Heimskringla - 28.02.1918, Page 5
WINNIPEG. 28. FEBRÚAR 1918
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA
hann þektu. Hann var maður hæg-
ur og stiltur í dagfari, og hinn
vandaðasti í öllu.
Það var haft til orðs um hann,
að í viðskiftum hugsaði hann
fremur um hag viðskiftamannsins
en sinn eigin. Er það ávalt ein-
kenni hinna beztu manna, og verð-
ur hverjum, er sér temur, andlegur
auðlegðarauki, er hann hefir með
sér í förina hinztu, Þótt ef til vill
verði auðurinn minni í bili.
Halldór heitinn hafði brennanda
áhuga á hverju starfi, sem hann
tók sér fyrir hendur. Og er það
dæmi þess, hvernig hann hélt Í/jfb
um sínum áfram með miWfh
þrautum af þeim sjúkdómi, sem
leiddi hann til bana, síðustu vik-
umar, sem hann lifði.
1 andlegum efnum var hann
hinn mesti alvörumaður, með á-
kafa sannleiksþrá í brjósti, leitandi
símnleikans hvar sem eiginn hugur
hans benti.
Leiðirnar til guðs og eilífs lífs
eru margar. Og sú leiðin hverjum
heppilegust, sem vekur flest af öfl-
um eilífs lífs í sálu hans og gerir
hann að sönnustum manni.
1 umgengni var Halldór heitinn
hvers manns hugljúfi og trúfastur
vinur vina sinna.
Dagsverkið jarðneska er nú á
enda. Börnin hans fjögur eru hér
við líkkistuna hans föður síns, öll
of ung til þess að vita, hve mikils
þau hafa mist.
Eiginkonan hans, sem ung gaf
Honum hug og hjarta, verður nú
fyrir þeim þyngsta harmi, sem fyr-
ir konu getur komið, að verða, svo
snemma æfinnar, ein eftir skilin
með barna hópinn sinn, og sjá
hann borinn burt af heimilinu
þeirra, sem fórna vildi hverri
stundu og öllum kröftum fyrir vel-
ferð ástvinanna, sem drottinn
hafði gefið honum.
En trúr er sá, sem fyrirheitin
hefir gefið. Öll fyrirheit guðs eru
Sólarljóð.
SólgrytSjan kevtSur þau í ársbyrjun
1918.
Eg við sólar segulhjólið
sver og róleg drep á ekjöld:
hnJga’ af stóli nú skad Njóla
og Norðri sjóli missa völd.
Minn skal ljómi, að dagsins dómi
dreiía grómi þoku iheims;
friðarhljóma fagur ómur
fylla tómið sóJargeims.
Þegna mína kýs eg krýni
kærleiks iínið guðvofjar;
geðblær sýni’ að hjörtun hlýni;
'hamíör dvíni styrjaldar.
Skerpist onn þá öflug kenning,
upp svo renni siðabót;
karla’ og kvenna mLkilimenni
myndi þennan öldubrjót
Systur, bræðmr, menn og mæður
með sjáílfstæðls fánann hátt
'heftið æði, hindrið bræði,
heimtið næði, grið og sátt.
Ioforð um fögnuð, sem vér eigum
framundan. Þessi harmastund er
guðlegt fyrirheit um kærleiksríka
huggun og dýrlegan fögnuð, sem
er í vændum.
Sá guð, sem fyrirheitin hefir
gefið, er athvarf ekknanna og
munaðarleysingjanna. Hann sér
þeim borgið. Hann, sem fól hana
móður sína elskuðum lærisveini,
sér ykkur borgið. Hann sér oss
öllum borgið.
Hann lætur hverja skilnaðar-
og harmastund vera opnar dyr inn
á eilífðarheimilið,—hlið sem huga
vorum opnast inn á eilífðarlandið,
er vér sjáum ástmennin hjartfólgn-
ustu, sem vér áttum, leidd þangað
inn til konunglegrar dýrðar og göf-
ugri ætlunarverka.
Hann, hinn trúfasti, gefur góð-
um foreldrum, sem um fram flesta
aðra hafa bæði viljann og máttinn,
hug og hjartalag til að styðja
harmandi dóttur.
Hann gefur systkinum og öllum
ættingjum hins látna það kærleiks
hugarfar, sem eigi lætur neitt tæki-
færi ónotað til að hlúa að og friða
um ástmennin, sem hann skildi
eftir.
Frelsarinn er stöðugt að frelsa
með því að þrýsta upp á oss hvers
annars byrði og láta oss bera. Vér
frelsumst sjálfir með því að láta
hann kenna oss að frelsa.
Látum það ávalt vera gjört með
fögnuði. Af öllum kvöðum lífsins
og lífsins föður ætti það að vera
sú ljúfasta og sælasta. AIls vegna,
en einkum sökutn fyrirheitanna.
Munum, að vér erum fyrirheitanna
börn.
Biðjum um þá trú, sem til þess
þarf að lifa í fyrirheitunum og til-
eink* oss þau, fyrir drottin vorn og
frekí§ra, Jesúm Krist.
(Birt að tilmælum ekkjunnar og
ættingjanna.)
Þótt cmeð blóði rúnir rjóði
refilslóðum tímans spjald,
reynslusjóðir sýni þjóðum
sigrur ihins góða, tign og vald.
J. Jochumsson.
Dánarfregn.
Laugardaginn 2. febrOar andaðist
að Ninette Sanatorium, Man., Sigfús
Jónsson, elzti sonur hjónanna Mr. og
Mrs. J. Jónsson, Selkirk. liinn fram-
liðni var 28 ára að aldri, fæddur að
Ketilsstöðum í Jökulsárthlíð f Norð-
urmúlasýslu, þann 14. október, 1889.
Séra N. S. Thortláksson hélt hús-
kveðju á heimili forelda 'hins látna
og fiutti ræðu í kirkjunni; einnig
flutti séra Rúnólfur Marteinsson
ræðu á ensku. Hinn framliðni var
jarðsunginn 1 hinum ísl. lútcrska
grafreit í Mapleton á fimtudaginn 7.
febrúar af séra N. S. Thorlákssyni.
Þakkarávarp.
Innilegustu þakkir til allra þeirra,
or á eion eða annan hátt sýndu okk-
ur hiuttekning við fráfall okkar ást-
kæra sonar, Sigfúsar Jónssonar, og
heiðruðu útför hans með nærveru
sinni og sendu blóm til að prýða
kistu hans. Einnig þökkum við ai
hjarta hinum mörgu vinum hans, er
á ýmsa vegu sýndu honu-m góðvild
í veikindum hans.
Selkirk, Man., 12. febr., 1918
Guðlaug M. Jónsson.
Jón Jónsson.
-------o-------
Á flækingi
Eftir Gl. Tr. Jónsson.
“Þar sem enginn þekkir mann,
i>ar er gott að vera” o.s.frv.
I.
Það er ekki langt siðan á jólum,
en dvalarstaðir mínir hafa á tima-
biHnu verið Winnipeg,Ottawa,Mont-
real—og nú síðast Halifax, og má sá
aiivitri elnn vita, ihver sá næsti verð-
um, líklegast Jerúsalem — eða Sel-
kirk—, saroa er mér í hverri Kefla-
víkinni eg ræ—eg á hvergi heima,
hvort sem er.
En eg drógst á það við ritstjór-
ann, þá eg kvaddi hann, að senda
Heimskringlu nokkrar línur við og
við, því hvorugum okkar þótti
sæmandi, að liljótt skyldi með öllu
um nafn mitt. Nöfn dánumanna
eru þess virði, að þeim sé haidið á
lofti—af þeim sjálfum, ef aðrir fást
ekki til þess
Það er nú orðið svo admúgalegt,
að skrifa ferðasögur, þó jafnvel ekki
sé farið lengra en til Gimli, að eg
fæst ekki við það; vil heldur með
nokkrum orðum minnast tveggja
þeirra staða, sem eg hefi verið sott-
ur niður í—; niðursetningar hafa
þó sjaldan mikils að minnast.
Ottawa og Halifax verða þá fyrir
valinu.
Ottawa.—Eg kom þangað á nýárs-
dagsmorgun. Enga sál þekti eg þar
og borgin mér með öllu ókunn; eg
tók því bóifestu á ihóteli. Vegna
þess þetta var helgidagur, ]>á gat
eg ekki “presentérað” sjálfan mig
fyrir—jsambandsstjórninni, en hana
var eg kominn að finna. Afréði eg
því við sjálfan mig að “spásséra” um
etætin og “imponera” dónunum —
með persónu minni. En á vegi mín-
um urðu mestmegnis yngismeyjar,
eða iþví sem næst. Tók eg fljótlega
eftir því, að stutt pils eru þar i
"móð” og ihvítir sokkar. Vindur var
um daginn og staðnæmdist eg titt
á götuhornum. Ungmeyjarnar höfðu
nóg með að halda um hattana. Eg
blíndi og vindurinn blés.
Næsta dag leigði eg mér herbergi
í stórhýsi einu, sem átti að vera bú-
staður fyrir karlmepn einvörðungu;
en ekki Ihafði eg verið þar margar
nætur, þegar eg fór að taka eftir
lóukvaki að næturlagi—í herbergj-
unum í kring um mig; og það voru
ekki fleygar lóur sem kvökuðu. En
eins og sæmdi fyrverandi djákna í
Unítarasöfnuði, breiddi eg yfir höf-
uð mér og stakk upp í eyrun; því
eins og Páll postuli segir, djöfulsins
vélabrögð eru margvísleg og koma
frarn í ýmsum myndum..
Nú hvað Ottawa sjálfri viðvíkur,
þá er borgin hin fegursta: reisuleg-
ar byggingar, vel upplýst stræti og
meiri hluti fbúanna snyrtifólk, —
sem ber að vera f höfuðborg lands>
ins, þar sem sitja allir mætustu
menn þjóðarinnar: Hertoginn, Bor-
den, Laurier, Siftons-bræðurnir, og
ættingjar þeirra. Um þetta leyti
var og Hon. T. H. Johnson staddur
í borginni—og svo eg—og jók það á
mannvalið. Þing sat ekki, og var
því sá skari, sem prýðir borgina 9
mánuði ársins, fjarverandi. Harm-
aði eg það, því eg ásetti mér að vera
tíður gestur á þingfundum og lœra
pólitfk og málsnilli; raunar var eg
á mínum Heimskringludögum af-
burða pólitíkus, en mér heflr förlað
með aldrinum.
Ottawa er siðpúður staður, og
ber aðailega tvent til þess; fyrst, að j
þar eru auðmenn margir og höfð- í
ingjar, sem ávalt geta veitt sér alt á!
huldu; en hitt þó heldur, að áfast •
við Ottawa er Hull. Er sá bær Que-1
bec megin—þar eru Prakkar, þar er j
lauslæti og þar fæst vín. Streyma
Ottawa-menn þangað á hverjul
kveldl, til að hressa hrelda sáil eftir
strit og þunga dagsins —
“Þegnar unnu þeseum stað,
þar er næði að spjalla um málin;
þangað runnu þegar að
þyrst er bæði líf og sálin.—
Eg fór tíðum til Hull.
Eins og geta má nærri, hefir höf-
uðstaður landsins margt fram yfir
aðrar borgir þessa lands, þó fá-
mennari sé en þær sumar hinar.
Ottawa mun vera firnta borgin í
röðinni, hvað fólksfjölda snertir.
Bókasafn er hér ágætt, langt um
betra en Winnipeg safnið; hér er og
málverkasafn all-vandað. Eg er eng-
inn lisbdómari, en eg hefi séð raál-
verkasöfn bæðl í Lundúnum, Kuup-
Halldór Eggertsson. Kveöja frá konu hans. Sungið við jaröarförina af Halldóri Þórólfssyni. Á ströndinni köldu eg kveS þig, vinur minn, eg kveð þig með tárum; á hafið eg stari og eygi anda þinn á eilífðar bárum, eg sé hvar þú lendir við lífsströnd hinum megin. og ljósið frá sál þinni birtir mér veginn, unz kem eg til þín, til þín; eg kem til þín. Eg verð að bíða og brosa gegn um tár hjá blómunum þínum, því sviðanum vildi eg verja þeirra sár í veikleika mínum; en þegar mig syfjar og höfuð þreytt eg hneigi og hvíldar eg þarfnast að enduðum degi þá kem eg til þín, til þín; eg kem til þín. Sig. Júl. Jóhannesson.
f i
mannahöfn og Edinborg og svo
]>etta í Ottawa; ]>að er auðvitað
ininst, en engu að siður eru þar
mörg málverk, sein standa engu að
baki þeim betri i hinum söfnunum.
—Málverkasafnið f Reykjavík liefi
eg aldrei séð.
Leikhús eru hér mörg talsins, flest
nýlega bygð og skrautleg; éru þau
flest kvikmyndahús, og kostar inn-
gangurinn 27 cent; kunni eg illa
þeim prís, ekki vegna þess hvað hár
hann var, ó aurunum hefi eg aldrei
verið sinkur; hitt var það, mér
fanst ihann afkáralegur;—en greina
má orsökina: í Ottawa og Ontario
er “war tax” settur á ihvern aðgöngu
miða, sem seidur er, og nemur
hann tveim centum á hverjum 25-
eenta aðgöngumiða. í Manitoba og
Nova Scotia eru stjórnimar svo ó-
menta^^ að skattskylda leikhiisin
sjálf;—Ontario og Quebec leggja
skatt á þá sem leikhúsin sækja.
Stjórnmáladeiiur heyrði eg engar;
era allir Unionistar í Ottawa, nema
Laurier og Frakkar hans, en eg skii
ekki frönsku. Aftur var fljótlega
auðséð hvoru megin Hull var í póli-
tfkinni. 1 hverri drykkjukrá hékk
stór litmynd af Sir Wilírid Laurier.
Einnig tók eg eftir því, að það var
auður krókur f veggjunum við hlið-
ina á myndum þess gamla, og er eg
spurði hvernig á því stæði, var mér
sagt að þar ætti að hengja Sig. Júl.
Jóhannesson, þá hann væri afmynd-
aður. Að eins einn af ráðherrum
sambandsstjórnarinnar heyrði eg
tala, á mannamótum; var sá Hon.
N. W. Rowell, fyrverandi leiðtogi
Ontario-liberalanna; hann talar vel,
líkt og Aikins, en hann talaði um
gagnsemi vfnbannsins og gat hann
látið það ógert;— en hann ihefir lík-
lega ekki vitað, að eg var til staðar.
Ekki heilsaði eg beinlfnis upp ó
hertogahjónin, meðan eg dvaldi í
Ottawa, en þau vora í sama leikhús>
inu og eg eitt kvöld, og ekki sýndist
mér betur en þau líta tvígang í átt-
ina þar sem eg sat við hliðina á
rauðhærðu stúlkunni minni, en
hvort það var eg sjálfur eða sú
rauðhærða, sem vakti eftirtekt
þeirra hágöfugu, veit eg trauðla; ef
til vill líka missýning af rainni
Nefið Stíflað af Kvefi
eða Catarrh?
REYNIÐ ÞETTA!
Sendu eftir Breath-o-Tol In-
haler, minsta og einfaldasta
áhaldi, sem búið er tiL Set+u
eitt lyfblandað hylki, — lagt
til með áhalainu — í hvern
bollana, ýttu svo bollanum
upp í nasir þér og andfærin
opnast alveg upp, höfuðið
frískast og þú andar frjálst
og reglulega.
Þú losast við ræskingar og
nefstiflu, nasa hor, höfuð-
verk, þurk—enlgin andköf á
uæturnar, því Breath-o-Tol
tollir dag og nótt og dettur
ekki burtu.
Innhaler og 50 lyfblönduð
hulstur send póstfrltt fyrir
$1.50. — 10 daga reynsla; pen-
ingum skilað aftur, ef þér er-
uð ekki ánægðir.
Bæklingur 602 ÓKETPIS
Fljót afgreiðsla ábyrgst.
Alvin Sales Co.
P. O. Box 62—Dept. 602
WINNIPEG, MAN.
Búið til ai
BREATHOTOL CO’T
Suite 502, 1309 Arch Street,
Philadelphia, Pa.
Upplýsinga
óskast:
Heimskringla þarf að fá aS
vita um núverandi heimilis-
fang eftirtaldra manna:
Th. Johnson, Port. la Prairie,
Man.
Erasmus Eliasson, 682 Gar-
field str.
Jón Sigurðson, ' Manchester,
Wash.
E. O. Hallgrímsson, June-
berry, Minn.
Miss Arnason, Wroxton, Sask.
Tryggvi Hinriksson, Lipton
str.
Þeir sem vita kynnu um rétta
áritun eins eða fleiri af ofan-
geindu fólki, eru vinsamlega
beSni aS tilkynna þaS á skrif-
stofu Heimskringlu.
hálfu; eg hafði verið i Hull fyr um
kvöldið og því ekki glöggsýnn.
Þessar vikur sem eg dvaldi í Ott-
awa, liðu fljótt, og það var með
engri gleði, að eg meðtók tilkynn-
ingu um að taka saman pjönkur
ínínar og fara til Halifax. MUnu íá-
ir lá mér það, undir ikringumstæð-
unum. En þeir sem eru í þjónustu
hans konunglegu hótignar, verða
að hlýða kallinu—hversu hábölvað
sem þeim þykir.
Nú var þannig ástatt fyrir mér,
að eg var orðinn óstfanginn í rauð-
hærðri skozkri mey, sem var nærri
þvf feti hærri en eg og viktaði 197
pund. Eg er ekki hár í loftinu og
þess vegna hugsa eg alt af um eftir-
komendur miína, fyr en um mig
sjálfan. Þeir sem hafa stúdérað
dýrafræði, vita við hvað eg á Eg
hata úrkynjan, en svona gengur
það, mitt í alsælunni kom rothögg-
ið, rothögg drauma minna og vona.
Eg ætla ekki að lýsa saknaðar-
fundinum okkar, nema hvað hún
sat undir mér í rökkrinu og tára-
straumarnir Jauguðu höfuð mitt.
Eg hefi ekki þvegið hár mitt síðan.
En nú er djásnið mitt horfið mér
—Ottawa og Huil i 800 mílna fjar-
lægð, að eins minningarnar eftir.
Þær vaida mér svcfnlcysi um daga,
en næturró minni raskar engin hug-
sjó,—ekki einu sinni endurminning-
ar frá Yffilstöðum vestri.
(Meira.)
—------o------
HEIMSKRINGLA er kærkom-
inn gestur íslenzkum her-
mönnum. — Vér sendum
hana til vina yíar hvar sem er í
Evrópu, á hverri viku, fyrir aðeins
75c í 6 mánuði eða $1.50 í 12
mánuði.
Box 3171. THE VIKING PRESS Ltd
Lát ekki Góphurinn stela ágóðanum
Áður en nýja hveitið kemur upp
skaltu brúka
“GOPHERCIDE
Eitraðu með því hveitikorn og stráðu svo
eitraða korninu kring um holurnar. Það drep-
ur þá æfinlega.
Selt hjá lyfsölum og kaupmönnum. Vertu æ-
tíS viss að fá “Gophercide”
BÚIÐ TIL AF
NATIONAL DRUG & CHEMICAL CO. OF CANADA, LIMITED
MONTREAL
Westem Branches: Winnipeg, Regina, Calgary, Edmonton,
Nelson, Vancouver and Victoria
LOÐSKINN ! HÚÐIR5 ITLL
Ef þér viljið hljóta fljótustu skil á andvirði
og hæsta verð fyrir lóöskinn, húðir, ull og
fl. sendið þetta til.
Frank Massin, Brandon, Man.
l)ept I{.
Skrifið eftir prlsum og shipping tags.
BORÐVIÐUR MOULDINGS.
ViS höfum fullkomnar birgSir af öllum tegundum
VerSskrá verSur send hverjum þeim er þess óskar
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
Henry Ave. East, Winnipeg, Man., Telephone: Main 2511
Til þeirra, sem
augiysa í Heims-
kringlu
Allar samkomuauglýstnsar kosta 26
ots. fyrtr bvern þumlung ðálkslengdar
—i hvert skiftl. Engln auglýslng tekln
I blablft fyrlr mlnna en 26 cent.—Borg-
lst fyrlrfram, nema öttru vtsl sé um
samln.
Erflljóö og œflmtnnlngar kosta 16e.
fyrlr bvern þuml. dálkslengdar. Ef
mynd fylglr kostar aukreltls fyrtr tll-
búnlng á prent “photo”—eftlr stserö.—
Borgun veröur aö fytgja.
Auglýslngar, sem settar eru ( blaBtfl
án þess a* tlltaka tfmann sem þœr eiga
aö blrtast þar, verlta att borgast upp at
þalm ttma sem oss er ttlkynt aö taka
þær úr blaölnu.
Allar augl. verCa aU vera komnar á
skrlfstofuna fyrlr kl. 12 á þrfBJudag tll
blrttngar I blaBlnu þá vlkuna.
Tke Vlklng Preaa. Ltd.