Heimskringla


Heimskringla - 22.02.1928, Qupperneq 4

Heimskringla - 22.02.1928, Qupperneq 4
4. BLAÐSÍÐA II IMSKRI N 9 Lá WINNIPEG 22. PEBEÚAR 192S Hdtnskringla (SlofnuTI 1886) Kenir tt A hvfrjim mltJTlkadfffi EIGENDUR: VIKING PRESS, LTD. 853 »K 855 SARGBNT AVE . WIINPIIPEG TAI.SIMIl SO 537 V«rV blaCslns er $3.00 &rBangurlnn bor*- lst fyrirfram. Allar borganlr senaiet THE VIKING PREfiS IÆD. SIGPtrS HALLDÓRS frá Höínum Rltstlórl. Vtflnfidkrllt tll blntlfllnii THD VlKING PIIESS, Ltd., Boi 8105 UtanftMkrlft tll rltMtjOranMt EDITOK HEIMSKKINGLA, Dox 3105 WINNIPEG, MAN. “Heimskrlngrla is published by The Vlklnx Preaa Ltd. and prlnted by CITY PRIIfTlNO A PUBLI9HHVG CO. 853-K55 Snrfffnt Ave.. Wlnnlpe*, Man. Telfphonei .86 53 7 ----------------------------------------I ' 11 ............. WINNIPEG, MAN., 22. FEBRÚAR 1928. ÁGÆT HUGVEKJA Fyrverandi ritstjóri Heimskringlu, hr. O. T. Johnson, er nú býr í Minneapolis, sendi Heimskringlu eftirfylgjandi mál til birtingar: AÐ KLÆÐA fSLAND SKÓGI Nú er mikið ritað og rætt um heimför. ina 1930. Fátt hefir á síðari tímum meir vakið athygli vestur-íslenzkrar alþýðu. Og mun óhætt að fullyrða, að augu allra hvíli á Winnipeg — höfuðborg íslenzkrar menningar hérlendis. I>ar á] íslenzka Þjóðræknisfélagið heima, og þaðan er að væmta helztu forystu í þessu máli. Margir hafa þegar látið til sín heyra og mörgum tillögum verið hreyft, með því markmiði að stuðla til þess að gera heimförina sem veglegasta og Vestur.Is- lendingum til ævarandi sæmdar: Sjónleik ur sé saminn, söngflokkur settur á lagg- irnar, hópur glímumanna æfður o.fl. Á bak við allar þessar tiilögur virðist aðal. lega vaka áhugi fyrir því, að Vestur-ís. lendingar fari ekki eingöngu skemtiferð til íslands, heldur fari þeir engu síður þangað til þess að skemta íslandi! Flest mál eiga fleiri hliðar en eina. Það er ekki óhugsandi að til séu menn þeirrar skoðunar, að ofannefndar tölur verði aldrei annað en aukaatriði í sambandi við hina margumræddu heimför til gamla landsins. Af undirbúningi Austur.lslend- inga að dæma, sem þegar er fyrirhugað- ur, þá virðist sem hátíðahaldið eigi ekki að standa yfir lengur en í þrjá daga. Það er ekki langur tími — og um leið og við álttum okkur á þessu, fyrirsjáanlegur ó- mögulegleiki að vanalegur vestur-slenzk ur ræðumaður fái að halda þar “eins.og- hálfs klukkutíma” ræðu, eins og oft tíðk ast hér á “íslendingadögum”. Og hvað verður þá um sjónleikinn mikia, söng- flokkinn stóra, og allt annað hið stór. fenglega, er hinir vestur-íslenzku gestir fluttu með sér í þeim göfuga tilgangi, að efla skemtiskrá þúsund ára hátíðar ís. lands? Enginn má skilja orð mín þannig, að hér sé verið að skjóta loku fyrir það, að vestur-íslenzkir söngmenn fáii að reyna barka sína á íslandi, glímumenn að glíma, leikarar að leika, og svo fram eftir götum. Hugsanlegt er, að hægt sé að fá húsrúm fyrir eitthvað þess kyns í sam. komusölum Reykjavíkur meðan á há- tíðinni stendur. En um leið og slíkt er ekki í beinu sambandi við dagskrá hátíðarinn ar, er það orðið aukaatriði. Það skilja allir, sem nokkuð hugsa.------- Nei, Landar góðir! Við verðum að hugsa ögn hærra, efla til annars stærra. Fátt af því ofantalda er sérlega markvert eða sérstaklega hæfilegur sæmdarauki hluttöku Vestur.íslendinga í þúsund ára háfcíð ættlandsins. Um það blandast eng um hugur, að heimförin verður þeim minnisstæð allt til æfiloka. Því ekki að stefna að því markinu, að koma þeirra verði Islandi engu síður minnisstæð? En til þess verðum við að færa ættlandinu einhverja GJÖF, er haldi nafni Vestur- íslendinga á lofti á komandi öldum. — Söngur, leikir, eða glímur, eru hverfandi smámunir, í sambandi við þúsund ára há- ijíð hfeillar þjóðair. Myndastyttur haifa takmörkuð áhrif, húsabyggingar hrörna, — nei, við verðum að stefna enn hærra.— Hví ekki, AÐ KLÆÐA LANDIÐ SKÓGI? Fengi Vestur-Islendingum auðnast að leggja stóran og öflugan þátt til þess, að ísland yrði skógi vaxið að nýju, þá myndi það skógi klædda ættland minnast þeirra með þakklæti til eilífðar. Úr því yrði nafnið “Vestur.íslendingar” ódrepandi, þó íslenzkur þjóðstofn eigi eftir að líða undir lok hér í ájfu. Fegri eða varaniegri minnisvarða geta Vestur-íslendingar ekki gefið ættlandinu — og að tileinka þetta starf hinni komandi þúsund ára hátíð, er að færa íslandi mjög hagkvæma og heppi- lega gjöf við það tæðdfæri. Mörgum kann nú að finnast árinni full. djúpt tekið. En enginn má gleyma 'því, að starf þetta mundi hefja við hún fána íslenzkra brautryðjenda þessa lands, sem aldrei hikuðu gegn örðugleikum né yfir- vofandi hömlum á vegi. Við erum synir þeirra, og á þúsund ára hátíð landsins, sem þeir komu frá og unnu til dauðans, viljum við minnast þeirra með þessu sta'fi- Og þó að við fáum ekki klætt Is- land með skógi frá fjöru til fjalls, þá get- um við ræktað þar svo stóra skóga, að hinum göfuga tilgangi sé náð: Vestur-ís- lenzkum brautryðjendum sé reistiur var. anlegur minnisvarði á ættjörðinni. Framkvæmanlegt getur þetta orðið með þeim hætti, að öll spor séu tafarlaust stígin í þá átt, að stofna til trjáplöntunar á íslandi í sem allra stærstum stíl að mögulegt er. Tilraunum þegar hrint af stað ,er Þjóðræknisfélagið gangist fyrir Starfið helgað þúsund ára hátíðinni, og miðað við Vestur-íslendinga í heild sinni. Kostnaður borinn af almennum samskot- um. Stofnaður sjóður — Skógarsjóður, 5 — er afhendist íslandi við heimförina 1930. Skógarsjóður — nafnið eitt lokk- ar til sín skildingana! Vestur-íslenzkir auðmenn, sem nú eru orðnir margir, munu Jeggja það af mörkum, að sjóður þessi geti orðið hinn ríflegasti — heimför Vest- ur.íslendinga hinn mesti sæmdarauki. Björn Magnússon á heiðurinn af því, að hafa fyrstur Vestur.íslendinga bent á heppilegar leiðir, til að stuðla að trjá- plöntun á ísiandi. Ritstjóri Lögbergs vill taka í sama streng, og birtir um leið bréf frá' E. Walters listmálara, er stefnir ör- ugglega að markinu. Hefir hinn síðast nefndi þegar hafið framkvæmdir og feng ið loforð stórstofnana þessa lands, til þess að veita ókeypis fræ til skógræktunar á hinni norðlægu eyju. Starfið þegar byrj- að, Vestur-íslendingar! Að helga starf þetta heimförinni 1930, láta það vera gjöf Vestur-íslendinga til íslands á þúsund ára hátíðinni, er í alla staði heppilegt og viðeigandi, — og stór hvatning til framkvæmda. Klæðum ísland skógi! O. T. Johnson* * * * Heimskringlu er alveg sérstök ánægja að því, að gefa rúm þessari fögru og við- eigandi tillögu. Vér erum höfundinum sammála um það, að varanlegri ástarvotí mun tæplega vera unnt að auðsýna. Sá minnisvarði yngir sig upp og eflist, með ári hverju, og líffrjó hans geymast með- an menning er til, meðan landið er ofan- sjávar, og nokkurt líf fær þar þrifist. — Og svo mætti þeim finnast, er enn kunna að álíta, að Ameríkuferðirnar hafi verið íslandi til óhamingju, óheillablóðtaka (er þó mun ef til vil vera vanséð, ef á alt er er litið), er hafi rænt ísland starfskrötft- um, er annars hefðu mátt fara hjúkrun- arhöndum um kalsár þess, sem hér væri fundið meðal til þess, að græða eitthvað af þeim sárum; hjúkrunarskyldan innt af hendi að nokkru leyti. Og ef Canadastjóm vildi nú auðsýna íslandi þá virðingu, er dr. Woodsworth hyggur því maklega, að gera út skip með nokkurskonar sendinefnd, Islandi tii sæmdar á þessum einstæða hátíðisdegi; — menn skyldu ekki láta þá hugmynd vaxa sér um of í augum — sé stjórnin þeirrar skoðunar, að fyrir hingaðkomu íslendinga, og þau handtökin er þeir hér hafa unnið, sé nokkur hluti þessa lands betri og byggilegri, og þjóðstofninn ef til vill heldur verðmætfari í rauninni, en rýr- ari, þá mun hún ekki telja eftir sér, að láná lestarrúm farmi viðarteinunga, er mættu skjóta rót heima, blómgvast og bæta landið, eins og gert hafa hér tein. ungar af íslenzkum ættstofni. Varla myndi þá heldur Canadastjórain verða dýrseld á þeim nýgræðing úr gróðrarstöðv um sínum. Veglegri för hefði þá aldrei verið í vináttuleiðangur gerð. — * * * En úr því að minnst er á hvorttveggja: sendiskipið og nýgræðinginn, þá kemur það manni í hug, að enda þótt farkostur byðist, þá kynnu einhverjir að telja þar stofnað til ófæru, sökum þess að erfitt kynni að verða, að finna rúm á einu skipi öllum þeim, er slíku boði vUdui hlíta, en óhugsandi að láta ekki eitt yfir alla ganga En ekki trúum vér að eigi myndu ráð finnast til þess að leysa þann hnút, svo viðunanlegt væri. Meðal annars mætfti fyrst leita rúms ruðningsmönnum vestur íslenzks landnáms. Þá flokkum, er með því eina móti líklega mætfti heim senda; ekki til þess að stæra sig fyrst og fremst, né til þess að “skemta” & hátíðinni, held- ur til þess að færa Islandi heim sanninn lim það, að ekki er það enn gleymt, þótt í þriðju, eða jafnvel fjórðu kynslóð sé hér komið. Og þá kemur hitt til, að enda þótt vér föllumst á það, að skóggræðslan myndi verða veglegri og varanlegri minnisvarði vestanihafs ræktarsemi við Island, en nokkuð annað, sem enn hefir fram kom- ið í þá átt, þá finnst oss, að henni slepptri, sem fátt myndi fegur geta túlkað tilfinn- ingar vorar íslendingum, en íslenzkur hópsöngur af vörum vestur.íslenzkra barna. Þeir hljómar myndu ekki einung is enduróma á hjartastrengjum allra ts- ’endinga. er á hlýddu, svo lengi sem líf þeim entist, heldur löngu eftir þeirra daga, í muna og af munni komandi kyn- slóða. Bánkarnir, Kirkjan og Job. Rétt nýlega kryddaði “L. F.” Salma. gundi með nokkrum hugleiðingum um innbyrðis afstöðu kirkju, banka og þegn- mennsku. “Hræringurinn’ var vel bland- aður, eins og allur Ijúffengur matur verður að vera, enda ekki ætlaður þeim, er alt háma í sig ómelt og smekklaust. En einmitt þess vegna kann að vera hætt við því, að einbverjir hafi ekki kennt bragðsins né kjarnans eins greinilega, eins og sá lesandi, er kvað þetta myndi vera hámark kurteislegrar blaðamennsku, að lýsa þvf svona afdráttarlaust, en um leið hógværlega, hvernig margir bankar flá bóndann úr gærunni, meðan kirkjan gegn ir sínu gamla starfi: að halda fótunum. * * * Og einmitt í samihandi við þetta, er dá- lítið gaman að endursegja sögu, sem norskur Bandaríkjamaður, Torkel Ofte- lie, skrifar blaðinu “Norig” heima í Noregi. Hann get,ur þess ekki í hvaða ríki hann búi, en þaðan er auðsjáanlega líka sögu að segja, og úr “nágrannaríki voru”, er “L. F.” sagði frá. Oftelie aegir, að í næstu, sveit fyrir norðan sig, sé þorp er heiti Ulen, í höf- uðið á Ulen nokkrum er á þær slóðir flutti úr Hallingdal í Noregi. Tveir bankar voru í þorpinu, og fóru báðir á höfuðið í fyrra. Auðvitað varð grátur og gnístran tanna um héraðið og í þorpinu. Og svo hátt lét í Norðmönnunum, fræhdum vorum, að presti þeirra fannst brýn nauðsyn bera til þess, að reyna að hugga þá og þagga niður í þeim. Honum leizt svo, að heppi- legast myndi vera að hefja það starf með prédikun á þakklætishátíðinni í fyrra. Eðlilega — liggur manni við að segja — lagði hann út af Job, þeim margþjáða manni. Hann skýrði það í æsar fyrir til- heyrendum sínum, hveraig gengið hefði fyrir Job. Hann hafði verið auðugur maður; en Drottinn hafði svift hann öllu, og síðast meira að segja böi-nunum. En Job hélt samt fast við drottinn og lofaði hann fyrir allt, sem hann gaf og tók. Og eins ættum vér að vera, elskanlegir, sagði presturinn. En nú möglið þið og sýtið, af því að þið hafið tapað nokkrum skilding- um í bankanum. Ef vér einungis höldum fast við Drottinn, þá mun hann blessa oss á ný, og gera oss hálfu ríkari en hann gerði Job.----- En þegar hér var komið hugguninni, færðist á fætur í miðjum almúganum kerli ein, borin og barnfædd heima í Hallingdal í Noregi. Hún hvessti augun á prest, sem stóð þar í prédikunarstólnum, hátt upp hafinn, og svo sagði hún hátt og skýrt: “Já þú talar um Job; það var Drottinn, sem tók frá Job, en það voru þjófar og bófar, sem tóku eigur okkar.” Prestinum varð orðfall í miðri setn- ingu og stóð sem steini lostinn og ein- blíndi á þá gömlu. En málið fékk hann ekki aftur við þetta tækifæri; datt efckert svar í hug. Hánn gekk að lokum stein- þegjandi ofan úr stólnum; hann fann svo greinilega, að hann hafði borið lægra hlut í orustunni. — * * * Það myndi líklega mega teljast sak- laust, að kenna í brjósti um klerkinn. En ekki að áfellast hann, fyrir alla muni. Því hvað stendur ekki skrifað hjá “L. F.”: “....hann er, einnig stöðu sinnar vegna, verjandi þess skipulags sem er, forvígis- maður hins lögbundna stjórnarvalds. Það skiftfir litlu máli hverrar stefnu yfirvöldin eru, kirkjan er ávalt ábekingur þeirra.” <Syefnlætin’, Vér ætlum ekki að reka langt röksemdaflótta ritstjóra Lög- bergs, enda er geyist farið á undanhaldinu. Afifeins að geta þess, af því að hann hefir sjá- anlega misskilið, af ásettu ráði eða ekki, að Heimskringla hélt því aldrei fram að hann hefði gert tilraun til þess að sanna, þ. e. a. s. vsvitandi, að Jónas dómsmála,ráðhierra Jónsson vælri lygari. Vér töktum það einmittf fram að ritstjórinn mundii |þar hafa unnið óivilja- verk. Hitt er annað mál, að það er leiðinleg slysni að heppn ast ekki að auðsýna svo einum gestrisni né kurteisi, að annar sé ekki óvirtur. En einmitt þetta varð ritstjóra Lögbergs á. Hjann auðsýndi Kr. A. þá gest- risni, að lána grein hans veg- legasta rúrnið í blaði sínu. En aðalkjarni þeirrar gt^einar var einmitt að sanna það, að dóms- málaráðherrann væri hvorki meira né minna en lygari. Og ritstjórinn kvaðst birta greinina með ánægju. Þótt vér af góð- girni teljum þá yfirlýsingu ó- viljaverk, eða flaustur, þá ligg- ur auðvitað háskalega nærri að halda, að maður, vitandi vits, geri hana af ásettu ráði. Það er ekki gott fyrir rit- stjóra Lögbergs, að komast framhjá þessum staðreyndium, enda reynir hann það alls ekki. Hann reynir heldur ekki að svara einu einasta atriði öðru, af skynsamlegu viti. I stað þess grípur hann til þeirrar aðdáan- legu röksemdafærslu, er mið- lunigsgreindum unglingum, um og innan við fermingu, er töm- ust, að staðhæfa það, að sá, er andmælir honum, sé “ailt af ösku fjúkandi reiður”! Vér héldum satt að segja, að rit- stjórinn væri upp úr því vaxinn, að bera fyrir sig slík vopn, þótt hann kunni að hafa fengið þau í ritstjórnartannfé. Að elta ólar við slíka hjá- rænu, eða að taka upp þann vopnaburð, nær ekki nokkuri átt. Enda nennum vér ekki að vera lengur að hræra í þessu hlávatni, er vini vorum.ritstjóra Löghergs, hefir að þessu sinni — hamingjan má vita hvers vegna — fundist nauðsynlegt að lájta frá sér fara í ritstjórn- ardálkana. Sjónleika ’í samkepnin Hún er nú að færast í lag. Svo mikillar hylli sem hún naut í fyrra, virðist sem þetta árið muni hún eiga enn meiri vin- semdum að fagna. Fleiri tflokkar taka þátt en áður; eins margir og unt er að koma fyrir, því ókleift er að leika fleiri en fjögur kvöld. Fyrirspurair um reglugerðir hafa komið frá öðr um flokkum, sem hafa slegið því frá sér að koma í þetta skiftið; en þetfta ber vott um víðtækari áhuga, og má búasc við því að hann fari vaxandi ár frá ári. Þörf á Smáleikritum En þá verður líka nauðsyn- legt að aðeins smáleikrit verði tekin til meðferðar. Sem stend- ur, eru íslenzk smáleikrit (svo stutt að sýna mætti 2 til 3 á kvöldi) svo fá, að ekki nægði. Á þessu þarf að ráða bót. Bót ’á þeirri þörf Leiksamkeppnin í ár er vonað að verði vegurinn til þess. Það er sem sé, gertf ráð fyrir því að ágóðanum af samkepninni í ár verði varið, í viðbót við $100 sem hafa verið settir til síðu af ágóðanum í fyrra, til þess að veita verðlaun fyrir þýdd eða frumsamin smállei^rit: þýdd á íslenzku, eða frumsamin hvort heldur á íslenzku eða ensku. 1 fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndju pieðujl, ivið bak- verk, gigt og bröðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær era til sölu í öllum lyfabúð um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto 2, Ont., og senda andvirðið þangað. Ekki er ólíklegt, að þetfta verðí til þess að leiða fram á! sjón- arsviðið eitthvert íslenzkt sjón- leikaskáld, og að arðurinn verði mörg smáleikrit sem séu ibetur við Ihasffi vestur íslenxl- inga en flest þau leikrit sem nú er völ á. Fjórir flokkar keppa Árborg, sem vann sigur- merkið í fyrra, ver það í ár, móti þrem mótstöðuflokkum. Sumir þeirra flokka telja æfða leikendur og verður samkeppnin án efa spennandi. Engir tveir flokkar hafa sama hlutverk, og einn þeirra sýnijr Ifeikrit, ifeem aldrei hefir verið leikið í Win- nipeg fyr. Ailir hafa mikinn og góðann undirbúning. I nwsta blaði birtist fullkomin in skrá yfir leikendur, sem ekki er, því miður, unt að gefa nú, vegna þess að fullkomnar upp- lýsingar hafa ekki enn borist nefndinni. Samkepnin hefst hinn 5. marz. Híeiðarsæti (reserved seats fyrir öll kvöldin) verða til sölu fyrri partf næstu viku. Upplýsingar þeim viðvíkjandi má fá hjá eftirfylgjandi nefnd- ar-mönnum í Winnipeg: Dr. Á. Blöndal, forseti; Miss A. John- son, ritari eða Fred Swanson. A. J. ----------x----------- • Gunnar Gitnnarsson Eftir G. G. er nýkomiS út fjórSa bindi sagnaflokksins, sem hann kallar Kirken paa Bjer,giet og heitir þaS “Den uerfarne Rejsende.” Fyrri bindin vóru Leg med Straa, Skiíbe paa Himlen og Natten og Drömmen. Er þetta því orðiö miikið safn og mun ekki lokiS enn. Er þaS nokik— ursikonar æfisaga G. G. sjálfs í skáldsögu formi og segja þrjú fystu bindin frá æfi hans hjér heima, en síSasta bindiS segir frá utanför faans og fyrstu reynslu erfendis, lýðhá— skólavist hans, ritmensku, erviSis— vinnu og öSru því sem fyrir hann bar á þungum og þreytandi róSrJ hans til mennirugar og frama í ókunnu landi, uns hann varS einn af mest virtu skáldum þar, eins og faann er nú. Frásögnin er nokkuS langdregin sumstaSar, einkum í fyrri bindunum, en margt er einnigi um skýrar og skemtilegar lýsinigar og athuganir á sálarlífi barnsins og unlhverfi hans, íslensku sveitalífi.' Dregst inn 1 |þá lýsingu margt fólik, sjerkennilegt og skrítilegt, og mun ekki síst Aust— firSingum forvitni á aS lesa þau ibindin, því margar fyrirmyndir höf— undarins má glögglega þekkja, þótt nöfnum sje breytt. I síSasta bind— inu eru ýmsir af best skrifuSu köf— inu eru ýmsir af 1>est skrifuSu köfl— um verksins. — Lögrétta.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.