Heimskringla


Heimskringla - 09.07.1924, Qupperneq 3

Heimskringla - 09.07.1924, Qupperneq 3
WENNIPEG, MAN. 9. JÚLÍ. HEIMSKRINGLA *. BLAÐStÐA reykjarstrókar upp úr úverri gjótu og dæld, en kolsvartir klettar stóðu hér og þar upp úr gufunni, eins og hálfhrundir húsveggir. Þegar við höfðum notið útsýnis- ins eftir vild, var farið að rökkva. svo að við flýttum okkur niður af fjöllunum. Við höfðum ákveðið að ganga umhverfis hraunið, til þe^ að ákveða eitfchvað um stærð þess. Við genguin því vestur með suður- jaðri þess og fengum þar versta veg, því að snjór lá yfir gamla hrauninu, svo að hvergl sá fyrir sprungum eða gjótum, sem nóg var þó til af. Þurftum við að fara gæti lega til að meiða okkur ekki, því e.ð alt af vorum við að detta ofan 1 gjóturnar. Mestu breidd hrauns- ins áætluðum við 2 kílómetra, en lengdina 2—2'/2 km. Norðurendi hraunsins virðist vera talsvert kald- ari en aðrir hlutar þess; þar voru nokkurir smágígir, eins og áður er getið; voru þeir sumir skringilega lagaðir, og svo laust og létt í þeim gjallið, að við óðum það nær því i hné. Var helat svo að sjá, sem þeir herðu. gosið fyrr en *i*ðurgígirn?r. því að þeir ■■ ta: r.'.v «ð kólna svo mikii. íit' við gátum gengið upp á þá og l'ar yfir norðurodda hrauns i«s. Kir.kkan 9 um kvöldið komum vif að tjaldinu. Hafði verið logn og gott veður um daginn, að eins nokkuð mikið frost, en þegar við vorum nýlega sestir að í tjaldinu, ekall á ofsa-stormur af vestri. Var veðrið ennþá meira en nóttina áð- ur, og varnaði það okkur svefns, hvað tjaldið ryktist til. Var bað fremur köld og leiðkúep nótt, sem við áttum þar, og ekk: bætíi það úr. að rokið úr vatnínu gekk yfir tjaidið, fraus á því, og varð að hrími. sem hrundi ofan á okkur og bráðnaði þar, svo að fötin okkar voru blaut, þegar við stóðum á fætur um morguninn. Höfðum við þá sofið að eins þrjár klukku- stundir, og var það lítill undirbún- ingur undir ferðina, sem lá fyrir okkur daginn eftiy. Þegar fór að birta um morgun- inn, lægði storminn og varð þá all- gott veður. Lögðum við því af st.að heim á leið um hádegi. Eftir 6 stunda göngu, vorum við komnir að norðausturhorni Dyngjufjaila; var þá komið myrkur og talsverð hríðarél í íjöllunum og veðurhorf- ur fremur ískyggilegar. Við ákváð um því stefnuna nákvæmlega, eftir áttavita, og lögðum því næst norð- ur í ódáðahraun í hríð og þoku, minti það á frásagnir þjóðsagn- anna um ferðamenn, sem viltust til útilegumanna, en ekki vorum við svo heppnir. að lenda í æfintýrum, heldur urðum við að þramma á- fram klukkustund eftir klukku- stund, ýfir verstu vegleysur, með þunga bagga á bakinu. Um mið- nætti stönsuðum við til að hita kaffi og borða, því að við höfðum ekkert stansað frá þvf að við höfð- um farið úr öskju. Reistum við tjaldið og bjuggum um okkur sem bezt við gátum. Vissum við þá ekki hvar í ódáðahrauni við vær- um; höfðum að eins hugmynd um, að við værum á réttri leið. Var á- form okkar að hvíla okkur í tvær klukkustundir oð halda svo áfram, því að við vildum ekki bíða eftir því að gangfærið versnaði, því alt af hríðaði töluvert, og ekki var ifýsilegt að liggja í snjónum, þó að við hefðum tjald yfir okkur. Við héldum því af stað aftur svo fljótt sem við gátum; var þá hríðin að hætta, og eftir litla stund komum við út úr þokunrti; var þá glaða tunglsijós og bjart að sjá norður, en að baki okkur lá þokubreiðan yfir suðurhluta ódáðahrauns. Eftir þetta gekk ferðin ágætlega; kom- um við að Baldursheimi klukkan þrjú daginn eftir. og höfðum þá að eins hvílt okkur einu sinni, frá því er við lögðum af stað úr öskju. Vor um við þá þreyttir, sem vonlogt var, en samt vel ánægðir yfir ferðinni, enda er til vinnandi að leggja tals- vert á sig til að sjá öskju, og eg get ekki hugsað mér að nokkur maður gleymi henni, sem einu sinni hefir séð hana. (“VWr”). Óskir. Eg vildi að ég væri fær um, að gefa öðrum þá sannfæringu, sem mér sjálfri hefur hlotnast í gegnum margra ára reynslu og rannsóknir, um meginatriði þau. sem mér finst að ættu að vera neuðsynleg í sunnudagaskólakenslu fyrir börn og unglinga. En af því að eg er ekki úr flokki skriftlærðra eða kenni- manna, þá býzt eg við, að óskir mínar fái daufa áheyrn og undir- tektir. Svo kynni og skýring á þeim að koma ofurlítið í bága við gamlar siðvenjur og hugsunarhátt, sem enn virðist halda föstum tökum á hugum almennings, jafnvel innan vébanda þess félagsskapar, sem frjálslyndastur vill heita. Ég vildi, að ég mætti óska, að bókstafskenningarheildin væri kom- in að því að kollvarpast fyrir fult og alt nema svo framarlega, að hún væri bygð á þeim virkilegu grundvallaratriðum, sem engar komandi aldir eða kynslóðir þyrftu að breyta. Því ef svo væri, , ’ mundi verða skrásett aðeins sú ein.i lifandi vissa sem væri sannur ávöxíur af ævar- andi sannleika. Eg vildi óska og það ætti að vera kominn sá tími, að almenningur færi að vak: og viðurkenna í verkinu hinn n k alstaðarríkjandi og sístarfandi ei- lífðarmátt, sem öllum ætti að vera j jafn skiljanlegur ef bamið, ásamt sínum skilningsþroska fengi að njóta þcirrar réttu uppfræðslu, sem því í fyrstu hefur verið ætluð. Ef þvf væri kent að þekkja sinn eigin manndóm, og það máttuga afl, sem í því sjálfu býr. Ef því væri kent að þekkja skyldleik sinn- ar eigin sálar við guðdóminn. Ef lögð væri meiri rækt við að kenna barninu hina réttu og sönnu sið- ifræði. Ef því væri kent af alvöru, frá því í fyrstu að stjórna sjálfu sér í smáu sem stóru. Ef því væri kent að skilja nálægðina og sambandið á milli þessa heims og annars. Ef Iþvf væri kent, að finna til ábyrgð- arinnar, sem hvílir á því sjálfu. gagnvart þess eigin framferði, og hugsanalífi. Ef þþvf væri kent að meta jafnt annara gagn sem sitt eigið. Ef að því væri kent af hlut- legu, sýnilegu eftirdæmi, en ekki eingöngu úr guðfræðibókum. Ef við eldra fólkið værum hin rétta fyrirmynd barnanna í öllu fiamferði, mundu þau taka sér snið af okkar breytni. Ef þau sæu ald- rei neinn dökkann blett í dagfari kennara sinna og leiðandi manna, og ef foreldrarnir væru sí og æ vak- andi yfir þeirra andlegu velferð, og vandaðri breytni, og ef brýnt væri eianig fyrir þeim, að meðhöndla líkama sinn á heilsusamlegan hátt, svo hann yrði hæfur bústaður fyrir sálina, eins langt og mögu- legleikar leyfa. Það hefir oft reynst sannur máls- liáttur, að ilt sé að kenna göldum greitt og svo framvegis. Enda sýnir ástand heimsins það nú á dögum, að lítt hefir hann ibatn að, við alla þá hópa af trúarlær- dómum, sem um hönd hafa verið hafðir, síðan fyrst að svokölluð kristni ruddi sér til rúms. Það hljóta að rísa þær spurn- ingar í huga margra: hvað er trú, og hvað er sannleikur? Það verða margir Pílatusar, og hver getur þá tekið á sig þá á- byrgð, að svara og segja öðrum hverju hann eigi að trúa? En til þess að reyna að bæta úr einhverj- um af þessum ráðgátum. Hvar ætti þá að leggja hornsteininn, ef ekki hjá ungdómnum? Miundi ekki verða heppilegast að kenna honum að þekkja og rann- saka sitt eigið hugarafl. Mundi þá ekki fara smámink- andi kæruleysið hjá nútíðar af- komendum. ef barninu væri kent að beita hugsunum sínum í rétta átt? Ætli færi þá ekki að vakna smátt og smátt í huga þess trú sönn og lifandi á alt, sem væri gott heiðarlegt og fagurt? Það mundi fara að skiija skyld- ur sínar, og jafnframt læra að meta p-o^Æ^-o-^^ÆOÆmm-o-^^mo LÆKNAR: ^ Dr. M. B. HaUdorson 401 Ru) d BI4*. Skrlfstofusimi: A 3674. Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Kr a» finna á skrlfstofu kl. 11—1* f h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsimi: Sh. 3168. t.-~ ■ ---------------------- BETRI GLERAUGTJ GEFA SKARPARI SJÓN AugnLækaar. 204 ENDERTCN BUTLDING Portage ano Haigrave. — A 6645 Di. A. Blöndal 818 SOMERSET ELDG. Talsími N 6410 Stundar eérstakloga kvensjúk- dóma og barna-sjúkdóma. A8 hittaH. 10—12 f.h. og 3_5 e.K. Heimili: 806 Victor St Síni A 8180 .. ______ Dr. J. Stefánsson 216 HEDICAL ARTS BLD6. Hornl Kennedy og Graham. Stundar elnKSsgu auarna-, eyrma-, nef- o( kverka-aj Akdðasa. ' « hltta frfl kl. 11 tll 11 L k og U. 3 tl 6 e- h. Talafml A 3521. Rlver Ave. W. SMl DR. B. H. OLSON 216-220 Medieal Artá Bldg. Cor Graham and Kennedy Sts. Phone: A7067 Viðtalstími: lt—12 og 1—5.30 Heimili: 921 Sherburn St. WINNIPEG, MAN. hið ósýnilega sem hið sýnilega. Skyldi það ekki vera sjálfkosin aðferð fyrir sunnudagaskólana, að hjálpa barninu til að skapa sér fagrar guðlegar hugsanir og heil- brigðar skoðanir?Og hvaða aðferð gæti kent því betur en sönn fyrir- mynd, og ef það getur ekki vakið hjá því löngun til að leita sjálft að sinni trúarvissu, hvað getur þá gert það, auðvitað kemur reynsl- an á eftir, sá óskeikuli kennari, sem fæstir geta um flúið. En hver er orsökin til þess, að sunnudagaskólakennarar skulu ei finna köllun hjá sér til að kenna þessi undirstöðuatriði til að búa barnið undir reynsluna? Að þeir skuli ekki sjá þörfina, að gera tilraun til að opna huga barns- ins fyrir réttum skilningi á hvers- dagslífinu og reglum þess? Það ætti að vera mikilsvarðandi starf að sá í óræktaðan akur. En lftilsvirði verður uppskeran, ef ekki er byrjað á plægingunni fyrst. Manni skilst vel- að undir núverandi ásigkomulagi muni skrefin verða stutt, en stefna mætti þó í áttina, því ef aldrei er byrjað að kenna barninu að sjá og skilja þau stórkostlegu mein, og það ok sem nú þjáir fjöldann munu fram- farir verða seinfara, bæði á andlega ag veraldlega sviðinu. Eg er fiss um. að hver einasta sönn og elsk- andi móðir, reynir að benda barni sínu á hvenær það er að breyta rangt, og til að styðja að réttu upp- eldi barnsins, ættu ekki sunnu- dagaskólarnir að vinna í sambandi við góðu heimilin, ef þeir vilja sýna áhuga fyrir því, að móta hugs- un unglinganna í þá átt, að verða sannir menn og sannar konur. Mér getur ekki skilist annað. en að það ætti að vera helgasta skylda hverrar einustu mentastofnunar, að kenna ungdómnum jafnframt öðr- um námsgreinum, að sigra freist- ingarnar, og ekki síður þegar skiln- ingsþroski unglingsins vex að glampa því ljósi, sem hægt er á hin huldu öfl, sem umkringja hvern ein- stakling, eins langt eins og mögu- (Framhald á 7. sfðu) ( Talsími: A 1834 DR. J. OLSON Tano'læknir Cor. Graliam & Kennedy St. i 216 Medicd! Arts Bldg. Heimasími:B 4894 WINNIPEG — MAN. W. J. Lindal J. H. Línda’ B- Stefánsson Islenzkir lögfræSingar 3 Home Investment Building, (468 Main St.) Ta1«mi A4963 Þeir hafa einnig skrifstofur að Lundar, Riverton, Gimli og Piney og era þar að hitta á eftirfylgjandi tímum: Lundar: Annanhvern miCvikudag. Riverton: Fyrsta fimtudag í hverj- um mánuBL Gimli: Fyrsta Miðvikudag hvers tnánaðar. Piney: Þriðja föstudag í mánuBi hverjum. t----------------------------N ARi i’ G. EGGERTSON islen.ZK.ur lögfræSingur- hctfir heinuld til þe»s aS flytja mál bæSi í Manifcoba og Sask- atchevran. Skrifetofa: Wynyard, Sask. -____________________________/ ^ FASTEIGNARSALAR: ^ J. J. SWANSON & CO. Talsimi A 6340. 808 Paris Building, Winnipeg. EldsábyrgC arumbotS smenn Selja og annast fasteignir, át- vega peningalán o. s. ínr. ------------------------- Money to Loan. If you require a loan on your furniture, house or farm we can arrange for you such a loan. EXCHANGE House for farm or Farm for house Insurance of all kinds WM. BELL CO. Phone: N 9991 503 Paris Bldg., Winnipeg h_- ^ KING GE0RGE HOTEL Eina íslenrka hótelið í bænum. (Á homi King og Alexander). Th. Bjarnasan s RáSstnaDur BRAUÐGERÐARHOS: ISLENZKA BAKARÍIÐ selur bestar vörur fyrir lægsta verð. Pantanir afgreiddar fljótt og veL — Fjölbreyttast úrval — — Hrein viðskifti. —- BJARNASON BAKING CO. Sargent & McGee — Sími: A 5638 — KLÆÐSKERAR: Skrifstofusíml Heimasíml N 7900 B 1S53 J. A. LaROQUE klœðskeri FÖT BÚIN TIL. EFTIR M.ELINGU Sérstakt athygll veltt lögun, vltS- gerS og pressun tatnaBar. 219 Montgomery Bldg. 21514 Portage Ave- ---------------------N BROOKS CHEMICAL FER/TILIZER TIL ÞROSKTJNAR ALLRA Jurta, burkna, jarðepla og grasa. Einnlg ná allar korntegundlr full- um þroska trelm vlkum fyr en vanalega ef þessl áburSur er not- aSur. LeltlS upplýslnga Brooks Aniline Works, Ltd. Room 9, Board of Trade Bldg. Winnlpeg, Man. Tals.: N9282 SpyrjiB verzlunarmenn. — Stofniti ekki lifi ySar og annara I hættu. HalditS vindhlífinni á hil ytlar skygtSi metS STA-CLEAR og fertSlst óhult Sta-Clear Sales Agency Room 5, Board of Trade Komit5 og sannfærist BurtSargjald á pöntunum borgatS af oss. _____________________________* ----------------!—;------- Dubois Limited EINA ÍSLENSKA LITUNAR- HÚSIÐ I BÆNUM. Sími A 3763—276 Hargrave Alt verk fljótt og vel að hendi leyst. Pöntunum utan at landi sérstakur gaumur gofinn. Eini staðurinn í bænum sem litar og hreinsar hattfjaðrir. Eigendur: A. Goodman R. Swanson Dubois Limited. Saml Strong Endurskoðari reikninga. Endurskoðar bækur verzlana og annara félaga. Phone A2027—607 Lombard Bldg. WINNIPEG. FINNID MADAME ItEH mestu spákonu veraldarinnar — hún segir ytSur einmitt þati^ sem þér vllj- ttS vita í öllum málum llfsins, ást, giftingu, fjársýslu, vandrætlum. — Suite 1 Hample Block, 273H Portage Ave., nálægt Smltb St. VltStalstímar: 11 f. h. tll 8 e. h. KomitS metS þessa auglýslngu— þ&V gefur ytSur rétt tll atS fá lesln forlðg ytSar fyrir hálfvirtSi. f---------------------------------- TH. JOHNSON, Ormakari og Gullsmiðui Selur giftlngaJeyfisbriL Bérstakt athygll vettt pöntunvat og vltSgjörtSum útan af iandl 264 Main St. Phone A 4637 CHARLES AUGER hjá Domminion Motor Co., Limited Fort og Graham Str. Ford og Lincoln bílar, Fordson dráttarvélar Brúkaðir bílar á sérstakloga lágu verði. MRS. SWAINSON 627 Sargent Ave. hefir ávalt fyrirliggjandi úrvala- birgSir af nýtízku kvenhöttum. Hún er eina íslenzka konan sem ilika vertlun rekur í Winnip#*. Islendingar, láti<5 Mrs. Swain- I son njóta viSskifta yðar. TALSÍMI: N 7316 HEIMASÍMI: N1434 A. S. BARDAL selur lfkklstur og annast um út- farlr. Allur útbúnatiur sá bestl Ennfremur selur hann allskonar minnlsvaröa og legstelna_:_I 843 SHERBROOKE ST. Phonei N 0607 WINNIPBG

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.