Heimskringla - 05.09.1918, Síða 7
WINNIPEG, 5. SEPT. 1918
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSIÐA
Kraftamenn
Islenzk alþýða hefir lengi haft
mætur á kraftamönnum, og ein af
kærustu skemtunum hennar hefir
veriS aS segja sögur af þeim og
heyra þær sagSar. I fomsögun-
um úir og grúir af sögum um
sterka menn. En þær sögur þrjóta
ekki meS fornsögunum. Þær hald-
ast viS gegn um allar aldir alt til
okkar daga. NokkuS er af þeim
í þjóSsögusöfnunum, en lang-flest-
um slíkum sögum er þó enn þá ó-
safnaS.
ÞaS væri nú vel til falliS, ef í-
þróttafélögin vildu safna slíkum
sögum. ÞaS er ekki aS eins til
þess aS hafa þær til skemtunar og
'hvatningar, þótt þaS eitt ætti aS
vera nægileg ástæSa. Úr sögun-
um sjálfum má vinna mikilsverSan
þátt íslenzkrar menningarsögu,
því aS í þeim speglar sig hugsun-
arháttur liSinna kynslóSa og oft
gefa þær upplýsingar um uppeld-
iS. Þær mega því engan veginn
glatast.
Ganga má aS því vísu, aS marg-
ar af þessum sögum séu ýktar,
sumar stórlega, — sumar meira aS
segja ósannar meS öllu. Þetta
skiftir minstu. Hvort sem þær eru
sannar eSa ósannar, sýna þær
mætur alþýSu á aflraunum. Hvort
menn hafa upplifaS þessar afl-
raunir í raun og vera eSa aS eins
í ímyndun, ber aS sama brunni
þegar um menningaráhrifin frá
þeim er aS ræSa. Fæstir af þeim,
sem segja frá aflraununum, hafa
séS þær sjálfir og allur þorri þeirra
sem á hlýSir, sér þær aS eins meS
augum trúarinnar. En fyrir augum
allra þessara manna standa þær
sem eitthvaS göfugt og mikilfeng-
legt, sem vert er aS leggja eitt-
hvaS á sig fyrir aS fá höndlaS.
1 þessum fáu línum ætla eg aS
eins aS gera krafta manna aS urn-
talsefni, ekki aSrar íþróttir, t. d.
glímni, vígfimi, skotfimi, léttleik,
hvatleik o.s.frv Þótt nóg sé til af
sögum hjá alþýSu einnig um þær
íþróttir. Aflraunasögurnar eru
flestar, og eg held aS þær hafi
vakiS mesta aSdáun alment.
Allir kannast viS sögurnar um
HafnarbræSur. ÞaS eru yfirleitt
sannar sögur. Þar voru afburSa-
sterkir menn og jafnframt ram-
íslenzkir, fornir í skapi og ein-
kennilegir. En menn líkir Hafnar-
bræSrum hafa veriS nálega í
hverri sveit á Islandi og venjulega
hefir fylgt kröftum þeirra ein-
kennilegt skapferli. Venjulega
eru þeir hversdagsgæfir og yfir-
lætislausir, en reiSast illa, ef þeir
reiSast. Þannig vildi alþýSan ís-
lenzka hafa þá. KraftamaSurinn
og oflátungurinn gengu aldrei í
sömu húSinni. ÞaS aS vera krafta-
maSur og hitt, aS láta lítiS yfir
sér fór venjulega saman.
Oftast nær sýna sögurnar fá-
dæma handstyrk og bakstyrk —
aS síga fast á árar, lyfta þungum
steinum á stall, súpa á brennivíns-
tunnu, bera hestinn sinn á háhesti
o.s.frv. Um styrk hálsvöSvanna
sérstaklega er sjaldan talaS og enn
síSur um styrk kviSarvöSvanna
og brjóstvöSvanna. Útlendir afl-
raunamenn sýna oft styrk þessara
vöSva sérstaklega, til dæmis meS
því aS láta raSa þungum IóSum á
kviSinn á sér og brjóstiS, eSa láta
mann á klossum stökkva úr háa
lofti ofan á kviSinn á sér án þess
aS láta sér verSa mikiS um (I. P.
Muller telur sér slíka aflraun til
gildis, ef eg man rétt). Um slíkar
aflraunir er aldrei talaS í íslenzk-
um alþýSusögum svo eg muni.
Mönnum hefir víst fundist þess-
konar aflraunir—ef ekki flónsleg-
ar—þá samt nauSsynjalitlar, og
ekki fallnar til mikilla nytja í dag-
lega lífinu, en hins vegar bera
keim af oflátungshætti, sem stór-
spilti allri aflrauna-göfgi í um-
daomi alþýSunnar.
Um hitt eru sögurnar óteljandi.
Margir nafnkunnir menn, sem
gátu sér almennan orSstír fyrir
eitthvaS annaS, voru einnig orS-
lagSir kraftamenn, t.d. séra Snorri
Björnsson á Húsafelli (skáld og
fræSimaSur) og Jón sýslumaSur
Espólín.
Um afl Jóns Espólíns eru til all-
margar þjóSkunnar munnmæla-
sögur. T. d. þá er hann kleip
Nathan í handlegginn eftir eitt
réttarhaldiS í morSmálinu, og
kvaS þetta um leiS:
....Brenni þér sinar, blóS og æS,
bölvaSur Nathan satans.
Einnig á hann aS hafa getaS
boriS reiShestinn sinn á háhesti.
En þaS fylgir ætíS slíkum sögum,
aS menn verSa aS byrja á því, aS
bera hestinn sem folald og þannig
venja hann viS þaS, enda er þaS
skiljanlegt, aS erfitt sé aS bera
hestinn, ef hann er óvanur því og
brýzt um á bakinu á manninum.
Tryggvi heitinn Gunnarsson
sagSi mér eitt sinn einkennilega
sögu af Espólín. I kirkjugarSin-
um á Hálsi í Fnjóskadal var gam-
all legsteinn, ótilhögvinn berg-
stuSull, einn af þeim sem oft voru
notaSir þannig í gamla daga. Var
þaS siSur pilta á Hálsi, bæSi gesta
og heimamanna, aS reyna afl sitt
á þessum steini. Tryggvi, sem var
maSur vel efldur, hafSi aldrei
komiS honum lengra en upp á
kné, ékki getaS rétt sig upp meS
hann. ASrir, sem reynt höfSu
viS hann jafnsnemma honum,
höfSu aS eins getaS látS renna
vatn undir hann, og sumir ekki
einu sinni þaS. — En einu sinni,
löngu fyrir Tryggva minni, höfSu
menn sem oftar veriS aS reyna afl
sitt á steini þessum á sunnudag aS
tíSum loknum. RiSu þá ókunn-
ugir menn meS garSi en komu
ekki heim, og gáfu menn því eng-
an gaum. En morguninn eftir var
steinninn kominn upp á bæjar-
kampinn. ÞaS var Jón Espólín,
sem riSiS hafSi norSur hjá um
daginn og suSur hjá um nóttina.
HafSi hann þá komiS heim aS
bænum — og þetta var nafnspjald
hans! Heilan mannsöfnuS þurfti
til aS koma steininum aftur á sinn
staS.
Einkennilega aflraunasögu hefi
eg heyrt úr VopnafirSi, og af því
aS hún er dálítiS ólík öSrum, set
eg hana hér. MaSur bjó þar á
bæ, og er þess ekki getiS hvaS
hann hét, en enginn þóttist vita
afl hans. Hann var orSinn gamall
en átti tvo sonu uppkomna, báSa
af-bragSs efnilega menn og meiri
en meSalmenn aS afli. Þeir voru
enn hjá föSur sínum, og fór af
þeim öllum mesta friSsemdar orS.
Eitt sinn gisti presturinn hjá þess-
um feSgum. Karlinn var þá orS-
inn hrumur mjög og lá hann í háa-
rúmi fyrir gafli baSstofunnar. Svo
hagaSi til, aS rétt framan viS rúm-
stokkinn hjá karli lá biti um þvera
baSstofuna. Prestur átti þar beztu
nótt, en seintekinn var þó karl aS
tala um aflraunir sínar, þótt prest-
ur leitaSi viS á ýmsa vegu. "ÞaS
er nú ekkert orSiS eftir af mér”,
sagSi hann, “og strákarnir eru liS-
leskjur." En áSur en prestur færi,
lætur þó karl til leiSast, aS sýna
honum leik þeirra feSga. Skipar
hann þá sonum sínum aS koma
meS reipiS, og komu þeir þá meS
óvanalega sterkt ólareipi meS
hornhögldum. Sezt karl þá framan
á bóliS sitt, stySur olnbogunum
á bitann, stingur báSum þumal-
fingrunum gegn um hagldirnar á
reipinu, en heldur um meS hinum
fingrunum fyrir neSan. Lætur
hann síSan töglin falla ofan á gólf-
iS og segir sonum sínum aS toga í
þau og “draga nú af sér sleniS.”
Áttu þeir aS toga reipiS úr hönd-
um karls. Þeir lögSust nú í tögl-
in eins og þeir gátu, lögSu sig flata
á gólfiS og spyrtnu í alt, sem fyrir
varS, en hvernig sem þeir létu,
réttu þeir ekki handleggi karlsins
úr kreppunni; þeir voru sem stál-
fleinar. Karlinn blánaSi í framan
viS átökin, en handleggimir gáfu
sig ekki. Þeir vom ekki vöSva-
miklir, en sinarnar ákaflega stælt-
ar og harSar. Loks urSu synirnir
aS gefast upp, en karlinn sýndi
presti förin eftir hagldimar inn
undir bein á þumalfingrunum og
glotti drýgindalega.
Þannig mætti margar sögur
segja. Eina get eg ekki stilt mig
um aS setja hér, af því aS eg held
aS eitthvaS sé hæft í henni. Grím-
ur Thomsen hafSi nokkmm sinn-
um unga menn hjá sér á Bessa-
stöSum til undirbúningsnáms und-
ir skóla. MeSal þeirra var maS-
ur, sem eg vil ekki nefna meS
nafni, en er nú embættismáSur og
orSlagSur kraftamaSur. Hann var
þá 18 ára og leizt Grími svo á
hann, aS hann mundi vera flestum
fremri aS afli, og langaSi til aS
reyna hann einhvern tíma. Eitt
sinn bar svo viS, aS þeir eru aS
ganga niSur viS tjörnina, Grímur
og pilturinn. Þar er lending Bessa-
staSabóndans og þangaS höfSu
nýlega veriS fluttar vörur sjóveg.
Þar átti Grímur skúr eSa skemmu-
kofa. Þegar þeir koma aS köfan-
um, liggur þar úti tunna, ekki all-
stór, og gekk eitthvert grá-hvítt
dust út á milli stafanna. Slíkar
tunnur voru þá nýlega farnar aS
flytjast. Grímur segir þá viS pilt-
inn meS mestu hægS: “Viltu nú
ekki gera svo vel, góSi minn, aS
láta mjöl-hálftunnuna þá ama inn'
í skemmuna; eg held aS nú ætli
aS fara aS rigna.” Pilturinn ætl-
ar aS gera þetta umyrSalaust, og
þrífur til tunnunnar. Er hún þá
þyngri en hann hyggur, svo aS
hann fær varla loftaS henni.
Rennur hann þá á tunnuna aftur,
vegur hana upp og vippar henni
inn í skemmuna, en segir aS lok-
inni aflrauninni: "Þetta er andsk.
ekki mjöl." “Nei, þaS er líklega
sement,” mælti Grímur og glotti.
Jafnframt sögunum um afl
manna hefir alþýSa ótal sögur aS
segja af seiglu manna og þraut-
seigju, manna, sem þó eru ekki
nema meSalmenn aS burSum. —
Þannig var eitt sinn BorgfirSingur
eystra aS taka út í veizluna sína á
SeySisfirSi. ÞaS var aS vorlagi,
snjóa var aS leysa og færSin því
fremur vond á fjöllunum. LagSi
hann þá af staS meS 1 2 fjórSunga
bagga á bakinu. ÞaS er nú í sjálfu
sér engin sérleg mannraun, aS bera
12 fjórSunga (120 pund) stuttan
veg, en aS bera þaS í illri færS frá
SeySisfirSi norSur í BorgarfjörS,
yfir tvo erfiSa fjallgarSa! — Enda
var maSurinn 14 klukkustundir á
leiSinni. Hann kom þó til Borg-
arfjarSar morguninn eftir meS all-
an veizlukostinn, en blár var hann
og marinn undan brennivínskútn-
um í bagganum, og þótt hann gifti
sig eins og til stóS, um daginn, var
hann meS veikum burSum og lá
nokkra daga á eftir. MaSurinn,
sem sagSi mér söguna, bætti því
viS, aS svo mikiS vildi hann ekki
vinna til nokkurrar stúlku undir
sólinni, aS bera 12 fjorSunga
bagga þenna veg í sömu færS;
enda hefSi hann vafalaust látiS
þaS ógert.
I bókmentunum eru þessir menn,
hvorirtveggju, krafta- og seiglu-
menn, ekkert fágætir. Allir kann-
ast viS lýsingu Jóns Thoroddsens
á Bjarna á Leiti í ‘Manni og konu’,
og af sama tagi eru frægSarsög-
urnar, sem Grasa-Gudda segir af
Ingimundi sínum í ‘Skugga-sveini’,
þótt ekki nefni eg fleira.
Eg er nu ekki á því, aS Islend-
ingar séu yfirleitt meiri kraftamenn
en aSrar þjóSir, og ekki tel eg
heldur líklegt aS ísleiizkir afburSa
menn mundu ekki hitta fljótt jafn-
ingja sína meSal annara þjóSa, en
“Anster í
blámóða fjalla”
bék Aðalsteins Krist-
jánssonar, er til sölu
á skrifstofu Heims-
kringlu. Kostar $1.75
send póstfrítt. Finniö
eöa skrifið S. D. B.
Stephansson, 729 Sher-
' brooke St., Winnipeg.
$1.75 békin [
gaman væri þaS þó, ef þaS sýndi
sig viS athuganir, aS vér ættum
fleira af slíkum mönnum aS til-
tölu en aSrir. En þótt ekki væri
nú svo vel, væri mikill fengur í
því, aS safna þessum sögum og
halda þeim á lofti, og þaS hefi eg
grun um, aS Islendingar sigri
flesta aSra í þrautseigju.
G. M.
— Þróttur.
Stjórnarbyltiflgin mikla
á Rússlandi.
(Þorl. H. Bjarnason í Skírni.)
(Niðurl.)
Þegar Rússar tóku að rétta við
eftir ófarirnar 1 styrjöldinni við Jap-
ana og innanlandsbylting þá, sem
af þeim leiddi, fóm þeir smámsaman
að láta stjórnmál Evrópu meir til
sín taka en áður. Þegar Austurríki
haustið 1908 innlimaði Bosníu og
Herzegovniu þvert ofan í samþykt-
ir þær, er gerðar voru á Berlínar-
fundinum 1878, vakti það sem von-
iegt var mikla gremju hjá Serbum.
Þeir höfðu gert sér von um, að
landshlutar þessir, er Serbar byggja
að mestu leyti, mundu með tíman-
um hvérfa undir Serbíu. Létu Serb-
ar allófriðlega og Rússar gerðu sig
líklega til að fylgja þeim að málum.
En Þjóðverjar lögðust þá á eitt með
Austurríkismiönnu'm og þröngvuðu
Serbum og Rússum til þess að
leggja samþykki á innlimunina
(1909). Þóttu Þjóðverjar og Aust-
urríkismenn hafa vaxið mjög af
þessum málum, en Rússar og banda-
mernn þeirra sefct niður. Rússar
voru auðvitað ekki við ófriði búnir,
en ófriðarflokkurinn við hirð keis-
ara mun hafa hugsað miðveldunum
þegjandi þönfina. í bráðina varð
þó friðarflokkurinn yfirsterkari og
1910 sótti Nikulás 2. ásamt utanríkis-
ráðherra sínum Sasonow Viljálm
keisara heim í Potsdam. Þar var og
Bethmanni-Hollweg kanzlari stadd-
ur. Uirðu þeir ásáttir um, að landa-
skipun .á Balkanskaga skyldi ekki
raskað úr því sem komið væri (þ. e.
Austurríkismönnum skyldi ekki
haldast uppi að færa þar út iönd
sfn). Sumarið 1912 sótti Vilhjálmur
keisari Rúasakeisara heim í Baltisch
port í grend við Reval. Nokkrir
helztu ráðherrar þeirra keisaranna
voru og með í förinni. Þeir sendu
síðan út orðsending þess efnis, að
stjórnenduir þessara tveggja stór
velda væri sammiála f öllum aðalat-
riðum stjórnmálanna. Þjóðverjar
og blöð þeirra lögðu mikið upp úr
þessari orðsendingu, en Frakkar
voru thinir reiðustu, af þvf Rússar
væri að daðra við Þjóðverja.
í Balkanstyrjöldunum (1912 og
1913) hallaðist Rússland aftur á
sveifina með vesturríkjunum og
hafði mikinn herbúnað. Lá hvað
eftir annað við að ófriður risi með
Rússum og Austurríkismönnum;
var þá viðbúið að vináttan með
hinum fyrnefndu og Þjóðverjum
færi út um þúfur. Að minsta kosti
þótti þýzku stjórninni horfurnar á
Balkanskaga ®vo ískyggilegar og
vígbúnaður Rússa svo tortryggileg-
ur, að hún lagði til, að liðsafli ríkis-
ins á friðartfmum væri aukinn stór-
um, og hafðist það áfram.
Þessi ár, sem nú voru talin, höfðu
friðarvinir við hirð keisara haft yf-
irtökin, en eftir því sem herinn efld-
ist og ófriðarpostularnir með Such-
omlinow herm'álaráðherra, Iswolski
fyrv. utanríki'sráðherra og Nikulás
stórfursta í broddi fylkingar fengu
meiri byr í seglin, varð aðstaða
hinna erfiðari. Helztu friðarvinirn-
ir voru að því er umir segja þeir
Sasonow utanríkisráðherra og Ras-
putin, er áður hafa verið nefndir.
Keisari var að eðlisfari fremur fylgj-
andi friði, en annars sitt á hvað,
eftir því við hvern hann ráðgaðist.
Bezt tök á honum mun drottningin
og Rasputin hafa haft.
Annars kaus öll alþýða manma á
Rússlandi, eða bændur og verka-
menn, að fá að lifa í friði, en ein-
valdsstjórnin lét nú ekki einu sinni
svo Iftið að gefa vilja þeirra nokk-
urn gaum. Hins vegar voru margir
mentamenin og atvinnurekendur, er
hneigðust að alrússnesku eða öllu
heldur alslafnesku stefnunni, litlir
vinir Þjóðverja, er þeir töldu erfiða
og ónærgætna keppinaufca í öllunj
viðskiftum. Þeir vildu að Rússland
kastaði eign sinni á Constantinopel
og Hellusund og svifti af sér sam-
kepndsfötrum Þjóðverja. Kváðu
þeir Rússa sjálfkjörna til þess að
gerast forvígismenn slafnesku þjóð-
anna f baráttunni við Germana. Svo
árum skifti höfðu Rússar og aðrir
Slafar, er voru fylgjandi salfnesku
stefnunni, komið af stað miklum
undirróðri og æsingum með smærri
elafneskum þjóðum á landamærum
Rússlands, einkum þeim er töldust
til Austurríkis og Ungverjalands.
Yíg Franz Ferdinands ríkiserfingja
í Austurríki og konu hans, er voru
myrt í Sarajevo í Bosníu 28. júní-
mánaðar 1914, var eins og kunnugt
er afleiðinig af margra ára æsiinigum
og viðsjám f þessum ríkishluta. Við
rannsókn þá, er hafin var út af víg-
unum, þóttist stjórn Austurríkis
hafa fengið sannanir fyrir því, að
undirróður og æsingar Serba í Bos-
níu hefðu átt mikda sök á þvf, að
vígin voru unnin, og bjóst nú að
‘Ihirta” Serba fyrir fornan fjand-
skap og nýjan. Serbar leituðu ásjár
Rússastjórnar. Hún réð þeim til að
taka liðlega í kröfur Austurríkis, en
hét þeim liðveizlu sinni, ef til kæmi.'
Serbar fóru að ráðum Rússa og
gengu d svari sínu að því nær öllum
skilyrðum þeim, er Austurríkis-
menn höfðu sett þeim. En stjórn
Austurríki'smanna vildi, þó undar-!
legt megi heita, ekki þekkjast boð j
Serba og sagði þeim stríð á hendur j
28. júlímánaðar. Sama dag eða I
degi síðar tóku Austurríkismenm og |
Rússar að vígbúa heri sína. Leikur1
nokkur efi á, hvorir hafi átt upptök-
in. Þó er svo að sjá, sem Rússakeis-
ara hafi verið allmi'kið áhugamál, að
friður héldist, en hafi verið beittur
brögðum af hermálaráðherra sínum
og öðrum ófriðarsinnum. Að minsta
kosti hefir Sudhomlinow, fyrv. her-
málaráðherra, játað það í prófum
þeim, er haldin voru yfir honum síð*
astliðið sumar eða haust við ríkis-
ráðsdóminn í Petrograd, að hann
hafi haft að engu símaskipun keis-
ara frá aðfaranótt þess 30. júlí, er
bauð honum að afturkalla fyrir-
skipunina um almennan vígbúnað,
er keisari hafði skrifað undir þá um
daginn.
En Suchomlinow lét ekki þar við
staðar numið, heldur símaði hann í
oddvita herstjórnarráðsins, að haf-
ast ekkert að, þ. e. að halda áfram!
vígbúnaðinum. Morguninn eftir
laug 'hann því að keisara, vígbún-
aður hefði einungis farið fram í suð-
vesturhéruðum ríkisins (þ. e. á
landamærum Austurríkis). Daginn
eftir bar saman fundum þeirra
Suehomlinow Sasanows og oddvita
herstjórnarráðsins og á 10 mínútum
fastréðu þeir að ekki skyldi hætta
við vígbúnaðinn. Sama dag tókst
þeim einnig að koma keisara á þá
skoðun. Hafa sumir viljað fullyrða,
að þeim hefði aldrei tekist það, e£
Rasputin hefði þá verið á upprétt-
um fótum; en hann var þá allþungt
haldinini af sári, sem alþýðukona
ein, er sett var til höfuðs honum,
hafði sært ihann. Fregnin um al-
mennan vígbúnað Rússa virðist
hafa komið allflatt upp á þýzku
stjórnina. Hún sendi Rússum þeg-
ar í stað ályktarorð með 12 stunda
fresti og krafðist þess, að þeir
hættu liðsafnaðinum að vörmu
spori. Slík orðseinding var auðvitað
sama sem friðslit, enda hófu Þjóð-
verjar 1. dag ágústmánaðar ópin-
beran vígbúnað og sögðu því næst
Rússum stríð á hendur. Styrjöldin
við Rússa dró á eftir sér ófrið við
Frakka, Bandamenn þeirra, er
hvorki vildu né þóttust geta setið
hjá, og loks sagði Bretland Þýzka-
landi stríð á hendur 4. ágúst.
---------------o-------
ÍSLANDS FRÉTTIR.
Engilbert Kolbeinason heitir sá
maður, sem lengst hefir verið í Bók-
mentafélaginu allra manna; hann á
heima á Lónseyri hjá Kaldalóni við
ísafjarðardjúp og er nú 88 ára gam-
all. Hann gerðist félagi Bókmenta-
félagsins árið 1857, eða snemma á
forsetatíð Jóns Sigurðssonar, og hef-
ir verið skilvis félagi í 61 ár. Stjórn
félagsins hefir í viðurkenningar-
skyni gert hann gjaldfrían félaga úr
þessu og sent honum 100 króna heið-
ursgjöf með lofeamlegu bréfi, sem
vænta má að verði honum mikið
fagnaðarefni. Bjarni amtmaður
Thorsteinsson var 60 ár í Bókménta-
félaginu, eða frá stofnun þess til
dauðadags og hafði hann orðið
ianglífastur allra nianna í félaginu,
þangað til Engilbert komst fram úr
honum.—(Mrgjbl.)
Til þeirra, sem
auglýsa í Heims-
kringlu
Allar samkomuaug!ý«lngar kosta 28
ets. fyrir hvorn þumlung dilkslengtlar
—i hvart sklftl. Eagta auglýsing tekin
I blaYTS fyrtr mlnna »a ZS o«nt.—»org-
Ist fTrlrfraaa. noaoa Itru Tisi sé um
saaatV.
SrfUjétS c( æfimtnnlarar kosta 18e.
fyrtr kvern þaml. ðA.lkslengdar. Bf
mjwð fjrlclr kootar aukrottis fyrir til-
bántag & yroot “photo"—oftir ot«rb.—
Btirfoi roHhu- aU fylrja.
Aagtýoíacikr, sem sottar eru I blaHfO
&a hooa aV tlltaka timann sem þror eiga
aV atrtast þar, ysrVa aS borgaot upp aC
þotas ttaaa seos oss er ttlkynt ati taka
þsar tr hlabtau.
AtUr aagL rsrVa a« vara komnar &
BkrWstafnaa fyrtr kl. 13 i þritjudaff tll
blrtingar I blahinu þ& vikuna.
Tko Vtklsg Preoo, Ltd.
Prentun
Alkiconar prentun fljótt og vel af
hendi leysL — Verki frá utanbœj-
armönnum sérstakur gaumur gef-
inn. — VerSið sanngjamt, verkið
gott
The Yiking Press, Limited
729 Sherbrooke St.
P. 0. Box 3171 Winiiipeg, M&aitoba.