Heimskringla - 29.01.1930, Síða 4

Heimskringla - 29.01.1930, Síða 4
4. BLAÐSÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 29. JAN^ 1930. Heímakríngla (StofnuO 1186) Kemur út á hverjum miOvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS, LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimi: 86537 Ver5 blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist íyriríram. Allar borganir sendist THE VIKING PRESS LTD. SIGFÚS HALLDÓRS írá Höfnum Ritstjórl. Utanáskrift til blaðsins: Manager THK VIKING PRESS LTD., 853 Sargent Ave., Winnipeg. Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg. “Helmskringla” ls published by The Viking Press Ltd. and prínted by THE MANITOBA MINER PRESS 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 86 537 WINNIPEG, 29. JAN., 1930 Réttvísin v. Gleadow Hver er Gleadow? Og hvað hefir hann til saka unnið? Það er von menn spyrji. Fyrirsögnin hefði líka að öllu sjálfráðu átt að vera: “Réttvísin v. Bronf- man,’’ og mætti kannske vera það hvort sem er. En eins og stendur virðist allt útlit á því, fyrir ólögfróðan lesanda, að maddama Réttvísin eigi engu síður van- talað við Gleadow en við Bronfman. Gleadow er nefnilega erkifangavörður í Regina, sem hefir haldið vesalings Harry litla Bronfman í svartholinu sínu ljóta, þrátt fyrir það, að dómarinn í Ottawa hafði skipað að koma með Harry litla austur, í námunda við heimilið. Hann kvað langa svo fjarskalega austur. Það er sagt að honum finnist hann vera svo munaðarlaus í Re- gina síðan Gardiner og dómsmálaráð- herrann hans urðu að flytja. Anderson og dómsmálaráðherranum hans rennur víst alls ekkert til rifja þó lítill, sakleysis- legur Júðapiltur sé ákærður fyrir mútu- tilraunir, brennivínssmyglun og þess háttar. Þeir eru víst miskunnarlausir “Nordics.” Eins og flestir að h'kindum muna, eru býsna mörg ár síðan Harry Bronf- man var ákærður fyrir þetta. Og menn muna líka, að dómsmálaráðherra liber- ala í Saskatchewan gat ómögulega kom- ið sér saman við dómsmálaráðh. liberala í Ottawa um það hvor þeirra hefði rétt til þess að taka Harry í karphúsið. Lib- erali Saskatchewan ráðherrann sagði að liberali Ottawaráðherrann ætti að sjá um að stefna þrjótnum og dæma hann, og liberali Ottawaráðherrann sagðist lífs ómögulega geta gert það né mega, því að þá væri hann að grípa fram fyrir hend- urnar á liberala Saskatchewanráðherr- anum, er samkvæmt stjórnarskránni og æðri forsjón hefði einn forréttindi á því að reiða refsivöndinn að baki Bronfmans. Og meðan á þessari þráskák stóð, hélt Bronf- man áfram að raka saman miljónum fyrir brennivínið. Það er önnur gamla sag- an um fátæka drenginn: sagan um mun- aðarleysingjann, sem hefst til vegs og valda—meðan yfirvöldin sofa. En svo kemur Anderson og er svo ó- nærgætinn að láta sækja Harry austur og láta stinga honum í svartholið, meðan rannsakað er mál hans. — Þá fara milj ónirnar að tala. Þær geta auðveldlega náð í beztu lögmenn, sem völ er á. Þeim tekst það, sem liberala dómsmálaráðherr- anum í Saskatchewan tókst ekki, að heimta að þeir í Ottawa kalli Bronfman þangað austur aftur, með fullri skýringu á því hvað komi svo sem til, að conservatív- arnir skuli halda manninum í fangelsi þarna vestra. Og nú Verður Gleadow að gera svo vel og prika sig austur líka, til þess að standa málafærslumanni Bronfman skil á því frammi fyrir hinni háu réttvísi hvers vegna hann hafi ekki strax gegnt þeim þar eystra, er þeir kröfðust Bronfmans og skýringanna á því með hvaða rétti þeir hefðu tugthúsað hann þar vestra. Ves- alings Gleadow hefir líklega enga betri afsökun fyrir sig og þá vestanmenn en þá, að þeir hafi tekið trúanleg orð dóms- málaráðherrans í Ottawa, í fyrra og hitti- fyrra, fyrir því, að það væri algerlega gegn guðs og manna lögum, að draga vesalings Bronfman fyrir lög og dóm þar eystra. Og nú á að ákæra Gleadow í dag fyr- ir fyrirlitningu gagnvart Réttvísinni, eða réttinum, með því að þverskallast við að sleppa Harry. En verjendur Bronfmans ætla auðvitað ekki að láta þar við sitja. Þeir ætla fyrst og fremst að sanna það, að mútukæru Knowles á hendur Bronf- man hafi alls ekki borið að heimfæra und- ir hegningarlögin, heldur undir tolllögin. Og svo ætla þeir að staðhæfa og sanna, að hvort sem er, þá hafi verið ólögmætt að stefna Bronfman nú fyrir þetta, því það verði að gera innan þriggja ára frá því að verknaðurinn, sem ákært er fyrir, hefir verið framinn. — Og væri það ekki sniðugt, .ef liber- ölu ráðherrunum hefði nú tekist að spóla svo öfluga hlíf fyrir Bronfman með þrá- skákinni, að honum mætti ekki einungis enginn lagastafur granda, heldur yrði einnig sá maður, er svo hefði gerst djarf- ur, að halda honum of lengi í fangelsi, fyr- ir fjárútlátum, eða svartholsvist að öðrum kosti. — Þá hefði þó einn Júði fengið al- mennilega uppreisn; Shylock kallað eft- ir kjötpundi sínu og fengið það. Jú, víst væri það sniöugt. Sumir myndu meira að segja hlæja að því sér til heilsubótar. Hlæja að því. Hvílík vitleysa. Hvernig ætti nokkur maður að geta hleg- ið að Réttvísinni? Því ekkert í allri víðri veröld, er jafn yfirburða hátignar- legt, og Réttvísin. Og þú værir ekki góð- ur borgari ef þú sæir nokkuð skringilegt í fari hennar. En góðir borgarar viljum vér allir vera.— Oánægja með Crerar Svo segja verkamannablöð í Ontario. Og óánægjan á að vera einna mest í Que- bec, meðal frönsku liberalanna, sem enn hafa ekki gleymt Laurier, hásællar minn- ingar. Þeir kvað margir telja að Mr. King hafi hér misstigið sig enn einu sinni; hann sé sífellt að taka inn í ráðu neytið menn, sem hafi hjálpað til þess að velta Laurier 1911 og 1917. Þau segja að Quebecingar séu blátt áfram stórreiðir forsætisráðherranum fyr- ir skipun Crerars, og að þeir séu þessa dag ana sem óðast að rifja upp samband hans við Home-bankann sæla og framkomu hans þar, sem reykelsisilmur þykir ekki beinlínis hafa staðið af, svona undir það síðasta er skriðan var að losna, sem Crerar hlaut að vita, er hann var einn í stjórnarnefndinni.. Menn fara ekki í pukur með endurininningarnar um það, að þá hafi hann komið hlutabréfum sínum út fyrir $128 hlutinn, í grandlaust fólk hér vestra, er koma vildi lausafé sínu í arð- bréf; komið hlutum sínum í það fyrir $128, er verið var að selja þá í Toronto, aðal bækistöð bankans fyrir $88. Það heyrist líka þaðan að austan að flokksmönnum Mr. King, er þar búa, þyki hann um of áfjáður um að ánetja fyrver- andi bændaflokksmenn og óháða héðan að vestan og telji flokknum það illu heilli gert. Oss virðist Mr. King ekki eiga þetta vanþakklæti skilið af flokksmönnum sín- um eystra. Því jafnvel þeir, er annars kynnu ekkert afrek að þakka honum, hljóta þó að játa, að hann hefir ginnt Mr. Forke og bændaflokk hans, eins og þursa. Háðulegri óför hefir víst aldrei einn stjórn málamaður, eða flokksforingi réttara sagt, farið fyrir öðrum en vesalings Mr. Forke fór fyrir Mr. King. Það minnir helzt á söguna um Bazaine, franska hershöfð- ingjann, er gafst upp orustulaust í Metz 1870, með 180,000 vígra manna. Eftir. leikurinn varð einungis þægilegri fyrir Mr. Forke, en þó ekki alveg ósvipaður. Bazaine var settur fyrir herrétt, er dæmdi hann til dauða, þótt dóminum væri breytt í fangelsi; en Forke var tekinn í ráðherratölu. Og kjósendurnir voru ekki þeir menn að dæma hann til póli- tízks dauða, heldur létu þeir Mr. King hafa fyrir því, með því að stinga honum vel smurðum og pólitízkt lifandi dauðum á eina hilluna í öldungaráðinu, innan um hina smyrlingana. En Mr. King á sízt óþökk skiliö af flokksmönnum sínum fyrir veiðiferðir sínar hingað vestur í “almenninginn,” það er að segja í landareign hinna óháðu. Honum hefir tekist prýðilega. Flokkur hans væri fyrir löngu oltinn frá stjórnar- velhnum, hefði Mr. King ekki dregið hvern stútunginn öðrum vænni undan borði hér vestra honum til næringar. Auðvitað kemur sá tími, að bændur og búalýður vaknar til athafna, einnig hér í Manitoba, sér að dýrðargloría frelsisroð- ans rauða, sem liberalflokkurinn hefir málað um höfuð sér og einfalt fólk trúir enn á, eins og börnin á gloríuna um þýzk olíuprentuð dýrlingahöfuð fyrir einn dal tylftina, er ekki annað en “reykur bóla og vindaský,’’ og ræstir til hjá sér. En þá ber liberölum eystra ekki að áfellast Mr. King fyrir það, heldur þakka honum, hve lengi honum tókst að afstýra þeim degi, með glöggskygni sinni á það, hvaða beitu þeir gleyptu helzt hér vestra.— A kappræðu Heimskringla mín; éjg" má til aö láta þig heyra eitthvaö af kappræðunni þeirri siðustu. Eg er þyrstur í kappræður. Eg bókstaflega þyrp- ist á þær, hvenær sem ég kemst höndunum undir. Þó komst ég ekki á þessa hjá Goodtemplurum á þriðjudaginn, þegar þeir deildu um það, hvort frekar mætti missa sig úr mannfélaginu, karlar eða konur. Það hefi ég séð merkilegast og örlagaþrungnast kappræðuefni. Hamingjunni sé lof fyrir að Goodtemplurum er þó ekki alls varn- að, huig’saði ég. Vondir menn segja, að þeir séu hvorki læsir né skrifandi, en þeir lesa auð- sjáanlega J. B. S. Haldane og Blómsturvalla- sögu jöfnum höndum, og geta talað um allt. Nei, það var Fróns-kappræðan, sem ég ætlaði að segja þér svolítið frá. Þeir leiddu saman hesta sína séra Jóhann Bjarnason og dr. Sig. Júl. Jóhannesson og áttn að rífast um það hvort væri máttugra sverðið eða penninn. Sigurður vildi narra séra Jóhann til þes sað halda því fram að sverðið œtti að vera voldugra, en klerk- ur lét ekki veiða sig; hann hélt sér fast við bók- stafinn að vanda, þótt Sigurður dansaði fyrir frarnan hann, eins og Salóme fyrir Heródesi forð- um; ég meina auðvitað í andlegum skilningi að- eins; og segðist meira að segja vera krist- inn.— Eg verð að játa það, að þó mér virtist séra Jóhann rökstyðja betur ntál sitt, þá þótti mér miklu meira garnan að hlusta á röksemdafærslu doktorsins. Staðhæfingarnar voru svo skemtileg- ar og spurningarnar kitlandi, er hann sannaði yf- irburði andans. Hann kvað daglega iðkun andagiftarinnar hinn eina sanna lífs-elixír. Stríð og leikfimi kvað hann ákaflega óhollt líkamlega. Sérstak- lega virtist mér hann telja leikfimina háskasam- lega úr máta. Kæmi fólk úr henni kjálka-, hné- og olbogaskeljabrotið, auk þess yrðu menn andlegir krypplingar af samkeppninni og þeim hugrekkisanda, er henni fylg’di. Þótti mér vænt um þetta því ég hef alltaf verið blauður eins og rabbítur, og virðist það hentug leið og auðveld til fullkomnunar. Nefndi Sigurður Hannes Hafstein sem dæmi, og kvað hann hsfði getað orðið ágætann leikfimismann, ef andinn hefði ekki borið allar tortímandi leikfimis-fýsnir ofur- liði hjá ihonum. Hiefði hann því aðeins orðið slíkt þjóðskáld, að andinn hefði tekið fyrir alla þjálfunarfýsn. Bjó ég sæll að þessari sönnun Sigurðar, og var að glíma við þá hugsun, hvað ,úr Matthíasi myndi eiginlega liafa orðið, (þetta sem hann komst iþój ef hann hefði eljki verið svo ógætinn að nauðþjálfa sinn feiknasterka skrókk. langt fram á fullorðinsár. Sat ég í þessum draumum unz séra Jóhann varð svo ónærgætinn að minna á það, að Hannes hafði svo vel þjálfað sig á sundi, einmitt á þeim árum sem hann kvað sem mest, að honum tókst að bjarga sínu eigin og annara lífi, er þeim félögum var sýnt banatil- ræði. Fann ég þá að Sigurði myndi hafa brugð- ist röksemdafærslan, en skildi þó að hann myndi hafa meint vel. En þó fór ég fyrir bragðið að beita hinni hærri krítík á doktorinn, svona öðru hvöru. Enda fann ég brátt að hann rasaði aftur. Spurði hann hver myndi gagnlegri af tveimur há- skólapiltum, er annar æfði sig í hugrekkisiðkun- um en hinn læsi í sífellu, unz hann færi einn góðan veðurdag að skrifa bækur. Hvilík spurn- ing. Dr. Sigurður ætti að vita, að það ætti að tugbhúsa flesta þá er skrifa svokallaðar bækur,ekki sjzt hér í Kanada, þar sem engum, nema einum Pransara, hefir tekist að skrifa bók, sem ekki sé hreinasta sálarmorð. Þá spurði doktorinn þó skynsamlegar er hann sagði; Því hefir kvenfólk kosningarétt ? Já, það hefi ég satt að segja aldrei skilið. Eg hefi ekki ennþá uppgötvað nokkra skynsamlega ástæðu fyrir því að ræna þær þessari litlu vitglóru, sem þær fengu í arf við það að Eva át af skilningstrénu góðs og ilh. Einna mest gaman hafði ég af því að skyign- ast mn í framtíðina með Sigurði. Þar gerði hann fyrst í alvöru út af við líkamsþjálfunarbölv- unina; beit hana á barkann, eins og veiðiköttur magra rottu og skók hana unz ekki var eftir líf- tóra í henni. Öll likamsþjálfun er til bölvunar; hún mun hverfa, líkaminn visnar, en höfuðið, aðsetur sálarinnar stækkar. — Og ég sá í anda fram í aldir, þar sem alþýða vafraði í kring með hausinn á hjólbörum, eins og kleppféð hefir halann í Arabíu, en hálærðir prófessorar sátu eða láu í kösum yfir einhverju reikningsdæmi, og með stoðir undir hausnum, eins og settar eru undir vinviðargreinar, er bera of þunga klusa,— en þegar hér var komið hætti ég við samliking- una, því ég vildi ekki móðga Sigurð með því að sitja í sama herbergi og hann og hugsa um vín- ber. En nú var Sigurður kominn á flug og tók mig nú alveg með. Eftir 10,000 ár, sagði hann, eða eitthvað á þá leið; eftir 10,000 ár, þá kemur andi v jr á Jftrðríki og spyr eftir gröf Roosevelts. Roosevelts. Hann þekkti enginn. Hann spyr eftir gröf Clemenceau. Ekkert svar. Eftir Meighens. Hvað er það ? er spurt. En svo er spurt eftir Wilson. Jú, hann er víst þarna. Og hvort þeir kannist við Woodsworth? Jú, ég held nú það. Yfir ihans gröf er byggð þessi stóra, undurfagra bygg- ing.--------- Og nú var ég kominn á loft. Eg fann eitbhvað heitt streyma niður kinnarnar. Jú, það var ekki um að villast, ég sat þarna og táraðist 10,- 000 ár frammi í tímanum, yfir gröf Woodsworths. Oig ég leit í kring nm mig með eftirvæntingu en kom ekki auga á gröf Sigurðar. I fyrstu skildi ég ekki í þessu. En þegar ég svo stakk mér 10,000 ár aftur til vorra daga, og uppgötvaði að það var af því að Sigurður hafði alltaf tilbeðið King, þá táraðist ég enn meira. Og svo reif Sigurður Jóhann í sig. Og Jóhann reif Sigurð í sig og var líka ágætur, nema hvað það var ekki hægt að hlægja eins mikið að því sem hann sagði. - Og svo end- urtóku þeir þetta báðir. Og svo lýstu báðir yfir því að þeir hefðu algerlega rústað hinn, af því að ann- ar talaði alltaf um þac! sem var, en hinn um það sem œtti að vcra. Og báðir og hvor um siig nefndu sér hátíðlega votta að þeirri yfir- lýsingu, að hinn væri hreint sá allra magnaðasti og kjútasti maður að verja rangt mál, sem þeir hefðu nokkurn- tíma kynnst. Og báðir lýstu á- nægju sinni yfir því. Og þingheimi fannst þetta ákaflega sportí og klevver. Og allt var fjarska skemti- legt. En hrifnastur varð ég af andanum, anda pennans, sem doktor Sigurður mælti með, þegar hann rak það fram- an í séra Jóhann, að hann skyldi nú ekki vera að þessum til svona láta- látum eins og hann vissi ekki svo lifandi ógnarvel að þessi glæsti hóp- ur íslendinga er hér sæti fyrir framan þá, væri kominn á þetta hámenning- arstig frá skrælingjadómi fornaldar- innar fyrir andans vinnubrögð ein- göngu, en ekki fyrir neina djaðrans leikfimi. — Eg,. fór að skima um salinn og tók jafnvel upp spegilbrot fyrir sjálfan mig. Og mér igátu vitanlega ekki dulist fingraför há- menningarinnar, eins og hún hafði gengið frá ásjónum okkar og yfir- braigði og klæðaburði, þegar ég hugs- aði 1000 ár eða svo aftur i tímann þegar Clfljótur og Hrafn og Þorkell og Njáll og Grettir og Gunnar og aðrir slíkir skrælingjar og fjósa- stampar voru að brölta innan um grjótið á Þingvöllum. Það var hreint og beint svimandi til þess að hugsa, þegar maður leit yfir öll þessi hámenningarandlit, eða hæbrás í gúddtemplarasalnum, — og svo seinast í spegil, að við skyldum öll vera kom- in af svoleiðis líka óttalega ókúltíver- uðum lóbrás, — eins og Reykjavík- ur stúlkan sagði, sem var búin að vera eitt ár í Winnipeg, — enda þótt heil þúsund ár af allskonar hámenningu lægju á milli rnanns og þeirra. Ct af þessu sökkti ég ntér niður í vestur-íslenzkar hámenninganhugsanir, og komst ekki upp úr þeim fyr en inn á Vífli, að einn frjóangi .hámenn- ingar vorrar kastaði stóreflis sykur- mola á nefið á mér svo blæddi úr.— Þinn, Heimskringla mín, skuldbund- inni þénari, —Kúron. Haustnætur hugsanir Andlegur þroski þjóða helzt í hend ur við verklegar framfarir. Til þess liggja tvær höfuð ástæður. Hvert framfaraspor örfar menn til að stíga annað, en við þá áreynslu stælist bæði hugurinn og höndin. Að hinu leytinu sparast nteiri tími til andlegr- ar iðju við hagkvæmari lifskjör og betri vinnubrögð. Vor fyrstu foreldri stunduðu að eins eina atvinnu — veiðimennsku. Lífsskilyrðin voru voðaleg. Þau þjáðust af hun’sri dögum saman; þoldu vos og kulda hvenær sem veður spilltist, og áttu í endalausum orustum við grinima og hlífðarlausa óvini. Skiljanlega tók mannikynið litlum þroska undir þvílíkum kringumstæð- um. Samt finnum við hjá þessum 1 fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bak- verk, gigt og blöðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfja- búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto, Ont., og senda andvirðið þangað. frumiþjóðum frumdrætti allra þeirra mannfélagsstofnana, er síðarmeir þroskast til meiri fullkomnunar hjá niðjum þeirra. Nauðsyn knúði fjölskylduna til að halda hópinn. Æjttmenn urðu að búa saman og vinna saman til jjess að verjast sameiginlega áreitni ann- ara. Þessi fjölskyldu-félagsskapur var að vísu ekki skipulagsbundinn, í nútíðarskilningi, en án einhverrar yf- irstjórnar varð þó ekki komist í þessu sambýli. Oftast var ættfaðirinn jafnframt ættarhöfðinginn, og stund- um hlutu vitrustu Pg hraustustu ein- staklingarnir forustuna sakir yfir- burða sinna. Þetta var fyrsti vísir til höfðingjavalds og þjóðstjórnar. Ein af sjálfsögðustu skyldum ætt- arhöfðingjans var að skera úr deilum milli heimilismeðlimanna. Það sem réttsýnast og viturlegast þótti í þeim dómum geymdist í minni manna og; varð smám saman að venju helguð- um lögum. Nú átti allur flokkurinn fram- færslu sína, ekki einungis undir dugn- aði oig dirfsku einstaklinganna, held- ur einnig undir ósérplægni þeirra og fórnfýsi. Menn tóku því snemma að gera siðferðiskröfur til sín og- annara, og mynda sér msqlikvarða fyrir réttu og röngu í framferði fjölskyldu-meðlimanna. Sú trú festi einnig snemma rætur hjá þjóðum, að vissir menn hefðu meiri áhrif en aðrir hjá guðunum og gætu því með bænum sínum lækn að og líknað mönnum. Þannig myndast strax, á mongni sögunnar, elzta og áhrifamesta stétt mannkyns- ins — prestastéttin. Þessir menn tömdu sér “töfra” og sumir þeirra svo sem “galdraprestar Eskimóa, fakirarnir á Indlandi og Shamenarn- ir” í Síberíu hafa náð ótrúlegri lægni í missýningum og allskonar “galdra” kúnstum. Jafnframt þessu hafa þeir einnig lagt stund á að auka þekking sina, því þótt töfrar væru hjálplegir til að halda mönnum við trúna, var þekkingin einniig þarfleg til að geta gefið mönnum góð ráð í vandræðum- Eitt af embættisverkum þeirra var að lækna sjúka og særða. Þetta gerðu þeir með bænum, handayfirleggingu og öðrum helgisiðum, en þeir komust skjótt að þeirri reynslu, að ef slíkt ætti að koma að haldi, væri einnig vissast að nota viðeigandi jurtir og: lyf. Reynslan vísaði þeim veginn og igerði suma, til dæmis hina Ind- íánsku “medicinemenn” að furðu lærðum læknirum. Auðvitað náðu þessir töfratrúðar feikna valdi hjá sínum þjóðflokkum og voru álitnir nokkurskonar meðal- gangarar milli guðanna og mannanna- Þekking þeirra var arfgeng, því börnin gengu i skóla hjá feðrum sín- um, en af þessu hlauzt tvennt; að þeir mynduðu sér stétt innan ættar- innar eða þjóðflokksins, og að þekk- ingin fór vaxandi þar sem einn bætti stöðugt við það sem annar vissi. Þegar mönnum lærðist að temja dýrin, og gerðust hjarðeigendur í stað veiðimanna, var stórt spor stigið til framfara í sögu mannkyhsins. Um það skrifa ég máske svolítinn pistil, ef tími vinnst til. Blaine, 6. jan., 1930. —H. E. Johnson.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.