Heimskringla - 17.09.1930, Qupperneq 1
XLIV. ÁRGANGUR
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 17. SEPTEMBER 1930
NtrMER 51
DYERS & CLEAMRIIIS, LTD.
’ SPECIAL
Men’s Suits Dry A AA
Cleaned & Pressed^ I >UU
(Cash and Carry Price)
Delivered, $1.25
Buttons Tightened, Replaced
and all Minor Reparirs Free
■Rev. »
/~X
I
'"’ERS A CLEANERS, LTD.
Rítunwon pecial
St. — ciTy*
$1.00
n Silk
' Cleaned<
& Finished
(Cash and Carry PriceJ
Delivered, $1.25
Minor Repairs Free
SAMBANDSÞINGIÐ.
Eins og getið var um í síðasta
blaði, bauðst sambandsstjórnin til að
veita 20 miljónir dollara til þess að
ráða bætur á atvinnubrestinum í
landinu . Var tillagan um þessa veit
ingu kapprædd alla vikuna á þing-
inu og á mánudagskvöld, er þetta er
skrifað, var ekki búið að samþykkja
hana. Voru liberalar, og einkum
leiðtogi stjórnarandstæðinga, Mac-
kenzie King, langorðir um hana.
Kvað hann veitinguna varhugaverða
sérstaklega vegna þess, að engin verk
væru enn ákveðin, en áður en þing-
ið samþykkti hana, þyrfti það að vita
hver störfin væru, er hver sveit um
sig ætlaði að gera. Svaraði forsæt-
isráðherrann því til ,að á slíku væri
ekki kostur á þessu þingi, og kvað
hann veitinguna þess utan nægilega
ákveðna til þess, að þingið gæti sam-
þykkt hana. En þá tók King til
þeirra ráða, til þess, að því er helzt
virðist, að lengja umræðumar og
tefja málið, að tína upp kosningalof-
orð Bennetts, og* gekk sú sparða-
tínsla svo langt, að á eitthvað var
minnst úr hverri einustu ræðu, er
Bennett hafði flutt i kosningunum.
Var það ekkert annað en það, sem
blöðin höfðu áður flutt, og því sú
tugga, sem þingheimi ætlaði að riða
að fullu að hlýða á. En King skoð-
aði það eitt mesta nauðsynjamál
landsins, að koma þessu í gerðabæk-
ur þingsins! Atvinnuleysismálið sjálft
var ekkert hjá þvi. Að þessu rausi
var enginn rómur gerður, og hvorki
anzaði Bennett því mikið né flokks-
menn hans. En I sambandi við f jár-
veitinguna gaf Bennett allar þær
upplýsingar, er nauðsynlegar voru.
Veitingin er til opinberra verka, sem
æskilegt er að nú sé byrjað á, til
þess fyrst og fremst að veita at-
vinnulausum lýð einhverja björg. Að
öðru leyti er ætlast til, að verk þessi
séu svo nauðsynleg, að innan tveggja
eða þriggja ára yrði að ráðast i að
vinna þau, en að þeim væri aðeins
flýtt, með ástandið I atvinnumálum
fyrir augum. Til þessara verka nem-
ur veitingin einum þriðja af kostn-
aðinum. Er ætlast til að sveitimar
beri einn þriðja og fylkin annað eins
af þeim kostnaði. Ennfremur er það
tekið fram, að þetta sé til bráða-
birgða gert, og með ástandið á kom-
andi vetri aðallega fyrir augum. —
Svarar það bulli liberala um það, að
sambandsstjórnin sé með þessu að
koma þeirri hefð á, að hún verði hér
eftir að annast um og fæða atvinnu-
lausan lýð landsins. Það virðist enn
þá heit sannfæring Kings og hans
liðs, að sambandsstjórnin eigi ekki
að láta sig atvinnuleysi í landinu
neitt skifta. Free Press og Lögberg
virðast á sömu skoðun, því þau jappa
talsvert um kostnað þessa þings, er
haldið sé til þess óþarfa, að íhuga at-
vinnuleysismálið. En hvemig sem
líberalar hafa nú snúist við þessari
veitingu, er svo mikið víst, að þeim
hefir ekki tekist að gera hana svo
glæpsamlega í augum þingsins, að
hún má heita sama sem afgreidd, þó
þingið hafi ekki enn samþykkt hana
Annað málið, sem stjórnin leggur
fyrir þetta þing, er að hver sá iðn-
aður, er menn treysti sér til að reka
án þess að verð vörunnar hækki,
skuli fá nægilega tollvernd til þess.
Um 30—40 iðnaðargreinar em í þessu
faldar, og eru hinar helztu þeirra
ullarverksmiðjuiðnaður, leðursútun
og skógerð, akuryrkjuverkfærasmíði,
áburðarvinnsla, akuryrkjuframleiðsla
bílagerð, byggingarsteinsgerð o. s.
frv. Með tollvernd, sem þó ekki
hækkar verð þessarar vöm, álitur
stjórnin, að þessa framleiðslu sé hægt
að reka hér. Markaður er hér mik-
ill fyrir allt þetta, en gallinn er sá,
að hans njóta nú önnur lönd en Can-
ada.
Þetta mál er nú ekki byrjað að
ræða neitt á þinginu. En nærri má
geta, hvort liberalar sjá ekki ein-
hverja agnúa á því, eins og öðru, er
reynt er að gera og til framfara
landsins horfir.
Þriðja málið, er fyrir þessu þingi
liggur, er hið svonefnda Anti-Dump-
ing Measure. En þannig er nú hátt-
að hér, að bandarísk iðnaðarfélög
ýms kasta hingað leifum af fram-
leiðslu sinni á svo lágu verði, að ekk-
ert er skylt við heildsöluverð. Þess
njóta að vísu einstöku heildsöluhús
hér að nokkru, en alþýðan alls ekki.
En þetta hefir orðið afarskæður
keppinautur canadisks iðnreksturs.
Ráðherra inanríkistekna, Hon. E. B.
Ryckman, leggur til að á þetta dót
sé skattur lagður svo mikill, að verð
þess nemi heildsöluverði eða fram-
leiðsluverði. Er þetta mikil trygg-
ing iðnaði hér, en þó ekki almenningi
tap að neinu leyti.
Að líta eftir sölu í öðrum löndum
fyrir canadiska vöru, er heldur ekki
yanrækt af sambandsstjórninni. Hon.
H. H. Stevens er vakinn og sofinn i
að leita markaðar fyrir canadiskt
hveiti. Og ein brýnasta þörfin, sem
á því er, að Bennett forsætisráðherra
verði á alríkisfundinum I Lundúnum.
er einmitt sú, að leita markaðar fyr-
ir hveitið. Hefir hann nú þegar lát-
ið á sér heyra, að hann sjái hvar og
hvernig slikt sé mögulegt, og þó ekki
væri erindið annað á þenna fund, en
að bæta á einhvern hátt ástandið að
því er sölu á hveiti snertir, væri ferð
hans ekki erindisleysa. En þangað
kemst hann þó því aðeins, að málin
á yfirstandandi þingi verði ekki taf-
in von úr viti og þýðingarlaust af
andstæðingunum.
Þegar á þessa starfsstefnuskrá
Bennetts á þessu þingi er litið, leyn-
ir það sér ekki, að með henni er *
stærra ráðist, en ef til vil lhefir
nokkru sinni verið gert á nokkru einu
þingi. Og þetta horfir stjórnarfor-
maðurinn ekki i að hefjast handa til
að koma í verk á tveimur vikum. Er
þar greiðara til verks gengið en men.i
áttu að venjast í tið Kingstjórnarinn-
ar sælu.
• • •
Frumvarpið um að veita 20 miljón-
ir dala til opinberra verka, til þess
að bæta úr atvinnuleysinu, var sam-
þykkt i gær, með 109 atkv. gegn 71.
Liberalar,.. bændur.. og.. verkamenn
greiddu allir atkvæðl á mótl veiting-
unni.
Breytingartillaga Woodsworths og
Heaps, er fór fram á að ákveða kaup
og vinnutíma, var felld. Skýrði for-
sætisráðherra, að þar sem umsjón
verksins væri í höndum sveitanna
eða fylkjanna, er lögákveðinn vinnu-
tíma hefðu og kaupgjald, væri þessa
ekki þörf.
MR. BRACKEN
BOÐAR TIL FITNDAR.
Forsætisráðherra Manitoba, Hon.
John Bracken, hefir boðað til fund-
ar, er haldinn er í dag, í atvinnuleys-
ismálinu. Allir sveitaroddvitar og
borgarstjórar fylkisins voru á fund-
inn kvaddir, til þess að íhuga hvað
kleift væri að gera í sambandi við
tilboð sambandsstjórnarinnar um að
bera að einum þriðja kostnaðinn við
þau opinber störf, er sveitir eða bæir
sæju sér fært að leggja út í, til þess
að ráða að einhverju leyti bætur á
atvinnuleysinu. Það er öllum ljós
þörfin á að afla mönnum atvinnu, þvi
útlitið á komandi vetri er ískyggi-
legt. Ef þessi fundur kemst að ein-
hverri niðurstöðu í því efni, ætlar
fylkisstjórnin hið bráðasta að hafj.
fund með verkamáladeild sambands-
stjórnarinnar og hefja samvinnu við
hana um framkvæmdir þessara mála.
Hefir Mr. Bracken nú þegar sent
senator G. Robertson, verkamálaráð-
herra skeyti þessu viðvíkjandi, og
beðið um að koma fundi á eins fljótt
og unnt væri, svo að sem fyrst sé
hægt að taka til starfa.
Auk þessa hefir verzlunarráð Win-
nipegborgar sent mörgum skeyti
austur til Ottawa, svo sem forsætis-
ráðherra Canada, Hon. R. B. Ben-
nett, Rt. Hon. W. L. Mackenzie King.
leiðtoga stjórnarandstæðingá, sena-
tor Robertson og öllum þingmönn-
um Winnipegborgar, þess efnis, að
biðja þá að vinda bráðan bug að
bjargráðum í atvinnuleysismálinu á
þeim grundvelli, sem bráðabyrgða"
sambandsþingið legði til, að gert
væri; er sambandsstjórninni jafn-
framt tjáð þakklæti fyrir að hefjast
eins rösklega handa og hún hefir
gert í þessu máli, og vonar verzlun-
arráðið að allir leggist á eitt að því
er framkvæmdirnar snertir.
1 nokkrum öðrum fylkjum lands-
ins hafa tillögur Bennetts forsætis-
ráðherra einnig komið af stað svip-
aðri hreyfingu og hér, í sambandi við
þetta nauðsynjamál; og er vonandi,
úr því sem nú horfir við, að bölinu.
sem atvinnuleysinu er samfara,
verði að einhverju leyti létt af þjóð-
inni áður en langt um líður.
BÆNDUR LÖGSÖTTIR.
Fyrir helgina hermdu dagblöðin,
að Hveitisamlagið hefði höfðað mál
á móti 11 bændum ,er rofið höfðu
samning sinn um það að selja þvi
hveiti sitt, en til þess er hver maður
skyldugur samkvæmt skrifuðum
samningi, er félagi Samlagsins telst.
Sumum af málum þessum lauk án
þess að í réttarsalinn væri farið með
þau, en sumum ekki, og samkvæmt.
því er E. K. Williams, K.C., lögfræð-
ingur Samlagsins greinir frá, eru
margfalt fleiri málsóknir i vændum.
Það hafði kvisast, að sumir félags-
menn væru að selja öðrum kornfé-
lögum hveiti sitt, og til þess að kom-
ast fyrir það, sendi Samlagið njósn-
ara út af örkinni, er sannanir færðu
því fyrir þessu. Og árangurinn af
þvi eru lögsóknimar.
Nokkrir bændur er mælt að selt
hafi sonum sínum jarðirnar til þess
að losa sig við samningsskuldbinding-
una við Samlagið. Ekki heldur Sam -
lagið þó að mikil brögð séu að þessu,
og eftir því að dæma, hve mikið að
Samlaginu berst af hveiti, muni þeir
fáir, er til þessar*a örþrifaráða taki.
EMBÆTTISUPPSÖGN.
Hon. Vincent Massey, sendiherra
Canada á Englandi, hefir sagt em-
bætti sínu lausu. Mun ástæðan fyrir
því aðallega vera sú, að hér hafa orð-
ið stjórnarskifti, en farsælast er tal-
ið, að sendiherrann sé af sama póli-
tíska sauðahúsinu og stjórnin, sem
við völdin er. Hver eftirmaður hans
verður hefir ekki frézt enn.
MR. FORKE OG SAMLAGIÐ.
1 ræðu er senator Robert Forke
hélt í efri málstofu Canadaþingsin3
nýverið, lét hann þess getið að hann
hefði ekki endurnýjað kornsölusamn-
ing sinn við Hveitisamlagið, og
myndi að líkindum ekki gera það,
þó að hann hefði ekki neitt sérstakt.
út á félagsskapinn sem hugmynd að
setja. Kvaðst hann hafa verið í fimm
ár félagi Samlagsins, en í ár ætlaði
hann að hafa óbundnar hendur með
sölu á hveiti sínu. Ekki kvað hann
því að leyna, að sér hafi virzt, sem
sumt af ummælum stjórnenda Hveiti-
samlagsins hafi ekki orðið til þess
að efla viðskiftavinsældir félagsins i
öðrum löndum. Og svipað væri að
segja um sumt, er haldið hefði verið
fram við bændur um hagsvonina af
því að tilheyra félagsskapnum. —
Bændur hefðu þíi.r yfirleitt orðið fyr-
ir miklum vonbrigðum, sem óhug
hefði ef til vill vakið óþarflega mik-
inn á samvinnufyrirtækjum. Eigi að
síður kveðst hann hlynntur sam-
vinnustarfi, ef ekki væri með óþörf-
um öfgum haldið uppi, er sjaldnast
kynni góðri lukku að stýra.
FRA SASKATCHEWAN.
Fylkinu verða afhent náttúrugæði
sín 1. október í haust. Til þess að
ráða bót á atvinnuleysinu, hefir ver-
ið ráðist í miklar vegagerðir, einkum
I syðri hluta fylkisins. Um 800
manns af hinum fátækustu bændum
og atvinnuleysingjum hafa fengið
atvinnu við þessi störf.
KAPPSIGLINGAR.
Þessa dagana eru að fara fram
kappsiglingar um hinn nafnfræga
Ameríkubikar, sem New York sigl-
ingaklúbburinn hefir haldið í 79 ár.
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að
ná honum til Englands.
Svo stendur á þessum bikar, að
hann var í fyrstu gefinn sem verð-
laun fyrir kappsiglingu, er fór fram
kringum eyjuna Weight sumarið
1851. Voru í þeirri keppni nokkur
ensk skip, en ein skonorta frá Banda
ríkjunum, sem Ameríka hét, og vann
hún bikarinn, og hefir hann verið
kenndur við skipið síðan. Þegar ti!
Ameríku kom, var hann fenginn New
York siglingaklúbbnum til halds og
trausts, og hefir klúbburinn ekki lát-
ið hann lausan síðan.
Englendingum þótti súrt í brotið
að bikar þeirra skyldi sitja í Ame-
riku, og byrjuðu því brátt á að gera
tilraunir til að fá hann til baka. En
það hefir ekkiv tekist enn, nema ef
í þetta sinn verður. En þetta er 17.
tilraunin.
Af þessum 17 skipum, sem reynt
hafa, voru 15 frá Englandi og 2 frá
Canada. Þau skip voru_ Countess of
Dufferin, er 1876 þreytti við Banda- / niðurstöðu ,að hvergi væri ugglaust
ríkjaskipið Madeline, og Atlanta, sem
1881 reyndi móti skipinu Mischief.
Töpuðu bæði.
Síðustu 40 árin hafa það verið
tveir írar, sem reynt hafa þessar
kappsiglingar. Fyrst Lord Dunrav-
en, sem 1893 lét til þess byggja Val-
kyria II., og 1895 Valkyria III., og
tapaði í hvorttveggja skiftið. — Þá
tók við Sir Thomas Lipton, hinn
nafnfrægi tekaupmaður, og hefir
hann látið byggja 5 skip, til þess eins
að ná þessum bikar aftur til Eng-
lands.
Þessi skip hafa öll borið sama nafn,
verið heitin eftir irska blóminu
shamrock. Hefir hvert þeirra verið
öðru vandaðra og sizt horft í kostn-
aðinn, því hann hefir verið miljónir
dollara á hverju skipi. En ekkert
þeirra hefir unnið enn sem komið.
Shamrock V, sem nú er að reyna
sig, er hið fríðasta skip, græn að lit,
119 feta löng, vegur 135 tonn og hef-
ir 160 feta siglu, sem límd er saman
úr yfir 50 stykkjum af vönduðustu
furu. Hefir hún afar þungan blý-
kjöl til stöðvunar á siglingu. Við hana
keppir skipið Enterprise, af svo að
segja sömu stærð, nema það hefir
8 fetum hærri siglu, og dálítið léttari
blýkjöl, hvítt að lit og hið ásjáleg-
asta á siglingu. Er það eign Harold
S. Vanderbilt, og stýrir hann því
sjáifur af hinni mestu list, þó kom-
ungur sé. Hefir hann og unnið tvær
fyrstu loturnar, en 4 verður annað-
hvort skipið að vinna, áður en full-
reynt er.
Siglingin fer fram á hafinu fram
undan Newport, Rhode Island, og er
ýmist siglt beint til hafs 15 mílur
og til baka, eða þá þríhyrning 10 míl
ur í hverja átt.
Eins og áður var að vikið, er kostn-
aðurinn við þenna leik afar mikill.
að hafast við, nema undir hinum
hvíta fána réttlætisins og belja þar
sálma og kröftugasta guðsorð á
móti óvættinum. Myridi Mlinn þá
blikna og blána, og hvergi þora að
ráðast á hið heilaga lið Manasse.
Illa notast þessum trúarflokki
jarðneskir hlutir. Hjá einum bóndan
Um átti að slátra geithafri og var bú-
ið að leggja hann niður við trogið.
Þá kom postuli Manasse með biblí-
una sína og las skorinort yfir honum
úr ritum spámannanna: “A þessu
mínu heilaga fjalli skal engu slátr
að verða”. Féllst þá bónda hugur.
Þá datt postulanum það snjallræði i
hug, að ráðleggja honum að róa yfir
ána og slátra geithafrinum þar. Varð
bóndi þessari lausn harla feginn og
hyggst nú að fá að framkvæma
slátrunina hjá nágranna sínum, er
þar bjó. En sá hafði líka gengið I
trúarflokk postulans, og taldi sér
því stórlega misboðið með þessu. —
Hann sagði að sitt land væri jafn
heilagt og hinumegin við ána, og fyr-
ir þessa sök fékk geithafurinn lífi
að halda og var rekinn út á eyði-
mörkina til Azazels.
Hefði hafurinn í sannleika haft á-
stæðu til áð vegsama þessi trúar-
brögð mörgum fremur.
HVAÐANÆFA
Á turninum í nýju dómkirkjunni
í Messina er nú verið að byggja
klukku eina, sem talin er að vera |
hinn merkilegasti kjörgripur þeirrar
tegundar, sem þekkist í víðri veröld.
Sýnir hún kvartilaskifti tungls, flóð
og’fjöru og gang himintungla. Efst
uppi á turninum, þar sem klukka
þessi verður byggð, verður skapað-
Er talið að um 100 miljónir dollara i ur ferlegur hani, sem gelur við sólar-
muni eyðast í þessari keppni einni j upprás og sólarlag. Þegar klukkan
saman, því skipin eru til einskis hæf er 12 á hádegi, veður ljón fram úr
nema kappsiglinga, og verða því mjög j húsi sínu og hristir bæði haus og
hala. Hvert klukkuslag verður sleg-
ið af tveim líkneskjum, er eiga að
tákna Dína og Clarenza, konumar
tvær, sem sagan segir að hafi hringt
kirkjuklukkunum í Messina árið 1028
til að vara ibúana við hemaði Karls
frá Anjou Sikileyjarkonungs.
micg lítils virði eftir á. , Mun því
sumum virðast að of miklu fé sé hér
fórnað fyrir lítilsverðan hlut, og má
það til sanns vegar færa. En mikið
fyrirgefst, þegar stefnt er að því að
viðhalda og bæta hina afarfornu og
ágætu íþrótt, sem frá alda öðli hef-
ir svo stórum aukið alla framför
mannkynsins — siglingalistina.
“ÞOSUND ARA RIKIД
FYRIR DYRUM’
Frá Malo í Frakklandi berst saga
sem eiga mun fáar hliðstæður. Lög-
reglumenn nokkrir fóm þar af til-
viljun framhjá bóndabæ einum, og
heyrðu þá einhver undarleg hljóð, er
Hér kemur lærdómsrík saga um þeir gátu ekki áttað sig á. Námu
trúarlíf Norðmanna. Til Berkreim 5 þeir þá staðar og leituðu í húsinu
Noregi kom i sumar trúarflokkur, er og fun(iu ekkert grunsamlegt. Síðan
nefnir sig “postula Manasse”. Var i gengu þeir til úthýsanna og tóku að
raunar postulinn, sem trúarflokkinn , rannsaka þau. Þegar þeir komu inn
stofnaði, frá Stavanger, sem er þar [ svínastíuna, varð þeim ekki um
skammt frá; en það kom í sama stað sei £>vi ag þar já þá bundinn með
niður, því að hann tók þegar til ó-1 jámhlekkjum inn á milli svínanna
spilltra málanna að frelsa sálir, og sonur bóndans, 24 ára gamall. Hafði
fékk brátt um sig álitlegan söfnuð.
Voru þá hendur látnar standa fram
úr ermum. Hið fyrsta, sem gert
var í hjálpræðisáttina, var að hefja
upp hvítan fána, sem átti að vera
tákn hreinleikans, og tilkynnti post-
ulinn, að þangað væri öruggt að flýja
þegar þúsund ára ríkið dyndi yfir,
því að sá blettur, sem fáninn blakti
yfir, væri heilagur.
Daginn, sem hefja skyldi fánann.
var fínasti heyþurkur og allir önn-
um kafnir við þurhey. Var lengi
þrefað um það, hvort menn mættu
nú eiginlega vera að því að hefja
upp fánann og syngja sálma yfir, og
sýndist sit thverjum, þangað til post-
ulinn frá Stavanger fletti upp í biblí-
unni, og sýndi bændunum það svart
á hvítu, að þeir ættu umfram allt
að leita guðsríkis, og þá mundi allt
annað veitast þeim. Hurfu þeir þá
allir að því ráði að hefja upp þenna
verndarfána, en heyið var látið bíða
og ekki hirt þann dag. Næsta dag
rigndi það niður, enda var ekki hirt
um það framar. Þeir segja nefni-
lega karlamir, að það hafi enga
þýðingu að vera að bjástra við hey-
skap meira, því að þúsund ára ríkið
muni koma um jólaleytið, og þá muni
rigna himnesku “manna”, og alls-
konar sælgæti frá upphæðum. Gera
þeir sér um þetta hinar glæsilegustu
vonir. En margt þurfa þeir þó að
ganga í gegnum áður, sem ekki er
eins árennilegt. T. d. kvað Dýrið
úr Opinberunarbókinni, losna ein-
hverntima á haustinu og ganga um
eins og grenjandi ljón. Tóku menn
að leita sér að ýmsum felustöðum
þar í kring, til að forða sér frá þess-
faðir hans haft hann þar árlangt, og
gaf ekki aðra skýringu á því en þá,
að strákur hefði verið of heimskur
til þess að hægt hefði verið að haf i
nokkurt gagn af honum, og þá hefði
hann gyemt hann þarna með öðmm
skepnum.
Var þessi glataði sonur fluttur á
sjúkrahús, aðframkominn af van-
hirðing og veikindum.
• • •
I Manchester á Englandi er mær
ein frumvaxta, sem dregið hefir að
sér athygli manna. Vissu menn ekki
annað en hún væri fullvaxin, en
skyndilega hækkar hún um þrj.í
þumlunga á tíu dögum. Aður en hún
tók að vaxa svona ört, kvartaði hún
um mikil sárindi í öllum líkamanum.
Dvinuðu eymslin og hafði hún þá
vaxið um hálfan annan þumlung.
Nokkrum dögum seinna fékk hún
þessa “vaxtarverki” enn á ný, og |
bætti enn við sig hálfum öðrum þuml- |
ung. Ekki vita menn, hvenær þess-
um kynjavexti muni linna. Lækn-
arnir vita ekki sitt rjúkandi ráð yf-
ir þessum undrum.
• * •
1 bænum Nagykoros á Ungverja-
landi, hefir lögreglustjóri nýlega gef-
ið út svohljóðandi tilskipun, og látið
festa upp til athugunar og eftir-
breytni:
“Framvegis verður konum strang-
lega bannað að fara á mótorhjóli
eða venjulegu reiðhjóli um götur
bæjarins. Er slíkt framferði jafn
hneykslanlegt, hvort heldur sem er
af fagurfræðilegum eða siðferðileg-
, um ástæðum, auk þess sem hlutað-
um ófögnuði, en komust loks að þeirri eigandi konu er slíkt ferðalag ónota-
legt og óviðkunnanlegt. Verða þær
konur, sem eigi hlýða lögum þessum.
umsvifalaust settar í steininn og
látnar sitja þar í 14 daga, svo að
þeim gefist kostur á að hugleiða þar
skikkanlega siði og almennt vel-
'sæmi.”
Páll Jónsson
Laugardaginn 13. september s. 1.
andaðist að heimili sínu í Wynyard,
Sask., öldungurinn Páll Jónsson, eft-
ir örðuga sjúkdómslegu. Banamein
hans var magakrabbi. Páll heitinn
var fæddur 28. júní 1856, á Forna-
stöðum í Fnjóskadal, þar sem foreldr
ar hans bjuggu. Faðir hans, Jón
Pálsson, var ættaður af Austurlandi,
en móðir hans var Jórunn dóttir Jón3
bónda Indriðasonar af Fomastaða-
ætt. Missti hann föður sinn kom-
ungur og fluttist þá með móður sinni,
ásamt einum bróður sínum, Jóni
Valdimar, að Lundarbrekku í Bárð-
ardal, er Jórunn giftist Jóni bónda
þar, Jónssyni prests í Reykjahlíð. __
Var fyrri kona Jóns Jónssonar á
Lundarbrekku Kristbjörg Kristjáns-
dóttir frá Illugastöðum, systir séra
Benedikts í Múla og þeirra systkina,
og höfðu þau átt 11 böm saman, eu
með Jórunni eignaðist hann aðeins 2
börn: Þorstein Gauta, er nú býr
norðan við Wynyard, og Kristbjörgu,
er einnig fluttist vestur um haf og
nú er dáin fyrir no'kkrum árum.
Fór Páll heitinn af Islandi árið
1888, og hafði Jón Valdimar bróðir
hans og Jórunn móðir þeirra fluzt
vestur árinu áður. Settist Páll fyrst
að í Winnipeg og vann þar ýmisleg-i
vinnu, en flutist bráðlega út í Álfta-
vatnsnýlendu og bjó 4>ar í 4 ár. Ár-
i, 1893 giftist hann eftirlifandi konu
sinni, ólinu Hallgrímsdóttur, ólafs-
sonar frá Fremstafelli í Kinn, Gott-
skálkssonar á Garðsá í Eyjafirði, öl-
afssonar, systur Jónasar Hall frið-
dómara og þeirra systkina. Settust
þau þá fyrst að í Norður Dakota og
bjuggu í Hallsonbyggð norður af
Mountain nokkur ár, unz þau fluttu
norður til Vatnabyggða og tóku land
í Wynyard og bjuggu þar jafnan síð-
an.
Þeim varð þriggja barna auðið:
Sigrún, ógift, hefir búið hjá foreldr-
um sínum; Jón Valdimar, bóndi í
Wynyard, og Unnur, gift Haraldi
Pálmasyni, búa í Winiepgosis.
Páll heitinn naut engrar skóla-
menntunar í æsku, en með því hann
var að náttúrufari skilningsskarpur,
athugull og stálminnugur og skáld-
hneigður, þá aflaði hann sér af eigin
rammleik þeirrar almennu mennt-
unar, er bezt reyndist í lífsbaráttunni,
þegar á hólminn er komið. Á yngri
árum dvaldi hann á ýmsum stöðum
á íslandi, bæði við sveitabúskapar-
störf og sjósókn. Kynntist hann því
mörgu, bæði mönnum og málefn-
um utan sveitar sinnar, og mundi
það allt glöggt. Bar það oft við að
nágrannar hans og kunningjar leit-
uðu upplýsinga hjá honum um löngu
liðna atburði, og eins um ættir og
skyldleika manna, þá er aðrir voru
í vafa um, og mun það örsjaldan háfa
komið fyrir að ekki fengist úrlausn
hjá Páli. ,
Með Páli er til moldar genginn
einn af hinum sönnu Islendingum hér
vestan hafs, og munu vinir hans og
kunningjar jafnan sakna hans, er
þeir minnast þeirra ánægjustunda.
sem þeir nutu í samræðum við hann
um ættfræði, skáldskap og sögulega
atburði.
Páli heitnum var við brugðið fyrir
hreysti og snarmennsku, og var hann
jafnan nefndur Glímu-Páll af sveit-
ungum sínum, og er mælt að eng-
inn kæmi honum nokkru sinni á kné
fyr en sjúkleiki háns lagði hann að
velli. Hann var glaðvær maður og
félagslyndur, bar ellina vel með af-
brigðum og var jafnan hinn rekk-
mannlegasti í allri framgöngu. Unni
hann frjálslyndri hugsun af alhug,
og var gersamlega laus við allar
kfeddur. Var ha,nn búsýslumaður
góður og forsjáll, en manna ráðvand-
astur í viðskiftum, og bar á sér vík-
ingssnið um flest.
Hann var jarðsunginn frá kirkju
Quill Lake safnaðar í Wynyard,
þriðjudaginn 16. þ. m., af séra Benja-
mín Kristjánssyni, að viðstöddum
miklum mannfjölda. Við það tæki-
færi las Árni Sigurðsson upp kvæði
eftir Jón Jónsson frá Mýri, sem birt
er á öðrum stað hér í blaðinu.