Heimskringla - 23.01.1924, Qupperneq 1
Verðlaca
gefb
fyrir
Coupooj
ðendns «ftlr vertSllsta til
a«y«l Crown Soap Ltd.
654 Maln St„ Wlnnlpeg. nmlinjtir
ROYAV,
CROWN
Coupon*
°g
umbúSir
ROYAt,
CROWN
SeodKS efttr veríUlHta tU
Hoyal Crovvn Sonp Ltd.
654 Mnln St., Winnlpeg.
XXXVIII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 23. JANÚAR, 1924.
NOMER 17.
Canada.
Manitoba þingitS.
Mánud. 14. jan. I>etta var fyrsti
etarfsdagur þingsins. Menn voru
seinir að taka til máls. Þingmenn-
irnir mintu fryst í stað á hóp af
likfylgdarfólki. 3>að var eins og
cnginn gæti litið upp- Éftir eina
klukkustund köstuðu þeir drung-
'anum af sér. Þá byrjuðu ræðu-
höldin. Að þetta væru bágbornir
tímar viðurkendu allir ræðumenn-
irnir. “Þessir slðustu og verstu
tímar”; “hvað bóndinn má horfast
f augu við’'! “minkandi ^iðskifti
Jandsins”; “skattahyrðin og álög-
urnar”; “ástandið, sem stríðið er
valdandi”. Þetta klingdi við í öll-
um ræðunum. Samt héldu ræðu-
wienn að ekki væri úti öll von.
J5inn sagði ástandið hafa verið
verra en þetta árið 1892; þá hefði
lftig skort á að bændur hefðu etið
skólivengi sína. En þá girtu þeir
sig megingjörðum og óx ásmegin.
Það bjargaði þeim- Svo myndi enn
fara. Fyldi þeim orðum lofaklapp.
Og ræðumaður saup'á vatni.
Aðalræðurnar þennan dag fluttu
Griffiths þingmaður frá Russell,
bænda sinni, og Muirliead frá Nor-
folk, einnig bændaflokksmaður og
Norris, sem ekki kærir sig kollóttan
þó kallaður liberali. Hinn fyrst
nefndi lagði til að hásætis-ræðan
væri samþykt. Muirhcad studdi
tillöguna. Bæður þeirra beggja
voru um ástairdið yfirleitt, og
voru vel rómaðar. Norrist kvaðst
ætla að styiSja stjórnina í hverju
atriði, scm ncfnt væri í hásætisræð-
unni. Hýrnaði þá yfir stjórnar-
flokknum- Bætti Norris því við,
að eina löggjöfin sem þar væri gert
ráð fyrir, væri að koma á hlutfalls-
kosningu í sveitum úti, og það mál
etyddi hann með ánægju. Stjórn-
arflokkurinn klappaði ekki fyrir
þessu. Norris óskaði stjó'ninni til
lukku i tilefni af kosniugasigri
henna-. En margt fansf honum
nú ftjó’i'in gera, sein hann sjálfur
vildi gera þegar liann sat að völd-
umj en flokkur'trænda þá var and-
stæður.
Margir áheyrendur voru uppi á
lofti. Teygðu þoir úr hálsinum til
þess að sjá hverju fram fór í þing-
salnum niðri. Darwin segir að
Gíraffinn hafi orðið hálslangur á
þvf að teygja sig í lauf á háum
trjám- Sé l>að satt, er ekki óhugs-
anlegt, að hálslangir menn sjáist í
Winnipeg um það leyti^ að þingi
er slitið.
Þriðjud. 15. jan. iBlaek fjámála-
ráðherra sat í djúpum hugsunum
yfir fjárhagsreikningum* fylkisins
og var að leggja safan 2—3 og 5, er
hann heyrði John Queen, leiðtoga
verkamanna segja, að fjármála-
ráðherran ætti að skammast sín
iyrir að sýna tekjuafgang í reikn-
ingi stjómarinnar, þegar svo marg-
ir væru, sem ekki hefðu málungi
inatar. Stjórnina sagði hann hugsa
svo mikið um að spara, að hún
gleymdi með öllu þeim sem bjarg-
arlausir væru. ' Hann bar og sam-
an siðferðið sem því væri samfara,
að rneta eignarréttinn meira en
réttindi einstaklingsins. Reis þá
Black upp,' og kvað það ósannindi,
að fyikið hefði tekju-afgang.
Queen sagðist hafa lesið það í
tdöðunum. Blaok sagðist ekki vita
úm það, en það væri ekki cftir sér
haft. Queen sagði það gleðja sig
a® heyra, að stjórnin hefði engan
tekju-afgang, og að það væri ekki
með öllu vonlaust um sáluhjálp
B'acks, skildist oss. Queen óskaði
tingmönnum alls góðs, og var það
Tel rómað af öllum nema einum
^’ngmanna, Bernier, en ástæðan
fyrir því var sú, að hann svaf.
Næstur Queen talaði séra Ivens.
Bagði hann fjórar stórar bækur á
væri. Allar greinar búnaðarins,
jarðyrkjuna, gjriparæktina, sauð-
fjárræktina, hænsnaræktina, bý-
flugnaræktina og ótal margt fleira
athugaði hann nákvæmlega og
vakti mjög athygli á að haga yrði
framleiðslu á þessu eftir sölu
möguleikunum. Á vísinda og hag-
fræðilegan hátt yrði að reka bún-
að hér- Yar sá hluti ræðu hans, er
um akuryrkjuna fjallaði einkar
fróðlegur í þessu efni. Sagðist
hann sjá á andlitum þingmanna,
að þeir teldu þetta mál varla þess
vert að tala um það á löggjafar
þingi. En hann hað þá að minn-
ast þess, að akuryrkjan ein væri
tveir þriðju af ölluim viðskiftum
þessa fylkis. Umræður um hana
fyndist sér því eiga þar eins vel
heima og pólitízkt flokksstagl. Var
þetta ný kenning, en þingmenn
viðurkendu sín á milli, að — þó
Bracken risti ekki djúpt í stjórn-
málum, vissi hann fjanda fjár um
búnaðarmál.
iDownes þ. m- í Winnipeg hafði
stóran blaðabagga með sér útskrif-
aðan með spurningum til stjórnar-
innar uin hvernig vínsalan gengi,
hvað nú væri búið að selja, hvað
margar flöskur hefðu verið opnað-
ar á nýársdag, hvort nóg væri til af
tappatogurum eða hvort menn
þyrftu að opna flöskurnar með
hnífum,; einnig væri - fróðlegt að
^ita hverrar þjóðar þeir menn
væru, sem með hnífi opnuðu þær.
Stjórninni var annað hvort ógreitt
um þessi svör, eða hún ætlaði sér
I að svara þeim seinna. Einn stjórn-
nýi mentamálaráðherra því til, aö ^ arsinni muldraði með sjálfum sér,
j skýrsla su er birt væri, hefði ekki ^ ag grunnhygginn gæti spurt fleiri
| verið látin í té af honum og liann ( spuminga á klukkustund, en vitur
| œtti ekki sök á Því og bæri enga j maður gæti svarað á degi, við
j ábirgð á henni. Fyrst svo væri, j hvað senl hann átti.
kvaðst Haig ekki ætla að láta sig
j þennan glæp ineira skifta og varð
1 hinn blíðasti á manninn.
borðið, og leist þingmönnum ekki
á blikuna. En bækurnar voru okki
notaðar neitt móti þeim. Ivens
talaði um hættuna af nautn opí-
um, sem hér myndi brátt breiðast
út, ef ekki væri strax við því gert-
Nautn heilsuspillandi lyfja kvað
hann mesta í Bandaríkjunum, og
hingað myndi sú spilling berast.
Ræða hans var fróðlegt yfirlit um
þetta mál.
i
Miðvikud. 16. jan. Taylor leið-
I togi coúservativa og þingm. fyrir
J Portage La Prairie hélt klukku-
I tíma ræðu. Hann er skemtilegur á
að hlýða, en í þetta skifti þótti
Væða hans mmna4)f mjög á ræðu
flokks hans í síðustu aukakosning-
um- Það var sem hann ætti erfitt
með að gleyma þeim kosningum.
Hann bar sakir á stjórnina fyrir
að stofna ný ráðgjafa lembætti.
Kvað l>að óþarft og aukakosning-
arnar þar afleiðandi Honuin fanst
lítill munur á liberala og bænda-
sinna. En hann vonaði, að þekk-
ing sú, sem Prefontaine öðlaðist
meðan hann var conservative, kæmi
ráðuneyti Brackens að góðum not-
j um og velferð fylkisins.
Næstur honum talaði Haig
i
j Winnipeg þingmaður og cohserva-
tive flokksmaður. Hann gat ekki
á heilum sér tekið vegna gremju
út a£ breytiii stjórnavinnar. Hann
I hefir lengi haft þann kvilla- 1
j þetta skifti stafaði gremjan af því,
1 að sjíýrsla frá mentamálanefnd var
j birt í blöðuntnn, áður en hún kom
I
fyrir þingið. Svaraði Cannon, hinn
i Því næst flutti Queen niðuriag-
l ið á ræðunni frá þriðjudcginum.
j Enn var það fjármála ráðherran;
j sem hann miðaði á. Tók hann nú
I textann úr biblíunni. Kváðp Skot-
j ar gjarnir á það- Benti hann Black
á orð mannsins frá Nazaret um að
gleyma ekki að gefa sauðunum að
eta, Sagði Queen að ekkjur og
munaðai'leysingar liðu matarskort
í Winnipeg. En á það liefði meist-
arinn lagt mikla áherslu, að gefa
hjörðinni saðningu. Black svaraði
að ef Queen fýsti að fræðast um
það hvaðan ékatturinn kæmi sem j
þyrfti með til að fóðra hjörðiná,
gæti hann það með því að kynna
sér orð sama meistarans um það
efni. Frekari skýringar gaf Black
ekki og urðum vér því að fara og
leita að þessu i bibiíunni. Hið
eina sem þar var sjáarrlegt um
þetta efni, var dæmi af manninum
sem spurði hvaðan féð ætti að
koma, sem með þyrfti, og honum
var sagt, að taka öngul og kasta í
sjóinn og leita eftir honum í kjafti
fyrsta fiskjarins, sem hann drægi.
En undarlega kom það oss fyrir
sjónir, að blanda þannig saman
ti'úarbrögðum, sköttum og fiskum-
Bayley þingm. fyrir Assinboia
bar upp frumvarp þess efnis, að
þingirtenn ailir fengju að líta á
gerðir stjórnarinnar í hinum ýmsu
deildum hennar. Enginn “ studdi
hað mál, en forsætisráðherra batið
hverjum þingmanni. sem. væri að
líta á og athuga gerðir stjórnar-
deildanna eftir vild.
Fimtud. 17. jan. Þetta var dag-
ur Brackens, stjórnarformanns að
halda ræðu- Áður höfðu allir leið-
togar hinna flokkanna talað.
Brackan talaði um hásætisræðuna
eins og hinir, en í öðrum, og manni
liggur við að segja æðra skilr.ingi.
Hann mintist varla á stjórnmál.
En um búnað talaði hann frá öll-
um mögulegum hliðum. Kom hann
ávalt að þvf, ag búnað yrði að ,gera
arðsamari atvinnugrein en hann
Haig krafðist að sjá bréf er
stjórnarformanni og íylkisstjtóra
hefðu farið á milli, og hann grun-
aði að segði frá því, að samkomtu-
i iag væri ekki gott milli þessara
herra. Braeken kvað það heimug-
logt er sér og fulltrúa konungs
færi á milli. Haig hélt ekki- Verð-
ur þetta síðar kapprætt.
iS. J. Farmer og Tatiner verkam.
1 fulltrúar spurðu Bayley, hvernig á
flótta hans stæði, og hvort hann
i ætlaði að mynda nýjan óháðan
1 flokk? Og hvort sem hann teidi sig
1 af sama sauðahúsi og Hamlin?
: Bayley neitaði að ný flokksmynd-
I un væri á döfinni og sagði að hin-
ir óháðu, þingmenn myndu haga
sér sem sómam'enn- Verkamenn
sögðu Bayley og Hamlin geta farið
saman á “rabít-a”-veiðar en að öðru
íleyti ættu þeir enga samleið.
J
Föstud. 18. jan. SanfoiH Evans
talaði lengi um aukakosningarnar,
sagði að það væri gott og vel að
taia nm litia uppskeru(hjá bænd-
um, en þess væri ei-nnig þörf að
'gcta, að uppskera stjórnarfarslegra
vistmanna væri rýr, hjá stjórinni
átti hann við. Hann sagði kjós-
endur hafa sáð illa niður og því
væri nú ávöxturinn eins og hann
væri. Conservatíva-Stefnan bæri
bezta ávexti allra stjórnmála-
stefna og af fleiri af þeiim flokki
vræru ijögigjafar nú gæfist eitthvað
annað að lifta hér- Engin stjóm
hefði verið hagsýnni og fram-
kvæmdarsamari. Sumir kváðust
muna enn eftir að eonservatíva-
stjórn hefði verið hér við völd.
Svaraði. Evans því þannig, að ef
átt væri við það sem skeð hefði
við fall Roblin stjórnarinnar, næði
það ekki til flokksins nú og hefði
aldrei náð nema til einstaakra
manna. Undir eins og slíkt kom
fyrir, kaus flokkurinn sér nýja
fyrirliða. Og þá menn og flokk-
inn yfirleitt væri ekki hægt að
sakbera. Þegar stofnanir eða
bankar mishepnuðust væri aldrei
öllurn, sem við þær störfuðu, kent
um það- Hvf væri þá slíkt gert, er
conservatívar æ.ttu hlut að ‘máli?
Ymsar holur þóttu Evans vera í
hásætisræðunni. En með því, að
framorðið var dags, lauk hann ekki
við ræðu sína, en framhaldið kem-
ur í byrjun næstu viku og svör
gegn henni efalaust.
Craig dómsmálaráðgjafi bar fram
tillögu um breytingu á greftrunar-
löggjöfinni. Spurði Taylor, hvort
að hún snerti nokkuð stjórnina?
Craig svaraði, að svo væri, því að
tvær jarðarfarir hefðu. nýlega far-
ið fram i Mountain og Carillon.
Craig bar einnig upp frumvarp
uiu breytingu á “Moratorium” eða
gjaldfrests lögunum, en því máli
ef fckki iokið-
Þingið tók sér hvíld til mánu-
dagskvöidsins.
l>ctta er auðvitað ekki löng frá-
.sögn af gorðum' þingsins fyrstu
vikuna. Og á margt fleira mætti
minnast. En í þetta skifti nennir
maður ekki að binda hugan lengur
við það. Og svo heimtar prentar-
inn handritið, og það hefir meira
að segja, en það sem framfer á
þinginu. v
Sambandsþingið.
Það kemur sauian 28, febrúar n.
k. Stendur það eflaust iengi yfir-
Kjördæmaskipunin, bankalögin,
tollmáiin, skattar, stjórnarrekst-
urs kostnaður og lækkun lands-
skuidarinnar, eru að minsta mál,
sem lengi verða kapprædd. Sum
blöð í AusturtCanada hafa farið
fram á, að nú þegar sé gengið að
gerðu rá'ði iraeð að lækka skuld
landsins, sem er yfir tvær og hálfa
ir.iij n iim 25% á næstu 4 árum, sern
er auðvitað gott og blessað , ef
meira verður úr, en þegar mlýsnar
ætluðu að hengja bjölluna á kött-
Inn.
Ólögleg kosning.
.Kosning1 eins þingmanns bænda
og verkamanna í Ontariofylki,
hef-ir verið dæmd ólögmæt vegna
þess, að 20 manns greiddu atkvæði
,i kjördæmi hans, sem ekki áttu
heima á kjörskrámni; voru ekki
búnir að vem nægilega lengi í
kjördæminu til þess. Karl Homuth
hét þingmaðurinn og með því að
honum er ekki kent um óreglu
þessa, fær hann aftur að sækja
þegar aukakosning verður, en við
henni. er ekki búist fyr en eftir
næsta þing. Ontario fylkisþingið
keníur saman 8- febrúar. Atkvæði
þessara manna féllu í hlut þessa
afturrekna þingroanns, en hvemig
menn vita það, er hálf undarlegt.
Fylkisreikningarnir.
Fjárroálaráðherra Black leggur
fylkisreikningana fyrir Manitoba-
þíngið í dag, ef umræður um há-
sætisræðuna verði því ekki til fyr-
irstöðu. Er búLst við heldur betri
úttkoniu en áður í þeim. Til dæm-
is er sagt, að símakerfið hafi í
hreinan ágóða rúmar $40,000. í ár.
Frekara hefir ekki verið hægt að
fræðast um reikningana.
Lemieux ráðgjafaefni.
Rodolphe Lemieux, þingforseti
Kingsstjórnarinnar er sagt að
hljóta muni dómsmálaráðherra-
stöðuna, Hann var póstmálaráð-
herra í Lauriers tíð og hefir setið
á þingi 25 ár. Eitt sinn var sagt,
að honum væri ætluð sendiherra
staðan í Washington, og sé svo enn
verður hann ekki í þetta embætti
skipaður nema til bráðabirigðar.
Sykurverð.
Blöð frá Ontario segja sykur þar
nýlega hafa lækkað í verði um IVz
cent pundið, ef í 100 punda pokum
sé kcypt. Ekki höfum vér orðið
varir þessa hér annarsstaðar en í
blöðunum-
Nýi fylkisstjórinn í Queibec.
Sá, er fylkisstjóra stöðuna í Que-
bec hlaut, að Brodeur látnum,
heitir Narcissa Peredeau.
----------------0----------------
Onnur lönd.
Verkfall hafið.
Verkfallið, sem áður var getið
um að yfirvofandi væri á Eng-
landi, er byrjað- Um 70,000 vél-
fræðingar og kindarar á járnbraut-
um hættu Vinnu s. 1, mlánudag.
Lestir ganiga þvf hvergi á Eng-
landi svo teljandi sé. Orsök verk-
fallsins var kauplækkun, sem járn-
brautaeigendur þröngvuðu á þjóna
sína nýverið þrátt fyrir öll ipót-
mæli verkaroannafélaganna Og hót-
anir um að gera verkfall.
Alvarlegar kærúr.
Alvarlegar kærur hafa verið
hornar á stjórnendur sjóhersirrs í
Bandarfkjunum, fyrtir óreiðu á
kaupum og sölu olíu til hersins.
Er talið liklegt að stjórnendumir
verði að segja af sér- Hefir rann-
sókn staðið yfir í málinu og koma
atriði þar til grena sem haldið er
að mjög spilli fyrir republika-
flokknum og þá um leið fyrir
Coolidge forseta við í hönd far-
andi forseta kosningar.
Hveiti tollurinn.
Til mála hefir komið, að Banda-
ríkin myndu hækka tollinn á
hveiti frá Vestur-Canada enn um
50%, cða úr 30 centum á búshelinu,
sem hann er samkvæmt Fordney
— McCumbcr tolllöigunum, upp í
45 cents. Forsetanum cr leyfilegt
að gera þetta, ef þörf krefur, og
nefnd sem rannsakaö hefir það
efni, leggur til að tollurinn sé
hækkaður.
Úr bænum.
Einar Þorgrímsson, sem dvaliS
hefir um nokkur ár í þessum bæ,
hélt s. 1. miðvikudag af stað suð-
ur til Bandaríkjanna. Förinni var
fyrst heitið til Chicago. Bjóst hann
við að dvelja syðra, ef atvinnu
væri þar hæ/gt að fá, sem auðvelt
ætti að vera fyrir Einar, svo góð-
um hæfileikum sem hann er búinn-
; Óska vinir hans honum hér góðs
gengis.
Ungfrú Halldóra H. Bárdal Irá
| Wynyard, Sask., kom til bæjarin*
i og stundar nám á listaskóla hér í
■ vetur
Ungmennafél. Sambandsafnaðiar
heldur fund n. k- föstudagskvöld.
Er þangað boðið leikmannfélaginu,
stúlknafél., kvenfél., og safnaðar-
nefndinni, auk allra félagsmanna
sem að sjálfsögðu eiga að sækja
fundinn.
Á Frónsfundi s. tl- mánúdagskT.
var tólf inanna nefnd kosin til
þess að standa fyrir samkom*
þeirri er deildin Frón heldur í
sambandi við Þjóðræknisþingið.
-0-
Síðustu fréttir
■
Verkamenn tóku við völdum á
Englandi í gær- Ramsay Mac-
donald stjórnarformaður. Philip
Snowidch fjármálaráðgjafi.
Zíons hreyfingar. Munu Gyðing-
ar eignast Palestínu einu sinni
enn? Hlvað segir biblían un»
þetta efni ,sem svo mikið er ritað
og talað um á þessum tíma? Þetta
verður hið fróðlega umræðuefni f
kirkjunni á Alverstone strætinu,
603, sunnudaginn 27. jan., ki 7.
siðdegis. — Allir boðnir og v*l-
kQmnir- — Virðingarfylst
, DAVÍÐ GUÐBRANDBSON.
, Nikolai Lenin, forseti Rússlands
dó s. i. mánudagskvöld af slagi.
Fregnin af iáti hans mun í þetta
sinni vera sönn, þvf bæði fiuttu
dagblöðin í gærkvöldi ágrip af æfi
hans og greftrunar daginn.
WONDERLAND.
“A Táilor Made Man”, sem Char-
lie Ray leikur í og sýnd verður á
Wonderland á miðvikudaginn og
fimtudaginn, er einn af þeim allra
skeiptilegustu skopleikjum, sem þú
hefir séð. Og leikarinn er hvergi 1
essinu 'sínu, ef ekki þar. Á föstu-
dag og iaugarlag, er ‘The Rustl*
of Silk” sýnd og eru leikendur
Betty Comþson og Conway Tearle.
Leika þau afbragðsvel og útsýni á
mynd þessari er hið fegursta. NæSffi
viku eru tvær myndir ágætar:
“Wandering Daughters” og Tht
Custard Cup”. Hinar myndirnar
eru “Pawn Tioket 210”, eftir Shir-
| ley Mason, o- fl., og eru mjög
' skemtilegar.
SOSCOSSOSCOSðeGCOSOSOeOOOSOSOOðCOðSOOSOSOðOSðððOK
AÐALFUNDUR
hluthafa The Viking Press, Ltd.
verður haldinn á skrifstolu fé-
lagsins, 853 Sargent Avenue,
Winnipeg, íimtndaginn 24. jan
| úar 1924, byrjar kl. 3 e. h.
| Aríðandi málefni liggja fyr-
I ir fundinum.
S. Thorva/dson
forseti
R. Petursson
ritari
<e0O9QQ0S0ðQOSQQ0O!>SQG060Q6Qð09MðeCðeei