Heimskringla - 27.06.1918, Síða 1
Opíð á kveldin til kl. 8.30
í>egar
Tennur
Þurla
Aígerðar
Sjáið mig
DR. C. C. JEFFREY
‘‘Hinn varkári tannlæknir”
Cor. Logan Ave. og Maln 8t.
SLÁTTUVÉLA- og bindara-
PARTAR ALLS KONAR
Blndara Segrldflkar, hver ----- $7.50
Slflítuvf'la Hnffblö'5 (25) --- 1.75
Blndara Hnlfblöb (25)------------1.75
SlAttnvéla Hnlfar, hver ----- 2.75
Blndara Hntfar, hver ------ 3.25
SIAttuvfla og Blndara Guardn - - 0.35
Guard Platea (25)----------------1.50
Sendiö eftir vorri nýju VerÖskrá.—Vér
seljum allskonar verkfæri og vélpart*
THE JOHN F. McGEE CO.
79 Henr; Ave., WINNIPKO
xxxn. AR. WINNIPEG, MANITOBA, 27. JÚNI 1918 NÚMER 40
Islenzk hetja fallin.
Joe G. Johnston.
Jóhannes GuíSmundur ÞóríSarson er einn þeirra vösku
íslenzku hermanna, sem fallið hafa í þjónustu aettjarðar
sinnar. Hann var sonur Þórðar Johnston frá Neðra-Hálsi
í Kjósarsýslu á Islandi og konu hans, Guðbjargar Guð-
mundsdóttur frá Káraneskoti í sömu sýslu. Hann var
fæddur á Gimli í Manitoba 15. maí 1892. Þaðan fluttist
hann með foreldrum sínum til Winnipegosis 1897 og ólst
þar upp til þess er hann var tuttugu og þriggja ára að aldri.
Hinn 3. ágúst 1915 innritaðist hann í 79. herdeildina, sem
þá var í Brandon, Man., og dvaldi þar við heræfingar um
sex mánaða tíma, og fór svo til Englands í apríl 1916. Þar
var hann gerður að undirforingja (Corporal). Á Eng-
landi var hann í sex mánuði við að æfa menn til herþjón-
ustu og átti að vera við það starf framvegis, en bauðst til
að fara til Frakklands með 43. Canadian Highlanders í
október 1916. Á Frakklandi tók hann drengilegan þátt
í stríðinu. Skömmu áður en hann féll hafði hann verið
gerður að liðþjálfa (Sergeant) fyrir vasklega framgöngu,
og var hann að leiða menn sína til atlögu er hann féll, í
hinni skæðu orustu 26. október 1917.
Joe var fríður maður sýnum, bjarthærður og góðmann-
legur á svíp. Hann var með hærri mönnum á vöxt og fag-
urlega vaxinn, þíður og innilegur í öllum viðræðpm, orð-
var og gætinn og ávann sér hylli allra, sem hann kyntist.
Fráfall þessa ungmennis hefir vakið mikinn söknuð, bæði
skyldum og vandalausum.
Vinur..
Fyrlr lönffu Mlban l»nr«t mébur hln« lAtnn eftlr fylarjandl bréf
frA majAr herMveltar þelrrar^ er Serjfeant Johnnton tllheyrbl. Bréf
l>etta akýrlr MjAlft ok vottar ljflaleKa I hve mlklu Alltl þeaal
hrauMtl ok huicprAbl fMlenxkl hermaflur heftr verlb, hæftl hjA yflr-
mffnnum Mfnum ok ffllÖKumi
•‘IlelKÍum. 6. nðvember 1917.
Kæra Mrn. Johnaton!
Me5 djúpum treica tllkynnl eg yflur dnufta nonar yfiar, Seryceant
JohnMton, Mem fflll 1 oruatu morycunlnn 26. oktAher.
SerKennt JohnMton er harmdauffl öllum f herdelldinnl. var mvo
vlnaæll ok hnfbl nfkaMtab mvo frAbærleyca mlklu Mtarfl, ekkl eln-
KflnKU vlb betta tllfelll, heldur vlb allar undanfarandl atlöicur, er
hann ætfft nýndi hina mentu huKprýfll oic var þfl vlMMuleica öllnm tll
fyrlrm.vndar, nem foryatu hana nutu.
Sonur jflar féll f aprenyclkAInahrfb, dfl tafarlaunt oyc kvalalauMt
ok var jarbabur nAlægrt hlettlnum, þar nem hann féll.
Vottandl ybur InnileicuMtu Mamhyirb f hinnl mlklu MorK yflar,
Kr eg yffar einlæicur
TOM TAYLOR, Major.
Styrjöldin
Frá Vestur-vígitöívum.
Eina stórorustan, sem háð var á
vesturvígstöðvui)um síðustu viku,
var sókn Þjóðverja gegn borginni
Rheims og hefði að líkindum meir
úr orðið, ef vörn Frakka hefði
ekki reynst jafn örugg. Viðbún-
aður Þjóðverja á þessu svæði
hafði verið mikill undanfarandi
daga og er þeir hófu sóknina
höfðu þeir dregið þarna að feiki-
legan her — um 40,000 manna.
Atlöguna hófu þeir að vanda
með grimd mikilli og otuðu liði
sínu fram án minstu vægðar. En
svo knálega tóku Frakkar á móti
þeim, að áður langt leið urðu þeir
þarna undan að hrökkva við stór-
kostlegt mannfall. Síðan hafa
Þjóðverjar lítið þorað að láta á
sér bæra á Rheims svæðinu og
fyrsta sprettinn eftir orustu þessa
höfðu þeir ærið nóg að gera að
jarða þá dauðu.
Aðrir stórslagir hafa ekki verið
háðir nú um tíma á Frakklandi
eða í Flandri og báðar hliðar lát-
ið sér nægja, að gera smá-áhlaup
hér og þar. Hvergi hafa Þjóð-
verjar komist áfram neitt sem heit-
ir og í nokkrum stöðum verið
hraktir á bak aftur. Eftir miðja
síðustu viku gerðu Bretar mörg á-
hlaup og flest á þeim svæðum,
þar sem undirbúningur Þjóðverja
virtist einna mestur, og báru hærri
hlut í öllum þeim viðureignum.
Var þá um tíma haldið, að þeir
þýzku mundu gera öfluga atrennu
gegn Bretum á stórum svæðum,
en að svo komnu hefir þetta ekki
komið á daginn. Hvar þeir láta
næsta höggið ríða er enn þá hul-
inn leyndardórrjur, en engum vaía
virðist undirorpið, að stórrar og
öflugrar sóknar sé að vænta frá
þeirra hálfu áður langt líður. Er
haft eftir föngunum, að mörgum
af þýzku herforingjunum sé farið
að þykja full-ískyggilegt hve ört
Bandaríkin koma nú hermönnum
sínum yfir hafið, og gangi ekki að
því gruflandi lengur, að þetta geti
orðið þeim stór hætta áður marg-
ir mánuðir líða. Eina úrræði
Þjóðverja, þegar svo er komið, er
því að sækja og reyna að sigra áð-
ur her bandamanna þannig verð-
ur öflugri.
------o------
Sigrar ítala.
Sókn Austurríkismanna gegn
ltölum er nú lokð—í bráðina að
minsta kosti—og hafa þeir beðið
hinn mesta ósigur. Á þeim svæð
um þar sem þeir komust yfir Piave
ána, urðu ófarir þeirra þó einna
mestar og voru heilar herdeildir af
liði þeirra þar strádrepnar niður.
Manntjón þeirra í alt er sagt að
vera um 200 þúsundir manna og
um 46 þúsundir fanga hafa Italir
tekið af liði þeirra. Flóð í Piave
ánni gerðu Austurríkismönnum
hálfu örðugra fyrir og áttu að
sjálfsögðu stóran þátt í hinum
mikla ósigri þeirra. — Þetta er
stærsti sigur bandaþjóðanna í
seinni tíð og meir en vegur upp á
móti sigri Þjóðverja á Frakklandi.
------o------
Óeirðir í Ukraníu.
Sagt er að uppreistir miklar eigi
sérstað í Ukraníu (suðurhluta
Rússlands) og sem byrjað hafi í
höfuðborginni Kiev og svo þaðan
breiðst til Poltava og Tohernigow
héraðanna. Vistaskortur og megn
óánægja gegn Þjóðverjum eru
aðal-orsakirnar, sem hrundið hafa
uppreistum þessum af stað. Taka
þátt í þeim margar þúsundir bor,;-
arbúa og bænda.
------o—•----
Vélasmiðir gera verkfall.
Um 400 vélasmiðir, sem vinna
á verkstæíðum C.P.R. járnbrautar-
félagsins hér í borg, gerðu verk-
fall í vikunni sem leið. Iðnfélag
þeirra (union) hafði farið þess á
íeit við C. P.R. félagið að reka
mann einn úr vinnu, Amos Stew-
art að nafni, en verið neitað og
leiddi þetta til þess, að verkfallið
var hafið. Ef til vill getur verk-
fall þetta orðið neisti að stóru
báli, því sagt er að með allri C.P.
R. brautinni séu nú ótal samhygð-
ar-verkföll í aðsigi, en enn sem
komið er taka ekki þátt í þessu
aðrir en vélasmiðir og málm-
vinslu starfsmenn. Óvinsældir
þessa eina manns, sem misklið
þessari valda, orsakast af því, að
hann er ekki tilheyrandi iðnfélagi
vélasmiðanna og skoðast því “ó-
alandi og óferjandi” í þeirra aug-
um.
-------o-------
Góðir gestir.
Heil herdeild frá Bandaríkjun-
um er nú að fara gegn um Canada
á leiðinni til vígvallanna á Frakk-
landi. Á þriðjudaginn var her-
deild þessi stödd hér í Winnipeg
og hlaut hér hinar beztu viðtökur.
Múgur og margmenni var saman
komið (i járnbrautarstöðinni um
morguninn til þess að mæta henni
og þar með fjöldi hermanna. Var
alt gert til þess að láta þessum
knálegu Bandaríkja hermönnum
ekki leiðast um daginn og má
með sanni segja, að þeir hafi “her-
tekið" Winnipeg—hjörtu Winni-
peg-búa að minsta kostil Um
kvöldið voru þeir kvaddir með
miklum gleðilátum, er þeir stigu á
lestina austur. — Á öðrum stað í
blaðinu er ögn betur á þá minst.
Kirkjuþingið.
Ársþing kirkjufélagsins hófst
þann 19. þ.m., eins og skýrt var
frá í siðasta blaði, og stóð yfir
þangað til á mánudaginn í þessari
viku. Sátu það um 60 erind-
rekar víðsvegar að úr 0«>am Is-
lendinga. öll starfsmál kirkjuíé-
lagsins voru rædd að vanda á
þinginu og fyrirlestrar fluttir. Em-
bættis kosningar fóru þannig, að
séra B. B. Jónsson var í einu
hljóði endurkosinn forseti kirkju-
félagsins, en séra K. K. Ólafsson
varaforseti. Séra Fr. Hallgríms
son var kosinn skrifari og J. J.
Vopni féhirðir, en séra Jóhann
Bjarnason varaskrifari og J. J.
Bildfell varaféhirðir. Skýrslur ei
lagðar voru fyrir þingið, sýndu,
að nemendur við Jóns Bjarhason-
ar skóla þetta ár höfðu verið tvö-
falt fleiri en næsta ár á undan; 1
nýir söfnuðir gengu í kirkjufélag-
ið í þetta sinn, tveir í Winnipegos-
is héraði, einn að Crescent, B.C
og einn í Vancouver, B.C.
-------o-------
I
Hryllilegt jámbrautarslys.
Lestir rákust á f Indiana ríki á
Michigan Central járnbrautinni,
nálægt bænum Gary, og við þetta
biðu um 85 manns bana að síð-
ustu fréttir segja og nærri því eins
margt fólk meiddist meir og
minna. Með annari lestinni ferð-
aðist stór dýrasýningar leikflokk-
ur og starfsfólk hans, en hin lestin
var tóm flutningslest. Sagt er að
margir frægir dýrasýningar leik-
endur og íþróttamenn hafi verið f
tölu þeirra, sem fórust. Slys
þetta er hið stærsta í sögu þessar-
ar járnbrautar.
-------o-------
Harðkol í vændum.
Sendinefnd sú, sem fór héðan
frá Winnipeg til Ottawa í síðustu
viku hefir nú fengið loforð kola-
stjóra Canada fyrir þvf, að frá
200,000 til 275,000 tonn af Ban-
daríkja harðkolum verði send til
vesturlandsins. Af þessu að
dæma hefir eitthvað verið rýmk-
að útflutningsbann Bandaríkja-
stjórnarinnar á kolum hingað til
Canada og munu margir telja slíkt
gleðifrétt. Engin vissa er að svo
komnu fengin fyrir hve nær harð-
kol þessi komi, en talið er líklegt
það verði bráðlega. — þeir af
borgarbúum, sem þegar Kafa
keypt helming vetrarkola sinna (í
linkolum) verða látnir sitja fyrir
með kaup á peim.
------—♦-------
Fjársöfnun Raúða krossins.
Fjársöfnun fyrir Rauða kross-
inn hér í Manitoba gengur efti.-
beztu vonum. Frá sveitarhéruð-
unum er nú komið inn í alt um
$655,122.28 og hefir þó ekki enn
heyrst frá öllum þeirra. Að með-
taldri upphæð þeirri, sem kom frá
Winnipeg, gerir þetta tillag Mani-
toba fylkis til Rauða krossins í alt
$1,31 3.091.32.
Bréf frá New York.
NewYorkhöfn, 19. júní 1918.
Herra ritstjóri!
Nú er “Gullfoss” loksins farinn
frá landi og kominn út á höfn.
Fór frá bryggjunni í gærkveldi,
og fórum vér farþegarnir þá um
borð. Gullfoss er hlaðinn af vör-
um, að eins stendur á skipsskjöl-
unum í landi enn. Vonum þó að
geta farið héðan í dag á leið heim
til lslands.
Rúmir 20 farþegar eru á skip-
inu; samt ekki margir þarna að
vestan. Frá Winnipeg eru: Árni
Eggertsson erindreki og dóttir
hans Thelma, og mæðgurnar Ing-
unn og Steinunn Gíslason. Einn-
ig eru: ögmundur Sigurðsson
skólastjóri, og Stefán Stefánsson
(Eimskipafél. hluta kaupandi m.
m.), Vigfús Guðmundsson frá
Eyri, Eiríkur Hjartarson rafmagns-
fræðingur með konu sína og þrjú
börn, Guðm. Vilhjálmsson erind-
reki samvinnufélaganna á lslandi.
Svo eru nokkrir Reykvíkingar, er
hafa verið hér í New York um
tíma í verzlunarerindum.
All-erfitt er að komast nú á
brott héðan. Farangur allur rann-
sakaður nákvæmlega og alt sem
prentað er eða skrifað þarf að
fara í gegnum “censor” og er inn-
siglað, þar til komið er út á haf.
— Póst fer Gullfoss með heim
eins og ísl. skipin gera nú orðið.
Á Gullfoss að fara beina leið, ekki
að koma við í Halifax.
Farþegi á Gullfossi..
------o-------
Verkföll og óeirðir í Austurríki.
Af þeim fréttum að dæma,
sem nú berast frá Austurríki gegn
um hlutlausu löndin, virðist útlit'ð
nú alt annað en glæsilegt þar í
landi. Tíð verkföll eiga sér þar
stað og í Vínarborg einni og þar í
grend er sagt að um 100,000
verkamenn hafi hætt vinnu í lok
síðustu viku. Við þetta gerð'ít
all-róstusamt og varð stjórnin að
senda eftir herliði til að skakka
leikinn. Svo mikill skortur á all i
matvöru er nú þar í landi, að
stjórnin hefir orðið að smækka
alla matvöruskamta, mest þó
brauð og mjöl og þar með orsak-
að óánægju verkalýðsins. Fregnir
þessar eru þó allar frekar óljósar
að svo komnu og vafalaust lítið
mark takandi á sumum þeirra.
------o-------
Vítisvél í Piano.
Brezkur herforingi segir þessa
sögu:
Þegar herflokkur vor settist að
í Peronne, var nökkrum hluta liðs-
ins valið húsnæði í einu af stærstu
húsum bæjarins. Þar var í einni
stofunni þýzkt píanó. Ungur her-
maður, sem var afbragðs píanó-
leikari, varð mjög hrifinn af því
að þar skyldi vera slíkt hljóðfæri,
og gjörði sig líklegan til að fara
að nota sér það strax. Einn af
hinum eldri yfirmönnum þeirra
bannaði honum stranglega að
snerta það, fyr en búið væri að
rannsaka það. Við skoðunina
kom það í ljós, að viss nóta í
hljóðfærinu stóð í sambandi við
sprengivél svo öfluga, að hún
hefði eflaust sprengt húsið til
agna, og drepið alt lifandi, sem
þar hefði verið inni.
------o-------
Breytt stefna.
Dr. Richard Kuehlmann, utan-
ríkis ráðherra Þýzkalands, hélt
nýlega ræðu fyrir ríkisþinginu
þýzka, þar sem hann skýrði frá
núverandi afstöðu Þjóðverja í
stríðinu. Vottaði ræða þessi ljós-
lega, að andi stjórenda Þýzka-
lands er nú alt annar en í byrjun
stríðsins. Nú er ekki stagast á,
hve hervald þjóðverja sé öflugt
og ósigrandi og ekki með einu
orði minst á "kaupmanna herinn
brezka" eða spilling Frakka.
Hrokinn er minni en áður og
stjórnin, að því er virðist, að mun
eftirgefanlegri en áður. Kvað
Kuehlmann Þjóðverja , engu síð-
ur en Breta, vera reiðubúna að
ræða friðartillögur nær sem væri.
Stefna þeirra hefði aldrei verið,
að reyna að brjótast til æðstu
valda, hvorki í Evrópu eða ann-
ars staðar. Hvorki keisarinn né
nokkrir aðrir í stjórnarráði hans
hefðu nokkurn tíma farið fram á
slíkt. Þjóðverjar væru að eins
að biðja um fullkomin jafnrétt-
indi við hin stórveldin, algert
verzlunarfrelsi og að höfin væru
frjáls. Ekki mintist hann þó neitt
á, að Belgíu bæri skaðabætur fyr-
ir þau ægilegu spellvirki, sem þar
hafa framin verið, — tók það að
eins fram, að Þjóðverjar mættu
ekki skuldbinda sig neitt meir en
hinar þjóðirnar hvað Belgíu snert-
ir. Orsök stríðsins leiddi hann
að dyrum Rússlands og lagði á
þetta mikla áherzlu.
--------o-------
(Lögr. 6 —22. inaí)
6. niaí—Tíðin er liin bezta, öðm
bvoru létt r< jm, og t’a>r Jörðin nú
Prófurn við fctýrimannaskólann er
nú nýlega lokið, og tóku 26 ihið .al-
men,na «týrimanna próf, en fiski-
skijvst^óraprófið tóku 8.
Lyfjapróf, fyrri h'luta, hefir tekið
í Khöifn Jóhanna Magnúsdóttir, frá
fsafírði, dóttir M. Torfasonar bæjar-
fógeta.
Búist er við, að danska stjórnin
sendi hingað mann til viðtals við
Aíþingi um sambandsmiálið, en 6-
vfist enn hve nær sá maður rnuni
koma, eða hver hann verði.
MikiM áhugi virðist vera vaknað-
ur á því víða erlendis, að koma sem
fyrst á fluigpóstferðum . Félag er nú
myndað til þess að koma þeim á
milli Aberdeen á Skotlandi og Stav-
angurs f Noregi, og á að byrja þar
næsta vor.
8. maí,—Tíðin er hin ákjósanleg-
asta um alt land, svo að betri
veðráttu um þetta leyti muna menn
ekki.
Borg fór 'héðan til Austfjarða 6.
þ.m. og fer þaðan tii Englands.
Muninn kom ifrá Englandi 4. þ.m.
Lagarfoss er til aðgerðar í Khöfn,
en búist við að hann fari þaðan
um miðjan 'þun.
Það er sagt að uppkast sé nú
komið ihingað af ensku samningun-
um, frá nefndinni á Englandi, en
ekki hefir enn verið látð uppi um
hvernig það sé.
Sú fregn gengur hér, að sendimað-
ur dönsku stjórnarinnar, sem um
sambandsmálið á að fjalla, sé ekki
væntan'legur ifyr en í júní eða júlf.
Tangsverzlun á ísafirð, með úti-
búum hennar, er nú seld Þórði
Kristinssyni, með húsum og öðrum
eignum fyrir 210 þús. krónur að
sögn.
Hvftárbakka-skólanum var sagt
upp um sumarmálin einvs og vant
er. Á honum hafa verið 35 nemend-
ur síðastl. vetur, <fná veturnóttum.
Giert er ráð fyrir, að skólinn starfi
næsta vetur.
Frá verzlunarskólanum útskrifuð-
ust 31 nemandi nú við nýafstaðið
próf, en miðdeildarpróf tóku 21 og
inntökupróf 20.
15. maí.—Lfklegt er að alþingi
verði frestað um hfið nú um hvíta-
sunnuna, þótt ekki sé það fullá-
kveðið ©nn og muf þá helzt í ráði.
að það komi saman aftur 1. ágúst í
sumar. Stendur þessi þingfrestun 1
samband við þær horfur í sam-
bandsmálinu, sem frá er sagt í
grein á öðrum stað í blaðinu.
Alþingi kaus í gær formann Þjóð-
vinafélagsins í stað Tryggva heitins
Gunnarssonar, Benedikt Sveinsson
alþingismann.
Félag er stofnað ihér í bænum til
l>ess að koma á smjörlíkisverk-
smiðju og von á vélum til hennar
með júlíferð Botníu frá Khöfn. For-
maður félagsins er Jón Kristjánsson
prófessor, en Gfsli Guðmundsson
gerlafræðingur er ráðunautur þess.
Hörmuilegt slys vildi til í sund-
lauginni í fyrra kveld. Þar drukn-
aði drengur, sem var nýfarinn að
læra að synda, -hafði dottið ofan í
laugina án þoss rnenn yrðu varir
við. Drengurinn liét Hafliði Björns-
son, 10 ára gamall, sonur Björns Er-
lendssonar trósmiðs og Guðrúnar
Pálsdóttur Hafliðasonar, efnilegur
og góður drengur.
Dáinn er nýlega á sjúkrahúsi hér
f bsenum Ketill Bergsson, bróðir
Guðmundar Bergssonar bóksala á
ísafirði, myndarmaður á bezta
aldri. — 6. þ.m. andaðist í Þórisholti
í Mýrdal Finnbogi Einarsson áður
hreppstjóri, 84 ára gamall, merkur
maður. y
Nýlega er iátinn Kjartan Jónsson
bóndi á Efrihúsum i önundarfirði,
faðir Jóns kennara og ritstjóra
“Skinfaxa”.
Tíðin er stöðugt hin bezta. t
byrjun vikunnar brá snöggvast til
norðanáttar og kóinaði, en það stóð
stutt. Um alt iand er látið vel af
vorveðráttunni og skepnuhöld sögð
í góðu lagi.
Landsþingiskosningin í Færeyjum
fór svo, að Johannes Patursson
kongsbúndi í Kirkjubæ var kosinn
iandsþingsmaður, og vinnur Zahle-
stjórnin við það eitt atkvæði í
þinginu.
“Alt eins og blómstrið eina”, þenna
sálmanna sálm íslendinga, eftir
Hallgrím Pétursson, hefir Gunnar
Gunnarsson þýtt á dönsku, og er
þýðing hans í “Höjskolebladet” frá
ágúst 1917 ágætlega gerð. í sama
biaði er mjög fallegt kvæði eftir G.
G. frumsamið á dönsku og heitir
“Hösthymne.”
Sóknarmenn Staðarprestakalls í
Grunnavík við ísafjarðardjúp hafa
óskað eftr að fá sjra Jónmund Hall-
dórsson tfyrir prest sinn og bekur
bann við þjónusjju þess safnaðar að
fyrirlagi biskups í fardögum í vor,
og inun hann ætla sér að relsa bú á
Stað, en þar iliefir verið presblaust
■sfðan séra Kjarban Kjarbansson fór
þaðan ifyrir nokkrkum áruin.
V. Ctaessen laix/sféhirðir liefir
legið væikur um hrfð að undan-
förnu; fókk aðkenningu af slagi, en
er nú á batavegi.
Þingfrestunin, sem um var talað
um daginn, verður ekki framkvæmd
fyrst um sinn að minsta kosti, en
beðið þangað til einhver vissa fæst
uim undirtektir danska þingsins í
samlbandsmá'linu.
(Framh. á 8. bls.)
t