Heimskringla - 29.10.1930, Page 3
WINNIPEG 29. OKTÖBER, 1930.
heimskringla
3. BLAÐSIÐA
Á Skotsponum
síðar máske sendi eg þér
sagna-rýni-glætu.
boðaði einkum Pyþagóras þá trú-
Var Pyþagóras einn af mestu vit-
snillingum, sem verið hafa, en hélt
Þó að hann hefði lifað áður, verið
einn af köppunum í Trójustríði, og
heitið þá Evforbos; og er það mjög
eftirtektarvert ,því það nafn þýðir
e®a getur þýtt: sá sem nærist á góð-
um mat, og þó eigi síður: sé sem
aðra nærir á góðum mat; en Pyþa-
góras viidi meðal annars koma því á,
að menn lifðu á hollari mat en áður.
II.
Endurminningar þessar hinar
furðulegu, eru ekki nein sönnun fyr-
,r Þvi, að menn hafi lifað áður. En
að vísu eru þær mjög merkileg bend-
•ng um að framliðnir lifa þrátt fyrir
dauðann, því að endurminningarnar
eru miðiifyrirburður, stafa af nánu
sambandi við framliðinn, þó að sá,
sem þetta samband hefir, skilji það
ekki. En allt verður þetta mjög skilj
aniegt, þegar eðli draumalífsins er
kunnugt orðið og menn vita, að
draumarnir stafa af sambandi við
draumgjafa, eins og lesa má um í
Nýal og Ennýal.
Þýðing sambandsins við framliðna
er afarmikil, og þegar þekkingin er
fengin á þvi sviði, má haga svo til,
að vér fáum samband við fullkomnari
verur, þannig, að vér verðum miklu
íullkomnari sjálfir en áður, bæði
andlega og líkamlega. Má þetta
marka nokkuð af hinum svonefndu
undrabörnum; því að hin ótrúlega
íullkomnun slíkra barna, stafar af
magnan frá framliðnum snillingum.
Alkunnugt er, að undrabörn eru oft
ekki að sama skapi undraverð, þeg-
ar fullorðinsaldrinum er náð, og kem
ur þar fram að um miðilfyrirburð er
r®oa; pvi að barnið er vanaiega
^etri miðill, hefir meiri hæfileika til
taka við magnan, heldur en hinn
fullorðni.
III.
Spurningunni í upphafi greinar
þessarar verður að svara með hik-
lausu nei-i. Tilverunni er ekki svo
fávíslega fyrirkomið, að vér fæðumst.
hér á jörðu aftur og aftur, og höfum
oftast nær, engar endurminningar um
fyrri líf, og aðeins ófulkomnar, þeg-
ar þó virðist svo sem vér eigum slík-
ar endurminningar. Menn hafa sagt,
að það sé haganlegast, að muna ekki
sína fyrri æfi . En það er svo langt
frá því, að vor fyrri tilvera gleym-
ist alveg, þegar vér höfum eftir
dauðann, endurlíkamast á annari
jörð, að vér munum það, sem fyrir
oss hefir komið, margfaldlega miklu
betur en í lífinu hér á jörðu. Allt,
sem á dagana hefir drifið, rifjast upp
og oss er kennt að skilja, hvað var
gott og hvað ekki, hvað rangt stefndi
og hvað rétt. Vér lærum, með til-
styrk betri kennara en til eru hér á
jörðu, að átta oss fullkomlega á æfi
vorri- Og er ekki alveg í augum uppi,
að oss er þetta nauðsynlegt, ef vér
eigum að geta orðið hæfir til að lifa
í hinu nýja og fullkomnara mannfé-
lagi, sem við tekur? En ekki er því
að leyna, að það er oft talsverðum
örðugleikum bundið, að öðlast þenna
skilning. Mun í því efni verða mik-
il breyting til batnaðar, þegar menn
vilja þiggja þá hjálp, sem eg er að
bjóða þeim, og samband það, sem eg
gat um áður, kemst í rétt horf. Þeg-
ar svo er komið, þá líður að því, að
menn hætti að lifa þahnig hér á
jörðu, að meiri hluti æfinnar fari i
það að gamlast og hröma. öll æfin
verður þá framfaratími, og æfilokin
stafa þá ekki af meiðslum, veikind-
um eða ellihrörnun, heldur lýkur lifi
manna hér á jörðu, þegar þeim er
farið 3Vo fram, að þeir séu hæfir
orðnir til upptöku í fullkomnara
mannfélag. Og þá fyrst verður dauð
inn sigraður; því að umskiftin verða
þrautalaust.
En mikið þarf að lagast áður en
þessu verði komið i kring. Miklu
meir en hingað til hefir verið, þarf
áhugi manna að verða á því, að það
sé ekki sannleikurinn, sem þeir lítils-
virða, en hégóminn, lygin og villan
sem þeir meta mest.
18. sept.
(Lesb. Mbl.)
Frá Islandi
FLITGMAL ISLANDS
Flughöfnin verður tilbúin í októberlok
Flugferðum verður haldlð uppi mest
allan veturinn.
I fyrradag fóru þeir héðan alfam-
ir Walter flugstjóri og Neumann flug-
kapteinn. Kvöldið áður hélt Flug-
félagið þeim kveðjusamsæti. For-
maður félagsins, dr. Alexander
Jóhannesson hélt þar aðalræðuna.
Þakkaði hann Walter flugstjóra fyrir
heillaríkt starf hér á landi í þrjú
sumur og hvernig hann hefði komið
flugmálum Islands í gott horf. Alt,
sem við kæmi flugsamgöngunum væri
nú skipulagsbundið, og gat hann þar
aðallega um þrent: fullkomnar veður-
fréttir, greið símasambönd um land
alt og flughöfnina nýju.
I ræðu sem Walter hélt, gat hann
þess að það hefði gengið miklu fljót-
ar en búist mátti við að fá útlærða
íslenska flugmenn og vélamenn. —
tslendingar taka sjálfir flugmálin í
sfnar hendur
Frá deginum í gær má kalla að
Flugfélagið sé orðið alinnlent, því
að hér eftir verða það Islendingar
sjálfir sem stjórna því og flugferð-
um, flugmennirnir eru íslenskir og
vélamennirnir líka. — Vinnur hér nú
aðeins einn þýskur vélamaður hjá
félaginu.
Flugferðum verður haldið uppi með
annari flugvélinni fram í nóvember
— verður Veiðibjallan í förum i vetur.
— Súlan flaug í gær til Norður- og
Austurlands, en Veiðibjallan tekur
síðan við ferðunum. Gert er svo ráð
fyrir því að hún hefji aftur flugferð-
ir upp úr nýári, aðallega til Vest-
fjarða, Siglufjarðar og Akureyrar.
vestur og norður, mestan hluta vet-
rarins, en þessum vetrarferðum
verður hagað eftir þörfum og veðri.
Hinn 1. maí hefjast svo reglu-
bundnar flugferðir með báðum flug-
vélunum. Tekur Björn Eiríksson
Hjaltested flugmaður þá við “Veiði-
bjöllunni”, en Sigurður Jónsson verð-
ur með Súluna. Þriðja flugmanninn,
Helga Eyjólfsson mun Flugfélagið
einnig hafa tryggt sér. —
Flughöfnin.
Flughöfninni í Vatnagörðum mið-
ar vel áfram. Hefir þegar verið
fullgerð þar dráttarbraut og viðgerð-
arpallur. Flugskýli — tilbúið er-
lendis — er komið hingað, og er von
á þýskum sérfræðingi 28. þ. m. og
á hann að sjá um uppsetningu þess.
— Ennfremur hefir Flugfélagið á-
kveðið að reisa íbúðarhús fyrir flug-
vörð þarna innfrá og verður sérstök
skrifstofa í því húsi. Bæði flug-
skýlið og íbúðarhúsið á að vera full-
gert fyrir októbermánaðarlok.
Þegar flughöfnin er fullgerð, koma
flugvélarnar ekki nema sjaldan hing-
að til Reykjavíkur. Verða flugfar-
þegar því að fara milli Reykjavikur
og Vatnagarða í bíl, en þar á milli
eru ódýrar fastar bílferðir allan dag-
inn.
• * •
Rvík 20. sept.
Fulltrúaþing Sambands ungra jafn-
aðarmanna kom saman á Siglufirði
13. þ. m. trt af ágreiningi, sem kvað
hafa orðið á þinginu, hefir forseti S.
U. J. sent blöðunum eftirfarandi til
kynningu gegnum fréttastofuna:
"Þegar Sambandið var stofnað vor-
ið 1929, greindi strax allmikið á um
starfsleiðir og skipulagningu milli
ungra jafnaðarmanna og kommún-
ista. Sá ágreiningur hefir ágerst
síðan, en við vildum halda þingið á
Siglufirði og reyna að tryggja sam-
vinnuna. Á norðurleiðinni bárust
Sambandinu inntökubeiðnir nýstofn-
aðra félaga, sem stjómin úrskurð ó-
lögleg vegna ólögmæts aldurstak-
marks og annara ástæðna; m. a.
hafði verið sótt um inntöku fyrir F.
U. J. á Hvítárbakka, sem gefið hafði
tveimur kommúnistum í öðrum lands
fjórðungi fulltrúaumboð til að mæta
á þinginu, og áður gefið tveimur
öðrum sama umboð, en sem skóla-
stjórinn á Hvítárbakka neitaði að
væri til. F. U. J. Glerárþorps var
stofnað með sex meðlimum, og fleiri
félögum þóttist stjórnin hafa ástæðu
til að ætla svipaða tilveru. Forseti
setti þingið og skipaði kjörbréfa-
nefnd. Komst þá allt í uppnám. —
Heimtuðu kommúnistar félögin skil-
yrðislaust tekin í sambandið og neit-
uðu kjörbréfarannsókn. Kjörbréfa-
nefnd rannsakaði og úrskurðaði gild
tekin kjörbréf allra fulltrúanna, sem
áður voru í sambandinu og einnig eins
fulltrúa Siglufjarðarfélagsins, sem
kosinn var fyrir börn yngri en 14
ára, þótt aldurstakmark Sambands-
ins sé 14—30 ára. Forseti vitti að-
farir kommúnista, er þeir brutu sett-
ar þingreglur og kvað unga jafnað-
armenn vera þess fullvissa, að einsk-
is starfs væri að vænta af þessu þingi
og sleit þinginu og ákvað stjórnin
að kalla það aftur saman í Reykja-
vík í haust. Gekk forseti og stjóm-
in af þingi við tólfta mann, en kom-
múnistar héldu áfram fundahöldum
með fulltrúum hinna nýstofnuðu fé-
laga, er þeir tóku alla gilda án þess
að hafa kjörbréf eða önnur gögn,
sem öll eru í höndum stjórnarinnar.
Ungir jafnaðarmenn telja þessi
fundahöld kommúnista ólögmæt og
Sambandinu óviðkomandi. Bak við
unga jafnaðarmenn standa 644 félag-
ar, en á bak við kommúnista 179. —
Nefnd kommúnista krafði stjórnina
um skjöl og eignir Sambandsins, en
fékk neitun.
• * •
. Rvík 20. sept.
Hornvitinn. — Stærsti vitinn, sem
reistur er á þessu ári, er Hornvitinn,
í Látravík, austah Homs. Er nú svo
langt komið smíði 'hans, að búast má
við að kveikt verði á vitanum í fyrsta
sinn í næstu viku. Vitavörður hefir
verið skipaður Karl Löve skipstjóri
á Isafirði.
• • •
Rvík 20. spet.
Nýir snjóbílar. — Þrjá nýja snjó-
bíla hefir landsstjórnin pantað fyrir
veturinn . Einn á að vera á Hellis-
heiði, til viðbótar við þann sem er.
Annar verður á Holtavörðuheiði, sá
þriðji á Fagradal eystra.
• • •
Rvík 20. spet.
Skýrsla uni menntaskólanm i Kvík
skólaárið 1929—30 er komin út. —
Nemendur voru rúmlega 200. Stú-
dentsprófi luku 51 og 58 gagnfræða-
prófi. I fyrrahaust var Pálmi Hann-
esson náttúrufræðingur, eins og kunn
ugt er, settur rektor skólans, og er
þetta fyrsta árið undir hans stjórn.
Þær breytingar urðu á kennaraliði
skólans, að Barði Guðmundsson sagn
fræðingur var settur kennari i sögu
og Valdimar Sveinbjörnsson ráðinn
íþrótta- og leikfimiskennari. Bogi
ólafsson, sem gegnt hefir stöðu við
skólann um langt skeið sem settur
kennari, var skipaður í það embætti
4. nóv. s.l. — Ymsar verklegar um-
bætur hafa orðið á skólanum á s.l.
ári: Heimavist fyrir 15 nemendur
komið upp á efsta lofti skólahússins,
bókasafnshúsið stórbætt og komið
fyrir í því rúmgóðum og vistlegum
lestrarsal fyrir nemendur. Af kennslu-
tækjum hefir skólinn m. a. eignast
útvarpsviðtæki og kvikmyndavél. —
Prófreglugerð skólans hefir verið
breytt á þann hátt, að ein einkunn er
nú gefin fyrir dönsku, samanlagða
við gagnfræðapróf, en ekki tvær, aðra
fyrir munnlega og hina skriflega,
eins og áður var. Stærðfræðikennsla
er lögð niður í máladeild, en hagnýt
bókfærsla tekin í staðinn. — Heimtun
sjúkdómsvottorða af nemendum, er
fjarverandi eru úr kennslustund, hef-
ir verið lögð niður, og er að því
landhreinsun. — Skólanum var sagt
upp 7. júni, eða 3 vikum fyr en vant
er, og varð að flýta prófunum svo
mjög vegna landssýningarinnar, sem
halda átti í skólanum.
Aftan við skólaskýrsluna ritar Vil-
hjálmur Þ. Gíslason mag. art. fróð-
lega grein um bókasafn skólans, og
fylgja henni myndir af bókasafns-
húsinu og lestrarsal nemenda.
Lesið, kaupið og borg-
ið Heimskringlu
(Bókarþökk til herra Aðalsteins
Kristjánssonar rithöfundar í Cali-
forníu, U. S.)
I.
Máttarstór þótt margur einn
mæðist letradrottinn,
ennþá sýnist Aðalsteinn
“ekki af baki dottinn”.
Þar sem ó-lið orkað fékk
aldar sannleiksklýju,
skerpa mættu skyggnum smekk
“Skotspænirnir” nýju.
trt þar fleytast orðin greið,
aldrei gjörn að ljúga,
vökur því um virða leið
víða skyldu fljúga.
Margt í gátum mælt er traust, —
mæðast venjutröllin.
Ekki sést þar liggja laust
lof um aldarspjöllin.
Viljum stóra vinna þraut,
veifum þungum fjöðrum.
Mun þá troðin meðalbraut
metin síður öðrum.
Dusilmenn um hræsnisheið
hrekjast straums á svifum. —
Aðalsteinn fer aðra leið,
æðrulaust, — í skrifum.
Spurning hál í sprettum grær,
spinnst úr leiftrum orðið.
Efni i skrýming Einar fær
yfir letra-borðið.
öfugstreymi efast það
örfum maura-sorgar,
vaxi réttar-virðing að
völdin New York borgar.
Þar á Lenin vaxarvon,
vilduð rétti hlynna.
Valdaglæstum Washington
varð úr höggi minna.
Líða fygli’ í lofti slys,
langfleyg, meira’ en skyldi.
Helga “klosa” hefir glys
heldur mæðst í gildi.
Oft má bros í sveiflum sjá,
sundur mál ef greinist.
Kyrrt þótt sýnist ofan á,
undir fleira leynist.
Margt er gleymt, sem mætti vel
minnast skörpum tökum:
Fáum bögum fátt eg tel,
fyrir vaxtar-sökum.
Forðist stakan málamökk,
mælt i fáum línum-
Skyndi-fleygum skýrist þökk
“Skotspónunum” þínum.
Minni’ að skerpa mest er ráð.
Mörgum gerðir betur.
Af þér hefi eg áður þáð
einhver fleiri letur.*)
Vökusjónum vendist það, —
veittist dæmi-snilli, —
skár en myglað trúar-tað,
tuggið vita á milli.
II.
Ef mig “skíð” í austur ber
yfir Ránar-vætu,'
*) Hér er átt við bókina "Supersti-
tion in the Twilight” eftir A. K., sem
blöðin hafa litið getið, en sem þó
mundi stytta nokkrum stundir ef les-
in væri með þeirri athygli, sem bæk-
ur eiga að lesast. Líklega þora synir
vikinganna að lesa fleira en auðvalds-
blöðin ?
Þögn og ergi og þinga-ryk
þæfa í felum gjöldin.
Þar er löngum þungt um vik
þeim sem kræktu’ i völdin.
Betur skila mundi mér
meins úr kröm til þrifa, —
ef þeim væri, eins og þér,
öllum létt að skrifa.
Verður sízt und valdaborð
vandabundin seta,
þjóðargoð ef eigin orð
einkis þurfa að meta.
Mér er þagnar-draug í dúr
dóma vant að temja,
skyldi rétthverfð skyggnum úr
skólahrokinn lemja.
Að mér barmur grafar grár
grjóti’ og moldu veltir.
þingsins eftir þúsund ár
þuli valdið sveltir!
Varni flugsins viðfangsþrot,
veifum penna’ af móði.
öflum myrkra yrkjum rot, —
æskuvinur góði.
“Skots á spónum” skríðum heið,
skákum myrkrum hriðar.
Eitthvað sést á aldaleið
af þeim slóðum síðar.
Lýsist skarið leiftrum frá,
lygin týnir völdum, —
hrauns þótt miðjum hrjóstrum á
hreinskilninnar gjöldum.
Stigum hátt of steina-lið.
Stikum vlssum fetum.
Iðnin kemur viða við.
Vökum meðan getum!
(12,—9.—1930.)
Steinn H. Dofri.
Flin Flon P. O., Man.
Um víða veröld
Nýja stjarnan.
Stjörnufræðingar halda stöðugt á-
fram athugunum á hinni nýju stjörnu
sem fannst nú um áramótin síðustu
fyrir utan Neptúnus, yztu og áttunda
stjömuna, sem áður var þekkt í sól-
kerfi því, sem jörðin tilheyrir, og
sagði Lögrétta frá hinu merkasta I
sambandi við þessa uppgötvun, rétt
eftir að hún varð kunn. Stjörnu þess-
ari hefir ekki enn verið gefið nafn,
en fær líklega eitthvert goðanafn.
Nýja stjarnan fannst í nánd við Delta
Geminorum, er líklega á stærð við
jörðina og fjarlægð hennar frá sólu
kringum 4 þúsund miljónir mílna, og
áætlað að hún sé um 300 til 500 ár
að fara eina umferð kringum sólina.
Ljósið, sem fer 11 miljónir mílna á
mínútunni, er rúmar sex stundir á
leiðinni frá nýju stjörnunni til jarð-
arinnar. Frá nýju stjörnunni að sjá
er sólin viðlíka stór og Júpíter er frá
jörðunni, og sólarljósið, sem nýja
stjarnan fær, er um 250 sinnum eins
mikið og tunglsljós er á jörðinni,
þegar tungl er fullt. Fundur þessar-
ar nýju stjörnu, sem var útreiknað-
ur áður, þykir eitthvert æfintýraleg-
asta þrekvirki stjömufræðinnar, á-
líka og þegar að Neptúnus fannst.
En ennþá er ekki lengra síðan en
svo (það var 1846), að Neptúnus hef-
ir ekki farið nema hálfan hring um
sólina, því heill hringur tekur hann
165 ár. Hvar mun þekkingin á him-
ingeimnum og undrum hans vera,
þegar nýja stjaman hefir farið sinn
hálfa hring, eftir 150—250 ár?
Lögrétta.
SAFNIÐ
POKER HANDS
Sem eru í
TURRET Fine Cut Tóbaki.
Fyrir þær getið þér fengið
dýrmæta muni
POKER HANDS
SKEGG-
bursti
Fjögur
setti af
Poker
Hands
BLYSLJÓS
eru einnig í eftirfarandi alþekktum
tóbakstegundum:
Turret Sigarettur
Dixie plötu
\Storaewall JacStsoixij
Viiacilar
(fimm í hverjum pakka)
3^deias plöti
reyfetobafe
Ben
WioiclDester
AXLA-
BÖND
Tvö setti
af Poker
Hands
SPIL
Fimm setti af
Poker Hands
MilIBanM.
Sig’arettwr
Bex
vekjara klukka\\\ Sig^arett^ar
OI(d
Clwm
tofeafe
6 5,
PIAYING
CARD5
Tm ’
Eitt sotti af
Poker Hands
KORKTREKKJARI
Fimm setti af Poker
Hands
BRtrÐA
Tvö setti af Poker
Hands
KETILL
Atta setti
af Poker
Hands
Tíu setti af Poker
Hands
Þessi nýju eldhús-þœgindi
spara tíma
Þessi nýja Magic Cook
Book inniheldur rúm-
lega 200 reyndar for-
skriftir. Eintak yður er
til reiðu að senda undlr
eins Skrifið eftir því.
Hafðu eintek af hinni nýju Magic Cook Book
við hendina og þú munt aldrei vera í vandræð-
um með hvaða rétt eigi að búa til.
Hvað hafa skuli i morgunmat, miðdagsmat, eða
hvað gefa skuli gestum, er að garði bera, er
allt auðráðið ef þú hefir þessa bók. Þar í sérðu
alla þá góðu rétti, er þú þarft við hvaða tæki-
færi sem er á að halda. Og forskriftin er FRÍ!
Sendið oss addressu yðar og ein-
tak af henni verður sent yður.
Skrifið í dag.
3 af hverjum 4* konum í Canada sem
baka heima, segjast nota Magic vegna
hins óbregðandi góða árangurs. Ef
þér notið Magie Baking Powder einn-
ig, munu afleiðingamar verða hinar
sömu.
koin f Ijóx nýlegn vift rnnnnAkn
er icerfJ var I þvf Namhandl.
STANDARD BRANDS LTD.
GILLETT PRODI CTS
TORONTO MONTREAL WINNIPEG
og útbá i öllum aðal borgum Canada-
LltlfJ eftlr þesnu mnrkt f hverrt kiinnu.
ÞafJ er tryKfflnK l»fn fyrlr þvl nti Majflo
RnklnK Powder Innlheldur ekki alura
eha netn Hknðvirn efnl.