Heimskringla - 20.12.1917, Qupperneq 1
Royal Optícal Co.
Elzta Opticiam l Wtnuipcg. Vii
héfuxn reyn&t vinum þlnum vel, —
gefðu okkur Uekifært tll aC regu•
aat þér vel. StofuseU 1905.
W. R. l'owler, OpL
XXXII. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, 20. DESEMBER 1917
NOMER 13
UNION STJORNIN VINNUR FRÆQAN
Styrjöldin
Frá Frakklandi.
£n.gir »tór viðburðir gerðust á
vestur-vígstöðvunum síðustu viku.
ijmá orustur áttu sér stað hér og
þar, sem l»ó ekki virðast hafa borið
mikinn árangur fyrir hvoruga hlið-
ina. í lok vikunnar gerðu Þjóðverj-
ar tvö áhlaup fyrir norðan Ohemin
Des Darnies, en Frakkar vörðust
knálega að vanda og urðu óvinirn-
ir þvf frá að hrökkva við svo búið.
Fyrir austans Bullecourt gerðu her-
sveitir Breta áihlaup um miðja vik-
una og fengu hrakið Þjóðverja Mb
ið eitt þar á allstóru svseði
Þýzku blöðin eru himin lifandi
«f fögnuði yfir væntanlegum friði
við Rússa og segja, að úr þessu
ætti Jiess ekki lengi þurfa að biða,
að Hindenburg hinm mikli fái
koilvarpað bandajijóðunum á vest-
ursvæðunum. “Stund réttlætisins
«r í nánd,” segir eitt blaðið, “og
áður langt líður munu Þjóðverjar
vinna sér með vopnum fult jafn-
<ræð við Breta um heim allan.”
En mestri furðu gegnir það, að
Þjóðverjar skuli nú gera sig á-
mægða með væntanlegt “jafnræði”
og ifæstum mun dyljast að nú sé
komið anniað hljóð í strokkinn en
áður var.
Frá Italíu.
Norðanvert á ítalíu hefir gengið
við þetta sama. Þjóðverjar og
Austurrikismenn sækja uppihalds-
laust á vígi ítala í fjölJunum, en
vinst lítið á. “Caprille” fjaliavígin
fengu þeir þó tekið á sitt vald eftir
langa sókn og stranga, en ógurlegt
mannfall varð í liði þeirra við þetta
tækifæri. Á miilli Brenta og Piave
ánna hefir verið barist af harðfengi
miklu á báðar hliðar og hér og þar
hafa óvinirnir getað unnið smá-
sigra. Herdeildirniar ensku og
frönsku, sem sendar voru ítölum til
hjálpar eru nú teknar að berjast
með þeim og hafa stónbyssur þær
og annar útbúnaður er þær fluttu
með ser, þegar komið að góðu liði.
Frá Rússum.
Mörgum skipum sökt.
Á mánudaginn fréttist, að her-
skip Þjóðverja hefðu nýlega sökt
11 skipum í Norðursjó Voru fimm
af skipum Iþessum kaupför hlut-
lausra þjóða, einnig var sökt einu
kaupfari brezku. Tundurskipi var
sömuleiðis isökt fyrir Bretum og
fjórum smáskipum (mine sweep-
ers). Að þýzki sjóflotinn skyldi fá
að koma þessu til leiðar, hefir
vaidið mikilli óánægju á Englandi
og eru blöðin all'harðorð í garð
þeirra manna, sem sjóflotastjórnina
brezku hafa með höndum.
Tvær
skotfæraverksmiÖjur Þjóí-
verja eyíilagSar.
Sprengingar áttu sér stað f tveim-
ur skotfæra versksmiðjum á Þýzka-
landi síðustu viku og eyðilögðu
þær alveg. Fyrri sprengingin átti
sér stað í bænum Friederichshaven
en þar eru verksmiðjur miklar, sem
vinna nótt og dag að framlelðslu
skotfæra og annars, er ti.I stríðsinS
heyrir. Ein af þessum verksmiðj-
um er nú alveg eyðilögð. Ekki er
þess getið, 1 hvaða bæ seinni hin
sprengingin hafi átt sér stað, en sagt
er að hún hafi lagt til rústa ei'.t
af stærstu skotfæra verkstæðuin
Þjóðverja.
-------o-------
Boisheviki stjórnin pkipar nú
öndvegissess á Rússlandi. Mót-
spyrna þeirra Korniloffs og Kale
dines virðist algerlega brotin á bak
aftur. Um miðja síðustu viku
sögðu fréttirnar Korniloff vera
særðan og hafa beðið ósigur í or-
ustu á milli bæjanna Bielgorod og
Sumu. Kaledines, kósakka foring-
inn, reyndi að koma honum til
hjálpar, en járnbrautarfélögin
snerust öndverð á móti lionum og
neituðu að flytja lið hans. Síðari
fréttir segja svo Kaledines algerlega
yfirbugaðan og á valdi Bolshevik-
inga. En allar eru -fréttir þessar
svo óljósar, að hætt er við að lítið
mark sé takandi á sumu, sem þær
hafa til brunns að bera.
Engum vafa viðist þó bundið, að
Bolshevikistjórnin sé enn við æðstu
yfirráð á Rússlandi. Áreiðanlega
hefir líka stjórn þessi gert samn-
inga við Þýzkaland um vopnahlé,
og ef til vill algerðan frið. Þarf I
því ekki að ganga að því gruflandi
að Rússar eru nú úr söigunni sem
stríðsþjóð bandamanna megin.
Margar fréttirnar eru á iþá leið, að
•stefna núverandi stjórnar á Rúss^
landi sé konungsstjóm og ef til vill
einveldi — þetta sé Jvað eina stjórn-
arfyrirkomulag, sem hæfilegt sé fyr-
ir Rússland. En þeir, sem bezt
þekkja helztu meðlimi Bolsheviki |
stjórnarinnar, taka lftið mark á
slfkum tfmuim.
-------------- |
Reykjavík, 10. okt. 1917.
Isfirðingar eru að koma sér upp
dráttaihraut á T'orfuniosinu innan
vert við eyrina, sem bærinn stend-
ur á. Það er félag útgerðarmanna
þar í bænum, sem stendur að því
fyrirtæki.
Vestri segir að unnið hafi verið i
kolanámunni f Botni þar vestra
stöðugt síðan f byrjun túnasláttar,
en að eins hirt það bezta úr kola-
lögunum og nú upp teknar um
80 smál. af góðum kolum. Komið
er um 20 imetra inn í kolalögin og
virðast þau alt af fara batnandi:
þekkjast varla frá útlendum kol-
um, segir blaðið.
í Vestra er sagt frá því, að í fyrra
hafi verið -isent til rannsóknar til
úLlanda sýnishorn af járnveru, er
menn fundu í fjallinu fyrir ofan
Flateyri við önundarfjörð. og hafi
rannsóknin leitt í ljós, að 40—70%
af járni ihafi verið í því, sem sent
var. Landeigandi er Kristján Tonfa-
son á Sólbakka, og ætlar hann að
sögn að láta vinna “námuna” eftii
föngum í haust.—Vísir.
5IQUR
Sambandskosningarnar eru um garð gengnar og vissulega mega
þjóðhollir Canada þegnar gleðjast yfir úrslitum þeirra. Enda eru
þetta þær þýðingarmestu sambandskosningar, sem haldnar hafa verið
í Canada. Og þjóð þessa lands gekk ekki í neinum skugga um þetta,
því aldrei hefir komið í ljós meiri eldmóður né áhugi við neinar und-
angengnar kosningar. Þessi þjóðræknisáhugi Canada þjóðarinnar
færir hana hærra í áliti allra lýðfrjálsra þjóða og engum vafa er
bundið, og kosninga úrslit þessi verða hugljúfar gleðifréttir hermönn-
unum í skotgröfunum.
Unionstjórnin bar frægan sigur úr býtum. Lauriersmenn urðu
undir í öllum fylkjum landsins nema sínu eigin fylki Quebec og Nova
Scotia. Hreptu þeir í alt að eins 91 þingsæti (þar af 62 í Quebec)
og vafalaust missa þeir mörg af sætum þessum er atkvæði hermann-
anna verða talin—því hermönnunum er treystandi til þess að vera
eindregnir með Uninonstjórninni. Unionstjórnin hlaut í alt 136 þing-
sæti og atkvæði hermannanna bæta að sjálfsögðu mörgum sætum við
þessa tölu. Þegar þetta er skrifað, eru fjögur þingsæti enn í vafa og
kosningu hefir verið frestað í fjórum stöðum. Þegar næsta blað kem-
ur út verða nánari skýrslur komnar um afstöðu flokkanna, og munum
vér þá birta þær.
Hér í Winnipeg sigruðu öll Union þingmannaefnin með feikilega
miklum meiri meiri h!uta. Manitobafylki sýndi ljóslega afstöðu sína
í herskyldumál nu með því að gefa Lauriersmönnum að eins eitt þing'
sæti — jafnvel J. E. Adamson, þrátt fyrir alla sína miklu mælsku og
sín g’.æstu loforð, beið hörmulegasta ósigur fyrir bóndanum, Thomas
Hay, og ólíklegt er að hans íslenzku fylgismenn fái nú grátið hann
úr helju! I Alberta og Saskatchewan fengu Lauriersmenn ekki eitt
emasta sæti og að eins 10 sæti í Ontario (af 82). Voru óíarir Sir
Wilfrids Lauriers því miklar við þetta tækifæri og hefir Canadaþjóðin
nú fyllilega sýnt það, að hún lætur ekki blekkja sér sýn með efnis-
litlu orðaglamri.
Frank Gotch látinn.
Fnank A. GoJch, gllmukappinn
lieiinisfrægi, andaðist J>ann 16. þ.m.
að ihoimili sínu í Humbolt, Iowa, í
Bandarikjunum. Hann var að ein«
rúimlegia fertugur, en liafði átt við
töluverðan heiJsulasleika að stríða
síðast liðin tvö á. — Frank Gotoh
var mosfa heljarmenni að kröftum
og afburða glfnxukappi á grísk-
rómvenska vfsu. Varð hann giíinu-
kappi allrar veraldar, er hann iagði
að veJli George Hae.hensohmidt,
rússneska tröllið, í Ohicago 1908.
Reykjavík, 26. sept. 1917.
Tíðin iniá heita fremur góð, þó
regn öðru hvoru. Heyskap er nú
lokið. Fjallgöngum var frestað um
eina viku í ár frá því, sem venja er,
en nú er suimarauki. Afli sagður
góður á Auistfjörðum um 20. þ.m.
Einnig góður afli austan fjalls, og
tveir botnvörpungar héðan, som
verið ’hafa að veiðum hér úti á fló-
anum, hafa aflað vel. Alis er sagt
að sildaraflinn eftir sumarið muni
vera nál. 90 þús. tunnur. Botn- i
vörpungar Islands-fél. kvað h-afa
aflað bezt.
Tíu af ’botnvörpungunu hér eru
nú seldir til Frakklands og búist
við að þeir fari héðan einhvem af
næstu dögum. Þingið kvað hafa
leyft undanþágu frá lögunum frá
síðastl. vetri, sem banna isölu á
skipurn út úr landinu, og stjórnin
veitti hana. Áskilið kvað vera, að
andvirðinu verði varið til botn- -
vörpungakaupa að stríðinu loknu,
og landssjóður fá að láni mikið af.
andvirði skipanna.
Vilmundur Jónsson kand. med. |
og chir., er nú settur héraðslæknir |
á Isafirði.
Nýlega er látinn séra Kristján
Eldjárn Þórarinsson á Tjörn i j
Svarfaðardal, á áttræðisaldri, orð-
lagður fjörmaður og gleðimaður. —
20. l>tm. andaðist á Eynaibakka Pét-
ur GísJason, áður lengi útvegs-
bóndi á Ánastöðum hér í Rvfk,
faðir GÍ'Sla læknis á Eýrarbakka og |
þeirra systkína,1 merkur maður, ttá-
aldraður..
SIR ROBERT BORDEN
Forsætisráðherra Canada.
Það er Sir Robert Borden, núverandi forsætisráðberra j
Canada, sem mest allra er að þakka að Unionstjórnin var
mynduð. Fyrir þessu barðist hann ötullega í marga mánuði j
og lét engar torfærur sér hamla, unz hann kom takmarki sínu j
í framkvæmd. Hefir hann með þessu þýðingarmikla starfi j
sínu í þarfir þjóðarinnar skráð nafn sitt óafmáanlegum stöfum j
í sögu þessa lands. Hans mikla þjóðrækni á þessum alvöru- ,
tímum verður ætíð í hávegum höfð.
Fréttir frá Islandi.
Gamda strandferðaiskipinu okkar,
“Hólum”, var sökt 11. ágúst með
koJafarm á leið frá Sunderland til
Khafnar. Einn maður fórst, og
var það vélstjórinn.
29. ág. brann bærinn Syðribrekka
í Hofstaðaplássi í Skagafirði. Fólk
var á engjum og varð engu bjargað.
—30. ág. brann bærinn Réttarholt i
Akrahreppi í Skagafirði og varð
litlu eða engu bjargað. — 8. sept.
brann á Víg.hoitsstöðum i Dölum
hlaða, fjós, skemmia, eldiviður og
um 200 hestar af töðu; tnafði kvikn
að í töðugalta við iheyhlöðu af
neístafuJgi úr reykiháfi. Vindur
stóð af fbúðarhúsinu og náði þvi
eldurinn ekki þangað.
Úir Fáskrúðsfirði er skrifað 6.
sept.: "Hér muna menn varta eins
ógæftasaman ágústmánuð eins og
hinn síðastliðna. Smáb&tar hafa
helzt aldrei á sjó koimist og mótor
ar miklu sjaldnar en ella. Aftur á
móti hefir heyjatið verið mun betri,
full stormasöm en stöðugir þur-kar.
Nú bnigðið ttl súnnanáttar og
rigninga. Vandræði eru hér, vegna
skorts á ýmsum lífsnauðsynjum, t.
d. steinolíu. Menn verða að sitja i
myrkri Jiangað til olían úr Wille-
moeis er komin kring um land, og
ekki geta menn heldur huggað sig
við vonina um raflýsingu fyrst um
sinn, ef satt er að hið háa alþingi
hafi “skorið niður” lánbeiðni okk-
ar Búðarhreppsbúa til raflýsing-
ar.”
Dr. Helgi Pétursson, er nýlega
kominn heim úr rannsóknarferð
um Þjórsárdal.
Morgunibl. segir frá því, að 21.
sept. liafi rekið í Bolungarvík kol-
krabbi með 6 álna lönguin örmum,
yfir 20 pnd. haus og 42 pnd. skrokk;
alls muni hann hafa verið um 100
pund, en liann rak á land í tvennu
lagi, hausin'n laus frá skrokknum.
Þess er getið í Þjóðólfi, að ísl. úr-
siniður, sem nú dvelur á Þýzka-
landi, Sigurður Tómasson að nafni,
hafi fengið einkaleyfi á mikilsvarð-
andi endur.bót á “cylinder” í úrum.
Reykjavík, 3. okt. 1917.
í gærkvöld kom á norðaustan-
s*ormur, eftir hlýtt og gott veður,
og f nótt sem leið kólnaði mjög
í veðri. Kuldar og ihríðar hafa
verið á Norðurlandi.
Dáin er 28. f.m. frá Sigríður Blön-
dal, kona Jóns læknis Blöndals f
Sfafholtsey, liðlegia fertug að aldri,
fredd 7. nóv. 1876, dóttir Björns sál.
Lúðvígssonar Blöndals sundkenn-
ara og Guðrúnar Sigfúsdóttur, sem
enn lifir, en systir Sigfúspr Blöndals
bókavarðar.
Um sýslumannsemb. í Suður-
Mjúlasýslu sækja yfirdómslögmenn-
irnir Páll Jónsson, Guðm. Hannes-
son og Bogi Brynjólfsson, sýslu-
mennirnir Sigurj. Markússon og B.
Þ. Johnson, Sig. Lýðsson aðstm. í
stjórnarráðinu og M.agnús Gíslason
cand. jur.
Um 200 tonn kvað hafa verið tek
in úr Stálfjallsnámunni í sumar, en
mikið verk ihefir verið l>ar í ýmis-
konar undirbúningi. Auk yfir-
roanna vinna í nálmunni 22 verka-
menn, 18 íslendingar og 4 Svíar.
ísafjarðar prestakalli þjónar fram
til næstu fardaga fyrir séra Magnús
Jónsson dócent og á hans ábyrgð
Sigurgeir Sigurðsson cand. theol.
útibú frá Landsbankanum verð
ur Árni Jóhannsson bankaritari
forstjóri þess. Það mun nú vera
I ákveðið að útiDúið verði á Eski
I firði.
Lögr. er skrifað frá Englandi:
| “Samsæti var dr. Jóni Stefánssyni
haldið af Yíkingafélaginu 5. júlí, til
J>ess að votta honum virðingu og
Jvakklæti fyrir starf hanshér í þágu
| norrænna bókmenta og ekki sízt i
i tílefni af Svfa og Danasögu hans,
sem orðið hefir svo fádæma vinsæl.
Bryce lávarður stjórnaði samsæt-
inu. Tel eg víst, að samsætisræða
Jónís verði foirt í Árbók Víkingafé-
lagsins, en eigi veit eg það samt.
Jón er vinsæll hér o.g mikils metinn
meðal lærðra imanna........’’
— 1 bréfi, sem síðar r skrifað, er
þess getið, að ræða J. St. sé nú kom
in út bæði í enskum og amerískum
blöðum og mun hún síðar birtast
í “Óðni.”
Reykjavík, 9. okt. 1917.
Fram til helgar voru kuldar, en
þá gekk í austanveður og hlýnaði.
sfðastl. viku var o.fsaveður í Norð-
urlandi. Á ólafsfirði rak upp 4 vél-
báta og 2 í Dalvík. Tvö skip slitn-
uðu upp á Siglufirði og rak upp f
Leiru. Bryggjur skemdust þar
elnnig. Víða snjóaði norðan lands.
—Nú f dag er aftur gott veður, stilt
og bjart.
Vélbátur hrekst. Kl. 8 sfðastl.
laugardagsnrorgun lagði vélbátur-
inn “Rán” frá Vestmannteyjum
heimleiðis frá Stokkseyri og hafði
tekið þar farþega, mest kvenfólk,
svo að á bátnum voru alls milli 10
og 20 manns. Á ileiðinni skall á ofsa-
veður á austan. Sáu Eyjamenn til
bátsins um miðjan dag og sendu
1<vo báta ú; á móti honum, en þeir
fundu hann ekki og komust okki
til ihafnar fyr en á sunnudag. Var
svo botnvörpuskipið “Rán" fengið
til að leita bátsins, og fór út héðan
á sunnud.kvöld, en kom á mánud.
kl. 5 með hann hingað inn á höfn
og fólkið, sem á ihonum var, alt ó-
skemt. Hafði báturinn hleypt und-
an veðrinu og komist vescur fyrir
Reykjanes, en þá var olían þrotin.
Þó koftns hann inn undir Hafnar-
bjarg og lá þar síðan, J>angað til
“Rán” hitti hann þar, fullum tveim
sólarhringum eftir að hann lagði
út frá Stokkseyri, og hafði báts-
fólkið ekki fengið mat allan þann
tíma.
Hárnarksverð hefir nú verið sett
á kartöflur, 35 au. á kílóið í smá-
sölu og 30 au. ef keypt eru í einu 50
kfló eða meira.
Háskólinn var settur í gær. 22
nýir stúdentar innskrifuðust. 8
fóru til Khafnarháskóla með Fálk-
anum síðast, og ætla flestir þeirra
að nema verkfræði.
Dáin er á heilsuhælinu á Vífils-
stöðum nýlega dóttir Gísla fsleifs-
sonar aðstm. í stjórnarráðinu, A1
viilda Ása, 15 ára göanul.
Bæjarfréttir.
Páil Reykdal frá Lundar, Man.,
var hér á ferð um miðja vikuna í
verzlunarerindum.
Gunnlaugur Sölvason frá Selkirk
vair hér á ferð á þriðjudaginn Var
hann hres® 1 anda eftir 'kosningarn-
ar og kvað .vonandi að fJeiri íslend-
ingar myndu fagna yfir þessum úr-
slitum.
Sigurður Sigurbjörnsson, pósb-
meistari við Árnes P.O., var hér á
ferð um miðja síðustu viku. Alt
gott sagði hann að frétta úr sinu
bygðarlagi.
Árni Anderson, sem fiskiveiðar
stundar við Amaranth, Man., kom
til bæjarins í lok síðustu viku og
bjóst við að dvelja hér fram yfir
kosningarnar.
Ásmundur Guðjónsson, sem átt
hefir iheima hér í bænum i mörg ár,
andaðist á King Edward sjúkra-
húsinu J>ann 18. þ.m. Banamein
hans var langvarandi inmvortis
’sjúkdómur.
Gfsii Jónsson, bóndi frá Big Point
bygðinni, kom til borgarinnar á
m'ánudaginn og dvaldi hér þangað
til á 'miðvikudagskvöld. Hann
sagði almenna vellíðan i sinni
bygð.
Laugardaginn J>ann 8. þ.m. and
aðist að heimili sínu á Home str
hér í horg, ungfrú Ingibjörg Pét
urdóttir, rúmra 52 ára að aldri
Hún var fædd á Hrjót í Hjalta
staðaþinghá 18. júlí 1865, og voru
foreldrar hennar 'hjónin Pétur Þor-
steinsson og Sigríður Þorleifsdótt-
ir; albræður Ingibjargar eru þeir
Þorsteinn prentari í Piney, Mam,
og Þorleifur til heimilis norður við
Geysir í Nýja Islandi, en hálfbróðir
'hennar er Sigurður Jónsson hér í
bænum. Jarðarförim fór fram frá
heimilinu, miðvikudaginn J>ann 12.
og flutti séra Rögnv. Pétursson
húskveðjuna.