Heimskringla


Heimskringla - 12.10.1932, Qupperneq 3

Heimskringla - 12.10.1932, Qupperneq 3
WINNIPEG 12. OKT. 1932. HEIMSKRINGLA 3 BLAÐStÐA « CANADIAN PACIFIC STEAMSHIP LINES [Ferðir til ættlandsins ódýrar fljótar og þægilegar MEÐ Canadian Pacific Steamships Vikulegar fer«ir frá Montreal til Glasgow. Ný og stór eimskip meti rúmmiklum og björtum herbergjum. Gott fæöi, kurteis þjónusta, hljómleikar, skemtanir og leikir. Vér ráöstöfum vegabréfum og öörum skjölum. Landgönguleyfi fyrir konur og yngri börn, ennfremur trúlofaö fólk. Þriðja farrými til Reykjavíkur, aðra leið $98.50 — báðar leiðir $167.00 Peningnr Hemllr <11 nllrn Ktafin I veröldlnnl. Eftir fullkomnum upplýsingum leitiö til nœsta umbotSsmann eba skrifib á íslenzku til: — W. C. CASEY, Sten innhip General Pnn«enger Agent 872 Mnin St., WinnlpeK, Man. Phone 22 935 Pbone 25 237 HOTELCORONA 20 Room* Wllh Bath Hot and Cold Water in Bvery Room. — $1.60 per day and up. Monthly and Weekly Rates on Request Cor. Main & Notre Dama East WINNIPEG, CANADA að komast í samband við bygð frá jökultindinum, til þess að ráðlegt sé að hafa þar vetrar- setu fyrir aðeins tvo menn. Þá hefðu þeir átt að vera þar ein- ir þrír eða fjórir. inleiddu svipuð þvingunarlög. — Norðmenn og Pinnar hafa nú séð að sér og afnumið þenna ó- fögnuð, og ættum við að fara að dæmi þeirra og verða Banda- ríkjunum til fyrirmyndar. — Geti “landinn” orðið til þess að flýta fyrir afnámi bannsins, átti hann vissulega erindi í lónið. Prá sjónarmiði vínhneigðra alþýðumanna má skoða fram- komu “landans” á sjónarsviði sögu vorrar, sem hugulsama forsjónarinnar jafnréttfstilhög- un til bráðabirgða. — Pátæki maðurinn hefir fengið sinn “snaps’’ eins og hann æskti eft- ir, og getur nú kotroskinn skál- að við hina mörgu samseku, sí- brotlegu viskýsmyglandi höfð- ingja landsins, sem hafa svo að segja getað lifað og leikið sér fyrir öllum bannlagavörðum eins og engin bannlög væru til, meðan hins vegar hinir til- komuminni urðu að sætta sig við suðuspritt, “glussa’’, pólitúr og annan óþverra, en fara í steininn ef uppvíst varð um smyglun heilnæmari drykkja. íslendingur. ATHUGANASTÖÐIN Á SNÆFELLLSLJÖKLI. (Eftir Mbl. 8. sept.) Prófessor Mereanton frá Zu- rick, sem fór vestur á Snæfells- nes um daginn, til þess að koma athuganastöðinni á fót uppi á Snæfellsjökli, er kominn hing- að til bæjarins fyrir nokkrum dögum. Hann fer héðan með Lyru í dag. Hann hefir sagt blaðinu svo frá ferð sinni: Eins og kunnugt er, lentum við í hinum mestu óveðrum þarna vestur á Snæfellsnesfjall- garðinum. Við gátum komið farangrinum upp undir jökul. . En allur flutningur upp á jök- ulinn var óframkvæmanlegur dag eftir dag. Og enda þótt tek ist hefði að koma t. d. efniviðn- um í húsið upp á jökul, þá var sífelt svo mikið hvassviðri þar uppi, að engin tiltök hefðu ver- ið að reisa húsið. En meðan rikið, rigningin og þokan var á jöklinum, var því sem næst ó- mögulegt að fara með hesta á jökulinn. Því þó hestarnir reynd ust okkur hinir beztu meðan þeir fóru um auða jörð, þá voru þeir staðir og lítt viðráð- anlegir í þoku og roki á jökl- inum. Við þá reynslu, sem við feng- um um veðráttuna á jöklinum, komumst við að þeirri niður- stöðu, að ómögulegt væri að reisa stöðina uppi á efsta jökul- tindinum. Pyrst og fremst hefðu flutn- ingarnir þangað orðið alt of erfiðir. f öðru lagi, og á þvf valt mest, þá er sýnilegt,* að athuganir á jöklinum hefðu orðið altof stopular, vegna þess hve oft er þokuhnúfur á tind- inum, þó bjart sé uppi yfir að öðru leyti. í þriðja lagi er það of erfitt Því ákváðum við að reisa itöSina við litla gígi, sem standa upp úr jöklinum á 850 m. hæð. Það eru ekki hinir svonefndu Þríhyrniingar, eins og sagt hef- ir verið, heldur eru þessir gígir nokkurn veginn beint í austur frá tindinum, og er þaðan út- sýni gott bæði til Breiðafjarð- ar og Faxaflóa, en það er til hæginda fyrir þá, sem athugan- irnar annast. Gígir þessir eru ekki tilgreind ir á uppdrætti herforingjaráðs- ins, hafa ef til vill verið jökli huldir, er uppdrátturinn var gerður. Prófessor Mereanton bjóst við því, að stöðin mundi verða komin upp um næstu helgi. — Sjálfur gat hann ekki verið lengur þarna vestra, sakir starfa er bíða hans heimafyrir. Vélamaðurinn la Cour verður við stöðina fyrst um sinn, fram í næsta mánuð. En er hann fer, verða þar tveir, dr. Ziing hinn svissneski og danskur loft- skeytamaður, Jensen að nafni. ORÐIÐ “FRÁ” í sambandi við mannanöfn. Til auðkennis menn fest sér fá “frá” með skírnarnöfnum. Davíð og Sigfús finnast “frá’’ Pagraskógi og Höfnum. Bjarna frægan bent skal á, — bjó um lífstíð heima. Var sá nefndur Vogi “frá”, vænn í minni að geyma. Jóns “frá’’ Sleðbrjót minnast má, mælskugarpsins slynga; hann og og Jónas Hriflu “frá” héldu til Alþinga. Menn nafnkenda minst hef á, mörgum víst þó gleymi. Kunnur er Jónas Kaldbak “frá’,’ sem kveður í Vesturheimi. Einn að lokum eg finn þá, efni ljóðs míns skýri. Kvað margt fagurt karlinn sá. kallaður Jón “frá” Mýri. Við nafn mitt á eg ekkert “frá”, og ei er við bæ neinn kendur. Ungur hélt eg höfin á úr Höfh við íslands strendur. Hef nú orðið hærugrár, um hrakning ei þó dreymi; í fjörutíu og fögur ár á ferð í Vesturheimi. Ef kemst sem gestur ættland á áður í jörð er falinn, “frá” Winnipeg þar verð eg þá vitanlega talinn. Pramandi mig fyndu þ£ frændur og æskuvinir; og auðkendur með orðinu “frá” yrði eg loks sem hinir. Gott er heimsins öldum á, með auðkennum og nöfnum, ættlands vors að finnast “frá” Fagraskógi og Höfnum. BALDUR GUÐJOHNSEN Hinn 8. maí 8.1., andaðist að heimili sínu í Seattle, Wash., einn af okkar mætu Islending- um, Baldur Guðjohnsen. Hann var fæddur á Húsavík í Suður- Þingeyjarsýslu 19. nóvember 1879, og var því á 53. aldurs- ári er hann dó. Hann dó af krabbameini. Faðir Baldurs var Þórður Guðjohnsen, um langt skeið verzlunarmaður á Húsavík, og er sú ætt öllum íslendingum kunn. Móðir hans var Halldóra Sveinbjarnardóttir, systir tón- skáldsins fræga, sem öllum ís- lendingum er hjartfólginn, þeim sem enn finna hjartataugarnar titra við óma þjóðsöngsins “Ó, guð vors lands”. Alsystkin Baldurs eru: 1. Þórð ur, læknir í Danmörku; 2. Ste- fán, verzlunarmaður á Húsa- vík; 3. Sveinbjörn, formaður Sparisjóðs S.-Þingeyjarsýslu, bú settur á Húsavik; 4. Kristín, ekkja eftir Ásgeir Blöndal lækni búsett á Húsavík. Baldur var 5. og yngsta barnið af fyrra bjónabandi föður síns. Hálf- 'ystkin Paldurs eru þessi: 1. ^riðrik, búsettur í Winnipeg: 2. Selma, gift rafmagnsfræð- 'nei í Kaupmannahöfn; 3. Hall- dór, búfræðingur í Kaupmanna- höfn; 4. Halldóra, gift lækni í Kaupmannahöfn; 5. Guðrún, býr í K.höfn; 7. Sveinn Vík- ’ngur, til heimilis hjá móður sinni í Kaupmannahöfn. Baldur naut mentunar í æsku í heimahúsum, meiri en alment •?ar á þeim tíma, því foreldrar hans héldu heimiliskennara fyr- :r börn sín. Meðal þeirra voru Kristján Jónasson og Bríet Bjarnhéðinsdóttir. Ókunnugt er mér þó hverjir kennarar Bald- irs voru. Ekki er mér heldur kunnugt um framhaldsnám bans, að öðru en því, að hann mun hafa numið skrúðgarða- ræktun (landscape gardening) í Danmörku. Árið 1900 kom Baldur vestur um haf, þá um tvítugt. Stóð bann aðeins mánuð við í Win- nipeg, hjá ættingjum og vin- um. Meðal þeirra var Friðrik hálfbróðir hans og frú Lára Bjamason, föðursystir hans, en kona sr. Jóns sál. Bjarnasonar. Prá Winnipeg hélt hann vestur að Kyrrahafi, til Seattle, og þaðan áfram til æfitýralands þeirra daga — Alaska. Eins og aðrir, sem þangað fóru, var hann auðvitað í leit eftir gulli og gæfu. Tíu árum eyddi hann í þá leit, því þrautseigja íslend- ingsins knúði hann til þess aö gefast ekki upp fyr en að full- reyndu. Þessi tíu ár munu þó hafa gefið honum gullið af skornum skamti, en af æfintýr, um og mannraunum fann hann gnægð, og sé gæfa manns fólg- in í þroskun eigin manndóms, mun hann áreiðanlega hafa afl- að hennar í þessu tíu ára stríði í Alaska. Til Seattle kom hann aftur úr útlegðinni árið 1910. Þar bjó hann síðan til dauðadags. Árið 1918 kvæntist hann ungfrú Salóme ólafsdóttur, Kristjáns- sonar, frá Múla í Gufudalssveit í Barðastrandarsýslu. Móðir Salóme var Guðrún Aradóttir, en Ari var föðurbróðir Björns Jónssonar, ritstjóra Isafoldar. Tvö börn eignuðust þau Bald- ur og Salóme, pilt og stúlku — óskabörnin. Þau heita Baldur Óðinn og Ása Þóra, falleg og mannvænleg börn. Ekki verður um það vilzt að þessi nöfn eru íslenzk, né heldur hitt, að ást og virðing foreldranna fyrir þjóðerni sínu voru óskert þegar nöfnin voru valin. Baldur sál. var þrekmaður að burðum og afkastaði meira en meðalmaður, að hverju sem hann gekk. Réði og skapgerð nokkru um þetta, því hann var metnaðarmaður og gerði sig ekki ánægðan með að vera meðalmaður. En þó hann legði þenna mælikvarða á sjálfan sig, var hann hógvær og sanngjarn við þá sem minni máttar voru. Aldrei varð eg var við heimsku- legt ættardramb hjá honum, og leit hann víst svo á, að rétt- mætt stolt hvers manns ætti að hvfla á eigin atgervi og af- rekum. Bar hann því höfuðið hátt hvar sem hann fór. Odd- borgarahátt og hræsni hataði hann og fyrirleit. Hann var því aldrei myrkur í máli né dulur á skoðanir sínar, við hvem sem hann átti. Félagslyndur var hann og starfaði með alúð og ósérplægni að þeim félagsmál- um, sem hann tók þátt í. Hann var einn af stofnendum íslenzka lestrarfélagsins “Vestri” í Se- attle fyrir liðlega 30 árum síð- an, og hélt trygð sinni við það félag til hins síðasta. Munu fé- lagsmenn lengi minnast hans með söknuði. Hann var skemti- lega máli farinn og tók oft þátt í kappræðum eða flutti er- indi. Sönghneigður var hann, eins og hann átti kyn til í báðar ættir. Var hann því ætíð sjálfsagður að vera með, þegar íslendingar höfðu um hönd söng. íslenzkri tungu unni hann og vildi láta börnin læra hana. Enda var hann einn af kenn- urunum við íslenzkuskóla, sem haldið hefir verið uppi af lestr- urfélaginu nú nokkur undanfar- in ár. íslenzkur féjagsskapur í Seattle hefir mist mikils við fráfall hans. Trúmaður var Baldur á sína vísu, en kirkju- maður enginn. Ætti það að vera kirkjumönnum alvarlegt íhug- unarefni, hve mörgum einlæg- um og góðum mönnum er þann ig farið nú á dögum. Samt starfaði hann talsvert með frjálslyn’du kirkjunni hér, þó bann gerðist ekki meðlimur hennar. Munu þau hjón hafa hallast að Christian Science kirkjunni, og þó einkum Mr. Guðjohnsen. Pór jarðarför Bald- urs fram undir umsjón þess fé- lagsskapar, er sýndi Mrs. Guð- ’öhnsen mikla velvild og hlut- tekningu í sorg hennar. Eg, sem þetta rita, var beðinn að faka þátt í athöfninni, og var mér það ljúft. Heyrði eg það haft á orði á eftir, að athöfnin hefði 'verið ein samstæð heild, þó tveir kirkjuflokkar væru þar að verki. Get eg þessa aðeins fyrir þá sök, að mér finst það miklu máli skifta, að menn veiti því athygli, hve eðlilega rííkar stundir feykja burtu froðuhjómi sérskoðananna af1 yfirborði trúarlífsins, og sam- j eini menn í dýpri skilningi á j því, að undir yfirborðinu er! The Marlborouáh ,!Helzta Hotel Winnipeá-boréar SJEBSTAKUB MIÐDAGSVEBÐUB, FYBIB KONUB 40c Framreiddur á miðsvölunum BEZTI VEBZLUNABMANNA MIÐDAGSVEBÐUB I BÆNUM 60c ReyniO kaffistofuna. — Vér leggjum oss fram til að standa fyrir allskonar tækifærisveizlum. F. J. HALL.ráðsmaður. Við söknum þín, Baldur. — Þökk fyrir góðar og glaðar samverustundir. Heimili þitt drúpir, því þú varst ástríkur og umhyggjusamur eiginmaður og heimilisfaðir. Börn, blóm og sönggyðjan sakna þín, því það voru þínir einkavinir og hjart- fólgnustu hugðarefni. Tvisvar á lífsleiðinni hefi eg verið návistum við Baldur Guð- Johnsen. Við lékum okkur sam- an sem litlir drengir einn sum- artíma á Húsavík. Þá fór eg til Ameríku og leiðir skildu, og lágu ekki saman aftur fyr en fyrir fjórum árum síðan, að við hittumst hér í Seattle. Þá töluðum við oft saman um “gamia landið” og sameiginleg- ar æskuminningar. Ráðgerðum við að ferðast saman “heim” til æskustöðvanna — eins fljótt og kringumstæður leyfðu. Nú verður það ekki á þann hátt, sem við höfðum hugsað okk- ur. En minningarnar eru allar ljúfar frá fyrri fundum, og þá sannfæringu áttum við báðir, að við mundum eun eiga eftir að finnast, því dauðinn væri ekki endir, heldur atvik í lífi mannsins; að skáldið Einap Benediktsson hefði rétt fyrir sér, þar sem hann segir: “Að nefna dauða er dauðlegt mál, því duft og loft er fult af sál síns guðs, í kjarnan insta inn”. Þess vegna finnast mér engin kvéðjuorð túlka tilfinningar mínar eins vel og þýzku kveðju- orðin: “Auf wiedersehen”. A. E. K. Aths: Svo var ætlað til að mynd ar Baldri heitnum fylgdi æfiminningu þessari, en sökum þess að hraða varð útkomu blaðsins í þetta sinn, var mynd- in ekki tilbúin og verður því ekki birt fyr en í næsta blaði. Ritstj. JAPAN OG MANCHURIA. straumurinn einn og stefnan ein, að: “Þú 'einn ert guð oss öllum og ein er von og trú”. Fjöldi íslendinga í Seattle j voru við jarðarförina, og létu í ljós vináttu sína og virðing með blómsveigum, sem þöktu kistuna. Hið almenna eymdarástand í heiminum, söluerfiðleikar í Ame ríku, lágt verð á silfri og nú síðast deilan um Manchuríu, hefir valdið Japönum miklum og margvíslegum erfiðleikum. Japan er í raun og veru í svo mikilli klípu, að um líf og dauða getur verið að tefla fyr- ir ríkið. — Deilan um Manchu- ríu er þess vegna mikilvægt at- riði í heimspólitíkinni,, og það er víst að Japanir skeyta ekki eins mikið um hinn bláa himinn hugsjóna Þjóðabandalagsins í Sviss og um samningsbundin réttindi við Kína. Vér skulum ofurlítið athuga fjárhag Japana um leið og að- stæður þeirra í þessu máli. I Japan eru um 60 miljónir íbúa, hver miljón, sem bætist við ár- lega, eykur áhyggjur þeirra um afkomuna. Iðnaðinum hefir fleygt áfram og dregið fólkið til borganna, og vandræði þau, sem nú steðja að honum, valda miklu atvinnuleysi, enda þótt samheldni ættanna, sem bygg- ist á forfeðradýrkuninni dragi nokkuð þar úr. Iðnaðurinn í Japan er ungur, fljótvaxinn, næmur fyrir öllum örðugleik- um. Útflutningurinn er einhliða og verða þeir að fá öll sín hrá- efni annarstaðar frá. 40 prósent af öllum útflutningi Japana fer til Bandaríkjanna og er mest- megnis silki. Um tíma ætlaði samkepnin með silkilíki að gera þeim skráveifur, en þá tóku þeir sjálfir að framleiða silki f stórum stíl. En nú hefir eftir- spurn á silki í Bandaríkjunum stórum minkað. Af hráefnum nota Japanir 50 miljónir smá- lesta af kolum árlega, en fram- leiða sjálfir aðeins 30 miljónir. Landið þarf 2 miljón tonn af olíu, en framleiðir sjálft aðeins 300,000; það framleiðir aðeins fjórða hluta af járni því og stáli, sem til iðnaðarins fer, og af matvöru eru t. d. fluttar inn 2 milj. smálesta af baunum. Þetta tvent, mannfjölgunin og hráefnin, ráða mestu í verzlun- arpclitík Japana og náið tvinn- uð deilunni um Manchuríu. — Þegar Rússar gerðu jámbraut- ina Moskva-Wladivostock, og seinna brautina frá Harþurt til Dalmy og Port Arthur, þá drógst Manchuría inn í málið. í stríð- inu við Japan urðu Rússar að láta af hendi mikinn hluta brautarinnar frá Chanzun til Dalmy. Þessi braut varð Japön- um frjó í nýlendupólitík þeirra. Járnbrautarfélagið South Man- churia Railway Co. fékk ekki einungis leyfi til að reka hana, heldur og alt svæðið meðfram henni. Þar náðu Japanir fót- festu, sem þeir notuðu sér vel. Hlutaféð — 400 miljón yen — SYh. á 7. bls. ]}ara skolið burtu óhreinindunum... Gillett’s Lye hrífur burtu Fitu, Gráða-, og Þráa-bletti, án bursta- þvottar . . . Til hvers er að vera að slíta sér út við húshreinsun með margra klukku- tíma nuddun og burstaþvotti ? Notið Gillett’s Pure Plake Lye. Þessi kraftmikli lútur gerir fljót skil öllum þunga þvotti. Hann bara skol- ar burtu óhreinindunum! Fita og gráðablettir hverfa án þess á þá sé borinn bursti. Jafnvel þráustu óhreininda blettirnir hverfa. Hafið Gillett’s Pure Flake Lye á- valt við hendina, til þess að hreinsa með fituílát, eldhúsgólf, skólpker og baðker. Ein teskeið leyst upp í köldu vatni* er örugg og ódýr þvottablanda. * * * Og . . . Gillett’s Fure Flake Lye, skaðar hvorki glermálið eða vatnsleiðslu pípumar. Notiö það óblandað i setskálar og skólp- ræsi. GILLETT’S LYE ETUR ÓHREININDI Gillett’s Pure Flake Lye drepur sótt- kveikjur og eyðir öllum óþef. Verið vissir með að fá hið rétta GUlett’s Pure Flake Lye. Biðjið um það með nafni í verzlaninni. I

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.