Heimskringla - 07.02.1918, Blaðsíða 4

Heimskringla - 07.02.1918, Blaðsíða 4
4. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 7. FEBRÚAR 1918- á. HEIMSKRINGLA (Stofnnfl 1SS6> Kemur út i hverjum Fimtudegl. frtRefendur og eigendur: THE VIKING PRESS, LTD. VerS blatislns i Canada og BandaríKJ- unum $2.00 um Ari® (fyrtrfram bor*ab). Sent tll lslands $2.00 (fyrlrfram borgab). Allar borganir sendist rábsmanni blabs- lns. Póst eSa banka ávísanir stillst tll The Vlklng Press, Ltd. O. T. Johnson, ritstjóri S. D. B. Stephanson, ráSsmaSur Skrlfstofa: T3* SHERBROOKB STREET., WINNIPEG. P.O, Box 31T1 Talelasi Garry 411« »——— I .111.1 ssn. ■■ .1 WINNIPEG, MANITOBA, 7. FEB. 1918 Friðarhorfur. Víst mun óhætt að fullyrða, að aldrei síðan stríðið byrjaði hafi horfur um bráðan frið verið dauflegra en nú. Herafl Þjóðverja virðist jafn-öflugt og áður og keisarinn þýzki þar af leiðandi jafn-voldugur og hann nokk- urn tíma hefir verið. Þrátt fyrir stórkost- legt manntap hefir þeim þýzku hingað til hepnast að fylla í skörðin og viðhalda her- sveitum sínum á öllum svæðum. Og nú þeg- ar Rússar eru alveg úr sögunni sem stríðs- þjóð bandamanna megin, gefur að skilja, að áframhald stríðsins verði Þjóðverjum að miklum un auðveldara en áður. Sigurvonir þeirra hljóta að glæðast við hvern sigur- vinning og sjálfstraust þeirra að aukast. Nú sjá þeir sér fært að tvöfalda herafla sinn á vestur-svæðunum, og á meðan hermál þeirra eru í svo góðu gengi, er ekki nokkur minsta ástæða til að halda, að stefna þeirra sé bráður friður. Að minsta kosti ekki þeirra manna á Þýzkalandi, sem á bak við hermálin standa. Margt bendir þó til þess, að afstaða þýzkrar alþýðu gegnt stríðinu sé önnur nú en áður. Ef nokkuð er að marka fréttir þær, sem þaðan hafa borist, virðist tiltrú hennar í garð yfirboðara sinna hafa að stór- um mun þverrað frá því, sem áður var. Hörmungar stríðsins hafa lagst þyngst á verkamanna stéttirnar og því full líkindi til þess, að þeim sé farið að þykja nóg komið og séu teknar að þrá friðinn af alhug. En stéttir þessar, hvort sem um bændastéttir er að ræða eða verkamanna stéttir, megna sín lítið á Þýzkalandi. Hervaldið ræður þar lögum og lofum undir stjórn hins einvalda keisara, og mun ekki reynast um megn að bæla niður uppreistir alþýðunnar. Síðustu viku var sagt frá verkföllum mikl- um á Þýzkalandi og var gert mikið veður úr þessu um tíma. Sjö hundruð þúsund manna höfðu átt að hafa gert verkfall í Berlín og einnig var sagt, að verkföll í stórum stíl hefðu átt sér stað í öðrum borgum landsins. En ekki leið á löngu að á því fór að bera, að fréttir þessar voru annað hvort eitthvað orð- um auknar eða þýðing þessa ekki eins stór- vægileg og haldið var í fyrstu. Fréttirnar snerust þá á þá leið, að leggja áherzlu á, að yfirvöldunum þýzku myndi ekki reynast of- urefli að bæla þessar uppreistir fólksins nið- ur. Þessu til staðfestingar kom svo fréttin í lok vikunnar, að stjórnin væri búin að setja borgina Berlín undir herrétt og um leið að skipa verkamönnum öllum að taka tafar- laust til starfa aftur í byrjun þessarar viku, eða mæta þungri hegningu að öðrum kosti. Þegar svo er komið, eru lítil líkindi til annars en verkföllunum í Berlín sé Iokið. Alþýðan Þýzka er frekar ósjálfstæð, margra alda kúgun einveldisins hefir dregið úr henni dug og gert hana undirgefna og eftirláta. Umkringdur af hermönnum og lögreglu mun verkalýður Berlínar og annara borga Þýzka- lands sjá hag sínum bezt borgið með því, að taka til starfa aftur og hætta allri mót- spymu. Ekki er þó með öllu ómögulegt, að þetta kunni að fara á annan veg. Við öllu má bú- ast á jafn viðburðaríkum tímum og nú eru. Skeð getur, ef til vill, að verkalýðurinn þýzki þrjóskist á móti hervaldinu og lög- reglunni og þverneiti að vinna, unz kröfum þeim er fullnægt, sem hann fer fríun á. Ef svo ólíklega færi að þetta gæti fyrir komið, þá er alt komið undir afstöðu þýzku her- mannanna. Fari þeir að dæmi rússnesku hermannanna, er stjórnarbyltingin átti sér stað á Rússlandi, og neiti að snúast andvígir meðbræðmm sínum, þá er öllu borgið. Sambandsráð verkmanna og hermanna gerði stjórnarbyltinguna á Rússlandi mögulega. og þessi sama samvinna væri það eina, sem or- sakað gæti stjórnarbyltingu á Þýzkalandi. —En þegar þetta er skrifað, em ekki nokk- ur merki þess sýnileg, að þetta muni geta iátið sig gera hjá þýzkri þjóð. Hervaldið heldur þar um stjórnvölinn. En þó ástandið á Þýzkalandi sé nú þannig og herinn þýzki öflugri en áður, er engin á- stæða fyrir bandaþjóðirnar að örvænta. Herafli Breta er að stórum mun meiri en áð- ur; hermennirnir betur æfðir og herbúnað- ur allur nú betri en nokkurn tíma áður. Frakkar eiga enn stóran her og harðsnúinn —hermennirnir frakknesku eiga fáa sína líka. Bandaríkin eru komin í staðinn fyrir Rússland. Kafbátahernaðurinn þýzki er nú viðráðanlegri en áður. Zeppelinarnir stóru eru úr sögunni að því er virðist. Sjófloti Þjóðverja kemur þeim að sáralitlum notum og vogar lítt á sér að bæra. Sem dæmi þess hve Þjóðverjar megna sín lítils á sjónum, má geta þess hve fáum herflu,tningsskipum þeim hefir tekist að sökkva.—Það em helzt varnarlaus kaupskip, sem þeir ráða við og sem þeir sökkva líka óspart. Bandaþjóðirnar bíða því átekta og kvíða engu. Þó alt bendi til þess, að síðustu at- rennur þessa stríðs verði stórkostlegri og ægilegri en allar undangengnar atrennur, þá eru þjóðir þessar samt vongóðar um að þeim auðnist að vinna sigur stríðinu. Vafalaust er þetta rétt hugsun og heppileg stefna, úr því út í þenna hörmulega hildarleik er komið. y Og fullvíst er, að ekki verður friður sam- inn fyr en stríðinu er lokið. Tæplega kemur svo út blað eða tímarit hér í landi um þessar mundir, að ekki birtist einhver ritgerð um hinn væntanlega al- heimsfrið og samband þjóðanna eftir stríð- ið. Margar af ritgerðum þessum eru góðar, lýsa miklum áhuga fyrir þátttöku þjóðarinn- ar í stríðinu og eru þrungnar af sannri þjóð- rækni frá fyrsta orði til þess síðasta. Ekki verður þetta þó sagt um ritgerðir þessar allar. Sumar þeirra bera þess aug- Ijós merki, að höfundar þeirra hafi aldrei verið við stjórnmál riðnir — og séu því gæddir jafn-víðtækri þekkingu á stjórnmál- um þessa heims og maðurinn í tunglinu. Með mesta spekingssvip útskýra þeir þó öll helztu vandamál þjóðanna fyrir fáfróðum almúganum og klæða hugsanir sínar í svo fagran búning, að án efa leiðast margir til að halda þá vera þaulæfða stjórnmálagarpa, sem bæði tali af víðtækri reynslu og yfir- gnæfandi stjórnmála-þekkingu. Eftirtektaverðast af öllu við ritgerðir þessara manna er, hve Iítið þeir minnast á stríðið. Stríðið sjálft virðist einungis vera auka-atriði í hugum þeirra — þeir eru svo önnitm kafnir að ræða afleiðingar þess! Hinn væntanlegi alheims-friður er þeirra aðal-umhugsunarefni og þreytast þeir aldrei á að gefa ráð mörg og góð við komandi stofnsetningu alheims sambarids, sem stuðl- að geti til þess að afstýra blóðugum stríðum í framtíðinni. En hver þjóðhollur borgari þessa lands hlýtur fyr eða síðar að fá ímugust á slíku friðar-glamri. Öllum hugsandi mönnum er skiljanlegt, að hinn væntanlegi friður verði algerlega undir úrslitum stríðsins kominn. Til lítils hefir þjóð þessa lands sent rúmar fjögur hundruð þúsundir sinna hraustustu sona til vígvallar, ef einu gildir hvor hliðin vinnur. Engum manni, sem nokkuð hugsar, getur dulist, að í stríði þessu sé verið að / berjast fyrir tveimur gagnólíkum friðarhug- sjónum. Friður Þjóðverja er friður varðað- ur af einvaldsstjórn og hervaldi; friður bandaþjóðanna er grundvallaður á lýð- frelsi og viðleitni þjóðanna til samkomulags bræðralags. Engum manni er Iáandi þó hann þrái frið; en þeir friðarpostular, sem semja sláandi klausur um hinn væntanlega alheims frið, án þess að minnast með einu orði á þátttöku Canada í stríðinu og án þess að láta sér um munn fara eitt einasta hvatningsorð til þjóð- arinnar — þeir menn eru að bregðast skyldu sinni. Björtustu friðarvonir bandaþjóðanna hljóta að hvíla á sigurvonum þeirra í stríð- inu. Ef einveldið þýzka sigrar, sem stríði þessu steypti yfir heiminn, þá er öll von úti um varanlegan alheims frið. Núverandi stjórn Rússlands var um tíma vongóð um að geta samið viðunanlegan frið við Þjóðverja. Friðar-ráðstefnan í Brest- Litovsk hefir þó borið sáralítinn árangur, og svo mikið er víst, að leiði hún til friðar verð- ur það þýzkur en ekki rússneskur friður. Sannar þetta ljóslega, að ábyggileg friðar- ráðstefna verður ekki haldin fyr en Þjóð- verjar hafa farið halloka í stríðinu, eða hafa beðið algeran ósigur. Þá en fyr ekki er hægt að semja frið við þá menn, sem þrá að drotna yfir öllum heimi. En þegar ráðstefna þessi verður haldin— hve nær sem það verður,—mæta á henni vitrustu stjórnmálamenn þjóðanna. Þá verða fyrstu sporin stigin í áttina til þess að koma á alheims friði. En vitanlega verða þetta að eins fyrstu sporin og framtíðinni falið aðal-verkið. Við öðru er ekki að búast, eins og skipu- lagi öllu er nú háttað hjá þjóðunum. Á meðan önnur eins sundrung ríkir heima fyrir hjá öllum þjóðum og nú á sér stað, eru litlar líkur til þess að þær fái fetað hröðum skref- um í áttina til alheims-friðar. Hver þjóð- heild skift í ótal stéttir og flokka, sem eiga í sífeldri baráttu. Hver höndin vinnur upp á móti annari. Kirkjan, sem ætti að vera æðsta stofnun þjóðanna, er skift í óteljandi parta, sem aldrei kemur saman.—Ef kirkj- an kristna hefði í orðsins fylsta skilningi verið kirkja guðs á jörðinni, þá hefði hún verið búin að, stofna til þessa alþjóða frið- arsambands fyrir löngu, sem gert hefði blóð- ugar styrjaldir með öllu ómögulegar. En þessu var ekki að fagna. Þegar önnur eins sundrung og barátta rík- ir heima fyrir hjá hverri þjóð, er sízt að undra þó samkomulag landa á milli hafi stundum verið bágborið. Aðal-verkefni hverrar þjóðar er í henn- ar eigin Iandi heima fyrir. Til þess að var- anlegur alheims friður geti komist á, verða þjóðirnar af kappi að stuðla að allri þrosk- un þegna sinna, að útrýma hatri þeirra og sundrung og glæða bróðurkærleika þeirra og samhug. Á þessu grundvallast hinn varanlegi al- heims-friður. Joseph Caillaux. Sorglegt dæmi þess, hve mjög sumir ein- j staklingar geta spilst af auðnum er Joseph Caillaux, fyrverandi forseti hins frakkneska ' lýðveldis. Hann er nú í varðhaldi, kærður um landráð. Mál hans hefir ekki verið rann- sakað að fullu enn þá, en allar líkur benda til þess, að hann muni verða íundinn sekur. Skyldi svo ólíklega fara, að honum hepnist að hreinsa sig af ákærum þessum, þýðir það I fall núverandi Frakklands forseta. En að svo kömnu er enginn vottur þess sjáemlegur, að slíkt geti komið fyrir. Joseph Caillaux hefir kynt sig þannig í landi sínu allan sinn stjórnmálaferil, að fjöld- inn þar er auðtrúa á sviksemi frá hans hálfu í garð frakkneskrar þjóðar. Frá fyrstu tíð hefir hann verið óvinveittur Englandi og Bandaríkjunum, en hollvinur Þýzkalands. Enda hefir Þýzkaland verið aðal-auðsupp- spretta hans og auðinn metur maður þessi meir en alt annað. Hann er vellauðugur og hefir grætt einna mest á verzlunarsambandi því, sem hann í fjölda mörg ár hefir verið í við auðmenn á Þýzkalandi. Hann hefir komið þannig fram, að ekki er neitt að undra, þó á honum hvíli mörg tor- trygnisaugu. Öllum kemur saman um, að hann sé skýrleiksmaður mesti og svo slung- I inn í öllum viðskiftum, að þetta hefir verið t haft að orði um alla Evrópu. Ef um pen- ' ingahagsmál er að ræða, gætir lítillar sóma- tilfinningar hjá honum og hefir hann oft kært sig kollóttan, þó hann bryti í bága við lög landsins að einhverju leyti. ÖIl fyrri lagabrot hans, sem oft og tíðum hefði ekki ; verið hægt að sanna á hann—þó þetta væri á allra vitorði—öll þau brot verða þó smá- vægileg í samanburði við brot það, sem hann er nú í varðhaldi fyrir. Enda bíður hans að líkindum dauðahegning, ef þetta sannast á hann. Joseph Caillaux var fæddur árið 1863 og er sonur háttstandandi stjórnmálamanns, sem um eitt skeið var fjármálaráðherra hinnar frakknesku lýðveldisstjórnar. Líktist hann föður sínum í mörgu og reyndist honum fremri í öllu er að fjársýslu Iaut. Snemma gaf hann sig við stjórnmálum og árið 1899 var hann gerður að fjármálaráðherra — og þar með settur í sama sæti og faðir hans hafði haft. Þremur árum seinna Iagði hann stöðu þessa niður og gaf sig eftir það að ýmsu öðru þangað til 1906, að hann var gerður að fjármálaráðherra aftur. Clemen- ceau, núverandi forseti Frakklands var þá forseti og voru þeir Caillaux og hann samhuga í mörgu og gekk því samvinnan oft vel. — En þegar um sanna þegnhollustu til Frakk- lands var að ræða, voru menn þessir þó eins ólíkir og dagur og nótt. Um þessar mundir og nokkur ár eftir þetta var Caillaux alment viðurkendur sem einn af öflugustu stjórnmálamönnum á frakkneska þinginu. Árið 1911 var hann fenginn til að mynda nýtt stjórnarráðuieyti og falin æðsta stjórn. Tók hann við völdum á hættulegu tímabili og féll á hans herðar að leysa úr mörgum og fkSknum vandamáium og um tíma virtist honura farast þetta vel úr hendi. Brátt tók þó sá grunur margra að vakna, að alt væri ekki með feldu við stjórnarathafnir hans. Voru þær sakir á hann bornar, að hann notaði mest stöðu sína ti hagsmuna fyrir sjálfan sig og hefði þannig borið stórgróða úr býtum hvað eftir annað. Þá var honum einnig borið það á brýn, að hann væri þýzksinnaður mjög og drægi meir taum Þjóðverja en sinnar eigin þjóðar. Leiddi þetta til svo sterkrar mótspyrnu gegn honum, að hann neyddist til að segja af sér forsetastöðunni, eftir að hafa ver- ið við völdin í tæpt ár. Svo lag- lega fékk hann þó búið um hnút- ana, að áður mjög langt leið og orðrómurinn ofannefndi var tekinn að hjaðna, var hann gerður að fjármálaráðherra í annað sinn, og hélt hann þeirri stöðu þangað ti 1914. Kom þá fyrir sá atburður, sem gerði óumflýjanlegt að hann misti stöðuna og þrýsti svo að honum, að eina úrræði hans var að bjóða sig í herþjónustu. Var hann þá gerður að gjaldkera við eina herdeildina um hríð, því fjár- sýsla virðist það starf, sem for- sjónin hafði útvalið honum sem heppilegasta lífsstarf hans. Lesendurnir munu minnast at- burðar þess, sem að ofan er getið og sem svo miklar afleiðingar hafði fyrir Caillaux. Þetta var þegar kona hans, 10. marz 1914, fór til skrifstofu ritstjórans að blaðinu “Figaro” og skaut hann til bana fyrir að hafa birt í blaðinu meiðyrði um mann hennar. — En ritstjóri þessi hafði gengið ötullega fram í því, að uppljósta ýmsum fjárglæfrasvikum Caillaux og hafði margsinnis bent á í hve hættulega nánu sambandi hann stæði við þýzka fjármálamenn. Um morð þetta varð víðrætt um allan heim. Maddama Caillaux var hnept í varðhald og skömmu síðar svo hafin rannsókn í máli hennar. Svo örugglega fengu málafærslu- menn hennar varið hana, að á end- anum var hún sýknuð af morði þessu og eftir það látin laus. Maður hennar var ekki lengi gjaldkeri við herinn. Áður Iangt leið móðgaði hann brezka fyrir- liða og sömuleiðis eigin yfirmenn sína í París, og fyrir óhlýðni þessa var honum hegnt með tveggja .vikna varðhaldi. Eftir þetta fékk hann lausn frá herþjónustu og fór hann þá til Suður Ameríku. Þar á hann á ýmsum stöðum, sérstaklega þó í Argentina, að hafa verið rið- inn við samsæri með Þjóðverjum, og hafa verið færðar góðar sann- anir fyrir þessu af njósnurum í tveimur heimsálfum. Á meðan hann var í Argentínu, var því þar alment trúað, að hann myndi í ein- hverjum leynilegum erindagerðum fyrir stjórn sína. Stjórn Banda- ríkjanna hefir þó leitt í ljós sann- anir fyrir því, að í þessari ferð var hann að reyna að koma á leynileg- um friði á milli Frakklands og Þýzkalands. Nokkru síðar fór hann til Frakk- Iands aftur og eftir að hann hafði dvalið í heimahögum um tíma, Iagði hann upp ásamt konu sinni í ferð til Ítalíu. Á meðan hann var í ferð þeirri var það, að blað- ið London Times birti lesendum sínum þær óvæntu fréttir, að eng- inn annar en Joseph Caillaux, fyr- verandi forseti Frakklands, væri nú frumkvöðull að ýmsum sam- særum, með því markmiði að koma á friði milli Frakklands og Þýzkalands. Samsæri þau, er blað þetta skýrði frá, áttu sér flest stað á meðal þýzksinnaðs heldra fólks á Ítalíu. Hve víðtækar þessar frið- arhreyfingar voru kemur ekki í ljós fyr en rannsókninni í máli Caillaux er lokið. Þrátt fyrir grein þessa í blaðinu Lonton Times, fékk Caillaux að dvelja óáreittur á Frakklandi um tíma. Sem aðrir vellauðugir menn hefir hann víða fylgi á yfirborð- inu og það á meðal manna, sem eru alt annað en velunnarar hans. Vann hann þannig í kyrþey og virt- ist vald hans vera að aukast aftur með hverjum degi. Áhrifum hans er kent um hrun Painleve ráðu- neytisins síðast liðið vor. | DODD’S NTRNA PILLtTR, góSar fyrlr &Ilako*ar nýrnaveikL Lækna gigt, bakverk og syknrveiki. DodcTs Kidniey Pflls, 60c. askjan, sex Öskj- ur fyrir $2.50, hjá öllum lyfsölran e&a frá Dodd’s Medlcine Oo., Ltd., Toronto, Ont. En svo snerist núverandi forseti Frakklands gegn honum opinber- lega og bar á hann kærur þungar og margar. Leiddi þetta til þess, að rannsókn var hafin í máli hans og hann svo settur í varðhald áður langt leið. Nú bíður hann dóms síns og horfur hans eru þær í- skyggilegustu. -----o---- Ferðalýsing. Eftir H. E. Magnússon, (Framh. frá 2. ,bls.) sér bá ánægju, að skrifa eittihvað á íslenzku á eina eða tvær blað- síður. Detta væri safn af endur- minninguim frá vinuim, sem liaiui hefði kynst hér á sjúkrahúsinu, síðan stríðið byrjaði, og væri sér stór ánægja í að líta yfir bað, l>eg- ar beir væru farnir. Eftir að eg haíði fylt eina biaðsíðu í bókinni með íslenzku, ikvaddi hann mig sem góðkunningi. Eftir það vitj- aði hann mfn annan bvem dag, meðan eg dvaldi þarna. Ei-nn daginn var annar frakk- neski maðurinn tekinn og fluttur á vitfiringahæfi; hann hafði fengið “sh-ell sfiock” af verstu tegund. Eftir fimm vikpa tfma vorumt við Canadamennirnir tveir fluttir á canadiskt >sjúkratiús í Epsonm, og að viku liðinni vorum vjð sendir þaðan til “Canadian Special Hos- pltal” við Buxton. t>ar var eg f fimm vikur. Viðurgjörningur þar var allur lakari en í Neweastle, en þó í alia staði viðunanlegur. Detta er mín eigin reynsla af sjúkrahússlífinu á Englandi og varð eg ekki fyrir neinum sérstök- um hlunnindum, heldur var farið jafnt með alla þá sjúiklinga, sem eg var samtíða. Af lifnaðarhéttum og meðferð & hermönnum í Iherbúðum (camps) á Frakklandi og Englandi hafa farið misjafnar sögur, og em oft gildar ástæður fyrir því. I»að er aðallega undir yfiitmönnum (offic- ers) komið, hvaða kjörum menn eiga að sæta meðan þeir ©ru við æfingar. Canada herinn hefir étt og á enn marga ágætis yfirmenn, sannkölluð mikiinienni og hetjur, en þó um ieið hjarta góð ljúfmenni, þótt margir af þeim hugprúðustu liggi nú undir isvörðum Frakk- lands. Þeir hafa verið efskaðir og virtir af öllum þeim. sem þeir höfðu einlhver kyinni af og áttu yf- ir að ráða. En svo á Canadaber- inn nokkra forinigja, isem eru hafc- aðir af öllum og eru ekki stöðum sfnum vaxnir að neinu leyti, ef ranusókn væri gerð á starfi þeirra. Deir eru stór byrði á þjóðinni og í mörgum tilfelluim ihafa þessir menn ráðið yifir aðhlynningu og æfingum herdeildanna áður en þær voru sondar til vígvallar. En þar sem þeissir menn ráða lögum og lofum, líður ihinum undirgefnu ilia. Þar sem herdeildir hafa lið- ið ihungur í herbúðunum, kerour til af því að þessir menn eru óráð- vandir. Eg hefi vitað um þetta og kymst því sjálfur. Eg hetfi verið f herhúðum, þar sem við hefðuim ekki getað afborið æfingárnar, ef við hefðum ekkí haft peninga tif að kaupa okkur mat, þar til við gerðum uppreisn og hótuðum öllu illu; kom þá fram, að nóg var tii og fengum við eftir iþað um langam N tíma bezta fæði. Þeir sem áttu að sjá um vistaforða herdieldarinnar, voru þjófar, og hefðu áfct að rek- ast fá stöðum sínum, að minsta kosti þegar uppvíst varð um þá.— Svo hefl eg verið í mörgum herhúð- um, þar sem öllum leið vel og yfir- drifs mikið á borð borið, sem auð- vitað stafaði af því, að umisjónar- mennirnir stóðu heiðarilega í stöðu sinni. .Stjórnin í Canada leggur , afnan hlut til ailra hermann® sinna eftir stöðu þeirra í hemum, og getur ölluim liðið vel til klæðis og fæðis, ef rétt væri á haldið. Sökin liggur því hjá einstökum mönnum, þegar út af ber. Eg hefi orðið var við það hjá alimörgurn, sean eg hefi talað við

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.