Heimskringla - 19.09.1928, Page 4
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 19. SEPT. 1928.
4
—*
'peítnskríngla
(ItofBsV IMM)
Keaior «t I fcwjom mltlrtkodeft
BIGENDITR:
VIKING PRESS, LTD.
8SS • K 8SB SAKfiBKT AVB., WllUflPíe
TALSt VI11 80 587
V«r* blaUstns »r **.6e trganíttrtnn barg-
t*t fyrlrfram. Allar borganir sendnt
THE VIKING PR9SS LTD.
SIO-FÚS HALLDÚRS frá Héfnum
Hltítjórl.
VtBBANkrtlt tU btBllBlOII
THB VIICIWO PHIfl*8, lAd., IVoi SIOB
litnn Askrlft ttl ritBtJttranli
BDITOR MRIMSKKlWoLA, H»» SIOS
WINNIPEtí, MAN.
“HelmskrlnKla t* pabHsJteO by
The Vlkltia Prrni l,ttl.
and prlnted by
OITY PHINTINO « PPHI.ISHfNO CO.
KSS-8BB 8» rtrent Are.. Whotpfl, Mnn.
Telephonet .80 BS T
WINNIPEG, 19. SEPT. '1928.
Smith eða Hoover?
Sú spurning er nú á allra vörum,
sem eðlilegt er. Því allir vita, að hvorki
Norman Thomas, forsetaefni jafnaðar
manna, né W. Z. Foster, forsetaefni komm
únista eiga sér hina minstu möguleika
til þess að setjast að í “Hvíta Húsinu”
næstu fjögur árin. Næsti húsbóndi þar
verður annaðhvort Alfred E. Smith, rík-
isstjóri í New York ríki, eða Herbert.
Hoover verzlunarmálaráðherra.
Báðir eru þeir um ýmislegt afburða-
menn. Mega Bandaríkjamén/^ að því
leyti vel við una, að hvernig sem kosn-
ingin fer, þá skipar forsetasætið mikil-
hæfur maður, í stað núllanna tveggja, er
þar hafa setið síðan 1920, einhverra al-
gagnslausustu miðlunga er það embætti
hafa skipað um langan tímia. Er auð-
lesið á milli línanna í öllum blöðum Re-
publíkana, þótt auðvitað taki þau silki-
hönzkum á Coolidge, hve ánægður flokk-
urinn er yfir því, að hafa nú loksins fram-
bærilegt forsetaefni á boðstólum.
Herbert Hoover er heimskunnur
maður fyrir líknarstarfsráðsmennsku sína
fyrir hönd Bandaríkjanna, í Belgíu og á
Rússlandi, á ófriðar og hallærisárunum,
um og eftir ófriðinn mikla. Einnig er
hann kunnur fyrir starf sitt til hjálpar
nauðstöddum í Mississippi flóðinu mikla
í hittifyrra, og leysti hann þar mikið
verk af hendi, þótt eigi treystist hann
til þess að standa við úrlausnartillögur
sínar og loforð, gegn andstöðu flokks
síns, þegar tii kom. Hann er verkfræð-
ingur og þykir framkvæmdahagsýnn í
bezta lagi. Hann hefir víða farið og
er vel kunnugur bæði í Asíu og Norður-
álfunni, og vel metinn, ekki sízt á Eng-
iandi, og hafa einstaka heimskir menn,
eins og “Big Bill” Chicagoborgarstjóri,
sem annars er flokksbróðir hans, talið
honum það síðasttalda til ámælis! Hann
væri brezkhollur og ekki nógu föðurlands
sinnaður! Hann er kvekari, og hefir,
eins og þeir margir, almenningsorð á
sér, að hann sé drengskaparmaður og
heiðarlegur í hvívetna.
Þótt hann hafi átt sæti í ráðuneytum
Hardings og Cooiidge, þá hefir hans ekki
verið getið að miklu í sambandi við póli-
tfk, og engan orðstír getið sér á því
sviði. Þykir mörgum nú, er virða hann
mikils persónulega, ilit tii þess að vita, að
hann skyldi þegjandi halda embætti sínu
í ráðuneyti Hardings, undir öllum þeim
svívirðingum er þar gengu á, með þeim
þorpurum, er verstir hafa skipað ráð-
berraembætti í Bándaríkjunum, sumir
hverjir.
Og satt að segja bendir ekki ræða
hans, er hann tekur tilnefningu repúblí-
kana nýlega, til mikilla framtíðarafreka
pólitískra. Þar talar fyrst og fremst
dyggur flokksmaður, en ekki sterkur,
sjálfstæður persónuieiki. Afstaða hans
til flestra mikilvægustu viðfangsefna er
víðast ákaflega ioðin, eða þá staur.í-
haldssöm og ómerkileg á Coolidgska
vísu.
Hann er skiljanlega og afsakanlega
afskapiega hrifinn af vélamenningu
Bandaríkjanna og auðmagni þeírra. Og
hann þakkar náttúrlega repúblíkönum
alla þá velmeguh, sem uppfindingar, vís-
indi og viðskifti hafa flutt Bandaríkjun
um í hlað síðan á ófriðarárunum. Hann
hefur fjármálavizku Hardings og 'Cool-
idge til skýjanna og kveður engann með-
réttu geta efast um það að “fjársýslukerfi
vort er óskeikult í meginatriðum.” Land-
búnaðinn vill hann rétta við með tröll-
háum (“100%”) tollvarnargarði, og með
því að verja svo hundruðum miljóna dala
skiftir til þess að grafa skipaskurði um
landið til flutningasamkeppni við járn-
brautarfélögin. Hann lofar hinn nauða
íhaldssama verkamannaflokk í Banda-
ríkjunum, en er beizkur í garð hinna fá-
mennu jafnaðarmanna. Hann kennir
eltki auðvaldsstjórnunum í Evrópu, sem
djöfluðu mönnum út í ófriðinn og lögðu
þar með það sem þær gátu í kaldakol,
um ófarnaðarástandið þar, heldur jafn-
aðarmannastjórnunum, senx eru nú að
koma þjóðunum á laggirnar aftur! Hann
lofar ráðsmennsku Coolidge, sem hann
segir að hafi “sett mark stjórnvizku og
réttmennsku á þjóðina, en minnist hvergi
á Nicaragua og önnur afrek í þá átt.
Hann fordæmir alla pólitízka spill-
ingu með hjartnætoum orðum,
og áfellist almenning fyrir það hve skeyt-
ingarlaus hann sé í þeim málum. En
hvergi víkur hann að svívirðingum Hard-
ingsstjórnarinnar, né öllum þeim póli-
tízka óþverra, sem Coolidge hefir látið af-
skiftalausann. Og tal hans um bann-
málið er aimennt froðusnakk. Hann
lýsir því yfir að hann sé einbeittur bann-
maður (þó er sagt að hann muni ekki
vera bindindismaður sjálfurF; að bannið
sé stórkostleg þjóðfélagsleg tilraun og að
stjórnarskrána verði að halda. Auð-
vitað hafi afskapleg spilling og vanræksla
komið í ljós með eftirlitinu og það þurfi
að bæta. En hvergi er að sjá ákveðnar
tillögur né sannfærandi vilja til þess að
gera enda á öllu því pólitízka og þjóðfél-
agslega svínaríi, glæpum og stórmútum,
sem það hefir haft í för með sér.
Yfirleitt er ekkert nýtt á ræðu Mr.
Hoovers að græða. Það helzta sem á
henni má skilja er það, að hann ætli sér
að feta í fótspor hins goðumlíka Calvins
Coolidge, sem öllum gleymist, jafnharðan
sem hann er kominn í stjórnmálagröf
sína; muni verða verkfæri í höndum
flokksbræðra sinna, eins og hann.
Helzta hugguninn þá sú, að Herbert
Hoover er óneitanlega glæsilegra verk-
færi en Calvin Coolidge eða Warren
G. Harding.
» * *
Alfred E. Smith ríkisstjóri er alinn
upp í fátækrahverfi New York borgar,
og fór á mis við háskólamentun. Hann
er írskur að ætt og kaþólskur. Lagði
sig snemma eftir pólitík og vakti eftír-
tekt fyrir gáfur sínar og stjórnmennsku-
hæfileika, unz hann var kosinn ríkisstjóri
í New York ríki. Hefir hann nú gegnt
því embætti fjögur kjörtímabil í röð,
enda hefir hann getið sér þann orðstír að
hann er aimennt talinn að öllu mikilhæf-
asti ríkisstjóri Bandaríkjanna. Hlann
þykir frábærlega skilningsgóður á menn
og málefni; sjónæmur og stálminnugur,
og manna bezt til foringja fallinn. Er
hann talinn vel mentaður maður, eins og
almennt er skilið, þrátt fyrir skort á há
skólagöngu, og sérstaklega kvað hann
fjármálafróður með afbrigðum. Hann
hefir getið sér orðstír fyrir það, að
standa á verði að ýmsu leyti fyrir rétti
hinna lítilsigldari og almennings. Sér-
staklega er hann frægur af baráttn
sinni gegn vatnsvirkjunarhringnum í
New Yorlc ríki, fyrir hönd opinberrar
virkjunar. Jafnframt hefir hann getið
sér orð fyrir það, síðan hann varð ríkis-
stjóri, að hann væri óragur við það að
halda fram sjálfstæðum skoðunum, þvert
ofan í flokksbræður sína, ef honum þætti
miklu skifta. Vinsæll er hann sagður
öllum mönnum, er honum hafa eitthvað
kynnst sjálfum, enda nýtur hann, eins og
Hoover, almenningstrausts fyrir persónu-
iega ráðvendni. —
Margt í ræðu þeirri er Smith hélt,
er hann tók við tilnefningu flokks síns
nýlega, ber vott um þá eiginleika, sem hér
eru að framan taldir. Og það er ólíku
saman að jafna, hve yfirlýsingar hans
eru langt um ákveðnari og djarfari en
Hoovers, þótt auðvitað sé töluvert flokks
bragð þar að finna. Enda varð hann
eins og allir demókratar í New York, er
skifta sér af stjómmálum, að inna af
hendi sína pólitízku herskyidu í her-
búðum Tammany hringsins, sem frægari
er fvrir annað en ósíngirni. En yfir-
leitt er það fullyrt, að síðan Smith komst
í ríkisstjórnembættið, hafi hann eigi látið
hringinn hafa áhrif á gjörðir sínar. —
En þrátt fyrir fiokksbragðið, er þó langt
um hærra til iofts og víðara til veggja
hjá Smith en hjá Hoover, þegar ræður
þeirra eru bornar saman.—
Um utanríkisstarfsemi stjómarinn-
ar kemst hann meðal annars svo að
orði:
“Engri yfirlýsingu í stefnuskrá vorri,
(Dem.) get ég veitt ótrauðara fylgi en
þeirri, að með öllu skuli taka fyrir þá
venju, að forsetinn geri samning um það,
að miðla málum í innanríkisdeilum latn-
esku Amerískuþjóðanna, nema að öld-
ungaráðið hafi veitt leyfi til slíkra samn-
inga, eins og stjórnarskrá Bandaríkjanna
mælir fyrir. Eg geri að mínu máli það
sem tekið er fram í stefnuskránni: “1-
hlutun um hrein innanríkismál latnesku
Ameríkuþjóðanna má ekki eiga sér stað
framar,” og ég skuldbind mig sérstaklega
til að fvlgja þessari yfirlýsingu með til-
liti til Mexico jafnt sem hinna annara
iatnesku Ameríkuríkja."—
•Smith fordæmir líka ótvíræðilega
hina andstyggilegu ofbeldiskenningu
Coolidge, að amerískir borgarar búsettir
í útlöndum og eignir þeirra þar, séu á
valdsviði heimaþjóðar sinnar, <sbr. Mex-
ico, Nicaragua, o. s. frv.) og spyr hvort
Bandaríkjamenn myndu fallast á þá
kenningu, er heimilaði Frökkum, Eng-
!endingum eða Þjóðverjum rétt til þess
að skoða borgara sína, sem búsettir eru
í Ameríku og eignir þeirra þar, sem til-
heyrandi valdsviði þessara þjóða, hverrar
um sig.
Hann er ekki eins sannfærður um
það og Hoover, að “fjársýslukerfi vort
sé óskeikult í meginatriðum.” Hann
kveðst þvert á móti alls ekki vera við
því búinn, að “viðurkenna að gamla fyr
irkomulagið sé bezt, unz ég er sannfærð-
ur um að eigi sé unnt að endurbæta
það.”
Hann viðurkennir að landbúnaður-
inn eigi hið versta uppdráttar, og viil
kalla sérfræðinga til íhugunar og sér til
aðstoðar. Hann játar hispurslaust, að
stjórnin hafi tekið í tauma lögmálsins er
ræður eftirspurn og framleiðslu, iðnað-
ar-, verzlunar- og fjármálahákörlum í
vil, og kveður skipulagða samvinnusólu
og geymslu afurða, sem afgangs eru
neyzluþörf, lífsskilyrði fyrir bændur.
Stórhreinlegar eru yfirlýsingar hans
um vatnsaflið. “Vatnsorkulindirnar,”
segir hann, “verða um aldur og æfi að
vera í eign og umráðum hins opinbera.”
Fólkið verður að eiga og annast orku-
gjafann og órkuverið, “verður að hafa
hald á snerlinum, sem stöðvar eða starf-
býr aflið, sem ýms einkafélög eru svo
gráðug í, án minnsta tillits til almenn-
ingsheilla.” Hann fer hörðustu orðum
um hina “ærulausu og óþjóðlegu fylgis-
öfiun” vatnsvirkjunarfélaganna, þrátt
fyrir það, að með þeim orðum gengur
hann í berhögg við ýmsa vini sína og
fylgismenn, að því er hermt er.
Jafn stórhreinlegar, og ef til vill enn
djarfari, eru yfirlýsingar hans um bann-
stefnu sína. Hann álítur að bannið
hafi alls eigi náð tilgangi sínum að auka
bindindi. Hann vill auðvitað framfylgja
lögunum meðan þau eru í gildi. En
þótt hann vilji aldrei mæla bót né leggja
lið löggjöf, er heimili brennivínskrárnar,
þá álítur hann heppilegast að hvert ríki
um sig ákveði, hvað teljast skuli til á-
fengra drykkja, og jafnvel leyfa hverju
ríki að brugga. vín fyrir innanríkisneyzlu
eingöngu, ef ríkisbúar samþykkja það
með almennri atkvæðgreiðslu. Og hann
álítur heppilegt, að Bandaríkin taki sér
kanadiska vínsölulöggjöf að mestu leyti
til fyrirmyndar.
Þetta er því djarfmannlegar mælt,
sem suðurríkin, aðalvígi demókratanna
eru yfirleitt “þur.” Og ennfremur fyr-
ir þá sök, að enginn efi er á því, að af-
staða manna til vínbannsins ræður miklu
um kosningarnar. Svo miklu, að bæði
Hoover, allir helztu pólitíkusar gömiu
flokkanna og flokkarnir sjáifir á tilnefn-
ingarfundnnum hafa farið í kring um
það vandamal, eins og kettir í kringum
kraumheitan grautarpott.
* * *
Það er illmögulegt að spá nokkru
um afdrifin. Coolidge vann, «em menn
muna með yfirgnæfandi meirihluta yfir
demókrata. En ekki er ólíklegt að hin
skorinorða og frjálsmannlega tilnefning-
arræða Smiths muni draga í hans skut
mest af þeim 5,000,000 framsóknarat-
kvæðum, er greidd voru La Follette eldri
við síðustu forsetakosningar. Enn-
fremur er enginn efi á því, að afstaða
Smiths til vínbannsins, riðlar töluvert til
flokkunum, en hvort hann græðir við það
eða tapar er ómögulegt að
segja með nokkurri vissu, þótt
ef til vill sé|u nokkrar h'kur
fyrir því, að hann heldur græði
á afstöðunni. En þar á móti
eru líkurnar ef til vill heldnr
meiri fyrir því, að hann tapi
þá jafnmiklu á því, að hann er
kaþólskur maður, því það hefir
æst heilan fjandaflokk ofstækis
mnana andmælendatrúar á
móti honum.
í raun réttri skiftir það senni
lega ekki afarmiklu máli hver
flokkurinn kemst að völdum.
Báðir eru íhaldssamir í bezta
lagi. En þó skiftir nokkru um
forsetann, þegar kemur íil em-
bættaskipana og utanríkisvið-
skifta Ameríku, þótt vald hans
takmarkist auðvitað af þing-
ræðinu, ef hann þá ekki kemst
af með að virða það að vett
ugi teins og Coolidge, með
Nicaragua. Og þótt oss satt
að segja hafi fundist heldur
minna um demókrataflokkinn
yfirleitt, eða réttara sagt meira
mannval meðal repúblíkana
síðustu árin, þá myndum vér
þó óhikað greiða Smith at-
kvæði að þessu sinni, ef til þess
hefði getað komið, sem álit-
legra forsetaefni, og iíklegri til
heillavænlegrar starfsemi fyrir
Bandaríkin, utan ríkis sem
innan.
---------X---------
“Þegar tjöldin”
(Frh. frá I. bls.
I at’hugasemdunum viö 8. grein
notar höf. falsþýðinguna og blöskrar
sú byrði sem nefndin ieggur á bak
járnbrautafélögunum. Hún ætlar
sér “að vera á þönum út og suður,
um allt land,” “ferðast eftir vild á
kostnað flutningsfélaganna.” Það
er nokkuð rtfur skilningur sem
lagður er í orðið ‘‘trip pass,’’ en það
er nú allt sem greinin fer fram á.
Hjá járnbrautafélögunum eru gefn-
ir út tvennskonar fanbréfa-seðlar ó-
keypis. Ná þeir til þeirra er að
einhverju leyti starfa að flutningi
eða ferðalögum með járnbrautum og
gufuskipum. Gildir annar til árs,
og er nefndur “annual pass,” en hinn
til einnar ferðar, er farin er til á-
kveðins staðar, og er nefndur “trip
pass.” Fram á þenna síðari seðil
er farið fyrir hönd nefndarmanna í
þessari 8. grein ef natiðsvn krefur
að þeir geri ferðir til einhvers stað-
ar í þágu þessa máls. Hve ósann-
gjarnt það er, live miklu fé það kann
að sópa úr vösum Islendinga geta
lesendur gert sér hugmynd um. En
þetta eru þær “þanir, út og suður,
um allt land,” er nefndin ætlar sér
að vera á. Ætli að flutningskostn-
aður á korni og allri landvöru hefði
hækkað að stórum mun þó þessi til-
mæli hefði verið veitt? En svo má
gleðja höf. með því að fyrir stak-
an mótróður úr vissri átt og rang-
færzlur hefir kröfu þessárí verið
synjað, og léttir það þá einum “toll-
inum’’ af ’honum og skjólstæðingum
hans flutningafélögunum. Þarf nú
ekki að fárast yfir því, að með þess-
ari ivilnan sé létt undir með nefnd-
inni við undirbúnings verkið. Það
er ekki eini þröskuldurinn sem laigð-
ur hefir verið í gptu þessá málelnis
og verður að líkindum ekki hinn síð-
asti.
Þó heimfararnefndin hafi ekki
*gert sér hið minsta far um að lýsa
gjörðum hinna s'vonefndu “sjálf-
boða,” sem þeir hafa gert gagnvart
Heimfararnefndinni, en kosið að láta
flest fáryrði þeirra og sakargiftir
‘þeirra sem vind um eyrun þjóta, mun
þó svo komið að almenningi sé Ijóst
hvor meir starfar í þágu heildarinn-
ar. öllum er Ijóst að tilgangur
“sjálfboðanna” með afskiftum þeirra
af heimfararmálinu er ekki sprottin
af virðingu fyrir sjálfu ntálinu, ekki
af þjóðrækni né löngun til að draga
hugi Islendiroga saman, ekki af þeirri
tilraun að vilja hefja þjóðina til
frekari virðingar í augum samborg-
ara hennar, ekki af samvinnulöngum
við Island. Svo mikið er sýnilegt
af því, sem þeir hafa ritað. Til-
gangurinn er persónulegur, þvi mið-
ur, og hefir aldrei annar verið. ÞaS
er enn ótímabært að draga hann
fram og lýsa honum eins og hann er.
En þegar aS þeim tíma kemur, “þeg-
ar tjöldin verSa dregin frá,’’ og al-
tnenningur nær að skilja til hlítar,.
hver sá tilgangur er, getur svo fariS
aS af sumum þeirra kunni aS renna
"draimhlætisþrotinn”. sem skáldiS
forna nefnir, og þá líka af grimu-
mönnum er að baki þeirra standa og
feig hafa viljað ferðasamtökin.
II.
Helzt er svo aS skilja á niSur-
lagsorðum höf. aS þessi illræmdu
samningsatriSi, sem Islendingum er
sv^ mjög til vanvirðu muni nú þeg-
ar vera viStekin, milli nefndarinnar
og “einhvers línufélags, — hann veit
ekki nafniS á því, fann þaS ekki “á
bak viS tjöldin.” Sölulaunum slær
höf. santan við fjárveitingu Sask..
stjórnarinnar, í því skyni að sýna aö
nefndin sé ekki aS starfa fyrir ann-
aS en “centin,” “hinn almáttrogi doll-
ar virðist vera hennar leiðarstjarna.”
Endar hann svo ritgerðina á þessa
leið: “Finst nú nokkrum sem fylgst
hefir með gangi þessa máls frá byrj-
un, aS Heimfararnefnd ÞjóSræknis-
félagsins geti hér eftir vænst þess,
að henni einni, sé trúaS fyrir fram-
kvæmdum í þessu máli ?” Hógvær
bending til almennings um aS láta
sig ekki skorta til liðveizlu oig fylgd-
ar viS andstæSinga nefndarinnar.
Óþarft er aS taka það fram, aS
hið ónefnda línufélag, sem nefndiri
hefir enn ekki samið viS, hefir ekki
enn greitt nein umboðslaun til henn-
ar. I vösum hennar er því ekki aö
leita eftir $80- eöa $82,000. Samrí-
ingsatriöin eru enn ekki undirrituö
þó þau fiest séu bréfloga samþykt og
r.efndin bjargað þeim, til hagnaðar
fyrir væntanlega heimfarendur. O-
þarfa herör er þvi skorin upp. Sem
öilum er ljóst, er lesið hafa upp-
kastiö er ekki svo frá því gengið. aö
ætlast sé til aö það geti skoðast sem
samningur. Þaö er eigi annaö en
upptalning einstakra atriöa er marg-
oft höfðu verið rædd af hlutaöeig-
andi flutningafélögum og nefndinni.
sum boðin — sem nefndin ætlaSist til
að tekin yrði inn ‘ í væntanlegan
sanminig. Var þetta meS vilja gert.
En svo stóS á því, og er það upp-
haf þessa ntáls, aS í byrjun juní-
mánaðar beiddist umboSsmaSur einn-
ar gufuskipalinunnar þess, að lögö
yröu frarn skriflega, þau samnings-
atriði er nefndin færi fram á fyrir
hinni væntanlegu heimför 1930.
VarS forseti nefndarinnar vel viö
því og kallaði saman ntenn þá er aS-
alnefndin hafði útnefnt í samninga-
nefnd á fundinum 20—21. maí.
Fóru þeir yfir þau bréf og tilboS er
nefndinni höfSu boSist, fram aS
þeim tíma, og sömdu svo þetta upp-
kast, nteS hliðsjón til þeirra. öllum
kom saman um að bera uppkastiö
undir aðalnefndina og var þaS gert
á fundi er haldinn var 22. júní. Vora
liSirnir samþyktir meS smávægi’legum
breytingum, aS undanteknum þeini:
fjórða, er feldur var burtu. HafSí
þá nefndin komist aS því vikunni áð-
ur. aS “sjálfboSar hefSu. afhent
Cunard-Iínunni skilmálalaust “flutn-
inginn’’ í umboði “mikils hluta Is-
lendiroea.” ÖttaSist nefndin aS meS
því gjörræði yrSi ef til vill kippt
til haka þeim afslátta tilboSum er
þegar voru fengin, er einu öflugasta
linufélaginu væri fengiS slíkt yfir-
skvns umboS, Hnýtti hún því viS-
auka greininni neSan viS uppkastið..
er krafðist svars innan hins 26. sama
mánaðar (ekki 26.' júlí). Fengist
svör er staðfestu enn á ný fyrsftt
atriðin, var þeim horgiS, hvaS sem
hinum liðu er á eftir komu, og far-
bréfaverðinu, er húist var viS aS
gæti orSið allmikill reipdráttur um„
er svo var komiS, og vanséS hvorf
fengist. Var þó aS minsta kosti all
miklu borgið. »
En þannig stóS á því, aS nefndin
komst aS þessum “Cunard* samningi”
sjálfboðanna, aS bréf barst einum
nefndarmanni frá N. York, þar sem
þessa var igetiS og heSið jafnframt
um upplýsingar á auglýsingaverSi í
“Heimskringlu.” Svo leynt höfðu
fjórmenningar sjálfboSanna farið
með þenna “samning” að jafnvel fél-
agar þeirra þrættu fyrir að þeir vissu
nokkuS um hann, og sjálfir létu þeir
þræta fyrir hann, á almennum fundi
á Brú í Argylehvgð, sama kveldið
Og hann var opinberaður í “Lög.