Heimskringla


Heimskringla - 28.05.1930, Qupperneq 3

Heimskringla - 28.05.1930, Qupperneq 3
( "WINNIPEG, 28. MAÍ, 1930. HEIMSKRINGLA 3. BLAÐSÍÐA raun hafa á búum sínum alls um 300 kýr. Leggur hann mixlð kapp á, að mjólkurvinslan verði sem bezt, kæli- rúm fullkomið, svo mjólkin geymist vel, og hreinlætistæki sem best og fljótvirkust. Vjelar þær sem þvo mjólkurbrúsana eiga að skila 400 brúsum hreinum á kl.-stund. Uppi í rishæð Korpúlfsstaðahúss- ins er þurheysgeymslan. Er við höfðum skoðað fjósið gengum við upp um hlöðuloftið, Thor Jensen og nokkrir gestir hans. t*ar fyrst rann upp fyrir mjer hve byggingin í raun og veru er risavaxin. Hið ytra samsvarar hún sjer svo að hún leynir stærð, og niðri er hún það sundur hólfuð, að ekkert yfirlit fsést. En þegar flutningabílarnir þjóta milli heystabbanna á hlöðuloftinu, sem er eitt gímald að mestu, sjest best hver stærðin er. Um miðja hlöðuna var stabbi einn, sem ekki sýndist sjerlega mikill fyrirferðar. En hann ætlaði Thor Jensen að firna. Þar voru 1000 hestar af töðu. Votheystóftir eru þar 7 og taka alls 800 tonn af vot- heyi. En auk votheys þessa, heyjaðist í fyrra að Korpúlfsstöðum 5000 — 6000 hestar af töðu. 1 kjallaranum mikla, við hlið á- burðarkjallarans er verkfæra- og vjelageymsla búsins. Um verkfæri þau mætti rita langt mál, og hvem- ig þau hafa reynst hvert fyrir sig. í>ar eru þúfnabanar tveir, traktorar margir, sláttuvjelar, rakstrarvjelar, snúningsvjelar, sáðvjelar, áburðar- dreifarar, plógar, herfi alskonar o. fl'. o. fl. Með traktorum er jörðin unnin. Traktorar eru látnir draga sláttu- vjelarnar. Hestamir eru að hverfa úr sögunni, i þessum nýtískubú- skap. Að lokum gengum við út í bráða- birgðafjósið með rúml. 100 kúm, er biðu þar bráðra vistskifta. Þar mátti sjá marga gripi væna og föngulSga. Þar sem annarstaðar á íslenskum stórbúum sjást á ýmsum gripanna glögg ættarmerki hins rauða kynstofns, sem alstaðar ryð- ur sjer til rúms fyr eða síðar á landi hjer, þegar rækt er lögð við kúastofninn. Hingað til hefir meðal ársnyt kúnna verið 2300 —- 2600 lítrar. Fjöldi nær 3000 lítra ársnyt. En margar af hinum , aðkeyptu kúm em mjög lágmjólka. Telur í'hor Jensen að brátt megi takast að ná þvi marki að meðalársnytin verði 3000 lítrar. Rita mætti heila bók um búskap Thors Jensen, um athafnir hans, reynslu á sviði nýræktar, notkun verkfæra, byggingar hans o. fl. o. fl. Þá bók ætti að rita sem fyrst og myndi fátt þarfara ritað í þágu búnaðarframfaranna. V. St. — Lesb. Mbl. Frá Islandi Rvík, 17. apríl. Gunnar Gunnarsson skáld hefir ný- lega ritað grein í danska tímaritið “Tilskueren”, þar sem hann finnur að þvi að hingað eigi í sumar að gefa ljósmyndarútgáfu af Flateyjarbók. Þykir Gunnari sem betur hefði farið á þvi, að Danir hefðu afhent Flat- eyjarbók hi*gað til lands. Segir hann sögu Flateyjarbókar, og bendir á, að hún hafi verið send til Dan- merkur á sínum tíma samkvæmt konungsboði, og hafi ekkert endur- gjald komið fyrir, en bókin dýrmæt frá upphafi, og sé nú metin að minnsta kosti 1 miljón króna virði. Fyrir ritgerð þessa hefir Gunnar fengið óþvegnar skammir og skæt- ing í ýmsum dönskum blöðum. Rvik, 17. apríl. Norðlenzka skólahátiðin. Búist er við að fjölmenni mikið fari héðan úr Reykjavík á .skólahátíðina norð- lenzku. Sennilega verða skipaferðir mjög hentugar, hægt að fara héðan með Drotningunni, er kemur norður þann 29. maí, en með Esju suður, er fer frá Akureyri 2. júní. Undirbúningur undir hátíðina stendur nú yfir, eftir því sem Sig- urður skólameistari Guðmundsson hefir sagt Morgunblaðinu. Hefir Da- víð Stefánsson ort hátíðaljóð, en Páll Isólfsson mun semja lög við þau. Hátíðin verður tvískift, sem kunn- ugt er. Fyrri daginn verður sam- koman á Möðruvöllum í Hörgárdal. Þar fer fram skólauppsögn; ræður verða þar fluttar o. s. frv. En seinni daginn verður árdegis- verður á Akureyri, er skólinn gefur hátíðargestunum, og miðdegisveizla siðari hluta dags. Minningarrit skólans, sem nú er að mestu fullgert frá hálfu höfund- anna, getur líklega ekki komið út fyr en með haustinu. Þar verður meðal annars saga skólamáisins allt frá þvi að Hólaskóli var lagður nið- ur, og fram á þenna dag, eftir Sig. Guðmundsson. Þar birtist og æfi- ágrip þeirra manna, er unnið hafa mest við skólann og skrá yfir alla þá er lokið hafa burtfararprófi frá þvi Möðruvallaskóli var stofnaður. ó. H. var stórgáfaður maður, eins og hann átti kyn til, og fróður um margt. Hann hefir ritað töluvert um lögfræðileg efni í erlend tímarit, einkum um forn lög íslensk. — Mörg síðustu ár ævinnar var hann svo þrotinn að heilsu, að hann gat engum störfum sint. —'Vísir. N ai ín s PJ iöl Id | — Rvík, 23. apríl Slys. 1 gærkvöldi barst loftskeyti frá togaranum Venus, er var á leið hingað frá Selvogsgrunni, og var þar skýrt frá þvi að einn hásetanna, Kristján Kristjánsson hefði fallið tyrir borð og drukknað. Nánar var ekki sagt frá slysi þessu, en senni- lega hefir verið ofsaveður og stór- sjór. Kristján sál. var búsettur í Hafnarfirði; hann var kvæntur og lætur eftir sig konu og fjögur ung börn. Rvík, 27. apríl Héruðsskólinn að Reykjum í Hrúta- firði. Or Hrútafirði er blaðinu skrif- að: Strandasýsla hefir lagt 20,000 krónur til héraðsskólans að Reykjum en V.-Húnavatnssýsla 15,000 kr. ó- frétt enn hve ríf Austur-Húnavatns- sýsla verður á fé til skólans. En eft- ir þvi sem fréttist þaðan, eru menn skólanum hlynntir. Ráðgert er að byggja nú í sumar fyrir 40—50 þús. kr. og bæta við síðar. Sýslunefnd Strandasýslu kaus Halldór Júlíus sýslumann og Krist- mund Jónsson kaupfélagsstjóra í byggingarnefnd, en sýslunefnd Vest- ur-Húnavatnssýslu hefir kosið þá Þorstein Einarsson að Reykjum og Eggert Levý að ósum. Ráðuneytið skipaði formann nefndarinnar Hann- es Jónsson alþm., en Þorstein Ein- arsson varaformann. Til þess að standa fyrir skólasmíð- inni hefir nefndin ráðið Ólaf Jónsson á Borðeyri. Efnið er pantað i bygg- inguna. Rvík. 22. ap.. Síra ölafur Briem, prestur að Stóra-Núpi, andaðist í morgun á Landakotsspítala. Hann veiktist snögglega í emb. ferð á Skeiðum nóttina eftir Pálmasunnudag, en þann dag hafði hann embættað á ðlafsvöllum. Daginn eftir var hann við barnapróf á Skeiðunum, en þyngdi sóttin og lagðist rúmfastur 4 Húsatóftum. Var hann fluttur hing- að fárveikur á laugardagskvöldið var, en banameinið, sem mun hafa verið botnlangabólga, hafði þá grafið svo um sig, að ekki varð við ráðið. Síra ölafur heitinn var fæddur 5. október 1875, sonur síra Valdimars Briem vígslubiskups. Hann tók stú- dentspróf 1897 og embættispróf árið 1900. Kyæntist sama ár eftirlifandi konu sinni, Katrínu Helgadóttur frá Birtingaholti, og gerðist aðstoðar- prestur hjá föður sínum og tók við embætti hans, er hann sagði af sér prestskap árið 1918. Síra ölafur var og vinsæll af söfnuðum sínum. —Vísir. Rvík. Sjera Lúdvig Knudsen prestur að Breiðabólsstað í Vesturhópi andaðist í fyrrinótt að heimili sínu. Hann var fæddur 9. febr. 1867 að Hólanesi á Skagaströnd og hjet fullu nafni Didrik Knud Ludvig Knudsen. Foreldrar hans voru Jens Adser Knudsen verslunarstjóri og kona hans Elísabet Sigurðardóttir bónda í Höfnum, Amasonar, Ludvig út- skrifaðist úr Reykjavíkurskóla 30. júní 1888 og úr prestaskólanum 25. ág. 1892. Þá um haustið var hann vígður prestur að Þóroddstað i Kaldakinn; leystur frá embætti 1898 og stundaði þá verslunarstörf hjá örum & Wulff á Húsavík í nokkur ár. 1904 voru honum veittir Berg- staðir í Svartárdal og 1913 fekk hann Breiðabólstað í Vesturhóþi og þjónaði því prestakalli síðan. Hann var kvæntur Sigurlaugu Björgu Arnadóttur, Sigurðssonar í Höfnum. Sonur þeirra er Arni Knudsen verslunarmaður hjer í bæ. Mbl. Rvík, 27. apríl .Teppe Aakjær látinn. Danski rit- höfundurinn Jeppe Aakjær er nýlega látinn á búgarði sínum í Danmörku, 63 ára gamall. Hafði hann lengi verið heilsuveill, en var þó farinn að hressast svo, að daginn fyrir andlát sitt.lét hann orð falla um það, að nú væri hann orðinn stálhraustur aftur. Banamein hans var hjartaslag. Var hann á gangi úti í blómgarðl sínum, er hann fékk aðsvif og dó skömmu síðar. Aakjær stóð einna fremstur í flokki danskra rithöfunda. — Mestr- ar frægðar gat hann sér fyrir bækur sínar um józkt sveitalíf og endur- minningar sínar, sem notið hafa mikilla vinsælda, og skrifaðar eru af hreinni snilld. Kvæðasafn hans er mjög mikið. Hann var sérstaklega lyriskur í skáldskap sinum, jafnt í bundnu sem óbundnu máli. Um tíma skrifaði hann talsvert um þjóðfélags- málefni, einkum á yngri árum sín um. Aakjær var jafnan mikilsvirtur rit- höfundur, og á sextugsafmæli hans hyllti danska þjóðin hann að mak- legleikum. Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldf. Skrlfstof usíml: 23674 Htund&r aérst&klag:& lun&n&ajúk- dóm&. Er &tJ flnna á akrlfatofu kl 10—lt f. h. of 2—0 «. h. Halmlli: 46 Allow&y Ava. TaUlmli 33108 DR A. BLONDAL «•1 MeUlcal Art* Bld* T&lsira!: 22 29« Stundar sdrstaklesa kvensjúkðdma og barnasjúkddma. — AB hitta: kl. 10—12 * h. og S—6 e. h Helmllt: S0S Vlctor St. Siml 2Í 180 DR. B. H. OLSON 216-220 Medlcal Arta llld&. Cor. Grah&m and Kennedy 8t. Phone: 21 834 VUit&latími: 11—-12 o g 1_5 80 Holmlll: 921 Sherburn St. WINNIPEG, MAN. Dr. J. Stefansson Sl« MEDICAL ARTS BLDQ. Hornl Kennedy og Gr&h&m Sttindar aef- Kr all flsctsgu auictna- eyraa- OI k verka-sj Akddma hltta frA kl. 11—12 f. h. oe kl. 3—* e. h. Talelmít 21KS4 Helralll: «81 McMIUan Ave. 4201 Tal.fml i 28 889 DR. J. G. SNIDAL TANNLÆKNIR •14 Soneraet Block Portage Avenue WINNIPEG Rvík, 17. apr. Ólafur Halldórsson, konferensráð, fyrrum skrifstofustjóri íslenzku stjórnarráðsskrifstofunnar í Kaup- mannahöfn, andaðist í gær. Hann var læddur 15. maí 1855, sonur hins þjóðkunna merkismanns sira Halldórs prófasts Jónssonar að Hofi. ólafur Halldórsson lauk stú- dentsprófi í Reykjavik 1877, og síðar lagaprófi við háskólann i Kaupmannahöfn. Árið 1889 varð hann. skifstofustjóri í Islands-deild dómsmálaráðuneytsins danska og gegndi því starfi til 1904, er hann varð forstjóri fyrir skrifstofu stjórn- arráðs Islands í Kaupmannahöfn. Því embætti gengdi hann til 1909, er hann varð að láta af störfum, sakir heilsubrests. Bruni á Isafirði Rvík. 24. apríl (Eftir símtali við Isafjörð). Kl. um 2 í gær urðu menn þess varir, að eldur var kominn í kvik- myndahúsið á tsafirði. — Eldurinn virtist uppi I þaki, því mikinn reyk lagði upp úr þakinu og með þak- skegginu beggja megin. ^Magnaðiat eldurinn ört, því norðvestan stormur var og hríðarveður. Varð húsið brátt alelda og engin tiltök að bjarga neinu úr þvi. Átti slökkviliðið fult í farigi með að verja nærliggjandi hús, en það tókst að mestu; þó skemdust mikið tvö næstu húsin; er voru íbúðarhús annað eign Guðjóns Jónssonar hafnsögumanns, en hitt eign Sigríðar Valdimarsdóttur. Einn- ig urðu stórskemdir á innbúi manna við flutning úr húsunum, vegna þess, hve veðrið var vont. Kvikmyndahúsið brann til grunna á skömmum tíma. engin íbúð var í húsinu, en Leikfjelag Isafjarðar átti þar sín tæki og leikútbúnað (óvá- trygt) og branm það alt. Er það tilfinnanlegt tjón, sem Leikfjelagið hefir beðið. Kvikmyndahúsið var eign þeirra fjelaga Helga Guðbjartssonar og J Matthíasar Sveinssonar. Brunabóta- virðing hússins var kr. 76,800.00, og var sú virðing fjögra ára. En í fyrra sumar fór fram mikil viðgerð á húsinu. Er tjón þeirra fjelaga tilfinnanlegt, ekki síst þar sem búast má við, að núverandi bæjarstjórn á Isafirði veiti þeim ekki leyfi til kvik- myndareksturs áfram. Rjettarrannsókn út af brunanum hófst í gær, og er talið víst, að kviknað hafi út frá rafmagnsleiðslu. Eldsins varð fyrst vart uppi í rjáfri, þar sem rafmagnsleiðslan kom inn í húsið. (Mbl.) DR. K. J. AUSTMANN Wynyard —:— Sask. Þvl aB faaga nndlr uppnknrtt viB botnlanfabölfu, arallateinam, mafa- of llfrarveiklf Hepatola hefir gefist þúsundum manna vel vítSBvegar í Can&da, á hlnum sitSastlitSnu 25 á.rum. Kostar $6.75 met5 pósti. Bœklingur ef um er beóió. Mra. Geo. S. Alraas, Box 1073—14 Saakatoon, Saak. HEALTH RESTQRED Lœkningar án íyfja DR. 8. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.C. Chronic Diseases Phone: 87 208 Suite 642-44 Somerset Blk. WINNIPEG —MAN. A. S. BARDAL eelur lfkkistur og ann&st um útf&r Ir. Allur útbún&bur sá bextl Ennfremur selur h&nn allskon&r mlnnlsv&rtJa og lejjstelna. 84S SHERBROOKE 8T. Phonei 86 007 WINNIPBG Rvik. 24. ap. Sumarfagnaður stúdenta var háð- ur i gær að Hótel Borg. Fór hann hið besta fram. Yfir borðum heldu ræður Guðm. Kamban rith., síra Rögnvaldur Pjetursson, Agúst H. Bjarnason dr. phil., og margir fleiri. Var síðan að borðlmJdi loknu dansað fram undir morgun. Rvik. 5. maí. Valdimar Brieni A laugardagsmorguninn andaðist séra Valdimar Briem. Hann var 82 ára gamall, fæddur 1. febrúar 1848. Var skamt á milli dánardægurs þeirra feðga, því að séra ólafur TIL SÖLU A ÖDtnU VERDI “EDRNACB” —bæDt vltlar o( kola "furnaca" litlt) brúkaS, ar til attlu hJA undtrrtturium. Oott taeklfœrl fyrtr fóftc út A landl ar bmta vllja hltunar- AhSId A hetmllinu. GOODMAN TISO Toronto St. A CO. Slml 28847 G. S. THORVALDSON B.A., L.L.B. LógfrceSingur 702 Confederation Life Bldg. Talsími 24 587 WALTER J. LINDAL BJÖRN STEFANSSON lslcnzkir lögfrccSingar 709 MINING EXCHANGB Bldg Sitni: 24 963 356 Moin St. Hafa einnig «krifstofur aö Lundar, Piney, Gimli, og Riverton, Maa. Telephone: 21 613 J. Christopherson, Islenskur LögfrœSingur 845 SOMERSET BLK. Winnipeg, :; Manitoba. Mrs. B. H. Olson TEACHER OF SINGING 5 St. James Place Tel. 35076 Björgvin Guðmundson A. R. C. M. Teacher of Music, Gnmpnitrl—, Theory, Counterpoint, Orch— tration, Piano, etc. 555 Arlington St. SfMI 71621 MARGARET DALMAN TRACHKR OF FIANO 854 BANNINQ ST. PHONE: 26 420 Ragnar H. Ragnar Pianokennari Phone 34 785 —Kennslustofa—- 693 Banning Street Gunnar Erlendson Pianokennari Kennslusto fa: T alsími 684 Simcoe St. 26293 Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— ■■((•(• a.4 F■ rattar« M. 668 ALVKHSTONE ST. SIMI 718*8 Kf útv.ga kol, alAlvlS m.* aannaJttmu varhl, anaaat fluta- 1 nf fram og aftur um baalzin. 100 harb.ral m.V »5a Au baO. SEYMOUR HOTEL v.rO aanncJarnt 8lml 38 411 C. G. H DTCHISON, tlfiaál Market And Ktnr *t.. Wlnnlp.* —:— Maa. Briem sonur hans, andaðist þriðju- dag, í páskaviku. Hafði hann verið fluttur hingað til Reykjavikur til lækninga, en dó litlu eftir að hingað kom. Hann var 54 ára. Hafði hann verið prestur á Stóra - Núpi síðan árið 1900, þar af lengi aðstoðar- prestur föður síns. Lík hans var flutt þangað austur daginn áður en séra Valdimar dó. Verða lík þeirra beggja greftruð næsta fimtudag. Séra Valdimar er kunnastur af Sálmakveðskap sínum. Hann lauk .guðfræðinámi árið 1872 og varð síðan prestur að Hrepphólum og Stóra-Núpi. Hann var vígslubiskup í Skálholtsbiskupsdæmi hinu forna. Nú að síðustu var hann orðinn hrumur af elli, en hafði þó ferlivist tii dánardægurs. — Alþbl. MESSUR OG FUNDIR í kirkju SambandssafnaSar Messur: —» á hverjum sunnudegi kl. 7. e.k. SafnaSarnefndin: Fundir 2. og 4. finrtudagskveld í hverjum mánutii. Hjálparnefndin: Fundir fyrsta mánudagskveld í hverjum mánutSi. KvenfélagiS: Fundir annan þriBju dag hvers mánatSar, kl. 8 aB kveldinu. S'óngflokkwi~»: Æfingar á hverju 1 fimtudagsicveldi. Sunnudagaskólinn: — A hverjum > sunnudegi kl. 2.30—3.30 e. ■*. •

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.