Heimskringla - 11.06.1924, Blaðsíða 7
WrtWIPEG, 11. JÚNJ, 1924.
iEIMSKRINGLA
7. BLAÐSIÐA
«■—--------------%
The Dominion
Bank
HORNI NOTRE DAME AVE-
SHERBROOKE ST.
Höfuðstóll uppb.........$ 6,000,000
Varasjóður ..............$ 7,700,000
AUar eignir, yfir ... .$120,000,000
Sérstakt athygli veitt viðskift-
um kaupmarma og verzlunar-
félaga.
Sparisjóðsdeildin.
Vextir af inmstæðufé greiddir
jafnháir og annarsstaðar við-
gengst.
PHONE A 9253
P. B. TUCKER, ráðsmaður.
----------------------—
Alríkissýoingin breska
(Framha'ld írá 3. sf5u)
En þó gera menn ráð fyrir, að sýn
ingin mun borga sig, bæði beiniín-
is iog óbeinlínis. l>eir, sem) varleg-
ast hafa áætlað gestafjöldann á sýn
ingu þessari, telja, að um 25 miljón
ir manna muni sækja hana. Og af
beirri mikla fjölda verða vitanlega
fjöldamargir útlendingar, sem skilja
miikla peninga eftir í landinu.
Þegar komið er inn á sýninguna
og farið um aðalinnganginn verður
tfyrst fyrir skrautlegur blómagaður,
en þá taka við tveir stærstu sýning-
askálarnir, vélasýningin á vinstri
hönd, en iðnsýnmgin á ihægri. Pyr-
ir handan iðnsýninguna, f útjaðri
sýningarsvæðisins, er listasýningin,
og þar nálægt sýningarskálar Nýja-
Rjálands og Malaja. 1 beinu áfram-
haldi af iðnaðar- og vélasýningar-
skálunum korna byggingar Astralíu
og Canada, báðar stórar og íburð-
armjklar, en þá tekur við íþrótta-
völlurinn. Er hann taiinn vandaðri
«n nokkur íþróttavöllur annar í
heimjnum og fullkomnari ©n fþrótta
völlur Olympfuieikanna í París.
Rúmast þar 125 þúsund áhorfiend-
ur, og verða fþróttasýningar þar að
etaðaldri.
í*au mannvirki, sem nú hafa ver-
ið nefnd eru öll á vesturhelmingi
eýningarsvæðisins. En fyrir aust-
an þau taka við sýningar annara
lýðrfkja og nýlendanna. Eru þar
stærstar sýningarhailir Indlands og
Suður-Afríku, en auk þeirra eiga
þessar nýlendur skála þar: Nigeria,
Guilströndin, Maita, Burrnah, Aust-
ur-Afríka, Vestur-Aifríka, Ceylon,
Hongkong, Bermudaeyjar Vestur-
Indíur, Guayana, 'New-Poun<dtap< 1,
Palestína, Cyprus og Eiji-eyjar. —
Austast á sýningarsvæðinu er
Istjórnráðshöllin; eru þar sérstök
hýbýii fyrir konungsfóikið, og þar
hafa ráðuneytin sýningar á því
helsta sem undir þau heyrir. I>ar
Rýna flotamála- og iofthemaðar-
fáðunoytin heræfingar f suiáum stfl
og verða þar sýningar á ýrnsun:
sögulegum orustumi og viðhurðum.
Par verða eftinmiyndir af ihinum
ýmsu flugvólagerðum sem herinn
notar, og auk þass flugvélar í fullri
etærð og herskip, faibyssur og víg
vélar. Á sýningin að gefa hugmynd
nm þroska enska hersins frá rpp-
hafi tii vorra d)atga. Á sýningu
þessari ©r m.a. risavaxið upphleypt
jarðlíkan, og með ijósum verður
sýndur daglega vöxtur airfkisins.
Par sýnir verzlunarmiálaráðuneytið
aðalleiðir hriesku heimsverzlunar-
innar; póststjórnin iframfarir í póst-
ílutningum og sím|þj6nustu; heil-
hrigðismálaráðuneytið framfarir
læknisvísindanna; landbúnaðar-
ráðuneytið hefir þar yfirgripsmikla
sýningu, og niámustjómin sýnir mieð
fullkomnum hætti námu gröft o. s.
frv. Kgl vísindafélagið hefir einnig
öfarfjölbreytta sýningu vísindaiegs
eðlis.—Þarna verða ennfremur sýnd
ör ikvikmyndir frá morgni til kvölds!
fil frekari útskýringar því, sem fyr-
ir augun ber á sýningunni.
ÍMeðal þess sem sjá mlá á sýning-
hnni er mjög nákvæm eftiriíking af
8röf Tutankhamens Egyptalands-
itonungs.
Ibað er orðtak sýningarnefndar-
innar, að sá, sem komi f Wembley
Park fræðist um meira á 1 viku en
sem ferðast úr einni heimsálifu
i aðra f mörg ár og nokkuð mun
vera til f þessu. A sýningunni er
l'öð einmitt dregið fram, sem mlest
oinkennir hverja þjóð um sig, svo
hð áhorfandinn nýtur vel þess sér-
^onniloga. — Á Hiongkong sýning-
unni blasir við honum nákvæm eft-
irmynd af kínverskri götu, þar sem
Kínverjar verzla með vörur sínar.
Hann getur gengið inn í kínverskt
veitingarhús og neytt þar þess, sem
Kínverjar neyta. Á þessari sýningu
eru 175 Kínverjar. I>aðan gengur
gesturinn inn f strástofu Nigeríu-
svertinglja, og Isíðan til NýjabSjá-
landssýningarinnar og fær að sjá
þar siði og 'háttu Maorimanna. Ind-
verski sýningarskáilinn er nákvæm
oftirmynd frægrar byggingar aust-
ur í Agra á Indlandi, mleð 100 feta
liáum tumum og súlnagönguan. Þar
kynnist maður iistum Indverja,
málmsmíði* listvefnaði, útskurði f
tré og fílabein, sem frægt er orðið
um víða veröld, og viðburðir úr
sögu Indverja veða sýndir í eftirlík-
ingum. Og mœtti þannig lengi
telja.
Canada og Ástralfa hafa stærat-
ar sýningar allra lýðríkjanna. —
Munu ýmsir kannast við sýningar-
höllina OJympia f London, en sýn-
ingarskáli Ástraiíu ©r stærri en hún
Áströlum er ekki nóg að sýna á
fullkominn hátt afurðir lþþdsins,
lifnaðarháttu og þjóðsiðu, heldur
hafa þeir ©innig með ærnum koistn-
aði flutt jurtir og tré sunnan úr
Ástralfu og gróðursett á sýningar-
svæðinu, og þar gengur Ástralíufé
á beit. Ilið sama hafa Canada-
menn gert. Þeir hafa einnig mjög
ifjöiskrúðuga námuiðnaðarsýningu,
og landbúnaðarsýning þeirra er tal-
in stórkostlegri en nokkur fyrri sýn
ing í þeirri grein.
Pyrir kaupsýslumanninn munu
þó iðnaðar- og vélasýningarnar
verða eftirtektarverðastar. Bómull-
ariðnaðarsýningin tekur yfir 32 þús.
ferfet, og eru þar sýnd öli stig bóm-
Ullar iðnaðar, alt frá því að bómull
in ^ex og þangað til hún er orðin
fullunnin vara. — Nefnd manna í
Bradford, heimkynni ullariðnað-
arins enska hefir séð um ullariðju-
sýninguna, og tekur hún yfir 15 þús.
ferfet. En umfangsmestur á þessari
sýningu, er þó keoniski iðnaðurinn.
Á vélasýningunni gefur að líta all-
ar þær vörur, sem unnar eru úr
imálmi.
Þó gera megi ráð fyrir, að sýn-
ingin hafi svo margt að bjóða, að
gestir hafi ekki um annað að hugsa
meðan þeir dvelja þar, hefir þó ver-
ið séð fyrir almennum skemtunum
jafnframt. Á eýningarsvæðinu er
sérstakur skemtigarður, daiissalir,
hljómhallir og annað það, sem auga
og eyra girnist. Meðal hljómleik-
anna má nefnda nokkra kóráiljóm-
leika þar seim 10 þúis. manns syngja
og 500 manna hljóðfærasveit leikur.
Meðan á sýningunni stendur verða
ennfremur haldnar ýmsar meiri
háttar ráðstefnur, með fulltrúum
frá öllum þjóðum alríkisins.
'Bretar hafa með isýningu þessari
viljað sýna öllum heimi, að engin
þjóð standi þeim framiar, og þeim
hafi tekist þetta svo vel, að sýning-
in ha.fi orðið umfangsmeiri en sýn-
ingar þær, sem allar þjóðir heimis-
ins eða flestar leggja sinn skerf til.
Breska sýningin er stærri en lieitns-
sýningarnar. Til eflingar samstarfi
bresku ríkjanna er sýning þasei til
ómentanlegs gagns. En út á við hef-
ir hún eigi minni þýðingu. Hún
færir öllum heiminum sanninn um,
að Bretar standa í verzlun og iðn-
aði framar ölum þjóðum.
Jslendingar, sem fara til Eng-
lands f sumar imunu vissulega ekki
láta undir höfuð leggjast að sjá
þessa sýningu. Hún gefur mönnum
tækifæri, sem máske aldrei gefist
jafngott aftur, til þess að ajá mörg
ríki veraldarinnar og þeirra dýrð,
ón þess a ðleggja ó sig iferðalög
heimsálfu úr heimsálfu. Og kaup-
sýslumönnum er það vitanloga
beinn hagur að koma á sýningar
eem þessa.
Sýningin stendur í alt sumar og
lýkur ekki fyr en f október í haust.
(‘'Morgunbl.”)
------------0-------------
“Bölsýnismaðurmn”.
Þú segir mér, bróðir, að ekkert sé
að,
með allskonar dæmum þú skýrir
mér það
og bendir á sumar og sólu;
þú sérð ekki hélu né skúrir né ský
né skaðvæntan þistilinn vellinum í,
en einungis fiífil og fjólu.
Þú kalilar það heilbrigt að hafa
þá sjón,
er helminginn lítur — þú telur þá
flón,
er gefa því gaum eða auga,
að mannfélagstúnið er rotið f rót;
og ræður, sem fjalla um einhverja
bót,
þú álítur óiheilladrauga.
Þú helzt vildir brenna hvern ‘böl-
sýnismann”,
sem blett eða hrukku á heiminum
fann
og raskaði ró þeirra kindia,
sem þú hefir hundreknar hnept inn
í krð
og haldið í myrkri unz ljósþráin dó
og unt var þær allar að binda.
Þú fagnar ef skyn er í fangelisi bygt,
þér ifinst það alt grýla, sem stendur
ei kyrt,
þér býður við hugsun og hreyfing
þá væri þér lífið í sannleika sælt
ef sæirðu freilsið að eilffu ibælt
og andlega ailsherjardeyfing.
Þú talar nm ánægju eining og ifrið,
en eining í hverju? — ég skýringar
bið;
hvort er það þá, vinur þinn vilji,
að lamibið sé spakt meðan ljónið er
grimt?
Þú lítur það aldrei, þótt stundum
sé dimt
og sólina hagiskúrir hylji.
Nei, kyrðin og dauðinn þau haldast
i hönd,
en hreyfing Og líf .eiga samtvinnuð
bönd,
sem aldrei að eillfu -slitna;
það “bölsýnismiennirnir” byrjuðu
flest,
sem bygt var í heiminum traustast,
og mest
um hugsun og héilbrigði vitnar.
Þvi hamingjan blessi hvem ‘höl-
sýnismann”
og bæti hvert einasta gat, er hann
fiann
á mannlífsins margrlfnu flíkum,
en drepi það andlega óargadýr,
sem ólyfjan banvænni hvervetna
spýr
og lifir á hálfrotnum líkum.
Þefr foringjar lyftu’ ekki heimln-
um ’hátt,
er hikandi, svefneiskir fetuðu
smátt
sem lötrandi, latrækir uxar;
nei, ljósið á mannkynsins fram-
sóknarferð
og frumtök í andlegri þjóðvega-
gerð
á sá einn, sem hreyfist og hugsar.
Það var ekki klerkurinn klæddur
skraut
né kóngur, sem ruddi sér einveldis-
braut,
er sjálfstæði götuna greiddi;
því hvar sástu uglu, sem heimtaði
ljós?
og hvar sástu griðung, sem tróð
ekki’ á rós,
er vorið ó brautir hans breiddi.
Nei, bóndinn í peysunni hoginn við
Plóg,
sem brauðið með striti og harð-
fiengi dró
til nautnar úr náttúrugreipum,
en sá það sitt einasta erfiðisgjald
að offyUa þjóðstolið höfðingjavald
og reyrast í kúgunarreipum.
Og þjónninn, frá mlyrkri til myrk-
urs er vann
til matar — því sulturinn kúgaði
hann
til hlýðni við háborinn níðing,
sem grátandi’ á helguim í guðshúsi
sat,
en grátstunur bróður síns vettugi
mat
og möglendum hótaði hýðing.
Já, bóndinn og þjónninn, sem þektu
það bezt
hve þrekið var lamað af andiegri
pest,
þeir hófu þær hugsjónaleiðir,
sem enda’ ekki fyr en við áfanga
þann
hvar alt verður miðað við starf-
andi mann,
en letingjum lögmálið eyðir.
Og “bölsýnismaðurinn” það verður
þá
sem þjóðirnar tigna og ibent verð-
ur á,
af honum var hornsteinninn lagð-
ur;
þó skilja það flestir að fátt verð-
ur bætt
og fúasár heimsins ei skorið né
grætt
ef aldrei er sannleikur sagður.
Sig. Júl. Jóhannsson.
-xx------—
Sitt af hverju.
Eftir Eyvind.
Það var einu sinni í vetur, að rit-
stjóri Lögbergs var að fárast um
það, hvað fáir skrifuðu í blöðin.
Hann sagði það ofraun fyrir rit-
stjóri Lögbergs var að fárast um
aði á bændur og búalýð til lið-
veislu. Því hefir mér dottið í hug,
að verða við þessari bón, og senda
blaðinu línur, en það verður “sitt
af hverju”, því gömlum og mentun-
arlausum bændum lætur ekki að
skrifa langar ritgerðir um stórmál.
En blöðin eru full af rusli hvort
sem er, svo lítill vandi er að leggja
í þann sjóð. —
Það væri annars þörf á því, að
blöðin okkar íslenzku tækju fram-
förum. Þau hafa verið dauf og ein-
hiiða í seinni tíð. En sízt er umbóta
von, að skora á bændur að bæta
þau. Nær væri að skora á menta-
menn okkar, sem við eigum svo
marga, og vel lærða, eftir því, sem
af er látið. Það eru þeir sem ættu
að fræða okkur ómentuðu menn-
ina og gera blöðin fróðleg og
skemtileg. En það er svo sorg-
lega fátítt að nokkuð sjáist frá þeim
í blöðunum. Læknar ættu að rita
um héilbrigðismál á líkann hátt og
Steingrímur Matthíasson gerir
heima. Lögmennimir gætu frætt
okkur |urai ma'rgt sem, löjgum og
réttarfari við kemúr. Búfræðing-
arnir um búnaðarmiál og svo frv.
En cnginn þessara manna ritar
nú í -blöðin, og eru þó til vel færir
rnenn, og þeir margir af ölium þess
um iflokkum. Prestarnir eru þeir
einu, sem stundum láta á sér bera,
en því miður eru það oftast trú-
máladeilur og ádeilugreinir sem frá
þeim koma, en slíkar ritg-erðir
vekja oft fremur sundurþykkju og
þrætur, en góðar og -göfugar hugs-
anir.
Þið ættuð ritstjórar góðir, að
semja við vel færa mentamenn um,
að senda ykkur fræðandi ritgerðir
f blöðin. Það mundi auka blöðun-
um vinsældir, og spara ykkur ómak
að tína saman ómerkilegt fréttarusl
úr dagblöðunum.
Eg býta við, að þú segir, að nógu
hafi blöðin verið fjörug nú í seinni
tíð og vitnir í blaðad-eilur þeirra
séra Rögnvaldar Pétursisonar og
Jóns Bíldfielis. Yíst var hún fjörug,
en lítið gott hygg eg af henni leiða.
Hún kastar fremur skugga á háða
hlutaðeigendur, því báðir hafa far-
ið lengra en 'góðu hófili ^gegndl
Enginn verður stórum fróðari eiftir
lesturinn, nema eí vera skildi um
það, sem finna mlætti höfundunum
til foráttu, því óspart hafa þeir
sagt hvor öðrum til syndanna. Og
það er hætt við að deila þessi geri
fremur að spilia en bæta milli Aust-
ur- og Yestur-íslendinga, og er það
illa farið.
En nú er þetta mál að vonum út-
rætt. Þá kemur annað deilumál
milli ykkar ritstjóranna. Það er
mér ekki eins ilia við, enda þótt það
kunni að Æara fullangt áður en iýk-
ur. Það er opinbert mál, sem fróð-
kgt er að sjá ritað um frá báðum
hliðum. Og þó þið kynnuð að fara
full-langt f sókn og vörn, þá er það
gömul og ný saga, þegar tveir
deida. Pólitiskar deilugreinir, eru
oftast fræðandi, ef maður lee þær
frá báðum hliðum, og ber samhn
og skilur eftir öfgarnar; en löng-
um eru þær skaðlegar ef maður
les ekki nema aðra hliðina eins og
sum hættir við. Þó eru þeir menn
vanalega kallaðir “góðir flokks-
menn”, f pólitfk hér á landi, er ald-
rei hugsa neitt sjálfir en samþykkja
blindandi það sem foringjamir
segja.
En svo fer alt út um þúfur á þing-
inu í vetur. Um orsakirnar til þess
vitum við, sem fjarri búum, ekki
með vissu; en mestar lfkur eru til
að d-eilan milli séra Rögnvaldar Pét-
urssonar og Bíldifells hafi valdið
svo mikilli æsingu í Winnipeg, a'ð
flokkarnir hafi ekki getað unnið
saman. Þetta er mjög illa farið,
því nú sýndist komið á góðan veg
með að félagið gæti unnið gagn.
Það er verkefni fyrir ykkur leið-
andi mennina, að jafna þann ágrein
ing, og koma á einlægni í þessu
-miáli. Nóg eru tækifærin, þó þetta
mál gangi undan.
Daufar fréttir frá Sambandsþing-
| inu um undirtektir þess með Hud-
son Bay brautina. Hvernig stend-
; ur annars á því, að blöðin hafa ekki
| flutt neinar ákveðnar fregnir um
svör þau er sendinefndin fékk, s?m
austur fór. Það er 'eins og enginn
þori að tala upphátt um það mál.
Ski-ldu vesturfylkin þola það með
þögn og þolinmæði, að það mál sé
lagt til sáðu, og kröfum þeirra að
engu sinnt? Þið ættuð að halda
þvf máli vakandi, blaðam-ennirnir,
þvf það er mál, sem fjöldinn lætur
sig miklu skifta.
For Asthma
Duriog Winter
llmiiirMimlrK læknlxnttfer'ft, mem
komift hoflr tll bjar^ar Asthnin-
Njúklini;iiin ofc Mtöftvar verntu
köMt. — Sendu f tlaK eftir ö-
keypÍM lækninvru.
Ef þú þjáist af afskaplegum
Ashma-köstum. þegar kalt er og
rakt; ef þú færft andköf eins ogr
hver andardráttur ætlafti aft verfta
þinn síftasti; láttu þá ekki hjá
lífta, aft senda strax til Frontier
Asthmb Co. og fá aft reyna ó-
keypis undralækningu beirra. í»aft
skiftir engu máli hvar pú býr, efta
hvert þú hefir nokkra trú á nokkru
meftall hér á jörftu; gerftu þessa ó-
keypis tilraun. Hafirftu þjáftst alla
æfi, og leitaft ráfta alstaftar þar,
sem þú hélst aft duga myndi &
móti hinum hræftilegu Asthma-
köstum; ef þú ert orftinn kjark-
og vonlaus, pá sendu eftir þessu
meftali.
í»aft er eini vegurlnn fyrir þig,
til aft fá vltneskju um, hvaft fram-
farirnar eru aft gera fyrir þig,
þrátt fyrir öll vonbrigftl þín 1 leit
þinni eftir bjargráftum gegn
Asthma. Gerftu þessvegna þessa ó-
keypis tilraun. Gerftu hana nú.
Vér auglýsum þetta, svo aft hver
sjúklingur geti notift þessarar
framfara-aftferftar, og byrjaft ó-
keypis á þessari læknisaftferft, sem
þúsundir manna nú vifturkenna aft
vera mestu blessunina, sem mætt
hefir þeim á lífsleiftinni. Sendu
miftann í dag. Frestaftu því ekki.
FREE TRIAIi COIJPON
FRONTIER ASTHMA CO.,
Room 607 B
Niagara and Hudson Sts.,
Bu^ralo, N. Y.
Sendift ókeypls lækningaraftferft
yftar 111:
HEIMSINS BEZTA
MUNNTOBAK
COPEN HAGEN
&
C?PftfHÁGÉf%
' 5nuFk *
Hefir góðan
keim
Munntóbak sem
endist vel
Hjá öllum
tóbakssölum.
Það lítur illa út mleð Þjóðrækn-
isfélagið okkar. Við vorum fagn-
andi yfir því bændumir, þegar það
var stofnað, að það mundi verða sú
taug, sem bezt gæti tengt sam-
an alla flokka í þessu landi. Þetta
leit mjög at©1 út í byrjuninni. Péiags-
stjórnin var skipuð mönnum úr öll-
um floikkum, og fram að þessu ári
hefur ekki annars orðið vart en að
samvinnan væri í góðu lagi.
GAS OG RAFMAGN
JAFN ÓDÝRT
ÓKEYPIS INNLEIÐING Á GASI f HÚS YÐAR.
Við höfum ágætt úrval af gaseldavélum, sem við
ábyrgjumst að þér verðið ánægðir með.
Gefið auga sýningu okkar á Gas-Vatnshitunartækj-
um og öðru.
WINNIPEG ELECTRIC CO.
Á FYRS7A GÓLFI Electric Railway Charnbers.
KOL! - - KOL!
HREINASTA og BESTA TEGUND KOU.
b*Si til HEIMANOTKUNAR og fyrir STÓRHÝSI.
Allur flutningur meí BIFREIÐ.
Empire Coal Co. Limited
603 Electric Ry. Bidg.
Simi: N 6357—6358.
CMc«-
Nýjar vörubirgðir
Timbur, Fjalriíhir af »lum
tegundum, geirettur og aUa-
konar aSrir strikaðir tiglar, hurSir og giuggar.
Komið og sjáií vörur. Vér erum *etfð fúsir að sýna,
* ekkert *é keypL
The Émpire Sash & Door Co.
L i m i t e d
HENRY AVE. EA15T
WINNIPEG