Heimskringla - 25.01.1928, Síða 4
4. BLAÐSlÐA
HBIMSKRIN O L A
Heítnsktringla
(StofnuV 188«)
Krnar «t » harcrjam ml«»lkude«rt.
EIGI3NDUR:
VIKING PRESS, LTD.
853 OK 855 SARGENT AVE . WINNIPEG
TALSIMIl 80 537
VorH blaHalns «r »3.00 á.rKan*urlnn bor*-
lst fyrlrfram. Allar borganlr sendlat
THE VIKING PHESS LTD.
8IGEÚS HALLDÓRS fré Höfnum
Ritstjórl.
UtanAakrltt tll blatíalnai
THB VIKING PltESS, I,til.. Bol 8105
Utan Aakrlft tll rltntJAramal
EDITOR HBIMSKRINGLA, Boa 3105
WINNIPEG, MAN.
"Helmskrlngla Is publisbed by
The VlklnK Preiis Utd.
and prlnted by _
CITY PRINTING A PUBl.lSHING CO.
853-855 SarKent A ve.. WlnnlpeB, Mnn.
Telephone* .86 M 7
WINNIPEG, MAN., 25. JANÚAR 1928.
“The Big Parade”,
Meðal annara kvikmynda, sem sýndar
eru hér í bænum þessa dagana, er “The
Big Parade”. Og hún er vitanlega ein af
þessum vikulegu “greatest pictures ever
made”. En hún er töluvert meira. Af
einhverju handa hófi, liggur manni við að
segja, hefir þetta orðið góð mynd.
Fyrst og fremst er vel leikið. John
Gilbert leikur stærsta karlmannshlut-
verkið af þremur, vel og geðuglega. Karl
Dane leikur ágætlega. Og kvenhetjunni
er vel borgið fyrir augum áhorfenda með
leik Renee Adoree.
En það er meira um þessa mynd, en
að hún sé vel leikin. Það er vel frá' henni
gengið yfirleitt, svo að hún er ein með
allra beztu myndum amerískum, sem hér
hafa verið sýndar nýlega, þótt Drottinn
viti, að með því sé í sjálfu sér harla lítið
hól um myndina sagt. En henni er svo
Vel stillt í hóf, að maður finnur ósjálf-
rátt að hún er sönn. Hún kemur víðar
við en hér verði talið. En meginþáttur
inn snýst um eldskím Bandaríkjamanna
í ófriðnum mikla. Og hann er afbragð.
Enda mun höfundurinnt Laurence Stalling
er sjálfur tók þátt í ófriðnum, hafa feng
ið töluverðu að ráða um myndatökuna.
Maður lifir með þeim, þessum strákum:
manninum, sem borinn er til stóriðju-
hægindanna og miljónanna; hinum tröll.
aukna danska “immígranta”, himinskefla
smiðnum ófágaða en glaða og góða, sí-
spýtandi í markið; ölslöngvaranum írska,
frá kjallaralindum þokuiýðsins í New
York. Tekur þátt í græskulausu gamni
þeirra, gantaskap við blómlegar bænda-
drósir franskar, og áhyggjuleysinu í bið-
vistinni á undan fyrstu atlögunni; fylgist
með þeim í eldskírnina, eftir breiðum
þjóðvegum inn í sumarskóginn, þar sem
dauðinn bíður á bak við annaðhvert tré,
innan um laufgrænku og gróðurangan;
heldur hikandi með þeim í á/ttina lengra
og lengra, inn þangað sem stórskotahríð-
in er farin að ná sér, inn á milli reittra
og kurlaðra stofna, er standa upp úr jarð-
veginum, eins og afstrípaðir kjúklingar
hefðu stirðnað þarna í afkárelgustu stell
ingum; kemst hálflamaður með þeim í
rökkurbyrjun, inn á gróðurlausa eyðimörk
ina kastar sér þar yfirkominn í fyrstu
sprengikúluholuna, svo skamt frá fjand-
mönnunum, að hvítmatar í augum á þeim,
ef nokkur þyrði að reka upp höfuðið, og’
bíður þar morguns og nýrrar atlögu,
grænn og gugginn, í beig og kvíða, og
þó í hetjumóði, sem bítur á jaxlinn með-
an allir felliþyijir dauða og helvítis um-
hverfa jarðveginum og þyrla moldrok-
inu og stálélinu um höfuð manns.
Hún er sönn, þessi mynd. Og hún er
ekki gerð af hatri til nokkurra sérstakra
manna. Þjóðverjarnir eru sýndir í
mennsku líki, en ekki eins og vanalega
hefir tíðkast í ófriðarmyndum hér: þrútn
ir af fólsku, ljós- og bursthærðir, galt-
vembdir og gríseygðir, renna ekki eins og
raggeitur, hvað sem á bjátar, eða kvaka
lafhræddir “Kamerad” knjáli’ðadofnir af
bleyðiskap. Þeir eru rétt eins og hinir,
ófríðir og fríðir, litlir og stórir; menn sem
eru að berjast fyrir föðurlaod sitt, rétt
eins og hinir, knúðir sömu hvötum, ’sömu
fórnfýsi; eini munurinn sá, að örvænting-
in er þeirra megin.
* * *
Myndin er gerð í þeim anda, er stjórn-
ast af holiri og heilbrigðri skynsemi. Hún
hefir flest skilyrði til þess, að hennar megi
njóta, bæði frá listrænu sjónarmiði, og
fyrir þann boðskap er hún flytur. |
En hún fékk ekki að njóta sín hér. Sáj
andi, sem mest bar á í leikhúsinu, átti
ekke’rt skylt við þann anda, sem verið
hafði að verki við myndagerðina, og
skildi ekki, eða vildi ekki skilja þann boð-
skap, sem myndin og höfundur hennar
vildi flytja.
Þessi andi er gamalkunnugur þeim, er
sótt hafa hernaðarmyndasýningar hér
áður. Hann kemur þá greinilega fram
hjá börnum og þeim óneitanlega mörgu
fullorðnu, er aldrei verða mikið annað en
ibörn, nema að líkamsvexti. Vanalega
kemur hann þó svo fyrir sjónir, að hann
viröist meinlausari en hvað hann er há-
vær, að minnsta kosti í smærri leifehús-
unum. En hér gafst tækifæri til þess að
hann fengi að sýna sig í allri sinni dýrð;
hve djúpgengar og sterkar eru rætur hans
í sájlarlífi kynslóðarinnar, sem nú er að
vaxa upp eftir blóðbaðið.
í myndinni er það sýnt, að fýrstu nótt-
ina, sem þeir dvelja á vígvellinum, fer
Daninn stóri, félagi Gilberts, úr holunni,
sem þeir félagar hafast við í, til þess að
drepa tvo Þjóðverja, er gera usla meðal
Bandaríkjamanna með holkúlubyssu. Hon
um heppnast áformið, en Þjóðverji, sem
er með vélbyssu í annari holu skammt frá,
særir hann til dauðs, er hann hverfur til
baka. Gilbert fer að lokum að reyna að
bjarga honum og hefna fyrir hann, en
fellur óvígur fyrir vélbyssukúlu, er hitt-
ir hann í knéð. Þjóðverjinn kemur upp
úr holu sinni og gengur í áttina til hans,
en Gilbert skýtur hann í brjóstið og dauð-
særir hann. Og þá er Gilbert svo þrung-
inn af hefndaræði, að hann dregur byssu-
stinginn úr slíðrum, og mjakar sér í átt-
ina til hans, til þess að rista hinn dauð-
særða fjandmann sinn á háls. — — í
hvert skifti sem Þjóðverji var drepinn,
gullu við fagnaðaróp og lófaklapp um allt
leikhúsið. Það er svo alvanalegt hér, að
enginn kippir sér upp við. En þegar þetta
áform Gilberts varð sýnilegt, þá tók út yf-
ir fagnaðarópin. Sú tilhlökkun að fá
að sjá þenna djöfuls Húna skorinn á háls!
Þjóðverjinn mjakar sér undan með hel-
sjúku augnaráði. Gilbert á eftir, og geng
ur hraðar. Ný fagnaðarbylgja! Þjóð-
verjinn veltir sér ofan í tóma holu. Gil-
bert á eftir. Fagnaðarlætin vaxa. Nú
kemst Þjóðverjinn ekki lengur undan.
Hann snýr við höfðinu og lítur á fjand-
mann sinn, eins og hundelt og dauðsættt
dýr. Hann er barnungur, ljóshærður, fríð
ur og góðmannlegur. En Giibert er æðiS-
genginn af taugaæsingi, harmi og hefni-
girni. Hann keyrir byssustinginn á
kverkarnar á fjandmanni sínum, sem þeg
ar er í andarslitrunum.....
Og nú komast fagnaðarlætin í al-
gleyming. Það er eins og þakið ætli af
húsinu. Svolitla stund. Svo slær öllu
í skyndilegt dúnalogn, líkt og þegar upp.
áhalds knattsleiksmaður missir marks á
leikvelli. Þótt ekki heyrðist, þá fannst
sem sár vonbrigðisstuna liði yfir húsið.
Og var það líka að undra? Gilbert
kverkskar nefnilega ekki Þjóðverjann,
þegar til kom.
Hann hefir ekki skap í sér til þess, þeg
ar hann lítur í hálfbrostin augu mót-
stöðumanns síns. Þá kastar hann frá sér
byssustingnum með önugum leiða. Hann
reynir meira að segja að koma upp í hann
vindlingi. Þótt enn sé í honum gustur
við þenna mann, er drap bezta félaga
hans, þá ann hann honum þó einu fró-
unarinnar, sem honum getur hugkvæmst
þarna síðustu augnablikin. — En þá
klappaði heldur enginn Iof í lófa.
* íf *
Menn vissu, að þeir voru að kaupa sér
aðgang að myndinni “The Big Parade”.
En þeir vissu ekki, að þeir fengju í kaup-
bæti aðgang að enn meiri “parade”, þar
sem var til sýnis, í allri sinni hörmulegu
og viðbjóðslegu nekt, lélegasti afspring-
ur þjóðernísliaturs og fáfróðrar sjálfs-
elsku. En annars væri fróðlegt að vita,
live margir viðstaddir muni hafa gert sér
grein fyrir því, jafnvel þeir, er eigi tóku
þátt í fagnaðarlátunum.
Þetta voru börn, segja menn. Já, að
visu, þótt sum væru fullorðin. En hvar er
sakar að leita, nema hjá þeim, sem
þroskaðri eiga að vera?
Vér hneykslumst á nauta-ati yfir á
Spáni. Vér hugsum með skelfingu og við-
bljóði til þeirra tíma, er Rómverjar öttu
saman skilmingamönnum, og Colosseum
glumdi við af fagnaðarlátum skrílsins, er
hann sá þræla og kristna menn tætta
sundur af villidýrum, unz sleipt varð í
sandinum af blóði. Oss er kennt að gera
þakkir fyrir að vera vaxnir frá slíkri villi-
mennsku. En hneykslast nokkur á þeirri
saklausu gleði, er börn vorrar eigin kyn-
slóðar hafa af því, að sjá “sinn mann”
skera dauðsærðan fjandmann sinn á
háHs?
Hvað segja þeir, sem tekið hafa að sér
uppeldi æskulýðsins? Hvílík “parade”
fyrir foreldrana á sínu eigin starfi, á
starfi barnaskólakennaranna! Hvílíkur á-
vöxtur af sunnudagaskólastarfsemi prest
anna! En hve margir þeirra gengu ekki
líka herguðnum á vald síðast, er færi
gafst.
Og hvað myndu stórblöðin segja, sem
mynda almenningsálitið?
Líklega ekkert, því allt slíkt er þægi-
legast að þegja fram af sér. Nema þá ef
það kraftaverk skeði, að eitthvert þeirra
yrði svo hreinskilið að segja upphátt, að
svo skuli sláturfé ala til ófriðarins næsta.
Mr. Hannesson svarar.
Eins og skiljanlegt er, hefir Mr. H. M.
Hannesson hersir, frá Selkirk, ekki viljað
láta óátalaða fólskugreinina, er birtist á
ritstjómarsíðu “Tribune” um daginn, út
af ummælum hans í “Empire Club”. Birt-
ist svar frá honum til ritstjóra blaösins í
Tribune á laugardaginn. Þykir oss rétt
að birta það vegna þess, að Mr. Hannes-
son mun standa fremstur í sínum flokki
meðal yngri manna af íslenzku bergi
brotnum, og þá ekki síður fyrir það, að
hann hefir þegar setið á sambandsþingi
í Ottawa, og er líklegur til að ná kosn-
ingu þangað aftur, nái flokkur hans
meirihluta í kjördæmi hans eða fylkinu.
* * ¥
Mr. Hannesson getur þess, að hann
grípi ekki til andsvara af þrætugirni,
heldur sökum þess, að með því að grípa
úr samihengi ummæli, er hann hafi látið
sér um munn fara, þá hafi þeim verið snú-
ið á þann veg í ritstjórnargreininni, að af-
staða sín sjáist frá mjög óheppilegu,
ef ekki algerlega rangsnúnu sjónarmiði,
og finnist sér því ástæða til að draga af
allan efa um þetta efni. Muni óhætt að
fullyrða, að enginn viðstaddur muni á-
saka sig fyrir það að hafa gerst talsmað-
ur þjóðernislegs hégómaflingurs, frem.
ur en áþreifanlegs og haldgóðs veruleika,
og sé enda óhugsandi, að fréttaritari
blaðsins hafi gengið af fundinum í þeirri
trú.
Síðan skýrir Mr. Hannesson efni ræðu
sinnar á þessa leið:
“Umræðurnar í klúbbnum snerust
eingöngu um það, hvort ráðlegt mætti
teljast, eða ekki, að fá séreinkjenndan
þjóðfána. Ábyrgi Canada gagnvart al-
rkissambandinu er allt annað mál og
mikilvægara, og slcoðanir mínar um það
eru mjög ákveðnar. Að vísu ef til vill
ekki nægilega strangtrúaðar fyrir ein-
staka ónefnda æðstupresta, en áreiðan-
lega ekki í áberandi andstöðu við þær
skoðanir, er oft hefir verið haldið fram í
ritstjórnargreinum yðar eigin blaðs.
Gilding canadisks fána er aðeins eitt at-
riði í margþættu málefni, og eg get skýrt
afstöðu mína í fáum oröum.
Þegar sambandsríkið var stofnað. tók
Canada að sér að sjá um ráðsmennsku
og viðgang norðurhluta Norður-Ameríku
fyrir hönd alríkissambandsins. Jíjóðin, er
gædd var erfikenningum hins brezka
kynflokks; gagnsýrð af virðingu hans fyr-
ir lögum og rétti og áskotnast hafði menn
ing hans, er hafði fremur öllu öðru rutt
heimsmenningunni braut. tók á sínar
herðar og eftirkomendanna skuldbind-
ingar við alríkjasambandið, sem inna
verður af hendi. En Canada, sem hefir
orðið snortið af hinum hressandi eldmóði
æskunnar, og starfsgleðinni, sem kemur
af því að þekkja sinn eigin májtt, finnur
nú til þess stolts og styrks, er ætíð er
þroskameðvitundinni samfara, og hefir
þá einnig kennt áhrifa frá þeirri magn-
an þjóðeristilfinninganna, er hefír sollið
um allan heim eftir ófriðinn og friðar-
samningana í Versailles.
Enda þótt enginn gæti borið Canada-
mönnum á brýn hollustuskort gagnvart
alríkissambandiuu á ófriðarárunum, þá
fundu þeir þó jafnvel þá glöggt til þess,
að þeir væru sérstök eind, þótt þeir væru
einn hluti heild. Aðrir hlutar alríkis-
sambandsins urðu sömu kenndar varir.
Engir aðrir en þeir, sem fela höfuð sitt í
sandi sjálfsánægjunnar, hafa komist hjá
því að reka augun í ýms tákn þjóðernis-
kenndarinnar, hvar Um samveldið sem
var.. Ástralía og Nýja Sjáland létu hana
strax í ]jós, með því að taka sér nýja
þjóðfána. Suður.Afrka hefir fetað í fót-
spor þeirra, og f ritstjórnargrein í blaði
yðar á laugardaginn, var farið lofsamleg
U^.rrðUm Um Þá/ stió™hyggju, er hafi
raðið fánamálinu þar til lykta.
Canada hefir þegar gert ýmsa
samninga við önnur samveldi
og erlend ríki. Stjórnarerind-
rekar eru nú sendir til Banda-
ríkjanna og Frakklands. Dettur
nokkrum manni í hug, að nokk
ur afturkippur komi í það fyr-
irkomulag eftir þetta. Skip,
sem skrásett eru í Canada, sigla
undir eigin merki um þvínær öll
höf. Þetta eru áþreifanlegar
sannanir um það, hvert fram-
þróunin nú er komin. Höfuð-
landið hefir fallist á þetta. og
stjórnmálam,ennirnir þar Ijúka
á lofsorði.
Mergur máls míns er það, að
málum alríkissambandsins sé
bezt borgið með því að styðja
og auka þjóðernistilfinningumi
í samveldunum, í stað þess að
hindra hana, Ifverrar útrásar
sem hún vill leita sér sanngjarn
lega. Fáni, látið þér í veðri
vaka, sé hégómi einber, látúns.
hnappur og flingurverk! Getur
skeð. En menn eru nú svona
gerðir. Mörgum finnst að Can-
ada sé nauðsynlegur fáni með
sérstökum þjóðerniseinkennum
á sendisveitaskrifstofur sínar
og skip, sem veruleikatákn þjóð
heildarinnar. En það skref þarf
á engan hátt að koma í bága við
innbyrðis ábyrgð alríkissam-
bandsins.
Einn af meðlimum alríkis-
sambandsins brezka komst
heppilega að orði, er hann
sagði að nú væri ný öld að
hefjast fyrir því. Dagar föður-
legrar handleiðslu og forræðis
eru nú taldir. Einkenni hinnar
nýju aldar, sem nú er hafin, er
samvinnustarfsemi meðal jafn-
ingja. Þau bönd, er tengja
ifjarskyldar þjóðir ah (kissam.
bandsins, hafa á engan hátt ver
ið veikt, og verða ekki, ef vit
fær að ráða. Hið ósýnilega
band saimeiginlegra erfðaminn
inga, menningar og áhugavið-
leitni er óslítandi, sé það gagn-
sýrt af vinarhug og trausti á
eigin málstað.
Alveg sérstaklega ætti að örva
þjóðernistilfinninguna í Can-
ada og rás hennar. Canada er
berskjaldaðra en nokkurt hinna
samveldanna gagnvart óheppi.
legum áhrifum. Með fjárhags-
legri og iðnaðarlegri innráh,
sem er yfirgripsmeiri en marg-
an grunar; með eignarhaldi á
nokkrum hluta auðsuppsprettu
vorrar; með áhrifum þeim, sem
stafa af tímaritum, bókmentum
I *
fréttastofum, er senda út hóp-
sölugreinir og svonefndar “grín
myndir”; með einkaleyfi sínu á
kvikmyndum, já, einmitt m'eð
sjálfri nærveru sinni og töfra.
magni auðsins, er seiðir æsku-
lýð vorn, beitir hið volduga ná-
grannaland vort, vísvitandi eða
ósjálfrátt, áhrifum á oss, er
miða til þess að vér tileinkum
oss viðhorf þess og menningu,
á kostnað vorrar eigin. Eg stað-
hæfi, að öruggasta skjól vort sé
heilbrigð þjóðernistilfinning; ó-
trauð Canada-vitund, er leitar
sér þeirrar útrásar, er henni
sýnist, og á þann hátt að öll.
um heimi sé auðskilin.
Með þetta í huga lagði eg það
til, að á næsta alríkisfundi
skyldi þessi nýi skilningur á al-
ríkissambandinu endanlega við-
urkenndur með þeirri yfirlýs-
ingu, að Union Jack skuli vera
ímynd alríkissambandsins, sem
slíks; að hann skuli dreginn á'
stöng á öllum stjórnarbygging-
um og á öllum sendisveitarskrif
stofum, er starfi í umboði alrík-
isins eða nokkurs hluta þess,
en innan eigin landamæl*a og
alstaðar þar sem sendisveit fer
með sérstakt umboð einhvers
samveldisins, þá skuli aukafáni
sanna hina raunverulegu sér-
stöðu þess samveldis; að hver
slfkur sérfáni skuli í feldi sín-
um bera greinilega alríkisfán-
ann, Union Jack, og í lionum,
eða feldinum annarstaðar,
greinilega jarteikn samveldisins
sjálfs, enda skuli skip sigla und-
ir samsvarandi merki. Eg óska
ekki að draga úr eindrægninni.
WINNIPEG 25. JAN. 1928-
DODD’S nýmapillur eru bezta>
nýrnameðalið. Lækna og gigt*
bakverki, hjartabilun, þvag-
teppu, og önnur veikindi, 8em
stafa frá nýrunum. — Dodd’s
Kidney Pills kosta 50c askjan-
eða 6 öskjur fyrir $2.50, og fást
hjá öllum lyfsögum, eða fr4
The Dodds Medicine Co., Ltd.
Toronto, Ontario.
en með það, er skeð hefir í
Suður-Afríku í huga, vildi eg
koma í veg fyrir sundurlyndis-
ætsingar.
Með tilliti til þess er þér glós-
ið um ráðleggingar mínar uni
það, í hvern farveg helzt skyldi
beina þjóðernistilfinningunni, þá
leyfist mér máske að segja, að
eg er svo óskammfeilinn að trúa
því, að eg gæti jafnvel komið
fram með ákveðnar tillögur f
því efni líka. En eg mæltti kann
ske bæta þessu við: að á sömu
ritstjórnarsíðunni lýsið þér undr
un yfir því, að hvalurinn skuli
geta haldist við á miklu sjávar-
dýpi án þess að kenna óþæg-
inda af hinum afskaplega þrýsf
ingi; og að eg óttast að eg hafí
þegar við þetta tækifæri dval-
ið of lengi í jafnkvisti við hina
ritstjórnarlegu djúpfærni.”
------------------x----------
Heilbrigði.
(Frh. frá 1. bls.
iS út, og getur brjóstiö oröiö eins
og tunna í laginu. I oörum tilfell-
um ganga geislungarnir út beggj3
megin og laut myndast í brjóstiö.
Andlitið breytist einnig og verður
stundum svo einkennilegt, aö ekki
leynir sér hvaö aö barninu ,gengur.
Munnurinn er oft opinn; útlitiö lýs-
ir deyfð, áhugaleysi og sljóleika.
Meira að segja, skynsamur ungling-
ur getur oröiö heimskulegur í útliti
og framkomu, einumgis af þessum á-
'stæðum. Hann veröur seinn aö
svara spurningum; er nefmæltur og
getur ekki nefnt vissa stafi, t. d. n
og m. Stundum stamar unglingurinn
af þessu. Hann á erfitt með aö
læra eða muna og heyrir illa; getur
eklki fest hugann viö neitt og er
gleyminn. Sama er aö segja, þegar
um vinnu er aö ræöa. Unglingurinn
eirir ekki við ncitt oig er óstööugur
viö allt.
I>ietta hefir einnig áihrif á geðs-
munina. Unglingurinn verður úrill-
ur og geðstirður og hefir allt á horn
um sér. Er hann stundum atyrtur
fyrir heimsku, leti og geðillsku, og
gerir þaö honum líðanina og lífiö
enniþá óhærilegra.
Enginn skyldi ætla aö allir ung-
lingar, er ofvöxt hafa í eitlum, verði-
eins o,g hér er lýst, en svona geta
þeir oröið og svona eru þeir eigi all-
fáir.
Engum skyldi heldur koma til hug-
ar, að öllu hljóti aö vera óhætt, ef
öll þessi einkenni fylgist eikki aö.
Því fer fjarri að svo sé. Unglingur.
inn getur haft ofvöxt í eitlum eöa
sýkta eitla, þótt þaö valdi aöeins
sumu af þessum einkennum, o;g þeim
aðeins á lágu stigi. En fyrir því verð-
ur aö gera sér grein, aö allt þetta
getur komiö smátt og smátt, þótt
Ihægt fari í fyrsu, ef ekki er aö gert
í tæka tíð.
Við ofvexti Qg sýkingu í hálseitlum
er ekkert ráö til annað, sem aö haldi
kemur, en aö taka eitlana burt. Og
hættan við þann uppskurð er mjög
lítil.
Sig. Júl. Jóhannesso'n.
* * *
Síðasti kafli er prentaöur sem X.,
en átti aö vera XI.
Þar er einnig sú prentvilla, að
sojtivatn er prentaö fyrir sáprnatn.
S. J. J.