Heimskringla - 11.06.1930, Blaðsíða 5

Heimskringla - 11.06.1930, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 11. JÚNI, 1930. 13. BLAÐSIÐA teknir að stunda votheysverkun nú á síðari árum. Heyinu er ekið renn- blautu í djúpar steinsteyptar hlöð- hr og látið hitna í því, og síðan fergt með grjótpressu. Verður þá geril- Myndun i heyinu, sem gerir það ým- ist sætt eða súrt, eftir því hve hit- inn er mikill. Hey þetta er ágætt skepnufóður, auðmeltara en þurhey, en þungt og óþokkalegt til meðferð- ar. Mjólkurframleiðslan hefir reynst bændunum stórum arðvænlegri nú á síðari árum, og þó einkum þeim, sem búið hafa nálægt kaupstöðun- um og getað selt mjólkina beint til neytenda. Sá markaður hefir þó verið mjög takmarkaður, og til þess nð bæta úr því, hafa verið stofnuð mjólkursamlög víðsvegar um Iandið. Þar sem gert er smjör, skyr og ostar úr mjólkinni, og þannig fengist víð- ari markaður. En hængurinn á Þessu er sá, að allmikið fer í rekst- urskostnað af verði mjólkurinnar, svo að verðlag hennar verður til- finnanlega lægra. Þó eru mjólkur- bú þessi vafalaust spor i rétta átt landbúnaðinum til viðreisnar. Að minnsta kosti' sýnist svo, að Islend- iugar ættu ekki að þurfa að kaupa smjör og osta frá útlöndum fyrir stórfé, eins og þeir hafa gert und- anfarið. Enda er eftirspurn mikil eftir hinni innlendu vöru. Sam- kvæmt skýrslu frá Mjólkursamlagi Eyfirðinga, sem stofnað var fyrir tveimur eða þremur árum síðan, hefir svo sem ekkert farið af af- urðum búsins út úr landinu, sökum sivaxandi eftirspumar innanlands. Það mjólkursamlag tók á móti tæpri hiUjón lítra af mjólk árið sem leið, °S greiddi bændum 235 þús. kr. fyrir eða ca. 24 aura að jafnaði á líter. •Af þvi verða svo bændur að greiða fiutningskostnaðinn að búinu, sem befir orðið um 2% eyrir á lítra. Reksturskostnaður samlagsins hef- ir samsvarað að jafnaði 6 aurum á bvern mjólkurlítra. I sambandi við mjólkurbúið hafa svo verið stofnuð nautgriparæktunar- félög á öllu samlagssvæðinu. Hefir Það eftirlitsmann, er litur eftir Qijólkur- og fóðurskýrslum bænda, annast fitumælingar og semur ætt- artölur kúnna. Af þessu má ráða bið takmarkalausa nýtízkusnið, sem hú er að færast á islenzkan landbún- að. Þrátt fyrir fólkstæming sveitanna, Þá er þó margt, sem stutt hefir að . stórkostlegri viðreisn landbúnaðar- ius nú á síðari árum. Vafalaust má að einhverju leyti þakka það búnað- arskólunum sem komið var á stofn laust fyrir aldamótin. Við þá störf- HEIMSKRINGLA uðu menn, sem dvalið höfðu erlendis og kynnst höfðu þar ýmsum nýrri vinnuaðferðum og starfstækjum. — Munu þeir hafa hvatt bændaefnin ti! að afla sér sem flestra og beztra verkfæra og vinnuvéla og kennt þeim meðferð þeirra. Einkum breiddu þeir út áhuga manna fyrir jarðabót- um og framræslu og veittu ýmiskon- ar þekkingu á jarðrækt og garðyrkju, sem mjög var af skornum skamti áður. Og eftir að Búnaðarfélag Is- lands var stofnað, komst þó fyrst nokkur skriður á jarðabæturnar. Það félag hefir alltaf haft yfir talsverðu fé að ráða, sem það hefir varið bænd um til leiðbeiningar og hvatningar, styrktar og verðlauna fyrir ýmsar búnaðarframfarir. Einnig hafa ris- ið upp ýms smærri framfara- og ræktunarfélög út um sveitirnar. Um síðustu aldamót hófu menn fyrir alvöru að slétta túnin og stækka þau og rækta jörðina. Vannst þetta svo vel, að um 1920 voru túnin auk- in að helmingi og víða sléttuð. Töðu- fengur hafði þó vaxið tiltölulega helmingi meir, garðrækt margfald- ast, og búpeningur aukist allveru- lega. Auk þess voru á þessum ár- um tún og engjar afgirt víðasthvar og heimahagar, og hafði þetta, ein3 og nærri má geta, geysimikil áhrif á heyfenginn, því engi lá áður undir eilifum ágangi búfjárins, og gaf þvi helmingi rýrari uppskeru. En síðan 1920 hafa þó framfarimar verið langtum stórstígastar. Þá tóku menn að nota nýja aðferð við við jarð- ræktina, sem var stórum afkasta- meiri en áður þekktist. 1 stað ofanaf- ristu með spaða, sem bæði var ákaf- lega erfið og seinleg, tóku ménn að brjóta jörðina með “þúfnabönum” eða “tractorum”, og hafa nú lagt undir stórar spildur í einu. Er þessi aðferð við jarðræktina tiltölulega fljótleg. “Þúfnabaninn” slítur allt og rífur í sundur, sem fyrir honum verður, og skilur við flagið eftir nokkra stund slétt til sáningar. Er þá sáð í það grasfræi og má ,fá góða grassprettu af þvi á næsta ári. A landinu hafa verið starfræktar nokkr- ar vélar af þessu tæi nú um undan- farandi ár, og hafa þær unnið krafta- verk. Umhverfis Reykjavík og Ak- ureyri hafa verið ræktuð stór flæmi á fáum árum. Eg þekki nokkur dæmi þess, að bændur hafa aukið tún sin allt að helmingi á einu ári. Einna stórmyndarlegastur búskapur með þessu nýtizku sniði mun nú vera á Vífilsstöðum og Korpúlfsstöðum í Mosfellssveit, þar sem ekki voru nema óræktarkot fyrir fáum árum síðan. Þar býr nú Thor Jensen stórum meira búi ,en Guðmundur ríki í gamla dagá, þótt sögur hermi, að hann hefði “hundrað hjóna og hundrað kúa”. Thor Jensen hefir 300 kúa, en ekki eins mörg “hjón”. Vélarnar og mannvftið, sem með þeim vinnur, er afkastameira en mannshöndin. Þó að landbúnaður verði sennilega aldrei jafn gróðavænlegur atvinnu- vegur og sjávarútgerðin, þá benda þó atburðir síðustu ára eindregið í þá átt, að hann geti orðið bæði lífvæn- leg og ánægjuleg atvinnugrein. Merkilegt er að veita því athygli, að þó að fólkinu hafi stórum fækkað i sveitunum, þá hafa þó heildartekj- urnar af kvikfjáreign landsmanna hér um bil þrefaldast á fjórtán árum, frá 1907 til 1921, og aukist enn mikið síðan. Auðvitað kemur þetta sum- part af hækkandi verðlagi, en vafa- laust einnig af vaxandi framleiðslu. Hið hækkandi verðlag er einnig að þakka aukinni vöruvöndun. Meðal- útflutningur Islendinga af landbún- aðarafurðum telst að nema ca. 8 miljónum króna árlega. Stjórn landsins hefir á síðustu ár- um mjög snúið sér að viðreisn land- búnaðarins. Ráðist hefir verið í stór áveitufyrirtæki, eins og t. d. Skeiða-áveituna og Flóa-áveituna, og þau fyrirtæki verið styrkt með stórfé úr ríkissjóði. Búnaðarfélagið hefir fengið um 200 þúsund krónur á ári til að launa landbúnaðarráðu- nauta og verðlauna framkvæmdir og jafnvel meira fé nú á síðasta ári. Styrkur til jarðabóta síðasta ár fyrir framkvæmdir 1928, nam 513 þús. kr. og var hér um bil 140 þús. kr. hærri en styrkurinn fyrir 1927. Til tún- ræktar og garðræktar hafa íslenzkir bændur fengið úr ríkissjóði nálega 430 þús. kr., og til þess að byggja mykjuhús nálægt 80 þúsund kr. á árinu 1928. A þeim fimm árum, sem liðin eru síðan ríkið tók að styrkja jarðabætur, eftir jarðræktarlögun- um frá 1913, nemur styrkurinn alls hálfri ,annari miljón króna. Hafa alls verið gerðar sjö sinnum meiri jarðabætur á árinu 1928 en 1924. Það var fyrst með stofnun Ræktun- arsjóðsins 1925, sem hagur landbún- aðarins fór að stórvænka. Hefir nú verið lánað úr honum hátt á 4. miljón króna, til húsagerðar, jarðræktar, girðinga og rafmagnsstöðva í sveit- um, með mjög vægum lánskjörum. 1928 var stofnaður “BVgginga- og landnámssjóður”, er tók til starfa um næstsiðustu áramót. Tilgangur sjóðsins er að “viðhalda býlum og fjölga þeim”, með því að veita lán til að endurreisa íbúðarhús í sveit- um, byggja nýbýli og styrkja bæjar- félög til að koma upp nauðsynlegum byggingum fyrir kúabú á ræktuðu HEAD OFFICE, WIMNIFEO MEÐ 0KKAR ÍSLENSKU \ SAMB0RGURUM tökum við í anda þátt í hátíðahöldunum á heimalandinu, í tilefni af 1000 ára afmæli Alþingis þeirra. Mætti föðurland þeirra blómgast og blessast og bera gæfu til að fæða upp slíka sonu og dætur, sem þá, er hafa aflað sér hér álits sem einhverjir beztu borgarar Canada. / Um það hálfrar aldar skeið, sem íslendingar hafa tekið þátt í þjóðlífi Canada, lýsir af starfsemi þeirra sem eins eftirtektarverðasta þáttarins í landnámssögu vorri, sakir at-orku og ráðdeildar þeirra. Félag vort býður þeim þau aðgengdegustu og öruggustu kjör á hverskonar líftryggingum, sem kostur er á. Fyrir alla þá, sem keppa að þvi, að geta litið óskelfdir og kvíðalaust til framtíðarinnar, höfum vér sérstaka trygg. ingartegund, sem veitir örugga fullvissu um áhyggjuleysi og allsnægtir á elliárunum. v \ HEAD OFFICE -WINNIPEG SiIiJiRTONl

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.