Heimskringla - 28.05.1930, Page 1

Heimskringla - 28.05.1930, Page 1
 DYERS & CLEANERS, LTD. Sendit5 fötin yðar með pósti. 8endingum utan af landi sýnd sömu skil og úr baenum og á sama verði. W. E. THURBER, Mgr. 324 Young Str., Winnipegr. DYERS & CLEANERS, LTD. Er fyrstir komu upp n. * I að afgreiða verkið sama daginn. Lita og hreinsa fyrir þA sem eru vandlátir. W. E. THURBER, Mgr. . Sími 37061 XLIV. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 28. MAÍ, 1930. NÚMER •3+ 3 í" Samkvæmt skýrslu um það, er framleitt hefir verið i veröldinni, undanfarin ár, er samið hefir S. H. Logan, yfirbankastjóri ‘‘Canadian Bank of Commerce,” hefir ekkert land í veröldinni aukið framleiðslu sina jafn stórkostlega á síðari árum, sem Kanada. Hveitiframleiíslan er einn aðalþátturinn í þessum fram- ( förum. En annars má þess geta, að langmest af asbestos- og nikkelfram- leiðslu sinni sækir heimurinn til Kanada. Að því er snertir gull- og silfurnám, er Kanada hið þriðja í röðinni af öllum löndum í heimi; fjórði mesti kopar- og blý-framleið- andi óg hið sjötta í röðinni, að því er snertir sínk-nám. Næst Kanada hafa Bandaríkin, Frakkland og Argentína aukið mest framleiðslu sína á síðari árum, en Kanada er þó langt á undan, að því er skýrsla þessi hermir. Mættu menn gjarna til þessa hugsa, þá er mönn- um kann að vaxa í augum viðskifta- og atvinnuþrengingar þær, er nú eiga sér stað hér, sem víða annars- staðar, og þá til þess um leið hvort ekki væri bugsanlegt að viturlegra stjórnarfar en þa.ð, er vér eigum við að búa, hefði getað að einhverju leyti komið í veg fyrir þær þreng- ingar. Frá Ottawa er símað 23. þ. m., að konservatívar hafi mótmælt mjög kröftuglega lækkun ívilnunartollsins brezka. Kvað Hon. J. D. Chaplin, fyrverandi verzlunarmálaráðherra í Meighen-ráðuneytinu, að með þess- ari lækkun væri sambandsstjóimin að taka fyrir kverkarnar á járn- og stáliðnaðinum í Kanada. Margir fleiri konservatívar tóku í sama strenginn og stóðu umræður um þetta atriði yfir þvi ngr heilan dag. Hermt er, að Bkrainemenn í Fraserwood héraði hafi ^iýlega ákveðið að bjóða fram einn sinna manna, sem þingmannsefni við sam- bandskosningarnar í sumar. Hafa þeir farið þess á leit við Mr. D. M. Elchisen, frá Winnipeg, feð hann verði í kjöri af þeirra háífu. Er talið líklegt að hann muni verða við ósk þeirra. Hann útskrifaðist af Landbúnaðarháskóla Manitoba- fylkis fyrir þremur árum síðan. Eins og mörgum er kunnugt, er um óþrjótandi tjörusandsnámur að ræða í norðurhluta Alberta-fylkis. Hafa árum saman verið gerðar til- raunir til þess að finna einhverja þá aðferð, er borgaði sig, til þess að vinna þau efni úr tjörusandinum, er nota mætti til iðnaðar. Hermir fregn frá Ottawa, að þetta hafi nú loks tekist tveimur vísindamönnum við Albertaháskólann, dr. E. H. Boomer og dr. A. K. Clark. Hafa þeir fundið aðferð til þess að vinna úr sandinum létta olíu, er svo aftur má vinna úr gasolíu til eldneytis fyrir bíla og aðrar þesskonar vélar. Hermir fregnin, að búið sé að koma upp verksmiðju til þess að vinna olíu úr sandinum til reynslu, og það með, að menn þar vestra séu mjög vongóðir um að ekki líði á mjög löngu, þangað til að þessi iðnaður sé kominn í það horf, að verksmiðj- urnar þar vestra geti farið að keppa um sölu afurða sinna á markaðinum í austurfylkjunum, enda verði Kana- da þá ekki lengur upp á aðrar þjóðir komið með gasolíubirgðir. Atvinnuvandræðin láta stöðugt meira á sér bera. A föstudaglnn komu saman í Pas 300 menn úr ný- by&gðunum meðfram Saskatchewan- fljóti, til kröfugöngu. Fylktu þeir liði og gengu um bæinn undir merki, ar á var letrað: “Vinna, eða þrjár máltíðir á dag, eða flytjið oss í fangelsi.” Um tvö hundruð bæjar- búa fylgdust með kröfugöngunni, en héldu sér á gangstéttunum, án þess að slást beinlínis í förina. Undan- farna daga hefir atvinnuleysingjum verið úthlutað einum brauðhleif á dag, hverjum manni. Telja þeir það alls ekki nægilegt. Borgarstjórinn, Bar- hey stitt, vill banna þeigi kröfgöng- ur framvegis, og vill að þeir sendi fulltrúa í þess stað til borgarstjórn- arinnar, ef þeir hafi einhvers að hrefjast. Hermir Free Press, að atvinnuleysingjar vilji ekki verða við HEIMFORIN I SUMAR BANDARlKIN Frá New York er simað 24. þ.m., að nú fyrst virðist sem ýmsir helztu er búin að margsanna það, ef ekki hér í Canada, þá að minnsta kosti í Bandaríkjunum, að sjálfs er höndin hollust, að því er rafveitur snertir, og að vatnsvirkjunarhringarnir eru engum velgerðafyrirtæki nema sjálf- um sér, þegar til lengdar lætur, hversu álitleg sem tilboðin kunna að vera í fyrstu. Enda ætti hin vold- uga fylkisvirkjun Ontariomanna að vera æríð -nóg sönnun þess að opin- ber rafvirkjun er landi og lýð hin stórkostlegasta velmegunarlind sem hugsast getur. 0R HALLORMSSTAÐASKOGI Frá Ottawa er simað 22. þ. m., að King forsætisráðherra hafi helzt lagt til, að kosningar skyldú ekki fram fa^-a fyr en á mánudaginn-11. ágúst, en samkvæmt kosningálögunum verða sambandskosningar að fara fram á mánudag. " Kvað Mr. King ekki henta mundu að þær færu fram 4. ágúst, er væri almennur frídagur. Seinni frétt hermir, að flestir þing- menn vonist þó eftir því, að mögu- legt verði að koma á kosningum 28. júlí. Töluvert brá bæjarstjórn vorri við það, er tilkynnt var á fundi á föstu- daginn var, að fylkisstjórnin þvers- 'kallaðist við ( að greiða viðskifta- skatt af vínsölubúðum sínum hér í Winnipeg. Voru bæjarráðsmenn nokkurnveginn sammála um það, að heimta skattinn með oddi og egg af stjórnarvínsölunni, með því að á hana bæri að líta sem hvert annað viðskiftafyrirtæki. I GOÐAFOSS því banni, en hafi í hyggju að- efna til nýrrar kröfugöngu, undir merki, er á sé letruð kr%fa um tvær mál- tíðir á dag, ef ekki rættist fram úr atvinnuleysinu hið bráðasta. — Sagt er að flestif hinna atvinnuleitandi manna áfellist mjög sambandsstjórn- ina, fyrir að sjá ekki mönnum þar um slóðir fyrir atvinnu, t.d. við Hud- sonsflóabrautina, og i« sambandi við hana. Mun það koma til af þvi, að heyrst hefir, að Kingstjómin hefði af einhverjum ástæðum hnigið frá þeirri fyrirætlun, sem öruggt var á- kveðin og auglýst í fyrra, að ljúka algerlega við brautina og allar nauð- synlegustu byggingar í -Churchill, * 1 svo að hún yrði fyllilega fær til allra flutninga i haust. Frá Brandon ér símað 23. þ. m., að 150 atvinnulausir menn hafi leitað á náðir borgarstjórnarinnar í Bran- don, og farið þess á? leit við hana, að hún sæi þeim fyrir atvinnu á ein- hvern hátt. Sendu þeir fulltrúa á bæjarstjórnarfund í þessum erind- um, en fundur var þá ekki lögmætur. Þó hafði borgarstjóri séð 68 manns einþleypum fyrir máltíðum, og lof- ast' til þess að reyna að greiða veg þeirra á allan hátt úr því, en að fjöl- skyldumönnum atvinnulausum hefði borgarstjórnin reynt að hlynna að eftir megni. Veðrátta hgfir verið ákaflega um- hleypingasöm, það sem af er vor- inu. Um fyrri helgi voru hér fekafir hitar, svo að lfomst upp í 90 gráður í skugga. En um miðja vikuna varð ! á snögg breyting, er byrjaði með blindbyl í Alberta, svo að fjögra þumlunga snjór féll um allt fylkið, norðan frá Peace River héraði og suður fyrir Red Deer fljót. Færðist kuldabylgja þessi síðan austur yfir landið, með snjó í Saskatchewan víða, og kuldastormi og frosti hér í Manitoba, aðfaranótt föstudagsins. En nú hefir aftur hlýnað. Ekki munu þó skemmdir hafa orðið á uppskeru til neinna muna. Skipulagsfundúr til undirbúnings 60 ára afmælis Manitobafylkis í rík- issambandinu, var haldinn á þriðju- dagskvöldið í vikunni sem leið, í þinghúsinu hér(í Winnipeg, og sátu hann um 100 manns, undir forsæti Hon. John Bracken, forsætisráðherra Manitobafylkis. 1 framkvæmda- nefndina til undirbúnings hátíða- höldunum, voru þessir kosnir: Hon. John Bracken, formaður; Anderson yfirhershöfðingi; Hon. Albert Pre- föntaine; J. T. Haig, M.L.A.; John Macgregor; Mrs. A. J. Hughes; Mrs. H. M. Speechley; Mrs. Edith Rogers, M.L.A.; Mrs. E. Wasdell; W. J. Hea- ly; Roger Goulet; J. T. Freer; T. B. Roberton; W. L. McTavish; D. S. Woods, ritari. Fjöldi manna og kvenna, fulltrúar hinna og þessara félaga, voru kosin í meðráðanefnd til styrktar framkvæmdarnefndinni, og þar á meðal séra Jónas A. Sigurðs- son, forseti Þjóðræknisfélags Islend- inga. Sagði viðstaddur fundarmað- ur, að Bracken hefði farið sérstak- lega fögrum orðum um þær vonir, er hann og framkvæmdarnefndin gerði sér um þátttöku Islendinga í þessu hátíðarhaldi, samkvæmt þeim skerf, er þeir hefðu, sem frum- byggjar, og æ síðan, lagt til frama fylkisins á allan hátt. Verkamannaflokkurlnn óháði (I.L. P.), hefir ákveðið að halda fund með sér fyrstu vikuna í júní, til þess að koma sér saman um frambjóð- anda í Mið-Winnipeg nyrðri við sam- bandskosningarnar, er fara í hönd. Fullyrt er að dr. J. S. Woodsworth verði tilnefpdur, og heí^r því aðeins leikið vafi á tilnefningu hans, að frézt hafði, að heilsu hans hefði ver- ið svo farið í vetur, að vafasamt væri hvort hann myndi treystast til þess að gefa kost á sér. En nú er full,- yrt að hann hafi náð þeim bata, að nokkurnveginn víst muni vera fram- boð hans. Frá Portage La Prairie er símað 21. maí, að konservatívar þar hafi einum rómi nefnt W. H. Burns, borg- arstjóra, til framboðs fyrir sína hönd við sambandskosningarnar í sumar. Hon. Arthur Meighen, er þingmað- ur kjördæroisins hafði verið i 22 ár, er hann sagði sig frá opinberri þátt- töku í stjórnmálum, hafði verið beð- inn að gefa kost á sér, en algerlega færst undan því, að verða við þeim tilmælum. • Hinn geigvænlega voldugi vatns- virkjunarhringur Samúels Insull, frá Chicago, teygir armana sífellt lengra yfir Canada. Frá Dauphin, Man., barst sú fregn á laugardaginn, að örðugt kapphlaup væri á milli Raf- veitu M' litobafylkis (Provincial Hydro) og National Utilities Cor- poration, sem er einn “fálmarmur” Insulls, um orkuverið við Meadow Portage, sem liggur á milli Manitoba- og Winnipegosisvatns. Hefir GrancT- view þorp fengið tilboð frá báðum íélögunum, um að virkja verið. Að vísu er þarna ekki að ræða um neitt stóreflis orkuver; álitið, að það muni framleiða um 8,000 hestöfl, en raf- veita þaðan gæti komið að notum allstóru héraði í austurhluta Sask- atchewanfylkis, þar sem Insull fé- lagið hefir þegar að nokkru leyti náð fótfestu, þ. e. a. s. sú deild þess, er, kallast “Canadian Utilities Co.” Hef- ir hún nýlega náð haldi á virkjuninni i Yorkton, og þar fyrir sunnan, í Saltcoats, Moosomin, Fleming, Lem- berg, Wapella, Broadview, Grenfell, Summerberry, Wolseley, og viðar á þeim stöðvum er nálægt Manitoba liggja. Þetta er sagt að sé sama fé- lagið og það, er kallar sig “National Utilities Corporation" hér i Mani- toba, og hefir þegar náð haldi á virkj - uninni í Deloraine, Swan River, Ha- miota, og hefir ákveðinn augastað á Brandon. Ætti hver bæjar- og sveit- arstjórn í Manitoba að hugsa sig um tvisvar, áður en hún gengur á bug við virkjunartilboð frá Rafveitu Manitobafylkis, enda þótt tilboð In- sull félaganna kynnu að vera eitt- hvað álitlegri í fyrstu. Þvi reynslan Frá Montreal er símað 24. þ. m., að líklegt sé nú talið, að með árinu 1933 hefjist nýtt timatal, í stað hins gregoríanska,v er vér höfum búið við, þannig, að ákveðið verði, að þaðan í frá skuli vera 13 mánuðir í ári hverju, en 28 dagar í hverjum mán- uði. Verður þá að bæta einum degi við ár hvert, i árslok, en tveimur, þegar hlaupár er. Telja margir þetta muni hentugra öllu viðskiftalífi. Hef- ir þetta verið til umræðu á fundum Alþjóðabandalagsins, og hefir það, með eftirgrennslan, komist að þeirri niðurstöðu, að flestum myndi aufúsa í þessari breytingu. Fregnin herm- ir, að Canadastjórn hafi ekki enn látið málið til sín taka, en að Royal Society of Canada, Canadian Manu- facturers Association og Canadiau Chamber of Commerce hafi aðhyllst þessa breytingu. Ennfremur er svo frá skýrt*í þessari fregn, að um 100 viðskiftafélög í Bandaríkjunum hafi þegar komið á hjá sér slíku reiknings- ári, og þar á meðal jafn voldug fé- lög sem Eastman Kodak Company og Sears-Roebuck & Co. Talið er líklegt, að fullnaðarákvörðun verði um þetta tekin í Genf, aðsetri Al- þjóðabandalagsins, þegar á næsta ári. En ástæðan til þess að þetta nýja tímatal verði tekið upp árið 1933, er sú, að þá byrjar árið á sunnudegi. En þess getúr þó frétt- in, að faVi svo, kunni þeim, er hjá- trúarfyllstir eru, að þykja allískyggi- legt, að þaðan í frá verði 13. hvers mánaðar jafnan föstudagur! Þrettánda mánuðinum verður skot ið inn á milli júní og júlímánaða. Hafa komið fram tillögur um að nefna hann “Sól” eða Sólmánuð. Winnipeg Electric félagið fór fram á það við bæjarstjórnina, að mega hækka fargjaldið með strætisvögn- unum frá því sem nú er, þannig, að hér eftir yrði fargjaldið fyrir full- orðna rétt 10 cent, ef keyptur væri einn farmiði í einu, en annars þrír farmiðar fyrir 25 cents, í stað fjögra er Aú fást fyrir þá upphæð. Fargjald fyrir börn skyldi vera fimm cent rétt, ef einn farmiði væri keyptur í einu, e% annars 7 farmiðar fyrir 25 cents. Bæjarstjórnin hafnaði ein- róma þessari ’málaleitun félagsins." Um leið mótmælti Lowe bæjarráðs- maður tregðu þeirri, er félagið hefði sýnt í því að gera við ýms stræti, fyr en útkljáð væri um það hvort bæjar ráðið gengi að þessari fargjalda- hækkun. Þótti honum sem það benti á auðsæja tilraun félagsins til þess að neyða bæjarstjórnina til þess að verða við málaleitun félagsins. stóriðjuhöldar Bandaríkjanna, séu að vakna til fullrar meðvitundar um það, hver áhrif það myndi geta haft á viðskiftalíf þjóðarinnar, ef sam- þykkt yrði hið margþvælda tolllaga- frumvarp, er kennt er við Hawley- Smith, og stórum hækkaði hinn há- reista tollgarð Bandaríkjanna. s James D. Mooney, formaður “Gen- eral Motors Export Corporation”, segir að frumvarpið sé beint til- ræði við iðnaðarútflutning Banda- ríkjanna, og varar við því að hver þröskuldur, sem lagður sé í götu iðn- aðarútflutningsins, hafi bein áhrif á £(fkomu 1,214,459 verkamanna og þrefalt fleiri áhangenda þeirra. Crt- flutningur General Motors nemur 15 prósent af allri framleiðslu félags- ins. Gerir Mr. Mooney ráð fyrir þvi að útflutningur félagsins muni minnkg um 60 prósent, ef frumvarp- ið verði að lögum, og það þegar á þessu ári, samanborið við árið sem leið. Isaac Marcosson, nafnkunnur al- þjóðafregnritari og rithöfundur, seg- ir i grein, er hann ritar utn Hawley- Smit#i frumvarpið, að núverandi toll- • stefna Bandaríkjanna sé fjárhags- lfega skammsýn og stórheimskuleg. “Verði þetta tolllagafrumvarp að lögum, eins og það er nú úr garði gert,” segir hann, “þá er það eitt um það að segja, að vér höfum þar ritað undir sáttmála um fjárhagslegt sjálfsmorð. Það sem til grundvallar liggur fyrir hugmynd Briands, um alþjóðleg samtök, en sú hugmynd hefir nú þegar fengið ákveðið snið, er stórfelld fjárhagsleg samtök alls heimsins, sem stefnt er gegn oss.” Hátollur er tvíeggjað sverð. Það þótti mörgum stóriðjuhöldum Banda rikjanna auðsætt, er Frakkjir svör- uðu tollhækkuh Bandaríkjanna, sem stefnt -war að frönskum afurðum, með því að hækka toll á innfluttu hveiti, “til þess að veita frönskum bændum hæfilega vernd”, eins og Tardieu forsætisráðhefra komst að orði. Sú hækkun nam altl að 80 frönkum ($3.20) á hvern quintal (100 eða 112 pund). Henry Ford hefir frá upphafi ver- ið ákafur mótstöðumaður Hawley- Smith frumvarpsins. Og hvað sem menn vilja segja um mannfélags- og heimspekiskenningar hans, þá neit- ar honum þó enginn um vit á mark- aðsskilyrðum. Hefir framleiðsla hans aldrei staðið með meiri blóma en nú. “Tolllög þessi eru hin mesta viðskiftaflónska,” segir Ford. “Þau, eru heimskuleg frá iðnlegu sjónar- miði, og munu auka atvinnuleysi. Menn geta ekki keypt af oss, ef vér ekki kaupum af þfeim, og só alþjóða- viðskiftum gert ógreiðara fyrir, þá veldur það viðskiftakyrstöðu heima- fyrir hjá oss. Ef alríkisþingið gerir frumvarp þetta að lögum, þá er eg sannfærður um að 1 forsetinn muni greiða þvi synjunaratkvæði, undir- eins og það verður fyrir hann lagt til staðfestingar.” Fjöldi helztu viðskiftahöldg. Banda- ríkjanna eru nú á sömu skoðun, enda hafa meira en eitt þúsund viðskifta- sérfræðingar farið þess á leit við Hoover forseta, að hann greiddi synj- unaratkvæði staðfestingu þessara laga, með þeim ummælum, að fátt sé “skoplegra en tilraunir Banda- ríkjastjórnarinnar, er hún með ann- ari hendinni reynir að ýta undir út- flutning framleiðslu vorrar, með starfsemi “Bureau of Foreign and Domestic Commerce”, í sömu and- ránni sem hún með hinni hendinni reynir að velta sem mestum torfær- uiti á veg útflutningsins, með toll- hækkun sinni.” Því fremur óttast þessir menn af- leiðingar tollhækkuþ.arinnar, sem skýrslur, nýlega gefnar út af “Com- merce Department” leiða i ljós, að fyrsta fjórðung ársins 1930 hafi út- flutningur frá Bandaríkjunum minnk- að um 20í'°, samanborið við sama tímabil í fyrra, og að útflutningur frá öllum löndum Evrópu hefir minnkað síðan í fyrra, að Rússlandi einu undanskildu. \ Bannlögin. Öll atkvæði, er greidd hafa verið við málamyndaratkvæðagreiðslu þá um bannlögin, er Literary Digest gekkst fyrir, hafa nú verið talin. Hafa langtum fleiri atkvæði verið greidd að þessu sinni, bæði alls og hlutfallslega, en við nokkra aðra at- *\Frh. á 5. bls.)

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.