Heimskringla - 15.10.1924, Side 1
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
«OYAt,
CROWN
SenditJ efilr vertSlista til Royal
Crown Soap Ctil., 654 Main St.
Winnipeg.
lio
45
XXXIX. ARGANGUR.
■ R. Pétur
Hoiné St.
son
CITV,
WINNIPBG, MANITOBA, MI.ÐVI KUDAGINN 15- QIvTGBER, 1924.
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
RIOYAU,
CtiowN
SendiB eftir vertSllsta til Royal
Crotrn Soap Ltd., 654 Main St.
Winnipeg.
NÚMER 3.
Jakobína Margrét Kristjánsson.
Fædd 6. maí, 1918. Dáin 14. okt-, 1924.
Hún birtist sem. morgunskært maíblóm,
og mamma og pabbi í glöðum róm,
þá sungu um sumar og vor.
Hún brosti mót geislum frá blíðri sól.
Hún brosti, er vetrinum skinu jól,
og frjálst gekk hún fyrsta spor.
Á sjöunda’ ár dvaldi það sólskins barn
í sumarsins faðmi við móðurarn.
Og nú, þegar haustið er hér,
og liljan er sofnuð — er sæla ei
að sumarið lifði hin unga mey,
en vissi’ ei hvað veturinn er.
En nú verður hljóðara í húsinu því,
sem háreistin glaðværa lék sér í,
og þögnin svo þung og svo köld.
Og bróðirinn ungi þig ei má sjá.
Og elskandi foreldrum sýnist þér hjá
nú lögð séu gleðinnar gjöld.
Því dýpri sem sárasta sorgin er,
þess sælli hún friðinn í skauti ber,
og verður ei huggun hálf,
því hjartað, sem gullið hreinsast við eld,
og harmi er fegursta ástin seld.
Sp ástin, sem sigrar sig sjálf.
Svo máttugt er lífið, það missir ei neitt
úr mótum síns eðlis, þótt veröi því breytt
í fagnað, sem farsælli er.
-----í guðsfriði mætasta maíbarn.
Til morgunsins lands yfir dauöans hjarn,
flýr vonin frá vetri með þér.
Þ. Þ. Þ.
T
T
T
T
T
T
♦:♦
KVÖLDIN LENGJAST.
i
T
t
t
t
T
T
T
T
T
T
T
T
T
t
f
t
t
♦>
Kvöldin lengjast. Haustið leikur hjá oss
liríms og skugga feluleik á jörð.
Líkt' og Eggert sumar siglir frá oss
segli dauðans út á Breiðafjörð.
Blikna trjálauf: brenda sumargullið —
bikardjásn, sem geymdu himnavín.
Nú er Helju signað síðsta fullið.
Sólskinsbarnið hylur fölvans lín.
Þegar jötnar Útgarðanna anda
yfir bygðir, verður söngrödd hljóð.
Sumarvínið súrt sem ediksblanda,
sortinn drýpur inn í hjartablóð.
Æva gömul álög þung því valda.
Einu sinni fult var haust með söng.
Þegar allir vortrú vit sitt gjalda,
verður sumarblíðan æfilöng.
Æðsti hugi, er alheim skóp og myndar,
anda sinn í tannfé mörgum gaf,
svo að allir hausts og vetrar vindar
væru, ef þyrfti, kveðnir út í haf.
Framtíð skal sú von í vissu ýngjast:
voldugt sumar græða haustsins spor,
þegar allir morgunsálmar syngjast
saman einum rómi að skapa vor.
Þ. Þ. Þ.
►>♦>♦>♦>
f
f
- f
f
f
;♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Ágóðinn af vín&ölunni í Manitoba
fylki fyrir árið sem leið hefir num
ið um 1,200,000 dölum. Þar af ganga
rúmir 75,000 dalir til þess að borga
áfallinn kostnað við atkvæða-
greið'Slu, og lík upphæð til að
stofna varasjóð, að því er búist er
viÖ, >en sú upphæð verður nánar
ákveðin af fylki.sstjóra í fylkisráð-
inu- Afgangurinn skiftist að jöfnu
núm ■sameignlegs sjóðs opinberra
verka og sveita- og borgarstjórna.
Af þeim helmingnum er Winnipeg
*Hað 39.9 prósent- Er áætlað að
®ú upphæð muni nema 175,000 döl-
um-
Svo einkennilega vildi til, að
Lörn, sem voru að leika sér nálægt
Redwoodbrúnni yfir Rauðána, á
vnánudaginn var, fundu þar heil-
mikinn fjársjóð af gömlum pening
bm, er þau voru að róta í jörðinni-
Rru þama tvídalir og áttdalir,
armbönd, gullmolar úr og gull-
myntir frá Indo-China, Prakklandi
Þýzkaiandi, Englandi og Banda-
víkjunum, alls um $2000 virði, og
skilur enginn hvernig á stendur,
að þetta hefir verið þarna niður-
grafið.
Hjálpræðisherinn hefir með hönd
úm fyrirætlanir í þá átt, að kaupa
hokkur þúsund ekrur af landi til
þess að æfa unga menn við og búa
l>á undir iandbúnað, að þelr megi
fitanda betur að vígi í baráttunni
se® bændur en þeir gera nú al-
"ment, er þá atvinnu leggja fyrir
sig.
Prá Ottawa kemur sú fregn, að
járnbrautaráðið hafi sálgað Crow's
^est flutinga gjaidtaxtanum og að
hálfum mánuði liðnum sé ákveð-
að flutningsgjöldin skuli vera
þau sömu og fyrir 6. júlí síðastlið-
inn Er þegar komtn í ijós afskap-
leg óánægja um öll vesturfylkin,
og fullyrt, að ef' sambandsþingið
bæti ekki um, þá verði málið lagt
fyrir hæstarétt Canada og lávarða
deild brezka þingsins ef þurfi- —
Óánægjan er megn hér í öllum
fiokkum. Ejn sérstaklega þefir Ro-
bert Eorke, foringi bændaflokks-
ins, verið einbeittur í máli út af
þessu tiltæki járnbrautaráðsins og
spáir því engu góðu-
Kornung stúlka af norskum ætt-
um, Mártha Qstenso að nafni, sem
verið hefir fréttaritari við Mani-
toba Eree Press, hefir hlotið $13,-
500 verðlaun fyrir skáldsögu er hún
nefnir “Wild Goose”. Lýsir hún ís-
lenzkri nýiendu austan við Mani-
tobavatn Pimtán af hundraði
hverju, er bókin selst fyrir, fær hún
og í sinn hlut.
Játvarður prins af Wales kom
hingað til Winnipegborgar nýlega
á iferð sinni heim, ®r liggur um Chi-
cago. Ekkert stóð hann hér við-
í Hamilton í Ontario hafa tveir
rnenn, John V- Baird og J. P. Mlc-
Lellan, verið teknir fastir, ákærðir
fyrir að hafa svikið um 30 þilsund
dali af Union bankanum þar f
borg.
IMr. W- B. Snowball var kosinn
þingmaður til sambandsþingsins
í Northumberland kjördæmi í New
Brunswick nýlega, með rúmlega
600 atkvæða mun. Af hálfu con-
servativa var í kjöri Mr- C. P Hic-
key Hon. John Marrisey var þing-
jnaður kjördæmisins, er losnaði við
dauða hans.
Dánarfregn.
Ráðsmaður “Heimskringlu”
og kona hans, Mr. og Mrs.
Jakob Kristjánsson, að 788 Ing-
ersoll stræti hér í borginni,
urðu fyrir þeirri þungu sorg,
síðastliöið þriðjudagskvöld, að
missa dóttur sína sex ára
gamla, Jakobínu Margrétu, hið
efnilegasta og yndislegasta
barn, úr skæðum barnasjúk-
<}ómi,. eftir mjög stutta legu.
Jarðarförin fór fram fimtudag-
inn 16. þ. m.-og flutti sér Ragn-
ar E. Kvaran húskveðju, en séra
Rögnvaldur Pétursson talaði við
gröfina. “Heimskringla” vottar
þeim hjónum innilega hluttekn-
ingu í sorg þeirra.
Amerískir vísindamenn í New
York hafa nú uppgötvað, að því er
þeir fullyrða, við það að rannsaka
múmíur, að ýmsir sjúkdómar, sem
monn liafa haldið að komið hefðu
aðallega fram á seinni tímum, eru
mörg þúsund ára gamlir, þár á
meðal æðakölkun, krabbi og gigt-
Meðal annars fullyrða þeir ,að sá
Pharaoh, er sat að völdum pegar
ísraelsmenn tóku sig* upp frá
Egyptalandi, hafi dáið af æða-
kölkun.
Frá Leipzig á Þýzkalandi kemur
sú fregn, að læknar þar séu búnir
að uppgötva nýjan meltingarsjúk-
dóm með bvenfólkinu; stafar hann
af því, að þær mála heldur mikið
á sér varimar, blessaðar, svona sum
ar liverjar, en ýmisleg efni eru í
þeim rauða lit, sem ekki eru heppi
leg til meltingar. Það fer að verða
vandlifað í heimi þessum, eða þá
að hvíta kvenfólkið er ekki eins
vel úr garði gert innvortis eins og
almennir villimenn, ef þær geta nú
ekki endurbætt líkama sinn sér að
skaðlausu-
Nú hefir Wahabi flokkurinn ara
biski loks tekið hina heilögu borg
Mecca fyrr fult og alt, og mun nú
Soldán þeirra hafa í huga að láta
úftnelfna slg til Ralífa^ þar sem
Hussein kóngur er úr landi flúinn,
á náðir Breta, eins og getið hefir
verið um áður.
Frá París er símað að franska
stjórnin ætli að viðurkenna rúss
nesku Sovict-vstjórnina hátíðlega
og opinberlega á föstudaginn 17.
þ. m- Er það þeim skilyrðum
bundið fyrst um sinn, að rússneska
stjómin viðurkenni formlega
skuldakröfur frakkneskar á hend-
ur Rússum, en þær nema 19 milj-
örðum franka.
Yopnahlé er komið á í Kína, eftir a®
Kiangsu og Pukien herirnir hafa
unnið Shanghai- Lu Yung Hsiang
foringi Chekiang hersins gafst upp
Og flýði um leið sjálfur til Japan.
En róstusamt hefir verið í Shang-
hai síðan á milli sigurvegaranna,
og nú er sagt að Bretar hafi stilt
til friðar, með því að taka nokkra
“generala” fasta. Er búist við að
Bretar muni gera upp bróðurlega
á milli sigurvegaranna-
Eftir því sem Decorah Posten
segir frá, ætlar Wilhjálmur Stefáns
son, sem nú er nýkominn heim frá
‘‘eyðimerkurferð’’ í Ástralíu, að
verja næstu ámm æfi sinnar til
þess að ferðast um þurkahéruð
heimsins og reyna að að færa mönn j
um heim sanninn um, að þau séu
ekki eins óbyggileg og alrnent er
álitið.
Lýðveldið San Domingo hefir nú
gengið í Þjóðabandalagið og sendir
fulltrúa sinn til Genf á Svisslandi.
Era þá alls 55 þjóðir í bandalag-
inu.
Hinn heimsfrægi frakkneski rit-
ífBfundur og ekáld, Anatole Erance,
lézt 12- þ. m. að Tours á Frakklandi
— rúmlega áttræður að aldri.
Hann hefir skrifað feiknin öll og
flest með sama snildarmarkinu.
Mr- Sigtryggur Ágústsson hér í
borg hefir við og við þýtt dálítið
eftir hann, og mun það vera ná-
lega hið eina, er sést hefir eftir
France á íslenzku.
Nú fára fram bráðloga nýjar
kosningar til parlamentsins á
Englandi. Kom fram vantrausts-
yfirlýsing á stjórninni, aðallega út
af rússnesku samningunum og svo
því, að ákæra um landráð á hendur
manni, er Campbell heitir, var lát-
in falla niður- Vildi McDonald
ráðuneytið taka ifulla ábyrgð á
gerðum sínum í þessum málum, og
búast þeir og þeirra flokksmenn
við auknu fylgi nú við kosningarn-
ar. Liberalar og conservatívar
munu ætla sér að vinna talsvert
saman að kosningunum-
Hinn 30- f. m. varð vart við tölu-
verða landskjálftakippi í ríkinu
Maine Lítilfjörlegir hafa þeir þó
verið samanborið við íslenzku jarð
skjálftana, enda ekki getið um að
tjón hafi hlotist af þeim til muna.
ÍFyrir sjö vikum fóru tvö sikip
frá Álasundi að leita fiskjar vest
ur fyrir Grænland. Skipið Storm-
fugl” kom síðdegis í gær til Ála-
sunds og hafði þá látið eftir afla
sinn í Englandi, 30 þúsund “mál”
af heilafiski- Förin tókst einkar-
vel. í fyrsta sinn, sem lögð var
lóð fyrir vestan Grænland, hittist
á auðugt þorskfiskimið. Stóð fisk
ur á hverju einasta járni þegur
lóðin var dregin- Þorskurinn
óvenju stór. — Þegar ísa greiddi,
var haldið norður á lúðumiðin og
hlóð “Stormful” þar á átta dögum.
Hitt skipið lá á þorskmiðunum og
hlóð.
Formaður útgcrðarinnar fagnar
mjög árangrinum og býst við mikl
um uppgripum á þessum slóðum
um ókomna tíma.
Jarðfræðingurinn Niels Nielsen
varði doktorsritgerð sína 9. þ- m.
Er hún um jámvinslu í Jótlandi til
forna- Gekk vörnin hið bezta.
Andmælendur voru prófessoramir
Vahl og Blinkenberg- Mjeðal á-
heyrenda var Finnur Jónsson pró-
fessor.
Á árshátíð Dansk Kunstflidsfor
ening fékk ungfrú Guðrún Eiríks
dóttir frá Bakkakoti hin einu
fyrstu verðlaun, sem veitt voru-
Yerður hún, ásamt öðrum, er verð
laun fengu, síðar leidd fyrir vernd
ara félagsins, ekkjudrotninguna,
sem ekki gat komið á hátíðina
vegna veikinda.
Frá Vatnabygðum.
Hér fylgir mynd af Agli J.
Laxdal , þingmannsefni Fram-
sóknarflokksins (Progressive)
í aukakosningunum í Wynyard
kjördæminu.
Egill Laxdal er fæddur 1883
á íslandi. Fimm vetra gamall
kom hann til Ameríku með for-
eldrum sínum. Fjölskyldan sett
ist í Þingvallanýlendu. Svo
bjuggu foreldrar hans í Strath-
clair, Man.
Egill hlaut lýðskólamentun
á æskuárum, en bæði árin 1902
til 1903 og 1903 til 1904 las
hann við Business College í
Winnipeg. Þrátt fyrir þessa
kaupsýslumentun hafði hann
ekki tilhneigingu til þess að
kaupa og selja samborgurum
sínum, heldur settist að í Dafoe
Sask., árið 1906, \pg tók þar
heimilisréttarland. Varð hann
útvörður bygðar sinnar í öllum
skilningi. Einsetumaður var
hann í mörg ár, en þótti þó ætíð
frömuður bygðarinnar. Egill
hefir verið í sveitarráði síðan
Frá New York er símað að bann-
gæzlulögreglan hafi uppgötvað
tröllstórt ensk-amerískt vínsmygl-
unarfélag með tíu miljón dala höf
uðstól, gæzluliðið náði á laugardag
inn var í brezka gufuskipið Frede-
rick B-, sem hafði meðferðis 500,000
dala virði af áfengi. Skipshöfnin
voru 28 mcnn, með alvæpni, og
tveir kvenmenn. Yfirvöldin full-
yrða að á bak við þetba smyglfélag
standi amerískir, canadiskir og
brezkir bankar.
sveit myndaðist í héraði hans,
og oftast oddviti (reeve). Hann
hefir og verið forseti “Grain
Growers” félagsins síðan það
myndaðist í bygð hans. Enginn
gerði meira fyrir “Wheat Pool”
málið þar vestra en Egill. Og
trúa margir því, að það sem
unnið er fyrir það félag er
meira virði en margar ræður
og góðar (?) Svo hefir Egill
verið stuðningsmaður og skrif-
ari Teleplione félagsins. — t
stuttu máli Egill Laxdal hefir
búið hér síðan bygðin varð til
og verið fremstur í öllu því, er
miðar að velferð héraðsins. —
Munu allir góðir íslendingar
veita honum fylgi í hinum kom-
andi kosningum.
Á móti Agli sækir W. H.
Paulson. Er hann vel þektur
meðal landa hér. Var hann
þingmaður þessa kjördæmis í 9
ár, en hætti því. Sáu fáir eftir
honum. En nú kemur það upp
á teninginn, að hin háttvirta
Dunning stjórn hafi ræktað
þennan mann í þrjú ár og
“Summer fellow”-að hann og
að nú sé hann fyrirtak. En
hvað sem þessu líður, vilja land
ar í Vatnabygðum helzt kjósa
sinn eigin mann. Það er Egill
J. Laxdal.
Því verður þó ekki neitað, að
hr. Paulson hefir varpað frægð
arljóma yfir landa sína í Vatna.
bygðum, því um þessar mundir
úir og griiir af ráðherrum og
heldri mönnum. Jafnvel for-
sætisráðherrann fer út á út-
kjálka og prédikar af krafti, um
hve afar nauðsynlegt sé að
kjósa Paulson. En landar hafa
sína hugmynd um þessa hluti
og vilja helzt greiða atkvæði
eftir sínu íslenzka höfði, en
ekki eftir höfði Dunningsstjórn-
arinnar.
Elfros, 9. okt. 1924.
J. P. P.