
þeir Th. G. Pálsson, Erlendur Bjarna
son og Bjarni Bjarnason, allir frá
Reykjavík P.O., og gengu strax í
223. herdeildina. Þeir eru allir rösk-
Jegir og myndariegir ungir menn.
Þeir sögðu lítinn snjó þar nyrðra og
létu vel af liðan manna yfirleitt. —
Með þeim var “recruiting sergeant
Ingimundur ólafsson. Heimskringla
óskar þeim öllum tii heilla og ham-
ingju.
Síra Philipo Basalyiam, Ruthena-
prestur í Winnipeg, var 3. apríl tek-
inn fastur .fyrir að hafa verið að
æsa útlendinga upp til ófriðar hér í
borginni. Vildi hann fá Austurríkis-
menn til að fara heim og berjast á
móti Bretum og Bandamönnum.
Hann var látinn laus gegn háu veði,
þangað til mál hans kemur fyrir.
Mr. Archibald Charle.s Orr og
Ingibjörg Snjólaug Jóhannsson,
bæði frá Amaranth, voru gefin sam-
an í hjónaband þann 23. marz, að
493 Lipton St., af síra Rúnólfi Mar-
teinssyni.
Miss Sveinólína Gisladóttir, Win-
nipeg, vantar bréf frá fólki sínu á
Búðum vestra eða Sauðárkrók. —
Bréf til henner sendist Hkr.
Þessir þrir íslendingar: Skapti
Eyford, Jón Jónsson og Björn Magn-
ússon, frá Piney, Man., innrituðu sig
í 223. herdeildina 2. marz þ. árs., og
hafa síðan verið við æfingar i flokki
þeim, sem herdeild þessi lætur æfa
í Emerson, Man.
Myndir og frekari upplýsingar af
mönnum þessum flytur Heims-
kringla við fyrsta tækifæri.
Kvenfélag Tjaldbúðar safnaðar er
að undirbúa skemtisamkomu, sem
haldin verður fimtudaginn þann 27.
þ. m. Nánar auglýst síðar.
Goodtemplarar!
Komið allir á næsta Heklu-fund.
Það er ekki svo oft, sem hægt er að
fá góða skemtun kostnaðarlaust.
Það, sem sérstaklega ætti að hvetja
alla til að koma, er það, að síra Fr.
J. Bcrgmann flytur þar fyrirlestur.
Þar næst verða ýmsar skeratanir,
gamamleikur, söngur og fleira. —
Komið öll á föstudagskveldið 7.
apríl kl. 8.
Þann 4. apríl var byrjað að sá í
Manitoba, það er á Gilbert Plains.
Mr. George Ady býr 2 mílur frá bæn-
um Gilbert Plains og sáði hann dag
þenna hveiti í 11 ekrur.
. GOTT, LÍTIB EN VANDAÐ HÚS,
með öllum þægindum, á Maryland
St. nálægt Sargent Avenue, með öll-
um innanhússmunum, fæst til leigu
yfir sumarmánuðina, með mjög svo
sanngjörnum kjörum. Umsækjendur
geta fengið allar upplýsingar á skrif-
stofu Heimskringlu.
VANTAR undir eins góða stúlku
á gott íslenzkt heimili i Winnipeg.
Allar uplýsingar að 548 Agnes St.
FUNDARBOÐ.
Hér með tilkynnist, að árs-
fundur ÍSLENDINGADAGS-
INS í Winnipeg verður
hialdinn í neðri sal Good-
templarahússins, McGee og
Sargent, á fimtudaginn 6.
april kl. 8 síðdegis.
Tilefni fundarins er að
taka á móti skýrslum nefnd
arinar frá árinu 1915 og
kjósa 6 nýja menn í nefnd-
ina, i stað þeirra, sem nú
ganga úr nefndinni.
H. M. IIANNESSON,
forseti.
Fáein orð til að skýra tilgang
Jón Sigurðsson Chapter
I. O. I). E.
f fyrsta lagi er það, að “Chapter”
þetta var stofnað til þess, að vinna
að velferð allra íslenzkra hermanna,
án tillits til þess, í hvaða hersveit
(Battalion) þeir eru; því að það er
nú á allra vitund, að lslendingar
eru víst í hverri einustu herdeild,
sem safnað hefir verið til hér i Vest-
ur-Canada.
1 öðru lagi er það, að “Ghapter”
þetta ætlar ekki að binda sig við, að
annast um afturkomna hermenn ein-
I göngu, heldur’vill það hjálpa öllum
íslenzkum hermönnum, sem hjálpar-
j þurfa eru, hvort sem þeir eru við
j æfingar á vígvöllunum eða fangar.
í þriðja lagi eru skyldur þessa
Primary Chapter’s, eins og annara
j af líku tagi, við Municipal Chapler,
j og svo Imperial Chapter, þær, sem
I nú skal greina: Að gefa árlega
j skýrslu uni starf og fjárhag félags-
j ins og borga 7 dollara stofnunar-
j gjald við myiidun félagsins. — En
! gjald það má þó falla burtu, sam-
! kvæmt hinuin nýju lagabreytingum
j á stofnunarskránni.
Ennfremur er það skylda félags-
kvenna, að láta í ljósi föðurlands-
ástina, sem tengir konur og börn
hins brezka veldis við hásæti og
persónu hins elskaða Bretakonungs;
að sjá um ekkjur, munaðarleysingja
og áhangendur brezkra hermanna
og ájómanna, ineðan á stríðinu
stendur, á friðartímum og í veikind-
um, eða ef að slys eða fjártjón ber
að höndum.
Svo bjóðum vér alúðlega ölluni
íslenzkum konum að ganga i félag
þetta, sem í hjörtum sínum finna
löngun til þess, að vinna saman að
þessum velferðarmálum.
VNITEI) WE STAND.
>/■>(■*
Síðan seinasta skýrsla var gefin
út, hafa konur þessar gengið i Jón
Sigurðsson Chapter, I. O. D. E.:
Miss Guðný Johnson.
Miss Thorey Olafsson.
Miss Guðrún Halldórsson.
Mrs. H. S. Johnston.
Mrs. J. K. Johnson.
Mrs. G. A. Axford.
Miss Ninna Snidal.
Mrs. J. G. Snidal.
Miss Emily Melsted.
Mrs. S. Swainson.
Mrs. Friðrik Swanson.
Mrs. Guðrún Búason.
Mrs. Anderson.
Mrs. ó. Pétursson.
Mrs. Kr. Iugaldson.
Miss K. Sigurgeirsson.
Miss Olavia Thorgeirsson.
Miss S. Axford.
Mrs. Alex Johnson.
Mrs. G. J. Goodmundson.
Er þá tala kvenna í félaginu alls
orðin 45.
Til þæginda fyrir,nokkrar félags-
konur var ákveðið að halda hina
venjulegu mánaðarfundi hinn fyrsta
þriðjudag livers mánaðar; en aðra
fundi þegar þörf gjörðist.
Konurnar eru að búa sig undir,
að selja heimatilbúið brauð og litla
máltíð næsta laugardag, hinn 8.
apríl, í Kensington Block, Cor. Smith
St. og Portage Ave. Allar félagskon-
ur, sem ekki voru á seinasta fundi,
eru beðnar að sjá Mrs. A. C. John-
son, 414 maryland St., sem stjórnar
nefndinni, sem að þe,ssu starfar. —
Konurnar vonast eftir, að margir
komi að sjá þær þarna á laugar-
daginn.
Sérstakur fundur verður haldinn
í félaginu í samkomusal Tjaldbúðar-
kyrkju, Victor St., liinn 11. apríl,
klukkan 8 að kveldi, til að taka á
móti skýrslu nefndarinnar, sem
stendur fyrir sölunni í Kensington
Block, og ákveða, hvernig skuli
verja peningum þeim, sem þar koma
inn. Allar félagskonur eru beðnar
að koma á fundinn.
Bibliufyrirleslur
verður haldinn í 804(4 Sargent Av.
(milli Arlington og Alverstone St.)
fimtudaginn 6 .apríl, kl. 8 síðdegis.
Efni: Sá, sem sigrar, mun erfa alla
hluti. í hverju er sigurinn innifal-
inn?. — Sunnudaginn 9 april, kl
4 e. hád. verður umræðuefnið:' Er
afturhvarf eftir dauðann? Hvernig
og hvenær jirédikaði Jesús fyrir önd
unum í varðhaldi? — Inngangur ó-
keypis. Allir velkomnir.
Davíð Guðbrandsson.
Hvert stefnir?
Samkvæmt beiðni stúkunnar Skuld-
ar flytur Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
fyrirlestur um það efni í Goodtempl-
arahúsinu þriðjudaginn 11. apríl.
Almennar umræður fara fram á eft
ir. —
Ennfremur verður skemt með
hljóðfæraslætti og söng.
Samkoman hefst kl. 8 að kveldinu.
Aðgöngumiðar v rða seldir við
innganginn og kosta 21c
Ágóðinn rennur til Goodtemplara-
hússins.
CANADA’S I'TNEST SlíBURBAN THEATRE
Miðvikudag og fimtudag, 5. og 6. apríl: Jno Barrimore in “The
Dictator”.
Föstudag og laugardag, 7. og 9. apríl: Capt. Jinks and 6th
Complete Story of Graft. — Pathe Weekly.
Mánudag og þriðjudag, 10. og II. apríl: “Amtition”. — Tap-
ið ekki af því.
Ekkjusjóðurinn óþegni.
Ilann ætti að gefast Gamalmenna-
hælinu islenzka i sumargjöf.
Full sex ár eru nú liðin síðan
Heimskringla safnaði sjóði nokkr-
um til þess að styrkja ekkju eina á
íslandi og börn hennar til þess að
komast til Manitoba og setja sig hér
niður. Þetta var gjört samkvæmt
beiðni sjálfrar konunnar. En þegar
800 krónur voru sendar henni af
sjóðnum ti! vesturferðar, neitaði
hún að þiggja gjöfina, — var þá
horfin frá þeirri hugsun að flytja
vestur. Síðan hefir sjóðurinn legið
hér á banka á vöxtum og mun nú
vera um $650.00.
Eg vil nú losast við umsjá þessa
fjár. En vil jafnframt, að það verði
notað í þarfir sannrar mannúðar,
þar sem þess er full þörf, og eg veit
það verður þegið með þakklæti.
Þess vegna gjöri eg það að tillögu
minni, að sjóður þessi sé afhentur
(til styrktar Gamalmennahælinu Betel
á Gimli, sein stofnsett hefir verið til
þess eingöngu, að ala önn fyrir og
annast um íslenzk gamalmenni, sem
fyrir elli sakir og fátæktar ekki fá
sér björg veitta með öðru móti en
því, að þiggja náðargjafir veglyndra
íslendinga.
óskir í þessa átt hafa mér borist
j frá nokkrum gefendum í ekkjusjóð-
inn, bæði hér i Canada og Banda-
ríkjunum. Vil eg þar til nefna meðal
annara herra Þorlák Jónasson og
Svanborgu konu hans í Wynyard i
Saskatchewan, sem söfnuðu þar
vestra í sjóðinn nær $70.00. Þau
hjón telja það áreiðanlegt, að gef-
endum þar í bygð mundi kært, að
Gamalmennahælið fengi að njóta
sjóðsins. Nákvæmlega sama skoðua
kemur fram hjá konu í Norður-Dak-
ota, sem gekst þar fyrir fjársöfnun
í ekkjusjóðinn. Hún segir í bréfi,
dags. 22. febrúar sl.: "Eg hefi þvi
miður ekki getað fundið nema nokk-
ura þeirra, er gáfu í nefndan sjóð,
en það er út sagt, að enginn þeirra,
sem eg hefi fundið, vill afturkalla
gjöf sina; þeim finst það vel til fall-
ið, að láta Gamalmennahælið njóta
þess”.
Mér þætti vel við eiga, að gefa
Gamahnennahælinu sjóð þennan í
sumargjöf á þessu vori, og þess
vegna bið eg hér með alla þá, sem
upphaflega gáfu í ekkjusjóðinn, og
ekki vilja láta þá gjöf ganga til gam-
almennahælisins, að gjöra svo vel,
að láta mig vita það fyrir lok þessa
mánaðar, svo eg geti endursenr'þeim
gjafir þeirra.
Fái eg engar tilkynningar í þessa
átt, þá lít eg svo á, að gefendurnir
séu samþykir þessari ráðstöfun
sjóðsins.
Winnipeg, 3. apríl lýl6.
B. L. Baldwinson,
727 Sherbrooke St.
Fréttabréf.
Markerville, 21. marz 1916.
Heiðraði vin! — Alúðar þakkir
fyrir síðustu linurnar, sem þú send-
ir mér. Engar fréttir hefi eg að
skrifa; hér ske engin undur eða
stórmerki; alt gengur sinn vanaveg,
hægt og rólega, nema þegar veður-
áttan tekur sinnaskiftum, sem hún
hefir oft gjört þennan vetur. Hér
var mikil fannkoma frá 11. til 17..
Eg er oft hálflasinn, þegar veðrið er
mjög tilbreytingasamt; svo var í
þetta sinn. En eg hrestist ósegjan-
lega mikið þann 14., þegar eg frétti
um þann fræga sigur, sem þið Mani-
toba-menn unuð við kosningarnar,
þegar þið rákuð brennivínið burt úr
fylkinu, og vildi eg óska, að það
yrði aldrei grátið úr helju aftur. —
Og í sambandi við það, að eg hrest-
ist varð eg að gjöra mér glaða stund.
En hvað átti það að vera? Láta
hnakk á “Rock”; svo lieitir blesótt-
ur hestur, sem eg á, og hefi eg
marga ánægjustund af honum, þvi
hann er bæði velgengur og fótviss.
Eg er 57 ára gamall; þó segir ná-
grannafólk mitt, að engin ellimörk
sjáist á mér, þegar eg er kominn á
bak þeim blesótta, og það mun vera
sönnu næst. — Síðan eg var ung-
lingur 'hefir mér ævinlega þótt gam-
an að hafa yfir eitthvað af alþýðu-
vísunum íslenzku, þegar eg var kom-
inn á hestbak, og í þetta sinn breytti
eg ekki út af vananum. Þá varð fyr-
ir ein af fallegu vísunum eftir Þor-
stein heitinn Erlingsson, sem hljóð-
ar svona:
Á um njólu aldinn mar
lit hjá póli gaman;
árdags sól og aftan þar
eiga stóla saman.
Og í sambandi við vísuna hvarflaði
hugur minn norður á reginleiðir,
þar sem Goðafoss og Gullfoss eru að
svamla. En höfum við Vestur-íslend-
ingar borgað hlutakaupin okkar í
Eimskipafélagi íslands að öllu leyti?
Ekki hefi eg scð þess getið í blöð-
unum; hygg að það megi ekki drag-
ast mikið lengur, ef við eigum að
geta varist vansæmd gagnvart heima
þjóðinni. Eg þekti mann heima á ís
landi, sem hafði þetta fyrir orðtæki,
þegar kunningjar hans gjörðu hon-
um heimsókn: “Er það nú alveg
víst, að eg eigi ekki brennivín?” Og
í þetta sinn datt mér í hug eitthvað
á þessa leið: Er það nú alveg víst,
að eg geti ekki náð saman fáeinum
dölum og sent austur? Það er oft
rneira af úrræðaleysi en getuleysi,
að maður framkvæmir ekki þetta
eða hitt, scm maður þyrfti að gjöra.
Eg legg 40 dali og 50 cents með
þessum miða; þeir eiga að borga 6
hluti í Eimskipafélagi íslands. Og
enn læt eg ekki þann synjandi frá
mér fara, sem reyndi að selja hluti
hér í bygðinni. Mér er það eindreg-
ið áhugamál, að þessi skuld verði
afplánuð við félagið. Það er ekki
verið að gefa íslenzku þjóðinni fé
þetta; hún er ekki gjafaþurfi, sem
betur fer.
Þinn einlægur,
Jón Sveinsson. ..
Til Sölu
ágætt hús í vesturbænum. Framstofa,
borðstofa, eldhús og skrifstofa niðri,
— 4 svefnherbergi, sumarherbergi
og baðrúm uppi. Efni og smiði alt
vandað (hard wood og lincrust fin-
ishing niðri; bezta finishing og bur-
lap uppi). Allir söluskilmálar eins
sanngjarnir og hugsast getur. Hkr.
vísar á.
SYRPA
1. hefti, 4. ár.
Er nú fullprentað. — INÍíIHALl)
Jiessa lieftis er: —
Kofinn á Fellstindi. Saga eftir J.
Magnús Bjarnason.
Merkustu minnismerki heimsins.
Magnhildur. Saga eftir Björnstjerne
Björnson. Niðurlag.
Islenzkar þjóðsagnir: Hlaupa-Mangi,
eftir F. Hjálmarsson. Saga Ólafs
hins Vestfirska, eftir S. M. Long.
Rithöfundurinn, sem gætti ekki hófs
eftir Maxim Gorki (úr tímarit-
inu Kringsjaa).
Dansmær, sem varð drotning. (Hall-
arrústirnar við Marmara-hafið,
frá dögum Jústiníusar keisara og
Theódóru drotningar).
Fregn úr andanna heimi.
Til Suðurheimskautsins. Ferðasaga
Scotts kapteins.
Norðmaðurinn Andrew Furnseth.
Konan í Florenz. Saga.
Þáttur úr sögu Bayards riddara.
Til Minnis: —
Konur geta lært að elska, cn
karlmennirnir ekki.— Sævarins
rauðu gimsteinar. — Lítilsverð
ei óvin þinn — Gjörð skygn. —
ITringurinn, sem orsakaði dauða
Elízabetar drotningar. — Vitinn
á St. Agnes-eyjunni. —- Forn
mannvirki. — Hvað felst í
kossi? — “Ach du lieber Aug-
ustin”. — Síbería. — Mesti
skíðamaður heimsins. — Dýr
koss. — “Berðu með þér þinn
eigin björgunarbát”. — Páfa-
blessan. — Járnpeningar. —
Smátt nautgripakyn.
Árgangurinn. 4 hefti, $1.00. í lausa-
sölu, heftið 30 cents.
ÓLAFUR S. THORGEIBSSON
678 Sherbiooke St., Winnipeg, Can.
Framtíðarhugmyndir Edisons
um styrjaldir.
Hinn heimsfrægi hugvitssnilling-
ur lyftir eigi upp neinni glæsiblæju
af hugmyndum sínum um styrjaldir
framtiðarinnar. í viðtali við blaða-
mann sagði hann nlcga meðal ann-
ars þetta:
I styrjöldum framtíðarinnar munu
mikið notaðar sprengingar, sem
geta með eitruðum gastegundum .
einni svipan eytt heilum herjum,
eða ef til vill heilum þjóðum. Frá
verklegu (praktisku) sjónarmiði er
ekkert til fyrirstöðu því, að láta
drepandi eiturstrauma fljóta um
stóreflis landflæmi og drepa alt
kvikt, menn og dýr. Rafmagn mun
og notað að miklum mun meira en
nú tíðkast, — t. d. mun “hleypt af”
öllum byssum “þráðlaust”. — Eigi
mundi það koma mér á óvart, þótt
herskipum yrði gjörbreytt og gjörð
á þann hátt, að eigi gætu sokkið,
þótt fyrir tundurskotum verði”.
Edison gaf i skyn, að hann mundi
geta komið fram með morðtæki, er
væru miklu geigvænlegri en gas-
eitur-sprengikúlur; en að sér hafi
jafnan verið það óbærilega hvim-
leitt, að brjóta heilann ipn það,
hvernig hægt sé að myrða menn.
“Öll starfsemi mín hefir að því mið-
að, að bæta kjör manna; en hvað
eg kynni að gjöra, ef Bandaríkin
lentu nú í ófriði — til þess að vinna
að sigri þeirra —, það skal eg ekki
segja.
Nýlega hefir verið skipuð nefnd
í Bandarikjunum til að hugsa um við
búnað undir ófrið, ef til kæmi. í
þeirri nefnd er Edison. —(ísafold).
Loftfirðatalskeiti til Vesturheims.
Norskur verkfræðingur, Frost að
nafni, kveðst hafa uppgötvað loft-
firðatalstæki nýtt og hefir hann á-
samt Marconi sjálfum fengið einka-
leyfi til starfrækslu þess. Það er
með þeim hætti að tala má saman
“út í loftið” i hvaða fjarlægð sem
er.
Verkfræðingurinn segir, að ef
þetta nýstárlega tæki njóti sin, eins
og vonir megi gera sér um, verði
lafhægt að tala milli t. d. Bretlands
og Vesturhcims.
Það líður cf til vill eigi svo lang-
ur tími þangað til vér lslendingar
getum farið að “masa” við Winnipeg
Islendinga gegnum loftiðl
—(fsafold).
Birkinesið.
TIL SÖLU land á vesturströnd
Winnipcgvatns, rétt fyrir norðan
Gimli (Birkinesið); (4 mílu sund-
fjara; Ijómandi fallegt fyrir sumar-
bústaði. Upplýsingar fást hjá Gísla
Sveinsson eða Stephen Thorson,
Gimli, og hjá Joseph T. Thorson, c.o.
Campbell and Pitblado, Winnipeg.