Heimskringla - 27.06.1918, Page 5
WINNIPEG, 27. JONI 1918
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA
Úr sögu gaffalsins
FarirSu í gegn um gömul mál-
verkasöfn, sérstaklega hin hol-
lenzku, kemur þaS oft fyrir, aS
persónurnar, sem myndirnar eru
af, sitja til borSs; á hinum gnægta
ríku borSum sérSu bæSi hníf og
skeiS, staup og handþurku, loga-
gylta diska og dýrindis föt af ýms-
um tegundum. En eitt smá-áhald
sérSu ekki: þar er enginn “gaff-
all.” ÞaS er fyrst á myndum frá
1 7. öld, aS vart verSur þessa litla
hlutar, sem nú er orSinn svo lífs-
nauSsynlegur, aS ef þú yrSir þess
var aS hann vantajSi á borSiS,
myndirSu verSa ráSþrota og al-
veg missa matarlystina, jafnvel þó
aS á borSinu væri 'hinn bezti mat-
ur, og ef til vill helzt þá.
Gaffallinn, sem áhald til aS
borSa meS, er ekki mjög gömul
uppgötvun. I lok hinnar 1 6. ald-
ar byrjar brúkun hans aS útbreiS-
ast lítils háttar í hinum helztu
framfara löndum No(rSurálfunnar.
Þó leiS frá þeim tíma svo hundr-
uSum ára skiftir, þar til gaffallinn
var alment viSurkendur sem
nauSsynlegt áhald viS máltíSir.
Sögu gaffalsins hafa ýmsir
fratí)Simenn ritaS. HvaS NorSur-
löndum viSvíkur, mun Troels
Lund greinilegast og í mestu sam-
hengi hafa ritaS um þaS efni. Úr
aSalriti hans, “Dagligt Liv i Nor-
den”, eru hér flest þau atriSi tek-
in, sem sérstaklega snerta sögu
ga'ffalsins á NorSurlöndum.
OrSiS “gaffall” stendur aS lík-
indum í sambandi viS gafl eSa
vínkil, sem bendir á aS hinir elztu
gafflar haf; veriS tvíoddaSir; hiS
franska nafn gaffalsins, “four-
ohette” þýSir fork, og bendir á
fyrirrennara gaffalsins. Fork, tví-
oddaS áhald, brúkaS viS tilbún-
ing matar og aS bera á borS, er
getiS um eins langt aftur í tímann
og sagan nær; en sú tegund gaff-
als kemur ekki þessu máli viS;
þaS eru borSgafflarnir, sem hér
eru umtalsefniS.
Hvorki Grikkir eSa Rómverjar
þektu þetta verkfæri, og Austur-
landafólk brúkar þaS ekki þann
dag í dag; ef þaS lætur sér ekki
nægja hinn meSfædda gaffal
mansins, hina tvo fingur,
brúkar þaS matarpinna. Hinn
heilagi Asket Damianus kom frá
Byzants á 1 1. öld. Býzantisk frú
giftist venetiskum höfSingj Hún
flutti þetta merkilega verkfæri
meS sér; en sv.o liSu um 200 ár,
aS ekki verSur meS sanni sagt, aS
gaffallinn væri notaSur í vestur-
hluta NorSurálfunnar. Hinn fyrsti
höfSingi, sem sagan hermir frá aS
átt hafi gaffal, var JátvarSur
fyrsti Englandskonungur, litlu fyr-
ir aldamótin 1 300.
Eftir þaS er gaffallinn nefndur
viS og viS sem mjög fágætur
hlutur, er ekki áttu aSrir en kon-
ungar og þjóShöfSingjar. En æ-
tíS er þaS talinn órækur vottur
um sællífi og kveifarskap eigend-
anna, og því var hann aS eins not-
aSur er borSaSir voru ávextir eSa
eitfchvaS, sem ataSi fingurna og
örSugt var aS ná af þeim aftur.
Þannig var meS notkun gaffalsins
fram undir lok hinnar 1 6. aldar.
Hinn elzti gaffall, er nú þekkist,
frá Noregi, er lítiS tvíoddaS verk-
færi frá 1530; hann er nú á þjóS-
gripasafninu í Kaupmannahöfn,
en var eitt sinn í eigu hins nafn-
kunna erkibiskups Ólafs Engil-
brektssonar.
Eftir 15 70 er fyrst fariS aS
borSa kjöt meS gaffli. Hvar sá
“ósiSur” byrjaSi, vita menn ekki,
en á Frakklandi var þaS byrjaS á
dögum Hinriks konungs þriSja;
en Hinrik 3. og hirS hans var talin
—og þaS meS réttu—fyrirmynd
aS sællífi og siSIeysi. Frá þeim
tíma er til saga, sem auSsýnilega
er stílu't upp á Hinrik 3. og hirS
hans, þar sem meSal annars er
svo aS orSi komist: “Ibúar
eyjarinnar snertu aldrei kjöt meS
fingrunum, heldur báru þeir þaS
upp aS munninum meS verkfæri,
sem þeir kalla gaffal, og um leiS
teigja þeir hálsinn langt fram yfir
diskinn; jafnvel salad tóku þeir
meS gaffli, því í þessu landi er
þaS stranglega bannaS, aS snerta
matinn meS fingrunum.”
Sem lítilvæga málsbót fyrir
Hinrik 3. og hirS hans má geta
þess, aS í þann tíS var hinn vold-
ugi pípukragi hæst móSins, og
vegna hans var óhægra aS brúka
fingurna einvörSungu. Eftir aS
pípukraginn mjókkaSi hvarf gaff-
allinn um stund og borSaS meS
fingrunum var aftur á ný siS-
venja.
Hínn fimmfingraSi gaffall var
þiS eina náttúrlega áhald, sem
maSurinn hafSi til notkunar;
konungar, drotningar, aSalsmenn,
borgarar og bændur, allir borS-
uSu meS fingrunum.
1 mörgum bókum frá þeirri tíS
eru reglur fyrir siSsamlegri fram-
komu meSal heldra fólks; þar eru
og reglur fyrir því, aS matast fall-
ega meS fingrunum.
ÁSur en sezt er til borSs, fer
fram handaþvottur, ekki í af-
skektu herbergi, heldur í allra
augsýn, svo hver og einn gæti
sannfærst um aS hinir, er til borSs
sátu, væru hreinir um fingurna.
Þeir sem báru á bo,S, skáru kjöt-
iS á fötunum í stór stykki, sem
borSgestirnir gripu svo meS tár-
hreinni her.dinni, skáru þau meS
hnífnum í minni bita og létu þá
upp í sig. þessi aSferS var hin
siSlegasta, en margir rifu kjötiS
meS fingrunum og brúkuSu hníf-
inn lítiS eSa alls ekkert. ViSvíkj-
andi þessari óþrifalegustu aSferS
segir Niels Bredal í hinni lærdóms
ríku bók sinni "“Barnaspegill” er
út kom í Khöfn 1568: ”Taktu
matinn meS hnífnum, en ekki
meS höndunum; skerSu bitana
sundur meS hnífnum, rífSu hann
ekki meS tönnunum.”
Eins og nærri má geta, inni-
halda siSareglubækur frá þeim
tímum ógrynni af reglum um þaS,
hvernig maSur eigi aS bera sig til
viS borSiS, svo í lagi sé.
“ÞurkaSu þér um fingurna, en
sleiktu þá ekki; þerraSu þá heldur
ekki á treyjunni þinni.”
“ÞaS sem þú ert búinn aS bíta
í, máttu ekki dýfa aftur niSur í
sósuskálina.”
“Rektu ekki nema þrjá fingur í
einu ofan í saltiS.”
“MeSan þú situr til borSs,
máttu hvorki klóra þér í höfSi,
eyrum eSa nefi; þaS væri ekki
skemtilegt fyrir hina, sem borSa
meS þér, ef þú gerSir þetta og aS
því búnu færir meS fingurna ofan
í matinn."
“Ef þú ert blautur um fingurna
af ídýfu, máttu ekki þurka þér á
borSdúknum eSa brauSinu eSa
hárinu, heldur hreifa hendina í
lausu lofti, unz fingurnir eru orSn-
ir þurrir.”
ÞaS virSist skiljanlegt, undir
slíkum kringumstæSum, þó ein-
hverjum hefSi komiS til hugar aS
hafa hanzka á höndunum viS
borSiS, en maSur skilur síSur,
hve lengi menn voru aS sætta sig
viS aS brúka gaffalinn.
Þess er getiS áriS 1598 um Hin-
rik hinn fjórSa, sem var í sam-
kvæmi hjá hertogainnunni af
Beaufort, aS hann kysti á aSra
hönd hennar er hún var meS
hina í ídýfuskálinni. Jafnvel um
LúSvík ijórtánda er þaS sagt, aS
hann kaus helzt aS borSa meS
fingrunum.
Eftir hinar gaffallausu máltíSir
var nýr handaþvottur nauSsynleg-
ur; þá var stundum þvottavatniS
blandaS meS ilmefnum.
MeS löngum tíma, afar-löngum
þó, vann gaffallinn sig áfram og
norSur eftir. I
(Eftir hinn litla gaffal frá 1530,
sem Eingilbrektsson biskup átti,
koma 1 2 gafflar tilheyrandi Eiríki
hinum fjórtánda. Þó leitaS sé í
skrám yfir heimanfylgjur prinzess-
anna eSa gersemarnar í fjárhirzl-
um konunganna á NorSurlöndum,
finst þar hvergi getiS um gaffal.
ÞaS er fyrst áriS 1621 aS Kristján
fjórSi getur þess í dagbók sinni,
aS hann hafi keypt einn gaffal af
frönskum manni; menn vita ekki
betur en þaS sé sá fyrsti gaffall,
sem nefndur er í Danmerkursögu.
Eftir miSja I 7. öld fer gaffall-
inn aS verSa meir og meir notaS-
ur af höfSingjum og bæjabúum á
NorSurlöndum. Danskir bændur
brúkuSu hann ekki fyr en eftir
1800. 1 Noregi var þaS miklu
miklu seinna. Rithöfundurinn Eil-
ert Sundt segir avo í “Folkeven-
nen” frá 1 858:
“Verkafólk og vinnuIýSur not-
ar ekki gaffal, ekki heldur þeir
bændur, sem borSa meS vinnu-
fólki sínu. AS brúka gaffal verS-
ur fyrst alment, þar sem húsbænd-
úrnir matast í sérstöku herbergi
viS borS meS dúk á, hvar fram-
reiddur er kostulegrl matur eSur
aS því skapi vandaSri."
Rithöfundur einn, N. Filskov,
segir, aS í hinum afskektustu
bygSum í SvíþjóS sé varla nú á
dögum gaffal aS finna, en slíkt er
aS eins undantekning, því þaS má
meS sanni segja, aS hvar sem siS-
menning NorSurálfunnar hefir
gert vart viS sig, þar er einnig
gaffallinn kominn og búinn aS ná
óraskanlegu gildi.
Lögun gaffalsins er einnig stór-
um breytt; frá því er hann var
fyrst tvíoddaSur, sem á 16. öld,
varS hann þríyddur, og nú er
hann meS fjórum oddum. En auk
þessa eru til margar tegundir af
göfflum, er notast skulu eftir því
hvers kyns matur er fram reiddur.
Frá viShafnaráhaldi er nú gaffall-
inn orSinn þaS nauSsynja verk-
færi, er mundi verSa sárt saknaS,
ef hann skyldi hverfa úr sögunni.
S. M. Long þýddi.
------o------
Sundurlausir molar.
Eftir M. J.
Mismunur á andastefnum
samtíðarinnar.
Aftunhaldsstefnan leiðir að kyr-
stöðu-punkti í nátthaga trúarinnar,
en frainsóknarstefnan leiðir að
framihaldandi, hærri og hærri inark-
miðum í ljósheimi hinnar sönnu
vizku.
Lotningin.
Lotningin er endastöð á vegi
framsóknarinnar, og 'hinn seina.sti
hnútur á þrældómsfjötrum persónu-
leikans.
Viröing og aðdáun.
Virðing og aðdáun eru göfugar og
heiibrigðar hvatir. Þær knýja
manninn fram til að komast í fult
samræmi við það, sem hann virðir
og dáir og skapa það sjálfur, sem
hann dáir hjá öðrum. Það sem
m.aðurinn virðir og dáist að, eru
æðstu keppimörk hans.
Heilagleikinn.
Heilagleika hugmynd mannanna
er notuð fyrir silæður til að sveipa
yifir ákveðna hluti og inálefni svo
dómgreind mannanna fái ekki séð
hið verulega innihald þeirra í réttu
ljósi.
Djöfla-hugmyndin.
Eins og það var á mannanna
valdi að skapa djöfla-ihugmyndina,
eins er ]>að einnig á þeirra vaidi að
skapa virkilegardjöfia. Það sannar
árásar-iframkvæmd þýzka hervalds-
inS.
Lægstu einkunnir mannsins.
Hinar lægstu enkurtnir mannsins
eru 'lævísi og heigulskapur.
Drengskapur.
Það var álitin djarfinannleg
hreiniskilni, að lýsa því yfir, fyrir
upplýstri samtíð, að skynsemin
mœtti ekki koma þar nærri sem trú-
in er, og, að bezta ráðið til að
vernda trúna, væri að þegja. Samt
voru þetta hárréttar ályktanir, því
vana-trú getur ekki þrifist þar sean
skynseini og dómgreind ráða. Jafn-
vel þó kirkjan noti þessar ályktan-
ir fyrir framkvæmdargrundvöll, þá
er mikið efaimál að framtí?5in skoði
þær sæmdaratiíði í þeirri stefnu-
skrá, sem hún er nú að byggjo á ís-
skrá, sem hún er nú að byggja á ís-
lenzka menning. Þessi efi byggist á
eðl'legri framþróun mannsandans
og isern treysta má að ihalda áfram.
Ósamræmi.
Lækningafræðin er nú 'komin á
það þroskastig að hún ieitar að or-
sökum hinna Jfkainlegu meinsemda
mannanna. Hún gefur engar undan-
þágur ifrá rannsókn. Jafnvel lög
guðs eru ekki undanþegin rann-
sóikn hennar. En lækningastofnan-
ir þær sem taka hinar siðferðislegu
og mannfélagsiegu meinisemdir til
meðferðar sem eru blöð og tímarit
þjóðanna, fylgja annari reglu. Þau
gefa undanþágu frá rannsókn þeim
hluta af ihugmyndum mannanna,
seim þeir kalla trúmái, jafnvel þó
menn víti, að þau miál skapa sið-
memningar ástand mannkynsins að
stórum ihluta í samtfðinni. Ekki er
að undra, þó lækning mannfélags-
meinanna gang seint.
Stefnumunur stórþjóöanna.
Árásar-flokkur Miðveldanna í Ev-
rópu segir: “Mátturinn er rétt-
lætið.”
En varnarliðið segir: “Réttlætið
er mátturinn.”
Að mátturinn sé réttlæti meinar,
að eyðileggingar stefnan sé hin
rétta framkvæmdarstefna mann-
kynsins. Nú vita allir hugsandi
menn, að eyðileggingin eyðileggur
sjálfa sig. Það er dáisamlegt nátt-
úrulögimál. Annars gæti engin
framsókn átt sér stað.
Miðvoldin eru þvf að gera það
gagnstæða við það, sem þau ætiast
til. Þau eru að eyðileggja sig sjálf,
Í stað þess að sigra heiminn.
Svona getur drotnunargirnin, stór-
meniskan og grimdin blindað mann-
vitið. Þetta er þýzka menningin.
“Réttlætið er mátturinn” sem á
að sigra heiminn, segir varnarliðið.
Það er uppbyggingarstefnan, sem
mannkynið á að fylgja
En hvað er réttlæti?
Það er réttlæti, sem er í fuilkomnu
ásigkomuilagi. Af því að hér er átt
við lásigkomulag mannkynsims, þá
þýðir réttlæti líkamlega, andlega
og þjóðfélagslega heilibrigði. Og aif
því að iheil'brigðis ásigkomulagið á
þessum s\riðum er að mikiu leyti á
mannanna valdi, þá geta þeir látið
réttlæti ríkja.
Uppbyggingarstefnan er fram-
haldandi þroiskun og fullkoinnun.
Hún er farsældar vegur. Hún er
lögmál Mfsins. Það er því ifagurt
h'Iutverk að freiisa heiminn frá eyði-
leggingar og ofbeldis stefnunni, að
innleiða frið á jörðu og gera menn-
ina að frjálsum verum.
Guðs-hugmyndin.
Aðal orsökin að menningarskorti
og röngu'm menningarstefnum hjá
þjóðunuin, eru rangar og ógöfugar
gu ðs h uigm y n d i r.
Æðsta liugsjón hvers manns er
guð. Gildi þeirrar hugsjónar verður
fundið í þeim einkunnium sem mað-
urinn tileinkar huigsjóninni og þvrí
einnig, hvað maðurinn ætlast til að
guð geri fyrir sig. Guðshugmynd
mannsins er sannur spegill af hon-
um sjálfum. Yoðaleg ófreskja ihlýt-
ur guð þýzku þjóðarinnar að vera,
samkvæmt því sem hún ætlast til
að ihann geri fyrir sig.
Guðshugmynd margra trúar-
bragða í heiminu.m er mjög lág og
ógöfug enn þá. Það er vissuJega
kominn tími til þess, að allar
menningarþjóðir Iheimsins reyni að
finna sannan og fulJkominn guð, —
guð sem vex og stækkar með hverj-
um nýjum vfsindalegum sannleika,
sem mannkynið öðlast. Guð hlýtur
að vera aJfulilkominn og rétti vegur-
inn til að þekkja hann eru reynsla
og vfsindi.
Hvað eru andar og andatrú?
Hvernig á að skiija hugmyndina,
sem táknuð er með orðinu anda-
trú? Andi er ósýnileg vera, — lif-
andi persóna með sjálfismeðvitund
og persónulegum öflum, og andatrú
eru hugmyndirnar, sem menn skapa
sér um þesisar ósýnilegu verur Hvað-
an eru þessar ósýnilegu verur? Til
þess að gera það skiljaniogt, verður
að athuga hin miismunandi þétt-
leika-stig efnisins í tilverunni.
Skilningairvit mannanna sjá og
skynja efnin og ásigkomulagið á
milli vissra takmarka;—þau skynja
að ekns á sínum eigin tilveru-fleti.
Öll tilveran hlýtur að vera efni á ó-
teljandi mksmmnandi þéttleika-stig-
um. Það iskortir ekki ofni f skapn-
aðinn. Afl getur ekki verið til án
efnis og efni ekki ^n afls. Hreyfing-
in skapar ásigkomulag (jfnisins í
öllum hlutum, öllum verum og ver-
öldum.
Af því ekkert er til án efnis, þá
eru andar eða sálir og ailar ósýni-
legar verur efni, eða samvinnandi
efni og afl, og þær 'hafa jafnmikinn
og efnislegan veruleika á sfnu 'til-
verusviði, eins og þær lífsverur, sem
við sjáum o,g þekkjum ihér á jörð
unni. En efni þeirra er otf létt og
hreyfing efniispartanna of fljó.t fyrir
sjón okkar og skynjun.
Það er mikið gert uú á dögum til
að sanna ódauðleik sálarinnar, fram
hald iversónuleikans eftir dauðann,
og til að reyna að skilja ýms dular-
fuJl fyrirbrigði og áhrif. Eyrsta stig-
ið í þessari rannsókn ætti að véra
hvað mikið iskapandi afl er fólgið í
mönnunum sjálfum, — afl sem þeir,
vitandi og óafvitandi geta notað ti'l
að framleiða þessi svokölluðu fyrir-
brigði og áhrif.
Hefir maðurinn persónulega
ábyrgð?
Persónuleg ábyrgð getur að eins
átt sér stað hjá þeirri lífstegund,
sem er pensónulega frjáls. Er þá
maðurinn persónulega frjál's? Já,—
af þvf að hann hugsar sínar eigin
hugsanir og framlcvæmir isinn eigin
vilja, og jafnvel vinnur á móti lög-
um náttúruj^nar. Hvað er ábyrgð?
Ábyrgð er skylda og að greiða á-
byrgð er að uppfylla skyldu. En
hvað sannar að maðurinn hafi á-
byrgð eða meðfæddar, persónulegar
skyldur? Orsaka og afleiðinga sam-
böndin sanna það. Eyrir hvert brot
á móti lögmáli náttúrunna, verður
maðurinn að þola hinar eðlilegu af-
leiðingar, — greiða sínar skyldur,
hvort thann vill eða vill ekki. Hann
verður að fiul'lnægja sinni persónu-
legu ábyrgð, bæði gagnvart sjálfum
sér og öðrum mönnum, og verður
þvf að þolaihinar eðlilegu sjúkdóms-
þrautir, sem leiða af broti náttúru-
lögmálisins. Ef hann orsakar öðrum
andlega eða lfkamlega sjúkdóma,
verður hann að þoJa ásakandi
meðvitund, þar til þeir eru græddir.
Sérhver maður er hluti af mann-
kynsheildinni. Heilbrlgði hennar
fer eftir heilbrigði einstaklinganna,
og heilbrigði þeirra er á valdi hins
persónulega frelsis mannanna. Hver
einstakJingur hetfir því skyldur og
ábyrgð gagnvart mannfélagsheild-
inni. Fyrsta og æðsta spurning
hvers manns til sjálfs sín, ætti að
vem þessi: Hvemg get eg beitt
mfnum frjálsu öflum og vilja, til
þ«ss að gera mannfélags-heildina
heilþrigða?
Það er öllum ljóst hvernig nátt-
úran lætur manninn inna af hendi
sína persónuiegu ábyrgð, þegar
hann ihefir brotð lög lífsins og líf-
'færanna. En hitt liggur máske ekki
eins ljóst fyrir, hvernig hún lætur
manninn greiða ábyrgð sína, þegar
Jiann hefir brotið framþróunarlög-
mál sálarinnar. Eins og stefnumið
l'íkamanis er heilbrigð þroskun að
fiulJikomnunar-marki, eins er stefnu-
mið sálarinnar, og eins og menn
geta hindrað heiltirigða þroskun
líkamans, eins geta þeir hindrað
framþróiun sálarinnar, því sálin
hlýtur einnig'að hafa ákveðið full-
komnunar markmið, Alili.r vita,
hvað hinn sýnilegi hluti mannsins
er og þau efnl, »em hann er saman-
settur af, en hvað er sálin og af
hvaða efnum er hún samansett?
Sálin er líkt og óútfylt mót, eða
eyðublöð með ákveðnum höfuðlín-
um, t.d. framsóknar-ihvöt , sjálifs-
meðvitund, persónu-firelsi, og per-
sónulegri ábyigð. Þetta mót er mann
inum frjálst að fylla með þeim efn-
um, sem hort'Um isýnist. En til þess
að -sálin geti verið heilbrigð, þurfa
efnin ;sem hiin er samansett atf, að
vera í fullu samræmi við eðlis-
ástand þess tilveru-sviðs, sem Jienni
er ætlað að Jifa á. Ef sálar-mótið
er fylt nreð þeim efnuin, sem að eins
eru til nota fyrir líkamlegar nautn-
ir og dýrslegar iivatir, þá hafa þau
efni ekkert gildi á Æraniisóknar Jeið
hennar á næsta tilveru-sviði. Hún
getur ekki komist með þau þangað,
—eru of efnis-þung til þess. Þau
ti'lheyra þessari jörð og meðan sálin
dregst með þau, keinst hún ekki
héðan.
Til þess að þroskaist nær full-
komnunar markmiði, verður sálin
að skifta um efni. Þessi þungu efni
verða að smá-eyðast, en önnur ofnis-
léttari að koma í staðinn. Þessi
efna-breyting verður langur þrauta-
tími fyrir sálina, og töfin mikil á
framsóknarveginuni. Af þvf að lög-
mál tilverunnar er sífeldur vöxtur,
eirulaus framsókn að markmiði
fuilkomnunajinrar, þá hlýtur hvert
tilveru-svið að vera undiribúningur
fyrir það næsta. Sál mannsins þarf í
þesis vegna að tryggja sér þau efni,!
seon hún getur notað á næsta sviði, I
til undiribúnings fyrir það, sem á
eftir kemur. Með því að brjóta
l'ögmál framþróunarinnar, kemst
sálin í óheilbrigt ástand, og á með-
an það er að læknast, verður hún
að líða, — borga sín ábyrgðar-
gjöld.
Það sýnist ekki hugsanlegt, að
nokkur maður hafi auðvirðilegri
sáil, eða sál með meiri efnisþyngd,
en t. d. þýzki keisarinn. Hann hlýt-
ur iþví að eiga tfyrir höndum ærið
erviða leið á næsta tilveru-stigi.
Þar sem alt innihald sálar Ihans er
dýrseðli, og lægstu einkunni manns-
ins, þá er auðsætt, að þær einkunnr
hafa sitt gildi að eins á því sviði.
Reisarinn getur ekki notað sín
þungu efni á næsta fleti, — þau
verða Ihonum þar að eins kvöl.
Hann vill ]>ar fullnægja vilja sínum
eins og hér á jörðu en getur á eng-
an hátt beitt áhrifum sínum á
mennina. Þeir sjá hann ekki eða!
heyra og virða hann hvorki eða
heiðra lengur. Hann sér alt ganga!
öfugt við það, sem hann viil, en fær j
engu um þokað. Ef til vilil fer hann
þá að skilja stigbreytingar-ástand j
sitt og tfer þá að reyna að líta í l
aðra átt, — reyna að þokast í fram-1
faranátt en kemst þá að því, að sál-!
in er að mestu gerð úr jarðarleir.
Hann getur ekki losnað við jörðina.
Á þessu sviði verður hann að vera
um ilangan aldair, — sjá og heyra sig
dæ|ndan og fyrirlitinn sjá framjiró-
un mannkynsins, bróð'urlega sam-
vinnu þesis og firið á jörð. Þegar
hann er kominn á þetta istig, þegar
liann fer að sjá og skilja greinar-
mun góðs og ilJs, ifer að sjá hvílík
sæla það hefði verið fyrir hann,
hetfði hann unnið að friði eins
dyggilega og hann vann að ófriði,—
þegar þar er komið fyrir ihonum, er
ekki ólíklegt, að hann geti farð að
létta af sér byrðinni, farið að þok-
ast átfram og upp á við. Á hinn bóg-
inn geta sálar-efni hans verið svo
hörð, að hann þurfi að fiá hjátp
jarðneiskrar efnabreytingar, til þess
að losna. En það þýðir, að hapn
yrði þá að bíða eftir lausn sinni
þar til jörðin brennur og alt jarð-
efni uppleysist, —. yrði að bíða
Ragnarökkurs.
[Aths.—Grein þessi er samin af
öfldruðaim manni, sem nú er alblind-
ur. Yerður hann því að fiá aðna til
að skrifa handrt sín — en bróf sín
skrifar hann sjálfur með áhaldi, sein
sérstaklega er tilbúið fyrir blinda
'menn. Þó líikamleg sjón ihans sé
honfin, er andans sjón hans furðu
glögg og margt ljóst tfyrir honum,
sem mörgum líkamlega alsjáandi
mönnum er ihulið.—Ritst.j
The OominSon
Bank
HORNI NOTRS DAMB ATK. M
' 9HERBBOOKB ST.
HðfaOstðll, applK .......$ IRMM
VaraaJOSnr ..............$ 7AIM,MM
Allar elgnlr ............ITUNMM
Vér óskum eftir TÍISsklftum rerrt-
unarmanna og óbyrgjumst aS cefa
þelm fullnncJu. SparleJóSsdeild vor
er sú stærsta sem nokkur baalfil
hefir i borglnni.
Ibúendur þessa hluta boraarlnnar
óska a» ekifta vib atofnun. aem feetp
vtta aB er algerlesa trygg. Nafn
vort er full trygRlns fyrlr sjúlta i
ytíur, konu og börn.
W. M. HAMILTON, Rá3anaíur
PHOIME GARRY 8450
- - -
Ljómandi Fallegar
Silkipjötlar.
til «8 búa til úr rújoaábretSur —
“Crasy Patahvrork”. — Stórt árrsj
&f frtórum sUki-Atfklippum, h«tii»
ar 1 ébreiður, kodda, sessur og Ok
—fltór “pakki” á 25e., fimm fyrir |L
PEOPLE'S SPECIALTIES Ca
Dept 17. P.O. Box 1836
WINNIPEG
Mórauða Músin
Þessi saga er bráðum upp-
gengm og ættu þeir, sem vilja
eignast bókina, að senda oss
pöntun sína sem fyrst. Kost-
ar 50 cent. Send póstfrítt.
RJOMI KEYPTUR
Vér æskjum ©ftir viðskiftavinum, gömlum og nýjum, &
þeesu sumri. — Rjómasendingum sint á jafn-skLlvíslegan hátt
og áður. Hæota verð borgað og Jx>rgain send otrax og vér
höíum meðfcekið rjóanann.
SKRIFIÐ OSS EFTIR ÖLLUM TTPPLÝSINGTTM
tTm áreið&nleik vorn vísum vér tiJ Union Bank og viðskifta-
vina vorra ann&ra. Nefnið Heimskringlu er, þér skrifið oes.
MANIT0BA CREAMERY C0. LTD.
609 William Ave. Winnipog, Manitoba.
Prentun.
Altskonar prentun fljótt og vel af
hendi leyst. — Verki frá utanbaej-
armönnum sérstakur gaumur gef-
inn. — Verðið sanngjamt, verkið
gott.
The Yiking Press, Limited
729 Sherbrooke St.
P. 0. Box 3171 Winnipeg, Manitoba.