Heimskringla - 11.06.1930, Side 6

Heimskringla - 11.06.1930, Side 6
30. BLAÐSIÐA WINNIPEG, 11. JÚNI, 1930. HEIMSKRINGLA Viking- Press byggingin, homi Sargent og Banning. Pétursson með fádæma elju unnið að því starfi um lengri tíma. Einnig var Sveinn kaupmaður Thorvaldson í Riverton um mörg ár samfleytt for- seti útgáfufélagsins og sívakandi yf- ir hag þess. Og þannig mætti halda á.fram, þar til nöfn allra eigendanna væru talin. I stjórnarnefnd félags- ins eru, þegar þetta er skrifað: Dr. M. B. Halldórsson, forseti; Dr. Rögn- valdur Pétursson, skrifari og féhirð- ir, sem hann hefir undanfarin mörg ár verið; Bjöm Pétursson, varafor- seti; S. G. Thorvaldson; ölafur Pét- ursson; B. B. Olson; Magnús Peter- Lýkur svo hér sögu þessi. Myndir af ritstjórum blaðsins birtum vér hér ekki, nema af stofnandanum. Þótti þess ekki þörf, þar sem þær komu í Heimskringlu 1917 af þeim öllum nema J. W. Walters, upp til þess árs. Af ritstjórum þeim, sem verið hafa síðan, hafa einnig myndir birzt, nema af Birni 'Péturssyni og Stefáni Einarssyni. En mynd kemur nú hér af fyrstu síðu fyrsta blaðs Heimskringlu, dagsett 9. sept. 1886. Og önnur af hinni tiltölulega nýju byggingu Viking Press félagsins. NORRRAR WmUWL Eftir Lúðvík Kristjánsson Vorvísa. / Nú heilsar oss vordísin broshýr á brá og ber oss ið fegursta skraut, sem hún á, og ársólin ljómar um lofthvelin blá og ljósmynd af skugganum tekur. Hve kært er ið langþreyða sumar að •sjá, er svefnhöfga vetrarins slítur oss frá. Er hann ekki dýrðlegur, dagurinn sá, er drungann af löndunum hrekur. Afturelding. XJða böðuð, ung og ný anga blöð á hlyni; vökna glöð og ölvuð í árdags-röðul skini. Þankastryk. Eg hafði litið í “Lögberg”, en lítið séð. Þá bað eg konuna um kaffi og Kringlu með. Kvöld. Rökkurslæður reifast að, ríkir næði’ og friður. Sólar-æð á aftans hlað er að blæða niður. Punktar og strylc. Eg mun hafa lofast til þess að senda Heimskringlu einhverjar eldri minningar, og verð að reyna að gera eitthvað í þá átt, jafnvel þó daglegt strit gefi mér litla griðstund til skrifta. Eg hefi þessar minningar auðvitað á mína vísu, en veit þó, að ýmsir lesendur fussa við. En eg kæri mig þá kollóttan. Við bræður, Stefán heitinn og eg komum til Winnipeg 12. desember 1890, og voru þá liðnir 40 dagar frá þvi við létum í haf frá Reykjavík, en 12 daga biðum við skips í Glasgow á Skotlandi. Þetta var herfileg ferð, aftaka' óveður að heita mátti alla leiðina, og þegar við komum til Win- nipeg, var meira en 40 stiga frost. Var þá ekki laust við að manni gremdist slikt glappaskot, að hörfa frá Islandi út í brunagrimmdina hér & vestursléttunum. Jón heitinn ólafsson, er þá var meðritstjóri og ráðsmaður Lögbergs, tók okkur tveim höndum, því hon- um vorum við vel kunnugir á ætt- _ jörðinni, enda var Stefán bróðir þá ráðinn prentari við Lögberg, þótt sú rúsínukaka entist ekki lengi. Enga vinnu var hér að fá þenna vetur, og var eg sem labbakútur á vegum góðs fólks, er lánaði mér við- urværi-. En næsta vor, þegar er fært var að moka, réðist eg við þá hefðarstöðu hjá C. P. R., og hélt það út sumarlangt. Við Sigurður Helgason lentum þar tveir landar aaman 600 mílur hér vestur í landi, ög unnum 10—12 klukkustundir á <iag erfiðustu iskítavinnu fyrir $1.25 á. dag. Vorum við báðir ungir og vel byggðir og stóðumst þessa raun rétt eins vel og hinir golþorskarnir, sem unnu með okkur, og voru þeir þó flestir sem þvertré að bygging, þar sem við vorum bara renglur. En við Siggi bitum á jaxl og létum ekki undan siga, þótt Irar og Skotar, er þar unnu, reyndu að knésetja okk- ur. Sló eitt sinn í bardaga og tók- um við þá tveimur þeirra blóðnasir, en fengum víst sjálfir nokkrar flumbrur. En eftir þetta voru okk- •ur allir vegþr færir í þeirri sveit. En þá um haustið, 1891, er eg kom aftur til Wpeg, réðumst við Jón ól- afsson, og nokkrir fleiri drengir, í það að gefa út vikublað lítið, er nefndist "öldin”. Kom það út aðeins 21 viku, en var þá sameinað Heimskringlu, og hét hún þá um nokkurt skeið *’Heimskringla og öldin”. Því er nú miður, að eg man ekki að nefna alla þá, er lögðu skerf til að 3tofna þetta litla blað, en þessi nöfn hafa mér ekki fymst: Kristinn Stef- áinsson, Skapti Brynjólfsson, Eiríkur Oislason, Ami Þórðarson, S. J. Aust- Jmann, Sölvi Sölvason, Guðmundur Anderson og þeir bræður Sigfús og Sölvi Þórarinssynir. Við vomm allir félitlir eða félausir; en því að láta slíkt smáræði fyrir brjósti brenna! Stofnum aðeins blað, með Jón ólafs- son fyrir ritstjóra og látum svo gæf- una og skynsama lesendur ráða, hvort við fljótum eða sökkvum. Eitthvað þessu líkt munum við hafa hugsað. Eg þarf ekki marga pennadrætti til að lýsa því yndi er eg naut í sam- fylagi við Jón ólafsson, meðan við gáfum út litlu “öldina” og svo við Heimskringlu. Við vorum svo fá- tækir, að það er ekkert gaman frá að segja. En æfinlega var Jón jafn bjartsýnn og brosandi, hýr og elsku- legur á heimili, og alveg sama má 3egja um Helgu sálugu, konu hans. Þau skötuhjúín trlfúð og Þursi vom gersamlega útlagar frá því heimili. Þau áttu líka svo elskuleg og mann- vænleg börn, er hlutu að hæna að sér hverja heilbrigða sál. Og margoft, er eg minnist þessara liðnu daga, raula eg í einrúmi: “Og lífið var ríkt eins og Salómon, þótt ættum við ekkert að borða.” Eg ætla ekki að fjölyrða hér um hann Jón ólafsson, þar sem mig skorti mannskap til þess að gera það fyrri á myndarlegan hátt. En eg verð að segja það í allri hreinskilni, að hann var þá hér sá andlegur jöfur, er bar höfuð yfir alla samtíðarmenn, og er þá mikið sagt, því að einmitt þá voru snillingarnir Einar Hjörleifs- son og Gestur Pálsson einnig rit- stjórar hér vestra. En því að vera að hræsna? Við vissum það vel þá, og því betur sem árin liðu, að Jón ölafsson var í senn Skarphéðinn og Njáll á ritvelli, og þá ekki síður þeg- ar í orrahríð lenti á samkundum Hann hræsnaði aldrei eitt augnablik en níðhöggur var hann aldrei. hrömmunum hans. þessa ágæta manns. Hann kon brátt “út úr húsi” við stórbo klíkuna, sem þá réði hér n meðal Islendinga, einmitt vegna þess, að hann vildi ekki flaðra eða selj? samvizku sína fyrir soðgutlið í katl- inum. Eg skal standá við þess og rökfæra þau, ef að mér er vikið, hvað það snertir. Mér dettur ekki í hug að r að gera Jón ólafsson að noki dýrðling — langt frá — hann sína galla og suma stóra. En mað- ur hlaut að fyrirgefa honum undur mikið. Móðir hans og (og náttúrlega almættið) 1 þarna skapað svo einkennilega full- komna og elskulega sál, í spengileg- í handarkrika, máttir þú víkja út í forina, þegar hitt "parið” mætti þér. En þetta var þá bara gaman, og maður brosti yfir slíkum æfintýr- um og bisinu við að koma jómfrúnni aftur upp á gangstéttina. Spauglaust var það í þá tíð fyrir fjölskyldumann að eignast lífeyri og voru margir ætíð á heljarþröm. Eg er viss um að þeir Arni Friðriksson, Finney heitinn og Jón “Landi”, björguðu þá mörgum manni, en fengu máske litla velþóknan fyrir. Menn borguðu þessum kaupmönnum það sem innheimtist, en svo varð guð og gæfan að standa skil á afganginum. Og ég má ekki gleyma þeim Ölafs- son’s bræðrum og honum Arinbirni Bardal. Mikil ósköp hlúðu þeir að eldstæðum Islendinga hér þessi árin. En það rætist fram úr flestu, ef dagur er nógu langur. Þessi forar- borg, Winnipeg, fór smám sainan að fikra sig upp og áfram, og fólkinu fór að líða betur. Menn færðu sig úr litlu, köldu kofunum, inn í ný, snotur og hlý hús með nýtízku þæg- indum, þar sem menn gátu t. d. þvegið af sér ryk og svita í þægi- legum baðkerum og svo þurfti ekkl framar að sækja vatn í skjólum úr bannsettu óþverra brunnunum. Vinna jókst nú óðfluga í borginni og verzl- un náttúrlega margfaldaðist, svo að það voru mestu auðnuleysingjar og letingjar, er sífellt gengu auðum höndum. Manntal borgarinnar jókst nú mjög og tók hún brátt á sig stór- borgarsvip. Svo miklu síðar brauzt allt í einu út í þetta bandvitlausa fast- eignabrall, sem á hérlendu hrogna- máli nefnist “boom”. Og þvílíkar þó hamfarir! 1 líkingum talað má segja að menn, er voru nær allslaus- ir i dag, voru á morgun orðnir stór- efnamenn. Var þá ekki laust við að stórbokkaskapur kæfði vit og sann- girni hjá sumum þessum bragðaref- um, og má þess kenna mörk enn i dag. Þessi fyrstu ár mín hér i Winnipeg var félagslif meðal Islendinga frem- ur dauft. Það var svo sem ekkert annað en Lúþerska kirkjan og Góð- templarastúka — jú, og kapellan þeirra Jónasar og Lárusar á Kate stræti, sem þá var flæmikví islenzkra fáráðlinga. En menn heimsóttu mik- ið hverjir aðra, jafnvel meira en nú tíðkast, og ræddu þá um kjör sin og annara, eða spiluðu sér til skemt- unar. Eg má víst fullyrða, að ekk- ert íslenzkt heimili hér var þá jafn fjölsótt og fjörugt eins og Eyjólfs- staðir, þar sem að ríkjum réðu þau einstöku góðvilja-hjón Eyjólfur Eyj- ólfsson og Signý kona hans, ásamt með Björgu systur hennar. Þar var islenzk gestrisni og góðvild í há- marki, svo að hún verður líklega aldrei þvi lík meðal Vestur-Islend- inga. Þetta var svo einstakt heimili, að það á skilið miklu betri frásögn en eg gef því hér. Þar var skotið skjólshúsi yfir alla menn og konur, er að garði bar, og aldrei spurt, hvort þú gætir borgað fyrir greið- ann. Þau hjón áttu sjálf barna- hóp, en tóku auk þess að sér og komu á legg eigi færri en fimm munaðarlausum bömum. Nú hvíla þau Eyjólfur, Signý og Björg í Brook- side grafreit, en minning þeirra verð- ur lengi iðgræn hjá þeim, er þar nutu hælis og unaðar. Lúalegasta hliðin á félagslífi Is- lendinga hér í þá daga var þetta sí-' fellda trúarþref, sem gusaði og smaug um hverja krá og kytru með illum daun. Það var svo sem ekki um að tala sanngirni eða skynsam- legar röksemdir, — og sussu nei! Ekkert annað en ósóma staðhæfing- ar og mannorðsmeiðingar. Þú varst tæplega húsum hæfur og því síður kirkjugræfur, ef þú vildir ekki standa I garðanum með hinum sauðunum. Og svo þegar hér myndaðist litill eingyðistrúar-söfnuður, þá fór nú fyrst trúmálaofsinn meðal Islendinga hér í algleyming! Blessaðir rósömu landarnir nær því trylltust um tíma. Þeir voru þá allt í einu orðnir Drott- ins útvöldu hermenn, og tilgangur- inn helgaði öll meðul. Eg má víst ekki nafngreina menn hér, en oft hefir mig langað til að ýfa svolít- ið úlfsgæruna á sumum þeim náung- um, er þá gengu hér mestum ber- serksgangi í nafni kirkju og kristni. Það var einmitt þetta trúmála- fargan hér meðal Vestur-lslendinga, er gaf Þorsteini Erlingssyni yrkis- efnið, er hann kvað hina frábæru húðíjtroku “A Spítalanum”, og til- eínkaði ífílenzku Vestuvheimsprest- unum. Og þá orti Jón ólafsson einn- ig sina trúarjátning, er seint mun fyrnast, er hann nefndi “Opið bréf” (til séra Jóns Bjarnasonar). Björn heitinn Pétursson var braut- ryðjandi að öllum þeim frjálstrúar- samtökum, er síðan hafa myndast meðal vor hér vestra. Því miður var hann þá ekki lengur ungur maður og naut því skamms við, en eigi svo lít- ið varð honum ágengt meðan kraft- ar entust. Og lengi munum við, sem þá vorum hans fylgjendur, minn- ast hans ágæta heimilis — eða hald- ið þið ekki svo, Arni Þórðarson, Kristmundur Sæmundsson, Sujólfur Austmann og flfeiri núlifandi dreng- ir? Og svo kom séra Magnús Skapta- son til ökkar sögu — fjörkálfur hinn- ar frægu ættar frá Hnausum í Húna- vatnssýslu. Hann var þá lúþerskur prestur í Gimlisveit, en er hann op- inberlega játaði það, að hann gæti ekki lengur aðhyllst kenninguna um eilíft helvíti fyrir nokkurn mann, né heldur fest trúað á bábiljur biblí unnar, eins og til dæmis söguna um Jónas og hvalinn — þá var lúþersk herör skorin og séra Hafsteinn send- ur til Gimli til þess að lagfæra allt þetta. Um þetta varð gjóstur nokk- ur, en séra Magnús lét sig hvorki ginna né hræða. Hann var fyrst og fremst maður í orðsins beztu merk- ingu, og svo var hann Húnvetningur, og þeir láta aldrei knésetja sig. Um langt skeið var eg svo að kalla daglegur gestur á heimili séra Magnúsar. Var þar æfinlega mann- kvæmt og fjörugt, skeggrætt, spilað og sungið og óspart drukkið kaffi. Og hvar eru nú slík heimili meðal Islendinga hér? Síðan hafa víðsýnis-íslendingar hér í Winnipeg haft þessa presta: Dr. Rögnvald Pétursson, Guðmund Arna- son, Ragnar Kvaran og nú sfðast Benjamín Krþstjánsson. Allijr eru þessir menn prýðilega til forystu hæfir í hvaða sveit manna sem vera skal, og mikið og stórt verk hafa þeir afrekað til að sannmennta vest- ur-íslenzkan lýð. En því dagsyerki verður aldrei lokið, svx> haldið í horf- inu, drengir. I forna daga var rag- mennskan talin stærsta synd í þeirri samtíð, og alveg hið sama lögmál gildir nú hvað snertir viðhorf manna gegn áhrifamálum okkar samtíðar. Lýðfjandi skal hver sá maður, sem ekki þorir að standa eða falla með sinni eigin sannfæring. A þessum árum skiftust Islending- ar hér í ákveðna tvo pólitíska flokka. Voru það bannsettu framsóknar- mennirnir (liberalar) og óhræsis í- haldsmennirnir (conservatívar). Attu þessir andstæðingar jafnan i hörð- um rimmum, þegar kosningar voru á ferðum. Var þetta ekki nema eðli- legt og rétt, því að um slík mál er barist og rifist í öllum löndum heims- ins, þar sem er þingbundin stjórn og fólkið hefir æðsta valdið í sín- um höndum. Fyrst mynduðu íslezkir conserva- tívar hér stjórmálaklúbb. Var hann allöflugur og fjörugur lengi vel. Svo nokkru síðar gerðu íslenzkir liþeral- ar slíkt hið sama. Nú eru bæði þessi félög úr sögunni, en eg sé eftir að þau liðu undir lok. Því þótt þar væri margt unggæðingslegt og máske stundum róstusamt, þá voru þessir klúbbar oft skemtilegir og dálítið menntandi. Má eg í því sambandi minnast þess, að Eggert heitinn *Jó- hannsson flutti eitt sinn erindi mjög merkilegt í konservatívaklúbbnum; var það stjórnmálasaga Canada frá fyrstu byrjun. Var að því gerður hinn bezti rómur, enda var Eggert manna fróðastur um slík mál og frábærlega sanngjarn í dómi um menn og mál- efni. Svo auðvitað höfðu báðir þessir klúbbar oft og einatt snjöllustu hér- lenda menn til að flytja þar erindi. Það mætti rita langt mál um Islend- ingadaginn hér og allt þjarkið, sem um það mál spannst. En eg skal vera fáorður. Fyrsta hátíðin var haldin 2. ágúst 1891 (að mig minnir). Gengu þá landar i fylkingu austur í gamla Dufferin-garð við James stræti eystra. Voru þar víst saman komn'.r allir Islendingar í Winnipeg, nema karlæg gamalmenni. Og þá orTT Stefán: “Berjum blikkdunka fast, Brúkum alla prakt, Látum sjá að landar kunni Að labba í takt.” Hátíðin fór prýðilega fram °S menn höfðu hið mesta yndi af. Síð' an hefir þessi Islendingadagur ver- ið haidinn hér 2. ágúst ár hvert í ýms- um skemtigörðum borgarinnar. En viti menn — það fór sem vsenta mátti, að einnig þetta hátíðishald varð sundrungarefni. Nokkrir menn fóru að berjast fyrir því, að breytt skyldi til og hátíðin færð fram til 17. júní. Varð um þetta hin heiftug- asta rimma all-lengi. Margir al mennir fundir voru haldnir og óspart rifist, og lá jafnvel stundum við að í bardaga lenti. En aldrei tókst þess- um andstæðingum 2. ágústs að fá samþykki fólksins fyrir því að breyta um hátíðisdag, og var það þó reynt með öllum hugsanlegum brögðum og slægvizku. Fyrst fram eftir árum var þetta Islendingadagsmót jafnan miklu bet ur sótt af almenningi en nú gerist- Það var þá almennur áhugi fyrtr þvi að neyta allra bragða til ÞesS’ að “vq/c dagur” skyldi verða sem FOR HOME DELIVERY Special Service PHONE 42 104—5—6 --------1---- pelissier’s limited winnipeg. INCORPORATED l<J27 f Golden Gl°í f’EUSSIER)SllMlTED ^t^WlNNIPEO^S^ yfir sliku listasmíði. al fólks þessí árin. Winnipeg var þá sem næst eitt forai;flag, svo að maður varð oftast að sóðast áfram í leðju eða á grastoddum, er heimsækja skyldi kunningja. Að vísu voru við- argangstéttir hér og þar á helztu strætum, en oft voru þær svo mjóar, áð jafnvel þótt þú hefðir kærustuna Eitt þúsun d ár eftir s itofnun hinnar fvrstu bi ióðstiórnar í heiminum. i . , ' ■ • hefir hugmyndin um Alþingi haldist við og nú mætir hún hvarvetna stjórnskipulegum kröfum manna. Stjórnin í Manitoba hefir þjóðþrifa hugsjón að bjóða, sem í framkvæmdinni er hin farsælasta, s4em 40,000 borgarar hafa sýnt, er notað hafa sparibankadeild þess. Fullkomin trygging. / Engin verðlækkun. Manitobafylki er ábyrðarfullt fyrir borgunum á Verðbréf og fasteignir geta fallið í verði, en | öllum innieignum í bankanum. það sem þér eigið inni í þessum banka, hækk- Hagkvæmur starfstími. ar í verði. ! Bankinn. er opinn frá kl. 9 f. h. til kl. 6 e. h. Peningar til reiðu er yður vantar þá. Á laugardögum: frá kl. 9 f.h. til kl. 1 e. h. Innieign yðar er borguð út þegar þér krefjist. Bankastöðvar: Vextir. Aðal bankaskrifstofan er á horninu á Donald 31/2% færð inn tvisvar á ári. stræti og Ellice Aye., rétt norður frá Eaton. Savings Certificates. North End deild: 984 Main St. Útibú: 23— Fyrir þá sem hærri rentu óska, er hægt að fá lOth St., Brandon, Portage La Prairie, Dauphin Savings Certificates, endurgoldin að fimm át- Carman, Stonewall, Ethelbert. um liðnum frá útgáfudegi. PROVINCE OF MANITOBA SAVINGS OFFICE Donald & Ellice—and—984 Main Street Winnipeg, Manitoba

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.