Heimskringla - 16.04.1930, Blaðsíða 2

Heimskringla - 16.04.1930, Blaðsíða 2
S. BLAÐSÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPBG, 9. APRÍL, 1930. Þjóðræknisþingið (Framlhald) Fundur var aftur settur kl. 2.30 e. h. Fundargjörð síðasta fundar upplesin og Samþykt. Húsnœðis- og toöKasafnsmál kom fyrst á dagskrá. Álit þingnefndar var lagt fram, en þótti eigi nógu víðtækt, og var vísað aftur til nefnd- arinnar, samkvæmt tillögu A. Eggert- sonar, studdri af Þórði Bjamasyni. Nefndarálit skóggræðslumálsins lá þvínæst fyrir til umræðu. Fer það hér á eftir: Nefndarskýrsla í skóggræðslumálinu Við undirritaðir, sem skipaðir vor- um í nefnd til þess að íhuga skóg- græðslumálið svo nefnda, leyfum okkur að leggja fram eftirfylgjandi skýrslu: Eftir að hafa íhugað nákvæmlega skýrslu milliþinganefndarinnar í þvi máli, finst okkur einsætt, að almenn- ur áhugi Islendinga hér vestra fyrir skóggræðslu á Islandi sé hvergi nærri eins mikill og æskilegt væri og helzti forgöngumaður þess hér vestra hefir eflaust gert sér vonir um. Einn almennur fundur, sem haldinn hefir verið hér í Winíipeg til að ræða málið á síðastliðnu ári, virðist hafa verið mjög illa sóttur. . Þó bendir nefndin á, að ýmsir bæði hér og heima hafi haft bréfaskifti við formann millijþinganefndarinnar, hr. Bjöm Magnússon um þetta mál, sem sýni að nokkrir menn beri málið mjög fyr- ir brjósti. Af þessum ástæðum teljum við lík- legt, að málið sé bezt komið i hönd- um þeirra manna, sem hafa áhuga á því, og að Þjóðræknisfélagið geti naumast annað gert en að veita þeim stuðning eftir því sem það sér sér fært. Viljum við því leggja fyrir þingið eftirfarandi tiilögur: I. Að stofnað verði til sambands mllli vor og þeirra manna heima á Islandi, sem með höndum hafa undir- búning að skóggræðslustörfum (sbr. 2. tillögulið milliþinganefndar). II. Stjómarnefnd félagsins feli ein- hverjum manni eða mönnum, sem til Islands fara á næsta sumri, að kynna sér viðhorf málsins þar heima, eins rækilega og unt er, einkanlega, með það fyrir augum, að fá álit sérfróðra manna á þvi, hvaða trjátegundir héð- an að vestan muni bezt þrifast í ís- lenzkri mold og einnig það hvaða samvinnu mætti vænta bæði frá ein- stökum mönnum og félögum, ef Þjóð- ræknisfélagið sæi sér fært að taka málið að einhverju leyti að sér fram- vegis. III. Að tilraun sé gerð af hálfu stjómamefndar félagsins til þess að útvega ókeypis frá búnaðarmála — og skógræktardeildum fylkisins og Can- ada stjómarinnar fræ, sem flutt verði til íslands á næsta sumri og gefið þeim, sem vilja gera tilraunir með að sá því þar heima. Ennfremur að I að frágangi á byggingunni ,hefir verið allar mögulegar upplýsingar séu feng- hraðað fram úr áætlun og mikið fé nar um meðferð plantanna og vax- tarskilyrði þeirra.. IV. Nefndin ræður stjómarnefnd- inni að nota aðstoð hr. Björns Magn- ússonar í þessu máli, sem hún telur sjálfsagt að verði fúslega í té látin. Hefir hann sýnt mestan áhuga allra manna í þessu efni og er málinu kunnugastur hér vestra, og finst því nefndinni að hann eigi skilið allan þann stuðning, sem félagið getur látið honum í té, án þess þó að það bindi sér byrðar, sem það gæti ekki risið undir. Winnipeg, 27. febrúar, 1930. Virðingarfylst, G. Arnason, A. Bjarnason, J. K. Jónasson. B. B. Olson lagði til, Sigurður Baldvinsson studdi, að ræða nefndar- álitið lið fyrir lið. Samþykt. 1. liður samþyktur umræðulaust. 2. liður var samþyktur með öllum greiddum atkvæðum gegn einu. Til rcáls tóku B. Magnússon, Mrs. Fr. Swanson, séra G. Arnason. 3. liður samþyktur með öllum greiddum atkvæðum. Til máls tóku séra J. P. Sólmundsson, A. Eggerts- son, séra G. Amason og B. Finnsson er mælti með því að milliþinganefnd- in væri endurkosin og veitt ríflegt fé til starfsemi sinnar. Um 4. lið tók til máls B. Magnús- son. Séra Fr. A. Friðriksson lagði til að liðurinn væri samþyktur. Séra R. E. Kvaran studdi. Samþykt Nefndarálitið síðan í heild samþykt Þá las séra R. E. Kvaran eftirfar- andi skýrslu nefndarinnar, er fjalla skyldi um samvinnumálið: Alit samvinnunefndarinnar. Nefndin fagnar því, hversu mikið hefir verið um samvinnu á þessu ári milli félags vors og ýmsra mætra manna á Islandi, og lætur í ljós þá von sína, að þetta verði aðeins upp- haf á nánara samstarfi en verið hefir undanfarið. Fyrst og fremst vill þá nefndin láta i ljós þakklæti sitt til lands- stjómarinnar á Islandi og Hátíðar- nefndar Alþingis sem hvorttveggja hafa kostað kapps um að greiða fyrir væntanlegum heimfarendum á marg- víslegan hátt. Eins og kunnugt er hefir Vestur-Islendingum verið boð- inn landsspítalinn til afnota meðan dvalið verði í Reykjavík, og eru þau afnot með öllu endurgjaldslaus frá forráðamannanna hálfu. Þetta er þvi mikilsverðara, sem nú hafa borist af þvi sannar fregnir, að þvi nær muni ógerlegt að fá húsnæði í einkahíbýl- um eða á gistihúsum meðan á hátíð- inni stendur. Hafa oss borist þær fregnir að nær að segja hvert hús muni fullskipað af gestum, er þegar hafa trygt sér rúm. En oss dylst ekki að þessi kurteisi landsstjómar- innar og forráðamanna spítalans er því þakklætisverðari, sem kunnugt er j verið lagt fram til þess að unt yrði I að veita Vestur-Islendingum þessi ' hlunnindi. Þá vill nefndin ennfremur láta í ljós þakklæti sitt fyrir þá kurteisis- ráðstöfun frá hendi landsstjórnar- innar á Islandi að gera einum af em bættismönnum sinum kleift að gangr frá starfi sínu til þess að heimsækja oss og flytja oss kveðjur og þjóð rækilega uppörfun frá Islandi. Fagn ar nefndin komu hr. Árna Pálssonar og vonar að honum verði svo tekið í íslenzkum bygðum sem svo mætur gestur á skilið. Vestur-íslenzkum almenningi er kunnugt um að íslenzkir fræðimenn hafa brugðist mæta vel við tilmælum frá Þjóðræknisfélagsmönnum um samning á fræðimannlegumritgerðum um Sslenzka menningu að fornu og nýju, er æelast er til að komi fyrir sjonir manna á enskri tungu, jafn framt því sem tímarít félagsins birtir nú flestar þeirra á íslenzku. Hefir Háskólaráðið á Isllandi tilnefnt rithöfundana. Er nefndinni mjög mikið áhugamál,, að þetta reynist aðeins byrjun á bókmentalegri sam- vinnu milli vor og heimaþjóðarinnar. En vottur um að sú von sé ekki eingöngu á draumórum reist er sú staðreynd að tveir rithöfundar á Is- landi eru nú að taka saman bók, sýnisbók rithöfundastarfsemi Vestur- íslehdinga, sem gefin er út í tilefni af heimkomu Vestur-Islendinga Nefndin hefir rika tilfinningu fyrir því, að ekki sé sæmilegt að ekki sé kvittað fyrir þessa kurteisi alla með öðru en orðum einum. Og verður þá fyrst fyrir oss það mál, sem nú um skeið hefir verið á döfinni með oss, en því miður hafa minni aðgerð- ir verið með en æskilegt hefði verið. Vér eigum við "Selskinnu” Stúdenta- ráðsins. Tækist að hleypa skriði á innritanir manna í bókina, væri tvent gert í sama svip: Létt fyrir Stúdenta- garþinum, og Vestur-Isl. gætu trygt sér herbergi fyrir efnismenn up þeirra hóp, er stunda vildu nám — t. i. norrænu — á Islandi. Væntir nefnd- in þess, að væntanleg stjómarnefnd ieiti að hentugum vegi til þess að fá þessu hrundið í framkvæmd. Og í því sambandi vildum vér benda á, að mjög vel ætti við að þeir menn, sem yrðu í förum með hr. Arha Pálssyni um íslenzkar bygðir tækju Selskinnu með sér og vektu athygli almennings á henni. En að endingu vill nefndin bera fram tillögu þess efnis, að stjórnar- nefndin hlutist til um að fenginn verði maður eða menn á komandi sumri til þess að ferðast um bygðir á Islandi til þess að flytja þar erindi um Islendinga í Vesturheimi, og sér- staklega vekja athygli á gagnkvæmri nauðsyn hins nánasta sambands með- al heimaþjóðarinnar og vor. Á þingi Þjóðræknisfélagsinns fcbrúar 1930. Ragnar E. Kvaran, i álitið, þess efnis, að gefið yrði út á 27. "OJIBWAY” Vörugæði borga ágóða af auknum gróða Guðjón S. Friðriksson, Rúnólfur Marteinsson, ólafur S. Thorgeirsson Friðrik A. Friðriksson næsta starfsári, kver það til kynning- ar félaginu, er út átti að gefa síðast- liðið ár. B. B. Olson studdi. Séra J. P. Sólmundsson minntist þá Asg. Bjarnason lagði 'til, séra G. á vanrækslu stjómarnefndar í sam- Girðingar úr svo ágætu efni sem hinu fræga “OJIBWAY” verða búgarði yðar til hagnaðar. Slík girðing gerir bæði akur yðar og haga arðmeiri. Og afleiðingin af því er sú að verðmæti búgarðsins eykst við þetta miklu meira en nemur verði girðingarinnar. “OJIBWAY ZINC INSULATED” girðingar eru sérstaklega vel til þess fallnar að notast á jörðum í Canada, vegna þess, að þær eru gerðar til þess að standast allar tegundir af veðri Sjáið kaupmann yðar eða skrifið oss beint eftir upplýsingum viðvíkjandi verðmæti þessara girðinga til yðar. CANADIAN STEEL — LIMITED CORPORATION Mills and Head Office: OJIBWAY, ESSEX COUNTY, ONTARIO Warehouses: HAMILTON, WINNIPEG Arnason studdi, að nefndarálitið væri rætt lið fyrir lið.. Breytingartil laga frá' B. B. Olson, að viðtaka þegar nefndarálitið í heild. Guðrún Friðriksson studdi. Breytingartill. samþykt. Séra G. Arnason tók þá til máls um samvinnumálin. Dvaldí hann einkum við útgáfu vestur-íslenzku úrvalsljóðanna, er segir frá í greinar- gerð nefndarinnar. Taldi ræðu- maður að slík útgáfa hlyti að verða Islendingum vestanhafs hið mesta fagnaðarefni, og öflugur sambands- þáttur yfir hafið. Skilagrein útbreiðslumálanefndar var því næst lesin af J. J Bíldfell “Herra forseti:— Nefnd sú, er sett var, til þess að íhuga útbreiðslumál Þjóðræknisfél agsins leyfir sér að benda á eftirfar- andi: 1. Alla áherzlu ber að leggja á fjölgun meðlima félagsihs meðal hinna eldri Islendinga ' vestan hafs, en þó einkum meðal hinna yngri Felur þingið framkvæmdarnefnd fél- agsins að leggja sem ákveðnasta rækt við það mál. 2. Þingið ályktar að lýsa sérstakri ánægju sinni yfir tilraunum þeim er gjörðar hafa verið til þess, að fá ungmenni í íslenzkum bygðum og bæjum til þess að taka þátt í framsögn á bundnu og óbundnu íslenzku máli,— og vill tjá því fólki, er hóf pær tilraunir og vann þau störf hinar beztu þakkir. 3. Þinginu er ennfremur ánægja að votta þakkir sínar öllum þeim, sem á einn eða annan hátt haf^ stutt að íslenzkri ungmennakenslu, — og treystir því að bygðir vorajr leggi framvegis af fremsta megni rækt við þetta merka og fjölhliða menning- armál. .4. Þjóðræknisfélagið hlutist til um það, að komið sé á samkepni í fram- sögn í sem allra flestum bygðum Islendinga. 5. Þátttakendur skulu flokkaðir í tvennt — upp til 12 ára og frá 12— 1S ára. Þar sem Þjóðræknisdeildir eru sjái stjórnarnefndir þeirra um val á framsagnarefnum og annan undir- búning. Þar sem ekki eru deildir, útvegi framkvæmdarnefnd Þjóðrækn- isfélagsins menn til þess, að hafa þau störf með höndum. 6. I hverri bygð séu tvær medal- íur veittár þeim tveim unglingum i hvorum flokk, er bezt leysa hlutverk sitt af hendi, *og sé önnur medalían úr málmblendingi (bronze), hin úr silfri. 7. Stofnað sé til árlegrar fram- sagnar-samkepni í sambandi við árs- þing Þjóðræknisfélagsins, í Winnipeg, milli allra þeirra ungmenna, er silfur- medalíu hafa hlotið, og sé þar gull- medalía veitt þeim, er framúr skar- ar. A þeirri samkomu / séu sam- skot tekin, upp i ferðakostnað þeirra ungmenna er örðugt ættu með að kosta ferð sína til Winnipeg, en það sem inn kremi umfram þann kostnað leggist í sjóð, sem helgaður sé þessu málefni. Ráðið er og til slíkra sam- skota, í heimabygðum ungmenna. 8. Þjóðræknisfélagið leggi allar medalíur til ókeypis og sjái ungmenn- um þeim er keppa í sambandi við þingið fyrir ókeypis verustað, þegar þess væri þörf, á meðan þingið stendur yfir. 9. Stjórnarnefnd félagsins sé falið að sjá um, á þann hátt, sem henni finnst við eiga, að, hinn stórmerki viðburður í sögu íslenzku þjóðarinn- ar, þúsund ára minningarhátíð Al- þingis, verði hagnýttur til þjóðræknis- þroska í íslenzkum bygðum hér vesfra, — þannig að fólki því, sem' ekki á þess kost að fara til Islands á komandi sumri, verði gefið tækifæri að kynnast því, sem fram fer á hátið- inni, svo og sjálfpm kjarna hennar. 10. Þingið heimili stjórnarnefnd- inni, að verja, á næsta starfsári, alt að $250.00 til útbreiðslumála. Dóra Benson, Thorst. J. Gíslason, J. J. Bildfell.” Séra G. Arnason lagði til að nefnd- / arálitið væri rætt lið fyrir lið. Sam- þykt. 1-—3. liður samþyktir umræðu- laust. I sambanöi við 4. lið lýsti Guðrún Friðriksson margra ára framsagnar- I starfsemi Islendinga í Winnipegosis; fór ennfremur nokkrum orðum um félagslíf og þjóðrækni þeir'rar bygð-' ar og óskaði þess, að Islendingar Væru allstaðar jafn samhuga. Var svo 4. liður samþyktur. 5.—10. liðir samþyktir umræðu- laust, að öðru en því, að séra R. E. Kvaran, Rósm. Amason og Sigurður Magnússon lögðu áherslu á nauðsyn 10. liðs. Séra R. E. Kvaran bar þá fram munnlega viðaukatillögu við nefndar- bandi við útgáfur þær, er síðasta þing fó) henni að framkvæma. Ari Magnússon áleit að tímarit fél- agsins ætti að geta unnið það út- breiðslustarf, er bæklingur þessi væri fyrirhugaður til. Asg. Bjarnason spurði, hve útgáfa bæklingsins mundi verða dýr. Rúmlega $100.00 var svarið. Séra G. Árnason, Sig. Magn- ússon og Rósm. Árnason mæltu með útgáfunni. Viðauka tillagan síðan borin upp, og samþykt. Nefndarálit- ið, með áorðnum viðauka var þá borið upp og samþykt. Þingstörf hófust aftur næsta dag, föstudaginn, 28 febrúar, kl. 10.30 ár- degis. Fundargjörð síðasta fundar upp- lesin og samþykt. Lesin var eftirfarandi skýrsla frá deildinni Frón: Deildin Frón. Frón hefir þetta ár haft með hönd- um íslenzku kenslu eins og að undan- förnu og fylgir hér skýrsla kennara yfir starf þeirra. Fundir Fróns hafa verið vel sóttir á þessu ári enda hefir verið vel til þeirra efnt. Samkepni í framsögn hefir deildin komið á þetta ár eins og í fyrra og voru 28 börn sem tóku þátt í henni. Var börnun- um skift í 3 flokka og voru 2 medal- íur gefnar að verðlaunum í hverjum flokk. Hlutu þessi börn verðlaun: 1 fyrsta flokk: 1. Lilja Johnson, 4 ára, 2. verðlaun Kristján Thorsteinsson, 7 ára. 1 öðrum flokk: 1. Lillian Bald- win, 11 ára, og 2. verðlaun Stefán Pálmason 11 ára. 1 þriðja flokk 1. verðlaun Jónas Thorsteinsson og 2. verðlaun stúlkur er voru jafnar Ragn- heiður Johnson 12 ára og Sesselja Bardal 12 ára. Hafa þessar sam- kepnir vakið mikinn áhuga hjá börn- um fyrir viðhaldi íslenzkunnar og er vonandi að hægt verði að halda þess- um samkepnum áfram. 1 ráði er á þessum vetri að hafa samkepni fyrir börn í lestri og er mjög víst að mörg taka þátt í því. Aðal samkoma Fróns á árinu var Miðsvetrar mótið. I þetta sinn var Frón svo heppið að fá Hr. Árna Pálsson sem aðal ræðu- mann. Auk hans á skemtiskrá sungu þeir Ragnar E. Kvaran og Halldór Thórólfsson einsöngva. Þ. Þ. Þor- steinsson flutti frumort kvæði, Helga Jóhannsson fiðluspil og Mrs. Helgason skemti á píanó. A fimta hundrað manns sóttu samkomuna og má óhætt segja að þetta var eitt bezta mót Fróns, bæði að reglu og skemtun og fjárhagslegum ágóða. Deildinni hafa aukist kraftar nú síðustu árin að mun. Ef samvinna. er góð og allir gera sinn skerf Þ& ætti sannarlega að vera hægt að gera margt gott í þarfir íslenzks þjóðernis af deild sem telur hátt á þriðja hundr- að meðlimi. Engin nefndarálit voru í þann svip- inn fyrir hendi. Asg. Bjarnason hóf máls á því, að kjósa þyrfti formann eða “hertoga” fyrir leiðangurinn til Islands á kom- andi sumri. Guðjón S. Friðriksson taldi sjálf- sagt að forseti félagsins, hver sem hann yrði, yrði foringi fararinnar, og að félagið legði honum til ríflegan farareyri. B. B. Olson gerði þá fyrirspurn um það, hvort Heimfararnefndin hefði lagt mál þetta fyrir þingið. Var því neitað. Leit ræðumaður svo á að ákvæði í þessu máli lægi algjörlega » höndum Heimferðarnefndar. Álit löggildingar-nefndarinnar var þá lagt fyrir þingið, og lesið af Arna Eggertssyni: Herra forseti,—- Við undirskrifuð sem kosin vorum til að íhuga löggildingarmálið, höf- um átt tal við G. S. Thorvaldsson, lögmann sem hafði að nokkru undir- búið það mál og þýtt stjórnarskrána og bent á breytingar, sem nauðs)m' lega þyrfti að gera á lögunum til ÞesS að geta fengið alríkis-löggilding; (Dominion Charter, gerði hann það að tilhlutun þeirra manna, sem höfðn það með höndúm síðastl. ár af hálf'1 Þjóðræknisfélagsins. Gaf Mr. Thor- valdsson okkur þær upplýsingar að slík lögilding yrði félaginu notadrýgri og um leið kostnaðarminni enn lóg- gilding frá Manitoba þinginu, og að allur kostnaður við þá löggilding f®r' ekki yfir $200.00. Eftir að hafa ihugað þessa mála- vexti leggjum við það til, að stjórnar- nefnd Þjóðræknisfélagsins sé fali^ af þinginu að lögilda félagið nú þessu ári. Og í öðru lagi, að félagið verði lög' gilt undir nafninu “Icelandic National League.” I þriðja lagi leggjum vér til, að þær breytingar á lðgum félagsins, er bornar voru fram á síðasta þing1/ samkvæmt kröfu rikisritara Canada, en þá frestað með frestun löggilöing' arinnar, séu hér með samþyktar. Virðingarfyllst, Guðrún Fredericson, Arni Eggertsson, ólafur S. ThorgeirBSon- á Um nefndarálitið tóku til máls B- B Olson, G. S. Friðriksson og Magnússon. B. B. Olson lagði tU að samþykkja tillögur nefndarinnar. G. TR AN S-ATLANTIC STEAMSHIP TICKET TIL OG FRÁ LÖNDUM HANDAN UM HAF EIGIÐ ÞER ÆTTINGJA í GAMLA LANDINU, ER FÝSIR AÐ KOMA TIL CANADA CANADIAN NATIONAL AGENTAR Gera Alla Samninga Stofnað 1882 Löggilt 1914 Hitað hafa heimili í Winnipeg síðan “82” D.Wood & Sons, Ltd. VICTOR A. WOOD Presldenl HOWARD WOOD LIONEL E. WOOD Treasurer Secretary irillnrnlr B,m nllnm reynn nB þAknmat) KOLogKÖK Talsími: 87 308 Þrjár símalínur

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.