Heimskringla - 22.02.1928, Blaðsíða 5

Heimskringla - 22.02.1928, Blaðsíða 5
WINNIPEG 22. FEBRÚAR 1928 HEIM3KRINGLA 5. BLAÐSIÐA. ÞJER SEM NOTIÐ TIMBUR K A U P I Ð A F The Empire Sash and Door COMPANY LIMITED BirgSir: Henry Ave. East Phone: 26 356 Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA. Heilbrigði X. Mœður og fœðingar. . TJm þetta efni haföi ég ihugsaö mér aö SK.'ifa síöar, en til þess hefir ver- iö mælst aö um þaö væri ritað nú þagar. Hér er ekki um sjúkdóm að ræöa i orðsins venjulegu merkingu. En samt sem áður hefir það svo mörg dauðsföll í för með sér, að þar má teljast eitt af aðalmeinum þjóðarinn ar. Samkvæmt heilbrigðisskýrslum stjórnarinnar hér í landi, deyja ná- lægt sex (6) mæður af hverjum þús- und (1000) ikonum er börn ala hér í Canada. Með öðrum orðum deyja hér um bi! ellefu hundruð (lilOO' konti]- af barnsförum í landinu á ári. Þegar tillit er tekið til þess, að þetta eru allt konur á bezta aldri, þi er það óneitanlegt tjón fyrir þjóðina í öllum skilningi — að ógleymdum sorgunum, sem iþað hefir í för með sér. En þó er ekki öll sagan sögð með þessu, því auk þess deyja nálægt sex þúsund (6000) tkirn árletgía áður en þau fæðast eða í fæðingunni — fæð- ast andvana. Er það álika margt og deyr af krabbameini, talsvert fleira en deyr af lungnabólgu, og miklu fleira en deyr af tærinigu. I Canada tapast íþví um eða yfir sjö þúsund (7000) mannsMf árlega á þenna hátt, ef hvorttveggja er talið: tnæðurnar og börnin. Af þessu sést það að ihér er um alvarlegt efni að ræða; ekki sízt þeg ar þess er einniigi gætt, að fjöldi mæðra missir heilsuna i samfbandi við barnsiburð, eða sem afleiðing af hon— um, auk þeirra sem missa lífið. Sumum finnst það ef til vill Mtils virði, þótt barn fæðist andvana eða deyi nýfætt; en hver getur reiknað þann skaða? “Enginn veit að hverju barninu gagn verður”, segir máltækið og sannast það hér. En það er niæðradauðinn, sem hér er alvarlega i'hugunarefnið, 'þótt hitt sé alls ekkert smávægilegt átriði. Astiæðurnar fyrir þessum mlörgu dauðsföllum — mæðranna og barn- anna — eru mangiar. Við sumum þeirra verður alls ekki spornað, hvaða ráðum sem beitt er og hversu gott sem eftirlitið er að öllu leyti. En í mörgum tilfellum er óefað eirihverjum mistökum um að kenna. Ekki er þó svo að skilja, að þau mis tök hljóti að eiga sér stað, þegar barnsfæðinguna ’ber að höndum, með an á henni stendur eða á meðan kon— an Miggur á sæng. I því samhandi hemur margt til greina, svo sem Mfn- aðarhættir og kringumstæður móður mnar um langan tima á undan sæng— urlegúnni. Er það yfirgripsmikið atriði og margþætt. Hér er ekki tilgangurinn sá að kenna fólki yfirsetufræði. Það getur enginn læknir igert i 'heillri bók, og þvii síður í stuttri blaðagrein. En þar sem eins steridur á og hér i norðurhluta Vestur-Canada, er nauð synlegt að veita sem flestar og not— hæfastar leiðheiningar í 'þessu þýð- irigiarmikla máM. Landið er viíða strjálbyggt, fólkið víða fátækt og langt til læknis. Þess vegna er nauðsynfegt að vita jþau undirstöðuatriði, sem mestu varðar. Lað er konum Mfsnauðsyn að vita sem mest um skynsamlega meðferð sjálfra sín í þessu sambandi. Og í junsum atriðum er það nauðsynlegt að mennirnir viti það Mka. Lað er algengt að tilvonandi mæð- ur finna aldrei lækni að máli þessu viðvíkjandi fyr en þær' eru orðnar veikar — og sumar njóta jafnvel engrar læknishjálpar, þótt þeim giangi afar örðugt. Þetta er hættulegt. Hver einasta kona ætti að finna lækni, þegar ihún er ófrísk, löngu áður en hún legst, og láta hann skoða sig og veita þær ráðleggingar, sem hann telur hag- kvæmar og nauðsynlegar. Á því er enginn efi, að margar mæður missa Mfið fyrir þá sök að þetta er vanrækt. Sérstaklega ætti það aldrei að koma fyrir, að kona láti það bregðast að finna lækni, oig það snemma,, þegar hún býst við að verða móðir í fyrsta skifti, hversu langt sem hún þarf að fara og hversu mikla fyrinhöfn sem það kann að kosta. Víðast er heima læknirinn svo nálægt, að þetta er vinn andi vegur, og það má aldrci ciga sér stað að það sé vanrækt. Auk þess ætti alltaf að sækja lækni þeigiar barnsiburðar er von, þegar því verður mögulega við komið. Hitt kemur þó oft fyrir óhjá— kvæmilega, eins og höguni er háttað í þessu landi, að ekki næst i lækni, jafnvel þó til þess hafi verið ætlast. Bæði í þeim tilfellum, og eins að því er meðferð móðurinnar snertir um meðig>öngutímann og sænguregutím- ann, má gefa ýmsar leiðbeiningar Þar sem eg ’hefi talsverða reynslu í þessari grein — hefi setið yfir mörg um hundruðum kvenna — vonast eg til að leiðbeinjngtar mínar í —3 næstu köflum igieti komið að nokkru haldi. Sig. Júl. Jóhanhesson. ----------x----------- Frá íslandi. FB. í jan. íslcndingar í París 'EB. er skrifað frá París 6. þ.m.: “Eggert M. Laxdal hefir hér mál- verkasýningu, sem stendur 15—22. jan.) og sýnir um 24 málverk. Þykja þau góð. Ásmundur Sveinsson, myndhögg— vari er ihér líka. Hann ihefir nýlega gert ágæta ljósmynd, úr leir, af Egg- ert Stefánssyni söngvara. — As— mundur fer bráðlega til Hafnar, og verður þar um nokkurra mánaða skeið. Bglgert Stefánsson söngvari hefir verið ihér um hníð, og mun bráð- lega sýngja hér í útvarp.” Seyðisfirði 16. jan. Á sameiginlegum fundi verkamanna og verslunarmanna í gær var rætt um akveg fyrir Fjarðarheiði. Kostnað- anáætlun 360 þús. kr.. iSamþykktar einróma áskoranir um fjárveitinigiu til akvegarins, Samskopár ásikorun væntanleg frá !>æjarstjórn. Snjóþýngra en marga undanfarna vetur. Pétur Jónsson óperusöngvari hefir verið ráðinn til að sýmgja sem gestur á kgl. leik— húsinu í Khöfn í næsta mánuði að- allhlutverkið í leiknum Othella. Hefir mikið orð verið á því gert- ihve snildarlega Pétur fari með þaö hlutverk. IVi merkilegt rrtegii heita hefir Pétur aldrei verið fenginn til að sýngja á kgl. leikhúsinu áður. Rvík 18. jan. Frú Steinunn Sœnmndsson kona Bjarna Sæmundssonar fiski- fræðings, andaðist á iheimili sínu í gærmorgun, eftir langvinnan sjúk— dóm. Hún var fædd 24. apríl 1872, á Búðum á Snæfellsnesi. Foreldr— ar hennar voru Sveinn kaupmaður Guðmundsson og kona hans Kristín f. Siemsen, systir Franz Siemsen sýslumanns og Iþeirra systkína. Frú Steinunn var mjög fríð sýnum o.j ágætlega gefin og mjog unlhyggju- söm móðir. Dætur þeirra hjóna eru tvær á Mfi, Anna, B.A., kenslukona Og Kristín, en ein dóttir þeirra er látin, Akureyri 18. jan. Eyrsta sýning leikféliagsinls > á leikritinu “Dauði Natans Ketilsonar” eftir Elínu Hoffmann verður þann 20. Átgúst Kvaran leikur Natan. Haraldur Bjórnsson er leikstjóri. Svcinbjörn Sveinbjörnsso 11 Lárus Sveinsbjörnsson hefir gefið út steinprentaða mynd, stóra og lista vel gerða, af tónskáldinu okkar góða Sveinbirni Sveinbjörnsyni. A Lárus þakkir skiMð fyrir framkvæmdir á iþessu, því að góða mynd af þessum fræga landa vorum vantaði á margan heimilisvegg. Myndin fæst í bóka- verzlun Xorsteins Gislasonar og kostar kr. 3.50. Rvík 25. jan. Jóhanncs Kjartansson verkfræðingur frá Hruna andaðist hér d bænum í nótt eftir þunga legu. Hann var hinn mesti efnismaður ogt hvers manns hugljúfi. “Jul paa Island för og nu” heitir löng og ítarleg grein, sem frúMangrethe Lölbner Jörgensen hef— ir skrifað nýlega og prenta látið í dönsku blaði. Egils sgga Skallagrhnssonar Ihefir komið út í haust á nýnorsku í þýðingu eftir Leiv Hegigstad. “Gamalnorsk bokverk” stendur á tit- ilblaðinu. Oþarfi er að vera að nefna Island þeirri bók viðkomandi. Þjóðhátíðin 1930 Reykjavík 11. jan. FB. Undirbþningsnefnd alþiingishátíðar 1930 tilkynnir: Vakið hefir verið máls á því í undirbúningsnefndinni, að gerður erði á ríkiskostn. veggskjöldur (plate) úr postulini í nægilega mörgum ein- tökum, og hagnaðinum af sölu af þessum grip varið upp í kostnaðinn við hátíðahöldin. Nefndin hefir aflað sér ýmissa skýringa er aö iþessu máli lúta hjá beztu verksmiðjum erlendis í þeirri grein, pg hafa þær Iheitið nefndinni allri aðstoð um framkvæmd á þessari hugmynd ef til kænti, í samvinnu við þann Islenska Mstamann* sem teikninguna gerði, eða frumdrætti hennar. Aður en frekara verður afráðið um málið, óskar nefndin þess, að listamenn hér- lendir, og aðrir, sem kynni að hug- kvæast eitthvað got um teikninguna í skjöldinn, vildu senda nefndinni frumdrætti sina eða tillögur fyrir 15 mai. næstkomandi. Fiskiveiðar Dana við Island. I “Berlingske Tidende” er sagt frá því, að Rolbert Schou .kaupmaður og útgerðarmaður í Frederikshavn i Danmörku, ætM í apríl næstk. að senda 6 þilskip og tvo botvörpuniga hingað til lands til fiskiveiða. A hann sjálfur annan botnvörpunginn og 3 þilskipanna og hefir hann haldið þeim úti við veiðar hér við land síðastliðin tvö ár. Að þessu sinni er fyrirætlunin sú, að láta þilskipin stunda kolaveiðar með snyrpinótum, en botnvörpungarnir eiga að taka við aflanum, láta hann i ís og flytja síðan til Eruglands (Hull). — (Ur tilkynningu frá sendiherra Dana). Alfadansinn fór fram í gærkveldi að viðstöddum afarmikhim mannfjölda, sennilega yfir 8000. Kl. rúml. 9 var kveikt í viðarköstum tveimur sunnarlegta á vellinum, stóð þar í námunda við há sæti álfakonungs. og danspallur álf- anna. Kom nú öll álfahirðin inn — 40 — 50 manns — i mjög smekkleg- um búninigtim og hófst svo dansinn Voru dansarnir mjög í líking við norska vikivaka og dansfólkið vel samæft. Helgi Valtýsson stjórnaði dansinum röggsamlega; mun hann.að mestu eða öllu leyti hafa kent dansana og séð um æfingar á þeim. Stóðu dansarnir nálægt klukkustund, en þá var skotið flugeldum. Fór það nokk uð í ólestri, því að nú var allt komið í uppnám á vellinum, virstrengir slitnir og fólkið komið inn á völlinn. Dansendur sluppu þó ómeiddir úr troðningnum og voru komnir niður í bæ, þegur “trölDaslagrir” áhorfenda Ihófst. Gerðust þar mörg dæmi reyk— víkskrar háttprýði, sem ekki verður greint frá hér, en vera má að athuig^- að verði síðar. (Vísir.) ----------x---------- Hitt og þetta. Cosima Wagner ekkja tónskáldsins mikla, Richard Wagner, varð 90 ára síðastliðin jóladag. Manni finnst hún í tölu löngu liðinnar kynslóðar, enda eru 44 ár liðin síðan hún varð ekkja, og 60 ár síðan hún giftistRiohard Wag— ner, en áður hafði hún verið gift Hans von Bulow. Cosima Wagner er dóttir tónskáldsins Franz Liszt og Marie dAgoult. Hún hefir lát- ið sér mjögt ant um að minning Wag- ners væri höfð í heiðri, og komið því til leiðar, að Bayreuth er enn einskonar Mekka eða Medína allra aðdáenda Wagners. — Gamla konan heldur furðu vel heilsu enn þá; þó er hún orðin alveg sjónlaus. Stórfeldur Flugfleiðangur Ymsir málsmetandi Ameríkuenn af ættum norðurlandabúa hafa stof- nað félag til [þess að hrinda í fram— kvæmd stórkostlegri flugleiðarugtrum, en gerðir hafi verið í heiminum til þessa. Nefnist félag þetta "The American Viking Aeronautical Ass_ ociation.” Fyrirtækin, sem félagið hefir afráðið — 4 pappírnum, — eru svo mikilfenigjeg, að flug Lindberghs Byrds, Chamberlins og þesSháttar manna, mega heita barnalei'kur einn í samartburði við þau. Félagið ætlar að gera út Bellanca- flugvél af nýrri gerð, með 425 hest— afla Pratt and Whitney-mótor og fjögra .manna áhöfn, í heimsflug, og eru sumir áfangarnir á Ieiðinni um 1600 kílómetrum lemgiri en leiðin millt New York og Parísar. A að leggja upp í ferðina í byrjun maí- mánaðar, og er leiðin /þessi: New York — de Janeiro — Cape Town í Suður—Afríku — Bom— bay — Mikligarður — Róm — Stokkhólmur — Osló — Khöfn — New York. Milli staða þeirra, sem nefndir ihafa verið, má hvergi lenda. Og ferðinni á að verða lokið um 1. ágúst. Foringi fararinnar heitir Storm Archer, stýrimaður Theophilus Wessen, leiðsögumaður George O. Gjærlöff og loftskeytamaður Julius Seeth. Er hinn fyrstnefndi af notiks- um , hinn síðastnefndi af dönskum, en 'hinir af sænskum ættum. Til þess að safna fé til ferðarinn- ar hefir félagið efnt til flugferða milli bygða norðurlandabúa vestan- hafs, og hófust þær 1. desember. Hefir fjársöfnunin gengið svo vel, að óhætt má telja, að naagilegt fá fáist til fararinnar. Flugvélin á einnig að taka póst með sér, fyrir hærra burðargjald en venjulegt er, og er nokkurra tekna vænst af því. Miklar hvalvciðar Samkvæmt lauslegri áætlun hafa hvalaveiðar Norðmanna orðið nær helmingi meiri síðastliðið ár en 1926, og fara fram úr því, sem þær hafa orðið mestar nOkkurntíma. Sam— kvæmt skýrslum, er fram vóru kom- nar fram að jólum, var aflinn þá orðin 320,000 föt af hvalslýsi, en á sama tíma árið áður var aflinn aðeins 145 þúsund föt. — Allar þær flot— stöðvar er sunda veiðar í suðunhöf- um, hafa aflað helmingi meira en í ' fyrra, og sumar meira. Veiðiskipin í Rosshafinu hafa t.d. aflað 46 Iþúsund föt, en höfðu á sama tíma 1926 ekki fengið nema 6,300 föt. El-sti maður heimsins er Tyrkinn Zara Agha. Hann er 142 ára, og hefir þó verið kvæntur 6 sinnum. Símið 45 262 og Wood’s Coal Co., Ltd. mun birgja yður með viði eða kolum, eftir því sem þér þurfið, og gera það bæði fljótt og vel, hvenær sem vera skal. — Eldiviðarbirgðir og skrifstofa við PEMBINA HIGHWAY, við Weatherdon. Blue RIBBON Þér fáið ekki altént betri vöru i þó þér borgið meira. Heimtið i BLUERIBBON. A öllu verði i betra en allt annað. i SendiS 25c til Blue Ribbon Ltd. Winnipeg, fyrir Blu. Rlbbo* matreibslubók til daglegrrar 1|| kunar 1 heimahúsum t VMtur- Canada. 4 |OH Hið nýja heimili Dominion Busi- ness College er algerlega útbú- ið öllu því, er þarf til að gefa fullkomtia verzlunarkennslu. í átjájn ár hafa verkveitend ur í Winnipeg tekið stúdenta frá Dominion skólanum fram yfir aðra. Það borgar sig að ganga á góðan skóla. í í i | ION | ílegh THE MALL — WINNIPEG = DO busines, TELEPHONE 37 181 a 1 inni og úti Mjólk fullnægir þörfu mþeirra er verða að stunda þreytandi innivinnu, veitir þeim létta en stað- góða næringu. Mjólk, sem er aðalefnið í heitum drykkjum, súpum og þess háttar, er líka þrek. og aflgjafi, ómissandi þeim er útivinnu stunda. VEITIÐ ÓLLUM SVÖNGUM CITY MILK — Náttúrunnar bezta næring — hrein, saðsöm og gerilsneydd, yður að hættulausu, frá fiull- komnasta og nýtízkulegasta mjólkurhúsi í Winnipeg. VISS VEGUR TIL BETRI HEILSU__ DREKKIÐ DAGLEGA GLAS AF CITY MILK CITY DAIRY LIMITED SÍMI 87 647

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.