Heimskringla - 09.08.1917, Side 4
4. BLAÐftfÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEO, 9. AGÚST 1917 -
HEIMSKRINGLA
(lto(u< 1S8*»
Ktraur ðt 1 krarjn Flmtuduel.
Útntiniar og •teendnr:
THE VIKING PRESS, LTD.
VertS blatíslns í Canada og Bandaríkj-
unum $2.00 um áritS (fyrirfram borga®).
Sent til íslands $2.00 (fyrirfram borgati).
Allar borganir sendist rát5smanni blatSs-
lns. Póst etSa banka ávísanir stílist til
The Viking Press, Ltd.
O. T. Johnson, ritstjóri
S. D. B. Stephanson, ráðsmaður
Skrlfstofa:
m IHIRBROOKB STRHRT, WIBtSÍIPHO.
P.O. Bii 8171 Tililnl Garry 411*
WINNIPEG, MANITOBA, 9. ÁGÚST 1917
Islendingadagurinn.
Veður útlit var ekki glæsilegt Islendinga-
dagsmorguninn. Himininn var þakinn bik-
svörtum skýjaflókum, sem stundum byrgðu
fyrir sólina. Og þegar þannig dimdi í lofti,
ríkti sama myrkrið í hugskoti flestra Islend-
inga hér í Winnipeg—því nú var íslendinga-
dagur! Allir blésu þó að neistum vonarinn-
ar í brjóstum sínum og klæddu sig í spari-
fötin, staðráðnir í að fara út í sýningargarð-
inn, hvað sem á dyndi. Þegar meira á dag-
inn leið, tók ögn að birta yfir veðrinu. Ský-
in tóku þá smátt og smátt að þynnast og eyð-
ast. Sólin hlaut yfirráðin, björt og fögur,
og við ljósmagn hennar fékk Islendingadags-
fögnuðurinn byr undir báða vængi.
Veður varð því hið ákjósanlegasta
þenna dag, eftir alt saman. Dálítil regnskúr
féll úr lofti eftir hádegið, rétt áður en að
ræðuhöldin byrjuðu, en ekki varð þetta til
skaða. Mun því óhætt að fullyrða, að yfir-
leitt muni fólk hafa skemt sér vel og að há-
tíðarhald þetta hafi hepnast eftir öllum von-
um. Enda má með sanni segja, að eins vel
hafi verið til Islendingadagsins vandað hér í
Winnipeg þetta ár eins og mögulegt var að
búast við.
Eins og við var að búast sótti hátíðina
í þetta sinn að mun færra fólk en oft áður.
Þegar alt er tekið til greina, er þó ekki hægt
að segja, að margir Islendingar hafi nú dreg-
ið sig í hlé, því fjöldi af fólki sótti hátíðina
úr bænum og margir úr nærliggjandi hér-
uðum.
Á öðrum stað í blaðinu eru birt nöfn
þeirra, sem verðlaun unnu. Kapphlaupin
hófust kl- 10 um morguninn og stóðu yfir
fram að hádegi. Eftir hádegið fóru fram
fleiri kapphlaup, ýms stökk voru þreytt o.s.
frv. Knattleik þreyttu ungar stúlkur frá
Winnipeg og Lundar og báru Winnipeg-
stúlkurnar sigur úr býtum. Kaðaltog fór
fram milli Winnipeg manna og utanbæjar
manna og sigruðu þeir síðarnefndu.
Að öllu þessu var hin bezta skemtun. Is-
lendingar eru engir eftirbátar annara þjóða
í því að kunna að meta gildi Iíkamlegra í-
þrótta. En flestum mun þó hafa fundist
skarð vera fyrir skildi í þetta sinn sökum
fjarveru þeirra manna, sem bezt munu
kunna hér til allra íþrótta, íslenzku hermann-
anna. Glímurnar fengust t.d. að eins tveir
menn til að reyna, og glímdu þeir meira af
kröftum en fimleika. Allir beztu glímumenn
Vestur-Islendinga munu nú vera í hernum á
Englandi og Frakklandi.
Ekki má gleyma sokka-samkepninni! Um
40 íslenzkar konur höfðu sent sokka á há-
tíð þessa, sem allir voru prjónaðir af list
þeirri, er íslenzkum prjónakonum er eigin-
leg. Vissulega var hér vandi úr að velja, en
eftir mikla og langa umhugsun kom þó dóm-
nefndinni saman um hvernig úthluta skyldi
verðlaununum. Þau þrjú sokkapör, sem
verðlaun hlutu, voru svo seld á uppboði
seinna um daginn, er ræðuhöldunum var lok-
ið, og var Dr. B. J. Brandsson, forseti dags-
ins, uppboðshaldarinn. Sýndi hann ljóslega
við þetta tækifæri, að hann er engu síður
málsnjall uppboðshaldari en ágætur Iæknir
—og gott lag hefir hann einnig á því, að
gera báða þessa atvinnuvegi arðvænlega!
Sokkana, sem þriðju verðlaun fengu, bauð
hann upp fyrst, og keypti Árni Anderson þá
fyrir rúmlega $5.00. Næst bauð hann upp
sokkana, sem önnur verðlaun hlutu, og varð
Thorsteinn Borgfjörð svo lánsamur að fá þá
—fyrir $6.00. Sokkarnir, sem fyrstu verð-
hreptu, voru boðnir upp seinast. Rak þá
hvert boðið annað, því kepni mkiil var í
mönnum að geta eignast þessa ágætu sokka,
—og ekki leið á löngu, áður sá sannleikur
varð mönnum augljós, að sokkar þessir
myndu ekki prýða fætur annara en miljóna-
mæringa eða stórríkra manna. Eftir mikið
þjark urðu svo úrsltin þau, að A. S. Bardal
varð hlutskarpastur og hrepti sokkana fyrir
$40.00 Enginn veit enn þá með neinni á-
reiðanlegri vissu við hvaða hátíðlegt tæki-
færi A. S. Bardal og hinir hafa í hyggju að
setja upp þessa afardýru sokka, en ekki
munu þeir þó telja fé þessu illa varið, því
það á að ganga í hermannasjóðinn og til
Jóns Sigurðssonar félagsins.
KI. 3 ftir hádegi byrjuðu ræðuhöldin. 1
fjærveru forseta dagsins setti Thorsteinn
Borgfjörð, varaforseti Islendingadagsnefnd-
arinnar, samkomuna og stýrði henni þangað
til Dr. B. J,. Brandson kom. Fyrstu ræðuna,
fyrir minni Bretaveldis, flutti Jóhann G. Jó-
hannsson prófessor- Sagðist honum mjög
vel, en naut sín þó ekki að hálfu leyti sök-
um skarkala og hávaða, bæði frá áheyr-
endunum og þó aðallega frá þeim, sem
voru að horfa á stökkin, er áttu sér stað
þarna skamt frá ræðupallinum. Var leitt
mjög, að þessu var hagað þannig. Stökk og
aðrar íþróttir ættu ekki að fara fram svo
nærri ræðupalli á meðan ræðuhöld standa
þar yfir. Slíkt ætti ekki oftar að ske á
neinum Islendingadegi. Til þess eru vond
dæmi að varast þau.
Fyrir minni Islands talaði séra Jónas A.
Sigurðsson og sjaldan munu Vestur-lslend-
ingar hafa heyrt Islendingadagsræðu flutta
af meiri mælsku. Var þetta eldheit hvöt til
Vestur-Islendinga að minnast Islands og
að elska Island. Þessi ræða vottaði sterka
og frumlega hugsun og lýsti mikilli þekkingu
á sögu íslenzkrar þjóðar og íslenzkum bók-
mentum. Ræðumaður mun hafa dvalið hér
í landi um fjórðung aldar, en svo ríkur er
hann þó af föðurlandsást, að hann setur
allar helgustu hugsjónir sínar í samband við
ættjörðina. — Slík ást þeirra, sem að heim-
an koma, mun reynast það afl, er mest glæð-
ir og vekur rækt hinnar yngri íslenzku kyn-
slóðar hér í landi til Islands og alls, sem ís-
lenzkt er. Ekki hafði séra Jónas ræðu þessa
skrifaða og gat því ekki orðið við þeim til-
mælum vorum að lofa oss að birta hana í
blaðinu í þetta sinn.
Á eftir ræðu þessari flutti Einar Páll Jóns-
son kvæði fyrir minni Islands, sem birt er
á öðrum stað í blaðinu.
Næsti ræðumaður var séra Björn B. Jóns-
son og talaði hann fyrir minni íslenzkra her-
manna og á eftir honum flutti Dr- Sig. Júl.
Jóhannesson kvæði fyrir sama minni. Ræða
séra Björns var flutt af eldheitum mælsku-
krafti og efumst vér um, að nokkur Vestur-
Islendingur hefði getað flutt þetta minni
betur. Ekkert minni hefði átt að vera
íslendingum kærara en þetta, ekkert minni
var tímabærara að flytja. Nýtt tímabil er
hér að hefjast í sögu íslenzkrar þjóðar—hér
eftir mega Vestur-lslendingar aldrei gleyma
að minnast íslenzku hermannanna á þjóðhá-
tíðum sínum, mannanna, sem nú berjast við
hættur dauðans á orustuvöllum Frakklands
og sem boðið hafa sig fram sjálfviljuglega í
þá blóðugu styrjöld, sem nú er háð fyrir
sönnum mannréttindum og göfugustu frelsis-
hugsjónum mannkynsins. — Ekki hafði séra
Björn ræðu sína skrifaða, en hefir góðfús-
lega skrifað hana upp síðan og gefið oss
hana fyrir blaðið og kunnum vér honum
stórar þakkir fyrir.
Fyrir minni Canada talaði Miss Jórunn
Hinriksson, Iögnemi, og sagðist henni mjög
vel. Fáir munu finna ræðu hennar það til
foráttu, að hún hafi frekar verið minni
kvenna en Canada. Svo lengi hafa karl-
mennirnir þulið sín eigin minni, að fyllilega
er tími til þess kominn, að kvenþjóðin hafi
orðið. Miss Hinriksson var íslenzkri kven-
þjóð hér í landi til stórsóma við þetta tæki-
færi. — Síðustu ræðu dagsins flutti Svein-
björn Johnson, lögmaður frá Dakota, og var
hún fyrir minni Vestur-Islendinga. Ræða sú
er nú birt í blaðinu, ásamt ræðu séra Björns.
Vafalaust hefir hlotið að **birta yfir von-
um þeirra manna, sem vondaufir eru á við-
hald íslenzkunnar hér í landi, við að heyra
ræðu þessa unga lögmanns, sem alla sína
mentun hefir fengið á hérlendum skólum, en
talar þó svo góða fslenzku. Einnig lýsti
ræða hans ítarlegri þekkingu á högum ís-
lenzkar þjóðar að fornu og nýju og glöggum
og þroskuðum skilningi á réttri afstöðu
hennar hér í landi.
Að endingu flutti séra Jónas A- Sigurðs-
son frumort kvæði eftir sig og var gerður að
því hinn bezti rómur.
Yfir heila tekið má segja, að Islendinga-
dagshátíð þessi hafi hepnast vel í alla staði
og verið pllum meira og minna til gleði, er
hana sóttu.
Stór Iúðraflokkur héðan úr bænum spil-
aði um daginn. Jóns Sigurðssonar félagið
stóð fyrir veitingum og á þökk allra skilið
fyrir góða frammistöðu.
Við austurgluggann
Eltir síra F. J. Bergmann.
24.
Frakkland og styrjöldin.
Auk smáþjóðanna Serbíu og Belgíu er
ekkert af þjóðum þeim, sem við stríðið eru
riðnar, sem eins hafa áunnið sér samúð
heimsins síðan stríðið hófst, eins og Frakk-
land. Ekki er laust við, að Frakkar hafi
verið fremur ölnbogabörn í Norðurálfu síð-
an þeir biðu tjónið mikla í ófriðinum 1870.
Og mest mun það hafa verið á því bygt, að
Frakkar nú á dögum væri orðnir ættlerar.
Afturför væri í þjóðina komin og hún myndi
ekki eiga viðreisnar von.
Ekki er jafnvel örgrant um, að þjóðinni
sjálfri fyndist þetta. Vonleysi feikna mikið
greip hana eftir þann voðalega ósigur.
Margir álíta, að vonleysi þetta sé nú helzta
orsök þess, að mannfjölgun hefir verið svo
lítil með þjóðinni. En það atriði hefir aft-
ur gert vonleysið enn sárara.
En er stríðið brauzt út, sannaðist það, að
Frakkland átti marga vini. Eg fæ ekki bet-
ur skilið, en að það eigi í rauninni fleiri
vini nú í raunum sínum en nokkurt annað
land í Norðurálfu. Það var öndvegisland-
ið, sem allir litu upp til. Það er land stjórn-
arbyltingarinnar miklu, sem var ljósmóðir
allra frelsishreyfinga í stjórnmálum í Norð-
urálfu.
Frakkland er og hefir verið aðal-ból lista,
smekkvísi, fegurðarkendrar ljósrar hugs-
unar og frelishugmynda. Það hefir verið á
það bent nú í þessu stríði, að hvergi sé lýð-
valdshugmyndirnar eins langt á leið komn-
ar og hvergi sé þeim beitt jafn-ótrauðlega
og á Frakklandi.
Þjóðin frakkneska er flestum þjóðum
öðrum betur gefin. Hún hefir eignast hvern
snillinginn á fætur öðrum. N'öfn sumra
þeirra eru til vor komin, sem búum við
hinztu höf. Allir bókfróðir lslendingar
kannast við nöfn eins og Moliére, Victor
Hugo, Emile Zola í hópi skáldanna, Thiers,
Guizot og Gambetta, Renan, Pasteaur,
Taine og ótal fleiri.
Þegar stríðið hófst, var Frakka að frem-
ur fáu getið í fjarlægum löndum. Heim-
spekin nýja, sem kend er við þá Bergson og
Bouttroux, var það sem menn fundu helzt
að Frakkland væri að auðga heiminn með.
En Frakkland hefir stöðugt verið að auðga
heiminn. Og heimurinn—þessi gálausi og
glatvísi heimur—finnur þó ávalt til þess
öðrum þræði, í hve mikilli feikna skuld
hann er við Frakkland.
Eg man 1870—71, þegar þýzk-franska
stríðið stóð yfir. Eg var þá unglingur úti
á Islandi og stóð með orf og ljá niðri á
engjum, er karlmennirnir fullorðnu voru
að tala um stríðið og þá atburði, sem voru
að gerast. Eg held það hafi verið eitt það
fyrsta af almennum viðburðum, sem k'omu
við hjarta mitt. Eg stóð oft með grátkökk
í kverkum.
Allir töldu sjálfsagt í fyrstu, að Frakkar
mundu vinna. Hernaðarljóminn stóð af
þeim síðan í Napóleons styrjöldunum. Þess
var líka óskað af heilum hug. Samúðin var
öll þeirra megin. Þjóðverja þektu menn
lítið. Mjög fáa heyrði eg hafa svo sem
neitt gott um þá að segja. Bismarck var á-
litinn ógurlega slingur bragðarefur og vond-
ur maður.
Flestar munu þessar hugmyndir hafa
runnið til Islands frá Dönum. Þeir voru
um þessar mundir miklir Frakklands-dýrk-
ur, en hötuðu Þýzkaland heilu hatri fyrir
rán hertogadæmanna, sem þeim var sann-
arlega nokkur vorkunn.
Nú var öllu þessu farið á annan veg. Nú
var aumingja Frakkland í skugganum, eins
og eitthvert óhamingjubarn. Aftur hafði
Þýzkaland rifið sig upp í sólskinið. Það
hafði gerst kennari heimsins. Hundruðum
saman ungra manna úr öllum hinum stærri
löndum höfðu setið við fætur háskólakenn-
aranna þýzku, sem báru ægishjálm yfir alt
í heimi vísinda og þekkingar. Nú fanst
þeim öllum þeir hafa þau undur og skelfing
Þýzkalandi að þakka. Var það eigi sjálf-
sagt, að vótta þeim samúð sína og fararheill,
er þeir héldu út á þessa Heljarslóð?
Fleira bættist líka við. Þýzkir höfundar
höfðu kynt sér hvern krók og kima heims-
ins. Þeir höfðu aflað sér svo fullkominnar
þekkingar á hverri smáþjóð, sögu hennar,
bókmentum og tungu, að þeir kunnu betur
að telja þetta alt á fingrum sér, heldur en
þjóðirnar sjálfar.
Svo var það þar, sem við fslendingar
áttum hlut að máli. Engin erlend þjóð hef-
ir gert sér önnur eins ómök með að kynnast
Islandi og öllu því, er stendur í saYnbandi
við Island, eins og Þjóðverjar. Um hagi
vora og allar ástæður kunnu þeir að dæma
af mikilli og af nákvæmri þekkingu, og um
leið af hinni mestu samúð, sem laus var við
alt yfirlæti, er gefur í skyn, að það sé nú
annars af mestu náð, að svo lágt er litið.
Þjóðverjar hafa til þess stuðlað, að landið
okkar litla og bókmentirnar yrði heiminum
kunnar, betur en nokkur önnur þjóð. Ætt-
um við ekki að láta þá njóta þess nú, er svo
að segja allur heimur hefir fylkt sér á móti
þeim? Svo hugsar sjálfsagt heill hópur
manna á ættjörðu vorri.
Fleira kemur til greina. Þjóðverjar voru
farnir að hafa, áður en stríðið hófst, heil-
mikil verzlunarmök við Island. Og þýzka
verzlanin hafði yfirleitt gengið vel. Hún
hafði lag a, að hafa vörur á boðstólum, sem
voru við hæfi kaupenda, og bættu úr þörf-
um þeirra. Sem kaupmenn, höfðu Þjóð-
verjar kynt sig vel á fslandi, eins og víða
annars staðar. Það var ekki nema eðlilegt,
að þeir væri látnir njóta þess.
En svo kom stríðið, eins og
eldgos á þeirri stundu, er minst
varði. Herinn þýzki óð inn í
Belgíu. Sú litla þjóð veitti alt
það viðnám, sem henni var unt
og varð fyrir að sæta þeim afar-
kostum í öllu, að ekki eru dæmi
til í nýrri tíð að minsta kosti.
Hryðju og grimdarverk fóru þeg-
ar í fyrstu fram úr öllu, er áður
hafði heyrst. Þau áttu að sýna,
að slíkum smámennum var ekki
hent að leika sér við jötuninn
þýzka. Samúðin með Þjóðverj-
um tók víðast hvar að dvína.
Brátt var herinn þýzki kominn
langar leiðir inn á Frakkland.
Ekki voru nema fáar mílur að
heita mátti eftir til Parísar. Skot-
hríðin heyrðist til borgaiinnar.
Allir stóðu á öndinni.
Þá tók mönnum fyrir alvöru
að skiljast hvað uppi var á baugi.
Það var hvorki meira né minna
en það, að nú átti að stíga Frakk-
landi svo á háls, að það gæti
aldrei framar orðið annað en
undirlægja. Það átti að svifta
hana sjálfstæði og sjálfsvirðing,
svo aldrei þyrfti framar að taka
hana til greina, þegar um heims-
völdin Væri að ræða.
Fyrst er Frakklandi hefði ver-
ið stigið á háls og því gengið
milli bols og höfuðs, var unt að
gera Englandi reikningsskil. Þá
mátti jafna gamlar væringar við
hræsnarana ensku. Þeir væri ætt-
lerar engu betri en Frakkar og
ætti ekki skilið alt þetta pláz í
sólinni, sem þeir hefði hrifsað til
sín. Þá væri Þjóðverjar búnir
að ná takmarki sínu. Þá réðu
þeir lögum og lofum í heiminum
og hefði ærið nóg pláz í sólunni.
En var þetta heimsmenning-
unni ávinningur eða tjón? Var
það ekki óbærilegt tjón, ef önn-
ur eins þjóð og Frakkar hyrfi úr
sögu? Var eigi heimsmenning-
unni með því slegið það holund-
arsár og mergundar, er seint
myndi bætast? Var unt að
hugsa um sögu Norðurálfu, án
Frakklands, þegar búið væri að
slökkva á ljósastikunni frakk-
nesku og stinga undir stól?
Einhver hollvættur greip um
hina myrku hönd viðburðanna
og barg. Hersveitirnar þýzku
urðu að hörfa aftur við Marne.
Það varð ekki af því, að keisar-
inn æti jólna-dögurð í Parísar-
borg 1914. Hann etur fyr jólna-
dögurð í Hadesarheimum, en
hann fái snortið eitt hár á höfði
Parísarborgar.
Heimurinn dró andann léttara.
Síðan hafa Frakkar verið sú
þjóðin, sem hlýhugur heimsins
hefir vafist þéttara og þéttara ut-
an um. Frakkland lifir. Frakk-
land er kraftaverkanna land.
Á Frakklandi hefir höndin
hulda og dularfulla, sem heldur
um stjórnvöl sögunnar, birzt með
dýrlegum hætti, og frelsað hina
frakknesku þjóð,—dýrlegri hætti
en endrarnær, er um svipaða við-
burði er að ræða.
Samúð heimsins, sem öll var
með Þýzkalandi áður stríðið
hófst, hefir snúist frá því og til
Frakklands og samherjaþjóð-
anna. Og samúð heimsins svo
að segja alls í slíkri styrjöld ræð-
ur úrslitum. Sál mannkynsins
ræður. Sá málstaður er dæmd-
ur, er samúð heimsins snýst á
móti. Innsiglið á samúðarleysið,
er atfarir Þýzkalands urðu fyrir,
var sett, er Lusitaniu var sökt.
Það hefir aukist og margfaldast
við hvert hermdarverk, er kaf-
bátarnir hafa unnið.
Smám saman er verið að frelsa
Frakkland. Fleiri og fleiri borg-
ir og bæir losna úr greipum óvin-
anna.
Það hefir verið lagt til, að hver
borg á Frakklandi, sem lent hefir
í hershöndum, fengi aðra systur-
borg annað hvort hér í álfu eða
annarsstaðar, til þess að styðja
hana á fætur aftur, endurreisa,
afmá eyðilegginguna, græða sár-
in. Vonandi verður það meira
en tillaga. Og vonandi rís Frakk-
land og frakknesk þjóð upp end-
urfætt, nýskapað, þegar er frið-
ardagurinn rennur og sól réttlæt-
isins fer aftur að skína hér ofan
á þessa aumingja jörð, sem öll
flakir í sárum.
25.
Ludendorff væntanlegur
alræðismaður.
Mikils er um það vert, að skilja
sern bezt það, sem fram fer á
Þýzkalandi um þessar mundir og
daema uim það frá líku sjónarmiði
og þýzka þjóðin sjálf.
Blöð Þjóðverjai í Bandarfkjunum
standa betur að vfgi imeð að dæma
um viðburðina frá sjónarmiði
þýzkrar þjóðar heima fyrir, en
nokkur önnur blöð hér í landi.
Enda eru mörg þeirra fyrirtaks góð
blöð frá öllu sjónarmiði, og rit-
stjóraæ þeirra prýðilega mentaðir'
menn, sem gagnkunnugir eru &■
Þýzkaiandi og hafa margföld tæki-
færi til að standa í sambandi við
málsmetandi tmenn á ættjörðu
sinni.
Eftir símskeytum að dæma frá
Amsterdaim, bendir miaægt til þess,
að kanzlarinn nýi á Þýzklaandi,
Dr. Michaelis eigi að verða kanzlarí
ríkisins ifremur í orði en á borði. I
raun og veru geti á sama staðið-
um, hver sé kallaður þessu nafni,
eins og ástendur. Tilgangurinn sé
að gera Ludendorff herforingja,-
sem er önnur liönd Hindenburgs,
að eiginlegum stjórnanda ríkisins.
1 sambandi við þetta er fróðlegt
að sjá, hvað þýzkt blað í New
York, er New York Volks-Zeitung
nefnist, hefir um þetta að segja.
Ristjóri þess heitir Ludvig Lore,
og þykir hinn merkasti maður.
Stendur hann flestum öðrum bet-
ur að vígi með að dæma rétt ffln
gang viðburðanna á ættjörðu.
sinni:
“Það bar heldur en ekki skyndi-
lega við, að Bethmann Hollweg
segði kaínzlara embættinu af sér_
og að svo miklu leyti sem eg get
látið mér skiljast, hefir keisarinn.
skipað Michaelis að eins til að
hafa einhvern í embættinu, unz
hann gæti valið þann roann, er
vera skyldi reglulegur kanzlari. Af
þeirri ástæðu held eg réttast sé, að
leggja ekki of mikla áherzlu á
það, sem Michaelis kainn að segja
eða halda fram.
“Eg er hræddur um, að það sé
alt fremur léttvægt. Annar mað-
ur kemur bráðum í hans stalð.
Með tilliti til þess, hver Michaeliis
eiginlega er, verð eg að játa, að
það er imeira en eg veit. Hið eina,
sem eg veit um hann, er, að hann
hefir lengi embættismaður verið
og er afturhaldsmaður. Hverju
hann að öðru leyti kann að halda-
fram, er mér ókunnugt um.
“Að mínu viti er hann ofur mik-
ill lóttingur. Af því verður maður
að ráða, að tilgangurinn hafi ekki
verið að skipa slíkum manni í em-
bættið til langframia.”
Þetta álit komur saman við það,
sem heyrist úr öðruim áttum og
virðist stefna í þá átt, að frávikn-
ing Bethmann-Hollwegs úr em-
bætti sé í raun og veru vottur
þess, að hefja eigi nýtt alræðis-
manns veldi á Þýzkalandi, svo að
alt fullvald annað, sem nöfnum
tjáir að nefna, verði látið lúta her-
valdinu. Þá verður byssustyngj-
um otað gegn öllum lýðvaldskröf-
um. Krónprinzinn og hinir blóð-
þyrstu félagar hans hafa þá alt f
hendi sér. Um stund,—en að eins
um stundarsakir!
Verði Ludendorff gerður alræð-
ismaður á Þýzkaiandi, munu allar
lindir landsins verða þurausnar
með það mikla markmið fyrir aug
um, að bera sigur úr býtum her-
valdinu til handa. Þessu mark-
miði hafa öll einka-áhugamál þeg-
ar orðið að lúta; það hefir vissu-
lega reynt á þolrifin. En eftir þetta.
verður fórnin margfalt stærri.
Þýzku þjóðinni verður gerð blóð-
taka, meðan nokkur blóðdropi er
eftir.
Vel má það vera, að enn sé unt
að fylgja fram annarri eins stefnu-
Skrá og þetta á Þýzkalandi. Þeg-
ar einhver einu sinni er orðinn
blindur, sér hann ekki. En skil-
yrði þess, að þjóðin þoli þetta alt,
er það, að hún iframvegis haldi sér
dauðahaldi í vonina um þýzkati
sigur. Reynt er af alefli að troð*
þjóðina fulia alls konar lygum.
Hingað til hefir hepnast að dyija
hana þess, sem á sér stað í raun
og veru.
Ef unt væri að gera sér í hugar-
lund, að enn þá stærri blóðtaka.
myndi að lokulm láta Þýzkaland
bera sigur úr býtum, væri þjóðin
hólpin og hervaidið hefði fengið
nýja framlengingu lífdaga sinna.
En jafnvel á Þýzkaiandi er nú
með hugsandi og hieypidómalaus-
um mönnum sú trú næsta veik orð-
in, að stríð þetta muni verða til
iykta leitt með þýzkum sigri.
Jafnvel sumir hinna hervaids sinn-
uðu háskólakennara, sem í byrjun
stríðsins gengu berserksgang fyrir
lávarð sinn og keisara og allis ekkí
viidu kannast við, að ensku-mæl-
andi kristnum mönmim myndi
innganga veitt í himnaríki, eru
orðnir býsna daufir í dálkinn yfir
ástandinu og láta f ljós, að það líti
nokkuð vonleysislega út.
Þegar sú stund rennur upp, að
þýzk þjóð þykist hafa gengið úr
skugga um, að hervalds hatrðstjór-
arnir hafi dregið hana á tálar,— á
þeirri stundu, er máttur herliðs-
ins tekur að ganga til þurðar — á
þeirri stundu fer fóikið aftur að
sjá og skilja. Og þá er hætt við,
að ægilegir viðburðir kunni að
vera í vændum. Lfkindi eru til.