Heimskringla - 16.05.1928, Síða 4

Heimskringla - 16.05.1928, Síða 4
4. BLAÐSIÐA HEI1VISKRINGLA WINNIPEG 16. MAÍ 1928 ffjeimskrmgla < StofnuTi 18841) Krmar at A korerjnna mlVTlkndrff. EIGENDUR: VIKING PRESS, LTD. 853 o( 855 SARfiKNT AVB. WIBiNIPBd TAL.S1MII 8« 537 V«r3 blaBslns er $3.00 árgangurlnn borg- let fyrlrfram. Allar borganir sendlst THE VIKING PRiEfiS LTD. 8IGFÚ8 HALLDÓRS frá Höfnum Rltstjóri. Utanáekrllt tll blntUlnsi THR VlKING PIIKSS, I.td., Boz 8105 Utnnflnkrlft tll rltstJArnnni BDITOR HKIMSKKIÍVGL.A, Box 3105 WINNIPEG, MAN. “Helmskrlngla Is pnbllshed by The Vlklnic Prens Ltd. and prlnted by CITY PRINTIING « PUBI.ISHINO CO. 853-855 Snrsent A ve„ Wlnnlpeg, Mnn. Telephnnei .80 53 7 WINNIPEG MANITOBA, 16. MAÍ 1928 y-’&f | y Ellistyrkurinn Þau gamalmenni, hér í Manitoba- fylki, er ellistyrktarlögin ná til, eiga að verða hans aðnjótandi þegar á þessu hausti. og með því að ekki er langur tími til stefnu, en mörg íslenzk gamalmen-ni mega eiga styrksins von, sé í tíma á stað farið, þykir Heimskringlu rétt sé að skýra lesendum sínum frá því með hverjum hætti styrkurinn fáist, svo hún hafi þó gert sitt til þess, að enginn íslenzkur fylkisiborgari þurfi að fara hans á mis. Skilyrðin fyrir því að styrkurinn fáist eru þessi; 1. ) Að umsækjandi, hvort heldur karl eða kona, sé fullra sjötíu ára að aldri. 2. ) Að umsækjandi geti fært sönnur á borgararéttindi sín. 3. ) Að umsækjandi hafi verið tuttugu ár í Kanada, og fimm árin síðustu hér í fylkinu. 4. ) Að umsækjandi hafi ekki meiri árstekjur af atvinnu eða eignum en nemi $365.00, eða einum dal á dag. 5. ) Að umsækjandi hafi ekki orðið sekur við hegningarlögin, ekki framið glæp. Það er auðvitað áskilið, að umsækjandi verður að fullnægja öllum þessum skil- yrðum eigi umsókn hans að verða tekin til greina; ekki nóg að hann uppfylli að eins þrjú eða fjögur. * * * Sannanir þær, sem krafist er fyrir því að umsækjandi fullnægi öllum þess- um skilyrðum eru þessar: 1. ) Til þess að færa sönnur á aldur sinn, þarf umsækjandi að leggja fram annaðhvort skírnarvottorð eða fæðingar. Sé hvorugt fyrir hendi, en handbær heim. ilisbiblía, þegin að erfðum frá foreldrun- um, og hafi þeir, að brezkum sið, ritað nafn barnsins (umsækjanda) og fæðing- *rdag og ár í hana, er það einnig tekið gilt. Sé ekkert af þessu fyrir hendi, þá þarf umsækjandi að fá tvo valinkunna meðborgara til þess að eiðfesta það, að hann segi rétt til um aldur sinn. 2. ) Til þess að færa sönnur á borgara réttindi sín, verður umsækjandi að leggja fram borgaraskírteini sitt. Sé það ekki fyrir hendi (glatað), þá er þó tekið gilt, hafi umsækjandi tekið land itil yrkingar, ef hann getur lagt fram bólfestuvottorð sitt (search certificate). Geti umsækj- andi hvorugt lagt fram, mun þó enn tek- ið gilt, sé honum mögulegt að leggja fram vottorð frá héraðsrétti (County Court) um það, að hann hafi tekið borg- arabréf. 3. ) Til þess að færa sönnur á tuttugu ára landsvist í Kanada, og fimm ára fylkia vist, þarf umsækjandi að fá tvo valin- kunna nágranna sína eða meðiborgara, til þess að eiðfesta það, að hann skýri rétt frá um fylkis- og landsvist. — Það skal þó tekið fram, að eftir því sem vér vitum bezt, mun ekki litið svo á, að umsækjandi hafi fyrirgert eilistyrknum, þótt hann ljafi dvalið utanlands (t. d. í Bandaríkjun um) um nokkurt skeið, sé það fuilsannað að hann hafi komið til Kanada fyrir full- um tuttugu árum, og tekið borgarabréf, og fullnægi annars þeim skilyrðum, er sett eru um þetta atriði, svo sem frá hef- ir verið skýrt. 4. ) Umsækjandi verður sjálfur að eiðfesta það, að hann hafi ekki árstekjur, er fari fram úr $365.00. Miða ellistyrkt- arlögin til þess, að tryggja hverjum sjöt- ugum borgara lífeyri, er nemi að minnsta kosti $1.00 á dag. Um þetta atriði er það ennfremur tekið fram í lögunum, að hafi umsækj- andi átt fasteign, en gefið hana öðrum sér til próventu, eða jafnvel skilyrðis- laust, þá er hann ekki lengur umsóknar- fær. Hafi hann selt fasteignina, verður hann auðvitað, að skýra frá því hverjar tekjur hann hafi af því fé, hafi hann það á vöxtum sér til lífeyris, og kemur þá um- sókn hans til greina, nemi þær tekjur ekki $365.00 á ári. 5. ) Umsækjandi verður sjálfur að eið festa það, að hann hafi ekki orðið sekur við hegningarlögin, þ.e.a.s., ekki framið glæp, er hann hefir orðið að þola fangels- ishegningu fyrir, að lögum, t.d. morð, þjófnað, skjalafölsun, meinsæri, rán, íkveikingu, o. s. frv. Til glæpa telst auð- vitað ekki, þótt maður hafi orðið fyrir sekt im, eða einföldu fangelsi í þeirra stað. * * * Það þarf tæplega að brýna það fyrir öllum þeim, er til mála gétur komið, að eigi ellistyrksrétt, að sækja. En menn þurfa að gera það sem allra fyrst, því búist er við, að farið verði að veita styrkinn í lok ágústmánaðar, en á hinn bóginn ekki alveg víst, þótt vonandi sé, að til hrökkvi sú upphæð, $500,000, er Manitöbaþingið hefir ákveðið að leggja til styrksins, af sinni háifu. (Sambands stjórnin leggur fram jafn mikið fé og hver fylkisstjóm, samkvæmt ellistyrktar lögunum, er samþykkt voru í Sambands- þinginu.) Er því öruggast að koma um- sóknum sem fyrst á framfæri. Umsókn- ina á að stíla til; “The . Workmen’s Compensation Board, Old Age Pension,” og geta umsækjendur fengið þaðan til sín send eyðublöð þau, sem nauðsynleg eru fyrir umsóknina, jafnskjótt og um þau er beðið. Það skal að síðustu tekið fram, að þeir íslenzkir umsækjendur, er þurfa að skrifa heim til íslands, eftir fæðingar- eða skimarvottorðum sínum, skulu , leita þeirra hjá skjalaverði landsbókasafnsins í Reykjavík, herra Hannesi Þorsteinssyni, en ekki hjá sóknarprestinum í fæðingar- sókn umsækjanda. Vottorðin frá skjala verði kosta tvær krónur hvert, eða um 50 cent, og verður sú upphæð að fylgja vottorðsbeiðninni, ásamt fullu nafni um- sækjanda og foreldra hans og nafninu á fæðingarstað umsæikjanda. Sé skjala- verði skrifað strax, mun vottorðið komast hingað í tíma fyrir styrkbeiðnina. Stórblaðamennska Það veltur á ýmsu um tölu “stór- veldanna” í heiminum. Sem stendur teljast tæpast nema fjögur ríki til þeirra: Frakkland, Bandaríkin, Bretaveldi og Jap an. Herafli ræður um það hver ríki séu í stórveldatölu. Þó er nokkuð síðan tek- ið var að telja “blöðin” til stórveldanna, sökum áhrifa þeirra á ríkisráðsmennsk- una, utanlands og innan. Alþjóðleg viðskifti fara eftir utan- ríkisráðmennsku hvers ríkis. Öldum saman hafa þjóðirnar litið til þeirra manna, er þau annast, sem goðmagnaðra vemdarvætta með geislaibaug um enni. Enda er ekki frekar skortur á ráðgátum og dularfullum tilsvörum, er þeir láta lýð- inn til sín heyra, en var í goðsvörunum forðum daga. Nú eru menn þó nokkuð teknir að ráða í það, þótt of fáum skiljist enn til fulls, að eins og prestastéttin stóð forð- um að baki goðsvaranna, svo stendur nú auðvaldið að miklu leyti á bak við tilsvör og atgerðir hinna goðumlíku verndar- vætta hvers utanríkisráðuneytis. Og blööin, sem auðvaldið hefir að mestu komist vfir, að minnsta kosti flest þau, er mest mega sín, eiga það hlutverk af hendi að inna, að sveigja þjóðarvilj- ann í samræmi við goðsvörin. Menn em furðulega iítið farnir að átta sig á þessu ennþá, þrátt fyrir risaverk það, er ein- stakir menn, eins og t. d. Upton Sinclair, hafa unnið til þess að varpa raunsæisljósi yfir aðferðirnar. En öll vitneskja um þetta má oss þykja í‘róðl,eg og íhugunarverð, hvert sem vér búum í Evrópu eða Ameríku, Kanada eða Bandaríkjunum. Með ör- fárra ára millibili eru miljónir manna um víða veröld reknir út í ófrið og eyðilegg ingu, hvort sem menn vilja heldur kalla að ráði, eða óráði, hinna “goðmögnuðu”, og fyriir tilstilli blaðanna, þrátt fyrir það, að yfirleitt skirrist maðurinn við að drepa náunga sinn. Og þessu linnir ekki, fyr en mönnum skilst það yfirleitt. hvernlg blöðin, þetta volduga stórveldi fara að þessu: að siga hinum stórveldun- um hverju á annað og á varnarlaus smá- ríki. Hið nafnfræga vikublað “The Nat- ion,” sem gefið er út í New York, tilfærír nýlega ágætt dæmi um það hvemig unn- ið er í þessu efni. Dæmið er alveg nýtt af nálinni. Alveg nýlega, 25. apríl, átti öldung- deild Bandaríkjaþingsins, að greiða at- kvæði um ýmsar ályktanir, er kröfðust þess, að Bandaríkin skyldu þegar kalla heim það herlið, er Coolidge-Kellogg stjórnin hefir að þinginu fornspurðu haldið í Nicaragua, í ófriði gegn fresis- hetjunni Sandino, og fyrir tilstilli ýmissa fjármálahákaria frá Wall Street. Mörg- um þótti, sem töluverðar líkur væru fyr- ir því, að" öldungadeildin myndi fallast í þesar ályktanir. En sama morguninn, sem atkvæðagreiðslan skyldi fram fara. birtu stórblöð í Bandaríkjunum, frá hafi til hafs, fregn frá Nicaragua, með þessarí fyrirsögn, er skráð var risaletri á fram- síðunni: “Ræningjar í Nicaragua Myrða Bandaríkjamann.” “George B. Marshall, frá New York, aðstoðarráðsmaður La Luz y Los Angeles gullnámunnar, er tek- inn var höndum af mönnum Sandino, var myrtur, samkvæmt fregnum er hingað bárust í dag,” hafði stórblaðið “New York Times” eftir einkafregnrítara sínum, í borginni Managua, í Nicaragua. Sömu fregn fluttu öll blöð “Associated Press,” blaðahringsins mikla, er Upton Sinclair hefir bezt lýst. FYegnriti “Times” bætti því við að Sandino hefði skipað hers- höfðingjum sínum, að taka alla Ameríku- menn af lífi. Þetta hreif. Öldungadeildin felldi allar ályktanirnar. Copeland, öldunga- ráðsmaður frá New York, kvað meðal annars, mcir en í meðallagi blautgeðja, ef nú væri kallað heim herliðið úr Nicara- gua, er svo værí komið, að uppreisnar- menn þar myrtu ameríska borgara, er gegndu aðeins lögmætri atvinnu sinni. Ætti betur við að koma uppreisnarmönn- unum í fullan skilning um það, að Banda- ríkin myndu halda þar herliði sínu, unz hver Bandaríkjaþegn ætti vísa vernd gegn þessu morðingjafargani. Fleiri töluðu á sömu leið og sumir meiri eggjunarorðum. Jafnvel Borah greiddi atkvæði á móti ályktununum og sagði meðal annars, að slíkir atburðir leiddu í ljós nauðsynina, er borið hefði til ráðstafana forsetans til þess að vernda líf og eignir manna í löndum þar sem þessi ósköp kæmu fyrir. Og hinn ágæti Norris frá Nebraska, er ályktanirnar bar fram gat náttúrlega lítið annað gert, en dregið í efa að öruggt væri að reiða sig á þessar fregnir. Og þannig sigraði Cool- idge—Kellogg stefnan í öldungadeiid inni. En þegar næsta dag birtu biöðin sannleikann. Auðvitað þó ekki á fram- síðunni, þar sem rnest bar á. Enda ekki ólíklegt að flestir lesendur standi enn í þeirri trú, að Marshall hafi verið myrtur. En eftir að morðfregnin barst frá Nicaragua barst bréf frá Marshall, þess efnis, að hann lifði sem blóm í eggi þótt hand- tekinn væri. New York Times bætti við þeirri athugasemd: að “svo virðist, sem þessi fregn afsanni það, að menn Sandino liafi myrt Mr. Marshall!” Þetta “virðist,” minnir á það, er Mark Twain lýsti yfir því, hér um ár- ið, að dánarfregn sín væri bara töluvert orðum aukin. “The Nation” segir síðan: “Á grundvelli slíkra laga hafa Bandaríkin byggt stefnu sína í Nicaragua. Þegar sjó- liðið gekk á land í Nicaragua, 23. desem'ber 1926, var oss tjáð af hálfu stjórnarvaldanna, að “pólitísk afskifti yrðu engin”— þessi ráðstöfun væri til þess eins gerð, að vernda líf og eignir amerískra borgara. Síð ar, er það kom í ljós að hvorki lífi nokkurs Ameríkumanns, né jafnvel fjalakofa, hefði minnsta hætta verið búin, var oss sagt að herliðið hefði verið landsett til þess að varðveita skipaskurð aréttindi vor. Þegar það kom á daginn að báðir flokkar í Nic- aragua voru óðfúsir í það, að Bandaríkin gerðu skipaskurð gegnum landið, var oss tjáð að “leðurhálsarnir” (svo eru þess- ir ameríkiu sjóliðir nefndir í gamni) væru í Nicaragua til þess að koma á friði, og kenna landsmönnum aðferðina við heiðarlegar kosningar! í ellefu daga, eftir það að einn af að- mírálum Bandaríkjanna háfði sett ritvörð um öll símskeyti og .loftskeyti, frá aðalherstöövum sjóliðanna, fullvissaði ríkisráðu neytið oss um það, að engin ritvarzla ætti sér staíð. í tvo mánuði eftir að sjóliðarnir höfð u gert upptækan vopnafarm, er ætlaður var frjálslynda flokkn- um, og fleygt öllum vopnunum í eitt fljótið, neitaði ríkisráðu- neytið að sú fregn væri sönn; en þá loksins játaði einn em- bættismaðurinn, að sjóliðarnir hefðu gert upptæk vopn fyrir frjálslynda flokknum og “týnt” þeim á leið yfir fljót eifct. Þeg- ar Mr. Stimson, (í umboði Coolidgie forseta), í maímán- uði í fvrra hótaði Moncada hershiöfðingja (frjáJsilynda flokksins í Nicaragua) gjöreyði leggingu, nema hann legði nið- ur vopnin, en bauð honum $10 fyrir byssu hverja, ef hann gerði það, hélt Washington- stjórnin í fyrstu leyndum þess- um fregnum um hótunina og mútuna. 15. maí í fyrra til- kynnrí Mir. Stimson Bandaríkja þjóðinni: “borgarastríðið í Nic- aragua er nú að fullu á enda kljáð;” í október sagði hann að lið Sandínó “mætti heita gjör-tvístrað;” og núna í vik unni sem leið, rétt áður en San- dínó náði gullnámunum á sitt vald, var oss tjáð að hann væri iflúinn yfir landmælri Hondur- as. Hver öldungaráðsmaðurinn á fætur öðrum, sem atkvæði greiddi á móti þingsályktunartil lögu Norrisar, tók það fram, að vér hefðum aldrei átt að senda sjóliðana til Nácaragua, en úr því að vér værum nú einu sinni komnir þangað, þá yrðum vér að sitja sem fastast. Það er eldgamla sagan, upp aftur og aftur. Senniiega greiða þessir sömu öldungaráðsmienn gallharðir skakkt atkvæði aftur, úr því þeir á annað borð gerðu það í fyrstu. Enginn játar með glöðu geði að hann hafi látið leika á sig. Sannleikurinn er sá, að allir Ameríkumenn voru öruggir í Nicaragua, unz sjóliðarnir kom u; nú er hverjum Ameríku- manni þar hætta búin. Mar- shall er á lífi, en tuttugu og einn sjóliði hefir látið líf sitt fyrir hégóma ............” w dodds jKIDNEYl ___ : -M í fullan , aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndiu jneðuL ,við bak- verk, gigt og bröðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfabúff um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine CQmpany, Ltd., Toronto 2, Ont., og senda andvirðið þangað. Fyrirspurn viðvíkjandi fiskisamlaginu Betra er hálfur 'hleitur en algert fcrauöleysi, datt mér í fcug ’þegar ég las greinarnar í blööunum um fiski- félagiö fyrirlhuigaöa. Þetta er ekki aö fullu þaö sem ég hafði vonast eftir, þó stórt spor í áttina. Þó er ein spurning sem mig langar að leggja frarn, og é,g vona aö henni verði svarað opinlberlega, því ég álit hana svo þýöingarmikla, aö á henni geti oltið eindregið fylgi fiski- manna. Og spurningin er þessi: Er áætlað aö hluthafinn, eða ihlut. urinn hafi atkvæði í þessu félagi ? Eg meina: Hefir maðurinn með hundrað hluti, hundrað atkvæði eða eitt ? Eg álít, að ef hluturinn greiðir aftur atkvæði, þá verði þetta aldrei annað en félaig fiskikaupmanna, iþví þótt fiskimenn séu margfalt fleiri þá verða það þó peningar hinna fáu, sem stjórna. Af því að ég er Mr. Páli Reykdal lítið eitt málkunnugur, þá bið ég hann að svara. , í Virðingarfyllst, Kristinn Pétursson. ----------x----------- Halldór Kiljan Laxness í San Francisco Hal'l.dúr Kil/jan Laxnessv ritíhJöfi- undurinn ungi, hefir dvaliþ hér í San Francisco síðan itm nýár, og skrifað af kappi, eins og vant er. A þessum^sama tima hefir hann einnig flutt marga fyrirlestra á ensku, bæði hér og i nærliggjandi bæjum. Oak- land oig Berkley, um Island, sögu og þjóð, bókmentir og listir, og hvar- vetna verið framúrskarandi vel tek- ið, enda er hér talsverður áhugi með- al mentamanna að kynnast Islandi, og það svo, að ýmsir hérlendir menn hafa í hyggju að iheimsækja Islan i 1930.— Hann hefir einnig unnið að þýðinigu á sögu sinni “Vefarinn mikli frá Kasmír” á ensku ásamt kunn- ingja sínum hér og munu þeir langt á leið ko.mnir með venkið. Yms af stórblöðunum, svö seni “San Francisco Chronicle,’’ “San Krancisco Call,” “Oaikland Tri'bune” og “Oakland Times” hafa getið fyr- irlestra hans, drepið á æfi hans oj£ starf, og haft samtöl við hann, t. d. um skilnað Islendiniga og Dana. “Bien” blað Norðurlandamanna, hef- ir eftir honum að hann sé að semja tvær nýjar bækur, sögu sem blaðið kallar “De Udstödte,” en hana mun höfundur kalla “Fimtu stétt” á Is- lenziku og fjallar hún um útskúf og afhrök mannfélagsins. Sömuleiðis er hann að skrifa fræðirit í ritgerða- formti, sem fjaljar um uppeidisjnái

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.