Heimskringla - 29.07.1931, Blaðsíða 4

Heimskringla - 29.07.1931, Blaðsíða 4
4. BLAÐSÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 29. JÚLÍ 1931 FJÆR OG NÆR Séra Ragnar E. Kvaran flyt ur guðsþjónustu í Árnesi á sunnudaginn kemur, 2. ágúst, kl. 2 e. h. * * • Séra Guðm. Árnason mess- ar næsta sunnudag (2. ágúst) að Lundar, kl. 2 e. h. • • • Kristjana Guðrún Egilsson, kona Guðlaugs Egilssonar, 393 Beverley St., Winnipeg. dó s.l. laugardag, 25. þ. m. Hún var 71 árs að aldri. Jarðarförin fór fram frá útfararstofu Bardals þriðjudaginn 28. júlí. Dr. R. Pétursson jarðsöng. Hún var fædd á Vífilsstöðum við Reykja vík 6. maí 1860. Hennar verður nánar getið innan skamms. * * • S. 1. miðvikudag urðu þau Mr. og Mrs. H. I. S. Borgford í Calgary fyrir þeirri sorg að missa son sinn, Þorstein Ingi- berg Borgford. Hann var að- eins 7 mánaða að aldri, og dó í Rochester, þar sem hann var til lækninga. Jarðarförin fór fra mfrá útfararstofu A. S. Bardals í Winnipeg s.l. laugar- dag. Séra Philip Pétursson jarðsöng. — Heimskringla vott ar hluttekningu sína. • • • Karlakór undir stjórn Páls Bardals skemtir með söng á íslendingadaginn í River Park. • • • Lárus Guðmundsson kom í fyrradag vestan úr Argylebygð þar sem hann hefir verið nokkura daga að heimsækja vini og kunningja. Orchestra frá Gimli, íslenzk spilar fyrir dansinum 1. ágúst í G. T. húsinu. Hafa þessir spil arar getið sér góðan orðstír á ýmsum hinum svokölluðu “Old Timers” dönsum, og öðrum gleðimótum, yngri sem eldri, í Nýja íslandi. • • • Kaupendur Heimskringlu eru vinsamlega beðnir að afsaka, að Heimskringla er minni þessa viku en vanalega. Eru ástæður fyrir því, sem ekki varð kom- ist hjá. Verður það ef unt er bætt upp síðar. • • • Mrs. Axdal frá Wynyard, Sask., kom í gær til bæjarins sunnan frá Dakota, þar sem hún var að heimsækja skyld- fólk og vini. • • • Heiðraði ritstjóri. — Má eg kvabba við Heimskringlu um að gera lýðum ljóst, að eg hefi nú fengið annað hefti af yfir- standandi árgangi tímaritsins Eimreiðin. og sendi eg það áu tafar til kaupenda. Þetta hefti er skörulega ágætt frá byrjun til enda og prýtt með 16 mynd- um. Magnús Peterson, 313 Horace St., Norwood, Man. • « • John J. Arkie, R. O., Speci- alist on Sight Testing and Fit- ting of Glasses, will be at Er- iksdale Hotel Thursday, August 6th, and Lundar Hotel, Friday, August 7th. RAUSN. Guðsþjónusta verður haldin, ef guð lofar, sunnudaginn 2. j ágúst, kl. 7 að kvldi, í kirkjunni j að 603 Alverstone St. Allir vel- ' komnir. , DÁNARFREGN 16. júlí dó í Spanish Fork, Utah, Árni Árnason, 76 ára að aldri. Hann var frá Lundum í Vestmannaeyjum, sonur Árna Jónssonar frá Múlakoti í Fljóts hlíð. Þessi Jón afi Árna. var sá, sem átti við huldukonuna forðum og getið er um í þjóð- sögusafni dr. Jóns Þorkels- sonar. í október 1876 giftist Árni. Sólveigu Sveinsdóttir. beykirs í Vestmannaeyjum. Sveinn var sonur séra Þórðar prests að Höfðabrekku (d. 1840). Brynjólfssonar bónda á Skipagerði, Guðmundssonar. Þau Árni og Sólveig fluttu vestur til Utah, árið 1880. Eins og fleiri íslendingar sem hing- að komu á því skeiði, var Árni bláfátækur að veraldlegum auð en kjark og þolgæði hafði hann í ríkum mæli. Hann fór strax að vinna á járnbraut. Með þeim peningum er hann þann- ig þénaði keypti hann bújörð og land nokkuð. Stundaði hann landbúnað og var bú- höldur góður alt að því er hann Iagðist banaleguna. Sólveig kona Árna dó fyrir nokkrum árum síðan. Var hún rausnar og heiðurs kona bæði á búi sínu og í mannfélaginu. Hún var söng kona góð, sí- rasifiaiaiMiSJiSiæifiæifiWffiifiHiSiifiaiaifiifiiRifiæifiHiaiifiaiífiffiaiaiifiBiiíiifii ÍSLENDINGADAGURINN “ Laugardaginn 1. ágúst 1931 RIVER PARK Forseti Séra Rú.nólf\ir Marteinsson RÆDURNAR BYRJA KL. 3 E. H. 1. O, CANADA. Ó, GUÐ VORS LANDS Ávarp forseta: Séra Rún. Marteinsson Fjallkonunni fagnað. Fósturlandsins Freyja — Karlakór 2. Ávarp Fjallkonunnar: Frú Sigríður Björnson. 3. Minni íslands— Framsögn: frú Anna S. Árnason. Ræða: dr. Jón S. Árnason. Kvæði: séra Jóhann P. Sólmundsson Söngur: Karlakór. 4. Ávörp frá tignum gestum. 5. Minni Canada— Ræða: Dr. Joseph T. Thorson Kvæði: Þ. Þ. Þorsteinsson Söngur: Karlakór. 6. Minni Vestur-íslendinga— Ræða: séra Friðrik A. Friðriksson Kvæði: Dr. Sig. Júl. Jóhannesson Söngur: Karlakór. ELDGAMLA ISAFOLD GOD SAVE THE KING ÍÞRÓTTIR Fyrsti þáttur íþróttanna byrjar kl. 10.30 f. h., með kapphlaupum fyrir börn og unglinga. Verðlaun gefin. Kl. 12. á hádegi byrjar seinni hluti í- þróttanna í 14 liðum og verður þar fylgt reglum Amateur Athletic Union of Can- ada. fslenzk glíma strax að afstöðnum ræðu höldum. Kept verður um gull- silfur- og bronze- medalíur, silfurbikar og belti. fþróttir allar fara fram undir stjórn þei rra Mr. G. S. Thorvaldsons og Mr. Björns Péturssonar. Kl. 8.30 að kvöldinu byrjar dans í G. T. húsinu á horni Sargent og McGee stræta; Orchestra frá Gimli spilar fyrir dansinum. Gömul og ný danslög. Aðgangur að dans- inum 25 cents. Verðlaunavalz aðeins fyrir fslendinga, fer fram kl. 10 e. h. Tvenn verðlaun gefin fyrir bezt dansaðan Round Waltz. Gnægðir af heitu vatni verða á staðn- um fyrir fólk til kaffigerðar. Inngangur í garðinn, hvenær sem menn koma að deginum, er 25 cents fyrir full- orðna, en 15 cents fyrir börn yngri en 12 ára. glöð í lund, og skörungar í vinnu. Bróðir Sólveigu er Jón (Sveinsson) Þórðarson í Cleve land, Utah. Þau Árni og Sólveiga eign- uðust ellefu börn. Sjö af þeim eru á lífi og eiga myndarleg heimili í Spanish Fork. Þau eru: Sveinsína Aðalbjörg, Ant- on Páll, Gilbert Arthur. Óskar Mattías, Hinrik Júlíus, Lola Hanna og Alvin Alexander. Við jarðarför Árna töluðu þessir: Loftur (Gíslason) Bjarnason, Jósep Nelson og William Beckstrom. Allir báru þeir hinum framliðna hin bezta vitnisburð, eins og vel átti við, því Árn heiitinn var góður drengur. Verið Vissir um að fjölskyldan fái sinn skamt daglega af CITY MILK —hrein og gerilsneydd. Tuition, High School Math’s & Sclences A. L. ODDLEIFSON B.Sc., SÆ.I.C. Ste. ^ Acadia Apts., Victor St. Phone 317S9 Beauty Parlor Mrs. S. C. THOKSTEINSSON' á rakarastofunni Mundy’s Bar- ber Shop, Cor. Portage Ave. oar Sherbrooke St. Semja má um tíma með því að síma rakara- stofunni eða heim til Mrs. Thor steinson að 886 Sherburn St. Simi 38 005 CARL THORLAKSON úrsmiður 627 Sargent Ave., Winnipeg Sími: 27 117. Heima 24 141 J. A. JOHANNSON Garage and Repair Service Banning and Sargern Sfmi 33573 Heima sími 87136 Expert Repair and Complete Oarage Service Gas. Oiis, Extras, Tires, Batteries, Etc. UNCLAIMED CLOTHES SHOP Knrlmennn r«* ng yrtrhafnlr. nnl«u« rftlr mftll. XI«,irbor«:anlr haf falllfl Ar «11,11. osr ftttln aejaxt fr# SO.ts tll *a4.ó« npphnflega aelt A *2.1.00 „k npp I SWI.OO 471 i Portage Ave.—Sími 34 585 MOORE’S TAXI LTD. Cor. Donald and Grakam. r*0 Centa Taxl Frá einum sta9 til annars hvar sem er 1 bsenum; 5 manns fyrlr sama og einn. Állir farþegar á- byrgstir, allir bilar hÍtaVlr. Sfmi 23 H06 (8 lfnnr) Kistur, tðskur o ghúsgagna- flutningur. Eins og auglýst var í síðasta blaði, sýndi Árni Helgason raf- fræðingur frá Chicago hreyfi-1 myndir heiman af íslandi. frá j Þúsund ára hátíðinni, í G. T. j húsinu s.l. fstudag. Tókst sýn- ingin ágætlega og áhorfendur höfðu hina mestu unun af að sjá myndimar. Aðgangur var ókeypis og á Mr. Helgason þakkir skilið fyr- ir slíka rausn. Með því að sýna myndir þessar eins víða og Mr. Helgason gerir, er hann að vinna þarft þjóðræknisverk. Mr. Ásm. P. Jóhannsson gerði Mr. Helgason kunnugan samkomugestum með snoturri ræðu. Mintist hann þess hve vel hann hefði brotist hér á- fram, þar sem hann væri orð- inn taisvert viðurkendur raf- fræðingur á ekki lengri tíma en hann er búinn að vera hér EXCHANGE Your Old FURNITURE NOW IS THE TIME TO TRADE IN YOUR OUT-OF- DATE FURNITURE ON NEW. PHONE OUR AP- PRAISER. "The Reuable Home Fornishers' 492 Maln St. Phone 86 667 vestan hafs, en hingað kom Mr. Helgason árið 1912. Mrs. Helga son var og í förinni hingað norður. Hún: Hér sé eg í blaðinu að þeir í Ástralíu hafa stundum I skifti á konunni sinni og hesti. 1 Aldrei mundi þér koma það til hugar. Hann: Auðvitað ekki — en eg vildi ekki að mín væri freist að með fallegum bíl. Sigurdsson, Thorvaldson GO. LTD, CENERAL MERCHANTS ÚTSÖLUMENN FYRIR IMPERIAL OIL LIMITED ROYALITE COAL OIL, PREMIER CASOLINE TRACTOR AND LUBRICATING OILS ARBORG RIVERTON HNAUSA l*hone 1 Phone 1 Phoie 51. Rin« 14 MANITOBA, CANADA. ISLENDINGADAGURINN HNAUSA, MAN.. 3. ÁGÚST 1931 Byrjar kl. 10 árdegis Aðgangur 35c fyrir fullorðna og 15c börn innan 12 ára Ræðuhöld byrja kl. 2 eftir hádegi Minni fslands ........ Dr. Rögnvaldur Pétursson Kvæði: Jónas frá Kaldbak Minni Canada ........... Sére Ragnar E. Kvaran Kvæði: Þ. Þ. Þorsteinsson Minni Nýja-fslands ........ Dr. Ólafur Bjömsson Kvæði: Dr. S. E. Björnsson ÍÞRÓTTIR: Hlaup fyrir unga og gamla, Langstökk, Hástökk, Stangarstökk, Hopp-Stig-Stökk, Eggja-Hlaup fyrir stúlkur, Hjól- böru-Hlaup, 3 Fóta Hlaup og Kvart Mílu Hlaup, Islenzk Fegurð- arglíma, Kapp-Sund. $200 GEFNIR 1 VERÐEAUNUM Dans í Hnausa Community Hall Verðlauna-Vals kukkan 9 Barnasöngflokkur frá Gimli undir leiðsögn Brynjólfs Thorlákssonar og Lúðraflokkur frá Riverton Skemtiferðalestin til Hnausa fer að morgninum kl. 9.05 frá C. P. R. járnbrautarstöðvunum i Winnipeg og kemur til baka að kveldinu. Niðursett far sem fylgir: Frá Winnipeg til Hnausa og til baka $1.90, frá Selkirk $1.90, frá Winnipeg Beach $1.20 frá Gimli 65, frá Arnes 50c ALLIR VELKOMNIR ! SV. XHORVALDSON, Forsetl G. O. EINARSON, Ritari S. S. WOLVERINE will make round trips to Norway House, leaving Sel- kirk every Monday at 3 p. m.. — Also special Week- End trips to Berens River and Big George’s Island, leaving Selkirk every Friday 7.30 p.m. FARES ROUND TRIP TO NORWAY HOUSE $24*00 BERENS RIVER and BIC GEORGE’S ISLAND $16.00 Prices for other points on the lake and all other in- formation available at NORTHERN FISH GO., LTD. SELKIRK, MANITOBA and VIKING PRESS LTD. 853 SARGENT AVE., WINNIPEG

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.