Heimskringla - 25.02.1931, Side 2
2 BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
/
WINNIPEG 25. FEBRírAR, 1930.
H^ímskringla
StofnuO 18SS)
Kemur iIt á hverjum miOvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS. LTD.
8S3 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsími: 85537 ________
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borglst
fyrlríram. AHar borganir sendlst
THE VIKING PRESS LTD.
Ráðsmaður. TH. PETURSSON
Utanáskrijt til blaðsirs:
Manager THE VIKINO PRZSS LTD.,
853 Saroent Ave.. Winniveo
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til riistjórans:
EDITOR HEIMSKRINOLA
853 Sargent A je., Winnipeg.
"Helmskringla” is published by
and printed by
The Viking Press Ltd.
153-855 S’irgent Avenue, Winnipeg, Man.
Telephone: 89 994
WINNIPEG 25. FEBRtJAR, 1930.
MANITOBA-ÞINGIÐ
I.
i
Starfi flykisþinga má skifta í tvo kafla.
í fyrri kaflanum eru umræðurnar um
hásætisræðuna háðar og koma þá einnig
stjórnar andstæðingar eða hver þing-
manna sem er að frumvörpum og ýmsum
lagabreytingum, er ekki snerta fjármál.
Einar 9 slíkar lagabreytingar hafa nú
verið samþyktar við aðra umræðu í þing-
inu í Manitoba. Lúta þar að öðrumeins
málum og lækkun á skatti á sumar-hús-
um sem.-ekki leigjast við Victoria Beach,
afnámi laga sem einhverntíma voru gerð
milli Charleswood-sveitar og stjórnar
nefndar Greater Winnipeg Water Diát-
rict o. s. frv. Frumvarpið um að leyfa
friðdómurum að gifta, er ennþá í þing-
nefnd. Vilja sumir til reynslu að gifting
þessi sé gildandi aðeins fimm ár. En
aðrir eru hræddir við, að slíkar tilrauna-
giftingar verði sveitafölögunum dýrt
spaug og að blessun friðdómaranna yfir
hjónabandinu yfirleitt verði ekki eins á-
hrifamikil og endingargóð, eins og klerk-
anna. Á öðrum grundvelli en þeim að
gifting sé æfilöng, verður frumvarpið
tæplega samþykt.
Um hásætisræðuna voru fluttar 30
ræður áður en hún var samþykt s. 1.
föstudag. Stóð hver ræða yfir í einn til
tvo klukkutíma. Kenndi auðvitað ýmsra
grasa í þeim, þvíþóætlast sé til að ræð-
urnar séu að efni til um hásætisræðuna,
eru þær það sjaldnast nema að litlu leiti,
heldur er þá einnig talað um alt milli
himins og jarðar, eða eins og andinn blæs
þingmönnunum í brjóst. Og þó að ræður
þær í aðalatriðum virðist oft ekki hafa
meiri þýðingu fyrir laggjafarstarfið en
botnlanginn fyrir líkama mannsins, eru
þær eigi að síður þingsköpum samkvæm-
ar. Erum vér hræddir um, að jarlarnir
okkar í Goodtemplara stúkunum íslenzku
hefðu eitthvað að athuga við fundar-
stjórn æðsta templars, er gæfi ræðu-
mönnum eins lausan taum og gert er á
þingum.
En að því sleptu mátti hásætisræðan
heldur mögur kalast og hefir því þurft
meira hugvit en gagnrýnisgáfu til að
gera henni sæmileg skil. í kaupunum á
orkuverinu í Brandon, voru þó conser-
vatívar sannfærðir um, að stjórnin hefði
misstígið sig og að það víxlspor hefði
kostað fylkið ait að því hálfa miljón dala.
Gekk stjórninni illa að hrekja, að hún
hafi ekki greitt þetta of mikið fyrir orku-
verið. Verkmannafulltrúarnir vissu ekk-
ert hvar þeir stóðu í því máli og greiddu
hvorki atkvæði með eða móti kaupunum.
Og leiðtogi liberala mátti auðvitað held-
ur ekki segja neitt af sannfæringu um
það mál, vegna klípunnar sem hann er
í, síðan á fundinum, sem um sameiningu
libéral-<f]okksJijs og Bracbjen-flokksins.
var haldinn s. 1. sumar og enn er óútgert
'um, að minsta kosti að svo miklu leiti
sem opinbert er.
Að öðru leiti sjáum vér ekki nauðsyn-
legt hér að minnast frekar á umræðurnar
um hásætisræðuna. Þeir sem helzt hafa
gagnrynt hana, eru conservatívar. For-
sætisráðherra og dómsmálaráðherrar eru
einu mennirnir í stjórnarliðinu, sem hald
ið hafa uppi svörum fyrir stjórnina sem
dálítill veigur hefir verið í. Ræður annara.
stjórnarsinna mega heita bergmál af
ræðum þeirra.
Og hásætisræðan er nú samþykt og
þeim kapitulanum í sögu þessa þings því
lokið. Hefst nú síðari kapitulinn, um
fjármálin.
II.
Til þessa hefir verið þunnskipað á á-
heyrendabekkjum þingsins. Umræðurn-
ar um hásætisræðuna eru sjaldnast
skemtilegar. í þau fáu skifti sem vér
höfum litið þar inn, má segja að bekk-
irnir hafi verið tómir og þingmennirnir
sjálfir hafa meira að segja setið geisp-
andi undir ræðum stéttarbræðra sinna.
Það getur vel verið, að ræðumennirnir
eigi ekki sök á þessu, en tómlætið og
fáskiftnin sem ríkjandi er undir ræðu-
höldunum, er svo sérstök og áberandi
í þinginu, að vér minnust ekki að hafa
séð neitt þvilíkt á nokkrum fundum. Og
stundum kemur fyrir, að helmingur þing-
manna sem viðstaddir eru, smeygja sér
fram fyrir hurðirnar og ráfa reykjandi
gamla kosninga-vindla um þinghúsið,
meðan ræðuhöld fara fram í þingsalnum,
eins og þeim komi þau ekkert við. Svona
ganga nú þingstörfin oft allan fyrri hluta
þingtímans.
Siðastliðið föstudagskvöld, urðu þó
snögg umskifti á þessu. Áheyrenda salur-
inn var troðfullur og þingmanna sætin
voru flest skipuð og allir biðu með eftir-
væntingu eftir því, að hlýða á fjármála-
ræðu forsætisráðherra Brackens sem
fregnir höfðu borist út um að flutt yrði
þetta kvöld. Innihald þeirrar ræðu verður
að vísu ekki alt birt hér, en á helztu
fjármála atriðin skal minst. Verða frek-
ari fréttir af fjármálaumræðunum fluttar
síðar.
Til að byrja með, er tekjuhalli Bracken
stjórnarinnar fyrir árið sem leið (frá 1
maí 1930 til 1 maí 1931) sem næst ein
miljón dala. Útgjöldin námu $14,859.315.
35, en tekjurnar $13,896,614.10 á áminstu
tímabili. Áætlaðar tekjur fyrir árið sem
leið voru að vísu $14,343,691.14, en þær
urðu $447,077.04 minni en ráð var fyrir
gert. Af þessu leiðir þennan miljón dala
tekju halla jafnframt hinu, að útgjöldin
urðu sem næst hálfri miljón meiri, en
áætlaðar tekjur árið sem leið
Til þess að mæta þessum tekjuhalla
sem færður er á reikning kmandi árs,
hefir forsætisráðherrann, tekið úr kapi-
tal-reikning fylkisins $7000,000 af fé því
er sambandsstjórnin greiddi fylkinu fyrir
auðslindir þess árið sem leið. Ennfremur
verða skattar hækkaðir á járnbrauta-
félögum og tekjuskattur á hinum um-
fangsmeiri viðskifta og iðnaðar stofnun-
um, er nemur $275.000 alls. Með þessu
móti er tekjuhallinn þá jafnaður.
Áætlaðar tekjur fyrir komandi ár (frá
1. maí 1931 til 1 maí 1932) nema að
meðtöldum þessum tveimur áminstu upp-
hæðum $14,441,614.10. Útgjöldin $14,403,
106.10. Er af þessum áætlaða reikningi
auðséð, að búist er við minni tekjum á
komandi ári, en síðast liðið ár, því á-
ætlaði reikningurinn er að frá dregnum
nýjum sköttum og fénu úr kapital-reikn-
ing fylkisins um $500,000. lægri en tekj-
urnar á síðastliðnu ári námu.
Þó að tekjur fylkisins væru síðastliðið
ár ófurlítið lægbi en áætlað var, er þó ekki
hægt að segja þær litlar. Fjórtán miljón-
ir dala nema um $20. á hvert mannsbarn
í fylkinu. Það mega talsverð útgjöld
heita auk útgjalda til sambands sveita
og bæja stjórna. En herða mega þó íbú-
arnir áróðurinn til þess að það hrökkvi
til og fylkisreikningarnir ekki sýni tekju
halla.
Helstu tekjulindir fylkisstjórnarinnar á
komandi ári eru hinar sömu og á liðnu
ári. Hagur af áfengissölunni er áætlaður
$1,900,000. Skattur sam*bandsstjórnarinn-
ar $1,600,000. Gasoline skattur $1,300,
000. Bíla skattur $1,000,000. Tekjuskatt-
ur yfir eina miljón, tekjur símakerfisins
rúm miljón o. s. frv.
Helstu útgjöldin eru rentur af fylkis-
skuldinni $4,847,914.76, til mentamála
$2,421,000. til deildar opinberra verka
$2,142,000, til deildar dómsmála-ráðherra
$923,000., til heilbrigðismála $2,346,00.,
til þingkostnaðar $220.000., o. s. frv.
Gert er ráð fyrir lækkun skatta er
nemur um $460,000. Er hún aðallega í
sambandi við sveitirnar, er síðast liðið ár
greiddu $345,000. af ellistjrks kostnaði
fylkisins, en sem sambandsstjórnin nú
greiðar. Ennfremur á hermanna-löndum,
Svo er einnig tekjuskatti létt með öllu af
þeim er áður greiddu frá einum til tíu
dala skatt í fylkinu. Nemur það að lík-
indum sára litlu á komandi ári. Síma-
notkunar leyfi úti um sveitir verður og
færf niður um $6. á ári. Nemur það
eitthvað $60,000 alls á ári.
Þennan útdrátt úr fjárhagsskýrslu for-
sætisráöherra Manitoba látum vér nægja
að sinni. Dagblöðin hér hafa bæði skrif-
að ritstjórnar greinar um fjármálaræð-
una og virðast ekki sem ánægðust með
útkomuna á stjórnarrekstrinum síðast lið-
ið ár. Er auðsjáanlegt, að ef stjórnin
hefði ekki gripið til fjárins úr þeim sjóði
fylkisins, sem ekki er ætlaður til þess að
jafna ársreksturs-reikninginn, hefðu fylk-
isbúar ekki komist hjá nýrri skatta-á-
lagningu, er nam $700,000., á komandi
ári. Og í raun og veru kemur að því
síðar að þeir verða að sæta þessu, því
sjóður þessi endist ekki til eilífðar og var
auk þess til annars ætlaður.
Hann var ætlaður til þess að mæta
þeim kostnaði sem því er samfara að
nytja auðslundir fylkisins, sem nú eru í
hendur þess komnar. Og það verður ekki
gert án talsverðs fjárframlags fyrstu 4
til 5 árin að minsta kosti, samkvæmt því
er haldið hefir verið fram af þeim er
bezt þekkja til þeirra mála. í Atvinnu-
leysinu sem nú á sér stað, er nytjun
auðslindanna bráðnauðsynleg. Það er því
litlu betra, að hefta það starf en að
leggja á íbúana nýja skatta, þó til þess
ráðs hafi út úr fjárhagsvandræðunum
fremur verið gripið.
Endurminningar
Eftir Fr. Guðmundsson.
I Hófs kirkjugarði hvilir Kristján Jónsson
skáld, sunnarlega i austurenda grafreitsins, eins
og hann var þá, er eg var á Hofi. Ef eg man
rétt voru það um tveir klukkutímar sem eg kyn-
tist honum og þá aðeins sjö ára gamall, svo að
það er fát.t eitt sem eg hefi persónulega af hon-
um að segja, en af því hann var sá maður.
margra hluta vegna, sem mikið var talað um,
ekki sízt í þeirri bygð sem hann dvaldi mest
i eftir að hann var fullorðinn og tekinn til að
yrkja fyrir alvöru.
Og þar sem eg nú var um tíma í þeirri sveit
þar sem hann lifði seinasta missari æfi sinnar,
þá var það auðvitað svo margt sem eg heyrði
um talað sem getur máske orðið til að bregða
birtu á æfiferil hans í elnhverja átt, og þvi
vil eg lítið eitt minnast á hann.
A þeim árum sem Kristján ólst upp voru
það lög og venja yfir allt landið að menn urðu
að vera í ársvistum. Mér er vel kuþnugt um
það að Kristján var í vist hjá föðurbróður
mínum í Axarfirði áður en hann kom á Hóls-
fjöll, líklega 16 ára gamall og er næst að halda
að hann hafi verið þar heilt árð og mér er
kunnugt um að á því ári orti hann mikið þó
það væri ekki allt mikilsvirði. Sumarið sem
hann var í Skógum flutti hann einn dag heim
heyband af engi; en Kristín litla’ dóttir Ama
á þriðja eða fjórða ári var að leika sér úti i
góða veðrinu og sá nokkum spöl frá bænum
hvar Kristján kom með heybandshestana og hún
hleipur á móti honum en hann kippir henni upp
á hnakknefið fyrir framan sig og reiðir hana
heim og syngur henni til skemtunar. Ami tók
á móti heyinu og heyrði kvað K. söng, en Stína
litla var' kölluð Táta, Ami kenndi mér versið,
það er svona:
Grettir í Grettisbæli grípur nú Tátu í nótt,
hirðir ei hún þótt væli, hleypur með vífið mjótt,
leikur við bryggju banda, búinn í hildar skrúð,
missa þá ætlar anda Ámadóttirin prúð. Grett-
isbæli er í Axargnúpi skamt frá Skógum og
eru böra hrædd á því.
Visan sýnir, að K. var barngóður og fljótur
að yrkja, því ekki gat spölurinn hafa verið lang-
ur sem hann reiddi bamið. Táta litla var kona
sú, sem sem hér er nýlega látin i Winnipeg, Mrs.
Christie að nefni. I skammdeginu sama ár var
það að K. var búin að afljúka úti verkum kom
þá inn og klæddi sig úr snjóplöggum og hallaðt
sér afturábak í rúmið sitt og fór að yrkja
upphátt, lét hann svo langa kvöldvöku að hann
mælti fram eina og eina vísu með litlu milli-
bili, þangað til stúlkan sem átti að mjólka
kýrnar spurði hvað klukkan væri, þá svarar
K. henni. Klukkan átta áðan sló, ofan máttu
venda, silkignáttin mittismjó minn skal þáttur
enda. Þannig var hann af náttúmnni til allur
við hagyrða smíði. Mér finnst af svo mörgu
sem eg sá og heyrði um hann, að hann hafi
ekki verið vinsæll nema af þeim mönnum sem
skildu hann bezt. Allir vissu að hann var góð-
menni en þó hræddust menn hann einsog þeir
byggjust við að han nhefði eitthvað út á þá
setja. Hann var og þekktur að þvi að stilla
viðburðina i hendingar með hæfilegum ykjum
einsog skálda er siður. ömögulegt var að
verjast þesskonar óhöppum í hans nálægð
nema fela sig og forðast hann einsog hagl
skúrinn. Hann kom einusinni óvart þar sem
vinnukonan á heimilinu var bál-reið og jós
úr sér skömmum yfir þá sem í kring stóðu,
auðvitað þagnaði stúlkutetrið strax þegar hún
varð hans vör en hún var líka komin útundir
haglið, sem dundi hlífðarlaust á henni. Tíðura
fargar friðarstund flagðið arga verst á grund,
hefir varga leiða fund, lyndis karga bauga-
hrund. Kristján var kominn að Gamlahóli á
fjöllum, en þar átti hann annan Ama að hús-
bónda, sem skildi hann kanske ver. Árni þessi
átti von á vinnukonu innan úr Eyjafirði, en
nú hafði hann fengið bréf, sem bar þá frétt
að vinnukonan myndi ekki koma, og Kristján
heyrði Arna bera sig illa yfir þessum vonbrigð-
um; en þá segir hann:
Löngu hverfult lukkuhjól
lætur mörgum sárna;
myrkvast hefir sunnansól
í sálardjúpi Ama.
Seinna varð K. var við að eitthvað var að
rakna fram úr með þessa vinnu-
knu. Þá segir hann-
Gleðjast tekur geðs um ból,
gætir hvassra járna
roðar fyrir sunnansól
í sálardjúpi Árna.
Vinnumaður á næsta bæ, Páll að
nafni, barst mikið á í orði og látæði,
en þótti ekki að þvi skapi vitur, og
Mun K. hafa fundist of mjög til um
mannalæti hans, og bjó hann til um
.hann þessar vísur, sem mig minnir
að séu í ljóðabók hans:
Sikling hæða sæmdi Pál,
svo er fyrir að þakka,
sauð ’ann á hann sjöfalt stál
í sundur alt að pjakka.
Guð hann engri sæmdi sál,
sem sína aðra krakka;
hann tilbjó aðeins tóman Pál
til að láta hann pjakka.
Kristján var staddur á heimili,
þar sem fátæklingur gekk um með
tóma kollu á bakinu, og var á leið
þangað sem hann hafði fengið lof-
orð fyrir skyri í kolluna. Þá segir
hann eins og í orðastað fátæklings-
ins:
Til þín, háttvirti herra B.
hef eg lyft skyrbón minni,
alrikan þig að öllu sé,
' ásján treystandi þinni;
láttu mig ekki líða nauð,
lífs meðan þarf eg daglegt brauð,
svo fátækur fagna kunni.
Þegar eg nú hins vegar endur-
minnist visnanna í bókinni, sem sé
þessara: Nefið sundur bekri braut,
eða þessi: Sorgir stríða Sigurð á;
• DODD s 'm
KIDNEYJ
I PILLS m
1 fullan aldaríjórðung hafa
Dodds nýrna pillur verið hin
viðurkenndu meðul við bak-
verk, gigt og blöðru sjúkdóm-
um, og hinna mörgu kvilla, er
stafa frá veikluðum nýrum. —
Þær eru til sölu í öllum lyfja-
búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur
fyrir $2.50. Panta má þær beint
frá Dodds Medicine Company,
Ltd., Toronto,.Ont., og senda
andvirðið þangað.
andi, eins og hann hefir sjálfur fund-
ið til og kemur fram í vísunni: Langa
búkinn lasta þær..
Nú vil lsvo vel til, að eg á aðra
mynd af Kristjáni, og gleðst af því,
að geta sýnt nokkrum Islendingum
hana áður en eg fell úr sögunni. Eg
var 22 ára gamall þegar eg fór af
Hólsfjöllum, og allan þann tima, frá
því fyrsta að eg fór að taka eftir
þvi, sem gerðist i kringum mig, þá
var jafnaðarlega eitthvað með Kristj-
án að gera, og þá kom það æfinlega
einnig þessi: Með hnefum slærðu í
haus á þér; og þessi: Tómas minn
er trúarlaus, finst mér að alt þetta
bendi á, að Kristján hafi ekki getað
verið vinsæll með alþýðu manna i
nágrenni sínu, og það bendir og líka
til þess, að maðurinn var að dag-
fari fremur stirður. Kristján var
hins vegar þrekinn og karlmannlega
vaxinn, en fremur luralegur í öllum
hreyfingum, og var því ekkert aðlað-
þannig út, að hann var sérstök uppá-
haldseeign hvers heimilis á Fjöllum,
hvers einstaks manns, og vísur hans
Cvty Milk er sú
kjarnfæða, er sér-
staklega er gagnleg
um þetta leyti árs.
Þá er kvefhætta
mest manna á með-
al. a
Heilsunnar vegna og
til heilsustyrkingar,
drekkið hina hreinu
CITY MILK.
PHONE 87 647
Þægileg leíð
til Islands
Takið yður far heim með eimskip-
um Canadian Pacific félagsins.
þá verðið þér samferða mörg-
um Islendingum. Þér mun-
uð njóta ánægjulegrar
ferðar, góðrar þjónust.
Agætra máltíða, og
allra þæginda er hið
volduga flutninga
félag hefir til
að bjóða.
Skrifið eftir upplýsingum um far-
bréfaverð til Evrópu er innifelur
allan kostnað.
Gerið fyrirspurnir til umboðs-
manna á staðnum eða til W. C.
CASEY, Gen. Pass. Agent, C.P.R.
Bldg., Winnipeg, Phones 25 815,.
25 816.
CANADIAN PACIFIC
STEAMSHIPS