Heimskringla - 25.05.1921, Blaðsíða 4
4. BLAÐSIÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 25. MAI, 1921
HEIMSKRINGLA
(StofBUð LNNtt)
Kemur öt A hverjum nil5vIkuUes:I.
ttgefendnr og elKendnri
THE VIKING PRESS, LTD.
72» SHEHBROOKE ST, WISNIPEB, MAS.
TnlMíml: >'-6537
\>rfl blafiMlnM er »3.0« arKantturlnn bortt-
ÍMt fyrlr fram. Allar borttanlr Mendlat
rfttÍMmanni blaftnlnM.
R i t s t j 6 r i :
GUNNL. TR. JÖNSSON
Ráðsmaður:
BJÖRN PÉTURSSON
l tanðMkrift tll blaSslns:
THE TIKISJ PRESS, l.td., Bol 3171,
Winnlpete, Man.
Ttanðskrlft til rltatjörana
EDITOR HEIMSKRI5GLA, Boi 3171
Wlnalprt, Moik
The "Heimskringla" is prlnted and pub-
lishe by the Viklns Press, Limited, at
72» Sherbrooke Street, Wlnnipeg. Manl-
toba. Teiephone: N-6537.
WINNIPEG, MANITOBA, 25. MAI, 1921
Háskólapróíin.
Á föstudaginn var, þann 20. þ. m., útskif-
uðust 6 Islendingar hér við Manitoba-háskól-
ann og 34 stóðust deildaprófin og fluttust
upp í efri bekki. Fór uppsögn háskólans fram
með mikilli viðhöfn í Walker leikhúsinu.
Flutti erkibiskupinn yfir Ruperts landi skiln-
aðarræðuna til nemendanna og brýndi fyrir
þeim að halda fast við þær hugsjónir, er út í
Íífsbaráttuna kæmi, er menningin, mentunar-
og skólaáhrifin hefðu vakið hjá þeim. Sér-
staklega áherzlu lagði hann á nauðsyn og nyt-
semi heilbrigðra mannlífsskoðana. Stétta-
myndunin em a'f þeim stefnum innan þjóð-
félagsins, ej alhr sannir mann- og mentavinir
vinni á móti, jafnrétti og hugarhreinleiki það
sem flest mannfélagsmein fær læknað, brýndi
hann fyrir mentalýðnum að reynast trúir
þjóðræðishugsjóninni, er beztum þroska hefði
náð hér í þessari álfu, og leitt hefði í ljós
betur en nokkuð annað manngildi einstakl-
ingsins.
Forstöðumenn hVerrar háskóladeildar,
skrýddu þá sem voru að útskrifast, háskóla-
einkennum og afhentu þeim skýrteini sín.
Þessir Islendingar útskrifuðust:
Úr lærdómsdeildinni sem Barchelors of
Arts, Valentínus Valgarðsson með ágætis
einkunn, og Ingólfur Gilbert Árnason með 1.
eink. Hlaut Valentínus gullmedalíu háskól-
ans í stærðfræði, og hlaut háa ágætiseinkun
í hverri einustu námsgrein. Á hann þökk og
heiður skilið allra samlanda sinna fyrir sína
ágætu framistöðu og væri óskandi að sem
flestir íslenzkir námsmenn næðu að feta í fót-
spor hans. Venjulegast hér fyr á árum, s'kör-
uðu íslenzkir námsmenn fram úr annara
þjóða nemendum, en svo kom afturkippur í
þá 1915 og síðan hafa þeir átt fáa afburða
námsmenn, þar til nú, og í fyrra er ungfrú
Sigurbjörg Stefánsson vann 2 gullmedlíur.
Jóhannes Eiríksson tók meistaragráðuna
(M. A.) í hagfræði. — Sá maður er altaf að
læra, elja hans og dugnaður óbilandi.
Or læknadeildinni útskrifuðust, Kristján J.
Austmann og Steinn 0. Thompson, báðir með
hárri I. einkunn. Báðir eru þeir hæfileikamenn
hinir mestu og líklegir til að, verða þjóðnýtir
menn. Kristján er kvæntur, er kona hans
dóttir Þorsteins Oddsonar fasteignasala, hér
í borginni.
Or lagadeildinni útskrifuðust, eins og getið
var um í síðasta blaði, Árni G. Eggertsson,
og Edvin G. Baldwinsson, báðir með II. eink-
unn hinni betri. Báðir eru þeir Winnipeg-
menn, vellátnir og vinamargir; er Edvin son-
ur Baldwins L. Baldwinssonar, fyrv. Heims-
kringlu ritstjóra og hið mesta mannsefni. Var
hann full 3 ár á orustuvöilunum á Frakklandi
og gat sér þar góðan orðstýr. Árni er sonur
Árna Eggertsonar fasteignasala. Er hann
hvers manns hugljúfi og ætti því að reyryist
vinsæll Iögmaður. Hefir hann þegar gert
gangskör að því að byrja lögmannsstörf, og
verður í félagi þeirra Garland & Anderson
og mun eiga að veita forstöðu lögmannaskif-
stofu þeirri, sem þeir ætla að sitja upp í Ar-
borg. Árni er maður kvæntur, er kona hans
af hinni góðkunnu Laxdalsætt, dóttir Gríms
Laxdals fyrv. kaupmanns.
Fullnaðarpróf í húsjtjórnarfræði við land-
búnaðardeild háskólans hefir ungfrú Þórey I
Þcrðarson tekið með góðri I. einkunn.
Við deildaprófin stóðu íslenzku nemend-
urnir sig misjafnlega. Tveir sköruðu fram úr
öðrum, Emma L. Johnson í III. bekk og Jón
V. Straumfjörð í II. bekk, unnu sín $100
verðlaunin hvort, fyrir framúrskarandi kunn-
áttu; hlaut Miss Johnson frönsku verðlaunin
í deild sinni, en Straumfjörð fjöthæfnisverð-
Ilaun sinnar deildar. Tveir aðrir nemendur
tóku einnig ágæt próf, þeir Númi Hjálmarsson
í I. bekk iæknadeiidarinnar og Edward Thor-
laksson í III. bekk lærdómsdeildarinnar.
Þessir nemendur stóðust Ieildaprófin:
Lærdómsdeildin
Or I. bekk upp í II.
Viihelm Kristjánsson, I. eink.
í Stefanía Sigurðsson, I. eink.
Alexandra Brynjólfsson, II. eink.
Fanney Sigurðsson, II. eink.
Sigrún S. Friðriksson, II. eink.
Sigir.undur Thompson, II. eink.
Cr. II. bekk upp í III.
Jón V. Straumfjörð, ágætiseink.
Jón Ragnar Johnson, I. eink.
Agnar R. Magnússon, I. eink.
Axel Vopnfjörð, I. eink.
Daniel Thorsteinsson, I. eink.
Kristján B. Sigurðsson, II. eink.
Halldór J. Stefánsson, II. eink.
Hannes Hannesson, II. eink.
Jóhann Sigvaldason, II. eink.
Or III. bekk upp í IV.
Emma L. Johnson, ágætiseink.
Edward J. Thorlaksson, ágætiseink.
Hólmfríður Einarsson, I. eink.
Jóhann E. Sigurjónsson, I. eink.
Jón S. Helgason. I. eink.
IV. bekkur
Auk þeirra tveggja sem útskrifuðust sem
. Barchelors öf Arts, og áður er um getið, lauk
Jóhann P. Sólmundsson IV. bekkjar prófi í
heimspeki, með II. eink.
Verkfræðisdeildin
Undirbúningsdeildin
Lárus Sigurðsson, I. eink.
Grettir E. Eggertsson, II. eink.
Helgi 0. Christopherson, II. eink.
Geir Thorgeirsson, II. eink.
Or I. upp í II. ársdeild
George F. Long, I. eink.
Jón Sigurjónsson, I. eink.
Helgi I. S. Borgfjörð, II. eink.
Úr II. upp í III. ársdeild
Cornell T. Eyford, I. eink.
Úr IV. upp í V. ársdeild
Emil Einar Johnson, I. eink.
Læknadeildin
Undirbúningsdeildin
Eyjóífur Jónsson, I. eink.
Thomast Leálie Petursson, I. eink.
Ur L ársdeild upp í II.
Númi Hjálmarsson, ágætiseinkunn,
Sigríður Christiansson, I. eink.
Eilín GiIIies, II. eink.
Cr II. ársdeild upp í III.
Haraldur F. Thorlaksson, II. eink.
Búnaðardeildin
Úr. IV. ársdeild upp í V.
i Joseph Thompson, I. eink.,
Eim ísíenzki nemandinn að því vér gátum séð
í neðri békkjunum.
Lagadeildin
Hafði aðeins þá tvo nemendur sem útskrif-
uðust, neðri deildirnar engan, að því er vér
fáum scð af nafnalistunum.
I sambandi við einkunnirnar ipá geta þess
að ágætiseinkunn, eða sem á hérlendu skóla-
tnáli kallar I.A, telur frá 100 stigum niður í
80. Fyrsta einkunn/eða I.B, telur 79 stig nið-
ur í 67 og II. einkunn 66 stig og niður í 50.
III. einkunn^er frá 49 uiður í 40 stig. Þeir
nemendur sem ekki ná 40 stigum hafa ekki
staðist prófið.
I síðasta blaði var þess getið að 6 íslenzk-
ir nemendur hefðu tekið próf við Saskache-
wan háskólann, en einkunnir þeirra höfum
vér ekki frétt, og fullnaðarprófi lauk enginn
íslenzkur nemandi þar heldur. En þessir tveir
háskólar, Manitoba- og Saskachewan háskól-
inn, eru þær æðri mentastofnanir sem íslenzkt
námsfólk sækir mest í þessu landi; einkum
hefir það verið Manitobaháskólinn-sem hefir
verið mentabrunnur landans, og þaðan hafa
útskrifast vorir helztu mentamenn. Saskatche-
wanháskólinn*er Iangum yngri en útlit er fyr-
ir að hann verði engu síður sóttur af íslenzku
námsfólki í framtíðinni en Manitobaháskól-
inn. íslenzkir prófessorar eru nú við háskól-
ana, þeir Skúli Johnson og 0. T. Anderson,
við Manitobaháskólann, og Þorbergur Þor-
valdsson við Saskatchewanháskólann; allir
mikilhæfir menn og góðir kennarar. En það
sem telja má háskóla þessa fyl'kis til ágætis
framyfir Saskatchewanháskólann er það, að
íslenzka er kend í neðri bekkjum hans. Að
því sleptu Varðar það minstu hvaða skólar
eru sóttir, allir veita þeir mentun, ef nemend-
urnir nenna og kunna að færa sér hana í nyt.
“Bókavitið verður ekki 'lagt í askana” segir
gamli íslenzki málshátturinn; um sanninda-
gildi hans munu flestir efa, en enginn efast um
sannleikann í vísunni þeirri arna:
‘ Oft er sá í oiíium nýtur
sem iðkar mentun kæra;
en þursinn heimskur þegja hlýtur
sem þrjóskast við að læra.
Sveiiibjörn Johnson.j
Kosningahríð, bitur og stormasöm er nú að
byrja í Norður-Dakóta. Eru Ieiðandi og
beztu menn ríkisins að reyna að losa það
undan yfiráðum Nonpartisan League-manna,
sem hafa haldið því í heljargreipum nú um
nokkur ár og komið því næstum á fjárhags-
lega heljaíþröm. Eiga kosningarnar að aftur-
kalla (recail) úr embættum sínum, ríkisstjór-
ann, dómsmálaráðherrann og aðra helztu em-
bættismenn ríkisins sem Nonpartisan League
hefir sett þangað, og koma í þeirra stað þjóð-
nýtum sæmdarmönnum sem láta sér annara
um velferð ríkisins en eigin hagsmuni.
1 tölu helztu andstöðumanna Nonpartisan
League er landi vor Sveinbjörn Johnson, pró-
fessor í lögum við ríkisháskólann í Grand
Fork, og formaður miðstjórnar demokrata-
flokksins, maður mikilhæfur og vinsæll. Hefir
hann verið tilnefndur til að sækja um dóms-
málaráðherraembættið, á móti 1 elzta kappa
Nonpartisan League-manna, Lemce, núver-
andi dómsmálaráðherra, og eru sigurhorfur
Sveinbjörns sagðar góðar. Honum var raunar
þvert um geð að vera í kjöri, því honum er
kærari friðsemd kenslustarfanna en háreysti
stjórnmálanna, en útnefningarfundurinn kaus
hann í einu hljóði, og vildi hann þá ekki skor-
ast undan óskum og vilja hinna kjörnu full-
trúa fólksins. Hér er það því embættið serr
Jeitar Sveinbjörns en hann ekki þess, og sýn-
ir það hversu maðurinn er fjarlægur því að
ota sér fram til metorða.
Á fimtudagskveldið 19. þ. m. var Svein-
birni haldið fjölment heiðurssamsæti í Grand
Forks. Voru þar saman komnir leiðandi menn
úr öllum hlutum ríkisins, sem keptust um að
sýna Sveinbirr.i aðdáun og vináttu. Hani» er
nú viðurkendur helzti andstöðu leiðtogi Non-
partisan League^ manna, og sá maðurinn er
mestur veigurinn er í fyrir þá að fella. Verður
því ekki hljótt um nafn hans úr þessu.
Og landar vorir hafa ástæðu til að vera
uppmeð sér að Sveinbirni Johnson. Frá um-
komulausum sveitapilti, bláfátækum, er hann
nú orðinn einn af leiðandi mönnum Norður-
Dakótaríkisins sem hefir fóstrað hann síðar
á barnsaldri að hann kom heiman af gamla
Fróni. Hann er fæddur á Hólum í Hjaltadal,
14. júní 1883, en fluttist hingað vestur með
móður sinni, 5 ára gamall. Settust þau að í
íslenzku nýlendunni nálægt Akra, og þar ólst
Sveinbjörn upp og naut þeirrar fræðslu sem
barnaskólarnir gátu veitt, að barnaskólanámi
loknu fór hann til ríkisháskólans, stundaði
fyrst nám við lærdómsdeildina og síðan við
lögfræðisdeildina og tók próf úr báðum með
lofi. Á námsárum sínum vann Sveinbjörn fyr-
ir sér sjálfur, og varð oft hart að sér að Ieggja
en viljinn og þrekið var óbilandi og það hvort
tveggja sigrar allar torfærur. Að loknu námi
varð Sveinbjörn lögmaður um hríð í Cavalier
og síðan í Grand Forks, en árið 1913 varð
hann prófessor í lögum við háskólann og hef-
ir gengt því embætti síðan. Málafærslustörf
hefir hann þó haft jafnframt á hendi.
Vér óskum þessum mæta landa vorum góðs
gengis, og vonum að honum auðnist að bera
sigur af hólmi í baráttunni sem nú stendur
yfir, — sjálfs síns vegna, Norður-Dakóta
vegna og vegna eyjunnar norður undir Ishafi,
þar sem vagga hans stóð fyrir 38 árum síðan.
“ — sómi þinn er sómi vor
sértu guði falinn.”
Hagskýrslur íslands.
Vér höfum nýlega fengið í hendur ”Hag-
tíðindi íslenzku tjórnarinnar, fyrir marzmán-
uð. Er það hagstofa Islands sem sér um út-
gáfu þessara tíðinda og eru þau venjulegast
fróðleg og kennir þar jafnan margra grasa.
I þessu hefti er meðal annars skýrsla um
hjónavígslur, fæðingar og manndauða fyrir
árið 1911 og samanburður gerður við öll ár-
in frá 1876. Er hér því um allmikinn fróðleik
að ræða sem lesendum vorum mun þykja vert
að kynnast.
Hjónavígslum hefir yfirleitt farið tiltölu-
lega fækkandi á síðustu 30 árum, þar til
stríðsárunum og síðan, að þeim hefir aftur
farið að fjölga nokkuð. Fæðingum hefir farið
mjög fækkandi síðustu 40 árin. Þær voru ár-
in 1876—85 til jafnaðar 31,4 á þúsund
manns. En árið 1919 25,4. Andvana börn I
voru 62 árið 1919. Árið áður voru þau 75
en ekki nema 55 árið 1917. —*- Af ölium börn
um árið 1919 voru 254 óskilgetin, eða 11,2%
er það tiltölulega færra en nokkurt ár áður.
Óskilgetnum börnum hefir farið mjög fækk-
andi síðastliðið 40 ára skeið. Þau voru árin
1876—95 til jafnaðar 20,2% — og sýnir
þetta, “að heimur batnandi fer.”
Manndauði hefir verið með minstaa móti
árið 1919. Það ár dóu I I 74 manns eða 12,6
af þúsundi. Aðeins eitt ár, 1917, hefir hann
verið minni en 12,6. En árið 1918 var hann
16,1 vegna inflúenzu-drepsóttarinnar. En ár-
in 1876—85 var hann til jafnaðar 24,5, svo
af því sézt, að manndauði hefir|
íarið mjög minkandi síðustu 40 j
ár. “Minkun manndauðans hefir|
fyllilega vegið upp á móti fækkun j
fæðinga, svo mismunurinn á töluj
fæddra og dáinna hefir ekki mink-1
að, og mannfjölgun af þeim ástæð-1
um getað haldist í líku horfi.” i
Þessi mismunur hefir þvert á móti.
vaxið.
Loks er ií þessu hefti bráða-í
birgðayfirlit yfir síðasta manntal, ‘
1. des. 1920. Samkvæmt því á
S mannfjöldinn að hafa verið 94866
(1910, 85060) Hagstofan telur að
þessi tala muni breytast, þegar
ful'lnaðarskýrslur berast og endur-
skoðun fer fram.
í kaupstöðum landsins, sem nú
eru7 er dvalarmannafjöldinn talinn
vera 28,846, og er meir en helm-
ingur í Reykjavík, eða 17,420.
Mannfjöldi hinna kaupstaðanna er
sem hér segir: Akureyri 2575,
Vestmannaeyjar 2519, Hafnar-1
fjörður 2342, ísafjörður 1990,
Siglufjörður 1 128, og Seyðisfjörð-
ur 871.
* Ibúafjöldi sýslanna er talinn 66,-
020, sem hér greinir. Gullbrigu og
Kjósasýsla 4309, Borgarfjarðarí
sýsla 2428, Mýrasýsla 1921, Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýsla
2919, alasýsla 1909, Barða-
strandasýsla 3324, ísafjarðarsýsla
( 6286, Strandasýsla 1761, Húna-
vatnssýsla 4306, Skagafjarðar-
sýsla 4339, Eyjafjarðarsýsla 5320
Þingeyjasýsla 5518, Norður-Múla-
sýsla 2947, Suður-Múlasýsla 5169,
Austur-Skaftafellssýsla 1 157,Vest-;
ur-SkaftafellssýsIa 1835, Rangár-
vaWasýsla 3865 og Árnessýsla
5696.
Á síðastliðnum 10 árum eða síð-
an næsta aðalmanntal á undan fór
fram hefir mannfjöldinn sam-
kvæmt bráðabirgðayfirliti vaxið
um 9200 manns eða rúmlega
10/4 %. Samsvarar það því, að ár
Ieg fjölgun hafi verið að meðaltali
1,10% þessi 10 ár. Er það meiri
fjölgun en á undanförnum áratug-
um. 1901—10 var árfeg fjölgun
að meðaltali 0.91 %, 1890—1901
0.92%, en 1880—90 fækkandi
fólkinu um 0.21 % árfega að með-
altali. Það var á þeim árum, sem
Vesturheimsferðirnar voru mestar.
Mestöll fjölgun landsmanna á
þessum 10 árum hefir lent hjá
kaupstöðunum 7, sem nú eru. Á
þessum tíma hefir íbúatala þeirra
vaxið alls um 9077 manns, en í
sýslunum hefir íbúatalan einungis
aukist um 729 manns. I saman-
burði við mannfjöldann 1910 hefir
fjölgunin því numið nálega 46%
í kaupstöðunum, en að eins rúm-
Iega 1 % í sýslunum. í 10 sýslum
eða meir en helming allra sýslna á
landinu, hefir fólkinu jafnvel fækk-
að á síðastliðnum 10 ámm, en í
hinum 8 hefir fjölgunin orðið þeim
mun meiri. Tiltölulega mest hefir
fólksfækkunin orðið í Dalasýslu,
rúmlega 8'/2 % á þessum 10 árum,
þar næst í Árnessýslu 71/2% og í
Borgarfjarðarsýslu 0Vi%. I sýsl-
unum hefir mannfjölgunin á þessu
tímabili orðið mest í Suður-Múla-
sýslu, rúmlega 12%, og í Eyja-
fjarðarsýslu rúmlega 10%. 1 öllum
kaupstöðunum hefir aftur á móti
orðið allmikil fjölgun á síðustu 10
árum, nema á Seyðisfirði. Þar hef-|
ir fólki fækkað. En tiltölulega mest
hefir fjölgunin verið í Vestmanna-
eyium og Siglufirði. í Vestmanna-
eyjum hefir mannfjöldinn jafnveL
nálega tvöfaldast á þessum 10 ár-1
um.
---------o----------
tJtnefning í Wyn-
yard kjördæminui
—r í
Fylkisþingskosningar í Saskat-
chewan nálgast nú (íðum og er nú
,undirbúningurinn undir iþær sem á-j
kafastur. Þingmannsefna útnefn-
ingar fara nú fram daglega í hinum;
ýmsu kjördæmum, þó hinn tilskip-.
aði útnefningardagur fyrir öll kjör-
dæmin sé ekki fyr en 8 dögum hér
frá. fimtudaginn 2. júní og kosn-<
ingarnar viku seinna — 9. júní.
1 Wynyard kjördæminu, þar semj
flestir íslenzku kjósendurnir eru,
hafa tvö þingmannsefni verið til-
nýmame’SaKÍS. Lækna og gigt,
bakverk^ hjartabUon, þvagteppu,
og önnur veikindi, sem stafa frá
nýrunum. — Dodd’s Kidney Pills
kosta 50c askjan eða 6 öskjur fyr-
ir $2.50, og fást hjá öUum lyfsöL
um eía frá The Dodd’s Medicine
Co. Ltd., foronto, Ont..........
nefnd. Hafa liberalar útnefnt mann
þann er Musselman heitir, eit
bændaflokkurinn og conservativar
hafa komið sér saman um manne
þann er Robinson heitir; er hanrr
mikilsmetinn bóndi þar í kjördæm-
inu, og öl'lum að góðu kunnur,.
Væru Wynyardmenn vel sæmdir af
honum sem þingmanni sínum.
Landi vor W. H. Paulson var áð-
ur þingmaður kjördæmisins, en
honum var bolað frá útnefningu
af þessum Musselman, sem nú er
merkisberi Martinsstjórnarinnnar -
ættu landar að muna það á kjör-
daginn og kjósa Robinson.
Það er kominn tími til þess a$
skifta um stjórn í Saskatchewan.
--------o---------
Þrælasala.
Frakkar hafa lengi átt í höggi
viS Arafca í Morok'kó, og eiga enn.
Nýlega hafa þeir tekið herskildi
hina iheilögu borg þeirra, Wazzan.
Er sú borg einstök í 'sinni röð, a<£
því leyti, aS þar hefir opinber
þraelasala veriS rekin á hverju ári,
þangaS til Frakkar náSu borginni
á sitt vald.
Þr ælarnir eru fluttir ti'l borgar-
innar í stórlhópum úr ókunnum
héruSum Afríku. MarkaSsstefna
er haldin þar einu sinni á ári, þegar
Arabar fara pílagrímsferSir tií
borgarinna, hvaðanæfa úr Morok-
kó. Flafa þeir þá meS sér svert-
ingjana, þræla sína, bæSi karla og
konuT, og tjóðra þá í smáhópum
á markaSsstaSnum.
Kaupendur þyrpast umhverfis
þá og spyrja margra spurninga.
( um aldur 'þrælanna og íieilsu, og
1 ef um konur er aS ræSa, þá hvort
j þaer séu giftar. Seljendur segja kon
urnar æfinlega ógiftar, því að ein-
I hleypar konur seljast betur. Oft
er mikiS þjark um verðiS, eink-
anlega þegar þrællinn ber einhver
, ílkamslýti, sem oft vil'l verSa. —
Kaupendur athuga jafnvel tennur
: þrælanna, og þegar um karlmenn
I er aS ræSa, reyna þeir oft afi
þeirra meS því aS láta þá lyfta
þungum byrSum.
| Sagt er aS kjör þessara þræla
megi heita tiltölulega góS í Mor-
okkó. Þeir þurfa oft ekki annaS
aS gera, en fylgja gestum um hina
fögru garSa, um'hverfis bústaSi
1 auSmannanna, húsbænda sinna.
Sumir eru látnir vera á verSi og
gæta garSanna fyrir umrenningum
SumstaSar eru alt aS 15 þrælar
innanhús’s, sem haf?. þaS eitt fyrir
stafni aS búa til te handa gestum
húsbóndans. I Fez og fleiri borg-
um er amibáttunum kent aS dansa.
Segja þeir, sem séS hafa, aS þeir
dansar minni menn á sögur úr
1001 nótt.
. Eins og áSur er ságt, hafa
Frakkar bannaS þrælasölu í Waz-
zan, og 'búast þeir viS, aS hún
leggist niSur aS miklu leyti, því aS
ihvergi var hún rekin neana þar,
svo aS 'kunnugt væri.
--------—o———
/