Heimskringla - 05.05.1926, Blaðsíða 4

Heimskringla - 05.05.1926, Blaðsíða 4
I 4 BLAÐSIÐA. HEIM SKRINGLA WINNIPEG, 5. MAÍ, 1926. Hetmskringla (Stofnatl 1886) Kemor flt A hverjam mltívlkudenri. EIGENDUR: VIKING PRESS, LTD. SS3 og S55 SARGENT AVE., Wl.VSlPBO, Talsfml: N-653T VerB blatSsins er $3.00 árgangurlnn borg- lst fyrirfram. Allar borganir sendist THE VIKING PIíEfiS LTD. SIGFÚS HALLDÓRS írá Höínum Bitstjórl. JAKOB F. KRISTJÁNSSON, Ráðsmaður. I tanAskrlft tll blntSMlnn: THE VIKING PRESS, I.td., B«x 8105 UtanAMkrlft tll rltMtjArana: EDITOR HEIMSKRINGLA, Box 3105 WINNIPEG, MAN. “Heimskringla ls published by Tbe Vlklntr PrenM Ltd. / and printed by CITY PRINTING .t PUBI.ISHING CO. 853-S55 Sartrent Ave., WinnlpegT* Man. Telepbone: N 6537 WINNIPEG, MANITOBA, 5. MAÍ, 1926 Bílaskatturinn og Ford Til þess myndi almennur kosingarrétt- ur vera og lýðræði, að sendir væru jafn- aðarlega á þing beztu og vitrustu menn þjóðarinnar. En stundum finst manni við lestur þingtíðindanna, að annaðhvort sé lýðurinn 'ekki sérlega glöggur á mannvit- ið og ósérplægnina, ellegar þá að hvort- tveggja sé fremur sjaldgæf vara. Þetta á nú ekkert fremur við í Canada en á ís- landi, þrátt fyrir alt íslenzka mannvitið; ekkert fremur í Róm en í Washington. En það þá sjálfsagt ekkert síður við hér en annarsstaðar. Ekki sízt láta þvílíkar hugsanir á sér bóla, þegar lesnar eru ræður ýmsra hátt- virtra þingmanna um alla þá hrellingu, háska og tjón, er hljóti að leiða af bíla- tollslækkuninni, sem nú er á fjárlögun- um.. Sjónarmiðið horfir sro einkenni- lega við lífrás þjóðarinnar; sjóndeildar- hringurinn er svo þröngur. Hjartnæmar og vafalaust velmeintar ræður eru haldn- ar fyrir hönd nokkur þúsund verka- manna, sem hafa látið sannfærast um að tolllækkunin muni eyðileggja þá og fjöl- skyldur þeirra. Og velferð allrar þjóðar- innar er á dularfullan hátt hnýtt við stundarafkomu nokkurra smábæja í Ont- ario, sem hljóta að sitja eða standa eftir geðþótta fáeinna amerískra iðnrekenda, sem með hótunum hyggjast að ráða lög- gjöf landsins. Það er því býsna fróðlegt að íhuga álit mesta iðnrekandans í heiminum, sem þá einmitt leggur stund á bílsmíði, bæði í Bandaríkjunum og Canada. Blaðið Ott- awa EVening Citizen sendi fregnritara á fund Henry Ford, til þess að grenslast eftir áliti hans. Samtalið á milli þeirra er staðfest af Mr. Ford. Er það á þessa leið: Deerborn, Mach., 23. apríl: — Ef Henry Ford yrSi forsætishráðherra í Canada, þá gætu con- servatívar rólegir tekiiS vig Rohert Forke, og Robb-fjárlögin myndu fá álíka mikió á^menn eins pg moSVólgt limónaði. Mr. Ford myndi ekki einungis færa niSur toll- inn á vissum bíltegundum; hann myndi afmá alla tolla. Hann myndi koma á frjálsri verzlun, af- dráttjar- og takmarkalaust. Hann framieiðir bíla hér í Canada og álítur tollinn vera trafala og heimskulega. ráöstöfun. Það datt ofan yfir marga af sumu því, sem Mr. Ford drap á, þegar hann kom heim aftur á miðvikudaginn úr eftirfitsferð til hinnar miklu canadisku bílasmiðju sinnjr. I kvöld gerði hann nánar grein fyrir skoðunum sínum; játaði að hann væri sannfærður, um, að iðnaðurinn ykist við tollfrelsi; færði rök fyrir því, sem hann sýndi að ætti við Fordbíla-smíðið i Canada.. Hann lét í ljós skoðanir, sem koma öllum Canadamönnum við, o^ ættu að hughreysta þá, sem sé, að mögulegt sé að framleiða eins ódýrt í Canada ejns og í Bandaríkjunum; að Ford- bílarnir í Canada hafi verið seldir hærra verði en nauðsynlegt var, sökum tollsins; að tollar séu hvöt til framtaksleysis í iðnaði, og miði verðið við það sem hægt sé að fá mest, en ekki fram- leiðslukostnaðinn; að Forch-félagið í Canada, og sennilega aðra.r bilaverksmiðjur, muni nii sökum tolllækkunarinnar færast í atikana, að starfsþrelyi og sparsemi. Samhliða umræðunum um tollinn, lýsti hann í stórum dráttum iðna.ðinum, eins og hapn myndi verða að tuttugu árum liðnum. Þá yrðu að verki feiknaöfl í risavöxnum félagsmyndunum, svo að stórfélög nútimans yrðu þar sem ‘‘lúsa- mulningur’’ í ámu. Eg skýrði honuni frá erindinu: hvort hann hefði fullyrt að fjríverzlun mynd? heppileg fyrir félag hans í Canada? ‘Hvort hann, aðal-bíliðju- j höldur Canada, féllist á tolllækkunina fyrirhug- uðu? Hvort hann vildi láta í ljós álit sitt þeim til leiðarvísis í Canada, er nú stæðu forviða? “Þið erttð rétt að vákna,” svaraði Mr. Ford. “Þið ættuð nú að nudda stýrurnar úr hinu aug- anu lika, og þurka út tollinn.” “Myndi félag yðar í Canada græða. á því?’’ “Auðvitað. Tollurinn hindrar öll viðskifti. Eg vil fríverzlun. Eg trúi á fríverzlun alstað- ar.” “Haldið þér að þér getið framleitt Ford-bíl jafnódýrt í Ca.nada og héi’?” “Auðvitað. Fáið þér mér smiðjuna í Ford City í hendur, og eg skal keppa við smiðjuna hérna í Highland Park hvenær sem er. Þvi ekki það? Canadiska verið getur keypt eins ó- dýrt eins og við hérna. Við smiðum alla vagn- partana í canadisku smiðjunni, og 95, eða að minsta kosti 85 af hundraði af hrávörunni er einmitt framleitt í Canada. Við fáum stál frá Algoma, timhur og alt sem við þurfum.’’ “Vanasvarið er,” sagði eg^ “að /nunurinn sé falinn i framleiðslumagninu. Margir canadiskir framleiðendur halda að þeir geti ekki kept við ameriska framleiðendur, af því að þeim sé hag- ur í stórframleiðslunni.” "Það skil eg ekki,” sagðiOVIr. Ford. “Hvað kallið þér stórframleiðslu? Eg held að við höf- um stórframleiðslu i . canadiska smíðaverinu okkar. Þeir smíða þar sex hundruð híla á dag.” “Hvað marga smíðið þið hérna?” “Ö, eitthváð á milli sjö og átta þúsund á dag, en eg hvgg ekki að það sé neinn gróði, þegar komið er yfir vist mark.” ‘‘Figið þér við að framleiðslumagnið dragi ekki úr kostnaðinum, þegar það hefir náð vissu marki ?’’ "Já,” sagði Mr. Ford; og hann skýrði það, að framleiðslukostnaðurinn skifiist hér um bil jafnt niður á hrávöruna og á vinnuna. Ford- félagið í Canada stendur engu síður að vígi en bílsmiðjurnar í Bandarikjunum í þessum efn- um,” sagði hann. “Meira ag segja,’’ bætti hann við; “þið hafið betri verkamenn Canada, en við hér, greindari, röskari. Mér geðjast að andlitunum á þeim.' Þeir eru engil-saxneskir að mestu.” “Ef það er þá satt,” sagði eg, “að hægt er að smíða. Ford-bílinn eins ódýrt hér eins og í Bandaríkjunum, hvers vegna höfum við þá alt “Gamla sagan,” sagði Mr. Ford og ypti öxl- um. “Eingöngu af því að þeir hafa getað selt við þessu verði.” “Af því að þeir hafa getað haldið þessu verði i skjóli tollgarðsíns ?” • "Já, auðvitað hafa, þeir selj við hærra ver.ði í Canada, fyrst þeir hafa getað fengið það.” “Það liggur í augum uppi, að kaupandinn hagnast af tolllækkuninni, sem leiðir af sér lægra verð,” sagði eg. “En þér segið að fj-amleiSand- inn hagnist líka. af því. Getið þér gert ljósa grein fyrir því ?” “Vitanlega,” sagði Mr.' Ford, hálfhissa. “Það er ofur einfalt. Þegar verð lækkar, fjölga kaup- eixlur; við fjölgun kaupenda auk.ast viðskiftin; á auknum viðskiftum þrífst framleiðandinn. Eg vildi afnema tollinn,” endurtók hann, “og korna á fríverzlun. Fríverzlun leiðir af sér heilbrigt viðskiftalíf. Eg get fullvissað yður um það, að þessum náungum i canadiska verinu okkar, eykst nú ásmegin við framleiðsluna. Þeir verða að gera það, smiðjan tekur endurbótum, skipulagið verður betra. Það er enn ein ástæðan til þess að framleiðandinn megi fagna.” “Þér haldið þá,” spurði eg, “að til þess að hjálp.a. framleiðandanum, þá þurfi fyrst að hjálpa neytandanum; að hagnaður neytandans sé hagnaður framleiðandans?” Svar Mr. Ford va.r stutt og laggott: “Mér er enginn annar vegur kunnur.” “Sumir trúa því gagnstæða,” sagði eg. “Þeir sega að tolllækkunin muni ríða canadiskum iðnaði að fullu; hún muni leiða af sér atvinnú- leysi og launatap, og með því eyðileggja kaup- getu neytandans; að fyrst verði að hjálpa fram- leiðandanum, svo mögulegt sé að hjálpa neyt- andanum.” “Tóm vitleysa,” svaraði Mr. Ford. Það er nú svo með Mr. Ford, að hann er eTtki óskeikull fremur en aðrir menn, og þótt enginn efi sé á því, að hugmynd hans um fríverzlun sé hárrétt, með skyn- samiegu skipulagi í veröldinni, þá getur orkað tvímælis, hvort heppilegt væri að öllu fyrir Canada, með því fyrirkomulagi, sem nú ræður með öðrum þjóðum, að rífa niður tollgarðinn að grunni. Um hitt geta skoðanir ekki skipst, að hafi nokkur maður í veröldinni vit á bíl- smiðjurekstri og iðnrekstri yfirleitt, hverju nafni sem nefnist, þá er Hienry Ford maðurinn. Líf hans ait, reynsla og afrek eru sönnunargögn hans, sem stand ast ailar gagnstæðar staðhæfingar. Mteð þau sönnunargögn að baki, vega orð hans ; meira en allar hjartnæmar mótbárur og tilfinningamál þeirra, er öðruvísi tala um þetta atriði, hvort sem þar ræður ósín- gjörn þröngsýni aðeins, flokkspólitík eða í ábatavon útlendra auðhringa. Sáðmaðurinn Luther Burbank. Rœða flutt í Sambandskirkju, sunnudaginn.... 2. maí, af séra Rögnv. Péiurssyni. Kæru vinir: — Það hefir oft veriS sýnt frani á það, a.S Jesús hafi dregið flestar dæmisögur sínar og líkingar, af atburSum, sem eru að ger- ast úti í náttúrunni, eða þá af hversdagslífinu, eins og því var fariS á hans dögum. Fáar eða engar líkingar sótti hann til rita eSa munnmæla þjóðarinnar, eða til .laga.fyrirmælanna, sem oft mun þó hafa verið vitnað til á þeim tímuni. Náttúran og mannlífið eru þær tvær heimildir, sem hann kynnir sér bezt og notar oftast. MeS þessu losar hann kenningu sína. við hina óeðli- Tegu bókstafsánauð, sem einkendi samtíð hans. Dæmin tekur hann af virkileikanum, en ekki af einhverju, sem ímyndanin ein hefir skapaS. Og þó áheyrendur hans hafi að líkindum ekki verið röknæmir, fuftdu þeir muninn mikla, mill- um hans og Fariseanna. “Hann kendi eins og sá sem vald hefir, en ekki eins og Farisearnir eSa hinir skriftlærSu.” Það er í sannleika furðulegt vaíd, sem raun- v^ruleikinn hefir, þegar þaS lánast að leiða hann í ljós. Þær athuganir, sem á honurn eru bygðar, verða ekki hraktar. Fáir eru svo gerSir aS þeim geti blandast hugur um þau sannindi, sem hann sýnir; en oft er þaS, að menn eru blindir fyrir þeim, unz einhver verður( til þess að leiða þau í Ijós. 'Allir hljóta. að ganga úr skugga um þaS, að hvað svo sem hugurinn smíð- ar, eða hvað svo sem hann kýs, þá hlýtur það eitt að hafa framgang, sem lifinu er áskapað og fyrirhúiS. Lögmál lífsins er öllu æðst og hið eina, sem úrslitunum ræður, hvort sem þaS líkar betur eSa ver. FánýtiS mesta er aS sýna nokkurt andóf gegn því. Flestar dæmisögurnar eru dregnar af gróðri eða sprettu jarðar. ÞaS eru sjáanlegtistu og algengustu dæmin; dæmi, sem fyrir allra augum eru. I þeim er falinn sjálfur leyndardómur lifsins, og þann leyndardóm útskýra þau betur en margbrotið trúfræðiskerfi. Um samverkið, sem menrtirnir eiga við nátt- úruna verður honum tiðræddast. Hann víkur aS því aftur og aftur. Þeir g.a.nga út á akur- inn að sá, þeir grafa með rótum trjánna til þess aS þau skuli bera ávöxt. Þeir gróðursetja, þeir vinna í víngarSinum, — og aS loknu starfi þeirra taka\iin ósýnilegu öfl við, og fullkomna verkiS, sem í öllu er ófullkomiS og eigi nema byrjunin, eins og þeir verða viS það að skilja.. Þrátt fyrir það er þó eins og honúm þýki einna mest ti! þessa.ra verka koma, ef ráða má af því hvernig hann notar þau sem dæmi og hve oft hann víkur að þeim. Hann minnist sjaidan á önnur störf. I tveimur dæmisögum víkur hann að kaupska.p: niaSurinn sem seldi eigur sínar og keypti perluna, og herrann, sem seldi þjónum sín um pundin í hendur og heimtaði að þeir ávöxt- uðu þau. AS öðrum iSnum víkur hann ekki. AstæSan fyrir því er sú, að honum finst i þessi sérstaka iðn sta.nda í beinustu samhandi viS líf- ið sjálft. Þeir sem eru að vinna aS ræktun og gróðri, eru samverkamenn FöSursins. GuS er altaf að rækta og gróðursetja,, að vekja hugsanir og að fjölga stráunum, rýma til í heiminum svo að þau fái þroskast, vaxiS og lifa.S, færa út, auka, lífiS á jörSinni. Hvarvetna er akur og vín- garður, og verkamennirnir, hinir sönnu og réttu, eru þeir, sem hlúa að hinum grænu trjánum, höggva upp hin visnu, vanda til þess áem þeir vinna, mögla ekki yfir því þótt allir séu gerðir jafnir þegar dagsverkinu er lokiS, heldtir láta sér ant um að uppskeran ýerði sem mest og bezt. SáSmaSurinn er afl framfaranna, sá sem leysir úr læðingi hinn hulda kraft, er megnar að breyta eyðimörku í aldingarð. Um- hverfis oss alstaðar er þetta hulda. afl, sem bíSur þess aS hafist sé verks; svo tekur það við og fullkomnar verkið. Og ekkert sýnir betur og sannar, ekki eingöngu skyldleika, heldur sam- eiginleika þess líkamlega. sýnilega og hins ósýni- lega andlega, en að á sama hitt ogakornið grær, sem varpað er í jörðina, svo grær og hugsunin, sem varpað er út til samtíSa.rinnar; afliií, sem þroskar mustarðskorniS, svo þ^S verður mest allra jurta, þroskar hverja frjófga hugsun, sem fram kemur í mannheimi. Þetta. er Jesú sjálfum ljóst, og þess vegna velur hann dæmisögurnar allar úr þessum flokki, *um vöxt og viðgang guðsríkis. Fn aldrei hefir það verið öllum þorra manna fjafnljóst og einmitt nú, eSa. síðan að menn uppgötvuðu starfsaðferS náttúrunna’% komust til þekkingar á því, sem síðan hefir verið nefnt breytiþróunarlögmálið. Hinn sami kraftur, sem ávaxta.r óg umbreytir. hugsana- heiniinum, ávaxtar og hreytir efnisheiminum, gefur líf og þroska því sem er til nytsemdar, til fegurðarauka, til farsældar, ef maðurinn aSeins leggur sitt til. Ef þaS er sa.tt, sem hinir fórnu trúfræðingar sögðu, að heilagur andi upp- lýsi oss og haldi oss við hina sönnu trú, — það er að segja, upplýsi og þroski hugsanir mann- legs anda.,;— þá er það engu síður Satt, að hann upplýsir og heldur hverri urt við sína tegund og ávaxtar- hána. ÞaS er þvi eigi fjarri sanni, það sem Þórhallur biskup sagði eitt sirm; “ÞaS er furðu gott guSsorð að gena jörðinni til góða”. ÞaS er að minsta kosti þaS orðiS, er bezt skilst, orSiS, sem orkar dásam- legustu kraftaverkunum, breytir stein um í brauS, og lætur engan synjandi frá sér fara. “HungraSur var eg og þér gáfuð mér aS eta, þyrstur var eg og þér gáfuð mér aS drekka, ge^t- ur var eg og þér hýstiið mig, nak- inn var og þér klædduS mig,” telur Jesú æSstan vott guSIegs hugaríars, höfuSinntak kenninga sinna fært til verka. Þetta þykir nú nokkuS jarS- arlegt, efnishyggjulegt. En vesalingí maSur, af jörðu ertu koniinn, og hvern þrengir til sínnar þurftar, og sú blessun guðs hefir eigi veriS talin sízt, er “seður mannleg hjörtu með fæfiu og fögnuSi” og kennir þeim að leita lífsþarfanna, og skilja starfs- aðferSir og bjargarútvegi lífsins. Einhver hefir sagt: “Sá sem lætur tvö strá vaxa þar sem eitt áSur, er welgerðamaður m.a.nnkynsins”. — Fagnaðarboðskapur há.ns er skráður lifandi orSi. Hann er björgunarmaS- ur í hallærunum. Hann klæðir hæS- irnár og þekur upplöndin grænum gróðrí. Hann e'r sumarblær þjóðlífs ins, er anda.r á jörðina svo hún grær, svo hin myrka mold teknr á sig mynd blórna og urta, korngresis og aldin- trjáa, og ljómar fegurra en ljósið, sem á hana skín utan úr örfirð him- inhvolfsips. Þá byrjar menningin, þegar tómstund fer að gefast frá fæðuöfluninni; þaö er fæSingardagur mannsandans. Og þroskastig hans, eitt af öSru, fara eftir því, hve hægir baráttunni fyrir lífinu. - Hug- urinn hefur sig ekki hátt til flugs, fegurfiardraumarnir verða fáir, hönd in laSast ekki til lista, andinn vermir sig ekki í glaðskni æfintýranna, meS- an daglengdin gengur í aS a.fla einn- ar saSningar og hungurvofan hangir við hellisdyrnar. Menningin byrjar fyrst á þeim stöSvum, þar sem mönn- um lærðist aS tenija jurtirnar sér til bj.argar, og garSyrkjumanninum að grafa meS rótum trjánna, — þar sem sáSmáfiTirmn fór út á akurinn að sá. Finhver mesti fræðimaSur þessarar álfu, Herbert J. Spinden, vörður þjóSm/njasafnsins mikla viS Har- va.rd háskólann, segir aS þýðingar- mesta sporið, en að sama skapi erfið- asta í allri framfarasögu mannkyns- ins, hafi verið það, er mennirnir komust upp á að temja jurtir sér til framfæris. ÞaS er lokabaráttan Eftir það er sigurinn vís.. Sú bar- átta stóS fram í þeirri fornöld, að af henni fara engar sögur; þær eru all- ar ‘gleymdar. En fáar voru þær teg- undir, er fyrst voru tamdar, og ekki fer þeirri list að fleygja fram, fyr en nú undir hið síðasta, og þá eftir að menn lærðu að nota aðferð nátt- urunnar sjalfrar, fóru að þekkja inn á lífið í kringum sig, eftir að breyti- þróunarkenningin og hinar vísinda- legu rannsóknir komu til sög- unnar. Lengi er því baráttan æg. Og mæðuþrunginn þunglyndisblær hvílir vfir tilhugsuninni um lífið. Allir kannast við orSin í frásögninni um brottreksturinn úr Paradís í fyrstu Mósesbókinni: Og þá sagSi hann tíl mannsins: JörSin sé bölvuS fyrir þína skuld, meS mæðu skaltu þig af henni næra alla þína lífdaga; þyrna og þistla skal hún þér bera og þú skalt jarðarinnar júrtir eta; í sveita þins andlitis skaltu þins hrauðs neyta., þangað til þú hverfur aftur til jarð- arinnar; því að þú ert mold og til moldar skaltu aftur hverfa.” ViS | byrjun 5. aJdarinnar fyrir tímatal | vort, er tilhugsunin fyrir lífinu þessi, j — því þá var bók þessi saman tek- | in — sannarlega döpur og drunga- leg tilhugsun, hergmál þeirra erfiS- | leika, þeirrar eldraunar, er fyrir öll- ; um lá,_, sem afla þurftu da.glegs hraufis. "JörSin sé böIvuS fyrir þína { skuld. Þyrna og þistla skal hún þér hera; með mæðu skaltu þig af heiíiii j næra alla þína lifda.ga”. T meir en j 2000 ár mun skoðun manna eigi hafa i breyzt niikið frá þessu. Reynslan I mun tíSast hafa orðið hin sama. — j Hvílíkuni drung.a varpaði það ekki i vfir lífið? JörSin er bölvuS, sökum j þess að hún er hústaður mannanna. MeS eymd og mæðu hlýtur hann að j draga fram á henni sitt vesæla líf,- j unz 'hann hnígur henni í skaut. Getum vér þugsað oss stærri fa.gn- I aðarboðskap, studdan óyggjandi tákn um og stórmerkjum, en þann, er gengur í beina mótsögn við álit þetta, j er gersamlega ósannar það ?. Gátu i nokkur gleSitíðindi átt fremr.a, erindi til mannanna en þaú, er þokunni DODD’S nýrnapiUur eru bezta nýrnameðalið. Lækna og gigt, bakverki^ hjartabilun, þvag- teppu, og önnur »veikindi, sem stafa frá nýrunum. — Dodd’s Kidney Pills kosta 50c askjan, eða 6 öskjur fyrir $2.50, og fást hjá öllum lyfsögum, eða frá The Dodds Medicine Co., Ltd. Toronto, Ontario. lyfta af fjallatindunum og vonleysis— byrSinni af andanum? Er unt að hugsa sér nokkra eymd fávizku og vonleysis meiri en þá, að loka eyrum fyrir þvílikum boðskap, og varna því að æðri hugmynd um guS náJ að festa rætur í huganum, en óskepi það, að h.ann hafi formælt veröld þessari, þar sem börnin hans eru knúS til aS lifa og deyja, af þvá að hann hafi orðið missáttur viS þau ? a.sti, og sá er viSkemur öllum héinnr Fegursti hoðskapurinn ag gleSileg- er sá að jörSin beri hvorki þyrna eða þistla til launa jnannlegu erfiSi, held ur björg og blessun, ef mennirnir læra að yrkja hana rétt. Engin jurt’ er þar látin vax,a. mannmum til óbless unar, heldur blessunar. MeSal jurt- anna er að finna bót og lækningu flestra mannlegra meina, og þegar þekkingunni er nógu langt komið, þá eru líkindi til, aS þar finnist bót allra meinanna, jafnmörg og marg- föld sem þau eru. Eins og lífið er ein heild, srtmfeld og sjálfstæS, svo bætir það hvað annað upp, seöur, líknar og græðir. Nú á síSari tíS hefir orSiS stór- breyting frá því setn áður var, um flest sem a'ð mannlegri líðan lýtur. En mesta og farsælasta hreytingin er þó fólgin í því, að nú koma ekki hall- æri *í líking eSa á sama hátt og áður fyrri á öldum, er fólk stráféll, svo að heilum héruSum eyddi, og varð- aði á stundum landauSn. Annálar fyrri ára geta um þau; þá er vana- legast skýrt frá því um leiS, að veður hafi verið hörS og vetrar næst- um náð saman. — Hvernig stendur á þessari breytingú? SumstaSar sér maður það skýrt meS því, aS veður séu aS verða mildari, veðrátta.n «é a'S breytast. En sú skýring er á engu hygð nema ímyndun manna einni. —- VeSur hafa ekki breyzt. TíSarfaf er með sama hætti og verið hefir; gróðri jarða.r er farið eins. ÞaS er öSru ,aS þakka en því, aS nokkur hreyting háfi orSið/á lögum náttúr- unnar. ÞaS er því að þakka, aS sáð- maSur hefir haklið áfram aS fara út á akurinn að sá, en hvort sem hann hefir haft nóga jörð eða rýra, hefir hann fengiS hana til að bera ávöxt. t ÞaS er því að þakka, ’aS verkamaSurinn í víngarSinum hefir betur og betur kynst starfsaSfer'Sum sjálfrar náttúrunnar, og lært að hagá verkum sínum í safhrænii við þær. En einmitt fyrir þann lærdóm, og að honum hefir a.uSnast að temja fleiri jurtir og þroska þær, “er hún nú blíðari, móSir vor, jörS, og blessuð af hömunum öllúm”. Aldrei, frá þv^f aö maSurinn var rekinn úr Paradrí, hefir jörSin verið blíðari, eða látið hetur >iS verkuni hans. MannkyniS er líklega vel tvöfaJt fleira en þaS var, þegar jörSin gat ekki fætt það alt, eftir því sem menn áliju, og það féll í stórhópum. Og þaS má vel tvöfaldast enn, og samt er ölht JjorgiS eins og nú, er, án þess aö framleiSsl.au vaxi aS mun. , Þetta er sáSnjönritinum aS þakka, eins og flestar aSrar framfarír, verk- inu því, guSsþjónustunni að' gera jörðinni til góða. Og meðal sáð- m.a.nnanna hefir enginn staSiS nokk- uru sinni framar en maSur einn, sem nú er nýlátinn. Ma'ður þessi er nátt- úrufræðingurinn mikli Luthcr Bur- bank. Um hann hafa staðiS allmarg ar ritgerðir í blöðum og tímaritum víðsvegar um heim, fyrst í sa.mbandi við trúaryfirlýsingar hans, er hann gerði fyrir fáum mánuSum síðan, eða skömmu fyrir andlátið, og svo út I

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.