Heimskringla - 31.12.1930, Blaðsíða 3

Heimskringla - 31.12.1930, Blaðsíða 3
WINNIPEG 31. DESEMBER, 1930. HEIMSKRINCLA 3. BLAÐSIÐA Tvö kvæði. ÁRAMÓT. Er nýárið ei þér inndæl stund, með árdegisbros og gull í mund? Er gamlárið ei þér göfug mynd, með gimsteinafjöld úr aldar lind? Er endurminning þess hress og hrein sem hreistin við kaldan bautastein? KOLLS-MÁL. Var eg eigi fær til ferða, fólkið mitt, — til þinna gerða? sagði litli Kollur kátur. Hvein í höll —því nú varð hlátur! Aðeins það, sem á að gera, öðrum ferst af leið að bera. Hitt sé glaðri framtíð falið. • Fólkið snýst um megin valið. Ættir þú að eiga og skilja allt, sem fylgir þínum vilja: yrðir þú sem áður, nakinn, undarlega meinum þakinn. Hver sem rækir köllun sína — Kollur glæddi hugsjón mína — verður fyrir sorta og sandi, sem þó verður ei að grandi. Vel má hönd og hugur ráða, hæddu ei vini þína stráða, en um svöð og sanda breiða sjálfur áttu þá að leiða. í»ín er förin. Þú mátt stranda! Þér er ætluð sókn að vanda. Eilífðar um ósa breiða út er leið, á hafið greiða. Jón Kernested. Sigurrós Markúsdóttir Snæfeld Eftirmæli eftir einn af vinum fjöl- skyldunnar. l>ú varst móðir, ekkert orð sem þýðir seðri tign, á steini letrað sást- Það sem mest og helgast heiminn prýðir, lieitir fullu nafni: móðurást. Það er fagurt allt, sem á þig minnir, endurspeglar gervalt lífsstarf þitt. Sögu þinnar móðurástar minnir alltaf, fyr og síðar — hjartað mitt! Hugsa eg mér sem ekta hring án enda sefi þinnar bjarta sólarhring. Það var eilíf sæla þín að senda sólargeisla þína allt um kring. T>ú varst allt, sem lif mitt gerði að lífi; líf mitt hefði verið dautt án þín. Guð mér við að vera án þín hlifi, var og löngum eina bænin mín. Sálir þær, sem unnast, ennþá skilur ómælt, þögult dauðans svarta haf. Finnst mér sem að handan andi ylur, eða sem eg líti geislastaf. Er þó von að að mér hlaðist skuggar, inni verði dapurt, tómt og hljótt. Eins og þegar blæjum birgðir glugg- ar breyta heimi dags í auðn og nótt. Hvernig má eg harm svo þungan bera liéðan fram að minni eigin gröf? Eigi má eg samt án sorgar vera, sorgin er mér dýrmæt náðargjöf. Myrkrið loksins mér að skiljá gefur merki þess að dagur hefir styzt. Það ert ekki þú, seip dáið hefir, það er eg, sem líf mitt hefi misst. lausari og torskildari én nokkru sinni fyr . trt úr hverri ásýnd og hverjum kima heimilisin* horfði mállaus sorg- in þvölum augum. 1 dag stefnir dauðinn oss enn á ný á kveðjumót. 1 dag er hann þó ihvorki harðhentur né torskilinn. I <lag kemur hann til vor brosandi eins «g hann vildi segja: “Satt er það, oft «r eg hræðilega harðleikinn við ykk- ur, blessuð börn lífsins; en þið vitið / að eg meina það allt saman vel, því að hvað er eg, eftir allt, annað en þjónustubundinn sendiboði lífsins!” 1 þetta sinn kemur hann, sem vinur, á móts við lúna langferðamanninn, leysir af honum byrðarnar og leiðir hann til hljóðrar og djúprar hvíldar. 1 dag hefir dauðinn varpað af sér hinum skuggalegu, saggaköldu slæð- um, er annars fylla oss ógn og sorg. — Svo bjart er um burtför Friðriks Bjarnasonar. — Fyrir hans vitund var engin gáta dauðans framar til; enginn dauði til; aðeins örlítil bylting, “æfintýri”, á vegi lifsins; fæðing. Hér var um þann mann að ræða, sem ekki var það neitt uppgerðarmál, að í skjóli Krists vildi hann deyja — né var hon um það efamál, að hann mundi og með honum lifa---------- Þeir menn og konur, yngri sem eldri hér í byggð, sem á undanförn- um árum hafa haldið hópinn undir merki trúar og frelsis, hafa efalaust oftsinnis látið hugann reika með kvíða fram til „þeirrar stundar, er j Friðriks Bjarnasonar nyti ekki leng- ur við. Návist hans virtist ómiss- andi. Allt varð bjartara og léttara, þegar hann kom í hópinn. ósjálfráð ur kvíði vor á liðinni tíð var ekki á- stæðulaus. Því að svo sérstök og örðug eru félagsviðhorf Islendinga hér í álfu, að hæpið er að “maður komi manns i stað”. Og vandskip- aður verður að nýju sá öndvegissess í félagslífi voru, sem nú er auður lát- inn við burtför Friðriks.-------- Nú er komið á níunda ár síðan eg fyrst kynntist þessum grannvaxna, hrörnaða öldung, með síungu, æsku- fögru sálina. Alla tið hefi eg dáðst að því, hve þessi persónuleiki var heil steyptur og samræmur — og afskap- lega jákvæður. Eg dáist fyrst og fremst að hugsanalífinu — þessu stóreftirtektarverða andlega sjálf- stæði alþýðumannsins, sem lýsir sér meðal annars í tvennu: því hugrekki vitsins, sem hristir af sér ýmsar valdboðnar og rikjandi skoðanir al- menningS og leiðir sina eingin sam- vizku og beztu vitund í kór; svo og þvi hugrekki siðgæðis og skapsmuna sem þverneitar að semja um sann- færingu sína, og aldrei slær þar af um hársbreidd. Síðan árið 1909, er Friðrik sem fultrúi Quill Lake safn- aðar, gekk af kirkjuþingi með séra Friðrik Bergmann, hafa sumir lagt honum það til ámælis, að hann væri stirður til samvinnu í trúar- og kirkjumálum. Þar til er því að svara, að hér var um þau alvöru- og sann- færingaratriði að ræða, að honum var ekkert undanhald leyft. Sérstæðastur var þó Friðrik, ef til vill, fyrir bjartsýnina. Aðdáanleg bjartsýni ljómaði yfir öllu hans hugs- ana- og athafnalífi, og hélzt gersam- lega óskert allt fram á banastundina. Mér þykir fyrir því, að eg hefi ekki við hendina kvæði eftir Magnús A. Árnason, nýlega kveðið til al- þýðuskáldsins og góðvinar okkar Sigurðar Jóhannssonar. I aðra rönd- ina virðist Magnús vera efnishyggju maður, sem eigi þess eins vel von að saman fari hrun efnis og anda. 1 kvæðinu játar hann þó, að þegar hann rekur sig á glaðvakandi o,g æskuþrungið sálarlíf hjá áttræðu gamalmenni, þá hneigist hugur sinn ósjálfrátt til trúar á sjálfstæði og ó- dauðleika mannsandans! Mér kom kvæði þetta í hug á dög- unum, er eg sat yið sjúkrabeð þessa háaldraða og dauðvona manns — og fann alla sálarkrafta hans óskerta! — sömu öruggu sannfæringuna, sömu umhyggjuna fyrir frjálslyndu kirkjunni, sunnudagaskólafræðslunni og viðleitni ungmennanna — sömu bjartsýnina, fögnuðinn og þakklætið — sama trúarylinn, sömu djúpu lotn- inguna fyrir Kristi og málstað hans á jörðinni, sömu fagnaðarsælu viss- una um upprisu mannsandans, og þroskaskeiðin framundan, uppljóm- uð af elsku og mætti hins hæsta. Og jafnframt öllu þessu — sömu léttu og gamansömu tilsvörin, sem ef til vill sýndu hvað bezt að andinn var ungur og heill, þótt holdið væri að hruni komið.---------- Friðrik var sem sagt orðinn gam- all maður, þegar eg sá hann fyrst. Einhverntíma var mér sagt, að hann hefði gleðimaður verið á yngri ár- um. Og hver veit nema einhver sam- ferðamaðurinn frá þeim árum kunni frá brekum og brestum að segja. En hvað sem fram mætti grafa í því efni, þá yrði aldrei hægt að segja mér, að uppistaðan i skaphöfn þessa manns hafi eigi frá byrjun verið ó- venjulega velviljuð og ábyrgðar- söm. — Fróðleiksáhugi hans og líknarlund runnu saman í lækningastörfum hans. Tókst honum að sögn margt vel í þeim efnum, og var ætíð reiðu- búinn og óþreytandi að líkna og lækna, er til hans var leitað. Get eg j mér þess til hins vegar, að eigi hafi þau störf yfirleitt verið fjárhagslega ábatasöm, né búi hans til eflingar, og mun hann aldrei ríkur verið hafa. Hann hafði allglöggt auga fyrir því fagra. Bjó, að því er virtist, yf- ir listeðli, þótt aldrei nyti það sin. — Samt hafði hann að einhverju leyti tamið sér þetta almenna eintal ís- lenzkra sálna — að yrkja og kveða. Vísur hans, — þær fáu sem eg hefi séð — eru ef til vill ekki beint til- þrifamiklar, en skýrar að og full- smekklegar, í gömlum alþýðustíl. — Þessar visur hans bera nokkurn vott um hugsunarhátt hans: Þótt vonbrigðin með vélum sínum vellíðan mína hafi stytt, Kærleikans guð, í krafti þínum kýs eg að vinna dagsverk mitt. og Bezt eg reyni bænræknin blessun hreina málar Þetta eina ágætt finn eyða meinum sálar. Um trúmál las hann og hugsaði mikið. Sérstaklega unni hann starfi og ritum séra Haraldar Níelssonar. Til þessa lá meðal annars sú beina ástæða, að Friðrik mun sjálfur hafa verið gæddur nokkrum dulgáfum. Jafnvel um hábjarta daga bar stund- um svo við, að hann féll í létt augna- bliks leiðsluástand, og þótti þá sem hann stæði augliti til auglitis við framliðna frændur síná og ástvini; fékk þá meðal annars svör við göml- um einkamálum, sem fullnægðu hon- um- Var hann t. d. sannfærður um að séra Friðrik Bergmann látinn, hefði með þessum hætt kvatt sig til að helga frjálsu kirkjunni krafta sína. Víst er um það, að einhvers- staðar frá kom honum í þessum mál- um eldmóður, starfsþrek og bjartsýni umfram flesta aðra. Síðustu vikurnar var honum það fullljóst, að hann var að deyja. Var honum það hrifandi tilhugsun. Lagði hann svo fyrir, að eigi skyldi aðra húskveðju halda á heimili hans en þá að syngja —- til þess að menn og skepnur skyldu eigi sín vegna liða i hinu bitra vetrarfrosti. Sérstaka á- herzlu lagði hann á það, að sunginn 'yrði við útför sína sálmurinn nr. 23 í sálmakveri próf. H. N.: “Þú Krist- ur, ástin alls er lifir.” Einhverntíma, ef til vill i banaleg- unni, kvað hann þetta. Kvartað ekki hef eg hátt. Heims er vinnan goldin: Kastið blómi á leiði lágt, lík þá hylur moldin. Hann var ekki að biðja um venju- lega blómkransa. Þvert á móti, lét hann þau boð ganga til vina sinna, er kynnu að vilja gefa blóm í sam- bandi við útför hans, að frambera heldur þá fórn á altari lífsins og æsk- unnar — láta það ganga til sunnu- dagaskólans. Þangað beindist hug- urinn til síðustu stundar- Sunnu- dagaskólakennari var hann búinn að vera í fjöldamörg ár, — óþreytandi að hneigja hugi barna og ungmenna til trúar og siðgæðis, svo og til ástar á íslenzkum menningarerfðum og þjóðerni. Einu blómin, sem hann biður niðj- ana og samherjana að leggja á leiði sitt, eru sveigar vakandi trúmennsku | við þá ljóstrú og lífsþrá, sem sál hans ólgaði af, og gerði hann að á- ! byrgðarsömum og starfandi manni. KVEÐJA flutt við útfararathöfn Friðriks Bjarnasonar, ort að beiðni Hjartar F. Bjarnasonar. Við komum að hvilu þinni í kærleika, börnin þin — með grátklökkva gleði í sinni, og gæfu, sem aldrei dvín. Þú varst alltaf vinur í raun; og valdir ei heldur um laun. Við skiljum, að söknuður situr um alla, er sáu þig stríða, og sigra og falla. En minningin lifir á lífgeislabárum, og leiftrar i gleði og sorganna tárum. Jakob J. Normann. Fréttir vestan af strönd 12 nóttum fyrir Jól, Belingham, Wash, 1930. Ritstjóri Heimskringlu, Winnipeg, Man. Kæri herra! Það er eins hér og annarsstaðar í ríki “Uncle Sam”, of lítið um vinnu. Er það bagalegt fyrir fólkið, þar eð það getur ekki borgað eins skilvíslega og það gerði á góðu tímunum, og ekki til neins að ganga hart á eftir skuldum, hvorki fyrir blaðaútgefend- ur né aðra. Allir vona að árið 1931 verði gott og arðsamt. Gengur þessi vinnukreppa yfir landa sem aðra, en það eru þó menn, sem vilja vinna. Manni dettur í hug, hvort það mundi nokkuð hjálpa, að taka upp xann góða, gamla sið, sem tíðkaðist á íslandi fyrir 30 árum, nefnilega að taka upp húslestrarsiðina, lesa post- illur þeirra Jóns eða Péturs á hverj- um degi- Auðvitað gæfi það ekki vinnu. En það gæti huggað þá, sem hryggðin slær út af atvinnuleysinu, eða með öðrum orðum, svæft þá. — Yrði það þá sá flokkur landa, sem eru forhertir kirkjumeðlimir. Hinir, sem ekki sjá þessi guðshús, þótt þeir gangi framhjá þeim á hverjum degi, mundu verða samir sem áður, harð- vítugir syndaselir, sem enginn guðs- orðaprédikari nútímans getur frels- að frá “vonda staðnum”, er þeir kveðja þenna heim. Þeir náungar koma aldrei í kirkju og sýnast vera trúminni en þorskurinn. Eftir þvi sem eg hefi heyrt, er fé- lagslífið hjá löndum hér í bezta lagi. Er Mr. Þ. Anderson þakkað það og hans ráðuneyti. Anderson er forseti bóka- eða lestrarfélagsins hér í borg, Mr. Sigfússon skrifari, Mr. Goodman féhirðir og Mrs. Gíslason bókavörð- ur. Hvort fleiri eru í stjóm félags- ins nú, veit eg ekki. En þetta eV fólk, sem hefir vilja stáli sterkari og strangheiðarlegt, hlær aldrei i lang- lokum, eins og þeir viljgiveiku, held- ur eru hlátrar þeirra eins og Mr. Skaptasonar og Morrisons i Blaine. Það eina sem hjálpar fólki hér, að >að verður ekki hálfgeggjað, er veðr- ið, það er ágætt; frostlaust nú og smáskúrir, utan húss og innan, og glaðir eru menn yfir þessum fáu döl- um, sem stjómin ætlar að bæta atvinnuleysið með, bara að skrattinn stingi þeim nú ekki í rangan vasa. Eg bið yður, herra ritstjóri, að gera svo vel að gefa þessum fáu línum rúm 1 okkar góðu Heimskringlu, svo fólk sjái að eg fer með rétt. Með ánægju skal eg senda blaðinu meira af þessu — bara að láta mig vita gegnum blað ið, hvort það er ekki þegið með þökk um. Eg hefi fengið leyfi til að senda Kringlu .visur, er urðu til á dögunum og eru kallaðar "Thanksgiving Din- ner hjá Uncle Sam”. Hvort það verð ur hægt í þetta sinn, veit eg ekki fyrir víst. Eg bið yður, herra ritstjóri, að fyr- irgefa þetta, eg meina sparkið, um ritvillur kæri eg mig ekki, þær eru algengar. Eg óska yður og stjórn Krínglu gleðilegra jóla og góðs árs 1931. Yðar með virðingu, Str. Júlíus. FRÁ ÍSLANDI. Rvík. 29. nóv. Harðindi. Af Langanesi er skrifað 18. nóvember: Tiðarfar á síðast liðnu sumri verður að teljast mjög óhag- stætt hér um sveitir. Hröktust hey mikið í ágúst og urðu lítils virði. Frá september byrjun var all-góð tíð, svo að menn náðu heyjum sínum, en þau voru hjá flestum bæði lítil og léleg. Asetningur mun víða vera bágborinn. Síðast liðnar vikur hefir verið hér hin mesta ótið og er kom- inn mikill snjór, en þó hafa fáir bænd- ur gefið enn þá. Fjárheimtur voru fremur slæmar víðast hvar í haust, enda komu snjóar svo snemma, að búast má við að margt fé hafi farist á heiðum. EF ÞÚ ÁTT VINI í GAMLA LANDINU SEM AÐ ÞIG FYSIR AÐ HJALPA ____ AÐ KOMAST TIL ÞESSA LANDS, Farbréf ÞA KOMIÐ INN OG SJAIÐ OSS. VIÐ SKULUM SJA UM ALT ÞVI VIÐ- VTKJANDI. til og frá allra landa GLOBE GENERAL AGENCY Rail Agents 872 ivfain Street (Phone 55800 heimsins Agentar fyrir allar eimskipa línur eða talið við einhvern af agentum Panadian J^ational þir sem tiotiS T I M BUR KA UPIÐ A F The Empire Sash & Door Co., Ltd. BlrgSlr: Henry Ave. East ' Phone: 26 356 Bkrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton VERÐ GÆÐI ANÆGJA. i Prentun- \ The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr- ir mjög sanngjarnt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega og fljótt og vel af hendi leyst. Látið oss prenta bréfhausa v yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta. I Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi. ITHE VIKING PRESS LTD I 853 SARGENT Ave., WINNIPEG C I ^ Sími ^ *

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.