Heimskringla - 12.10.1932, Qupperneq 2
2 BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 12. OKT. 1932.
FRÁ fSLANDI
(Eftir heimanblöðum frá 4.—
14. september.)
Siglufirði 2. sept.
Mikil síldveiði síðustu daga
og í morgun hafa allmörg skip
komið inn með síld. Síldin hefir
í dag og í gær verið tekin hér
úti skamt frá landi. Hafa torf-
urnar verið gríðar stórar og
mörg skipanna sprengt herpi-
aótina.
í dag hefir verið hér gott
veður, en sjór vaxandi, og nú
(kl. 17.30) má heita að komið
*é stórbrim. Veiðiskip eru nú
sem óðast að koma inn. Þar á
meðal liggja Kveldúlfsbotnvörp
ungarnir allir hér.
Þorskafli góður.
* * *
Siglufirði 10. sept.
Búið var að verka hér í gær-
kvöldi 87,754 tunnur af salt-
sfld, 24,518 af krydd- og sykur-
saltaðri síld, 38,901 fyrir Þýzka-
Ungfrú Jessie Marie De Both
landsmarkaðinn, 8,643 hreins-
aða og 716 tn. af millisíld.
Ríkisverksmiðjan hefir tekið
ið 137,000 málum síldar, en
fljaltalín 37,860 málum.
Talsvert hefir borist að af
■íld síðustu dagana, og virðis*
era skamt undan, en veður er
ihagstætt.
FlestÍT hafa nú lokið við að
salta það, sem þeir ætla sér. —
'jangmest af síldinni hefir ver-
ið sent út nokkurn veginn jafn-
óðum eða fer í næstu viku. —
Mun mest af því, sem farið er,
vera selt. Talsvert liggur þó eft
ir, en einvörðungu seinsöltuð
íld. Saltsíldarverð um 14 kr.
tunnah.
Reknetaveiði er ekkert stund
ið upp á síðkastið, en rekneta-
veiði Norðmanna sögð allgóð.
Norsku skipin munu nú flest
farin af stað áleiðis til Noregs
eða komin þangað.
Þorskafli ágætur þessa viku.
Hafa bátar aflað upp í 10—11
þúsund pund í róðri.
¥ ¥ ¥
Seyðisfjörður.
Verzlunarmannafélag Seyðis-
iarðar hefir gefið út bækling
með myndum um Seyðisfjörð,
'egu kaupstaðarins, atvinnu-
'iætti o.fl.—Er bæklingur þessi
á íslenzku og þrem erlendum
fungumálum. Efninu er skift
'iður í kafla og hefir hver sína
'yrirsögn: Höfnin, Flughöfn,
'^eðrátta, Bærinn, Sjúkrahúsið,
Banki, Vélasmiðja, Verzlun og
siglingar, Framtíðarmöguleikar
■'g Ferðamenn.
¥ ¥ ¥
Sólskin í gær 10.7 stundir. -—
Yfirlit: Grunn lægð yfir Norð-
urlandi, á hægri ferð austur
eftir. Alldjúp lægð yfir Bret-
landseyjum. — Horfur: Suð-
vesturiand, Faxaflói: Breytileg
átt og hægviðri. Smáskúrir. —
Breiðafjörður, Vestfirðir, Norð-
urland: vestan og norðvestan
gola. Norðausturland, Austfirð-
ir, suðausturland: Hæg vestan-
átt, léttskýjað.
¥ * *
Þjóðverjinn Walter Grieg,
rithöfundur, sem getið var um
hér í blaðinu á dögunum í sam-
bandi við kvikmyndatöku hér
á landi, til að auglýsa ísland
sem ‘ferðamannaland”, er nú
kominn hingað til bæjarins. —
Hefir hann kynt sér bæinn og
nágrennið að nokkru, og kveð-
ur góð skilyrði fyrir hendi að
beina ferðamannastraum hing-
að, ef eitthvað sé gert til þess
að auglýsa bæinn og hið fagra
umhverfi hans.
¥ ¥ *
Kveldúlfsbotnvörpungarnir.
Skallagrímur og Þórólfur eru
hættir veiðum og koma síðdegis
í dag eða nótt. Skallagrímur
hefir aflað alls 15,600 mál, en
Þórólfur 16,700 mál síldar. —
Hinir Kveldúlfsbotnvörpungarn-
ir munu hætta veiðum næstu
daga.
¥ ¥ ¥
Síldarútflutningurinn
í ágústmánuði s.l. nam 86,160
tunnum,, verð kr. 1,599,900, en
á tímabilinu jan.—ágúst 107,766
tn., verð kr. 1,944,940. Á sama
tíma í fyrra 85,357, verð kr.
býr til sína bragðjúfu
Epla Snúða
með
Magic
Baking Powder
"‘Þegar ung húsmóðir
spyr mig að því hvaða
Iyfti duft hún eigi að
nota” segir ungfrú De
Both, forstöðukona
nafntoguðu De Both
Home Makers’ Cook-
ing Schoois, ”þá er
ráðlegging mín þessi: notið það bezta
—það, sem er hreint, jafnt að gæðum
og óbrygðult. Þér getið ekki notað
hinar lægri tegundir og búist við
jöfnum árangri.
“Reynsla min með Magis hefir
verið einkar farsæl. Eg hefi fundið
að það er ekki breytilegt að gæðum
og að það bregst aldrei. Svo veit eg
að það er laust við öll skaðleg efni.”
Vitnisburðir annara vel þektra
matreiðslusérfræðinga eru í fullu
samræmi viö þessa niðurstöðu ung-
frú De Both. . . .
I sannleika notar meiri hluti allra
fæðu sérfræðinga og matreiðslu
kennara í Canada einvörðungu Magic
og mæla meö því.
EPLA SNtJÐAR
1 pottur af mjöli 1% bolli af mjólk
2 teskeibar Magic Sykur
Bakíns: Powder Kanel
H teskeiti af salti Epli
2 matskeibar af smjöri
BlandítS saman í skál, mjölinu lyfti
duftinu og saltinu. Núih smjörinu
út i þaö. Helllö i betta mjólkinni
kaldri unz deigió er lint. BreitSiö
út á mjölbornu bortii. SkerltS i
ferhyrninga. Afhýöiti og kjarna-
skeriti epli og leggit5 á ferhyrning-
inn. Fylliti kjarnaholuna metS litlum
bita af smjöri, sykrl og örlitlu af kan
el. VefjitS svo ferhyrnlngunum upp í
snútSa utan um eplitS og athugitS
vel atS þati sé vel hulitS svo atS
hvergi sjál í þatS, því gufan innan
í snútSnum bakar eplitS metSan deig-
itS er atS bakast. RjótSritS svo dá«
litlum rjóma yfir og bakitS í metSal
heitum ofnl 400° F. í 40 mínútur.
FrarareitSitS met5 rjóma og eplalög.
I*»ud A«MW(J by \
iZA'AK 0—Iq 1
Quttelaútcíníiílaie
-j, MA.vrA(v*r.»y
ChcteUwi* Æ<xQQiine S
LauNt vi9 Alfin”
I»eMMÍ Ntfliihipfins;
A hverjum hauk
er yfiur trjKKlns;
fyrir . J>vf . afi
3f a k I c Bakin^T
Powder er lanMt
vlfi Alfin iinn-
ur Mkafileflr efnl.
Msd« is Coaadfl
MATREIÐSLTJBÓK ÓKEYPIS—Fyrir
heimabökun, fáið þér allskonar for-
skriftír i hinni njrju Magic Cook
Book, fyrir ýmiskonar ljúffenga
matarbökun. Skrifið Standard Brands
Ltd., Fraaer Ave. & Liberty St.,
Toronto Ont.
Rvík 9. sept.
Gísli fsleifsson
’krifstofustjóri í fjármáladeild
stjórnarráðsins andaðist 9. sept.
í Landakotsspítalanum, eftir
langvinnan sjúkleik og miklar
þjáningar.
¥ * *
Hannes S. Blöndal, skáld
og bankaritari andaðist 9. sept.
í Landsspítalanum, eftir stutta
legu.
¥ ¥ *
Rit Jónasar Hallgrímssonar.
Anað bindi af ritsafni þessa
ástsælasta skálds íslenzku þjóð-
arinnar, er nú komið út. Eru
í þessu bindi sendibréf skálds-
ins til vina og kunningja, og
mun margan fýsa að kynnast
þeim. Bókar þessarar verður
nánar getið síðar.
* ¥ *
Frú Anna Bjarnardóttir
frá Sauðafelil er nýlega komin
heim, eftir að hafa dvalið í
sumar á Englandi og Skotlandi,
með styrk frá Alþingi, til þess
að kynna sér þar fræðslumál.
Heimsótti hún marga skóla og
var á landsþingi félags þess á
Skotlandi (Scottish Association
for Mental Welfare), er berst
fyrir bættum mentunarskilyrð-
um vanþroska barna.
* ¥ *
Séra Benjamín Kristjánsson
og frú hans eru nýkomin heim
frá Vesturheimi. Hefir hann,
sem kunnugt er, verið þjónandi
prestur þar vestra um fjögra ára
skeið. Er séra Benjamín talinn
einna atkvæðamestur hinna
yngri kennimanna vorra, og
munu margir fagna heimkomu
hans.
* ¥ *
Akureyri 10. sept.
Prestkosning
í Grundarþingum fer fram
sunnudaginn 23. þ. m. 1 kjöri
verða aðeins tveir: séra Benja-
mín Kristjánsson frá Ytri-
Tjörnum og Gunnar Jóhannes-
son cand. theol. frá Fagradal.
* ¥ *
Rvík 12. sept.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 9 stig, ísa-
firði 6, Akureyri 8, Seyðisfirði
4, Vestmannaeyjum 8, Stykkis-
hólmi 8, Blönduósi 7„ Hólum í
Horpafirði 7, Grindavík 9, Fær-
eyjum 4, Julianehaab 7, Jan
Mayen 1, Angmagsalik 2, Hjalt-
landi 10, Tynemouth 13 stig.
(Skeyti vantar frá Raufarhöfn)
— Mestur hiti hér í gær 10 stig
og minstur 6. Úrkoma 0.7 mm.
2,367,800.
¥ ¥ ¥
Áfengisbruggun.
Aðfaranótt laugardags setti
lögreglan mann nokkurn í varð
hald fyrir áfengisbruggun. —
Annan mann setti lögreglan í
varðhald, sem hafði ólöglegt á-
fengi í fórum sínum.
* * *
Útflutningur á saltfiski.
Útflutningur á verkuðum salt
fiski nam í ágústmánuði s. 1.
8,428,760 kg„ verð kr. 3,291,-
980, en á tímabilinu jan.—ág.
38,081,250 kg„ verð 13,229,050,
en á sama tímabili í fyrra 33,-
707,720 kg„ verð kr. 12,962,210.
Útflutningur á óverkuðum salt-
fiski nam í ágústmánuði s. 1.
424,830 kg„ verð 99,890, en á
tímabilinu jan.—ágúst 12,664,-
130 kg„ verð kr. 2,492,630. Á
sama tíma í fyrra 11,268,350
kg„ verð kr. 2,929,300.
* * ♦
Af Landbúnaðarafurðum
var flutt út í ágústmánuði s.l.
sem hér segir: Lax fyrir 2,710
kr.; æðardúnn fyrir 20,740;
hross fyrir 25,690; freðkjöt fyr-
ir 5340; ull fyrir 86,660; sútað-
ar gærur fyrir 1,770; söltuð
skinn fyrir 440 og hert skinn
fyrir 13,840. Samtals 157,190
kr. — Útflutningurinn nam alls
5,839,900. — Geta ber þess að
lítið af landbúnaðarvörum er
jafnaðarlegast flutt út í ágúst-
mánuði. — Fróðlegt væri að fá
safnað skýrslum um sölu inn-
lendra landbúnaðarafurða í
landinu mánaðarlega.
* * *
f Vestmannaeyjum
er nú stöðugt róið til fiskjar.
Er fiskurinn lagður í enskan
botnvörpung, Cylvida, sem fisk-
sölusamlagið Ægir hefir tekið
á leigu. Fer hann sennilega af
stað áleiðis til Englands á morg
un í fyrstu ferð sína. Samlagið
á von á öðrum botnvörpungi
enskum til fisktöku innan
skams.
* * *
Byggingarsamvinnufélag
Reykjavíkur.
Þriðjudaginn 6 september var
stofnað í Reykjavík félag, sem
heitir Byggingarsamvinnufélag
Reykjavíkur. Stofnendur voru
um 100. Félagið var stofnað
samkvæmt lögum um Bygging-
arsamvinnufélög frá síðasta Al-
þingi. Tilgangur félagsins er að
koma upp íbúðarhúsum fyrir
félagsmenn, að safna eigin fram
lögum félagsmanna og reka
lánastarfsemi. Staðfesting ríkis-
stjórnar er fengin á því, að fé-
lagið fái ábyrgð ríkissjóðs á
þeim lánum, er það tekur, í
samræmi við lögin um Bygging-
arsamvinnufélög. 1 stjórn voru
kosnir: Formaður Þórður Eyj-
ólfsson lögfræðingur, ritari Ey-
steinn Jónsson skattstjóri, gjald
keri Brynjólfur Stefánsson skrif
stofustjóri og meðstjórnendur:
Stefán Jóh. Stefánsson hæsta-
réttarmálflm. og Fritz Kjartans
son verzlunarm. I varastjórn
voru kosnir Gunnar Viðar hag-
fræðingur, Valtýr Blöndal lög-
fræðingur og Axel Sveinsson
verkfræðingur. Endurskoðend-
ur voru kosnir Tómas Jónsson
lögfræðingur og til vara Stefán
Rafnar bókari.
* * *
Skólaganga atvinnulausra
unglinga.
Guðrún Lárusdóttir vakti
máls á því á fundi bæjarráðs 9.
þ. m„ hvort bærinn gæti ekki
stuðlað að því áð atvinnulausir
ungir menn hér í bænum gætu
fengið aðstoð til skólagöngu eða
einhvers náms. Bæjarráð fól
borgarstjóra, Guðrúnu Lárus-
dóttur og einum manni úr at-
vinnu úthlutunamefnd að at-
huga það mál og ræða um það
við kenslumálaráðherrann.
¥ ¥ *
útflutningur ísl. afurða
nam í ágústmánuði síðastliðn-
um kr. 5,839,900, en á tímabil-
inu jan.—ágúst kr. 24,700,900.
Til ágústloka í fyrra nam út-
flutningurinn kr. 26,356,000, en
1930 kr. 31,896,000 og 1929 kr.
35,894,950.
* * ¥
Aflinn
nam þann 1. sept. samkvæmt.
skýrslu Fiskifélags íslands 53,-
233 þurrum smál. Á sama tíma
í fyrra nam aflinn 63,191, 1930
66,389 og 1929 58,682 þurrum
smálestum.
¥ ¥ ¥
Fiskbirgðir
námu þann 1. sept. samkvæmt
reikningi gengisnefndar 26,624
þurrum smál., á sama tíma í
fyrra 42,263, 1930 34,781 og
1929 23,880 þurrum smál.
* * *
100 ára öldungur.
Á morgun, 7. þ. m„ á Kristj-
án Ásmundsson í Víðigerði í
Hrafnagilshreppi í Eyjafirði,
100 ára afmæli. í blaðinu Degi
á Akureyri segir svo: ‘‘Þrátt
fyrir þenna háa aldur hefir
hann enn ferlivist, en sjón hans
og heyrn er nokkuð tekið að
daprast. Kristján hefir alla tíð
verið vinsæll maður og vel lát-
inn. Hann var elztur systkina
sinna og er nú einn á lífi. Bróð
ir hans var Ásmundur “fóta-
iausi”, er fór til Ameríku. —
Kristján Ásmundsson hefir lengi
dvalið í Víðigerði á vegum dótt-
ur sinnar og dóttursonar, Hann
esar Kristjánssonar bónda þar.
* * *
Taugaveiki
hefir komið upp á ný á bænum
Skriðu í Hörgárdal, að því er
Akureyrarblöðin herma þann 1.
þ. m.
* * *
Dr. Páll E. Ólason
fyrv. aðalbankastjóri Búnaðar-
bankans, hefir verið settur
skrifstofustjóri í fjármálaráðu-
neytinu fyrst um sinn. Hafði
Gísli ísleifsson, skrifstofustjóri
ráðuneytisins, fengið missiris-
hvíld frá störfum sínum sök-
um veikinda. Er láts hans get-
ið á öðrum stað hér í blaðinu.
¥ ¥ ¥
FerSafélag fslands
hefir í hyggju að efna í haust
til sýningar, á allskonar áhöld-
um og útbúnaði til ferðalaga,
og hefir verið farið fram á að
bæjarstjómin lánaði félaginu
sundhöllina í þessu skyni. Sýn-
ing þessi verður sennilega opn-
uð í nóvember. í sambandi við
þessa sýningu er ráðgert að
hafa sýningu á “amatör’-ljós-
myndum.
BANNLÖG OG ÁFENGIS-
NAUTN Á ÍSLANDI
Brot úr skýrslu héraSslæknis.
Eftir Stgr. Matthiasson.
Mér dylst það ekki að of-
drykkja hefir farið í vöxt í
héraðinu á síðustu árum, eink-
um meðal yngri manna — og
kvenna einnig nokkuð. Margir
unglingar hafa fallið í freistni
fyrir Spánarvínunum og lært á
þeim að drekka. En nú hefir
bæzt í búið, í þessu læknishér-
aði eins og fleirum, ef ekki
flestum héruðum lands vors,
ný tegund görótts drykkjar, er
“Landi” er kallaður hér í sveit
og líklega svipaður “Höskuldi”
syðra. Það er misjafnlega látið
af vörugæðunum, en suma hefi
eg heyrt hrósa þessum íslenzka
iðnaði og telja það framför
mikla, sem margur hefði efast
um fyrir 30 árum síðan, að ís-
lenzkir, óbreyttir og óskóla-
lærðir sveitamenn mundu nú
geta framleitt brennivín, engu
lakara en danskt kornbrenni-
vín, bæði handa sjálfum sér og
jafnvel handa sjálfum verzlun-
arstjórunum í kaupstaðnum. —
Ekki vantar gáfurnar hjá vorri
frjálsbornu þjóð.
Sá orðrómur gengur hér á
Akureyri, að vínverzlun ríkis-
ins hér í bæ hafi sí-minkandi
aðsókn og afsetningu, síðan
“Landinn” fór að útbreiðast,
ýmist gefins eða með gjafverði.
Einnig heyri eg því hrósað, að
þetta íslenzka vín hafi þegar
dregið nokkuð úr innsmyglun
brendra drykkja frá útlöndum.
Þykja það að vissu leyti góð
tíðindi, úr því útlend munaðar-
vara á að bannfærast og við-
kvæðið er “styðjið íslenzkan
iðnað”.
Það er fyrst á þessu ári 1931
sem við læknar héraðsins höf-
um orðið varir við “landann”.
Eg hefi nokkrum sinnum séð
menn ýmist góðglaða eða vel
drukna af þessu heimabruggi.
— . í nokkur skifti hefir mér
verið boðið að bragða, og hefi
eg þá, hlýðandi orðum postul-
ans, “reynið og prófið alla
hluti”, og meðfram af embætt-
isskyldu, sopið á til að forvitn-
ast um drykksins bragð og
varasömu náttúru. Það hefir
í tvö skifti vakið furðu mína,
hve vel hefir tekist bruggunin,
en einnig hefi eg séð gráleita
og grugguga blöndu, er mér
fanst ódrekkandi. Eg skal þó
taka það fram, að hvorki hefi
eg né aðrir læknar héraðsins
enn orðið varir við, að neinum
hafi orðið meira meint af “land
anum” en venjulegu útlendu
brennivíni, enda hér tæplega
verið um annað að ræða en
etyl-alkohól, þar sem efnin eru
aðeins sykurblanda og ger. —
Hins vegar er fyrirsjáanlegt að
þessi leyni-iðnaður geti haft
margt ilt í för með sér. 1 sveit-
um, þar sem einmitt eru miklu
meiri brögð að heimabruggun
en í kauptúnunum, þar hefir
um langa hríð verið lítið um
vínföng, svo að meginþorri
mamyji, einkum þeirra yngri,
hefir lítið eða ekki orðið fyrir
freistingum. Nú er eins og upp-
spretta sé fundin, þar sem öll-
um býðst ódýr, ginnandi drykk
ur. — Hér er svipuð hætta á
ferðum og þegar mislingar og
ViSS MERKI
eru vottur um sjúk nýru. Gin Pills
bæta fljótt og gersamlega, þar sem
þær verka beint en þó þægilega &
nýrun — og þannig bæta, lækna og
styrkja þau. Kosta 50c í öllum
lyfjabúðum. 132
aðrar farsóttir koma að landi
eftir langt hlé. Þá verður sóttin
miklu magnaðri en elli.
Líkt verður hér um brenni-
vínið, sem snögglega sprettur
upp að mönnum því nær óvör-
um. Menn glæpast á því, eins
og af barnaskap, óvanir þeirri
hættu, sem af því stafar, að
láta ginnast af tælandi áhrifum
þess og kunna sér ekki hóf.
Menn læra að drekka í laumi
— í einlægum feluleik, sem esp-
ar og örvar ástríðuna, er ann-
ars dottaði í kyrþey. —
Mér er sagt, að sumstaðar í
sveitum séu að verða svo mikil
brögð að heimadrykkjuskap, að
húsmæður beri sig illa og
kvarti sáran yfir því. Sagði einn
kunningi minn, að nú væri að
upprenna ný öld. “Áður komu
menn fullir úr kaupstað — nú
koma þeir fulilr úr sveitinni”.
Um Akureyri kvað Gröndal
forðum: “enginn þaðan fullur
kemst”. Skyldi þetta vísuorð
eiga eftir að snúast upp á sum-
ar sveitirnar.
Það þarf vissulega hið allra
fyrsta að leita snjallra ráða til
að kveða niður laumubruggið
í landinu. Til þess gagnar ekk-
ert að senda andstyggilega þef-
ara og njósnara út um landsins
bygðir og inn á heimilin. Það
gerir aðeins ilt verra.
Ekki er eg heldur trúaður á
að það hafi nokkra þýðingu, að
fara að skerpa á ný refsiákvæði
bannlaganna, t. d. með því að
hóta hýðingum og líflátshegn-
ingum, heldur hygg eg að
fyrsta stigið ætti að vera algert
afnám bannlaganna, og að síð-
an verði tekin upp ný og mann-
úðlegri stefna í baráttunni gegn
áfengisbölinu, og heppilegast
að ríkið taki algerlega að sér
tilbúning á öllum spíritus og
annist alla útvegun og sölu vín-
fanga.
Það hefir löngu sýnt sig, að
þjóð vor hvorki vill né getur
hlýtt hinum ströngu bannlög-
um, og að yfirvöldin hvorki
vilja né geta framfylgt þeim
sem skyldi. Þrátt fyrir röskar
tilraunir vors gáfaða og rögg-
sama fyrverandi dómsmálaráð-
herra (að honum ólofuðum fyr-
ir sumt annað), varð aðeins
litlu áorkað, og er vart trúlegt
að öðrum takist betur. Þeir
drukku karlarnir eftir sem áð-
ur — brensluspritt, “glussa”,
hárvatn o. fl. þegar ekki fékst
annað. En nú hefir versnað um
allan helming, síðan “landinn”
kom til sögunnar — líklega ein-
mitt fyrir tilstilli alls dugnaðar-
ins.
Bannið hefir orðið samskonar
hneyksli hjá okkur eins og hjá
þjóðunum þremur, sem ilu heilli
Allar framfarir eru breytingar, en
allar breytingar eru ekki framfarir
En hvenær sem breytt er til og notuð
MODERN
PURE MILK
er breytingin til hins betra — sannið
það með reyslunni.
SÍMIÐ 201 107
“Þér getið þeytt rjómann en ekki skekið mjólkina.”