Heimskringla - 03.01.1918, Blaðsíða 2
2. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 3. JANÚAR, 1918
Friðarmál.
Eftir síra F. J. Bcrgmann.
Er krístindómurinn máttvana?
Um.jólin er bezt að vera sem
allra-lengst frá herstöðvunum og
þeiin harmleik, sem þar fer fram.
Og það því heldur, sem þar gerisc
ekkert markvert, en stendur ná-
kvæmlega í sömu «porum.
Eg vil heldur þessu sinni verja
tímanum til að tala við lesendur
biaðsins um friðinn, sem verið er
að berjast um. Svo stórvægilegt
atriði er friðurinn í sambandi við
líf mannanna, að allur ófriður, sem
upp kemur, snýst um friðinn.
Menn eru í ófriði til þess að geta
eignast viðunandi frið. Friðurinn
er hið dýrmætasta 1 fari þjóðanna.
En tii þess að íriðurinn verði með
réttum hætti, neyðast menn einatt
til að draga sverð úr slíðrum.
Það var að mörgu leyti ifkt 4-
statt í heiminum um það leyti, að
sá tímareikningur hófst, sem vér
nú höfum. Þá var stríð og barátta
víðs vegar hér á þessari jörð. Heim-
urinn átti við kúgan og áþján að
búa. Þjóðir, sem rændar höfðu
verið frelsi sínu og sjálfstæði,
etundu þungan. Þeim var haldið
í heljargreipum rómversku legíón-
anna.
Þá fæddist hann á þess'arri jörð,
eem nefndur hefir verið frKiarhöfð-
inginn um fram alla aðra. Erindi
hans var að 'flytja frið. Hugsanir
hans eru friðarhugsanir og stefna
allar í þá átt að sefa ófriðarólguna,
eem á sér stað í heiminum.
- Og vist er um það, að hve nær sem
heimurinn gerir alvöru úr að lifa
samkvæmt kenningunni hans,
myndi ófriðaröldurnar lækka, og
þjóðir og einstaklingar hætta þeim
ósóma, sem öllum ófriði veldur, að
lifa upp á annarra kostnað.
Því er einmitt haldið fram, og sá
feikilegi ófriður, sem heimurinn nú
hefir flækst út í, verður vitaskuld
tfremur til að styrkja það álit, að
kenning kristindómsins muni vera
öldungis máttvana, til þess að
koma varaniegum friði til leiðar.
j.afnvel með þeim þjóðum, sem tek-
ið hafa við kristindóminum og
þykjast lifa undir merkijum ihans.
Hvað um það er, skal eg láta ó-
sagt. En benda má á, það, að þó
allrlangur tími sé liðinn síðan kenn-
ing kristindómsins varð kunn og
skilin af þeim þjóðum, sem nú eru
að berjast, er það þó ekki nema að
eins örskamt tímabil í sögu heims-
ins.
Mannkynið er enn kornungt, og
það er langt frá að það sé búið að
leggja niður bernskubrek sín.
Og það hefir í raun og veru aldrei
enn gert neina alvöru úr þvf að
lifa samkvæmt kenningu kristin-
dómsins. Kristnu þjóðirnar hafa
jafnvel aldrei af neinni alvöru reynt
að haga lífi sínu svo, að það hafi
ekki verið í beinni mótsögn við
kristindóminn.
Viðskiíialífið er og hefir verið í
beinni mótsögn við kristindóm-
inn. Og það er sú hlið lífsins, sem
við flestum blasir og flostir taka
þátt í. Þar ræður að eins hagnað-
urinn og blákaldur hagsmuna úb
reikningur, sem alls ekkert á skylt
viif kristindóm.
Allar reglur, sem heimurinn liíir
eftir og hagar sér samkvæmt í allri
umsýslu sinni, eru fram á þenna
dag tilfinningalausar gróðareglur,
þar sem enginn kristindómur
kemst að, nema með því móti að
umisýslureglurnar sé brotnar.
1 stjórnmálum hefir það lengi
verið viðurkent, að ekkert tillit er
tekið til kristindómsins. Við
hverjar kosningar, sem fram íara
með hinum kristnu þjóðum, hætta
jafnvel þeir, sem lifa vilja að
minsta kosti undir kristilegu yfir-
skini, þegar stjórnmál og kosning-
ar eru ekki annars vegar, að gera
nokkuna tilraun tiil að sameina
framkomu sína kenningu kristin-
dómsins.
Hve nær sem stjórnmál og kosn-
ingar eru á ferðum, hætta menn að ,
Jang-mestu leyti að reyna að vera ;
kristnir menn. Það þykir hreint
ósvinna að nefna það, hvað í sam-
bandi við annað. Það eru naum-
ast til svo léleg brögð, að eigi sé á-
litið vítalaust að grípa til þeirra í
kosninga-baráttu, þegar um stjórn-
mál er að tefia.
Og kristindómurinn hefir alls ekki
komist að í viðureign milli þjóð-
anna. Orðið diplomat átti eitt
sinn igöfuga merkingu og á það
vitaskuld stöku sinnum enn. Á
voru máli nefnum vér það þá
stjórnvitringur. En lang - oftast
merkir það alt annað. Það merkir
þá blátt áfram bragðarefur.
Samninga viðskifti ríkja á milli
eru lang-oftast haglega spunnar
stjórnmálabrellur. öllum þeim
kænskubrögðum og allri þeirri
undirhyggju, sem unt er þar við að
koina, þykir leyfilegt að beita, og
sá dæmdur mestur stjórnmálasnill-
ingur, sem haft hefir lag á að beita
samningasaðilja annarrar þjóðar
flestum slíkum refsbrögðum.
Fyrir því segi eg það hiklaust:
Heimurinn—og með því orði eiga
nú allir við kristnu þjóðimar, sem
berast á banaspjótum—hefir alls
ekki gert neina alvarlega tilraun
ineð að haga lifi sínu kenningum
kristindómsins samkvæmt.
Við mættum því eins vel við það
kannast, að við lifum að lang
mestu leyti í heiðnum heimi, sem
alls ekki hefir fært meginreglur
kristindóiinsins inn f ihið opinbera
viðskiftalif sitt, hvorki þar sem
einstaklingar eða þjóðir eiga hlut
að máli.
Fyrir því er ekki við því að bú-
ast, að kristindóminum ihafi tekist
að bæla 'hernaðarhug mannanna.
Mieðan svo má að orði koinaist, að
hann sé með vilja og vitund lokað-
ur úti frá öllum þeim svæðum, sem
þegar hafa nefnd verið, er alls ekki
við því að búast, að hann komi í
veg fyrir að styrjöld brjótist út við
og við.
Kristnu þjóðirnar hafa enn ekki
gefið þeirri trú, sem þær játa, neitt
tækiifæri til þess. Það er enginn, er
sagt getur, að hana brysti mátinn,
ef 'henni væri gefið fult svigrúm í
viðskiftalífi, stjórnmálum, og samn-
ings samböndum milii ríkja.
Fái hún nokkuru sinni þetta
svigrúm, er óhætt að segja, að
margt í heimi þessum verður með
öðrum hætti en nú er. Þá skilst
mönnum, ef til vill, að undirrót
alls ills í heimi þessum er það að
lifa á annarra kostnað, hvort 6eld-
ur einstaklingar eða þjóðir eiga
hlut að máli.
Friðarmál mannanna verða þá í
betra horfi en nú.
Lansdowne lávarður.
Einn hinna merkari stjórnmiála-
manna á Englandi er Lansdown
lávarður. Hann er einn af fyrirlið-
um Tory-flokksins,—fhaldsflok'ksins
mikla á Englandi. Hann er lítill
maður vexti, en hvatlegur í lát-
bragði, hvar sem eftir honum er
tefkið, hvort sem hann stendur á
fætur og biðst hljóðs i málstofu lá-
varðanna, eða annars staðar.
Hann er með byrst yfirskegg und-
ir stóru fbjúgru nefi og ofur-iitinn
vott af vangaskeggi. Hann stend-
ur beinn, eins og ösp í skógi. Hann
er svo hold-grannur maður, að sagt
er að hann mætti ekkert lóð hold^
sinna missa.
Þegar er hann talar, eru setn-
ingarnar stuttar, þurrar, orðfáar.
Þær slá eifís og svipuól. Hann er
alvörumaður mikill. Lávarðarnir
hætta að draga ýsur, þokast ögn
upp í sætum sínum og fara að
sperra eyrun.
Fullu nafni heitir maðurinn
Henry Charles Keith Petty-Fitz-
maurice, fimti markgreifi af Lans-
down. Hann er 72 ára gamall. Á
óvenjulega ungum aldri varð hann
fyrir hér um bil 50 árum lávarður
ríkisfjárhirzlunnar.
Síðan ihefir hann í raun og veru
s^öðugt gegnt háum stjórnarem-
bættum. Hann hefir verið aðstoð-
ar fjármálaritari, aðstoðarritari
fyrir Indland, iandstjóri í Kanada,
jarl á Indlandi, hermálaritari, rit-
ari utanríkismálanna.
Mikill fjöldi stjómmálafunda hef
ir haldinn verið að ihinu veglega
heimili hans í Lundúnaborg, Lans-
down House, Berkely Square. Þótt
húsráðandinn þar sé Tory-sinni,
hofir liann að mörgu leyti meiri
svip með frjálslyndum fyigismönn-
um ílokkasamisteypunnar, iheldur
en ineð hinum gömJu harðsvíruðu
íhaldsmönnum, en þeirra skoðana-
bróður telur hann sig samt og er í
húð og ihár.
Lansdown lávarður var einn af
leiðtogum lávarðanna í baráttunni
gegn þeim lögum parlamentisins
enska, er svifti málstofu lávarðanna
þeim völdum, er hún hafði haft
öldum sarnan.
Hann hefir verið talinn yfirleitt
ieiðtogi höfðingja-flokksins gegn
framsókn lýðvaldisinis, Honum hef-
ir skilist, að hann vera einn í hópi
þeirra, sem óttast um, að á ókomn-
um tímum muni heimurinn hasla
bekks'krautuðum og iðjuleysingj-
um fremur þröngan völl. Eða með
öðrum orðum, að það þrengist
töluvert í búi hjá þeim einstakling-
um inannfélagsins, sem eru að eins
til skrauts, en ekkert framleiða.
Lansdown iávarður reit nýlega
blaðinu Daily Telegraph bréf. Það
var endurprentað í blöðum hér
vestan hafs 30. nóv., þar sem hann
leggur feikilega mikla áherzlu á
styrjaldarvoðann og það tjón, sem
hann hefir í för með sér. Hann
spyr: 1 hverju iskyni erum við að
berjast.
Þeirri spurningu svarar hann
svo, að í sjálfu sér sé það ekkert
markmið, að vinna sigur yfir Þýzka-
iandi, hversu ákjósanlogt sem væri.
Hann tekur sér góðan tíma til að
lýisa iþeirri eyðingu, sem framleng-
ing stríðsins hefir í för með sér.
5. Vér erum lfka til þess búnir að
taka þátt í miilliiþjóða samningi
um að gera út urn ágreining
milli þjóða á friðsamlegan hótt.
Tíminn, sem Lamsdown kaus sér
til að koma fratn með tillögur þess-
ar, hefir þótt fremur óheppilegur
og ekki laust við, að hann hafi ven
ið grunaður um, að flokksmálin
liafi blandast saman við þessar
friðaihugleiðingar hans.
Það er alkunna, að Tory-flokkinn
á Englandi svíður það sárt, að
annar eins maður og Lloyd George
skuli nú vera fyrir framan og hafa
meiri völd með höndum, heidur en
nokikur maður annar á Englandi.
A'squith svíður enn, að hafa orðið
að láta völdin renna úr höndum
sér og margir spá, að hann sé að
nálgast flokk Tory-anna.
Yfirleitt hafa ekki þessar tillögur
Lansdowns fengið ^óðar undirtekt-
ir, hvorki á Englandi né í Ame-
fíku. Hann hefir vfðast hvar orðið
•fyrir þungum áfellisdómum íyrir.
Einkum er það vítt, sem mikið
glappaskot, að koma fram með
þær einmitt nú, þegar leiðtogar
þýzkrar þjóðar eru druknir af sigr-
inum, sem þeir unnu y.fir Ítölum.
Enda er nú staðið á öndinni á
Englandi út af því, hvað kunni
fyrir að koma á vestur-vígstöðivun-
uin. Þar eru nú Þjóðverjar að
safna afar-miklum herafla og menn
óttast um, að nú ætli þeir sér að
koma því í framkvæmd, sem þeir
lengi Iiafa haft í hótunum með, að
brjóta'st gegn um fylkingamar
annað hvort á Frakklandi eða í
Belgíu.
Bretar hafa líka orðið fyrir feikna
miklu .skakkafalli, miklu meira en
blöðin hér gefa í skyn, þar sem þeir
hafa orðið að láta af hendi við
Þjóðverja mikinn hluta þess svæS-
varnar og framisóknar. En ekki er
við því búiist, að það geti orðið fyr
en í marzmánuði.
Þó setningar Lansdowns hafi
verið teknar óstint upp í bili, gæti
eg trúað því, að þær verði meira
teknar til greina síðar meir. Að
flestu leyti eru þær sanngjarnar. Og
friðurinn, sem saminn verður á end-
anum, á hvorki að verða Þýzkur
friður né brezkur, heldur sanngjarn
friður og réttlátur.
Barist verður þangað til að það
rennur smám saman upp í hugum
þjóðanna, 'hvað sanngjarnt sé og
réttfátt á alla bóga og þegar von
er orðin um, að það nái fram að
ganga, hætta menn að berjast.
Og þá verða jól.
Ummæli Wilsons forseta.
Það er fróðlegt að bera saman
ummæli og hugarstefnu bréfs þess,
er Lansdown reit, við umtmæli og
hugarstefnu þá, sem fram kemur í
ræðu þeirri, er Wilson flutti á Sam-
bandsþimginu.
Þau ummæii hafa vakið hina
mestu eftirtekt, því það er skiln-
ingur hans, þess vitra manns, og
þjóðarimnar, sem hann er fuiltrúi
fyrir, yfirleitt á því, hvaða stefnu
samiherjaþjóðirnar nú þurfi að
halda «ér við og hvað sé verið um
að berjast.
Mennirnir, sem hér tala, Lans^
down lávarður annans vegar, og for-
setinn hins vogar, eru eins ólflcir að
uppeldi og hugsunarhætti og mest
má verða.
Á Fiakklandi myndi Lansdown
eflauist vera keisarasinni, ekki lýð-
veldismaður. Á Þýzkalandi væri
hann Junkari, en allis ekki jaifnað-
armaður. Á Rússlandi væri hann
Hann vill nota tækifærið, og láta
aðra nota, til að ná til þeirra Þjóð-
verja, Au'sturríkismanna, Búlgara
og Tykja, er t-ala vilja um frið. Á
báðar hliðar verði það að öðlast á-
heyrn og viðurkenningu með þjóð-
*
unum alment, að styrjöldin hafi
þegar varað of lengi.
Tii þess að ná til friðarflokksins
á Þýzkalandi kemur hann fram
með nokkurar setningar, og miða
þær aliar og hver fyrir sig í þá átt,
að sannfæra um, að Samherjaþjóð-
irnar hafi alls okki f huga að fara
ilia með þýzkaland.
Þesisar setningar lávarðarins eru
fimm talsins og eru í stuttu máli á
þessa leið:
1. Það er ekki ásetningur vor, að
gera mátt Þýzkalands til að
vera stórveldi að engu.
2. Vér leitumst ekki við að þrýsta
að Þýzkalandi nokkuru öðru
stjórmsikipuliagi en því, sem
þjóðin sjálif véiur.
, 3. Vér viljum ekki neita Þýzka-
landi um að vera f tölu hirnna
miklu verzlunarþjóða heims-
ims.
4. Þegar er istyrjöldin er um garð
gengin, erum vér til þess búnir
að rannsaka í samibandi við
hin önmur stórveldi, spurnarat-
riðið um frelsi á hafinu.
is, sem Byng foringi náði. Það at-
riði út af fyrir sig hefir rniklu meiri
merkingu, heldur en opinberlega
hefir verið kannast við, eirus og
Bandarikjiablöð hafa fullikomið
hugrek'ki til að taka fram.
Með því sýna þau fram á, að
frumikvaðarmátturinn að fram-
sókninni sé aftur genginn úr hönd-
um Breta. Þeir höfðu hrifið þann
mátt til sín úr höndum Þjóðverja
og beitt honum nokkum veginn
ait síðastliðið ár. En nú virðúst
hann aftur í höndum Hinden-
burgs.
Og nú ihafa Þjóðverjar getað
safnað einvalaliði saman þarna á
vest uistöð'vunum, ungum mönnum
á bezta aldri. Hina eldri og ónýtari
hafa þeir á austur vígstöðvunum,
sem vitia móti Rússum. Þar er ver-
ið að afvæpna liðið áð nokkuru
ieyti að minsta kosti, svo þar þarf
nú ekki mikils við.
Aldrei hefir útlitið eiginlega verið
miyrkara um nein jól, sem liðið
bafa, síðan er stríðið hófst. Aldrei
hafa horfurnar um endileg úrslit
og frið verið lengra undan landi, en
einmitt nú. En svo geta táknin
breyzt f lofti þá og þegar. Mikið
er nú undir því komið, hvort Þjóð-
verjar geta unnið nokkurn bug á,
áður her Bandaríkjanna getur tek-
ið að sér svo og svo stóra spildu til
fylgismaður skriffinskustjórnar fyr-
irkomulagsins, en okki uppreistar-
maður. í Bandafkjum myndi naum-
ast nokkur flokkur vera svo íhalds-
samur, að hann þóknaðist Lans-
downe-Iundinni. En framsóknan
maður myndi hann ekki verða. Það
eitt er víist.
(Framhald á 3. bls.).
Ný og undraverð
uppgötvun.
Eftir tfu ára tflraunir og þungt
erfiði hefir Próf. Ð. Motturas upp
ötvað meðal, sem er saman
landað sem áburður, og er á-
byrgst að lækna hvaða tilfelli
sem er af hinum hræðilega sjúk-
dómi, sem nefnist
Gigtveiki
og geta allir öðlast það.
Hví að borga lækniskostað og
ferðakostnað í annað loftslag, úr
því hægt er að lækna þig heima.
Verð Jl.OO flaskaan.
Póstgjald og strfðsskattur 15c.
Einka umboðsmenn
MOTTURAS LÍNIMENT CO.
P. 0. Box 1424
(Dept, 8) Wnmipeg, Man.
Hin ósýnikgi
Mega-Ear Phone
“lætnr daufa heyra”
Heyrnar teekl þetta
— The Mega - Kar-
Phone—veldur engra
óþægtnda. Þér flnn*
ÍIJ þati ekki, því þaí
er tllbúis úr mjúku
ogr linu efni.
feta komi15 því
hluetinnl. i>a»
ekki hægt a'ð Bjá
það i eyranu.
Læknar Eymasuðu
Mega-Ear-Phone bwtir þegar heyrn-
ina ef þetta er brúkað i staðinn fyrir
ófullkomnar og elæmar Ear Dramx.
Læknar tafarlaust alla keyrnardeyfu
og eyrnasuðu. Hepnast vel i niutíu og
fimm tilfellum af hundrað. Ef þér
haflð ekki fæðst heyrnarlausir, reyn-
ist tækl þetta óbrtgðult. Þetta er ekkl
ófulikomið áhald, aem lseknar að elns
í bili, heidur vislndaleg uppgötvun,
sem aöstoöar náttúruna til þess að
endurnýja heyrnlna — undlr hvaða I
krlnzumstæðum sem er, aldur etía I
kynferði.
Vafalaust sú bezta uppgötvua fyrlri
heyrnardaufa, sem funain hefir veriti. |
Reynd tll hlitar af r&ðsmanni vorum,
sem reynt heflr öll þau tæki, sem seld
eru. Þetta er ekkl búið til úr mtlmi í
eöa rúmmi. Bæklingur met myndum
og öllum uppljslngum, fiest ókeypls.
BlBJlð um No. 10*. Verð éi Meca-Ear-
Phone, tollfritt og burðargjald borg-
að, er $12.50. Selt eingöngu af AÞVIJÍ
SALB8 CO„ P.O. Box 5«, Dept. 140,
WisHÍpeg, Man.
YORBLOTINN.
Hann lagSi upp, meS sumar og sólskin í hjarta,
Frá suSrinu bjarta,
Sem sendi hann glaSan meS vængina víSa.
Og vetur úr mannabygS átti ’ann aS þíða.
Og hlæjandi tók hann fyrst kveSjunum köldum
Hjá kaldbak og öldum.
En öll saman voru þau klökk, er hann kvaddi,
MeS kalsann úr viSmóti, og leikinn úr gaddi.
Og norSur komst hann, þarsem nóttin er frosin—
Hans nepju-kæld brosin
Enn kitluSu túnin og kjarr-skóga næstu
En kólu á jökálunum bröttustu og hæstu.
Hann þandi sig lengst út viS hafsins heljur,
En hálf saup þá hveljur. —
Þar varS hann aS morSingja magurra sauSa,
Sem máttfarna helgreip á bjargleysum dauSa.
1 1-3-’ 17.
Stephan G. Stephansson.
G. THOMAS
Betrdal Bl.ek, Sherbr*.ke IL,
Whmlpeg, Hna,
OJörir við úr, klukkur og allskonar
gull og nllfur atáas. — TJtanbæJar
viðgerðum fljótt sint.
__________ •
Or. f¥f. B. Maf/dorsson
401 DOTD BVILOIH6
Tals. M.la 30HS. Cor Por*. Edm.
Stundar einvörðungu berklasýkl
og aðra lungnajsúkdáma. Er að
ftnna á skrifstofu slnnl kl. 11 til 12
f.ra. og kl. 2 til 4 e.m.—Hetmtli að
46 Alioway ave.
t
TR /OHNSON,
Ormakari og GulismiSur
8«lur giítingaleyflabréf.
(Séwtakt athygll Teitt pönfunum
og TltfjörBtsm útan af laadi.
8tt Maia Bt. . Phon« M. 650«
I. 1. **MND
H. 9, Htnrtknon
l l SWANSON & CO.
rtlTZWDAIALia w
Talalml Mata aa«T
Ooa. fitlM. aad Oarrp. wiulBV
MARKET HOTEt
M* Pif« *m Meéel
á Bdti markaðhnum
8«(u vlafðnp. vlndtar og »ð-
hlynlng gil. Islenkur v.ittnga-
mað.r N Hallddrs.on. leltn>.in-
lr M.adlagnaa
*. rOOSDSL Kgandt
Arnl Andsrs.n B. p. Sarlanð
GARLAND&ANDERSON
L««r**»mGAa
Phoad Mala 15(1
<m CkcMk liaUWay ChambCft
Talstml: Maln 8*02.
Dr. J. G. Snidal
TAKTVLÆTKWIR.
«14 SOSIERSET BLK.
Portago Avenuo. WINNIPEQ
Dr. G. J. Gisíasan
Pl>y*tcVft* flcirf Sarffeoa
Athygli Teltt Angrnn, Ryrna og
Kverka SJékdömum. Anamt
innvortis ejúkdómum eg upp-
ekurtli.
18 8ovth tíré llw Grand Fort«, Iff.Oi,
Dr. J. Stefánsson
4ai MiTB IIUII.ÐIVO
Hornt P.rtago Avo. og Edmontoa Ht
Stundar elngdngu augna, eyrna,
tiaf og kverka-sjúkdðma. Hr að hltta
frá kl. 1« tll 12 t.h. og kL 3 tll & ».h.
Phone: Main 3088.
H.imlil: 1M Ollvla St. Tala. O. 3318
J
f
COLGUzUGH & CO. *
‘5
Vér hSfum fallar htrgðlr hr.tn-
ustu lyfja og meðaia. Komlð
með iyfs.ðla yðar hlagað, vér
gerum m.ðuiin aákvmmlega eftir
ávísan Iteknlslns. Vér slnnam
ntsmsvelta pdntunum og setjirm
glftlngalsyA
Selre Beae d Dkertmihe St
Phos. Garry 2690—2691
A. S. BAROAL
selur Hkkistur og annast um út-
farlr. Allur útbúnaður sá bestl.
Ennfremur selur hann allskonar
tnlnnlsvarða eg iegstelna. : }
818 SHERBROOKB ST.
I
Phvtte «1. 3133 WINNIPEO
ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ UM
heimifisréttarlÖRd í Canada
og NorÖreíturlandinu.
Hvor fjölskyldufaTJir, e9a hver karl-
maíur E«m er 18 ára, sem var brezkur
þegn 1 byrjun striðsins og hefir rertð
það siðan, eða sem er þegn Ðandaþjdð-
anna eða Óháðrar þjóðar, getur tekið
heimilisrétt á fjórðung úr section af ó-
teknu stjórnarlandi í Manltoba, Sas-
katchewan eða Alberta. Umsækjandl
verður sjálfur að koma á iandskrlf-
stofu stjórnarinnar eða unðirskrifstofu
hennar í þvi héraðl. í umboðt annars
má taka land nndir vlssum skllyrðum.
Skyldur: Sex mánaða íbúð og ræktim
landsins af hverju af þremur árum.
f vissum héruðum getur hver land-
nemi fengið forkaupsrétt á fjórð-
ungi sectionar með fram landl sfnu.
Verð: $3.00 fyrtr hverja ekru. Skyldur:
Sex mánaða ábúð a hverju hinnn
næstu þriggja ára eftir hann heflr
hlotlð eignarbréf fyrir heimillsréttar-
landi sfnu og auk þess ræktað 8®
ekrur á hinu selnna iandi. Forkaups-
réttar bréf getur landnemt fengið ura
lelð og hann fær helmillsréttarbréftð,
en þð með vissum skilyrðum.
Landnemi, sem fengið heftr heimiiis-
réttarland, en getur ekkl fenglð for-
kaupsrétt, (pre-emptlon), getur keypl
helmlllsréttarland 1 vissum héruðum.
Verð: $3.00 ekran. Verður að búa á
iandinu sex mánuðl af hverju af þrem-
ur árum, rækta 50 ekrur og byggja hú.
sem sé $300.00 virði.
Þelr sem hafa skrifað sig fyrlr heim-
llisréttarlandl, geta unnlð landbúnað-
arvlnnu hjá bændum i Canada árið
1817 og timl sá reiknast sem skylda-
tfml á landi þeirra, undlr vissara skil-
yrlum.
Þegar stjórnarlönd era auglýst eða
tllkynt ú annan hátt, geta heim-komnir
hermenn, sem verið hafa i herþjðnustu
erls.idis og fenglð hafa helðarlega
lausn, fengið elns dags forgangsrétt
tll að skrifa sig fyrir helmilisréttar-
landl á landskrifstofu héraðsins (en
ekki á nndirskrifstofu). Lausnarbréf
verður hann að geta sýnt skrlfstofu-
stjóranum,
W. W. CORY,
Deputy Minister of Interior.
Blöð, sem flytja auglýsinvu þessa 1
hslmJUslavsi, fá snga borgun fvrir.
v
/