Heimskringla - 11.06.1930, Blaðsíða 3

Heimskringla - 11.06.1930, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 11. JÚNÍ, 1930. HEIMSKRINGLA 11. BLAÐSIÐA eigi fyrirfundist undir sólunni Um þetta leyti. Kaþólska kirkjan, sem allsstaðar lagðist eins og mara yfir stjórnmálalíf Norðurálfunnar, náði engu verulegu tangarhaldi á hugum Islendinga, meðan lýðveldið stóð með mestum blóma. Kirkjan var fyrir þeim riki <«.f öðrum heimi, °S stóð þó undir hinu veraldlega lög- Sjafarvaldi. Þess vegna gapti eng- lnn Islendingur af undrun yfir því, sem Vilhjálmur kardínáli af Sabína hneykslaðist á við hirð Noregskon- ungs, að Island “þjónaði eigi undir einhvern konung, sem önnur lönd i veröldinni.” Meðan lslendingar brugðust ekki islenzkum málstað, var vaxtarbrodd- Uv mannkynsins á Islandi, eins og Helgi Pétursson hefir einhversstað- ar komist spaklega að orði. Hvergi var hárið gulara eða augun blárri. Hvergi drengilegri menn né fríðari konur. En lýðveldishugsjónin var svikin. Þrælar einvaldsstefnunnar smeygðu sér inn í landið og eitruðu allt þjóðlíf í kringum sig. Þeir drápu Snorra Sturluson lögsögumann, goði og rithöfund, einn glæsilegasta full- trúa hinnar fornu íslenzku menning- ar. Þeir smugu inn á biskupsstólana og tóku að stefna valdi kirkjunnar ríkinu til niðurdreps. Þetta hefði aldrei verið hægt, ef Islendingar hefðu alltaf verið á verði um drengskap- inn, eins og þegar bezt var. En undireins og þeir voru farnir að svíkja lýðræðisstefnuna í hjarta sínu, steðjaði óhamingjan að garði. Þá varð skorturinn á framkvæmdarvaldi þeim að því fótakefli, sem það aldrei hafði orðið áður. Goðorðin, sem hægt var að kaupa og selja eða taka að erfðum, söfnuðust í fárra manna hendur, og nú var eigi hugsað um það lengur, að fá jafnvægi á valdið, heldur að sölsa það sem mest undir sig. Alla Sturlungaöldina níddust böðlar einvaldsstefnunnar hver á öðr- um og alþýðu manna, unz þjóðin gafst upp viðnámslaust í hendur er- lendu valdi, á árunum 1262—1264. Um leið var stigið yfir höfuðið á flestu nýtilegu í islenzku þjóðlífi. Bókmenntum hnignaði og mannrænu allri, efnahagnum sömuleiðis. Þjóð- in einangrast og tapar kjarki. Rúm- lega einni öld síðar veður svarti- dauði yfir og leggur allt í kaldakol. Hörmungamar. Brestandi fylgi við islenzkan mál- Stað olli því, að landið var svikið i hendur útlendu valdi og af því flaut lslandi öll sú hörmung, er síðar dundi yfir, þegar Islands óhamingju virð- ist verða allt að vopni. Vér skulum eigi dvelja lengi við þá rauna- og ófremdartíma, sem í hönd fóru. Sam- göngum fór stöðugt hnignandi, út- lendum lögum og útlendum embætt- ismönnum var troðið upp á lands- menn, þvert ofan í Gamla sáttmála. Jafnvel gekk svo langt ósvífni hins útlenda valds, að ýmsum æfintýra- mönnum og óþokkum voru seldar tekjur landsins á leigu, og létu þeir greipar sópa með hermdarverkum og ránskap. Kaþólska kirkjan tók að færast í aukana og raka fé af mönnum, eins og tíðast hafði langa hrið suður í löndum, og svo var kom- ið um siðaskiftin 1550, að hún átti fimmtung allra jarðeigna í landinu auk ýmissa hlunninda og fríðinda. Þá sló konungur eign sinni á allt saman. Ennþá versnaði þó hagur landsins með einokunarverzluninni, sem komið var á 1662, og stóð tæpar tvær aldir (að nokkru leyti til 1854). Það er hin versta blóðtaka, sem ís- lenzk þjóð hefir þolað. Við þetta bættist einveldið 1662 og sívaxandi óstjórn. Þjóðin hafði engan við- námsþrótt lengur. A 18. öld ganga stórsóttir og ýmiskonar óáran yfir landið, svo að fólk féll í hrönnum. Með Móðuharðindunum í lok aldar- innar þyrmdi þó mestu ósköpunum yfir. Þá misstu jafnvel beztu menn landsins alla von um að lifvænt yrði nokkru sinni á Islandi, og vildu láta flytja þær fáu hræður, sem eftir lifðu, hreppaflutningi af landi burt og setja þá niður á Jótlandsheiðar. Fólkinu hafði fækkað niður í 40 þús- undir. Naumast mun nokkru sinni hafa horft jafn uggvænlega hagur Is- lands og um aldamótin 1800. A nokkrum undanförnum árum hafði fallið nálægt þvi fimmtungur lands- manna úr hungri, og fullir þrir fjórðu hlutar alls bústofns þeirra úr ýmiskonar óáran. Ennfremur féll fjöldi nauta og hrossa á vetrinum 1800—1801 og um 80 þúsundir sauð- fjár, sem þá var næstum því þriðj- ungur af sauðfjáreigninni. Þá hóf- ust hin erfiðu siglingaleysisár, með- an styrjöldin stóð yfir milli Dana og Englendinga. Búið var þá að leggja niður Alþingi, sem naumast hafði verið annað en nafnið tómt síð- ustu árin. Það kom síðast saman á Þingvelli árið 1798, og hafði þá stað- *Fagrir staðir og merkir á Islandi Prestssetrið á Þingvöllum og Þingvallavátn, séð frá Almannagjá. Gamli og nýi tíminn. « I I I I I I I I I Birkitré á Þórsmörk við Eyjafjallajökul, inn af Fljótshlíð. Hallormsstaðaskógur við Lagarfljót á Fljótsdalshéraði. Milli trjánna sér út á fljótið. % I I Kistufoss i Soginu, er rennur úr Þingvallavatni í ölfusá.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.