Heimskringla - 31.12.1930, Síða 7
WINNIPEG 31. DESEMBER, 1930.
HEIMSK.RINGLA
7. BLAÐSIÐA
u 1 N af ns PJ >•• 10 ld I
FRÁ ÍSLANDI.
Rvík. 29. nóv.
Bílfær vegur var gerður $ sumar frá
Þórshöfn inn að Hafralónsá; mun
hann á næsta sumri eigi að leggjast
inn að Svalbarði i Þistilfirði og á
næstu árum austur yfir Brekkna-
heiði — austur á Strönd.
* * *
Rvík. 29. nóv.
Frá Gunnólfsvík á Langanesströnd
er skrifað: Verð er hér afar lágt á
öllum innlendum afurðum, t. d. er
gæruverð áætlað 90 — 95 aura kg.,
dilkjakjöt 80 — 85 aura kg. Ullin
frá í vor liggur hér enn óseld. Fiskur
óseljanlegur.
• • •
Rvík. 29. nóv.
Veikin í Móakoti. Þess var getið
I blaðinu í gær, að skæð veiki hefði
komið upp i Móakoti á Vatnsleysu-
strönd og að læknar væri í vafa um
hvaða veiki þetta væri. Voru 5
manns á heimiliun, kona og fjögur
hörn; konan dó úr veikinni og þrjú
börn hafa tekið veikina. Er eitt orð-
ið heilbrigt aftur, en tvö mikið veik;
voru þau flutt hingað og lögð í sótt-
varnarhúsið. Þar eru einnig heil-
brigðu börnin tvö frá Móakoti. Er
nú verið að rannsaka veikina, en
þeirri rannsókn verður sennilega ekki
fokið fyr en á mánudag.
* • •
Rvík. 30 nóv-
RANNSÓKNIR
A DVRARIKI ISLANDS.
Unnið verður að því að fá yfirlit yfir
þá þekkingu, sem fyrir hendi er á
þvl sviði, og bæta úr verstu giopp-
unum.
Á undanförnum árum hefir dýra
fræðissafnið í Höfn gengist fyrir því,
að út væru gefnir á ensku yfirlits-
bæklingar um dýraflokkar þá sem til
eru í Færeyjum. Hafa færustu menn
á þessu sviði annast um útgáfu bækl-
inganna. Hefir þar verið safnað sam-
an allri þeirri þekkingu sem til er á
þessu efni, jafnframt því sem gerð-
ar hafa verið þær rannsóknir sem
gera þurfti, til þess að úr þessu feng-
ist heildarkerfi.
Nú er heildaryfirlit fengið yfir
dýrariki Færeyja.
Stjórn dýrafræðissafnsins í Höfn
hyggst að víkka verkahringinn og
gangast fyrir þvi, að svipað yfirlit
fáist yfir íslenzka dýrafræði. Ætl-
ar hún að leita aðstoðar þeirra nátt-
úrufræðinga íslenzkra, sem fengist
hafa við dýrafræði. En rannsóknir
og útgáfur bókanna verða að veru-
legu leyti styrktar úr Carlsberg-
sjóði.
Er þess vænst að dr. Bjarni Sæ-
mundsson fyrst og fremst taki þátt
í samvinnu um vísindaverk þetta,
og taki þá fyrst og fremst að sér
fiskana. Rann,sóknir hans og dú.
Jóhs. Schmidt á fiskum hér við land,
eru sem kunnugt er svo viðtækar, að
óvíða er það betur rannsakað en hér
við land. .
Sennilega tekur hann að sér við-
tækara verksvið.
Aðrir dýrafræðingar íslenzkir sem
hér ættu að aðstoða með þekkingu
sinni eru þeir Árni Friðriksson, Guðm.
G. Bárðarson og Pálmi Hannesson.
En hvaða efni hver þeirra tekur að
sér, mun vera óráðið.
Rannsóknir á fuglalífi Islands eru
mjög í molum, o geins á spendýr-
um, þó þar sé meira efni úr að vinna
í allskonar gömlum heimildum. Krabb
ana hefir dr. Bjarni Sæmundsson
rannsakað töluvert, Guðm. G. Bárð-
arson hefir m. a. rannsakað lindýrin,
og Pálmi Hannesson alskonar dýra-
líf í stöðuvötnum landsins, þó enn
hafi hann eigi ritað um það efni svo
teljandi sé.
Hér á náttúrugripasafninu er mik-
ið af gögnum er koma að haldi við
starf þetta. Eins hafa vísindamenn-
irnir á rannsóknaskipi dr. Johs.
Schmidt^Dana, tekið mikið heim með
sér af sjávardýrum.
En ýmsir dýraflokkar eru hér svo
til órannsakaðir. Má þar m. a.
nefna flest skordýr, maura, köngu-
lær, armar í jarðvegi og vötnum o.
fl. o. fl.
Er óskandi að rannsóknarstarf
þetta gangi sem greiðlegast, svo
grundvöllur sé fenginn fyrir fram-
haldsrannsóknir á þessu merkilega
sviði íslenzkra náttúruvísinda.
—Mbl.
• • •
Rvík. 3. des.
ELDING VELDl’R HÚSBRUNA
OG STÓRTJÓNI.
I gær barst sú fregn austan úr
Skaftafelssýslu, að eldingu hefði sleg-
ið niður í íbúðarhúsið í Flögu í
Skaftártungum, og að húsið hefði
brunnið til kaldra kola. Til þess að
fá nánari fregnir af þessu, átti Morg-
unblaðið tal við Gsla Sveinsson sýslu-
mann i Vík, og skýrði hann þannig
frá:
Agfaranótt mánudags (1. des.)
gerði hér aftaka veður af haf-út-
suðri; var það með verstu veðrum,
sem hér hafa komið. Urðu víða sím-
slit, svo að ekki fengust strax fregn-
ir um, hvort nokkurt slys hefði orðið
af veðrinu. Sambandslaust varð á
aðallínunni við Skarftártungu, en þé
gat stöðvarstjórinn í Vík heyrt ó-
Ijóst samtöl á aukalínum ^ustan Mýr-
dalssands. Fékk hann þá þær fregn-
ir, að kl. um 3 aðfaranótt 1. des-
hefði eldingu slegið niður í íbúðar-
húsið í Flögu í Skaftártungu og hús-
ið brunnið til kaldra kola. Simastöð
var í Flögu og hafði fólkið orðið
þess vart, að eldingu sló niður í
skiftiborð símans og klofnaði borð
ið en húsinð stóð þegar í björtu báli.
Fólkið komst nauðulega út og ó-
meitt, að því er vitað verður, en misti
alt, sem inni var, búsáhöld, húsmuni,
fatnað, matvæli og yfir höfuð alt,
smátt og stórt sem í húsinu var.
Bóndinn í Flögu heitir Vigfús
Gunnarsson og er kona hans Sig-
ríður Sveinsdóttir, systir Gísla Sveins-
sonar, sýslumanns.
Tjónið gífurlegt.
Ibúðarhúsið brann til kaldra kola,
ofan frá rjáfri og niður i kjallara.
Aðeins múrvegir stóðu eftir; þó
hrundi norfðurveggur, sem var úr
steinsteypu og undir honum stóðu
kerrur og sláttuvél og molaðist það
undir veggnum.
Þarna brann, auk verðmætra skjala
og peninga, aleiga fólksins. Geymslu-
hús var áfast íbúðarhúsinu og brann
það með öllu, sem í var; húsgögn
öll brunnu, búshlutir, allur fatnaður,
öll áhöld til rafveitu, sem voru ný
og mjög vönduð, allir aðrir lausamun-
ir og allur vetrarforði af matvælum.
— Þetta var alt óvátrygt. Húsið var
vátrygt var aðeins 10 þús. kr., og
er það hálfvirði kostnaðar. — Tjón
húsbænda og heimilisfólks er því
mjög tilfinnanlegt.
Rafmagnsstöðin var ekki i gangi
þessa nótt og enginn eldur í húsinu,
svo ekki getur minsti vafi leikið á
því, að hér hefir eldingin kveikt í
húsinu.
— Á Hrífunesheiði voru símastaur-
ar meira og minna brotnir, sumir
voru klofnir niður eftir endilöngu,
flísar klofnar úr öðrum og nokkrir
þverkubbaðir og glerkúlurnar einnig
klubbaðar sundur-
Á sama tíma og eldingunni hafði
lostið niður í Flögu, vaknar stöðv-
arstjórinn i Vík við brest mikinn í
simastöðinni þar og öryggisglös öll
brotna. Vík er um 40 km. frá Flögu
Einnig höfðu brestir heyrst í stöð-
inni að Kirkjubæjarklaustri og öðrum
símastöðvum í sýslunni.
• • •
Gísli Sveinsson sýslumaður hefir
lagt fyrir hrepþstjóra Skaftartungu-
hrepps, að taka ítarlega skýrslu af
viðburði þeim, er gerðist aðfaranótt
1. þ. m. Eftir þeim fregnum sem
fengist hafa, má telja vísa, að eld-
ing hafi slegið niður í símalinuna ná-
lægt Flögu og leiðst með símanum
inn í húsið. Og þar sem siminn er
orsök tjónsins, og hér er um land-
símastöð að ræða, er það að sjálf-
sögðu skylda landsímanns að bæta
tjón það, sem hér hefir orðið.
—Mbl.
Siglufirði, 4 des.
ÓTIÐ NVRÐRA.
Siglufirði, 4. des.
Afar óstilt tíð og stormasöm. Má
heita, að óslitin jarðbönn hafi verið
hér frá veturnóttum, þar til blotaði
um síðustu helgi. Snjór þá talsverð-
ur. Ofsarok í nótt á suðvestan. Fauk
járn af einu íbúðarhúsi og skemdist
lítilsháttar á fleirum.
Sjaldan gefur á sjó, en ágætis afli,
þegar gefur. Síðast, fyrir fjórum
dögum, aflaði hæsti báturinn átta
þúsund pund. Suðvestan rok í dag
og snjóél.
Tveir botnvörpungar leituðu hafn-
ar hér í nótt.
• * •
Rvík. 5. des.
Byggingarkostnaður í Reykjavík.
Samkvæmt áætlun húsameistara rík-
isins um byggingarkostnað í Reykja-
vík, kosta hús nú 171% meira held-
ur en í fyrra. Af byggingarkostnaði
er vinnukaup nú 336% hærra heldur
en fyrir stríð. Hús, sem er 8.5X7.2
m. ein hæð, portbygt, krossreist, með
geymslukjallara, loft og gólf úi^
timbri og útveggir allir þiljaðir innan
með pappa á milli, strigalagt innan
og málað, en án allra pípulagninga,
áætlar húsameistari að kosti nú
19,784 krónur, en í fyrra hefði það
kostað 19.228 krónur og 1920, þegar
byggingarkostnaður var hæstur,
36.227 kr.
• * •
Rvík. 7. des.
ÞYSKUR TOGARI STRANDAR
övíst hvar skipið er; sennilega er
það austast á Mýrdalssandi, nálægt
Alftaveri.
Mannbjörg.
(Eftir simtali við Vík).
Á laugardaginn (6. þ. m. urðu
menn í Vík í Mýrdal þess varir, að
bál var kynt á Hjörleifshöfða á Mýr-
dalssandi, og réðu menn strax, að
þar myndu vera strandmenn, því að
engin bygð er á Höfðanum. — Gísli
Sveinsson sýslumaður bað bóndann
í Fagradal að fara austur til að
skygnast eftir hverjir þarna voru.
Þegar sendimaður er kominn nokk-
uð austur á sandinn, sér hann, að
hópur manna er að leggja frá Hjör-
leifshöfða, vestur sandinn. Fer hann
til mannanna, og eru þetta þýskir
strandmenn, 13 talsins. Hann fylgir
strandmönnunum heim að Fagradal
og fá þeir þar aðhlynningu og hress-
ingu.
Eftir því, sem Gísli Sveinsson sýslu-
maður skýrði blaðinu frá, veit skip-
stjóri ekki með vissu, hvar skipið
hefir strandað, en sennilega er það
austarlega á Mýrdalssandi, eða jafn-
vel suður af Alftaveri. Sagði skip-
stjóri, að strandið væri nálægt vit-
anum (á Hádegisskeri, austan við
Alviðruhamra). Skipið strandaði kl.
um 9 á föstudagsmorgun (5. þ. m.).
Skipverjar biðu í 3 klukkustundir í
skipinu, því að ekki var viðlit að
komast í land. Síðan fór einn skip-
verjanna með línu í land, og hinir á
eftir, á línunni; gekk þeim vel að
komast í land; sumir flumbruðust
eitthvað. Biðu þeir nú nokkrar
klukkustundir I fjöruni, en fóru síðan
að leita bygða. I stað þess, að leita
til vitans, lögðu þeir vestur sandinn |
og stefndu á Hjörleifshöfða. Þeir
Dr. M. B. Halldorson
401 Royd IIIiIk
Skrifatofusími: 23674
Stundar sérstaklega lungnasjúk
dóma.
Er aTJ finna á skrifstofu kl 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Helmili: 46 Alloway Ave.
Tnlnfml: 331S8
DR A. BLONDAL
602 Medlcal Arts Bldg.
Talsími: 22 256
Stundar sérstaklega kvensjúkdóma
og barnasjúkdóma. AtJ hltta:
kl. 10—12 ♦ b. og 3—6 e h.
Heimili: 806 Victor St. Sími 28 130
DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Art» Bldg.
Cor. Graham and Kennedy St.
Phone: 21834
VitJtalstími: 11—12 og 1_6.30
Heimili: »21 Sherburn St.
WINNIPEG, MAN.
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Hornl Kennedy og Graham
Stnndar elngdnKii «u«'nn- eyma -
nef- og kverka-njflkdóma
Er ati hitta fré kl. 11—12 f. h.
og kl. 3—6 e. h.
Tnlrtf mi: 21834
Heimllt: 638 McMillan Ave. 42691
Talsfmi: 28 889
DR. J. G. SNIDAL
TANNLAÍKNIR
614 Somerset Block
Portnfte Avenue WINNIPEG
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
HEALTH RESTORED
Lækningar án lyfja
DK. S. G. SIMPSON. N.D., D.O.. D.C.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNIPEG —MAN.
komu í Hjörleifshöfða kl- 10 á föstu-
dagskvöld, þreyttir og þjakaðir eftir
langa og stranga göngu, yfir margs-
konar torfærur. Engin bygð er á
Hjörleifshöfða, en skipverjar kom-
ust í mannlaust íbúðarhús þar, og
bjuggu þar um sig yfir nóttina. Þeir
höfðu luktir með og eldfæri, og gátu
því gert vart við sig næsta morgun.
Skipið heitir “Harvestehude” frá
Cuxhaven. Skipbrotsmönnum leið
vel eftir volkið, og eru nokkrir þeirra
komnir til Víkur. Voru þeir heppnir,
að komast að mestu ómeiddir úr hinni
erfiðu og hættulegu ferð yfir Mýr-
dalssand.
Skipstjóri fer í dag austur til að
leita að skipinu, og athuga, hvernig
þar er umhorfs.
Skipsbrotsmenn verða innan skamms
fluttir hingað til Rvíkur. —
Það voru skipsmenn á “Herveste-
hude”, sem i október síðastliðinn
björguðu skipverjum á m s. Ameta;
reyndu Þjóðverjar einnig að bjarga
Ametu, en mistu skipið og fórust
með því þrír skipsmanna af “Har-
vestehude”. Væri vel við eigandi,
að hinum þýsku skipbrotsmönnum
yrði nú einhver sómi sýndur, og þeim
þakkað fyrir hreystiverkið á dögun-
um.
*THEBEST*
IN RADI0
Vícior.Majesiic.
General Electiic.
Silver- Marshall.
E.NiEsiBiinnr iim
Sarqent at Sherbrook
| LOWEST TERMS IN CANADA
' l
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life BVdg.
Talsími 24 587
WALTER J. LINDAL
BJÖRN STEFÁNSSON
Islenxkir lögfræSingar
709 MINING EXCHANGE Bldg
Sítni: 24 963 356 Main St.
Hafa einnig skrifstofur atS Lund&r,
Piney, Gimli, og Riverton, Man.
Telephone: 21613
J. Christopherson,
Islenskur Lögfrœfiingur
845 SOMERSBT BLK.
Winnipeg, :: Manitoba.
A. S. BARDAL
selur likkistur og annast um útfar-
ir. Allur útbúnaóur sá beztl.
Ennfremur selur hann allskonar
rainnisv&rfta og legstelna.
843 SHERBROOKE ST.
Phone: 86 607 WINNIPEG
Bjömvin Guðmundson
A. R. C. M.
Teacher of Mubíc, Composition,
Theory, Counterpoint, Orchet-
tration, Piano, etc.
555 Arlington St.
SIMI 71621
MARGARET DALMAN
TEACHER OP PIANO
8n4 BANNING ST.
PHONE: 26 420
Ragnar H. Ragnar
Píanókennari
hefir opnað nýja kenslustofu að
STE. 4 NORMAN APTS.
(814 Sargent Ave.*
TALSIiVH 38 295
TIL SÖLU
A ÖDfRV VGRfil
“PURNACE” —bæbi vibar oc
kola "furnace” lltið brúkaO, «r
tll sölu hjá undirrttuHum.
Gott tæklfærl fyrlr fðlk út 4
landi er bæta vllja bltunar-
áhöld á helmillnu.
GOODMAN « CO.
786 Toronto St. Slmi 28847
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Bbrkskc and Fnrnlture Movil(
762 VICTOR ST.
SIMI 24.500
Annast allskonar flutninga fram
og aftur um bæinn.
100 herbergi meí etJa án batJ»
SEYMOUR HOTEL
vertJ sanngjarnt
Sfml 28 411
C. G. HITCHISON, elgnnáí
Market and Kinff St.,
Winnipeg —:— Man.
MESSUR OG FIJNDIR
f kirkju Samba ndssafnafiar
Messur: — á hverjum sunnudtffi
kl. 7. e.h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld i hverjum
mánufii.
Hjálparnefndin'. Fundir fyrtta
mánudagskveld i hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriöju
dag hvers mánaCar, kl. 8 aC
kveldinu.
SöngflokkuriÆfingar á hverju
fimtudagskveldi.
SunnudagaskóUnn:— A hverjum ■
sunnudegi, kl. 11 t. h. ,
Innköllunarmenn Heimskringlu:
f CANADA:
Arnes.................................. F. Finnbogason
Amaranth ............................. J. B. Halldórsson
Antler....................................Magnús Tait
Arborg.................................G. O. Einarsson
Baldur..........................................Sigtr. Sigvaldason
Belmont ................................ G. J. Oleson
Bredenbury...............................H. O. Loptsson
Beckville ............................ Björn Þórðarson
Bifröst ...........................Eiríkur Jóhannsson
Brown............................... Thorst. J. Gíslason
Calgary.............................. Grímur S. Grímsson
Churchbridge..........................Magnús Hinriksson
Cypress River...........................Páll Anderson
Ebor Station.............................Ásm. Johnson
Elfros.............................J. H. Goodmundsson
Eriksdale ............................. ólafur Hallsson
Framnes...........................................Guðm. Magnússon
Foam Lake................................John Janusson
Gimli.......................................B. B. ólson
Glenboro........................ .. G. J. Oleson
Geysir.............................................Tím. Böðvarsson
Hayland................................Sig. B. Helgason
Hecla..............................Jóhann K. Johnson
Hnausa.................................F. Finnbogason
Húsavik................................John Kernested
Hove...................................Andrés Skagfeld
Innisfail ......................... Hannes J. Húnfjörð
Kandahar ............................... S. S. Anderson
Kristnes................................Rósm. Árnason
Keewatin..............................Sam Magnússon
Leslie...............................Th. Guðmundsson
Langruth................................Ágúst Eyólfsson
Lundar .................................. Sig. Jónsson
Markerville ......................... Hannes J. Húnfjörð
Nes.................................. .. Páll E. ísfeld
Oak Point...............................Andrés Skagfeld
Otto, Man................................. Björn Hördal
Poplar Park............................Sig. Sigurðsson
Piney...................................S. S. Anderson
Red Deer ........................... Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík..............1...................Árni Pálsson
Riverton ............................. Björn Hjörleifsson
Silver Bay ........................... ólafur Hallsson
Swan River........................... Halldór Egilsson
Selkirk................................... Jón Ólafsson
Siglunes.............................................Guðm. Jónsson
Steep Rock ............................... Fred Snædal
Stony Hill, Man........................... Björn Hördal
Tantallon................................Guðm. Ólafsson
Thornhill............................Thorst. J. Gíslason
Víðir...................................Aug. Einarsson
Vogar.................•.................Guðm. Jónsson
Vancouver, B. C..........................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.......................... August Johnson
Winnipeg Beach.........................John Kernested
Wynyard................................F. Kristjánsson
í BANDARÍKJUNUM:
Blaine, Wash.......................Jónas J. Sturlaugsson
Bantry................................... E. J. Breiðfjörð
Chicago................................Sveinb. Árnason
Edinburg..............................Hannes Björnsson
Garðar....................................S. M. Breiðfjörð
Grafton...................................Mrs. E. Eastman
Hallson...................................Jón K. Einarsson
Hensel.................................Joseph Einarsson
Ivanhoe................................ G. A. DalmaUn
Milton...................................F. G. Vatnsdal
Mountain..............................Hannes Björnsson
Minneota................................G. A. Dalmann
Bembina..............................Þorbjöm Bjarnarson
Point Roberts.......................Sigurður Thordarson
Seattle, Wasih.......J. J. MiddaJ, 6723—21st Ave. N. W.
Svold...........................’.. .. BJöm Sveinsson
Upham................................... E. J. Breiðfjörð
The Viking Press, Limited
Winnipeg, Manitoba