Heimskringla - 10.11.1920, Side 4

Heimskringla - 10.11.1920, Side 4
4. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGiuA WINNIPEG, 10. NÓV. 1920. WINNIPEG, MAN., 10. NÓVEMBER, 1920. Bandaríkjakosaing- arnar. * " ' ' i. Kosningaúrsilitin í Bandaríkjunum munu hafa komið fáum á óvart. Allir, sem fylgd- ust nokkuð með málum suður þar, hlutu að sjá að nú var “Republikka ár” upp runnið, og að hvaða mannhræða, sem í kjöri var af þeirra hálfu fyrir forsetaembættið, hlaut að verða kosinn, og hvaða ágætismaður, sem demokratar otuðu fraun á sóknarsviðið, var fyrirfram dæmdur til falls. Það eina, sem kom mönnum á óvart, var, að republikka- sigurinn skyldi verða jafn stórfeldur og hann reyndist; það að brot skyldi. komast í hinn ó- vinnandi demokrata vegg suðurríkjanna höfðu fæstir búist við. Hefir slíkt ekki bor ið við^síðan á tímum þrælastríðsins. Ástæðurnar fyrir þessum stórfelda sigri republikka eru margar. Helztar þær, að þjóðin var orðin þreytt á átta ára demokrata stjórn, eða öllu heldur eins manns stjórn, því það var á flestra vitorði, að Wilson forseti var stjórnin. Að hann bar höfuð og herðar yfir samt'íðarmehn sína, bæði að andlegu at gerfi og stjórnmála-atorku, kom flokki hans að engu haldi, héldur þvert á móti. Þjóðin hefir jafnan metið mest þá menn, sem voru henni skyldastir að andlegu atgerfi, snjall- orða málskrafsmenn, sem ekki höfðu víðtæk- ari sjóndeildaihring en fíkin sjálf. Woodrow Wilson hafði allan heiminn að sjónarsviði; hann var stjórnvitringur, en ekki hreppapóli- .tíkus; þess vegna stóð mörgum stuggur af gerðum hans. Aðrir skyldu hann ekki og gleyptu við þeim kenningum andstæðinga- forsetans, að voði stæði landi og þjóð af stjórnmálastefnu hans. Alþjóðasambandið átti að vera einhver skaðræðissamtök, er Bandaríkjunum gæti stafað af hin mesta hætta. Það, að tilgangur þess væri sá að halda frið í heiminum og vaka yfir rétti lítil- magnans; það einmitt gerði það langtum hættulegra, vegna þess að Bandaríkin yrðu máske dregin inn í þrætumál, sem þau kæm- ust hjá, væru þau utan sambandsins. Það, að velferð heimsins gat verið fólgin í öflugu þjóðasarrtbandi, varðaði minst. Bandaríkin fyrir Bandaríkjamenn, en ekki fyrir neina aðra, var sú hin göfuga kenning, sem senat orarnir Hiram Johnson, Borah og aðrir helztu Hardings-menn létu bergmála um ríkin þver og endilöng, og þjoðm hlustaði hugfangin á fagnaðarboðskapinn og ásetti sér að breyta eftir honum. Og 2. nóvember sýnir ótví- ræðilega að hún gerði það. Kosningaúrshtin gefa nú repubhkkum völdin og ailla ábyrgðina, sem af þeim stafa. Þeir hafa forsetann og báðar þingdeildir. Það sem Wilson reyndist örðugasti hjallinn, var að hann hafði minnihluta í báðum þing- deildum síðustu tvö árin. Hefði öðruyísi verið ástatt, mundu Bandaríkin nú komin inn í alþjóðasambandið og friður saminn við Þýzkaland fyrir meira en ári síðan. Eins og nú er ástatt er alt í flækju; en gaman mun margur hafa af að sjá, hvernig hinn nýi for- seti fer að greiða fram úr henni, án þess að þræða Wilsons leiðina að nokkru fcða, öllu Jeyti. , « II. Þegar vér könnum válinn eftir bardagann, þá er hann fremur ófrýnn, að minsta kosti frá demokratisku sjónarmiði. Vér sjáum Camp Clark, fyrrum þingforseta og leiðtoga demo- krata í neðri deild sambandsþingsins, fallin óvígan eftir meira en 30 ára óshtna þing- mensku fyrir sama kjördæmið í Missouri. Vér sjáum senatorana Smith í Maryland og Chamberlain í Oregon, eftir 30 ára og 18 ára dvöl í senatinu, pólitrska nái; einnig sex eða sjö aðra demokrata senatora, þó ekki séu eins gamlir í hettunni og hinir tveir. Vér sjáum Oklahoma í fyrsta skiftið í sögunni senda republikka senator til Washington, og iexas, hið óvinnandi demokrata-virki, kjósa republikka-þingmann. Ohio kýs nú í fyrsta sinm ala þingmannasveit sína, 22 talsins, úr flokki republikka, og jafnvel Tennesee slít- ur af sér demokrataböndin og fleygir sér í faðm Hardings.- Slíkt og þvílíkt hefir aldrei áður sktð. Þá er atkvæðamagn Hardings undursam- legt. Hann vinnur New York ríki með rúmri miljón atkvæða fram yfir Cox. Pennsylvaníu með 700,000 atkv. meirflíluta, Illinois og Massachusetts með Vi miljón og Ohio, heima- ríki þeirra beggja, með 400,000 atkv. meiri- hluta. Kansas, California, Iowa og Was- hington, sem öll fylgdu Wilson 1916, lénda nú Hardings megin með 100.000—200,000 atkv. meirihluta; og hin Wilsons ríkin að vestan, suðvestan, norðan og úr miðju, öll nú Hardings megin, þó með minni atkvæða- yfirburðum en þau, sem áður er getið. I allri sögu Bandaríkjanna héfir ekkert forseta- efni fengið helming þeirra atkvæða, sem Har- ding fékk að þessu sinni; en hér ber þesS að gæta, að við þessar kosningar bættist kven- þjóðin í kjósendatöluna. En úr því vér á annað borð mintumst á kvenþjóðina, þá er rétt að geta þess, að ein kona var kosin til neðri deildar sambands- þingsins. Er hún frá Oklahoma og heitir Alice Robertson, og er 66 ára gömul mey- kerling. Er þetta í annað skiftið að kona er kosin til sambandsþingsins. Hin fyrri var Miss Jeanne Rankin frá Montana; en hún féll eftir eitt kjörtímabil. En þessi sigur kvenþjóðarinanr er líka sá eini, sem þær unnu í þessum alríkjakosningum. Annars- staðar gætti kven-atkvæðanna hvergi öðru- vísi en sem jásystra karlmannanna, sem að þeim stóðu. Sýnir það sig bezt á því, að fjórir senatorar, sem sérstaklega höfðu verið á móti kvenréttindunum, og sem kvenþjóðin hafði lýst vanþóknun sinni á og svarið að feila við kosningarnar, náðu allir kosningu með miklum atkvæðamun, en fal’l þeirra var fyrirsjá&nlega óhjákvæmilegt, hefðu konurn- ar gert nokkra alvöru úr hótunum sínum. Nei, þær löbbuðu með góðri samvizku við hlið manna sinna, bræðra, unnusta eða þá feðra, og greidu atkvæði með auðmýkt og undirgefni að vilja þeirra, kusu þá menn, sem svívirt höfðu þær á þingi þjóðarinnar með því að telja þær óhæfar til þegnréttinda, vegna þess að þær væru ósjálfstæðari en karlmenn og létu stjórnast af þeirra vilja. Þær sögðu þetta svívirðingu. En hvað kom á daginn. Moses frá New Hampshire, Bran- degee frá Connecticut, Dillingham frá Ver mont og Wadsworth frá New York, hefðu ekki verið endurkosnir til senatsins, hefði kvenþjóðin eigi kosið þ'ssa fjandmenn sína. En það er margt skrítið í heiminum, og kvenkjósendur eru ekki þeir einu, sem má finna að, síður en svo. Verkamannaleiðtog- arnir með Gompers í broddi fylkingar, ætl- uðu að leiða verkalýð landsins undir merki Cox. Má vera, að þeim hafi tekist að leiða hann undir merkið; en hitt er víst, að ekki kusu verkamenn Cox að nokkru ráði; hann hefði þá ekki fallið jafn flatt og raun varð á. Dakota, að nokkru leyti í Wisconsin, og yf- irriðunum yfir demokrata útnefningunum í Colorado. Mesti sigur Non Partisan League var í Norður Dakota; fengu þeir kosinn sen- ator til Wáshingtonþingsins og ríkisstjóra sinn endurkosinn. I Wisconsin fengu þeir einnig kosinn ríkisstjóra, en aðeins vegna þess að hann var á republikkalistanum. I Minnesota, Suður Dakota og Montana fóru N. P. L. mikl- ar hrakfarir. Þess ber að geta, að The Non Partisan League er í rauninni ekki sjálfstæð- ur flokkur, heldur bylting innan annarshvors gamla flokksins. Þó virðist hún frekar smeygja sér inn hjá republikkum, og þykir leiðtogum flokksins það Iítið gleðiefni, eins og við er að búast. IV. Rétt er að minnast með nokkrum orðum á hinn nýkjörna forseta. FuIIu nafni heitir hann Warren Gamaliel Harding. Hann er fæddur 2. nóv. 1865 í bænum Corsica í Ohio, og var faðir hans læknir þar. Harding varð stúdent árið 1881 og byrjaði á lög- fræðisnámi en hætti við það eftir tvö ár og fór að gefa sig við blaðamensku. Hann keypti skönunu seinna blaðið Marion Star, sem þá var á heljarþröminni, og með dugnaði og fyrirhyggju tókst honum að reisa það við og gera það að áhrifamiklu og víðlesnu blaði. Er hann enrtþá útgefandi þess og eigandi. Til efri málstofu Ohioþingsins var Harding kos- inn 1899 og sat þar í fjögur ár. Árið 1903 var hann kosinn aðstoðarríkisstjóri. Um rík- isstjóraembættið sótti hann 1910, en féll. Sex árum síðar náði hann senatorskosningu tíl Washingtonþingsins og þar hefir hann átt sæti síðan. Og nú 2. nóvember á 55. af- mælisdag sinn, er hann kosinn forseti Banda- ríkjanna; í sannleika dágóð afmælisgjöf. I senatinu hefir ekki mikið á Harding bor- ið; þó er hann ræðumaður allgóður. Ekki hefir hann heldur þótt framgjarn eða frjáls- lyndur, og hefir fátt það til að bera, sem vek- ur vinsældir og fylgi. Hugsjónamaður er hann enginn, en hann er maður hygginn og hagsýnn. Um nafn hans mun aldrei sveip- aður dýrðaríjómi; en nýtur maður þjóð sinni er hann líklegur til að reynast, því mað- urinn er gætinn og atorkusamur; og þeir mennimir verða venjulega hapapdrýgri en afburðamennirnir. Mikilmenni gæti Harding þó orðið; leiðin liggur honum opin! En vér erum vondaufir um að hann treysti sér að fara hana, hún er engum heigjlum hent. Ef Harding gengur loforðaveginil á enda, eínir öll þau kosninga- loforð, sem hann og flokkur hans gáfu, þá á hann fulla kröfu til þess að kallast mikil- menni. En vér höfum aldrei ennþá rekist á þann manri, sem þess hefir reynst megnugur að uppfylla öll sín fögru og miklu kosninga- loforð. Alílir stjórnmálamenn lofa upp í ermina sína. m. Bandaríkjaþjóðin virðist ekki vera sérlega gefin fyrir að margskifta sér í pólitíkinni. Hún lætur sér nægja gömlu flokkana tvo, nærir þá og klæðir, en biður nýgræðinga aldrei að þrífast. Við þessar kosningar voru að minsta kosti sex,vef ekki sjö, flokkar, sem sóttu fram á vígvöllinn: Demokratar, repu- blikkar, jafnaðarmenn, Non Partisan League, bænda- og verkamannaflokkur, bindindis- flokkur og “Socialist-Labor”. Allir höfðu flokkar þessir að Non Partisan undanskild- um, forseta- og varaforsetaefni í kjöri, en atkvæðin, sem dvergflokkar þessir fengu, voru sárfá, í samanburði við görnlu flokkana. Að sönnu fékk Debbs, forsetaefni jafnaðar- manna, yfir 2 miljónir atkvæða; en það seg- lítið, þegar greidd eru 30 miljónir atkv. Einn þingmann til Washington þingsins fengu jafaðarmenn kosinn, en svo hafa þeir haft á undanförnum árum, og einn maður segir lít- ið á þingi, sem telur hátt á sjötta hundrað. En af þeim hlutföllum má nokkurnveginn marka styrkleik flokksins í Bandaríkjunum. Bænda- og verkamannaflokkurinn var nýr af nálinni í þessum kosningum. Hans gætti hvergi að neinu nema í Washingtonríkinu; en þó fékk hann engan þingmann kosinn á sam- bandsþingið, og forsetaefni þessara samein- uðu fékk miklu færri atkvæði en Debbs. Sá eini af þessum nýgræðingaflokkum, sem nokkru fékk áorkað, var Non Partisan Lea- gue. Hann hafði ekki forsetaefni í kjöri, en lét talsvert á sér bera í fjórum eða fimm ríkj- um. um, þó með þeim hætti að flokkurinn reyndi að sölsa undir sig útnefningar annarshvors gamla flokksins; þannig náði fólokkurinn yf- irráðum yfir republikkaútnefningunum í N. Harding og flokkur hans hefir lofað að efla vellíðin og auðsæld í ríkjunum. Það á að gera með tollum. Á bæði bændum og verkamönnum að stafa gott af því, og verk- smiðjueigendum ekki hvað minst. Her ög flota á að auka að miklum mun, efla sigling- ar og verzlun, borga þjóðskuldina og hefja veg og gengi ríkjanna bæði innávið og útá- við. Alt þetla og ótalmargt fleira, svo sem að gefa öðrumhverjum manni sem kusu hann, embætti, á hinn nýi forseti að gera, ef vel á að vera. Mun honum takast það ? Og utanríkismálin, friðarsamningarnir og alþjóðasambandið. Þar héfir Harding verk- efni ekki alllítið. Raunar virðist hann hafa verið fljótur að ráða við sig afstöðu sína og Bandaríkjanna gagnvart alþjóðasambandinu, því daginn eftir kosningarnar hrutu honum þessi orð af munni: “Alþjóðasambandið er dautt! ” # V. Að endingu viljum vér minnast með fám orðum sjúka mannsins í Hvíta húsinu. Um hann og verk hans snerust kosningarnar aðal- lega. Woodrow Wilson hefir verið metinn og veginn á vogskálum þjóðar sinnar og Iétt- vægur fundinn. En dómurinn sá verður skamlffur. Sagan mun reisa Wilson bauta- stein, veglegri en nokkrum þeim, sem grýttu hann og svívirtu. Og þjóðin hans, sem skildi hann ekki vegna þess að hánn var andlegt ít- urmenni, og laus við kotungs hugsunaÆátt þann, sem kunnastur er'í stjórnmálum; hún mun síðar hefja hann við hlið Washingtons og Lincolns, gera hann að engu minni þjóð- dýrðlingi en þá. Merkur blaðamaður skrifar nýlega um Wilson meðal annars: “Tvær myndir eru sérstaklega í huga mín- og gengur að ræðustólnum. Hár og grannur, beinn og vasklegur, svipmikill og tigulegur. Hann er 60 ára garnall, en lítur út fyrir að vera í mesta lagi 45 ára. Þannig leit Wilson út, er hann flutti stríðs- boðskap sinn. Síðari myndin er þremur og hálifu ári seinna. Forsetinn situr úti fyrir austurhlið Hvíta hússins og kringum hann eru særðir og ör- kumla hermenn. En nú er breyt- ing orðin á forsetanum. Heilsan farin, hárið fannhvítt, herðarnar lotnar og axlirnar sígnar. Aðeins hugurinn sá sami. Forsetinn er nú 63 ára, en Iítur út ifyrir að vera miklu eldri; hann hefir elzt um aldarfjórðung á rúmum þrem ár- um. í sjúkravagni sitja örkumla hermenn, blindir, fótalausir og handarvana. Þeir heilsa forsetan- um að hermanna sið um leið og vagninn líður framhjá, og í kveðj- um þeirra er lotning, djúp og ein Iæg. Um leið og forsetinn lyftir hægri hendinni til að svara kveðj- unni, verður mér litið framan í hann og eg sé að augu hans eru full af tárum. Hinir særðu eru að heilsa þeim særða; þeir í sjúkra- vagninum, hann í sjúkrastólnum. eru eins farnir, eru hvorirtveggja krossberar heimsstríðsins.” Hin pólitíska st^irfsemi Woodrow Wilsons er nú á enda; en þó hún endi í ósigri nú, sigrar hún síðar- meir. Það góða og göfuga hlýtur fyr eða síðar að vinna sigur á hleypidómum og hindurvitnum. Og þegar þröngsýnismyrkrinu léttir af þjóðinni, leiftrar mynd Wilsons í morgunroða víðsýnisins, sem sól á uppstigningu, sem æ verður bjart- ari og bjartari. Moskusnautið. Þess var getið hér í blaðinu fyr- ir skömmu, að. félag hefði verið stofnað hér í landi, með höfuð- setur í Winnipeg, sem héfði það markmið að vinna að hreindýra og moskusnautarækt hér í Canada, og að það mundi gert að ráði hins fræga landa vors, 'Vilhjálms Stef- ánssonar, sem á norðurheimaför- um sínum hefir kynt sér lifnaðar- háttu þessara dýra og er þess full- viss að þau geti þrifist í norðurhér- uðum Canada, og verið arðvænleg tfl ræktunar. Hreindýrin eru flestum kunn, bæði af sjón og afspurn. En öðru máli gegnir það með moskusnaut- ið eða sauðnautið, sem sumir kalla og sem vér álítum betra nafn, og virðist oss því ekki úr vegi að Iýsa skepnunni nokkuð. Nyrst í norðri, í köldu löndun- um, þar sem jörðin þiðnar aðeins á yfirborðinu um sumartímann, þar sem smáviðurinn heyir uppi- haldslausa baráttu fyrir tflVeru sinni, þar sem mýraslétturnar ná yfir víðáttumikið Iandflæmi, sveim ar ein jórturdýrategundin auk hreindýrsins: sauðnautið eða mos- kusnautið, sem á latínu kallas' “Ovibos mosdhatus”. Moskusnaut- inu svipar mjög til sauðfénaðar og nautgripa, og má. þv<í með réttu telja það sjálfstæða grein af þeim kynstofni. Lengd þess, að 3 þuml. dindli meðtöldum er rúmar 3 álnir. Hæðin um herðakambinn er um 40 þuml. Skrokkurinn, sem er borinn af stuttun en sterkum fót- um, er þibinn og riðvaxinn, háls- inn stuttur og digur, höfuðið klumbslegt, ennið nálega hornin tóm, augun smá, granirnar miklar, og fliparnir þykkir. Neðri helm- ingur hornanna er geisi viðamik- ill. Niður í hausnum liggja þau aiftur og út, en síðan beint niður, beygjast þá fram og út og loks aft- ur upp og enda í hívössum snigli. Skrokkurin er klæddur feikilega þéttri ull. Hún er sérstaklega þétt á höfði og fótum. Frá neðri skolt- inum niður á bringuna lengist ull- in svo mjög, að hún nemur nærri ....Dodd’s nýraapllur ern bezta nýnuuneQallS. Laekna og gigt, bakverk, hjartabilan, þvagteppu, og önnur veikindi, stefa frí nýrunum. — Dodd’s Kidney Pills kosta 50c askjan e?Sa 6 öskjur fyr- ir $2.50, og fást hjá öUum lyfsol. um e?Ja frá The Dodd’s Medicne Co. Ltd., Toronto Ont ....... Moskusnautin geta hizt alstaðar á hinu víðáttumikla Iandflæmi, er þau eiga heima á, þar sem þau hafa haga á annað borð um Iengri tíma og þar sem þeim er afkomu auðið. Þau hafast við í misstór- um hópum, einkum í dalverpum og lautadrögum. Þeim virðist fjölga éftir því sem norðar dregur, þar reka menn sig stundum á allstórar hjarðir, sem telja 30—50 nauta. Frábær þrautseigja og nægju- semi gerir þeim fært að hjara af vetrargrimdina í heimskautalönd- unum. Hægt og með þolinmæði ráfa þau um endalausar fannbreið- urnar, til þess að komast í betri haga. Og þegar fóðuráhyggjurn- ar þverra með sólbráðinu, hefjast aðrir þjáningatímar er þau fara að ganga úr ullinni og eiga jafnframt að etja við óhemju mývarg. Þau velta sér í flóum og fenum til þess. að brynja sig gegn þessum óvin- um sínum, og halda þessu áfram þar til þau hafa steypt utan um sig hörðum leðjuberki, sem er þeim hlíf gegn varginum. Moskusnautin tímgast í ágúst- mánuði, og níu mánuðimi síðar* eða í maí, ber kýrin litlum og gull- fallegum kálfi, sem foreldramir gæta vandlega gegn öllum hætt- um. Þó moskusnautið sé sitirðlega vaxið, er það samt fádæmi létt á sér í hreyfingum og fimlegt sem steingeit. Þau klifra sem geitur til bg frá í klettunum, og fara án minstu örðugleika upp snarbratta fjallahnúka og kenna ekki svima. Gegn mönnum em þau oft ráðlaus eða ráðafá, sérstaklega þau sem aldrei hafa staðið augliti til auglit- is frammi fyri þessum höfuðóvini dýranna. En þau komast von bráðar upp á að varast hættu þár sem yfir þeim vöfir. Enskur veiðimaður, Major Mc- Clintock hefir sagt ym nautaveið- ar: “Við sáum og skutum tvö stór moskusnaut .... og fundum þau bet ur á sig komin en við höfðum séð þau áður. Eg mun aldrei gleyma helstríði hins tigulega sauðnauts. Spánskt naUta-at gefur enga hug- mynd um það; æðisgenginn bar- dagi við bjarndýr er jafnvel smá- munir í samanburði við það. Dýr- ið var skotið gegnum lungun og blóðið Iagaði út um nasagötin og niður á snjóinn. Þarna s’tóð það regingslegt og athugaði okkú'r, en gat ekki hafið árás, augun Iítil og leiftrandi, nálega hulin þykkri ull, smugu í gegnum okkur, og allur skrokkurinn engdist sundur og saman í andarteygjunum. Hinar skjálfandi hreyfingar dýrsins komu í ljós í þykkri og flókinni ullinni; riðvaxinn makinn virtist jafnvel reisa sig í bræði og vatt sér til beggja hliða. Oss virtist sem dýr- ið sameinaði ofsaæði sitt til æðis- legs áhlaups. Það gaf ekkert hljóð frá sér; hið tigulega dýr var þög- ult, en ægishjálmur augnanna og Hin fyrri er þingsalurinn í Waslhington, þéttskipaður þingmönnum og áheyrendum. Orð hefir borist að forsetinn ætli að kunngera stríðsboðskap sinn. Hann kemur inn í salinn við jörð, og á herðunum myndar hinar ofboðslegu stellingar voru hún nálega koddalagaðan söðul, er miklu óttalegri en herfileg öskur. hefst aftan við hornin og nær yfir Við athuguðum það í kyrþey, því 'eyrun. Megin liturinn er brúnn að Iífið var að fjara út, en við og framan á höfðinu og á makkan- þorðum samt ékki að leggja niður um verður hann dokkbrúnn, en byssurnar fyr en kraftar þess voru söðullinn er ljós. j þrotnir. Það skjögraði og datt. í

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.