Heimskringla


Heimskringla - 16.05.1928, Qupperneq 1

Heimskringla - 16.05.1928, Qupperneq 1
== * XLII. ÁRGANbuu. ' ÍTV WINNIPEG, MAN., MIÐVIKUDAGINN 16. MAÍ 1928 NÚMER 33 j FRÉTTIR | Braeken forsætisráSherra Mani- tohafylkis, kcwn á laugardag'inn aftur »r austurför sinni, til Toronto, Mon- treal og New York. Kom hann nú beint frá Ottawa, þar sem hann ihefir setig á rökstólum við innanríkisráð- herra og aðra ráðlherra ýmsa, við- vikjandi virkjun Sjö-systra fossanna. Ekkert hafði Mr. Bracken nýtt að segja stóriblöðunum hér í því máli, annað en það, að nóg myndi vera húið að ræða það. Þó kvað hann nú ágreining að næstu eyddan (þar eystr- a?) og lítinn vafa á því að Winnipeg Electric félaginu yrði bráðlega af- hent virkjunin. * * * Frá Ottawa barst sú fregn í fyrra- dag, að Manitobaþingmennirnir mynd u halda fund með sér -bráðlega, lík- iega seint í þessari viku, til þess að komast að endanlegri niðurstöðu um það, hvað þeim lítist um virkjun Sjö-systra fossanna. Námumaður einn i La Pas, A. Lackner að nafni, sendi nýlega sim- skeyti til Bracken forsætisráðherra, þess efnis, að hann hefði fundið tin- wámu í norður-Mairiitoba. Ekki er nánar tiltekið ihversu mi.kið það muni vera, en jarðfræðingar hafa skoðað sýniáhorn Mr. Laokner. Telur pró- fessor R. C. Wallace, umlboðsmaður náma, að þetta sé athyglisvert, því þótt tin hafi áður fundist í Mani- ■toiba, helzt norður af Lac du Bonnet, þá hefir það ekki verið svo mikið, að kostnaði svari að vinna það, enn sem komið er. En eins og kunnugt er, hefir tin jafnan verið einn helzti nytjamálmur mannkynsins og er enn. — Nú kemur lang mest af tini frá Malayaskaganum Qg eyjunum Banca og Biliton í Austur-Indíum Hollend- >nga. Samþykkt var í Ottawa þinginu, > 'báðum deildum, frumvarp, er Stew- art innanríkisráðherra bar fram, á þá leið, að samibandsstjónin og fylk- isstjórnirnar í Ontario og Manitdba geri samning með sér um að byiggja flóðgiarða við Lac Seul, svo að þar verði vatnsforðageymir, og hægt sé að stilla eftir vild rennslið í Winni- Peg- og Eniglendingafljótum, og um l'eið au'ka vatnsoijku beggja fljjóta. Er áætlað að orkan muni þegar auk- ast Um 82,000 hestöfl í Englendinga- fljóti, en um 112,000 hestöfl í Winn- tpegfljóti. The Lake of the Woods Control Board á að hafa umsjón með flóðgátitunum og stilla svo rennslið, að sem jafnast verði í hag bæði Ontario- og Manitobafylki. # Sambandsstjórnin hefir einnig gert samning við Bandaríkjastjórnina og Ontariostjórnina um samskonar ráð- stafanir við Skógavatn (Lake of tihe j Woods). Telst svo til, að þegar lok- >ð er flóðstíflunum báðum, við Lac Seul og Skógavatn, iþá sé líka jafnað- arvatnsmagn Winnipegfljóts aukið úr 11,000 í 20,000 teningsfet á sekúnd- unni og jafnaðarorka fljótsins aukin úr 400,000 í 750,000 hestöfl. Lingmaður Selkirk gjördæmis, Mr. P. Bancroft, getur þess í bréfi 1>1 Heimskringlu, að samþykktar hafi verið, í sanrbandsiþiitginu á mið- v>kudaginn var, breytingar á lögun- ”ni um þegn.réttarrveÆtingu. S(egir hann, sem rétt er, að samþykkt þessi *s”erti mikið kjósendur í Selkirk kjördæmi, því þar hafi búið sam- kvæmt manntali árið 1921, 22, 224 menn af ibrezkum stofni; 14,600 Úkranjamenn og Pólverjar> 5,764 Is- lendingai*; 1,568 Svíar Oig 603 Dan- ir. Segir hann það von manna aö þessar lagabreytingar komist nú gegn um öldungadeildina. Eins og kunnuigit er, og Dr. J. S. Woodsworth tekur fram i öðru bréfi, hefir öldungadeildin ár eftir ár fellt allar breytingar við þegnréttarlögin er komist hafa gegnum neðri mál- stofuna, og farið fram á það, að ibreyta því ákvæði í lögunum, er iheimilar brottrekstur brezkra borg- ara úr Kanada, án dóms og laga, og án 'þess að nokkur ransókn fari frani, önnur en sú er innflutningta- ráðuneytinu sýnist. I sambandi við þessa breytingu eru einnig breytingar á hegnlngarlögumtm, er öldunga- deildin lféfir að þessu fellit; því at- riði þeirra, er við þau var bætt um Winnipeg-verkfal.lið fræga 1919, er heimilaði að lögsækja fyrir uppreisn- artilraunir menn, er stæðu í ein- hverju sambandi við verkamannafél lög, er grunuð væru um að vilja til þess að koma á stjórnarskiftuni meö öðrum meðulum en stjórnskipuleg eru. Virðist Dr. Woodsworbh hafa einhverja von um það, að öldunga- deildin muni nú ekki lenigttr sjá sér fært, að spyrna við breytingum á þessari óðafárslöggjöf. Virðist honum sérstakt hngðarefni afstaða Mr. Forke í rnálinu, og mjög ötul framganiga Mr. J. Thorson í því að fá lögum þessum breytt. T.il raunastíöð samþandfestj órnari nn - ar að Beaver Lodge, Alberta, hefir margt glæsilegt að segja um fram- farirnar og framtiðarútlitið í Peace River héraðinu, samkvæmt skýrslu er stöðin hefir nýlega sent sam'bands- stjórninni. Tilraunastöð þessi hefir verkalhring sinn unt éfri Ihluta Peace River héraðsins, lengst norður í British Columbia, um aðrennslishér- uð Aithabasca fljóts, og hluta Norð- ur-iSaskatchewandalsins. Skýrslan seigir að nú sé víða rækt- að hveiti þarna norðvesturfrá, þar sem áður voru taldar óræktandi eyði- lendur. I Grande Prairie og Val- hallardalnum, hafi bændur fengið sumstaðar 61, 68 og jafnvel 70 hveiti- mæla af ekrunni. Og eins og 'kttnn- ugt sé, hafi ihveitið og hafrarnir, er hlutu fyrstu verðlaun á santþjóðlegu sýninigunni í Chicago, verið hvoru- tveggja ræktað i Peace River hérað- inu. Skýrslan telur góðviðrasamt í Peace River héraðinu, og tekur það itil ntárks, að ágætt þreskiveður sé þar frant í nóvember, og vegir greið- færir til nýárs, svo að hauigafyllir ilterist kornlyftunuim frarn til þess tíma. iSkýrslu þessa geta menn fengið ó- keypis, að því er vér bezt vitum, með því að skrifa Publications Branch, Department of Agriculture, Ottawa. ----------x----------- Mr. Tómás Björnsson frá Geysir í Nýja íslandi, hefir legið á St. Boniface spitalanum í nokkra daiga. Var gerðúr skurður á honum á mánudaginn, og tekið úr honum ann- að augað; mun það hafa þótt nauð- synlegt til þess að bjarga sjóninni á hinu. Mr. Björnsson líður nú fram- ar vonum, og vonar blaðið að hann sjáist fljótlega iheill á húfi. Af Islendingum I ameríska vátryggingar-timaritinu ‘‘The Fraternal Age,” desemibetheft- inu 1927, er mynd og grein um landa vorn C. Harold Richter, sent búsett- ur er í Minneapolis, og er formaður "The Richter Advertising Co.” Seg- ir tímaritið að Mr. Richter hafi ver- ið kosinn yfir-forseti (Suprente Pres- ident) félagsins “The Modern Sam- aritan,” á aðal-stjórnarnefndarfundi félaigsins. Mun félagið vera innbyrð- is-vátryggingarfélag og er svo að skilja á tímaritinu, sem það muni eiga liklega rnjög glæsilega framtíð. Ilefir Mr. Riohter verið í mörg ár í stjórnarnefnd félagsins. Hann var einnig um skeið rikisformaður fyrir Minnesota Progressive Republican League, og hefir látið fleira til sín ta'ka. Hefir nefnt timarit það eftir einu helzta blaðinu í St. Paul að Mr. Riahter sé maður, er um tnargra ára skeið hafi tekið öflugan Iþátt í póli- tóskum og borgarlegum málum í Norðvestur ríkjunum. Vinur Heimskringlu í Minneapolis er sendi oss þetta eintak af “The Fraternal Age,” leiðir athygli vora að því, að Mr. Ridhter 'hafi verið í kjöri við borgarstjórakosningar í St. Paul árið 1922. Sýnir það, að hann er af mörgum mikilsmetinn, þótt eigi næði hann kosningu, enda kemst iþessi vinur blaðsins svo að orði um hann.að hann minni sig á aflvaka (dyn amo) Iþví það 'leggur frá þessum Minn. Isl. segulmagnsstraum er heldur manni föstum.” — Sami 'bréfritari hyggur að Mr. Richter sé ættaður úr Stylkkishólmi, og muni hann vera bi'óðir konu Thor. Jensen, stórkaup- manns í Reykjavik. ----------x---------- Hveitisamlagið. Allskonar samlagsölufélög og sant- lagsfélög neytenda, taka þátt í 3. allsherjarþingi Hveitisamlagsins, sem haldið verður í Regina, Sask., 5., 6., og 7. júní, að þvi er C. H. Burnell, formaður alls.herjarnefndar Hveiti- samlagsins skýrði frá nýlega á nefnd- arfundi. Meðal þeirra stórfélaga og stofn- anna er fultórúa senda, má helzt nefna “The Scottish Co-operative Wholesale Society;” “The British Empife Marketing Board,” “The International Co-operative Alliance,” “The English Co-operative Whole- sale Society;” Hveitisamlög Astra- líu; Hveitisantlög Vlictorlíuríkis, t Astralíu; “Souith Australia Farmers’ Co-operative Union. — Sömuleiðis* er búist við því að samlagssölufél- ögin í Rússlandi muni senda allntarga fulltrúa á þingið. Astraliustjórnin og Hin sanVþjóð- lega landbúnaðarstofnun (Internat- ional Institute of Agriculture) ætla að senda sérstaka fulltrúa á þing- ið, Einnig sitja þingið ýmsir máls- metandi emlbættismenn úr landbúnað- arráðuneyti Bandari/kjanna og full- trúar fjölda samlagsfélaga þaðan að sunnan. Meðal þeirra sem ákveðið hafa að koma ntá helzt nefnda John D. Miller dómara, varaformann o,g formann srnjör- og mjólkursamlaga i New York borg; John Brandt, for- mann “Land O’Laike Creameries,!’ frá Minneapolis; Ralph D. Merritt, fram'kvæmdarstjóra ‘‘Sun Maid Rais- in Growers,” frá Fresno, California; J. S. Montgomery, forstjóra “Central Co-operative Association” í St. Paul; F. M. Black, formann “Interior Tree, Fruit and Vegetaible Comntittee of Direction,” Kelowna, B. C.; Hon. W. R. Motiherwell, landbúnaðarráðherra Canada. Hon. J. E. Brownlee, for- sætisnáðherra Albertafylkis; Hon. J. G. Gardiner, forsætisráðherra Sask- atchewanfylkis og Hon. R. A. Hoey, er niætir fyrir hönd Manitobastjórn- arinnar, verða meðal ræðumanna. Yfirlýsing A Islendingafundinum sem haldinn var 1. maí í Winnipeg, var þess far- ið á leit af einum ræðumanni, að stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins lýsti því yfir að 'hún væri því and- víg að stjórnarstyrkur yrði þeginn eða notaður til undinbúnings heim- förinni 1930. Eg varð að gefa þau svör á fundimim, að ég gæti engar yfirlýsingar gefið fyrir hönd félags- stjórnarinnar sökurn þess að mér væri ókunnugt unt hennar afstöðu t málinu. Hinsvegar gat ég þess, að mál þetta myndi verða tekið fyrir á næsta stjórnamefndarfundi og almiennin|g'i vsíöan birt niðurstaðan. Fyrir þessa sök leyfi ég mér að skýra frá því, að fundur var hald- in í stiórnarnefnd félagstns 10. þ. m. Málið var tekið fyrir og rætt. Og niðurstaða fundarmanna var sú, að með því að formaður heimfarar- nefndarinnar, Mr. Jón J. Bildfell, hefði birt í blöðunum yfirlýsingn þess efnis, að aðalfundur nefndar- Innar stæði fyrir dyrum. þar sent ræddar yrðu þær umræður, sem fratn hafa opinberlega farið ttm málið, og þess ennfremur getið að nefndin —-nrtj legaj hið mesta 'kapp á að gera allt, sem henni væri unt til þess að sameina Vestur-Islendinga um heimfararmálið í heild sinni, þá sá stjórnarnefnd félagsins ekki neina ástæðu til þess að taka fram fyrir ihendur lheimfararnefndarinnar eða igefa henni bendingar um meðferð þessa máls. Var samþykkt tillaga á fundinum er í þessa átt fór,og greiddu henni allir fundarmenn atkvæði sitt. Einn stjórnarnefndarmaður var fjar- staddur. 14. maí 1928. Ragmcir E. Kvaran, forseti Þjóðræknisfélagsins. ----------x----------- Bréf til Hkr. Herra ritstjóri! Það ihefir, í blöðunum, nýlega verið getið um heimilisiðnað, og sýn- 1 ingu, sem haldin verði í Winnipeg um miðjan næsta mánuð. Væri ekki vissara fyrir islenzjka snilliniga, karl eða konu, að afla sér upplýsinga um einkaleyfislög lands- ins, áður en flanað væri að því, að sýna aflburða handbragð, sem hvaða verksmiðja sem vildi, 'kynni svo að geta ihent á lofti og gert eins ntiklar eftirstælingar af, eins og henni igött þætti, þegar hún væri einu sinni bú_ inn að ná í munstrið ? Það þarf ekki að setja upp gler- augu til að sjá h\-er tilgangur þess- arar sýningar sé. Hún heitir ekki verðlaunum fyrir neitt, sem er svo al- mennt, að það liiggi neinstaðar á glámbekk. Það er hitt, sem fóligið kann að liggja, sent sókst er eftir; það, sent umkomulítill hugvits og hagleiksmaður eða erfingi hugvits. þjóðar kynni að hafa í pokanutn sinum, án þess að kunna að meta það sjálfur. Þessi sýnirtg getur verið góð og blessuð, ef nefndirnar, sent um þetta fjalla, eru þess umkomnar, að gætni og þekkingu, að geta verndað eig- endur sýningargripanna í þessu til- liti. Annars gæti hún sennilega orð- ið einhverjum til skapraunar, áður en búið væri. Það veldur ekki, sá er varar, og skaðlaust er það hverjum manni, sem fáséðan grip hefir fram að leggja, að vita vissu sina um það fyrirfram, hvaða einkarétt hann hefir á sínu munstri. J. P. Sólmundsson. Vorsálmur í geisla býr líf, og ljóð í blæ, og ljómi’ yfir öllum ströndum. Eg vetrar kuflinum varpa’ á sæ og vængi fæ og svíf yfir sólroönum löndum. 1 geisla er sál, og söngur í blæ, er sumrinu allir klæðast. I>að strýkur hendi um hlíð og bæ og hlyn og sæ og allt lætur endurfæðast. Nú bylgjast út lífsins brjóst á jörð sem barmur, er ástin tryllir. Einn lifandi guð er öll lífsins hjörð, sem loft og fjörð og moldina fögnuði fyllir. Og dauðinn er upprisar^ — Eilíft vor í ólífis vetrinum blundar. Hver steinn eignast síðast sjálfstæð spor með sál og þor eitt yndis-vor óskastundar. Mín sál er geisli, minn söngur blær. Nú sumar mér býr í hjarta. Úr hugans fjöllum er horfinn snær, minn himin skær, og vorgyðjan brúðurin bjarta. » * . Hve dásamlegt undur af ljóma og lit, sem logar um tinda og völlu! Hve dýrðlegt að finna sitt veika vit með vorsins þyt nú anda í lífinu öllu ! ( / Þ. Þ. Þ. Fjær og nær. Leikfélag Sambandssafnaðar sýnir Brúðkaupskveldið í samkontuhúsi Ar- Iborgar að kveldi 24. þ. m. Að leiksýninigunni lokinni verður dans fram eftir nóttunni. Inngangs- eyri.r 75 cent. Séra Albert E. Kristjánsson og frú Anna komu með dóttur sína unga fyrra þriðjudag, bílleiðis vestan af Kyrrahafsströnd, þar sem þau hjón hafa dvalið í vetur, eins og lesendum Heimskringlu er kunnugit. Lertgst dvöldu þau hjón í San Diego, og héldu hægfara þaðan norður strönd ina, með dálítilli viðstöðu í einstaka stórtbæjum, þar sem mest er af Is- 'lendingum. Þar á norðurströndinni dvöldu þau lengst í Seattle 5—6 vikur. Mjög vel létu þau hjón af ferðalaginu og viðmóti allra Islend- inga er þau hittu.— Dóttir þeirra hjóna, Mrs. Sigurðsson frá Chicago, kom hingað rtorður til þess að taka á móti foreldrum sínttm. Séra Al- 'bert er nú tekinn við söfnuði sinum við Lundar, er fagnar komu hans og þeirra hjóna, einis og allir vinir þeirra. — Mr. A. J. Skagfeld og Mr. A. Johnson frá Qak Point\ Man., vortt hér á ferð u<m helgina. Var Mr. Skagfeld að selja spildu af landi til Mr. Johnson en sjálfur var hann að kaupa land af C. N. R. þar norður- frá. ----------X----------- “Thc Cohcns and Kcllys in Paris’ að IVonderland. Hinir meinskringilegu Cohens and Kellys eru komnir aftur í allri sinni dýrð i bragðleigri og betri Universal mynd: “The Cohens and Kellys in Paris.” Notaðu tímann sem eftir er til fimtudagsins til þess að girða svo vel að rifbeinum þínum að þú springir ekki af hlátri, því leikhúsið tekur eng a ábyrgð á slíkum dauðdaga. — En einmitt þann daig sjáið þið George Sidney leika hlutverk gamla Cohens, sem gerði hann heimsfrægan í “The Cohens and Kellys in Paris” J. Farr- el MacDonald verður 'heldur ekki metinn til fjár í hlutverki Kelly. Vera Gordon leikur Mrs. Cohen snilldarlega, sem fyr. Kate Price, afbargð fyrir sinn hatt leikur Mrs. Kelly. Ennfremur aðrir ágætir leilc endur: Gertrude Astor, Sue Carol og Charles Delaney. Nœsta mánudag. leikur Ramon Navarro, afkomandi ihinna sptánversku “Sigurvegara” í fyrsta sinn hlutverk, sem hver for- faðir hans hefði getað lifað raun- verulega, í “The Road to Romance,” mynd af hinni frægu sögu Josephs Conrad.— Marceline Day leikur kvenhetjuna og nteðal annara leika þar einnig Roy D’Arcy, Mark Mc- Dermott, Otto Matieson, Cesare Gravina, Bobby Mack og Jules Cowl- es. ----------x---------- Frá Islandi. Ölafur Marteinsson lauk í gær prófi í íslenzkum fræð- ttm við háskólann. Voru ritgerðir 'hans svo snjallar, að honum var slept við munnlegit próf.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.