Heimskringla - 15.10.1924, Page 4
4. BLAÐSlÐA
HBIMSKRINGLA
WINNIPEG, 15. OKT. 1924.
(StofnuTS 1886)
Keraur flt A hverjum ml7Svlkudegrl.
EIGENDDR s
VIKING PRESS, LTD.
853 ogr 855 SARGENT AVE., AVINNIPEG,
Tulními: N-6537
VertS blatSsins er $3.00 Argangurlnn borg-
lst fyriríram. Allar borganir sendist
THE VIKING PREfSS LTD.
SIGPÚS HALLDÓRS frá Höfnum
RitstjórL
JAKOB F. KRISTJÁNSSON,
Ráðsmaður.
lltnnANkrift tll blaltfilnfii
TIIE VIKING PRB98, Ltd., Box 8105
UtnnAMkrlft tll rltNtjöranN:
EDITOll HEIMSKRINGLA, Box 8105
WINNIPEG, MAN.
“Heimskrlngla ls published by
The Viklnj; Preas Ltd.
and printed by
CITY PRINTING «fc PIIBLISHING CO.
853-S55 Saricent Ave., AVinnlpegr, Man.
Telephone: N 6537
WINNIPEG, MAN., 15. OKTÓBER, 1924.
Kosningarnar á
Englandi.
Nú loks er síðasta líftóran að skreppa
úr ráðuneyti Ramsay McDonalds, sem
lengi^hefir á heljarþröminni riðað, því
aldrei var nokkur meirihluti á bak við
það; verkamannaflokkurinn var ekki
einu sinni öflugastur í þinginu.
En mikið hefir McDonald gert fyrir Ev-
rópu á þeim níu mánuðum, er hann hefir
við stjórnartauma setið, þó liberali flokk-
urinn oft hafi skolfið á beinunum út af
þátttöku hans í evrópískri pólitík. Og nú
hefir Lloyd George hamast á samnings-
gerðinni við Rússa, sem reyndar ekki er
fullgerð, og Toryarnir hafa notað tæki-
færið, er McDonald tók aftur landráða-
ákæruna á hendur kommúnistaræfli ein-
um, fyrir að hvetja til uppreisnar. Hvor-
ugt málið virðist nú satt að segja harla
merkilegt, en, nota flest í nauðum skal.
En hvað sem þeir gjamma hvelt Tory-
arnir og Lloyd George, sem hvorugir sáu
eitt einasta ráð út úr ófærunum í Ev-
rópu, meðan þeir sjálfir sátu við völdin,
þá er það víst, að McDonald hefir friðað
Evrópu betur en nokkur einn maður, síð-
an stríðinu slotaði.
Bezta sönnun þess er sú, að nú loks eru
Frakkar við því búnir að bjóða Þjóðverja
velkomna í Þjóðabandalagið,
Það er ekki annað hægt en að óska
Englandi, að þeir þar beri gæfu til þess
að senda McDonald aftur inn á þingið
hálfu öflugri en fyr.
Engu skal þó um kosningar þessar spá.
Blöðin álíta, að liberali flokkurinn muni
tapa þingsætum en aftur hægri menn
vinna á, og sumir jafnvel halda fram, að
þeir muni vinna stórkostlegan sigur, og
það þá helzt á kostnað verkamanna. —
En þó er nú ekki víst að þeim verði að
því, og komið gæti fyrir að á spámönn.
um þessum rættist íslenzka máJtækið:
“Svo mæla böm sem vilja”.
Frjáls hugsun.
Framh.
Hvað hefði gerst, ef Einstein hefði
komið fram með einhverja samsvarandi
nýbreytni á sviði trúarbragða eða stjórn-
mála? Englendingar hefðu fundið ein-
hvern keim af prússneskum anda í kenn-
ingum hans; Semita-fjendur hefðu litið á
þær sem Zíonista samsæri; landvarnar-
mönnum (nationalists) í öllum löndum
hefði fundist það vatnsblönduð, blóðlaus
friðarstappa, og lýst því yfir af þetta væri
ekki annað en klókindabragð til þess að
losna undan herþjónustu. Allir gamal-
dags prófessorar myndu leita til Scotland
Yard til þess að fá innflutningsbann á rit-
um hans. Kennarar, sem aðhyltust skoð-
anir hans hefðu verið reknir frá störf-
um sínum. En sjálfur hefði hann náð
völdum í einhverju afkima-landi, þar sem
ólöglegt hefði orðið að kenna nokkuð ann
að en kenningar hans, sem hefðu svo orð
ið að einhverri dularfullri staðningu, sem
enginn hefði skilið. Að lokum hefði
verið skorið úr því á orustuvelli hvort
þetta væri sannleikur eða blekking, án
þess að ný gögn hefðu kom|ö fram í
málinu með eða mót. Þessi aðferð er
rökrétt afleiðing af “vjljanum til að
trúa”, sem William James mælir með.
Það sem þörf er á, er ekki “viljinn til að
trúa”, heldur óskin um að fá að vita, sem
er bein mótsetning þess.
Ef við það er kannast, að skynsam-
legur efi se eftirsóknarverður, þá fer að
verða áríðandi að grenslast eftir hvemig
á því stendur að svo mikið skuli vera af
óskynsamlegri vissu í heimi þessum.
Mjög mikill hluti þessa stafar af arfgengri
óskynsemd og trúgirni flestra manna. En
þetta frækom erfðasyndar vitsmunalífs-
ins er ræktað og nært af öðrum öflum,
en meðal þeirra gætir mest þessara
þriggja: fræðslu fyrirkomulags, fylgisöfl.
unar (propaganda) og fjárhagsþrenging-
ar. Vér skulum athuga hvert atriði fyrir
sig.
1. Fræðslufyrirkomulagið. — Barna.
skólakensla í öllum löndum er í höndum
rÍKisins. Embættismennirnir, sem setja
kenslureglumar, vita að sumt af henni er
ósannindi, og um margt annað er hverj- j
um hleypidómalausum manni kunnugt, j
að það eru ósannindi, eða að minsta kosti j
mjög vafasamar fullyrðingar. Tökum t. i
d. kenslu í sögu. Þegar einhver maður j
ritar æfisögu sjálfs síns, þá er búist við að
hann sýnir einhvern lit á hæversku, en
þegar þjóð ritar æfisögu sína, þá em
engin takmörk fyrir mikillætinu og sjálfs-
lofinu. Þegar eg var unglingur, var það
kent í skólabókum, að Frakkar væru ó-
guðlegir, en Þjóðverjar dygðugir; nú er
þessu snúið við. í hvorugt skiftið er hirt ;
hið allra minsta um sannleikann. Þegar |
sagt er frá orustunni við Waterloo í
þýzkum kenslubókum, er látið í veðri
vaka að Wellington hafi lítið sem ekkert
átt eftir annað en að tapa orustunni, þeg-
ar Blucher kom og bjargaði öllu við.
Enskar kenslubækur skýra svo frá, sem
mjög litlu máli hafi skift um Blucher.
Höfundar ensku og þýsku bókanna vita
hvorutveggja, að þeir eru ekki að segja
rétt frá. Amerískar i kenslubækur voru
fyr meir mjög fjandsamlegar Bretum,
frá því á ófriðarárunum hafa þær verið
álíka vilhallar Bretum, og í hvorugt skift-
ið nein tilraun verið gert, til þess að
segja satt frá (sjá The Freeman, 12. febr.
1922, bls. 532).. Einn aðaltilgangur kensl
unnar í Bandaríkjunum hefir fyr og síðar
verið sá, að breyta hinu ósamstæða sam-
safni innfluttra barna í “góða Ameríku-
menn”, Að því er virðist þá hefir engum
hugkvæmst að i“góður Ameríkumaður”
alveg eins og “góður Þjóðverji” eða “góð-
ur Japani” hlýtur “sem slíkur” að vera |
lélegur maður. “Góður Ameríkumaður”
er sá maður, eða sú kona, sem er haldin
af þeirri trú, að Ameríka sé bezta landið
undir sólinni, og að það sé helg skylda að
styrkja það land í hvaða deilu sem er.
Það getur vel verið, að þær skoðanir séu
réttar; ef þær eru það, þá hefiir enginn
skynsamur maður neitt á móti þeim. En
séy þær réttar, þá á að kenna þær al-
staðar, en ekki í Ameríku einni. En það
er dálítið grunsamlegt, að slíkum fullyrð-
ingum er aldrei trúað nokkurstaðar utan
þess sérstaka lands, sem verið er að dá-
sama. Sannleikurinn er sá] 'að öllum
tækjum ríkisins, í öllum löndum, er beint
að því marki, að fá varnarlaus börn til
þess að trúa fráleitum fullyrðingum,
meðal annars í þeim tilgangi að gera
þau fús til þess að láta lífið fyrir óheill-
vænleg markmið, en í þeirri trú að barist
sé fyrir sannleika og réttlæti. Þetta er
einungis ein af þeirri óteljandi aðferðum,
þar sem mentun eða fræðsla er notuð,
ekki til þess að útbreiða sanna þekkingu,
heldur til þess að gera fólkið þjált fyrir
vilja drotnara þess. Ef ekki væri fyrir
vandlegt blekkingar.keríi í unglinga-
skólum, þá væri ógerningur að halda
uppi þeim látalátum, sem nefnd eru lýð- j
stjórn (democracy).
Áður en skilið er við fræðslumáiln, I
ætla ég að taka annað dæmi frá Banda- j
ríkjunum, — ekki vegna þess, að það
land sé neitt verra en önnur, heldur af !
því að það er mesta nútímalandið; þar
koma í ljós frekar þær hættur, sem fara j
vaxandi en hinar, sem fara þverrandi. í
New York ríkinu er ekki hægt að setja
skóla á stofn, nema með leyfi ríkisins,
jafnvel þó tilætlunin sé, að halda honum
uppi með einstakra manna fé eingöngu.
Nýleg lög mæla svo fyrir, að leyfið skuli j
ekki veitt þeim skóla, “þar sem útlit er i
fyrir að í fræðslu þeirri er veitt verði, sé j
kensla um að skipulagsbundinni stjóm I
megi kollvarpa með valdi, ofbeldi eða á j
ólöglegan hátt”. Og eins og The New j
Republic bendir á, þá eru engin nánari
ákvæði um þessa eða hina skipulags-
bundnu stjórn. Samkvæmt þessum lög-
um hefði það því verið ólöglegt á ófrið- I
arárunum að kenna að keisarastjórninni !
þýzku skyldi kollvarpað með valdi; og
stuðningurinn, sem síðar var veittur ^
Kolchak og Denikin gegn Soviet-stjórn- !
inni hefði þá líka verið ólöglegur. En I
vitaskuld var þetta aldrei tilgangurinn
með lögum þessum. Þetta stafar ein-
ungis af klaufalegri framsetningu. Til
hvers var ætlast, síst af öðrum lögum,
sem samþykt voru um sama leyti, um
kennara í ríkisskólum. Þau lög mæla
svo fyrir, að “kensluleyfi í skólum skuli
aðeins gefin þeim, sem sýnt hafi full-
nægjandi; hð jþeir séu drottinho^lir' og
hlýðnir stjórn þessa ríkis og Bandaríkj-
anna, en þeim skal neitað um það, sem
mælt hafa með — alveg sama hver og
hvenær—“stjórnarfyrirkomulagi er ann.
an veg er háttað en stjórn þessa ríkis eða
Bandaríkjanna. Nefndin sem samdi lög
þessi gat þess, eftir því sem New
Republic segist frá, að sá kennari, sem
“ósamþykkur er núvarandi þjóðskipulagi
— verður að leggja niður starf sitt”, og
“engri manneskju, sem ekki er áhuga..
mál að berjast móti kenningum um þjóð-
skipulags-breytingar ætti “að vera trúað
fyrir að búa eldri og yngri undir borg-
aralega ábyrgð”. Þannig hefðu Kristur
og George Washington verið of lítilsigld-
ir siðferðislega til þess að vera færir um
að leiðbeina unglingum, eftir því, sem
litið er á í lögum New York ríkis. Ef
Kristur kæmi til New York og segði:
“leyfið börnunum að koma til mín”, þá
mundi forstjóri skólamálanna í New York
svara: “Eg sé engin merki þess herra
minn, að yður sé það áhugamál að berj-
ast á móti kenningum um þjóðskipulags-
breytingar. Satt að segja hefir mér bor-
ist til eyrna að þér séuð að boða það,
sem þér kallið konungsríki himinsins, en
þetta land er, guði sé lof! lýðveldi.
Bersýnilegt er að stjórnin í þessu kon.
ungsríki himinsins muhdi verða mjög
frábrugðin stjórninni í New York ríkinu”.
Ef hann svaraði ekki á þessa leið, gerði
hann ekki skyldu sína, sem embættis-
maður, er falið væri að hafa með hönd-
um framkvæmd laganna.
Áhrif slíkra laga, eru mjög alvarleg.
-Vér getum hugsað oss, röksemdarleiðsl-
unnar vegna, að stjórnin og þjóðskipu-
lagið í New York ríkinu, væri það full-
komnasta er nokkru sinni hefur á jörð
þessari verið; en væntanlega mætti þó
gera ráð fyrir, að hægt væri að endur-
bæta það. Sérhver maður, sem kannast
við þetta augljósa mál, er lögum sam-
kvæmt óhæfur til að kenna við ríkis-
skóla. Þannig mæla lögin fyrir, að kenn.
arnir skuli allir vera annað hvort
hræsnarar eða fífl.
Hin vaxandi hætta, sem New York
lögin eru dæmi um, er sú, sem stafar af
einskorðun valds í hendur einnar stofn-
unar, hvort sem það er ríkið eða “trust”
eða samband af “trusts”. Um fræöslu-
málin er það að segja, að þau eru í
höndum ríkisins, sem varnað getur ung-
lingunum frá að heyra nokkra skoðun,
sem því er ógeðfeld. Eg hygg að ennþá
muni vera til menn, sem ímynda sér, að
lýðstjórnar (democratic) ríki sé naum-
ast aðgreinanlegt frá þjóðinni sjálfri. En
þetta er hin mesta meinloka. Ríkið er
samsafn 'af embættismönnum, mismun-
andi eftir störfum sínum, sem þiggja
þægileg laun á meðan status quo (ástand-
ið sem nú er óbreytt) ríkir. Eina breyt-
ingin, sem þeir gætu óskað eftir í status
quo, er sú, að aukið sé skrifstofuvaldið.
Þess vegna er það ekki nema eðlilegt, að
þeir skuli færa sér í nyt æsinguna á' ó-
friðartímum til þess að ná ótakmörkuðu
valdi yfir undirmönnum sínum,'''meðal
annars vald til þess að svelta hvern und-
irmann, er rís gegn skoðunum þeirra.
Þegar kemur til mála er mannshugann
varða, svo sem fræðslumála, þá eí þetta
skaðræði. En þó er þetta óhjákvæmi-
leg afleiðing þess, að láta alla byrjenda-
fræðslu vera í höndum einnar stofnunar.
Það sem á hefir unnist um trú.
arbragðalegt umburðarlyndi stafar að
mestu leyti af því, að fólki þykir nú ekki
eins miklu máli skifta um trúmál og áð-
ur var. En í stjórnmálum og fjármálum,
sem nú skipa það sæti, er trúarbrögðin
höfðu fyrrum, er vaxandi tilhneiging til
ofsókna, og þær eru síður en svo bundn-
ar við einn flökk. Skoðana ofsóknir eru
alvarlegri í Rússlandi en í nokkuru auð-
stefnu (capitalist) landi. Eg hitti fráL
bæran rússneskan rithöfund í Péturg.
borg, Alexander Blok að nafni, sem síð-
an hefir látist fyrir of þröngan kost.
Bolsevikarar leyfðu honum að kenna fag
urfræði, en hann kvartaði yfir því, að
þeir krefðust þess, að hann kendi “út frá
Marx-stefnu sjónarmiði”. Honum hafði
ekki tekist að átta sig á, hvernig unt yrði
að tengja hljóðfalls-hugmyndir sínar við
Marx-stefnu, þó hann reyndi alt til þess,
til þess að forðast hungur. Og vitanlega
hefir verið algerlega ómögulegt að fá
neitt prentað, síðan Bolsevikamir kom-
ust að völdum, sem miðaði að því að
gagnrýna þær kenningar, sem stjórn
þeirra er reist á.
») Eins og kunnugt er, er "guísriki nefnt á j
ensku “kingdom of heaven".
Dæmin frá Ameríku og
Rússjandi yarpa ljósi yfir þá
niðurstöðu, sem við virðumst
neyðast til þess að komast að,
sem sé þá, að á meðan menn
halda áfram að hafa þá of.
stækistrú á ákveðnum stjórn-
málastefnum, sem nú ríkir, þá
er frjáls hugsun í stjómmálum
óhugsanleg, og htæta er mikil
á því, að þessi skortur á frelsi
hreiðist út til allra mála, svo
sem orðið hefir ,á Rússlandi.
Ekkert annað en einhverskon-
ar stjórnmála “vantrú” getur
bjargað oss frá glötun.
Það má ekki gera ráð fyrir
því, að þeir embættismenn, sem
hafi fræðslumálin undir hönd-
um, óski þess að unglingarnir
verði mentaðir menn. Vanda-
málið fyrir þeim er þvert á móti
það, að veita fræðslu án þess
að auka vitsmuni. Mentunin
ætti að hafa tvennskonar mark
mið: annarsvegar að veita á-
kveðna þekkingu — lestur,
skrift, tungumál og stærðfræði
o. s. frv., og hinsvegar að skapa
það hugarástand, sem gerir
fólki fært að afla sér þekkingar
og gera sér sjálft heilbrigða
grein hlutanna. Fyrra atriðið
getum vér nefnt fræðslu, hitt
vitsmuni. Gagnsemi fræðslunn-
ar er viðurkend í orði sem á
borði; ólæs þjóð er ósamrýman-
leg nútíma ríki. En nytsemi
vitsmunanna er einungis við-
urkend í orði. Þess er ekki
óskað , að almenningur hugsi
fyrir sjálfan sig, vegna þess, að
reynsla er fengin fyrir því, að
ilt er að ráðsmenskast með þá
menn, er hugsa fyrir sjálfa sig
og þeim fylgja allajafna alls-
konar örðugleikar með stjórn-
semi. Hirðarnir einir, svo mál
Platós sé notað, eiga að hugsa;
hinir eiga að hlýða, fylgja for-
ystunni eins og kindahópurí.
Þessi kenning hefir ekki dáið
þó .stjórnmála.lýðstjórn hafi
komist á, og hún hefir spilt öllu
fræðslukerfi þjóðanna.
Landið, sem bezt hefir tekist
að veita fræðslu án vitsmuna,
er síðasta viðbótin við nútíma
menningu, Japan. Unglinga-
kensla kvað vera aðdáanleg
frá sjónarmiði fræðslunnar. En
auk fræðslunnar hefir hún
annað markmið, sem er að
kenna dýrkunina á Mikado-
inum — og sú kenning er nú
miklu sterkari en áður en hin
nýja breyting varð á Japan.
Þannig hafa skólarnir verið
notaðir til þess jöfnum hönd-
um, að veita þekkingu og út-
breiða hjátrú. Vér sjáum hvað
fráleitt er í kenslumálum
Japana, af því að vér höfum
enga freistingu til Mikadó.
dýrkunar. Oss finst vor eigin
þjóðlega hjátrú vera svo eðli.
leg og skynsamleg, að oss tekst
eigi að líta hana sömu óhlut-
drægu augum og hjátrú fjar-
lægari landa. En ef japansk-
ur ferðamaður tæki sér fyrir
hendur að færa rök að því, að
iskólar vorir kendu hjátrú er
væri alveg eins skaðleg vits-
mununum ejns og trúin á guð-
dómleik Mikadósins, þá grunar
mig, að honum yrði það ekki
svo sérstaklega örðugt við-
fangsefni.
Eg er ekki að þessu sinni að
leita að hagkvæmri lækningu,
heldur hirði eg um það eitt að
skýra sjúkdóminn. Vér stönd-
um andspænis þeirri fáránlegu
staðreynd, > að fræðslumá|in
eru einn aðal þröskuldur í vegi
fyrir vitsmuni og frjálsa hugs-
un. Þetta stafar fyrst og fremst
af því, að ríkið hefir einkum
ráð yfir þessum málum; en
það er alls ekki eina ástæðan.
Framh.
------0------
DODD’S nýrnapillur eru bezta
nýrnameÖalið. Læikna og gigt,
bakverki, hjartabilun, þvagteppu,
og önnur veikindi, sem stafa frá
nýrunum. — Dodd’s Kidney Piills
kosta 50c askjan, eða 6 öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá öllum lyf-
sölum, eða frá ,
The Dodd’s Medicina Co., Ltd.,
Toronto, Ontario.
Skygna stúíkan í
• •
Oxnafelli.
JVIargTét Jónsdóttir Thorlacius-
heitir hún, og er fædd og upp al-
in í öxnafeili 1 Eyjafirði. Hún er
af hinni nafnkunnu, eyfirzku
Thorlacius-ætt hróðurdóttir séra
Einars Thoriacíus, prófasts í Saur
bæ á Hvalfjarðarströnd. En f
móðurætt er hún rm'kið skyld
skáldunum Páli J- Árdal Og frú
Kristínu Sigfúsdóttur og litla
skygna drengnum hennar, Jóhan-
nesi Páimasyni, sem getið hefir
verið um hér í Morgni. Foreldrar
hennar hafa átt 13 börn. HÚn er
sú 8. í röðinni, en sú 5. af þeim 1(L
sem eru á lífi.
Það ifyrsta, sem miinst var á við
mig í Eyjafirði, í nýafstaðinni ferð
minni þangað, var þessi stúlka. Eg
átti þá tal við þjóðkunnan bónda,
á leiðinni til Akureyrar. Ek>kt
leyndi það sér, að hann var sann-
færður um, að stórmerki væru að
gerast í samíbandi við stúlkuna, og
hann sagði, að ég yrði fyrir hvem
mun að hitta hana.
iEin þetta var ekki nema upphaf-
ið á talinu um Möggu, sem hún
virtist alment kölluð í Eyjafirði.
Það var eins og hún væri á hvers
mianns vörum þar. Eg hygg þð
menn tali nú meira um hana f
Eyjafirði, en um nokkurn annan
mann. Og altaf var samia við-
kvæðið, að við hana yrði ég að
tala.
Eg gerði það, tók mér ferð á
hendur fram að öxnafelli til þess
að heimsækja hana og foreldra
hennar. Hún er 16 ára gömiul, há
og þrekvaxin, braust og býður af
sér bezta þokka. öllum her samán
um það, þeim, er ©g átti tal við
um hana, og voru henni nákunn-
ugir, að hún væri einkarvönduð,
sannorð og góð stúlka.
Elest af því, sem hér fer á eftir
sagði hún mér sjálf og foreldrar
hennar Hitt er eftir frásögn mjög
áreiðanlegs vinar míns, seml er
Margrétu nákunnugur og mikið
hefir talað við hana um dular-
reynslu hennar.
Þegar hún var enn rnjög ung, um
fjögra ára, fór hún að tala '
Ijós, er hún sæi á kvöldin í fjallinu
fyrir ofan hæinn. Þegar hún stálp
aðist, fór hún að sjá fólk í kiett-
um. Og þá komst hún í kynni við
eina af þessum verum, sem húh
kallar “huldufólk”. Það var karl-
maður á þrítugs aldri, sem nefndi
sig Eriðrik, og kvaðst vera læknir-
Eg spurði hana, af hverju hún
réði það, að hann væri huldumlað
ur; hvort hún gæti ekki hugsað
sér, að hann væri, til dæmis að
taka, framliðinn maður, eða hvoTt
hann hefði nokkuð sagt henni um
það.
iNei, hann hafði aldrei neitt um
það sagt. En hún skipaði honum
í flokk huldufólksins, af þvf að
hún sá hann fyrst í 'kletti með
mörgu ifólki- Hann gaf sig á tal
við hana, og síðan liefir hann fylgt
henni mjög stöðugt. Samt koma
fyrir stundir og jafnvel heilir dag
ar, sem hún sér hann ekki. BDann
kveðst þá hafa ýmsum störfum að
sinna- Bústaður hans finst henní