Heimskringla - 01.04.1931, Síða 5

Heimskringla - 01.04.1931, Síða 5
WINNIPEG 1. APRIL 1931. HEIMSKRING^ 5. BLAÐSIÐA Jón Björnsson látinn. Jón Björnsson, fyrrum bóndi á Grund í Hnausabygð í Nýja Islandi, andaðist að heimili tengdasonar síns, Gísla Einarssonar í Riverton, þann 6. marz s.I., 93 ára og rúma tveggja mánaða betur. Fæddur var hann á Borg í Skriðdal í Suður-Múlasýslu, 34. desember 1837. Foreldrar hans bétu Björn Asmundsson og Margrét Eyjólfsdóttir. Jón heitinn ólst upp ú þeim stöðvum til fullorðinsára. Ar- ið 1868 kvæntist hann Margréti Guð- mundsdóttur frá Rauðholti í Hjalta- staðarþinghá. Þau bjuggu um hríð á Islandi, en fluttust til Vesturheims árið 1876; dvöldu hinn fyrsta vetur á Sandy Bar, en tóku svo land í norð- anverðri Hnausabygð, nefndu Grund og bjuggu þar farsællega til ársins 1914, að Margrét kona Jóns dó. Þau eignuðust 8 börn; tvær stúlk ur dóu úr bólunni á hinu fyrsta dval J arári þeirra. Dreng höfðu þau mist á Islandi. Snjólaug dóttir þeirra, kona Jóns Jónssonar frá , Jónsstöð- um í Hnausabygð, dó 1910. A lífi eru: Guðmundur Magnús Kristinn, kvætur Sigríði dóttur Mr. og Mrs. Páls Halldórssonar, fyrrum bónda á Geysir, búsettur í Riverton; Oddný Jakobína, ógift; Guðrún, Mrs. Sam- son, búsett I Winnipeg; Sigurbjörg, kona Gísla Einarssonar i Riverton. Náfrændur Jóns heitins eru þeir Gunnar B. Björnsson í St. Paul, Minn., og Jón bóndi Sigurðsson á víðir, ásamt systkinum þeirra. Eftir að Jón misti konu sína dvaldi hann lengst af hjá Sigurbjörgu dótt- ur sinni og Gísla manni hennar; um hríð dvaldi hann og. hjá Jóni Sig- urðssyni frænda sínum. Jón heitinn var hraustmenni alla æfi, fjörugur og glaður í viðmóti, ern og snar' í hreyfingum, fram til hinztu stundar að kalla mátti. Fróð- ur og minnugur á margt. Söngrödd hafði hann frábærlega góða. Trú- maður var hann og unni sið feðra sinna. ( Þau Jón og Margrét bjuggu góðu búi á Grund. Var þar oft glatt á hjalla og gott að dvelja þar. Munu margir eiga hlýjar minningar um heimilið og heimilisfólkið. Jarðarför Jóns heitins fór fram 12. marz: var fyrst kveðjuathöfn frá heimili dóttur hans og tengda- sonar og svo frá Lútersku kirkjunni í Riverton, að viðstöddu mörgu fólki er heiðruðu minningu elzta mannsins I bygðarlaginu. S. ó. HITT OG ÞETTA, \ Þrælasala og hungursneyð i Kina. Opinberar skýrslur frá Kína herma að i héraðinu Shensi hafi 400 þús. Kínverjar verið seldir mansali á síð- ustu mánuðum, og tvær miljónir manna hafi dáið úr hungri þar á sama tíma. A síðustu tveimur árum hafa mörg þorp lagst í eyði. Harðger innbrtsþjófur. Nýlega tókst þýzku lögreglunni að handsama alræmdan ránsmann og þjóf. Þegar lögreglan kom að honum i húsi einu, er hann hafði brotist inn í, tókst honum að skýla sér bak við húsgögn. Lögreglan hóf skothríð á hann, en þjófurinn gaf sig ekki fyr en um 30 skotum hafði verið skotið í fætur hans og hand- leggi. Ekki heyrðist þó frá honum æðruorð. . (Visir) Brezk sýning i Kaupmannahöfn Nú sem stendur er haldin brezk sýning í Kaupmannahöfn. Er þar sýnt meðal annars enskt kaffihús frá árinu 1667. Var Shakespeare þar Hafið gát á Postinum Á MORGUN (eða nú þessa nœstu daga) HANN FLYTUR YÐUR GÓÐAR FRÉTTIR Það er ALVEG OVÆNT TÆKIFÆRI —-þér getið unnið The Arctic Ice & Fuel Co. Ltd. NÝR UNDIRSTÖÐU KLÆÐNAÐUR LAGAR VÖXTIN EFTIR HINUM GRÖNNU TfZKU LfNUM Engin kona þarf héðan af líða fyrir luralegt vaxtarlag. Þessir nýju undirstöðu klæðnaðir, umskapa vaxtarlagið og breyta því til fegurðar og fulls jafnvægis, svo haglega gerðir að þeir draga úr óvexti hvarvetna °S laga hann svo að vaxtarlagið semur sig eftir fullum fegurðarlöguni alstaðar. UPPÁHALDS VORBÚNINGUR—FYRIR YNGRI SEM ELDRI VÖXT. FYRIR EFTIRMIÐ- DAGS SEM KVÖLD KLÆÐNAÐ. Lily of France bolir samfellur og lindar kræktir _ á hlið, Laga vöxtin án þess þó hamla hreyfingum eða valda óþægindum. Verð $7.95 upp í $16.00 Gossard Models—Fullkomið úrval af hinum fegur- stu klæðum, svo sem Bolum, Mittisböndum, Lind- um, o. fl. V erð $4.95 upp í $18.50. Nemo Foundations—Svo haganlega gerðir að þau styrkja vöxtin og laga hann jafnframt. Mittisbolir, Lindar, kræktir á hlið, Bolir hneptir upp o. fl. Verð $2.95 upp í $12.50. New Rengo Belti—Rómuð fyrir hvað þau eru mjúk, sterk og mikil vaxtar prýði. Lindar kræktir .. hlið, Bolir og Mittisbolir og Knipplinga bolir. Verð $2.95 upp í $7.95. The Brassiere—Sýndir á myndunum, eru úr finu satin og möskva kniplingum með teyjuböndum. Verð $2.25. —t Boldeildinni, á fjórða góifi, Hargrave St. ^T. EATON C° daglegur gestur, og á einn vegginn er krítuð ein fyndnissetning hans. • • • Dráttvélar sem notaðar eru við jarðyrkju á landi, eru um 60, eftir því sem Sigurður búnaðarmálastjóri segir, og er búist við um 20—30 á vori komanda. —Mbl. 1. mars. FRÁ rSLANDI. Inflúensan. Vikuna sem leið, vitj- uðu læknar bæjarins 1200 inflúensu- sjúklinga. Bæjarlæknir telur að fjöl- margir muni eigi hafa leitað lækn- is og má vera að helmingi fleiri hafi sýkst en þetta. Yfirleitt breið ist inflúensan út ennþú, og legst heldur þyngra á menn en í fyrstu.' —Mbl. 1. mars. i Englandi, Þýskalandi og jafn vel til Aemríku. Þá nýung tekur út- gerð þessi upp, að hirða alt af fiskinum og er búið til fóðurmjöl úr slóginu og hryggjum um borð, svo að ekkert fer forgörðum. —Mbl. feb. 28. * * * Yfirlæknisstaðan á Nýja Kleppi. Jón Þorláksson flytur svohljóð- andi tillögu til þingsályktunar í sameinuðu Alþingi: “Alþingi ályktar að skora á ríkis- stjórnina: Að gera tafarlaust ráðstafanir til, að dr. med. Helgi Tómasson verði aftur settur inn í yfirlæknisstöðuna við geðveikrahælið á Kleppi.” ISLENZKAN MIN. Þú hrífur mig alla, þú hlýborna mál, Þú hefir ei galla, en lifapdi sál. I hljómfegurð þinni býr háfjalla ró. Hafrót þitt gellur við stórbrota sjó. En hreimurinn læsir sig hjartanu að. og helgar mér alt, sem líf mitt til- bað. Sem vorblær þú andar við angandi rós. 1 andlegri hrifning þú tendrar hvert Ijós. Kjaminn í orðunum kastar til báls, kveifara bölsýni stígur á háls. En snertir þó strepgi, sem stilla hvert tár. Þinn styrkur mun hljóma i mörg þúsund ár. Um 40 manns, sem kom héðan að sunnan á dögunum til Akureyrar, er haldið i sóttkví vegna inflúens- unnar. Hefir bærinn fengið Hótel Akureyri handa fólki þessu. Vörð- ur er um hótelið dag og nótt, svo ekkert beri út af um einangrunina. I fyrradag var hópnum hleypt út og leyft að ganga sér til hressing- ar út Bekkugötu. En hafðar voru sterkar gætur á, að enginn bæjar- maður kæmist í snertingu við hið einangraða fólk. —Mbl. 1. mars. . • t Mjólkurbú ölfusinga hefir haldið aðalfund sinn. I félagsbúi þessu eru 24 búendur í ölfúsi 20,3 aura hefir búið getað gefið þátttakendum fyrir mjólkurpottinn, að meðaltali. Um % miljón lítra hefir búið tekið þá 9 mánuði, sem það starfaði árið sem leið. —Mbl. 1. mars. • • • Höfnin var öll lögð í gærmorgun og var ísinn 7—8 þuml. þykkur. Hafnarbáturinn Magni var látinn brjóta rásir fram úr höfninni, svo að bátar gæti komist inn að bryggj- um. • —Mbl. 1. mars. • • • Mannfjöldi í Reykjavík við síð- asta manntal, 2. des. síðastl. Innan lögsagnarumdæmisins (Skildinganes ekki með talið) reyndist mannfjöld- inn við lauslega samtalning, er fram- kvæmd hefir verið af Hagstofunni, 28,182. Hagstofan getur þess, að þessi tala muni reynast of lág vegna þess, að 1776 manns hafi sagst vera hér staddir, en sumir þeirra hafi átt eftir að útvega sér hér hús- næði. —Mbl. 1. mars. ... Fylgir tillögunni ítarleg greinar- gerð. —Mbl. feb. 27. » * * Frú Ingibjörg Þorvaldsdóttir and- aðist í .gærkvöldi að heimili tengda- sonar síns, Þorsteins Gíslasonar rit- stjóra, rúmlega níræð, fædd 18. des- ember 1840. Hún var ekkja Páls Hall dórssonar trésmiðs og málara, og eru börn þeirra Þórunn, kona Þdr- steins Gíslasonar og Þorvaldur lækn- ir. * Vísir 23. febr. * * * Bjarni Björnsson leikari og frú hans, voru meðal farþega, sem hing að komu með Esju frá útlöndum síðast. Þau fóru héðan um nýárs- leytið til Berlinar. Þar söng Bjarni nokkur lög á Polyfon grammófón- plötur, en þær munu koma hér á markaðinn með vorinu. Vísir 24. febr. * * * Hagleysi nftin nú vera víða um land, eftir því sem fregnir herma. Undanfarna daga hefir verið snjó- koma norðan lands og mun vera haglaust í mörgum sveitum. Er víða búið að eyða miklum heyjum og eru sumir farnir að óttast heyleysi, ef ekki skiftir um tíð bráðlega. Hér sunnan lands er í mörgum sveitum haglaust með öllu, og er þó óvíða mjög fanndjúpt, en jörð ákaflega svellrunnin. Sjaldan verður haglaust í Þingvallahrauni, en þar mun nú ekki hafa verið nokkur snöp síðan skömmu eftir nýár. Hefir hraunið ekki verið svo svellrunnið sem nú siðan 1920. Vísir 24. febr. Hljómþýð er ástin og sannheilög sér. Samt á hún sterkasta ítak hjá þér. Hún túlkar þar alt, sem er hjartanu hreint. Þar heldur hún stefnu að takmarkl beint. Já, alt sem er lífmagn i landsisns sál, í list hverri talar þitt hreimfagra mál. . Eg virði og elska þig, íslenzkan mín. Eg eigna mér hugrós, sem bára er þín; því tungumál annað ei túlkað það ' fékk. Þú tiguleg situr á hæsta bekk. Þar bærði eg vör fyrst við brjóstin þín, sem bergmála æskuljóðin mín. Yndó. STYZTA LEIKRITIÐ, H.: kemur þú með fullan" mann inn til min? V.: Nei, þetta kalla eg óþolandí ýkjur. H.: Þá veit eg ekki hveraig full- ur maður ætti að líta út. V.: Jú, þegar maðurinn er dott- inn á jörðina og rígheldur sér í grasið til beggja hliða, til þess að detta ekki, þá er hann fullur. Báðir sjmgja: Þú slagar og álpast, sem i þér búi sullur, og þó ertu hreint ekki að réttu lagi fullur. Haldirðu í grasið dottinn, til þess ekki að detta, þá dæmist þú fullur ,svo rétt er nú þetta. (Tjaldið fellur) i Fr. G. • Austri nefnist nýtt vikublað, sem farið er að koma út á Seyðisfirði. Abyrgðarmaður blaðsins heitir Arni Kristjánsson. Blaðið heldur fram stefnu Framsóknarflokksins. ■—Dagur. 19. feb. • • • Snjóbílar. 1 vetur ganga 2 snjóbílar yfir Hellisheiði til fólks- og mjólkurflutn- inga. 3. snjóbíllinn flytur fólk og póst yfir Holtavörðuheiði og sá 4. gengur um Fagradal milli Reyðar- fjarðar og Héraðs. Reynast þeir all- ir prýðilega. Eru þetta ein hin þörfustu samgöngutæki, sem komið hafa til landsins. —Dagur, 27. feb. • • • Hætta Frakkar fiskiveiðum hér ? 1 færeyska blaðinu 'Tingakross- ur’, er svolátandi frétt 4. febrúar: Stórútgerð Frakka hefir borið sig illa seinustu árin, og nú hafa út- gerðarmenn togara þar I landi sam- þykt, að senda ekki skip sín til veiða hjá tslandi, Grænlandi eða Newfoundlandi á þessu ári. Mörg útgerðarfélög hafa tapað stórfé: 150.000—400.000 frönkum á skipi. Crtgerðarmenn seglskipa hafa gert samskonar samþykt sín á milli. —Mbl. feb. 28. Skotar fara á Grænlandsmið. — 1 Aberdeen hefir verið stofnað út gerðarfélag, sem ætlar að stunda veiðar hjá Grænlandi. Hefir það keypt stórt "móðurskip” og 50 hreyfilbáta, sem eiga að fiska i það. Fiskurinn verður frystur í skipinu og siðan á að selja hann NEALS STORES “WHEREECONOMY RULES” A FEW ATTRACTIVE SPECIALS FOR THURSDAY AND SATURDAY All Stores open until 10 p.m. BREAD—White or Brown, 16 oz. Loaf ................................ POTATOES— 10 lbs. 5c; 90 lb. Sack .................... EGGS— Fresh Firsts, doz........................... Fresh Extras in Carton ..................... BACON—Swift’s Delico Sliced, (4 lb. pkt., 2 for ........ Swift’s Premium Sliced, y2 lb. pkt. COFFEE— Finest Santos, per lb.................... SWANSDOWN CAKE FLOUR— Large Pkt................................. HOT CROSS BUNS—Doz. (Thursfjay only, while they last) ....... CHEESE— Finest Ontario, Semi-sharp, Sept. 1930, lb. Finest Ontario, Mello and Sharp, June, 1929, lb. (Always visit our store for Cheese) tHONEY— Manitoba, 2(4 lb. tin gross ............. PEAS—Ontario 4 Sieve, No. 2 tall tin, 3 for ................... CORN—Ontario Golden Yellow No. 2 tall tin, 2 for.................... TOMATOES—Ontario, Large No. 2% tin, 2 for ................. FLOUR—Snowdrop, 7 lb. sack ............................. 24 lb. sack ..........v.................. “AND MANY OTHERS” 733 WelHngton <við Beverley) 717 Sargent Ave. 759 Notre Dame Ave. 666 Sargent (horni Agnes)

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.