Heimskringla - 05.08.1931, Blaðsíða 8
4. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEXr 5. AGÚST 1931
FJÆR OG NÆR
Dr. Sveinn E. Björnsson frá
Árborg kom til bæjarins í gær-
kvöldi. Hann kom með mann,
er slasast hafði, af því að hest-
ur fældist með hann. Maðuriiin
var útlendingur.
• • •
Sigfús Halldórs frá Höfnum
lagði af stað til íslands í gær-
kvöldi. Með honum fór Björn
Ingvason, stjúpsonur sr. Benja-
míns Kristjánssonar, er setjast
mun að heima.
• • •
Búnaðardeildin í Árborg bið-
ur að láta þess getið, að hún
hafi sýningu á feitum lömbum
í Árborg mánudaginn 10. ágúst
næstkomandi.
• • •
Mrs. Anna Peterson, ekkja
O. S. Peterson í Westerheim,
Minn., dó 29. júl1 s.l. Hún var
fædd á Þingvöllum á íslandi.
Foreldrar hennar voru þau Jón
Guðmundsson og kona hans,
Guðrún, er þar áttu heima. —
Hin látna kom til -Ameríku árið
1895. Átti um langt skeið heima
í Winnipeg. Árið 1908 giftist
hún O. S. Peterson, og flutti
þá til Minnesota. þar sem hún
hefir búið síðan. Hún var mynd
arkona mesta, og er sárt sakn-
að af fólki því, er hún lifði og
starfaði með.
• • •
Látin er að Unalandi við
Riverton, þann 29. júlí, Mrs
Guðfinna Eyjólfsson, ekkja
Gunnsteins heitins Eyjólfsson-
ar skálds og tónfræðings, er
lézt 1910. Hún var af merkum
ættum af Austurlandi, vel gef-
in kona og stilt, og hin ágæt-
asta móðir. Þjáðst hafði hún
um nokkra hríð af innvortis
sjúkdómi, er leiddi hana til
bana. Öll börn hennar, 9 að
tölu, eru á lífi. Jarðarförin fór
fram þann 31. júlí frá heimil-
inu og lútersku kirkjunni í
Riverton, að viðstöddum mann-
fjölda. Sóknarpresturinn jarð-
söng. — Þessarar merku konu
mun minst síðar.
S. Ó.
* * *
íslendingadagurinn að Hnaus
um, hepnaðist hið bezta. —
Þrátt fyrir slæma vegi, var þar
saman komið rúmlega tvö þús-
und manns. Dagskráin var hin
skemtilegasta. Eiga Ný-íslend-
ingar heiður skilið fyrir hve
myndarlega þeim ferst þetta
hátíðarhald úr hendi. Sveinn
kaupm. Thorvaldson var forseti
hátíðarinnar. — Ræðurnar og
kvæðin er þama voru flutt-
birtast á s^num tíma í Heims-
kringlu. í þessu blaði er þegar
sumt af kvæðunum birt.
* * *
fslendingadagsfrétt.
Vegna rigningarinnar á laug
ardaginn 1. ágúst, varð að
hætta við íslendingadags hátíð-
ina þann dag hér í Winnipeg.
Afréð nefndin að fresta degin-
um til laugardagsins 8. ágúst,
og fer þá fram það prógram er
áður var auglýst, að undan-
skildu því, að dr. Sig. Júl. Jó-
hannesson flytur minni íslands
í stað dr. J. S. Árnasonar frá
Seattle, og Minni Vestur-ís-
lendinga fellur úr, er séra Fr.
A. Friðf-iksson frá Blaine ætl-
aði að flytja. Var þeim vestan-
mönnum ókleift að bíða sök-
um ákveðinnar ferðaráætlanar
og anna heimafyrir.
Dr. Joseph T. Thorson flyt-
ur minni Canada á íslenzku.
Nefndin hefir reynt að undir
búa prógram dagsins eins vel
og kostur hefir verið á, og skal
það nú undir íslenzkum almenn
ingi komið, hvort dagurinn
hepnast eða ekki.
Fari svo að veður verði ó-
hagstætt, fer prógrammið fram
í hinum stóra dans- og sam-
komusal í River Park.
Dans að kvöldinu kl. 8 í G.
T. húsinu. Aðgangur 25 cents.
* * *
TIL LEIGU — Tvö björt og
hrein herbergi að 628 Alver-
stone St.
• • •
Dr. A. V. Johnson tannlækn-
ir, verður staddur 1 Riverton,
Man, þriðjudaginn 11. ágúst
n. k. Þeir sem aðstoðar hans
þyrftu eru míntir á, að hann
verður ekki í Riverton nema
þenna eina dag.
• • •
Guðsþjónustur verða haldnar
í kirkjunni að 306 Alverstone
St. sem hér segir: Fimtudaginn
kl. 8 e. h. bæn og biblíulestur.
Sunnudaginn 9. ágúst kl. 3 e.
h.- ensk messa. Ræðumaður öld
ungurinn erkibiskup Phair. Kl.
7 að kvöldinu, á íslenzku. í
næstu tvær vikur, á mánudög-
um, þriðjudögum og fimtudög-
um, hafa þau Mr. og Mrs. Phair
biblíukenslu kl. 8 að kvöldi.
Mr. og Mrs. Phair eru há-
mentuð hjón og vel að sér í
ritningunni.
Allir velkomnir.
P. Johnson.
FRÁ VESTMANNAEYJUM.
“ ÍSLENDINGADAGURINN
Laugardaginn 8. ágúst 1931
RIVER PARK
• f i
Forseti da^sins: Séra Rúnólfur Marteinsson
RÆDURNAR BYRJA KL. 3 E. H.
24. júní.
Mikið mannvirki.
Vestmannaeyjar hafa nú ráð
ist í það að gera voldugan sjó-
geymi úti hjá Skansinum. Á
hann að taka 400 smálestir af
sjó, og verða hafðar rafdælur
til þess að dæla sjóinn í hann.
Geta þær fylt hann á tveim
fcímum. Sjórinn er tekinn utan
hafnargarða og er því hreinn.
Síðan verða lagðar pípur frá
geyminum til allra fiskþvotta-
húsa í bænum, því að sjóinn á
aðallega að nota til fiskþvotta.
Er “Skansinn” svo hár, að
nógur kraftur verður á sjónum
þegar inn í bæinn kemur.
Sjóleiðsia þessi er þó ekki
eingöngu ætluð fiskihúsunum-
heldur einnig slökkviliðinu, ef
eldsvoða ber að höndum, og
eins fcil þrifnaðar innan bæjar
(til að þvo fiskkrærnar og pall-
ana).
Það er nú um vika s’ðan að
byrjað var á verkinu.
Olíugeymar.
Olíuverzlun íslands er nú að
láta gera uppfyllingu hjá Báta-
skersbryggjunni og ætlar síð-
an að reisa þar mikla olíu-
geyma. Verður olían leidd í píp
um niður bryggjuna í báta og
skip.
Vatnsból.
er bæjarstjórnin að láta gera
inni í Herjólfsdal. Er þar lind,
sem aldrei þrýtur, og kemur
hún fram úr gömlu holræsi,
hlöðnu úr steini. Verður ekkert
raskað við vatnsleiðslunni, held
ur gert stórt vatnsból fyrir
framan lindina, sem á að verða
til vara, ef önnur eins vatns-
vandræði ber að höndum og
verið hafa í sumar.
Fiskiskapur.
Tíu bátar róa nú úr Eyjum.
ýmist með “snurrevaad’’ eða á
lúðu. Selja þeir aflann í enska
togara, ^em komnir eru hingað
til kaupa.
Mbl.
EXCHANGE
Your Old
FURNITURE
NOW IS THE TIME TO
TRADE IN YOUR OUT-ÖF-
DATE FURNITURE ON
NEW. PHONE OUR AP-
« l'Á
O, CANADA.
Ó, GUÐ VORS LANDS
1
I
1. Ávarp forseta: Séra Rún. Marteinsson
Fjallkonunni fagnað.
Fósturlandsins Freyja — Karlakór
2. Ávarp Fjallkonunnar: Frú Sigríður
Björnson.
3. Minni fslands—
Ræða: Dr. S. J. Jóhannesson
Kvæði: séra Jóhann P. Sólmundsson
Söngur: Karlakór.
4. Ávörp frá tignum gestum.
5. Minni Canada—
Ræða: Dr. Joseph T. Thorson
Kvæði: Þ. Þ. Þorsteinsson
Söngur: Karlakór.
6. Minni Vestur-fslendinga—
Kvæði: Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
Söngur: Karlakór.
ELDGAMLA fSAFOLD
GOD SAVE THE KING
ÍÞRÓTTIR
Fyrsti þáttur íþróttanna byrjar kl.
10.30 f. h., með kapphlaupum fyrir börn
og unglinga. Verðlaun gefin.
Kl. 12. á hádegi byrjar seinni hluti í-
þróttanna í 14 liðum og verður þar fylgt
reglum Amateur Athletic Union of Can-
ada.
íslenzk glíma strax að afstöðnum ræðu
höldum.
Kept verður um gull- silfur- og bronze-
medalíur, silfurbikar og belti.
íþróttir allar fara fram undir stjórn
þeirra Mr. G. S. Thorvaldsons og Mr.
Björns Péturssonar.
Kl. 8.30 að kvöldinu byrjar dans í G. T.
húsinu á horni Sargent og McGee stræta;
Orchestra frá Gimli spilar fyrir dansinum.
Gömul og ný danslög. Aðgangur að dans-
inum 25 cents. Verðlaunavalz aðeins fyrir
íslendinga, fer fram kl. 10 e. h. Tvenn
verðlaun gefin fyrir bezt dansaðan Round
Waltz.
Gnægðir af heitu vatni verða á staðn-
um fyrir fólk til kaffigerðar.
Inngangur í garðinn, hvenær sem menn
koma að deginum, er 25 cents fyrir full-
orðna, en 15 cents fyrir börn yngri en
12 ára.
!fi
!fi
Tuition, High School
Math’s & Sciences
A. L. ODDLEIFSON
B.Sc., SJE.I.C.
Ste. 6 Acadia Apts., Victor St.
Phone 31769
Beauty Parlor
Mrs. S. C. THORSTEINSSON
á rakarastofunni Mundy’s Bar-
ber Shop, Cor. Portage Ave. 02:
Sherbrooke St. Semja má um
tíma með því að síma rakara-
stofunni eða heim til Mrs. Thor
steinson að 886 Sherburn St.
Sími 38 005
STÚDENTAFJÖLDINN
f ÞÝZKALANDI.
Það er orðið að vandræða-
máli í nálega öllum löndum.
hve margir læra, sérstaklega
hve margir leifca til háskólanna
og læra til embætta. Ef menn
létu sér nægja að taka stúæents
próf og sneru sér af að ein-
hverri venjulegri atvinnu, þá
mætti það jafnvel verða til fram
fara og góðs', enda algengt *
enskumælandi löndum. Hmír
eru aftur illa farnir, sem verja
mörgum árum til sérfræði
náms og fá síðan lítið eða ekk-
ert að gera. Þeir eru þá orðnir
of gamlir til þess að ryðja sér
braut í öðrum atvinnuvegum
og verða sér og ðrum að vand-
ræði.
Á suiúum þýzkum háskólum
er nú yfirfyllingin orðin svo
geysileg að engar kenslustofur
rúma nemenduma. Það verður
að skifta þeim niður í tvo sali
og útvarpa fyrirlestri prófess-
orsins- svo að heyrist í báðum,
og eftir þessu fer alt.
Ef sfcúdentarnir eru spurðir,
hví þeir flykkist allir til há-
skólanna, er einlægt sama svar-
ið: Við værum fúsir til þess að
stunda einhverja atvinnu í stað
þess að stunda nám, en alls-
staðar er yfirfult og við höf-
'um hvergi komist að. Það er
eins gott að sitja í kenslustof-
um háskólans og að standa iðju
laus á götunni. Það getur þó
skeð að vi ðfáum eitthvað að
gera að prófi loknu. Að það
sé ekki ætíð merkilegt má sjá
á því að þess eru nú dæmi í
Berlín að fulllærðir verkfræð-
ingar vinni fyrír 125 Rmk. á
mánuði.
Margsinnis hefir verið bent
á það alvarlega, að fátæki
mentalýðurinn sé stórhætta fyr
ir þjóðféiagið. Þegar slíkir menn
fara að svelta heilu hungri og
hafa ekkert að gera, fer þeim
eins og mörgum öðmm, að þeir
verða fúsir til að styðja allar
byltingar og grípa til ýmissa
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Servic*
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima Ȓmi 87136
Expert Repair and Complete
Garage Serrice
Gas. Otlg, Extras, Tires.
B»tteries, Etc.
PRAISER.
dlMSmfMíS
.— L I MIHO —
‘The Reuable Home Furnishers"
492 Main St. Phone 86 667
óyndisúrræða, en mega sín aft-
ur meira en flestir verkamenn.
Það má og heita að allar þjóð-
félagsbyltingar hafi stafað frá
mentamönnum og verið stjórn-
að af þeib. Þa ðhefir verið tal-
ið heizta ráðið að stemma að-
gang a embættadeildum há-
skólanna, en gengið illa að fá
því framgengt, því stjómmála-
menn óttast að sér verði lagt
það illa út.
Hvað mest eru vandræðin
með læknafjöldann. Það eru
engin tæki> spítalar o. s. frv.
til að kenna öllum, sem vilja
nema læknisfræði. Háskólinn í
Osló fór í fyrstu fram á það,
að aðgangur væri takmarkað-
ur að læknadeildinni, en þing-
að var því mótfallið. Háskólinn
greip þá til þess ráðs að taka
ekki fleiri stúdenta á ári en
kenslutækin leyfðu og yrðu hin
ir að bíða næsta árs og sitja
bá fyrir öðrum. Er nú svo kom-
ið að nýir stúdentar verða að
bíða í 4 ár áður en þeir fái að-
gang. Þetta hefir nú aftur leitt
til þess, að stjórnin hefir snúist
í á þ ásveif, að takmarka aðgang
inn að læknadeildinni, svo að
árlega fái þar 5 mesta lagi 60
stúdentar aðgöngu.
Þýzka heilbrigðisstjórain hef-
ir ekki getað fengið því fram-
gengt að takmarka aðgang að
læknadeildum, en birtir alvar-
lega áminningu til stúdenta, að
kynna sér vandlega atvinnuhorf
ur og kjör lækna áður en þeir
leggi út í þá tvísýnu að nema
læknisfræði. Læknaþörfinni tel
ur hún fullnægt með 1200 stú-
dentum á ári, sem mundi svara
til 2 stúdenta hér á íslandi.
Hér á landi eru læknahéruð
óvenjulega smávaxin og lækn-
ar oft o geinatt skammlífir. —
Það mun því láta nærrí að þörf
sé fyrir um 5 læknastúdenta á
ári. En á síðustu árum eru þeir
oft hálfu fleiri og er því auð-
séð hvert stefnir. Læknadeildin
er þess fýsandi að takmarka
aðganginn, en stjórnin hefir
verið því mótfallin. Eins og
geta má nærri em hinir mestu
erfiðleikar á því að kenna 60 til
70 stúdentum í læknadeild svo
í nokkru lagi sé.
Mbl.
UNCLAIMED CLOTHES SHOP
Knrlmennn fíit o*r yflrhnfnlr. nnlfiufi
• ftlr máll. NlHurhorKanlr hnf fnlllft ör
Nlldl. ok f«tln McjnMt frá tll *24.r»Ö
npphnflettn nelt á 925.00 o«r U|ip I $00.00
471^ Portage Ave.—Sími 34 585
MOORE'S TAXI LTD.
Cor. Donald and Graham.
50 Centa Taxl
Frá einum staí tll annars hvar
sem er í bænum; 5 manns fyrir
sama og einn. Allir farþegar á-
byrgstir, alllr bílar hitat5ir.
Sfml 23 80« (8 Ilnnr)
Kistur, töskur o ghúsgagna-
flutningur.
Tt *' J T:» I, V r r i Tf'
' '„-3E
*-» - -------——
S’-JáiCltó/ ^
G5TÍC"
: . ... U
S. S. WOLVERINE
will make round trips to Norway House, leaving Sel-
kirk every Monday at 3 p. m.. — Also special Week -
End trips to Berens River and Big George’s Island,
leaving Selkirk every Friday 7.30 p.m.
FARES ROUND TRIP TO NORWAY HOUSE
$24*00
BERENS RIVER and BIG GEORGE’S ISLAND
$16.00
Prices for other points on the lake and all other in-
formation available at
NORTHERN FISH CO., LTD.
SELKIRK, MANITOBA
and
VIKINC PRESS LTD.
853 SARCENT AVE., WINNIPEG