Heimskringla


Heimskringla - 21.11.1928, Qupperneq 4

Heimskringla - 21.11.1928, Qupperneq 4
4. BLAÐStÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 21. NÓV., 1928 WINNIPEG 21. NÓV., 1928 “Sveitin” eða sjálfstæðið Það er svo um sveitarstjórnarkosn- ingarnar er nú fara í hönd í Bifröst, að jafnvel á þessum málafylgjutímum, láta flestir íslenzkir lesendur, er nokkuð hugsa, hugann hvarfla frá öðru og víkja þang- að. í>ví flestum þykir það auðsætt að þar sé meira í húfi fyrir íslendinga, held- ur en staðbundið peningaatriði. Nægir að benda til þess eins, þótt annað fleira fljúgi í hugann í því sambandi, eins og hér hefir af ýmsum verið minnst á áður, hvílíkur hnekkir það væri orðrómi þeim, er legið hefir á velgengni íslendinga hér í álfu, og eigi að ástæðulausu, að mörg- um finnst, ef sh'kt hérað sem Bifröst sæi það eitt ráð framundan, að fara á “sveit- ina,” þ.e.a.s. á fylkisnáðir. — * ♦ * Vér áttum nú um helgina aftur tal við Mr Thor Lífman, sveitarráðsmann, frá Árborg. Kvað hann gjaldendafund hafa verið haldinn að Geysi á laugardag- inn, og hefði hr. Valdi Sigvaldason á þeim fundi verið tilnefndur meðráðamað- ur fyrir 1. deild sveitarinnar. Fyrver- andi meðráðamaður, Gísli kaupmaður Sigmundsson frá Hnausa var ófáanlegur til þess að gefa kost á sér aftur, en lof- aði að styðja Sigvaldason það er hann fengi viðkomið. Valdi Sigvaldason er vel þekktur meðal sveitunga sinna, fyrir hygigndi og ráðdeildarsemi, enda hefir hann jafnan staðið framarlega í þeim málum, er miða til þess að efla velgengni og framfarir bænda. Hefir hann verið í nefndum rjómabúsins og bændabúðar- innar. Hann er ákveðinn í því, að gera sitt ítrasta til þess að sveitin fái að halda sjálfstæði sínu, og jafn ákveðinn í því, að gera sitt til þess að sneitt verði af henni. Hann er einn af þeim mönnum, er eigi vilja láta víl og væl ganga yfir höfuð sér sem vígorð í þessum kosn- ingum, heldur grafa á skjöld sinn eink unnarorð kjarks og ráðdeildar frum- byggjanna, er ekki voru fyr setztir að, en þeir komu á með sér hinu merkilegasta fyrirkomulagi um sveitarstjórn; réðu frá upphafi fram úr sínum vandræðum sjálf- ir, sem þó óneitanlega virðast oss æði mikið brattari í fangið á að sjá en þau, er nú þarf að yfirstíga, án þess þó að minna sé úr þeim gert en ástæða er til. r * * * m Eðlilega ber margt á góma nú undir kosningarnar, af því sem héraðsmönn- um er niðri fyrir. Var að skilja á herra Lífman, að tvístringarmenn (en svo munu þeir íslendingar nefndir, er vilja skilja sig frá meirihluta landa sinna og segja sig á fylkisnáðir) myndu ekki hvað um- svifaminnstir, og þá ekki endilega leggja sannleikann í einelti, þótt þeir kynnu að sjá honum bregða fyrir. Ein aðalbeitan, er þeir legðu fyrir gjaldendur væri sú, að ef til þess kæmi að skorið yrði af sveitinni, þá myndu skattskuldir útjaðranna, er af yrðu sneidd ir algerlega tapast sveitinni, en hún samt sem áður sitja með alla skuldasúpuna. Vér bárum ke/insl á þessa beitu, því einmitt rétt fyrir helgina var hér stadd- ur merkur bóndi og greindur úr Bifröst- sveit, er innti oss eftir því, hvort þetta myndi geta átt sér stað.. Vér vorum þá ekki fróðari en hann. Þess glaðari urðum vér, er svo vel bar í veiði, að hr. Lífman hafði með sér þau gögn, er taka af öll tvímæli og ósanna þenna frétta- burð. Árið 1913 var Gimlisveit skift í tvær sveitir: Gimli og Kreuzburg. Jarðamat og fjárhagsástand var þá sem hér segir: Jarðamat: Gimli Kreuzburg Alls $260,414.00 $200,470.00 $460,884.00 Eignir ..............24,637.53 Skuldir .............17,309.47 Sléttar eígnir............$7,328.06 Nú er skift var milli sveitanna, þá kom ^ í hlut: Gimli Kreuzburg Alls $4,140.55 $3,187.51 $7,328.06 Sézt greinilega af þessu, að skifting- in fer fram á þann hátt, að algerlega er skift eftir mati á jarðeignum sveitanna Gildir það bæði um eignir og skuldir, svo að af hvorutveggja kemur hlutfallslega nákvæmlega jafn mikið í hvern hlut * * * Nú vill svo vel til, að fram býður sig til oddvita Sveinn kaupmaður Thorvald- son frá Riverton, einmitt sá maðurinn, er drýgstan þátt átti í því að fá framgengt þessari sveitarskiftingu (Gimli og Kreuz burg). Veitir ekki af allri þekkingu hans og reynslu, enda geta engin tví- mæli leikið á því, í hugum allra óvilhallra manna, að afarmikið heppilegra er fyrir sveitina, að láta hann annast þær fram- i kvæmdir, er fyrir liggja, í stað þess manns, er endilega vill sveitina á náðar- arma fylkisstjórnarinnar. Mættu flest- ir það skilja, að af slíku vantrausti, er nú- verandi oddviti auðsjáanlega ber til ráðs- mennsku sinnar og héraðsmanna, er harla lítils að vænta í þá átt, að rétta við fjárhag sveitarinnar. Því er og vitanlega haldið fram af núverandi oddvita og fylgismönnum hans. að það myndi verða sveitinni óbætanlegt tjón, ef útjaðrarnir væru sneiddir af. Á móti þeirri staðhæfingu, er Gimli-Kreuz- burg skiftingin óbrigðulasta röksemda- færslan. Gimlisveit stendur sig prýðilega. En Kreuzburg varð að fara á “sveitina’- eftir 7 ár, frá því að skilnaðurinn varð. og það með $60,000 skuld á baki. Og hr. Lífman hefir það eftir hr. Einari Jónssyni, núverandi ritara Gimli-sveitar, að skattar í Kreuzburg eru nú alveg eins háir og í Gimlisveit. Er það enn ein sönnun fyrir því, er hér hefir verið haldið fram áður, að það er ekki einu sinni endilega hinn minnsti fjárhagslegi ábati að því fyrir sveitirnar, að varpa öllum sín- um ráðsmennsku áhyggjum upp á fylkið, að ekki sé talað um öll þau óþægindi, er, auk beinnar hneisu, fljóta af því að glata efnalegu sjálfstseði sínu. Þá er eitt enn, sem liðsmenn oddvita kvað hafa allmikið í hámælum, en það er, að McLeod ráðherra eigi að hafa skift skoðun sinni svo, að hann telji nú öll tormerki á því, að fá sneitt nokkuð af sveitinni. Inntum vér hr. Lífman eftir þessu, og kvað hann þá skoðanabreyt- ingu hafa hlotið að verða nýlega og snögg lega, því 4. okt. hefði ráðherrann talið að vandalaust myndi vera að skera norð- an af sveitinni. Til frekari áréttingar náði hr. Lífman símtali af hr. I. Ingald- son, fylkisþingmanni Gimlikjördæmis, og frétti hann, ef hann vissi nokkuð um það, að ráðherra hefði snúist svo hugur. Hafði Mr. IngaMson ckkert heyrt er benti til þess, og er þó líklegra að ráðherra hefði fullt eins vel á það minnst við hann, eins og einhvern annan, er að garði hans kynni einnig að hafa borið. * * * Þessi meginatriði fylgisöflunar þeirra, er vilja segja sig til “sveitar,” eru, eins og þeir sjá, er athuga vilja, aðeins tómar grýlur. Því fremur ættu allir ís- lendingar í Bifröst að ganga til sveitar- kosninganna þar, fyllilega ákveðnir í því, að traðka ekki svo sjálfsvirðingu sína, að láta sér engu þroskaðri menn draga sjálfsforræðið úr höndum sér, fyrir einn spaðbita, sem er þá helzt líka hvergi til, nema í ímynd þeirra, er láta grýlusög- urnar ægja sér. Þeir búa sér enga betri framtíð, með því að taka þæír til greina. Og feðrum þeirra og mæðrum, öfum og ömmum, frumbýlingunum gömlu, sem sjálfstraustið og sjálfsvirðingin skilaði ekki aðeins ósködduðum, heldur meiri og betri manneskjum, gegnum hallæri, stórflóð og drepsóttir, verður grafarvist- in heldur ekkert rórri, þótt afkomendurnir leggi árar í bát. Virkið Þrœlafossana Oss þætti ekki ólíklegt, ef heimilis- feður, — og þá ekki síður mæður — hér í Winnipeg væru spurð að því, hvað það væri, eitt fyrir sig, er einna mest laðaði til hérvistar, að þá myndi meirihlutinn svara því að það væri hið fádæma lága verð á rafmagni. Allar skyni gæddar manneskjur vita, að þetta lága verðlag á raforkunni er ein- göngu Hydro að þakka. Væri einkafél- ag eitt um hituna, þá væri rafmagnið gífurlega miklu dýrara. Nú er svo komið, að til þess að geta haft nokkum hemil á verðlaginu, þá verð ur Hydro að færa út kvíamar. Það á að gera^með því að virkja Þrælafossana (Slave Falls). En til þess að Hydro geti færst það í fang, þarf samþykki þriggja fimnitu hluta skattgreiðenda þeirra, er bráðlega eiga að ganga til atkvæða um fjárveit- inguna til þessarar virkjunar. Munið það: þrjú atkvæði af hverjum fimm verða að vera með virkjuninni. Einfaldur meirihluti dugar ekki til. Engin stofnun hefir verið Winnipeg- búum þarfari en Hydro. Þeir eiga hana sjálfir og hún hefir aldrei kostað þá eyri né eyrisvirði. Hún hefir verið fjár- hagslega sjálfstæð frá upphafi fram á þenna dag, og það er líklegra, að flest annað breytist en það. Þegar Þrælafossarnir eru alvirkjaðir, er áætlað að til þess verði varið $10,500, 000. En þessi stækkun, er Hydro nú fer fram á nemur $6,500,000. Hydro fær stofnfé með betri kjörum en nokkurt einstaklingsfélag getur feng- ið, af því að peningastofnanir vita, að Hydro er fullkomlega ábyggileg stofn- un. Hydro getur því aðeins ráðið raforku verðinu, að skattgreiðendur samþykki virkjun Þrælafossanna. Skattgreiðendur leggja því ekkert í hættu með því að greiða atkvæði með virkjuninni; þeir eiga þvert á móti allt að vinna með því. Farið því allir, skattgreiðendur, sem Hydro eruð hlynntir, og greiðið virkjun- inni atkvæði. Munið að þrjá fimmtu hluta atkvæða þarf til þess að hún verði samþykkt. Hugsið ekki sem svo, að það geti ekkert gert til þótt þér, einstaklingur- inn, sitjið heima, rétt núna. Sitjið ekki heima, er atkvæðagreiðsl- an fer fram. Ekki einn einasti. -------x------- Oddvitakosningin í Bifröst Vanalega snú&st sveitakosningar tim mern en ekki m.iletni Þó heíu j ,.ð ekki vcnö i tveimur nsestliðnum kosningum og verður heldur ekki í haust. Fyrir tveimur árum síðan var myndaður hér í sveitinni andstöðuflokkur. Þóttust upphafsmenn hans þess varir, að ýms óregla og jafnvel óráðvendni ætti sér stað við- víkjandi ráðsmennsku sveitarinnar. I kæru- skjali, er samið var á hendur sveitarstjórn Jjeirri, er þá var við völdin voru tilgreind ýms atriði er horfa þóttu til vandræða, svo sem hatur milli Islendinga og Galicíumanna, er hefði upptök sín i sveitarráðinu, og væri blásið að af oddvita; háir skattar, þó einkum i útjöðrum sveitarinn- ar ; slælega innkallaðir skattar ; jarðamat í ó-_ reiði o. fl. I>essi flokkur, sem fullur var heilagri vand- læting yfir ástandinu, varð svo mannmargur haustið 1926, að hann varð hlutskarpari í odd- vitakosningunni. Stefnuskráin, eins og hún kom úr verk- smiðjunni nokkru fyrir kosningarnar var í fimm liðum, og er í íslenzkri þýðingu sem fylgir; 1. liður—'Aé öll útgjöld sveitarinnar skuli lækk- uð að miklum mun, og skattar lækkaðir eins mikið og mögulegt. • 2. liður—Að innköllun skatta sé fylgt fram með nauðungarvaldi allan tínia árs. 3. liður—Að nýtt óhlutdrægt jarðamat fari fram og sé gert af einum manni í allri sveit- innr. 4. liður—Að engin skifting eigi sér stað innan sveitarinnar. að svo stöddu. 5. liður—Til j>ess að koma þessu í framkvæmd og þegar athuguð eru ýms vandræði innan tak- marka hinna ýrnsu héraða, er það álit okkar, að einn maður, (administrator) með stjórnina að baki sér, eigi sér betri aðstöðu að lagfæra og kippa t betra horf því sem aflaga er, heldur en sveitarráð. Þetta er svo sem glæsileg stefnus'krá ojg ekki furða þó margir snérust á sveif með henni. F.n aftur voru aðrir trúlausir á að hægt væri að fram kvæma hana. Enda hefir það komið á daginn I kæruskjalinu er kvartað yfir að General Municipal Tax sé of hár — 22 mills. Eftir tveggja ára tilraun að lækka j>enna lið skattanna, er hann nú 26 mills, — hefir hæíkkað um 4 mills. Yfirleitt hafa skattar hækkað um 12 per cent. þessi síðustu tvö árin. Þannig hefir þá 1. liður stefnuskrárinnar verið uppfyltur. Viðvíkjandi 2. liðnum er það að segja, að afstaða oddvita til hins stærsta vandamáls sveitarinnar hefir verið í fullu samræmi við afstöðu hans ti! annara mála, sem sé ráðleysa eða reikulleiki. Sem dæmi má til- færa, að síðastliðið vor ■var innköll- unarmanni skipað að taka lögtaki hjá 32 mönnum og á sama tima var afráð ið að stefna 20. Gott og vel. Nú átti að fara að skríða til skara með innheimtunina. Var álitið að lög- tak og stefnur víðsvegar um sveitina myndi vekja óskilvísa gjaldendur til umhugsunar um það, að nú yrði alls engin vægð eða tilslökun sýnd lengur við innheimtu skattanna. Nokkru áður en J>essi samþykkt var gerð af innheimtunarnefnd sveitarráðsins, hafði oddviti tekið sér það sjálfdætni í hendur, að segja innheimtumanni upp vistinni með mánaðar fyrirvara. Nú er þetta vitanlega ekkert áhlaupa. verk, og var óhugsandi að nema lít- ill hluti af þessu verki yrði unninn á þeim fáu dögum sem eftir voru af vinnumennsku innheimtumanns. Maður skyldi þá ætla að hann hefði verið ráðinn á ný unz jæssu ákveðna starfi væri lokið, eða þá einhver annar í hans stað. En svo var alls ekki gert, og hefir ekki verið gert enn. Það hanga enn lög- tökuskírteini á sveitarskrifstofunni siðan í vor, sem sýnishorn af fram- kvæmdarsemi oddvitanns. Akcenty Bagarinsky stelur hverju einasta sniddi sem lögtekið var hjá honum og j>að hefir ekkert verið gert í þá átt að hegna honum fyrir það. Þetta er annað sýnishorn af röggsemi odd- vitanns og ágætt til eftirbreytni fyrir aðra gjaldendur, sem tilheyra sama fMkki. En auðvitað getur oddvrtinn sér til hugarléttis lesið stefnuskrána, og séð það svart á hvítu að hann og flokkur hans bcita sér fyrir skatta innheimtn mcð nauðungarvldi, ef ekki vill betur til allan ársins hring. Orð ! — Orð ! 3. liðurinn, um óhlutdrægt jarða. mat, er mjög geðfeldur að horfa á hann. En hvað er átt við með þessu “óhlutdræga” mati'? Það er átt við )>etta: að lækka allt mat í útjöðrunum, en hsúkka það á sama tíma á miðbikinu. Utjaðramenn eru ekki ánægðir með það, að við hinir kostum skólana þeirra næstum því að hálfu leyti. Þeir kalla j>að hilutdrægni. Það væri fróðlegt að hevra hvað mikils þeir vænta. Andstæðúflokkurinn hamast a þessuni lið stefnuskrárinnar og má óhætt fullyrða, að yrðu þeir jæss megnugir, að fá vilja sínum fram- gengt og sveitin yrði tekin yfir af stjórninni, þá yrðum við miðbiiks- menn að gera meira en rétt glotta við tönn ef við ætluðumst til að mat og skattar hækkuðu ekki á okkur að mun. 4. liðurinn er algerlega úti á jækju, ef sá fintmti á að takast al- varlega, því vitanlega færi stjórnin ekki að gera skiftirtgu á sveitinni, ef hún aðhylltist það, að taka við stýr- inu. * »19 Og 5. liðurinn á að takast alvar- lega, það hefir ekki levnt sér, sbr. fundina í ágúst og október. Við höfum þá athugað hér lítillega hversu miklu oddviti hefir áorkað af stefnuskrá sinni. Þaö er “harla litið og ekki neitt.” En það rfkal fúslega viðurkennt, að hún er að niiklu leyti ómöguleg að uppfylla og er ekkert annað en kosningaloforð. sem aldrei verða efnd. Eg gat um það í upphafi að á- kveðið málefni lægi fyrir í komandi kosninigunt Það er málefni sem okkur Islendinga varðar sérstaklega og ætti þessvegna að vera okkur eigi aðeins ánægjuefni, heldur ætti það og að vera okkur keppikefli, að vinna að framgangi jæss eftir melgni. Málefnið er þetta: að fá sveitina minkaða. Stjórnin hefir, að mér skilst, talað líklega um að það gæti Bakverkir •ru einkenni nýrnasjúkdóir.> GIN PILLS lækna þá fljótt, vegna þess ati þær verka beint, en þð mildllega, a nýrun — og grætiandi og styrkjandi. BOc askjan hjá ölium lyfsölum. 182 gengið, að í öllu falli röð 24 væri skilin frá að norðan. Eins Qg' ritstjórnargrein í síðustu Heimskringlu lær með sér, hefir Sveinn kaupmaður Thorv<aldson orð- ið við áskorun um að gefa kost á sér til oddvita í komandi kosningum. Starfsferill Mr. Thorvaldssonar sýnir það að hann geymir ekki til morguns )>að sem hann getur gert í dag. Hann er ekki reíkull í ráði og með atfylgi ötulla nieðráðanianna ætti honum að verða létt um að hrincfa jiessu velferðármálii áleiðis. l*essu velferðarmáli sem er eina við- unanlega úrlausnin á okkar vandræð- um. —Urlausn sem allir aðilar mega vel viö una. Telja má víst, að núverandi odd- viti sæki um endurkosningu í haust. Skyldi hann einu sinni enn geta blekt gjaldendur sveitarinnar meö stefnuskrá, sem er að sumu leyti ómöguleig, og að öðru leyti óviðun- andi, þar eð hún fer í þá átt aö skerða sjálfræði okkar? Mikið má það vera ef Islending- ar eru á svo harðri ferð nú orðið, að jæir ekki gefi sér tíma til að athuga um stund, það sem beinlínis snertir þá heima fyrir, því það er allt sem þarf. Málefnið er eins og opin bók á alþýðumáli, sem allir skilja. Að- eins að setjast niður um stund og lesa og hugsa. Skrifao 17. nóvember. Valdi Jóhannes^on .... frá Vioir Tveir íslenzkir bræður Eg bið afsökunnar á því að mér er ósýnt um að geta látinna manna, vegna þess að gg hef aldrei gert það. alltaf verið við hendina mér færari menn, þegar slíks hefir við þurft. En mér rennur blóðið til skyldunnr, jægar landar og góðkunningjar falla frá svo fjarri fósturjörðinni, og fáir vita af þeirra stofni — en hinir hér- lendu samjægnar þykjast hafa ein- kis misst. Einhverjir fyrstu Islendingarnir, sem ég kynntist, jægar ég kom til Kyrrahafsstrandar voru jæssir Guð- mundssynir, sem nú eru báðir ný- látnir: Gunnar,- búsettur i Los An- geles og Sigurður í San Francisco- Eg átti með þeim báðum margar ánægjustundir, og minning beggja þeirra er mér einkar kær. Eg er ókunnugur ætt jæirra og uppruna, nema hvað ég vissi að þeir voru Húnvetskir og höfðu dvalið hér langdvölum í Vesturheimi, og }>ó Sigurður lengur. Gunnar var lengst af Winnipejgmaður og átti þaðan flestar minniijgar fulJorðinsáranna, tók þar allmikinn þátt í íslenzku fél- agslífi og átti þar fjölda vina. Um Sigurð gengdi öðru máli. Hann dvaldi lengst af hér á ströndinni og án félagsskapar við Islendinga undir tvo áratugi. En eftir að landar tóku að setjast að San Francisco hafði hann jafnan sambönd við þá og kunni bezt við sig í jæirra hópi, enda >ótt hann léti stundum á sér heyra kappræðu að Bandaríkjamenn tækju Islendingum langt fram. Undir niðri var hann of skynsamur maður til að meina slíkt. Þeir voru ólikir menn Gunnar og Sigurðar. Það sem sérstaklega ein- kenndi Gunnar var ást hans til ís- lenzks þjóðernis. Hann var ekki

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.